13.7.2007 | 16:43
Er Eyjan flopp eða síðbúinn sumarsmellur?
Það hefur líka verið mat margra sem ég hef talað við að slaknað hafi mjög á sumum bloggurum þar og Egill Helgason hafi svolítið gleymst, verið falinn á bakvið massann. Vefurinn hefur ekki átt mörg risastór skúbb og verið ekki sá risastóri smellur sem að var stefnt. Reyndar opnaði vefurinn í miðri sumargúrkunni og hefur lifað í gegnum hana þennan tíma. Það hefur eflaust skipt einhverju máli. Reyndar var ég mjög hissa á þeim sem störtuðu vefnum, þar sem sumir hafa mikla fjölmiðlareynslu, að opna vefinn í miðri sumargúrkunni.
Ekki virðist opnun Eyjunnar hafa haft nokkur sýnileg áhrif á Moggabloggið. Þar hættu vissulega nokkrir að blogga, en sumir skrifa jöfnum höndum á Eyjusíðu og Moggablogginu. Sumir hafa ekki algjörlega fært sig yfir. Persónulega þegar að ég tók þá ákvörðun að hætta á blogspot.com fyrir tæpu ári ákvað ég að hætta. Mér fannst það ekki freistandi að blogga á tveim stöðum. Vissulega hafði ég eitt sinn stóra vefsíðu sem pistlavettvang en ég ákvað að hætta með hana líka samhliða flutningi hingað. Hér enda hef ég nóg um að skrifa og finnst alveg nóg verk að halda úti einni bloggsíðu.
Það reynir kannski lítið í sjálfu sér á Eyjuna fyrr en í haust. Þangað til getum við velt því fyrir okkur hvort að Eyjan verði flopp eða síðbúinn sumarsmellur.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
13.7.2007 | 14:52
Andar liðins tíma fylgja Beckham til Bandaríkjanna
Það kemur ekki að óvörum að Rebecca Loos reyni að glampa í sama fjölmiðlageislanum sem umlykur David og Victoriu Beckham við komuna til Bandaríkjanna. Hún hefur fylgt þeim sem vofa í þrjú ár, eftir frægt hneykslismál, þar sem hún sagðist hafa verið hjákona fótboltastjörnunnar, og mun gera það mjög lengi enn, tel ég. Hún veit sem er að þar sem áhugi verður á Beckham getur hún nýtt sér hann ennfremur.
Það er reyndar með ólíkindum hversu mikið fjölmiðlafár fylgir Beckham-hjónunum eftir til Bandaríkjanna. Þetta virðist vera engu síðri glampi athyglinnar en Beckham fékk er hann fór til Spánar fyrir fjórum árum frá Manchester United, eftir litríkan feril þar. Rebecca Loos varð heldur betur örlagavaldur þeirra á fyrri hluta Spánaráranna og litlu munaði eflaust að Beckham-hjónin skildu á árinu 2004. Því varð þó afstýrt og hafði þar eflaust mikið að segja fyrrnefndur fjölmiðlaglampinn, sem varð öllu yfirsterkari að lokum.
Það er skiljanlegt að Rebecca Loos vilji fylgja eftir glampanum. Það getur hún með réttri markaðssetningu. Það hefur hún gert enn og aftur nú. Hún kemur með rétta boðskapinn enn og aftur og hittir réttu nóturnar í sömu markaðssetningu og Beckham-hjónin ein ætluðu að fljúga á til Bandaríkjanna. Það er ekki nóg með að Beckham-hjónin fari í forsíðu- og aðaluppsláttarviðtöl við blöð og ljósvakamiðla, heldur sitja þau nærri nakin fyrir í þekktu bandarísku tímariti.
Allt átti semsagt að vera bundið þeim. Fjölmiðlaglansinn átti að vera þeirra í gegn. Þau gleymdu hinsvegar að gera ráð fyrir Rebeccu Loos. Já, það er oft erfitt að hafa anda liðinna tíma á eftir sér.
Tengdar greinar SFS
Sannar tilfinningar hinna þekktu í glamúrheimi
![]() |
Loos segir Beckhamhjónin standa í þakkarskuld við sig |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.7.2007 | 13:56
Matarverð enn og aftur hæst á Íslandi

Í fyrra lagði Hallgrímur fram tillögur til lausnar stöðu mála þar sem að gert var ráð fyrir að matarreikningur hinnar venjulegu fjölskyldu í landinu gæti lækkað um allt að 50.000 krónur á ári, sé miðað við lægri mörk, en allt að 130.000 sé miðað við hærri mörkin. Það má vel vera að eitthvað hafi lagast. En það var greinilega mjög skammtímabundið. Það sést af nýlegum könnunum á verði verslana á matvörum og voru kynnt fyrir nokkrum dögum.
Það er auðvitað athyglisvert að heyra af könnun ASÍ sem segir að þeir sem stunda verslun hérlendis (smásalar eða heildsalar) hafi ekki skilað með afgerandi hætti lækkun virðisaukaskatts á matvælum til neytenda. Að því var stefnt. Það er öllum ljóst að það hefur ekki gengið sem skyldi. Með þessu virðist vera að sannast það sem að margir vöruðu við; að lækkun virðisaukaskatts á matvælum myndi ekki er á hólminn kæmi skila sér til neytenda að neinu verulegu leyti.
Það er allavega staðan þarna í þessum mælingum að lækkunin hafi ekki skilað sér til neytenda, heldur og mun frekar þeirra sem standa að verslun í landinu. Þetta er í takt við það sem margir sögðu á sínum tíma. Það er leitt ef þeir hafa rétt fyrir sér. En staðan er í grunninn lítið breytt. Við erum að upplifa að við erum eiginlega á byrjunarreit að mörgu leyti.
Það þarf að taka betur á þessum málum og það verður að stokka landslagið hvað matarverð varðar með þeim hætti sem t.d. skýrsla Hallgríms Snorrasonar gerði ráð fyrir á sínum tíma. Þessi staða og umfram allt niðurstaðan með lækkun matarverðs leiðir til þess að við spyrjum okkur annars hvar samkeppnin á matvörumarkaði sé eiginlega.
![]() |
Matvæli dýrust á Íslandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
13.7.2007 | 13:08
SUS-þing á Seyðisfirði í september

Það eru 34 ár liðin frá því að sambandsþing SUS var síðast haldið á Austurlandi. Það var átakaþingið sögulega á Egilsstöðum árið 1973 þegar að Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, og Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, tókust á um formennsku í SUS. Þeim formannsslag lauk með kjöri Friðriks Sophussonar á formannsstól.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 23.9.2007 kl. 14:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.7.2007 | 12:18
Lygilega góð hitabylgja

Þetta sumar hefur verið ótrúlega gott í heildina. Ég man ekki eftir svona þurru sumri í áraraðir. Þetta er að stefna í sögulegt sumar hvað það varðar. Rigningardagarnir hér á Akureyri síðustu vikurnar eru allavega léttilega teljandi. Það var mörgum kærkomið þegar að fór að rigna um daginn, enda gras hreinlega farið að gulna og flestir búnir að vökva lóðina sína mjög vel.
Það verður spennandi hvernig veðrið næstu dagana. Þó að öll vonumst við eftir góðu vetri er ekki kræsilegt að við endum í 68 stiga hita eins og mælist við Kringluna.
![]() |
Lygamælir slær met |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
12.7.2007 | 20:30
Sannar tilfinningar hinna þekktu í glamúrheimi

Það er oft efast um hvort að mestu glamúr-stjörnur heimsins hafi tilfinningar, hvort að þeim geti sárnað og fundið til eins og okkur meðaljónum þessa heims. Það efast margir um það að eitthvað misjafnt eða hversdagslegt gerist í lífi þessa fólks sem gengur á rauðum rósum á yfirborði frægðarinnar. En ég held, og hef alltaf haldið satt best að segja, að það fylgi ógæfa of mikilli frægð. Það hlýtur að vera ömurlegt að vera með ljósmyndara og blaðasnápa á eftir sér dag eftir dag. Það hlýtur að verða leiðigjarnt að eiga sér varla einkalíf og sömu hversdagslegu tækifærin sem ég og þú viljum eiga fyrir okkur.
Sumir njóta þessa glamúrs vissulega og nota hann sér í hag með mjög áberandi hætti. David og Victoria hafa aldrei hikað sér við að nota athyglina, að mörgu leyti með jákvæðum hætti, sumu leyti með sérkennilegum hætti. Ég sá fyrir nokkrum árum þátt með þeim sem sýndi líf þeirra, myndavélin fangaði heimilislíf þeirra og samskipti. Mér fannst það afskaplega uppstrílað líf, satt best að segja, og fannst svolítið spes að fólk virkilega lifði daginn sinn með svo strembnum hætti, allt að því upphækkuðum fjölmiðlahætti. En kannski er þetta tilveran sem þetta fólk vill velja sér og hefur gert að sinni. Vel má vera svosem, en varla er það freistandi líf.
Eflaust mun athyglin á þeim varla minnka, nú þegar að þau flytja til Bandaríkjanna og verða hluti af glamúrnum í Los Angeles. Það ætti að henta þeim vel að mörgu leyti. Það er deilt um það hvort að David Beckham sé búinn að vera sem knattspyrnumaður, hafi kannski verið slappur árum saman. Það verður fróðlegt að sjá hann fóta sig.
Það sem mér fannst þó merkilegast við þessa frétt er að sjá einlæga sönnun þess að fólkið í þessum heimi hafi tilfinningar. Það er greinilegt af orðum Victoriu Beckham í þessari frétt. En kannski er þetta bara ein leiðin til haldast enn í sviðsljósinu, hver veit.
![]() |
Victoria segir frá ástarsorg sinni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.7.2007 | 16:59
Líflegt ástarlíf litríkrar kvikmyndaleikkonu

Drew Barrymore hefur alltaf átt sér litríka ævi og verið í sviðsljósinu síðan að hún var krakki. Hún er í þekktri leikarafjölskyldu. Afi hennar, John Barrymore, var þekktur leikari og var bróðir hinna þekktu leikara gullaldartíma Hollywood, Lionel og Ethel Barrymore, sem bæði hlutu óskarinn og heimsfrægð á löngum leikferli. Faðir Drew, John yngri, var líka þekktur en var mun brokkgengari í bransanum og átti litríka ævi, sem einkenndist af mikilli óreglu og villtu líferni umfram allt annað.
Drew Barrymore varð ung stjarna og fetaði í fótspor forfeðra sinna. Drew var ekki nema sex ára gömul þegar að Steven Spielberg ákvað að velja hana í hið þýðingarmikla hlutverk Gertie í kvikmyndinni E.T. - the Extra Terrestrial, sem varð ein vinsælasta síns tíma. Hún átti ekki langan feril að baki þá en varð stjarna á einni nóttu. Samleikur hennar og hins skringilega E.T. varð gullið á hvíta tjaldinu. E.T. var reyndar fyrsta bíómyndin sem ég sá í bíó, mjög sællar minningar. En frægðin getur verið fallvölt. Sú varð reyndin hjá Drew sem eftir barnastjörnutilveruna lenti í óreglu eins og faðir hennar og var næstum orðin henni að bráð.
Eftir að hún reisti sig við aftur hefur hún átt fjöldann allan af eftirminnilegum hlutverkum. Nægir þar að nefna Ivy í Poison Ivy, Casey í Mad Love, Sugar í Batman Forever, Skylar í Woody Allen-söngvamyndinni litríku Everyone Says I Love You (þar sem hún ein leikhópsins fékkst ekki til að syngja - Allen sjálfur, Edward Norton og Goldie Hawn sungu þar með bravúr), Casey Becker í hinu nöturlega upphafsatriði Scream, Julia í hinni nostalgísku The Wedding Singer, Josie í Never Been Kissed, Dylan í Charlie´s Angels, Nancy í hinni sprenghlægilegu Duplex, Lindsey í Fever Pitch og Sophie í Music and Lyrics.
Drew hefur aldrei verið feimin í að stuða. Það verður fróðlegt að sjá hvernig að þessir rómansar hennar fari. Varla eru þeir Braff og Jonze þó glaðir við að deila sæng með hinni frægu leikkonu saman mikið lengur eftir þessar neyðarlegu fréttir. Annars hefur ástarlíf Drew aldrei verið slétt og fellt. Nægir þar að nefna hið fræga (og ótrúlega langlífa) samband hennar við grínistann Tom Green, sem þótti ekki beinlínis draumur allra tengdamæðra.
![]() |
Ástarþríhyrningur Barrymore |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.7.2007 | 13:59
Þeir undrast... en hvað mega Akureyringar segja?
Ég rak augun í yfirlýsingu Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra þar sem undrast er að ekki sé horft til samgönguframkvæmda þar í tillögum um hröðun verkefna. En hvað mega Akureyringar og í raun Eyfirðingar segja vegna þessara tillagna? Það vekur athygli að lykilmál á borð við lengingu Akureyrarflugvallar og Vaðlaheiðargöng er ekki flýtt. Á Akureyri einni búa rúmlega 15.000 manns og yfir 20.000 manns eru í Eyjafirði. Það búa því tæplega helmingi fleiri á Akureyri einni en á gervöllu Norðurlandi vestra.
Þetta eru vissulega tölur á blaði. Hinsvegar ætti öllum að vera ljóst að tillögur um flýtingu framkvæmda eru jákvæðar fyrir sum svæðin. Mér finnst það samt svolítið sláandi að samgönguráðherra, sem jafnframt er leiðtogi framboðs í Norðausturkjördæmi, líti ekki betur til þess að flýta lykilframkvæmdum hér á Eyjafjarðarsvæðinu. Það að flýta lengingu Akureyrarflugvallar hefði eitt og sér skipt miklu máli og það að setja Vaðlaheiðargöng betur á dagskrá hefði verið mjög vel þegið ennfremur.
Fáir töluðu með meira áberandi hætti í kosningabaráttunni í vor fyrir því að flýta þessum framkvæmdum en Kristján L. Möller, samgönguráðherra. Hvað varð um stóru orðin og hvað varð um hugmyndir ráðherrans, nú þegar að hann er kominn á þann stað sem hann helst vildi? Eflaust vilja allir fá sínar draumatillögur í framkvæmd, en það er samt sem áður mjög athyglisvert að ekki skuli horft til Eyjafjarðarsvæðisins í þessum tillögum.
Ég skil vel að þeir á Norðurlandi vestra vilji keyra sínar tillögur áfram, en hvað má þá stórt og öflugt svæði á borð við Akureyri og Eyjafjörð segja? Er það enn svo skrambi lélegt að við Akureyringar séum áhrifalausir í lykilákvörðunum flokkanna sem mynda ríkisstjórn, eins og var á síðasta kjörtímabili? Það virðist vera, fátt virðist hafa breyst. Þessi staða vekur mikla athygli. Hún er algjörlega óviðunandi.
![]() |
Undrast að engum vegaframkvæmdum á Norðurlandi vestra verði hraðað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.7.2007 | 12:48
Risavaxið mongólskt brúðkaup í Kína

Það hlýtur að vera skelfilegt líf - jafnvel hrein bölvun - að vera svo hávaxinn, enda þrengir það lífsskilyrðin mjög og lífsins tækifæri ennfremur. Hinsvegar hefur Bao verið lengi í sviðsljósi fjölmiðla sökum sérkennis síns, ekki ósvipað því sem að Svarfdælingurinn Jóhann Kristinn Pétursson upplifði á ævi sinni, en hann var reyndar meginþorra ævi sinnar notaður sem hreint og beint sirkusdýr. Bao hefur þó getað notað athyglina öðruvísi og mun meir sér í vil.
Það verður fróðlegt að sjá hvernig að gangi í þessu brúðkaupi. Mér skilst að hann hafi auglýst á alheimsvettvangi eftir maka og í gegnum það kynnst Xiu, konu sinni, sem er aðeins 29 ára. Þetta virka allavega mjög ólík hjón og víst er að þau þurfa að yfirvinna risavaxin vandamál áður en yfir lýkur eflaust.
![]() |
Hæsti maður heims giftir sig |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 12:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.7.2007 | 10:54
Hasar í Hnífsdal - deilt um vinnutímann

Það er ekki geðslegt að heyra lýsingar á því sem gerðist á milli hjónanna í Hnífsdal áður en karlmaðurinn á heimilinu greip til haglabyssunnar og skaut að konu sinni. Það var auðvitað með ólíkindum að heyra fyrst af því máli, en sérsveit lögreglunnar var kölluð vestur vegna þess heimilisofbeldis. Það er öllum ljóst að mjög tæpt stóð með konuna og hefði ekki miklu mátt muna svo að hún hefði látist í þessari atburðarás.
Þetta er sláandi hasar fyrir lítið byggðarlag. Þarna sannaðist þó vel mikilvægi sérsveitarinnar að mínu mati. Lögreglan brást vel og skipulega við þessari ógn að mínu mati - sérsveitin hefur þjálfun og getu til að bregðast við svona ástandi. Þetta var hrein og klár ógn, enda sást það vel af öllu verklagi og þeim viðbúnaði sem var til staðar. Þegar að maður með haglabyssu gengur laus, hefur skotið að eiginkonu sinni og er yfirbugaður er eitthvað meira en lítið að. Það blasir við öllum. Það er reyndar með ólíkindum að það sem olli látunum voru deilur um vinnutíma konunnar.
Þetta atvik minnir mjög vel á það, hversu brýnt er að lögreglan sé undir það búin að takast á við hættuleg verkefni, í takt við þetta. Fyrir nokkrum árum þótti ekki öllum sem sitja á Alþingi mikilvægt að breyta skipulagi á yfirstjórn sérsveitar lögreglunnar til að sveitin væri ávallt til taks og sveigjanlegri en áður hefði verið. Því síður virtist skilningur á því hjá fjölda fólks þá að nauðsynlegt væri að efla sérsveitina og fjölga í henni.
Þessi staða sýnir vel hversu rétta stefnu sérsveitin hefur tekið og að hún sé vel búin fyrir ástand sem getur komið úr óvæntustu átt, rétt eins og þetta heimilisofbeldi vestur á fjörðum.
![]() |
Ég sá blossa nálægt vanganum" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
12.7.2007 | 00:56
Lady Bird Johnson látin
Lady Bird Johnson, fyrrum forsetafrú Bandaríkjanna, lést í Texas í dag, 94 ára að aldri. Hún fæddist 22. desember 1912. Við eigum því sama afmælisdag, ég og Lady Bird. Hún lifði næstlengst allra eiginkvenna forseta Bandaríkjanna. Aðeins Bess Truman hefur lifað lengur, en hún varð 97 ára gömul. Lady Bird var það sem kalla mátti fyrirmynd maka stjórnmálamanna á 20. öld, hún var við hlið eiginmanns síns alla tíð og sinnti sínum verkum við hlið hans alla tíð með glæsibrag.
Lady Bird giftist Lyndon Baines Johnson í nóvember 1934. Þau eignuðust tvær dætur; Lyndu Baines, og Luci Baines. Lyndon Baines Johnson er einn litríkustu stjórnmálamanna í sögu Texas-fylkis. Hann gegndi trúnaðarstörfum fyrir Demókrataflokkinn áratugum saman og var um árabil þingmaður og var sérstaklega gamalgróinn Texas-maður. Hann þótti óheflaður og sérlundaður. Konan við hlið hans hélt vörð utan um störf hans og þau voru sterkt stjórnmálapar frá upphafi til enda.
Lady Bird var þó ekki litlaus eiginkona stjórnmálamanns. Hún átti sér sín áhugamál og lét skoðanir sínar óhikað í ljósi. Hún var ekta Texas-kona sem stóð með manni sínum í einu og öllu en talaði af krafti hafði hún skoðanir og var ekki fjarlæg í framkomu. Barátta Lady Bird fyrir umhverfismálum setti alla tíð svip á persónu hennar. Hún var eindreginn talsmaður þess að standa vörð um náttúruna og var áberandi í skógrækt og tengdum málum. Hún gróðursetti jafnan tré í opinberum heimsóknum á forsetaferli eiginmanns síns um Bandaríkin.
Lyndon B. Johnson varð atvinnustjórnmálamaður í Washington skömmu eftir giftingu hans og Lady Bird. Hann var kjörinn í fulltrúadeildina árið 1937 og átti þar sæti í tólf ár. Johnson var kjörinn í öldungadeildina árið 1949 og átti þar sæti ennfremur í tólf ár. Hann var leiðtogi demókrata í öldungadeildinni í átta ár, 1953-1961, allan tímann í meirihluta. Lyndon B. Johnson sóttist eftir forsetaembættinu fyrst árið 1956. Hann náði ekki útnefningunni í fyrstu atrennu og ekki heldur í þeirri annarri, en hann tapaði fyrir John F. Kennedy árið 1960. Það vakti mikla athygli þegar að hinn ungi Kennedy valdi suðurríkjamanninn Johnson í kjölfarið sem varaforsetaefni sitt.
John F. Kennedy og Lyndon Baines Johnson voru mjög ólíkir stjórnmálamenn en voru saman sterk pólitísk blanda sem tókst loksins að færa Demókrataflokknum tækifæri til sigurs eftir að hafa verið utan valda í Hvíta húsinu í átta ár. Kennedy var sterkur fulltrúi norðurs og Johnson var með lykilstöðu í suðrinu. Þeir unnu forsetakosningarnar 1960, en naumlega þó. Johnson tók við varaforsetaembættinu í janúar 1961. Fáum óraði fyrir því á þeim tímapunkti að hann ætti eftir að taka við forsetaembættinu. Allir töldu hinn unga Kennedy táknmynd hreystis og glæsileika - ekki myndi reyna á pólitíska klækjarefinn frá Texas sem húsbónda í Hvíta húsinu.
En allt breyttist það á föstudeginum 22. nóvember 1963. John F. Kennedy var myrtur í opinberri heimsókn í Dallas í Texas, fylki varaforsetans. Morðið á hinum unga forseta er enn í dag sama ráðgátan og blasti við á þessum sviptingasama degi sem breytti stjórnmálalitrófinu í Bandaríkjunum með nöprum hætti. Johnson varð því forseti Bandaríkjanna í einni svipan í eigin fylki. Hann sór embættiseið sinn sem 36. forseti Bandaríkjanna í forsetaflugvélinni á flugvellinum í Texas síðar sama dag, rétt áður en flugvélin hélt af stað til Washington með kistu hins fallna forseta. Starfsmenn Kennedys og fjölskylda hans höfðu þá varla áttað sig á endalokunum.
Sögufræg er ljósmyndin af Johnson að sverja embættiseiðinn í Air Force One. Við hlið hans voru Lady Bird og Jacqueline Kennedy, sem var skyndilega búin að missa hlutverk sitt, var ekki lengur forsetafrú Bandaríkjanna. Jackie var enn í blóðugu dragtinni sem hún var í er forsetinn var skotinn í miðborg Dallas og var í henni þar til seint um kvöldið er hún kom loks í Hvíta húsið. Lady Bird tók við skyldum forsetafrúar en var í skugga Jackie dagana sem framundan voru er Kennedy forseti var kvaddur. Johnson-hjónin fluttu ekki inn í Hvíta húsið formlega fyrr en í desember 1963, þegar að Jackie hafði jafnað sig á vistaskiptunum sem fylgdu dauða eiginmanns hennar.
Jackie Kennedy og Lady Bird Johnson voru ólíkar sem dagur og nótt. Jackie var tískudrottning, kona sviðsljóssins og glamúrsins. Lady Bird var annarrar kynslóðar og um leið hin sanna eiginkona stjórnmálamannsins á fyrri hluta 20. aldarinnar, konan við hlið mannsins á valdastóli. Hún var hin sterka og áberandi týpa, sem ekki barst mikið á og sinnti sínum helstu verkum með glæsileika. Margar kjaftasögur hafa gengið um samskipti Johnson-hjónanna við Jackie þann tíma sem í hönd fór eftir hin sögulegu valdaskipti um borð í forsetaflugvélinni. Ásýnd forsetaembættisins breyttist mjög er hin miðaldra suðurríkjahjón, sem voru úr allt öðru umhverfi en Kennedy-hjónin, tóku við.
Johnson var forseti Bandaríkjanna í rúm fimm ár, var endurkjörinn í nóvember 1964 með miklum meirihluta. Hann stóð fyrir fjölda mikilvægra mála og lauk t.d. lykilstefnumálum Kennedys, t.d. mannréttindamálum blökkumanna. Það voru mikil tímamót sem fylgdu því að rótgróinn suðurríkjastjórnmálamaður skyldi klára þau mál. Óvinsældir Johnsons jukust mjög á skömmum tíma vegna Víetnam-málsins og hann ákvað að sækjast ekki eftir endurkjöri vegna þess árið 1968. Johnson varð bráðkvaddur á heimili sínu í Texas í janúar 1973, nákvæmlega fjórum árum eftir að hann lét af embætti.
Lady Bird Johnson lifði langa og merkilega ævi. Hún var áberandi á stjórnmálaferli manns síns og markaði skref í stjórnmálasögu Bandaríkjanna og Texas-fylkis með hlutverki sínu við hlið Johnsons forseta. Hún var sönn suðurríkjakona og þótti sterk í sínu. Þrátt fyrir heilsuleysi kom hún reglulega fram þar til nærri undir hið síðasta. Fyrst og fremst mun svipmynd hennar við hlið Johnsons á örlagastundinni í Air Force One á föstudeginum sviptingasama sem breytti ævihlutverki hennar og manns hennar verða lengst greypt í minni þeirra sem fylgst hafa með stjórnmálum fyrr og síðar.
![]() |
Lady Bird Johnson látin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 01:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
11.7.2007 | 20:59
Bullitt fyrr og nú

Bullitt er ein frægasta kvikmynd sjöunda áratugarins. Hún markaði frægð aðalleikarans McQueen og gerði hann endanlega að gullinni stjörnu í Hollywood. Bullitt segir söguna af harðsoðna leynilögreglumanninum Frank Bullitt í San Francisco, sem flækist í snúið mál þar sem við sögu koma mafían og óprúttnir stjórnmálamenn. McQueen var allt í öllu við gerð myndarinnar, hann stólaði á Peter Yates sem leikstjórann sem myndi halda utan um verkið. Þetta var fyrsta mynd Yates vestanhafs. Fáir vissu hvort hann gæti gert sanna bandaríska hasarmynd með öllu sem til þyrfti. Áhyggjurnar voru óþarfar og myndin varð sannkallaður gullmoli.
Myndin á sér auðvitað marga hápunkta. Þeirra mestur telst auðvitað hinn sögufrægi og æsispennandi kappakstur um stræti San Francisco. Allir sem minnast borgarinnar úr myndum á borð við Vertigo, Guess Who´s Coming to Dinner, Mrs. Doubtfire, Dark Passage, The Graduate, Dirty Harry og Foul Play sjá borgina í enn einu magnaða ljósinu þegar að Bullitt í túlkun McQueen eltir leigumorðingjana tvo um göturnar. Hasarinn er sannur og hraðinn gríðarlegur. Saman fer þetta í ógleymanlega senu, sem er í senn leiftrandi og nær tökum á áhorfandanum.
Þessi frægasta kappaksturssena kvikmyndasögunnar hefur verið margstæld og á sér margar eftirtúlkanir sem við höfum séð með einum eða öðrum hætti á öðrum stöðum. Sennilega náði William Friedkin senunni best í The French Connection þrem árum síðar, en það var auðvitað æðisleg sena, kannski ekki mikið síðri en þó síðri á staðal þeirra sem mæla hlutina eftir öllum pakkanum, enda er sú sena auðvitað sett í stíl þeirrar sem markaði Bullitt sem lykilmynd á sínum tíma. Colin Higgins reyndi meira að segja að stæla senuna í gamanmyndinni Foul Play áratug síðar, sem gerðist einmitt í sömu borg, en þar eru Goldie Hawn og Chevy Chase í sönnum hasar.
Senan er ekki bara eðall séð frá hraðanum og fimninni í pakkanum heldur auðvitað hvernig hún er tekin upp myndrænt séð. Hún er auðvitað myndrænt meistaraverk í sjálfu sér, skotin eru vel útfærð og næm frá öllum hliðum og áhorfandinn hugsar ekki um neitt annað en það sem gerist í hasarnum. Hugurinn fylgir bílunum eftir. Þetta er sena sem dáleiddi fólk í bíó fyrir fjórum áratugum og gerir enn, enn hefur engin mynd trompað þennan hasar og eflaust á þeim forsendum er farsælasti grunnur hennar byggður. Allur heildarrammi senunnar stenst tímans tönn og hún er enn eftirminnileg.
Steve McQueen var auðvitað stórstjarna á síns tíma mælikvarða. Hann á það sameiginlegt með Brad Pitt að vera myndræn stjarna með glans að nær öllu leyti. Hann hafði sjarma og glæsileika, gat túlkað bæði gaman sem drama á næman hátt. Hafði allan pakkann. McQueen var þó ekki bara sæti strákurinn á hvíta tjaldinu, hann gat bæði verið sá harði og mildi. Túlkaði bæði næmar týpur og eins rosalega nagla sem allir tóku eftir, gátu stungið hressilega. Hlutverk Bullits er eflaust hans frægasta á ferlinum og markaði hann endanlega sem stórstjörnu.
Hans verður þó minnst fyrir fleiri hlutverk alla tíð. Góð dæmi um flotta túlkun hans eru Cooler King í The Great Escape, Vin í The Magnificent Seven, Henry Thomas í Baby the Rain Must Fall, Jake Holman í The Sand Pebbles, Thomas Crown í The Thomas Crown Affair (myndin sem gerði hann eflaust að kyntákni eftir fræga ástarleikjataflsenu við Faye Dunaway sem lék sálfræðing Crowns í túlkun Pierce Brosnan í endurgerð myndarinnar þrem áratugum síðar), Doc McCoy í The Getaway (þar sem hann fór á kostum í flottri túlkun með þáverandi eiginkonu sinni Ali MacGraw mynd sem Alec Baldwin og Kim Basinger endurgerðu meðan að ástarblossinn þeirra var enn til staðar árið 1994), Henri Charriere í Papillon og Michael O'Hallorhan í The Towering Inferno.
Steve McQueen varð ekki gamall maður. Hann lést úr krabbameini árið 1980, aðeins fimmtugur að aldri. Síðasta hlutverk hans á góðum leikferli var rulla Papa Thorson í The Hunter árið 1980, sama ár og hann lést. Steve McQueen hefur lifað merkilega vel í gegnum tímans tönn, þó hann hafi löngu skilið við. Á vissum kafla eftir dauða hans gleymdist hann að mestu, utan helstu myndanna hans. Á síðustu árum hafa myndir hans öðlast aftur líf á DVD og orðið frægar að nýju, enda eru flestar myndir hans á síðustu sautján árum hans tær snilld.
Brad Pitt ætlar sér að feta í fótspor Steve McQueen, bæði færa Bullitt aftur á hvíta tjaldið, eflaust með sínum takti og endurgera frægustu senu hasarmyndanna. Það þarf dirfsku og kraft til að leggja í svoleiðis nokkuð. Myndin eina og sanna verður fertug á næsta ári og þá sjáum við nýjan Bullitt á gömlum grunni eflaust. Hvort hann nær að trompa þann gamla efast ég stórlega um, en samt sem áður verður fróðlegt að sjá hvað verður úr þessu hjá Pitt.
![]() |
Pitt endurgerir Bullitt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.7.2007 | 20:50
In Memoriam

Og því var allt svo hljótt við helför þína
sem hefði klökkur gígjustrengur brostið.
Og enn ég veit margt hjarta harmi lostið
sem hugsar til þín alla daga sína.
En meðan árin þreyta hjörtu hinna
sem horfðu eftir þér í sárum trega
þá blómgast enn og blómgast ævinlega
þitt bjarta vor í hugum vina þinna.
Tómas Guðmundsson skáld (1901-1983) (Hið bjarta vor)
11.7.2007 | 14:54
Sorglegt mál úr fortíðinni
Hversvegna var þetta mál í þagnarhjúpi öll þessi ár? Hvar var eftirlitið á þessum tíma eiginlega og hvar voru þeir sem báru ábyrgð á málaflokknum? Þetta er skelfilegt í einu orði sagt. Þetta er auðvitað mjög stórt hneykslismál að mínu mati - mikill áfellisdómur yfir þeim sem héldu á málum á þessum tíma. Það var sláandi að sjá harðfullorðna menn, meira að segja Lalla Johns sem þarna var vistaður sem barn, brotna saman við tilhugsunina eina um þennan stað í Kastljósviðtali, þessi örlög að vera þar neyddur til vistar, allt ofbeldið og ógeðið.
Það var stingandi stund að sjá Kastljósviðtölin fyrir nokkrum mánuðum og skynja það sem hefur þarna gerst. Það er skylda þeirra sem leiða málaflokkinn í dag að taka á því og það hefur verið gert að verulegu leyti, sem mikilvægt er. Það er enda ekki til of mikils mælst að stjórnvöld dagsins í dag biðji þessa menn opinberlega afsökunar á því að hafa verið neyddir til vistar á þessum vítisstað sem þetta heimili hefur verið og liðsinni þeim til að finna lífshamingju að nýju, sé það þá hægt eftir slíkar skelfingar.
![]() |
Þagði yfir martröðinni í tæp fjörutíu ár |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
11.7.2007 | 14:25
Haldið áfram í Eurovision - syngja má á ensku
Áfram á að halda. Svipað fyrirkomulag verður áfram við lýði. Reglurnar hafa þó breyst. Mikla athygli vekur að ekki er lengur útilokað að lög séu á ensku í undankeppninni, þó að það sé þó talið æskilegast að lögin séu á íslensku. Það er allavega ekki útilokað lengur að hafa ensku fyrirfram. Það eru stórtíðindi. Ennfremur er klausan um að þeir sem taki þátt, bæði laga- og textasmiðir, þurfi að hafa íslenskt ríkisfang eða vera búsettir á Íslandi frá 1. október 2007 og fram yfir keppnina. Þetta gæti hæglega opnað leið annarra að keppninni. Það er mjög jákvætt að mínu mati.
Mikil ólga varð innan Eurovision-samfélagsins í heild með úrslitin í vor. Ekkert lag frá Vestur-Evrópu komst í úrslitapakkann úr forkeppninni, heldur röðuðu þar sér upp lög úr austanblokkinni. Slóvenía var það land sem næst stóð vesturhlutanum. Það segir sína sögu vel. Það er alveg ljóst, og staðfestist af úrslitum kosningarinnar í gærkvöldi, að möguleikar Íslands á að komast upp úr botninum eru hverfandi og margir telja að stokka eigi keppnina upp. Ólgan hefur oft verið ráðandi hér heima allt frá því að Selmu Björnsdóttur mistókst að komast upp úr botninum með If I had your Love í maí 2005 í keppninni í Kiev.
Í fyrra var talað um að Silvía Nótt hefði skemmt fyrir sér og því ekki komist áfram. Staða Eiríks nú vakti nýjar spurningar. Ekki aðeins reyndar var staða okkar rædd heldur staða Vestur-Evrópu almennt. Í raun væri heiðarlegast að brjóta upp keppnina. Þarna keppa yfir 40 lönd um árangur. Það væri auðvitað best að hafa keppni fyrir vestur- og austurhlutann. En sama fyrirkomulag á að hafa á næsta ári, en það er dæmt til að breytast, tel ég.
Mér finnst reyndar mikið álitaefni hvort Ísland eigi að taka áfram þátt í keppninni. Það verður að stokka hana upp, enda er orðrómurinn um samsærið ekki lengur íslenskur heldur ómar um alla V-Evrópu. Það er engin furða á því eftir það sem gerðist í vor.
![]() |
Reglum um Söngvakeppni sjónvarpsins breytt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 14:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
11.7.2007 | 10:51
Hildur Sif Helgadóttir látin
Ég las vefinn hennar þann tíma sem hún skrifaði hér og fylgdist með stríði hennar, sem því miður tapaðist eins og svo margar barátturnar við þennan vágest sem þessi sjúkdómur er. Það eru alltaf tíðindi þegar að eitt okkar sem skrifar hér deyr. Þó að þeir sem berjist við krabbamein séu um leið að berjast við dauðann sjálfan er það alltaf sorglegt högg þegar að endalokin verða veruleiki. Þó að Hildur Sif hafi verið mikið veik var andlátsfregn hennar mikið áfall okkur hér.
Hildur Sif barðist til hinstu stundar og bloggaði nær alveg fram í andlátið. Vefurinn hennar er minning um hetju, eins og svo margir fleiri slíkrar gerðar. Það eru margir í dag í sömu sporum sem skrifa opinberlega um lífsreynslu sína og vekja okkur öll til umhugsunar um að það er í raun ekkert sjálfsagt í þessum heimi. Ég dáðist mjög að Hildi Sif. Styrkur hennar var aðdáunarverður, allt til hinstu stundar. Það er sjónarsviptir af henni fyrir bloggsamfélagið okkar hér.
Ég votta eiginmanni Hildar Sifjar og fjölskyldu hennar mína innilegustu samúð.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 11:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.7.2007 | 17:28
Innilegar samúðarkveðjur
Ég vil votta fjölskyldu mannsins sem lést í umferðarslysinu í Norðurárdal um helgina innilega samúð mína. Það er alltaf sorglegt að heyra af því þegar að ungt og efnilegt fólk fellur í valinn í svona hörmulegu slysi.
Það var mjög dapurlegt að heyra af þessu umferðarslysi, sérstaklega vitandi það að brátt styttist í að nýji vegarkaflinn á þessum slóðum verði tekinn í notkun, sem breytir stöðu mála þar mjög. Það er mjög vondur vegarkafli sem liggur að gömlu einbreiðu brúnni og getur verið viðsjárverður í litlu skyggni og rigningarveðri og auðvitað sérstaklega í vetrarófærð. Þarna hafa áður orðið mjög alvarleg slys.
Þegar að ég fór þarna síðast um, í apríl sl, fannst mér gott að sjá nýja vegarstæðið vera að myndast og það verður mjög ánægjulegt þegar að það verður tekið formlega í notkun bráðlega. Þessi gamli vegarkafli er mjög slæmur og það verður engin eftirsjá af honum. Reyndar er enn verulega dapurlegt hversu margar einbreiðar brýr eru á þjóðveginum. Það gengur alltof hægt að skipta þeim út.
![]() |
Lést í umferðarslysi í Norðurárdal á sunnudag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.7.2007 | 16:10
Er Útvarp Saga búin að kaupa málefnin.com?
Umræða hefur verið um eignarhald þessa spjallvettvangs, en Stefán Helgi Kristinsson sem stofnaði vefinn sumarið 2003 komst í umræðuna á síðasta ári er hann gaf Jónínu Benediktsdóttur upp IP-tölur nokkurra þeirra sem skrifað höfðu á vefinn. Kjaftasagan segir að Netheimur eigi nú spjallvefinn, eftir að Stefán Helgi hætti með hann eftir hið fræga mál sem komst í kastljós fjölmiðlanna. Eftir það hefur verið lítið talað um eignarhaldið af þeim sem halda utan um vefinn.
Málefnin voru um tíma lykilstaður á netinu, þar hefur þó róast mjög yfir. Rétt eins og víðar hefur spjallvefaformið sígið niður. Það er þó vissulega athyglisvert ef Arnþrúður Karlsdóttir og hennar fólk hefur fest sér eignarhald á spjallvefnum og öllum leyniupplýsingum hans eins og fram kemur á Útvarpi Sögu.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 16:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
10.7.2007 | 14:36
Valgerður verður að útskýra ummæli sín betur

Valgerður Sverrisdóttir var iðnaðar- og viðskiptaráðherra í sjö ár og utanríkisráðherra í eitt ár, hún var í hringiðu lykilákvarðana stjórnmálanna allan valdaferil ríkisstjórna Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks og er nú orðin varaformaður Framsóknarflokksins. Það er eiginlega algjört lágmark að hún orði hlutina betur en í hálfkveðnum vísum. Það sem hún segir hljómar mjög undarlega og get ég ekki betur séð en að þar séu hlutir gefnir í skyn en ekkert meira. Það vekur allavega athygli að hún þori ekki að botna eigin orð.
Það er því hið eina rétta fyrir Valgerði að tala hreint út. Þessi ummæli hennar í Viðskiptablaðinu hafa kveikt umræðu sem hún getur ekki endað nema að orða hlutina betur.
10.7.2007 | 13:43
Jákvæðar aðgerðir stjórnvalda í samgöngumálum
Það er ekki hægt annað en að fagna góðum tillögum ríkisstjórnarinnar í samgöngumálum, sem gera ráð fyrir að flýta ellefu lykilframkvæmdum í samgöngukerfinu. Er um að ræða eina af helstu mótvægisaðgerðum í tengslum við niðurskurð þorskkvótans um 63.000 tonn. Inni í þessu eru framkvæmdir sem skiptir máli að ráðast í og hafa verið á dagskrá um nokkuð skeið.
Það blasti við öllum þegar að Einar Kristinn Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra, kynnti sögulega lágar kvótatölur næsta fiskveiðiárs að einhverjar aðgerðir þyrftu að koma til sögunnar af hálfu stjórnvalda. Byggðum landsins má ekki blæða út með þeim hætti sem þá var kynntur forsmekkur að. Þetta eru góðar aðgerðir í því skyni og skipta hiklaust talsverðu máli. Hinsvegar verður veturinn auðvitað erfiður um allt land og það er viðbúið að mikill niðurskurður verði í vinnslukerfi sjávarútvegsins í takt við minni kvóta en dæmi eru um áður.
Sérstaklega ber að fagna að Norðfjarðargöngum er flýtt. Það er kominn tími til fyrir löngu að leggja ný göng milli Eskifjarðar og Norðfjarðar. Ég fór síðast um Oddskarðsgöngin í síðasta mánuði á leið til Lalla frænda míns á Skorrastað og það er öllum ljóst að þessi göng eru fyrir lifandis löngu orðin barn síns tíma. Þetta eru stærstu og bestu fréttirnar hvað okkur varðar hér í kjördæminu að mínu mati. Það er líka mikilvægt að flýta Dettifossvegi og vegabætur um Norðausturveg eru mikilvægar. Þannig að við erum sæl hér. Það eina sem vantar nú sem lykilmál er að koma Vaðlaheiðargöngum á dagskrá. Allavega skipta þessar tillögur máli á þessum tímapunkti.
Heilt yfir eru þetta því ánægjuleg skref sem tekin eru þarna og bera vott um jákvætt verklag á erfiðum tímum. Það er öllum ljóst að mótvægisaðgerðir bæta aldrei allan skaðann sem verður af skerðingu þorskkvótans en þær geta fyllt eitthvað betur upp í gatið hinsvegar sem myndast, en við öllum blasir að það er óumdeilanlega stórt.
![]() |
Vegaframkvæmdum fyrir 6,5 milljarða verður flýtt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)