5.7.2007 | 19:45
Libby-málið séð með næmum augum Steve Bell

Skopmyndateiknarinn Steve Bell hjá Guardian er algjör snillingur að teikna stöðu mála í stjórnmálum upp með í senn næmum og fimum hætti. Ég tók vænt bakfall af hlátri þegar að ég sá þessa eðalgóðu mynd hans um mál Scooter Libby. Nokkrir dagar eru liðnir frá því að George W. Bush mildaði dóm hans og útilokaði ekki að hann myndi síðar ganga alla leið og náða hann. Algjört pólitískt dómgreindarleysi hjá þjóðarleiðtoga sem er sífellt að sökkva dýpra pólitískt.
Þarna sýnir Steve Bell okkur kaldhæðnislega innsýn í málið. Pútin Rússlandsforseti hefur verið í Bandaríkjunum og verið í boði Bush í sumarbústað fjölskyldu hans í Maine. Meðal þess sem þeir gerðu var að fara í veiðiferð. Þarna sjáum við fenginn þeirra félaganna.
5.7.2007 | 18:38
Stöð 2 sker niður um fréttaþul í kvöldfréttum
Svo virðist vera sem að Stöð 2 hafi skorið niður um einn fréttaþul í kvöldfréttatíma sínum. Það vakti mikla athygli mína við að sjá fréttatímann rétt í þessu að þar var aðeins einn fréttaþulur, Sólveig Bergmann, í settinu. Svona var þetta líka í gærkvöldi. Þessi áberandi niðurskurður vekur mikla athygli í ljósi umræðunnar um að fréttastofan verði jafnvel lögð niður. Engin ákvörðun hefur þó verið tekin um það, né umræðunni um þá lokun verið neitað með áberandi hætti.
Það hefur lengi verið það mest skemmtilega við kvöldfréttir Stöðvar 2 að þar eru tveir fréttaþulir og yfirbragð fréttanna líflegra en hjá Ríkissjónvarpinu. Nú er sama yfirbragð komið á fréttir þeirra og Ríkissjónvarpsins. Einn fréttaþulur les. Þetta vekur talsverða athygli og vekur upp spurningar um hvort frekari niðurskurður sé framundan á fréttasviði 365 í ljósvakamiðlunum.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
5.7.2007 | 17:10
Minningarsjóður stofnaður um Susie Rut
Flestum er í fersku minni sterk minningarorð Einars S. Hálfdánarsonar, um dóttur sína Susie Rut Einarsdóttur, er hún var jarðsungin 26. júní sl. Þau orð vöktu mjög marga til umhugsunar um fíkniefnavandann og þann skaða sem hann skilur eftir víða í samfélaginu. Nú hafa vinir Susie Rutar stofnað minningarsjóð til minningar um hana, sem vinnur gegn fíkniefnavá með öflugum hætti.
Það er mjög virðingarvert að Susie Rutar sé minnst með þessum hætti og ég tel það glæsilegan vitnisburð um sanna vináttu í hennar garð og fjölskyldunnar. Fyrst og fremst er mikilvægt að minningu hennar sé haldið á lofti. Hún var harmdauði. Hún var öflugur félagi í flokksstarfinu og hún var dugleg og einbeitt í sínum störfum fyrir flokkinn allt til enda.
Það er mikilvægt að stofna sjóð sem byggir á baráttunni gegn fíkniefnum og til að efla forvarnir af ýmsu tagi. Með þeim hætti er best minnst Susie Rutar að mínu mati.
![]() |
Minningarsjóður um Susie Rut |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
5.7.2007 | 15:22
Er einn hryðjuverkamannanna staddur hérlendis?

Það er greinilegt að greiningardeild ríkislögreglustjóra fylgist vel með þessu máli og er þar er það metið með þeim hætti að öllu er haldið opnu og staðan könnuð. Þetta er víst staðan eins og hún er orðin. Ísland er auðvitað í aðeins þriggja klukkutíma fjarlægð frá vettvangi þessara hryðjuverka og við getum ekki búist við því að við séum utan þeirrar umræðu og eða þeirrar ógnar sem mögulega er til staðar.
Eins og ég benti á í pistli á mánudag er auðvitað algjörlega út í hött fyrir okkur að horfa framhjá þessari alheimshryðjuverkaógn. Þessi nýjustu hryðjuverk gerast í þriggja tíma flugfjarlægð frá okkur. Við erum partur af heimsmyndinni og getum ekki sagt að við séum ekki hluti af heiminum í þessum efnum. Ógnin gæti hæglega komið upp hér. Það er auðvitað hin napra staðreynd sem við verðum að taka á.
![]() |
Mál meints hryðjuverkamanns til skoðunar hjá ríkislögreglustjóra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.7.2007 | 13:03
Háspenna á Skaganum - Bjarni þurfti fylgd burt
Þetta umdeilda mark má sjá í þessari klippu. Ég trúi því hreinlega ekki að Bjarni hafi viljandi látið vaða til að skora. Það er að ég tel ekki rétt að telja að hann hafi verið svo óforskammaður og því er ekki annað hægt en að láta hann njóta vafans. Ég skil ólguna í herbúðum Keflavíkur. Þetta er atvik sem menn munu liggja yfir og hugleiða vel næstu dagana; hvernig staðið var að marktækifærinu og hvort leikmaðurinn hafi ætlað sér að skora. Það verður tekist á um það alla tíð. Fyrirfram séð verður þetta sennilega eitt af umdeildustu atvikum íslenskrar knattspyrnu um langa tíð.
Það er auðvitað alltaf hasar í boltanum. Þetta atvik sýnir vel hversu mikið líf getur átt sér á leikvangi. Ef marka má umræðuna í dag er ólgan mikil. Bjarni hefur gefið út yfirlýsingu um að markið hafi verið óviljaverk. Það er tekist á um þá merkingu nú þegar og viðbúið að hér sé eitt stærsta móment íslenskrar knattspyrnusögu komið í sögubækurnar og deildar meiningar um hvernig þetta hafi allt verið. Engin ein niðurstaða fæst í það.
Fyrir þá sem horfðu á leikinn mun þetta atvik ekki gleymast og spurningin um hvernig það hafi verið í raun og veru fylgir á eftir, sérstaklega leikmönnum Keflavíkur, sem skiljanlega eru argir. Það eru líka tímamót í boltasögunni okkar að leikmaður þurfi fylgd heim til sín. Það sýnir einfaldlega ólguna með þetta umdeilda atvik og kergjuna sem verður til staðar vegna þess, eflaust um alla tíð.
![]() |
Bjarni þurfti lögreglufylgd |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
5.7.2007 | 00:00
Dramatík á Skaganum - KR nær bara jafntefli
Sérstaklega var magnað atvik og athyglisvert þegar að Keflvíkingar spörkuðu knettinum út af hliðarlínu í seinni hálfleik til að hægt væri að líta til með leikmanni Skagamanna sem meiddist í leiknum. Skagamenn tóku innkastið og boltinn barst til Bjarna Guðjónssonar, sem skaut boltanum frá miðjunni og beint í mark Keflvíkinga. Mikill hasar var á svæðinu eftir það. En Skagamenn tóku stigin þrjú.
KR náði aðeins jafntefli í leiknum gegn Fylki og fá því eitt stig. Þeir eru því enn á botninum og hafa fimm stig eftir níu umferðir, hálfa deildina semsagt. Góð ráð eru að verða dýr fyrir þá, en enn er staða þeirra fjarri því orðin vonlaus. En þeir þurfa að bæta sig verulega til að ná alvöru stöðu. FH-ingar eru efstir með 22 stig, Valur hefur 18 stig í öðru sætinu, Keflavík hefur 17 stig í því þriðja. Næst kemur Skaginn með 14. stig, Fylkir hefur 12 stig, Breiðablik og HK eru í 6.-7. sætinu með 10 stig, Fram og Víkingur eru í því 8.-9. sæti með 8 stig og KR hefur hefur fimm stig á botninum.
Þetta verður spenna í næstu umferðum, enda toppslagurinn líflegur og vonandi mun botnslagurinn verða öflugur. Það er engum til góðs að KR falli harkalega strax og vonandi að alvöru átök verði um fallsætið. Dramatíkin var allavega mikil á þessu miðvikudagskvöldi á Skaganum en þeir fóru tvö rauð spjöld, eitt á hvort lið, er yfir lýkur. Þvílíkur hasar og skemmtilegur leikur á að horfa í kvöld á Sýn.
![]() |
Skagamenn lögðu Keflvíkinga á dramatískan hátt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 13:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
4.7.2007 | 20:08
Alan Johnston laus úr varðhaldi

Það er greinilegt að Hamas-samtökin léku lykilhlutverk í þessari niðurstöðu og tryggðu öðrum fremur að honum væri sleppt. Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, og Fatah-hreyfingin, sem hann leiðir, og hefur verið í harðvítugu valdatafli við Hamas mánuðum saman saka Hamas um að hafa notað Johnston sem leiksopp sinn til að reyna að bæta orðspor sitt á alþjóðavettvangi. Það er erfitt að segja til um það, en millileikur Hamas var allavega þeim mjög til hags, en þeim veitir varla af að bæta stöðu sína utan Palestínu, enda eru þeir litnir hornauga víðsvegar um heim.
Mikilvægast af öllu er þó að Johnston er laus úr varðhaldinu. Hann segist hafa getað hlustað á fréttir að heiman nær alla vistina, þar sem hann hafi getað hlustað á útvarpsfréttir BBC. Hann er reyndar ótrúlega vel á sig kominn, en ég horfði áðan á drjúgan hluta af fréttamannafundi hans í dag. Það verður fróðlegt að sjá hvort að Hamas skorar einhver stig á alþjóðavettvangi með lausn Johnstons.
![]() |
Alan Johnston laus |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
4.7.2007 | 17:49
Kristín stýrir framboði Íslands í öryggisráðið

Ingibjörg Sólrún hefur auðvitað valið Kristínu margoft til starfa á sínum pólitíska vettvangi, en þær hafa verið pólitískir samherjar og miklar vinkonur árum saman. Hún varð fyrsti aðstoðarmaður hennar í Ráðhúsinu er R-listinn tók við völdum fyrir þrettán árum og varð síðar skrifstofustjóri Reykjavíkurborgar í borgarstjóratíð Ingibjargar Sólrúnar.
Eins og flestum er kunnugt eiga fimmtán ríki sæti í Öryggisráðinu, þar af eru fimm með fast sæti. Þetta mál hefur alla tíð verið umdeilt og hef ég verið frekar andvígur því alla tíð. Sama má segja um Samband ungra sjálfstæðismanna, en við höfum verið ófeimin við að tjá okkur gegn málinu.
Ingibjörg Sólrún er nýkomin frá Afríku, fór þar víða á skömmum tíma. Í og með var það auðvitað fyrst og fremst ferð í formi kosningabaráttu fyrir framboðinu. Stofnað hefur verið til stjórnmálasambands við fjölda þjóða þar og nú er Ingibjörg Sólrún greinilega að fara víða um til að presentera framboðið.
Það verður fróðlegt að sjá hvernig Ingibjörgu Sólrúnu gangi að halda á þessum málum sem utanríkisráðherra. Hún hefur allavega öfluga og góða konu sér við hlið, enda er valið á Kristínu að mínu mati mjög gott.
![]() |
Kristín stýrir framboði Íslands til öryggisráðs SÞ |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
4.7.2007 | 17:16
Eigum við von á rigningu um helgina?

Ég man varla eftir þurrari sumri, það sem af er, en því sem nú stendur yfir hérna fyrir norðan. Júní var þurrastur allra í áratug hérna hjá okkur og það er staðreynd sem fékk alla bændurna á svæðinu til að raða sér upp í viðtöl við N4 og tengda miðla. Enda skiljanlegt að þeir vilji að rigni, þeirra afkoma og heill er í húfi þess að góð uppskera verði á túnunum.
Þetta verður kannski svo mikil rigningarhelgi að maður dembi sér bara í að horfa á Singin' in the Rain, hinn mikla og skemmtilega gleðigjafa frá árinu 1952. Það er mynd sem er sú pottþéttasta ef vantar gleði. Sannkölluð trygging fyrir skemmtilegheitum. Þessi mynd klikkar aldrei og ég hef dýrkað hana allt frá því að ég sá hana fyrst. Einstök að öllu leyti. Hún ætti að kæta mann jafnvel á mestu rigningardögum.
Rigningarlagið skemmtilega með meistara Gene Kelly er í spilaranum hér á síðunni. Einstaklega gott lag, sígildur brilljans.
![]() |
Þurrum góðviðriskafla að ljúka - skin og skúrir um helgina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 17:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.7.2007 | 13:51
Eftirmálar þess að Mogginn lokaði bloggsíðu
Ég stend við nákvæmlega það sem ég sagði. Þetta bloggsvæði er í einkaeigu. Þar gilda reglur og þar er standard yfir. Rjúfi menn grunnskilmálana hér geta þeir átt von á að lenda í því að lokað sé á þá. Þetta er ekki bloggkerfi án reglna og skilmála. Eins og í flestum samfélögum eru þar viss grunnur og það er skýrt hvernig það allt er hér. Ég treysti þeim hér á Moggablogginu til að stjórna þessum vettvangi með heiðarlegum hætti og standa vörð um að hér sé viss standard á umgjörðinni.
Það er auðvitað svo með opin bloggkerfi að þar safnast saman ólíkt fólk, með ólíkar aðferðir til að tjá sig. Flestir hér eru mjög málefnalegir og hafa góðar bloggsíður. Skilaboðin sem send voru héðan um daginn voru þau að þetta samfélag er ekki stjórnlaust og þar er tekið á vandamálum. Ég gat ekki betur séð en að flestir voru ánægðir með niðurstöðuna, sérstaklega þeir sem hér skrifa.
Þegar á hólminn kemur skiptir það mestu máli; að þetta bloggsamfélag haldist öflugt. Hér eiga allir sín tækifæri til að skrifa. Það má vel vera að flestir bloggarar hér hafi ólíkar skoðanir og aðferðir við að tjá sig. Mestu skiptir að haldast málefnalegur og geta rætt hlutina með heiðarlegum hætti. Án þess er ekkert vit í hlutunum.
Þannig að ég er enn sömu skoðunar eftir þetta fræga leiðindamál. Því er sem betur fer lokið og ég tel að allir viti mun betur nú en áður hver mörkin eru hér og hvernig tekið er á leiðindamálum sem skekja innviði þessa bloggkerfis. Og það deilir enginn lengur um að hér er öflug yfirstjórn sem passar vel upp á allar hliðar.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
4.7.2007 | 13:03
Stórmerkilegur brúðkaupsdagur framundan

Hér í Akureyrarkirkju stefnir sennilega í stóran brúðkaupsdag, með þeim stærri. Sex giftingar verða þann dag og sú síðasta kl. 19:00, sem er mjög skemmtileg tímasetning á þessum sjöunda degi. Þau verða allavega ekki verkefnalaus í kirkjunni.
Sá í fréttunum um daginn að það var sagt að löng biðröð hafi verið fyrir utan Háteigskirkju þegar að farið var að bóka giftingar þennan dag. Komust svo sannarlega færri að en vildu þá. Það sýndi mjög vel hversu margir vildu giftast á þessum degi.
Það er reyndar stór spurning auðvitað hvort að svo stór dagur sé hinn heppilegasti brúðkaupsdagur. Sumir vilja þannig dag, hinir vilja kyrrð og ró, eiga sinn sérstaka dag. Dag sem er ekkert meira í sviðsljósinu en aðrir helgardagar.
![]() |
Hætt við hjónavígslur 07.07.07 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
4.7.2007 | 01:42
Er Bill Gates búinn að missa dýra titilinn sinn?
Bill Gates hefur drottnað yfir viðskiptaheiminum sem ríkasti maður heims í áraraðir. Enginn hefur komist nærri honum. Nú bendir flest til þess að hinn mexíkóski Carlos Slim sé orðinn ríkari. Það eru auðvitað stórfréttir. Síðan að stóra tölvubylgjan varð að veruleika, með nýjum tímum tölvuheimsins, með tæknivæðingu Microsoft undir leiðsögn hans fyrir rúmum áratug hefur hann verið sem Guð í bransanum. Hann hefur drottnað. Áhrif hans eru óumdeild, hann hefur markað mikil spor á sínum vettvangi.
Bill Gates hefur átt meiri peninga en okkur hér dreymir um að eignast að ég tel til samans. Ríkidæmi hans hefur verið í fréttum öll þessi ár. Held að það séu litlar líkur á að einhver sem les þennan vef eða alla bloggvefi landsins geti komist yfir helming þess sem hann á. Slíkt er veldið. En ég held að okkur öllum dreymi nú innst inni um að eignast slíka fúlgu. En það er stundum ágætt bara að láta sig dreyma.
Það er annars löngu sannað að lífsins hamingja felst ekki í peningum. Ríkasti maður heims getur átt slatta af peningum en samt sem áður ekki átt neina lífshamingju. Fátækustu hjón heimsins gætu verið rík, án peninga, með sanna lífshamingju. Peningar eru ekki samasem-merki fyrir lífshamingjuna og gleði. Sú fylling lífsins kemur með hugarfarinu okkar.
Ég held að slík fúlga ræni fólk slatta af lífshamingju um leið og hún breytir hugarfarinu. Það er mitt mat. Ríki maðurinn verður ekkert sælli við að telja peninga alla sína ævi. Það er að ég tel lífsins speki.
![]() |
Bill Gates er ekki lengur ríkasti maður heims |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 01:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
4.7.2007 | 00:28
FH á sigurbraut eftir áfall - Fram pressar KR-inga
Fram vann Breiðablik í kvöld og komst úr fallhættu með sigrinum. KR vann síðasta leik sinn og bjargaði sér úr mestri hættunni þá. Með sigri Fram eykst pressan á þá aftur og þeir verða að berjast eins og ljón fyrir stöðu sinni áfram. Það verður spennandi að sjá hvort að KR nær að halda sigurgöngunni áfram eftir síðasta leik eða hvort að þeir færast enn fjær næstu liðum.
Boltinn hér heima er ekki spennandi. KA og Þór eiga í greinilegum erfiðleikum. Það er afleitt mál. Vonandi ná liðin að snúa vörn í sókn. Sérstaklega er staða KA orðin slæm og er með ólíkindum að fylgjast með lánleysi liðsins. Það er fátt gott af málum að frétta því héðan.
![]() |
Fram og FH unnu góða sigra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
3.7.2007 | 22:52
Sláandi staðreyndir um banaslys í umferðinni
Að mínu mati eru þó verstu skilaboðin af þeim öllum að birtast með þessum tölum þar sem vikið er að þætti vímugjafa, þ.e. að fólk sé undir áhrifum. Oftar en ekki gerast þá slys um miðja nótt eftir að fólk hefur skemmt sér fram eftir nóttu eða misst tök á sér með öðrum hætti. Þess eru líka dæmi að farþegar í bifreið sem er stýrt af einhverjum undir áhrifum hafi látið lífið. Þetta eru auðvitað skuggalegar staðreyndir og þær munu vonandi vekja okkur til umhugsunar.
Sem betur fer stefnir þetta ár í að verða mun betra en hið fyrra í umferðinni. Það er samt aldrei viðunandi að banaslys eigi sér stað. Sérstaklega er óviðunandi að sjá þessar tölur þar sem vímugjafar leika lykilhlutverk í banaslysum. Við höfum upplifað mörg svört ár í umferðinni hér heima, en ég tel að síðasta ár hafi fengið okkur öll til að hugsa. Mér finnst fólk vera mun meðvitaðra um það nú en áður að það verður að hugsa hlutina upp á nýtt. Þetta er staða sem við getum ekki verið róleg yfir að neinu leyti, sérstaklega þegar að við hugsum til ársins svarta 2006.
Það er mikilvægt að vera með upplýsandi og góða umræðu um þessi slys. Stór og góður þáttur í því er að færa fólki reynslusögur þeirra sem hafa lifað af erfið slys. Við sáum umfjöllun um nokkur þannig tilfelli í fréttatímum Stöðvar 2 undanfarna daga eftir gönguna þar sem minnt var á umferðarslysin og sýnd samstaða gegn þessari þróun. Það var virkilega gott framtak og það var auðvitað sláandi að sjá allar blöðrurnar fara á loft, þær svörtu sem táknuðu þá rúmlega þrjátíu sem fórust í umferðinni árið 2006 og þann mikla fjölda rauðra sem tákna þá sem slösuðust.
Það er búið að segja það ansi oft að vakningar sé þörf í þessum málum. Ég vona að hún sé að eiga sér stað nú og fólk sé orðið mun meðvitaðra en áður að það er mikilvægt að fara varlega í umferðinni. Það er mun betra að komast heill á leiðarenda en komast þangað alls ekki. Höfum það í huga. Stór hluti þess sem taka verður á er svo fyrrnefnd tilfelli um þá sem látast í slysum vegna þess ölvunar með einum eða öðrum hætti.
Fyrst og fremst erum við á krossgötum í þessum efnum enn eina ferðina. Þetta eru mál sem þarf alltaf að hugsa vel um og takast á við. Stór þáttur þessa er fræðsla á málunum og taka á þeim sláandi staðreyndum sem blasa við. Þessir punktar þykja mér standa upp úr sem hinir verstu. Þetta er þróun sem verður að snúa við.
![]() |
Ellefu banaslys á síðasta ári rakin til ölvunar eða fíkniefnaneyslu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 23:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
3.7.2007 | 17:57
Hver mun verða skipaður í Hæstarétt Íslands?

Þegar að Guðrún Erlendsdóttir lét af dómaraembætti vorið 2006 var Hjördís Björk Hákonardóttir skipuð í hennar stað, eftir að hafa ekki fengið dómaraembætti árin 2003 og 2004, þegar að Ólafur Börkur Þorvaldsson og Jón Steinar Gunnlaugsson fengu skipun í réttinn. Páll Hreinsson, forseti lagadeildar Háskóla Íslands, sótti þá um stöðuna en fékk ekki þrátt fyrir að margir töldu hann einn allra vænlegasta umsækjandann. Það kæmi ekki að óvörum þó að Páll myndi aftur sækja um núna og eflaust verður líka spáð í hvort að Eiríkur Tómasson, lagaprófessor, muni verða í hópi umsækjenda, en margir framsóknarmenn, þar á meðal Halldór Ásgrímsson lýstu yfir óánægju sinni þegar að hann fékk ekki skipun í réttinn haustið 2004 er Jón Steinar var valinn.
Tvær konur sitja í Hæstarétti. Ingibjörg Benediktsdóttir var skipuð í réttinn af Sólveigu Pétursdóttur árið 2001 og eins og fyrr segir hefur Hjördís Björk Hákonardóttir verið hæstaréttardómari frá því að Guðrún Erlendsdóttir hætti á síðasta ári, en hún var skipuð í réttinn af Geir H. Haarde, forsætisráðherra. Eflaust munu heyrast einhverjar raddir um það hvort að kona muni fá hnossið nú og eflaust munu einhverjar sækja um. Sigríður Ingvarsdóttir, héraðsdómari við héraðsdóm Reykjavíkur, sótti um embættið í fyrravor. Fróðlegt verður að sjá hvort hún verði nú í hópi umsækjenda.
Allan Vagn Magnússon, héraðsdómari, hefur sótt nokkrum sinnum um embætti hæstaréttardómara og ekki fengið. Athyglisvert verður að sjá hvort hann reynir aftur og sama mætti eflaust segja um Eggert Óskarsson, héraðsdómara, og Þorgeir Ingi Njálsson héraðsdómari við héraðsdóm Reykjaness, sem hafa reynt áður að komast í Hæstarétt.
Svo eru eflaust einhver ný nöfn fólks sem munu bætast við, fólk sem hefur víðtæka reynslu og hefur hug á embættinu. Það verður í það minnsta athyglisvert að sjá lista umsækjenda þegar að umsóknarfrestur hefur runnið út.
3.7.2007 | 16:24
Þórunn vill ekki að álver rísi við Húsavík
Þórunn Sveinbjarnardóttir, umhverfisráðherra, lýsti því yfir í viðtali á Morgunvaktinni á Rás 1 í morgun að hún vildi ekki að álver myndi rísa á Bakka við Húsavík, né heldur í raun og veru í Helguvík og Þorlákshöfn. Þessi skoðun er ekki að tóna beint við ummæli Kristjáns L. Möllers, samgönguráðherra, og Samfylkingarinnar hér í Norðausturkjördæmi. Greinilega er ekki sama skoðun ríkjandi innan Samfylkingarinnar um álverið við Húsavík.
Ummæli ráðherrans eru að mínu mati mjög afdráttarlaus gegn álveri og vekja vissulega mikla athygli. Það hefur reyndar blasað við öllum að Þórunn tilheyrir þeim hópum sem vill vissulega hægja á í stóriðjumálum. Hún var önnur tveggja þingmanna Samfylkingarinnar sem lagðist gegn Kárahnjúkavirkjun og álveri við Reyðarfjörð á sínum tíma og hefur verið áberandi talsmaður gegn þeirri framkvæmd alla tíð.
Ég hélt að það væri þegjandi samkomulag um að láta á þessa álversframkvæmd reyna. Það sagði allavega Kristján Möller í kosningabaráttunni hér. Enda blasir við öllum að yrði þetta álver að veruleika gengi það fyrir endurnýjanlegri orku. Það væri reyndar fróðlegt að heyra hvernig Samfylkingarfólki í Þingeyjarsýslu líði með þessa afstöðu umhverfisráðherrans. Trúnaðarmenn Samfylkingarinnar þar hafa meira að segja staðið fyrir álgöngu til stuðnings við álver þar. Það fólk er varla mjög glatt yfir þessu tali.
Ég held að allir alvöru fjölmiðlamenn myndu nú fara og spyrja Kristján L. Möller út í afstöðu ráðherrans. Þetta er mál sem væri gott að fá skoðun hans á.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
3.7.2007 | 14:01
Hver er hún nú aftur þessi Nancy Sinatra?

En eflaust spyrja margir sig að því hver hún sé eiginlega þessi Nancy Sinatra. Jú, eins og nafnið gefur til kynna er þetta dóttir Frank Sinatra, sem var auðvitað einn fremsti söngvari 20. aldarinnar og söng fjölda ódauðlegra laga á löngum tónlistarferli. Þau sungu saman hinn fræga dúett á sjöunda áratugnum, Somethin´ Stupid, sem fyrr er nefndur. Það er eflaust frægasta lagið hennar Nancy í sjálfu sér og sá dúett hefur oft verið sunginn síðar, sennilega er útgáfan með Nicole Kidman og Robbie Williams fyrir nokkrum árum þekktust utan þessarar.
Þegar að ég hugsa til Nancy Sinatra dettur mér fyrst í hug tvenn kvikmyndalög. Jú, hún söng titillagið í James Bond-kvikmyndinni You Only Live Twice, sem er með þeim þekktari úr kvikmyndabálkinum og hefur öðlast gott líf í áranna rás. Ennfremur söng hún lagið Bang Bang (My Baby Shot Me Down) en það komst aftur á landakort athyglinnar þegar að Quentin Tarantino valdi lagið sem upphafslag kvikmyndarinnar Kill Bill, Vol. 1, árið 2003. Svo hefur hún sungið These Boots Are Made for Walking, en ætli það sé ekki mjög þekkt líka. Það var notað fyrir nokkrum árum, og var þá vinsælt aftur, í kvikmyndinni The Mexican með Brad Pitt og Juliu Roberts.
Meira man ég ekki eftir með Nancy Sinatra og hef lítið kynnt mér ævi hennar. Það verður fróðlegt að sjá hvort að Geir Ólafs nær að lokka hana til Íslands. Hann virðist hafa lagt mikla vinnu í það verkefni að ná henni hingað og allavega hefur honum tekist að ná athygli landsmanna með þessari umræðu um bréfið falsaða.
![]() |
Geir Ólafs hafnar ásökunum um falsað bréf |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
3.7.2007 | 12:11
Hrafn Bragason hættir í Hæstarétti
Frá árinu 1991 hefur Sjálfstæðisflokkurinn haft embætti dómsmálaráðherra. Því hafa Þorsteinn Pálsson, Sólveig Pétursdóttir og Björn Bjarnason, dómsmálaráðherrar frá 1991, skipað nær alla dómara við réttinn, utan þess reyndar að Geir H. Haarde skipaði tvo síðustu hæstaréttardómara vegna þess að Björn Bjarnason vék sæti. Í þeim tilfellum voru Jón Steinar Gunnlaugsson og Hjördís Björk Hákonardóttir skipuð í réttinn.
Það má búast við að fjöldi einstaklinga sæki um dómarasæti nú þegar að eitt slíkt losnar. Það verður fróðlegt að sjá hver muni taka sæti Hrafns.
![]() |
Hæstaréttardómari óskar lausnar frá embætti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
3.7.2007 | 00:35
Dómur yfir Libby mildaður - mistök forsetans

Bush er í mjög erfiðri stöðu, nú þegar að rétt rúmlega eitt og hálft ár er enn eftir af forsetaferli hans. Hann hefur þingið ekki með sér lengur og þjóðin hefur misst alla trú á pólitískri leiðsögn hans og forystuhæfileikum. Það er erfitt að snúa svo töpuðu tafli sér í vil. Þessi ákvörðun mun aðeins verða til að gera hann enn óvinsælli og gæti gert það að verkum að repúblikanar eygji enga von á því að vinna Hvíta húsið að nýju, með nýjum frambjóðanda af hálfu Repúblikanaflokksins. Það stefnir í örlagatíma fyrir flokkinn og nær útilokað að hann muni hafa nokkur áhrif á það hvaða flokksmaður muni sækjast eftir embættinu þegar að hann hættir.
Óvinsældir forsetans hafa þegar gert það að verkum að þingmenn og forsetaefni flokksins vilja frekar stökkva fyrir björg en leita eftir stuðningi og atbeina hans. Þetta er vissulega mjög erfið staða. Nú þegar að innan við eitt og hálft ár er til forsetakosninganna reyna forsetaefni flokksins að leggja lykkju á leið sína í baráttunni fyrir Hvíta húsinu til að minnast ekki orði á forsetann og fyrri verk hans. Það er metinn pólitískur dauðadómur að hafa stuðning hans og flokkurinn er að leita í aðrar áttir. Þetta sést best af því að þeir sem sækjast eftir endurkjöri í þingdeildunum að ári vilja ekkert með forsetann að hafa og þora að snúast gegn honum.
Ég veit ekki til fulls nú hver endanleg pólitísk örlög Bush forseta verða, en það er þó hægt að segja með nokkurri vissu að lokasprettur embættisferilsins verður erfiður. Ég spáði því í ítarlegum pistli í nóvember 2006 þegar að repúblikanar töpuðu báðum þingdeildunum og landsmenn felldu ótvíræðan dóm gegn forsetanum að ekki aðeins ægivald hans í landsmálunum væri liðið undir lok heldur líka ægivald hans innan eigin flokks. Hann væri lamaður leiðtogi án umboðs.
Það mun að öllum líkindum fara svo. Þessi ákvörðun um að milda dóminn yfir Libby mun ekki mælast vel fyrir og fær á sig allan blæ alvarlegra mistaka að mínu mati.
![]() |
Bush mildar dóm yfir Libby |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.7.2007 | 22:15
Eigum við von á langri röð hryðjuverka í sumar?
Aðalfrétt síðustu daga hafa skiljanlega verið hryðjuverkaárásirnar í London og Glasgow og eftirmáli þeirra, sem sýna einbeittan vilja í þá átt að ráðast að vestrænu samfélagi, sama hvað það kostar. Ef marka má stöðu mála má eiga von á röð hryðjuverka í sumar, jafnvel víðar um Evrópu og svo í Bandaríkjunum. Viðbúnaðarstig um allan heim hefur verið hækkað og fylgst er vel með því sem er að gerast í Bretlandi þessa dagana.
Það er auðvitað skelfileg ótíðindi ef það er rétt, sem því miður alltof margt bendir til, að við eigum við á fjöldanum af árásum á næstunni. Tilfellin í Bretlandi sýna og sanna hversu mikil ógn hryðjuverkaváin er í raun. Það tókst sem betur fer að aftengja árásirnar í London, en hefðu þær orðið að veruleika er nær öruggt að mikið mannfall hefði orðið. Það er öllum ljóst miðað við umfang þess sem þar var. Það er alveg ljóst að það sem er að gerast í Bretlandi er ekki bara innanríkismál Breta, þetta er alþjóðleg ógn. Það sjáum við vel af röð hryðjuverka á þessum áratug.
Það er auðvitað algjörlega út í hött fyrir okkur að horfa framhjá þessari ógn. Þessi nýjustu hryðjuverk gerast í þriggja tíma flugfjarlægð frá okkur. Við erum partur af heimsmyndinni og getum ekki sagt að við séum ekki hluti af heiminum í þessum efnum. Ógnin gæti hæglega komið upp hér. Það er auðvitað hin napra staðreynd sem við verðum að taka á.
![]() |
Al-Qaeda skipuleggur stórbrotnar árásir í sumar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |