12.8.2009 | 10:11
Hranaleg vinnubrögð - erfið staða Borghildar
Enginn er að tala um að hún vinni einhvern fullnaðarsigur í málinu eða sitji ein af forræði barnanna. Eðlilegast hefði verið að þetta mál gæti klárast með skynsamlegum hætti og mannsæmandi vinnubrögðum.
Borghildur hefur komið vel fyrir við að tala sínum málstað... ekki talað í upphrópunum og haldið sinni stillingu við erfiðar aðstæður. Held að hún hafi fengið mikinn stuðning meðal landsmanna.
![]() |
Fékk sms: Hæstiréttur staðfesti dóminn, sorry |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.8.2009 | 00:21
Fer talsmaður Björgólfsfeðga til starfa fyrir ríkið?
Mér finnst það merkileg kjaftasaga að Ásgeir Friðgeirsson, talsmaður Björgólfsfeðga, hafi hitt Árna Pál Árnason, félagsmálaráðherra, á fundi í dag í félagsmálaráðuneytinu. Hvað voru þeir að ræða? Er Ásgeir, fyrrum varaþingmaður Samfylkingarinnar, kannski að fara til starfa í ráðuneytinu eða fyrir Samfylkinguna í stjórnkerfinu? Ekki nema von að spurt sé.
Eðlilegt er að velta því fyrir sér af fullri alvöru hvort það sé möguleiki að talsmaður þessara umdeildu viðskiptajöfra, sem stóðu fyrir hinu margfræga Icesave, sé að verða pólitískur starfsmaður í stjórnkerfinu.
Eins og flestir vita var Ásgeir Friðgeirsson í þingframboði fyrir Samfylkinguna í kosningunum 2003 og hefði orðið þingmaður flokksins eftir afsögn Guðmundar Árna Stefánssonar árið 2005 hefði hann viljað.
Hann ákvað frekar að verða talsmaður Björgólfsfeðga. Er hann nú að fara aftur í pólitísk verkefni fyrir Samfylkinguna?
11.8.2009 | 18:10
Umferðarslys og Hvalfjarðargöng
Eftir áratug hafa fá alvarleg slys verið þar og meira að segja þeir sem vöruðu við göngunum keyra þau frekar en fara Hvalfjörðinn. Þau hafa reynst trygg og traust - góður samgöngumáti.
Eflaust munu þau verða enn traustari samgöngumáti þegar hliðargöng verða komin í fyllingu tímans.
![]() |
Umferð beint um Hvalfjörð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.8.2009 | 12:25
Verður sannfæring Ögmundar snarbeygð?
Brátt ræðst hvort Ögmundur Jónasson verði hetja þeirra sem vilja jarðsyngja afleitan Icesave-samning Svavars Gestssonar og Steingríms J. Sigfússonar eða snarbeygður kokgleypir Samfylkingarinnar, sem þarf að gefa eftir sannfæringu sína í einu mesta hitamáli síðustu áratuga, væntanlega lýðveldissögunnar allrar. Ögmundur hefur lagt margt undir með því að taka slaginn. Falli hann á sverðið til að bjarga ríkisstjórninni, bjarga andliti Samfylkingarinnar og heilagrar Jóhönnu frá niðurlægjandi ósigri verður lítið eftir af hugrekki eða pólitískum sannfæringartóni Ögmundar.
Sífellt betur kemur klofningur vinstri grænna í þessu mikla hitamáli í ljós, fyrst og fremst átök Ögmundar við Steingrím J. Sigfússon og helstu stuðningsmenn hans, sem hafa kokgleypt pólitíska sannfæringu sína fyrir völdin og bitlinga. Örlög þeirrar baráttu fylgir með í þeim slag um sannfæringu þingmanna sem fram fer bakvið tjöldin. Ögmundur og fleiri þingmenn vinstri grænna beygðu sig í ESB-málinu en eiga augljóslega erfitt með að sætta sig við ofurefli Samfylkingarinnar í þessu máli, máli sem ræður örlögum flokka og stjórnmálamanna um árabil, tel ég.
Vinstri grænir eru lemstraðir eftir þetta samstarf. Þegar eitthvað bjátar á kemur Jóhanna fram og hótar, eftir fylgir svo Össur yfirformaður og talsmaður Samfylkingarinnar þegar hinn ósýnilegi forsætisráðherra er ekki til staðar. Þetta eru undarleg vinnubrögð og minna frekar á farsa en alvöru stjórnmál á örlagatímum.
Ögmundur á eflaust erfitt val fyrir höndum; hvort valdastólar eða sannfæring sé heiðarlegra hnoss í pólitísku lífi hvers stolts manns.
![]() |
Ríkisstjórn á suðupunkti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.8.2009 | 00:31
Fjölskylda rifin upp með rótum
Hef mikla samúð með henni, enda eru aðstæðurnar mjög vondar og eiginlega verið að rífa fjölskylduna alla upp og haldið út í algjöra óvissu, sérstaklega fyrir hana þar sem alls óvíst er hvað gerist þegar hún þarf að fara úr landi eftir 90 daga.
Mér finnst þetta svolítið hranaleg vinnubrögð, enda er fjarri því augljóst að hún geti náð að koma undir sig fótfestu í Bandaríkjunum í þeim þrönga tímaramma, þegar hún hefur ekki einu sinni efni á farseðlunum.
Þetta var gott viðtal og ég tel að Borghildur hafi staðið sig vel. Vona að henni takist að klára þetta mál vel miðað við þessar erfiðu aðstæður.
![]() |
Íslenskri fjölskyldu vísað úr landi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.8.2009 | 17:22
Veruleikafirring Jóhönnu
Erfiðlega ætlar að ganga fyrir Jóhönnu Sigurðardóttur að átta sig á því að Icesave-málið fer ekki í gegnum þingið að óbreyttu. Málið er fallið í höndum ríkisstjórnarinnar. Enginn þingmeirihluti er fyrir málinu í þeirra röðum. Veruleikafirringin er samt algjör. Enn er talað um að hægt sé að setja einhliða fyrirvara við samning, fyrirvara sem Bretar og Hollendingar munu aldrei sætta sig við.
Tvennt er í stöðunni; annað hvort flautar ríkisstjórnin þennan samning af og reynir að semur upp á nýtt eða málið verður fellt í þinginu.... þá væntanlega eru örlög ríkisstjórnarinnar undir. Illa virðist ganga fyrir Jóhönnu og Steingrím að brjóta odd af oflæti sínu og viðurkenna að þeim varð á við gerð samningsins og þau hafa ekki þingmeirihlutann sinn með sér í málinu.
Enn undarlegra er að stjórnarþingmenn á borð við Björn Val Gíslason ráðist að stjórnarandstöðunni fyrir að neita að styðja þennan handónýta samning Svavars Gestssonar, samning á pólitískri ábyrgð vinstri grænna, á meðan þeir hafa ekki einu sinni þingmeirihlutann með sér. Algjör veruleikafirring.
Held að þetta lið ætti að fara að vakna og viðurkenna orðinn hlut... þetta mál er dautt í höndunum á þeim.
![]() |
Ekki öll nótt úti enn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.8.2009 | 10:47
Það er seigt í Íslendingum
Þannig er Íslendingum best lýst og ekki þeim líkt að láta vandann sigra sig.
![]() |
Gífurlegt þunglyndisálag á íslensku þjóðinni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.8.2009 | 23:47
Vonandi verður einhver spenna í deildinni
Norðanliðin unnu bæði góða sigra í fyrstu deildinni um helgina; KA fyrir austan og Þór á heimavelli. Nú er vonandi að Akureyrarlið komist í úrvalsdeildina. Of langt um liðið frá því að við höfum átt úrvalsdeildarlið.
![]() |
Langþráður sigur KR-inga á FH |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.8.2009 | 23:08
Stórþjóðahroki og þekkingarleysi Önnu Sibert
Hún nefnir ekki viðskiptaráðherra eða utanríkisráðherra Samfylkingarinnar (sem voru áberandi í aðdraganda og eftirmála hrunsins) í upptalningu yfir þá sem hún telur bera ábyrgð auk þess sem hún nefnir Davíð Oddsson einan sem fulltrúa Seðlabankans. Ekki er það heiðarlegt mat.
Voru ekki tveir hagfræðingar á vaktinni með Davíð? Hvað með aðalhagfræðing bankans sem nú er orðinn aðstoðarbankastjóri Seðlabankans? Hver er ábyrgð þeirra á vandanum að mati Önnu Sibert. Hún virðist þekkja lítið eða illa til fyrst hún skrifar með þessum hætti.
Stóra niðurstaða greinar Önnu Sibert er sú að við höfum verið of smá til að geta haldið velli og við séum of smá í heimsmyndinni. Svona stórþjóðahroki á ekki að vera vel fallinn til vinsælda á Íslandi, þó eflaust sé Samfylkingin ánægð með þessi skrif.
![]() |
Segir Davíð hafa skort sérfræðiþekkingu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.8.2009 | 19:56
Uppgjörsbomba frá rannsóknarnefndinni
Páll Hreinsson undirbýr okkur nú fyrir algjöra bombu frá rannsóknarnefnd um bankahrunið. Ég tel reyndar að allir hafi búist við mjög svartri skýrslu, enda er öllum ljóst að stjórnkerfið á flestum sviðum brást í aðdraganda hrunsins.
Þetta þarf allt að gera upp - fyrst og fremst til að skapa trúverðugleika til framtíðar. Fólkið í landinu mun ekki sætta sig við neinn hvítþvott.... heiðarlegt uppgjör er mikilvægt.
Ég hef haft mikla trú á þessari rannsóknarnefnd frá því að hún var skipuð. Þar er fólk sem ég treysti til að koma með heiðarlegt uppgjör, í allar áttir.
Eflaust verður þetta bomba... veit ekki hvort hægt er að búast við öðru þegar annað eins hrun hefur sligað heila þjóð.
![]() |
Verri fréttir en nokkur nefnd hefur þurft að færa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.8.2009 | 13:31
Aðför að lögreglu - haldið uppi lögum og reglu
Eftir aðfarir félaga í Saving Iceland til mótmælabaráttu, sérstaklega á Austurlandi, síðustu ár trúi ég mátulega þeim boðskap sem þaðan kemur. Lögreglan vinnur bara sína vinnu við að taka á þeim vanda sem fylgir mótmælaaðferðum þeirra. Við hverju er annars að búast af lögreglunni gagnvart þeim sem streitist á móti handtöku. Eiga þeir bara að fá að fara? Varla.
Lögreglan hefur skyldum að gegna - hún þarf að halda uppi lögum og reglum í þessu landi. Ef brotið er af sér verður það hlutverk lögreglunnar að taka á því. Ef harka færist í leikinn verður lögreglan að beita þeim vörnum sem hún hefur yfir að ráða. Lögreglan verður að hafa svigrúm til að sinna sínumv verkum.
Ég get ekki betur séð á þessu máli og fleirum tengdum Saving Iceland en lögreglan sé að sinna sínum skyldum. Ekkert samfélag á eða getur sætt sig við að opinberir starfsmenn séu ekki verndaðir til að sinna sínum störfum.
![]() |
Saving Iceland: Rógburður lögreglu og lygar fjölmiðla |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.8.2009 | 13:24
Yndisleg kvöldstund á Dalvík
Þar hefur verið unnið af krafti árum saman og öllum ljóst að hátíðin er rós í hnappagat bæjarbúa útfrá. Held að fáum sem störtuðu þessum hátíðarhöldum fyrir átta árum hafi í raun órað fyrir því að svo vel myndi ganga sem raun ber vitni. Hvað þá að svo mikill mannfjöldi myndi vilja koma til að fá sér súpu.
Fiskidagurinn mikli hefur gert mikið fyrir Dalvík. Þetta er auðvitað ein besta bæjarhátíð landsins. Mörg sveitarfélög geta lært mikið af því sem Dalvíkingar hafa gert til góðs með þessari hátíð.
Fiskidagurinn er sannkallaður yndisauki í mannlífið hér í firðinum á hverju ári. Þar eru allir velkomnir og engin hlægileg aldurstakmörk. Þar gleðjast allar kynslóðir saman.
![]() |
Fjölmenni á Dalvík |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.8.2009 | 19:02
Virðingarleysi fyrir lögreglu
Þeir sem þar starfa eru aðeins að sinna sinni vinnu og hafa ekkert af sér gert til að verðskulda slíka lágkúru. Ég vona að flestir sjái að lögreglan vinnur fyrir okkur öll og á að njóta virðingar landsmanna.
![]() |
Sparkað í höfuð lögreglumanns |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.8.2009 | 13:23
Bretar gefa ekki eftir - samningur úr sögunni
Æ augljósara verður að Icesave-samningurinn hefur ekki stuðning á Alþingi. Hann hefur í raun verið sleginn út af borðinu með öllu tali um fyrirvara og breytingar. Illa var haldið á málum af samninganefnd Svavars Gestssonar - mörg alvarleg mistök gerð í samningsferlinu sem verða Íslandi dýrkeypt.
Enn verra er að hlusta á fjármálaráðherra neita að viðurkenna mistökin og þess í stað verja þau, vinna þar með gegn hagsmunum Íslands. Enn undarlegra er að sá maður kenni öðrum um samninginn sem er á pólitískri ábyrgð hans. Kastljósviðtalið við Steingrím J. var hálfgerð tragedía.
Nú er ljóst að Bretar munu ekki breyta samningnum. Varla furða svosem. Þeir höfðu fullnaðarsigur í baráttunni við lélega samninganefnd frá Íslandi og munu ekki beygja sig. Íslensk mistök í þessu samningsferli eru dýrkeypt og hafa mikil áhrif á framtíð málsins.
Ef einhver bógur væri í íslenskum stjórnvöldum myndu þau fara eftir heillaráðum Evu Joly og reyna að landa þessu máli með diplómatískum aðferðum þegar ljóst er að Icesave-samningurinn hefur ekki stuðning á Alþingi.
![]() |
„Það er búið að semja!“ |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.8.2009 | 00:54
Borgarahreyfingin splundrast á mettíma
En varla kemur þetta samt að óvörum. Þegar varð ljóst í maímánuði að innri mein voru undir niðri í hreyfingunni. Þau hafa samt sligað hreyfinguna og þinghópinn sérstaklega mun fyrr en flestum óraði fyrir.
Þegar ég skrifaði þessa grein í maí sá ég fyrir að Borgarahreyfingin lifði ekki kjörtímabilið... en átti varla von á að þetta yrði orðið svona súrt fyrir sumarlok.
En við hverju var að búast af hreyfingu sem myndaðist utan um óánægju og fá stefnumál, almennt orðuð.
![]() |
Enginn þingmaður mætti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.8.2009 | 20:01
Steingrímur J. vinnur gegn hagsmunum Íslands
Mér finnst raunalegt að sjá Steingrím J. Sigfússon vinna gegn hagsmunum Íslands með því að taka frekar málstað Bretlands og Hollands en okkar. Ef hann væri einlægur talsmaður íslenskra hagsmuna myndi hann taka undir með Ragnari Hall og reyna að berjast fyrir því að borga minna en okkur er ætlað. Illa er komið fyrir Íslandi þegar stjórnvöld taka frekar málstað þeirra sem ráðast harkalega gegn íslenskum hagsmunum.
Ég verð að viðurkenna að ég taldi að einhver bógur væri í Steingrími J. Sigfússyni - hann væri hugsjónamaður og einlægur baráttumaður sinna stefnumála. Þegar á reyndi var það rangt mat. Hann var aumur bógur og seldi allar hugsjónir fyrir völd. Og nú vinnur hann gegn hagsmunum Íslands.
Þeir hljóta að vera sárir sem kusu þennan mann vegna hugsjóna hans.... hugsjónanna sem hann sveik.
![]() |
Svigrúm til að setja skilyrði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
6.8.2009 | 14:18
Sköllóttur frakkaklæddur málari á Opel Corsa
Samt sem áður er þetta árás á fleiri en þann sem ráðist er á. Þetta er árás á einkalíf viðkomandi, fjölskyldu hans sérstaklega. Oftast nær fólk sem hefur ekkert til saka unnið. En þetta er viðkvæmt mál.
![]() |
Sást skvetta málningu á húsið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.8.2009 | 00:48
Stjórn Kaupþings snuprar Finn bankastjóra
Mér finnst það merkilegt að stjórn Nýja Kaupþings snupri Finn Sveinbjörnsson, bankastjóra, með yfirlýsingu um beina andstöðu við lögbannsbeiðni á fréttaflutning RÚV - hann hafi í raun verið einn að verki. Eðlilegt er að spyrja sig að því hvort Finni sé sætt sem bankastjóra Kaupþings eftir þetta fíaskó.
Reyndar er orðið tímabært að skipta út öllum stjórnendum bankanna, auglýsa stöður bankastjóra og skipa nýtt fólk til verka. Fyrir trúverðugleikann, fyrst og fremst.
![]() |
Stjórn Kaupþings harmar skaðann af lögbanninu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.8.2009 | 18:04
Siðlaus verknaður - aðför að einkalífi fólks
Þeir hafa veikan málstað fram að færa sem ráðast svona að fólki. Þetta er algjör aumingjaskapur... árás í skjóli nætur, árás frá fólki sem þorir ekki að standa við skoðanir sínar.
![]() |
Skrifuðu illvirki á húsið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.8.2009 | 00:38
Áfellisdómur yfir ríkisstjórn og Seðlabanka
Álit Hagfræðistofnunar um Icesave-málið er risastór áfellisdómur yfir ríkisstjórninni og Seðlabanka Íslands. Skýrsla Seðlabankans er reyndar alveg hökkuð í spað og kemur í ljós að hún var pólitískt pantað álit fyrir forsætisráðherrann og fjármálaráðherrann til að reyna að koma þessu Icesave-máli gegnum þingið. Æ betur verður augljós sú staðreynd að Íslendingar munu ekki geta staðið undir skuldbindingum vegna Icesave.
Auðvitað er það rétt hjá Hagfræðistofnun að hér verður fólksflótti að óbreyttu. Þetta er það sama og Eva Joly sagði í góðri grein sinni um helgina.... grein sem varð til þess að hún var rökkuð niður af spunameistara og upplýsingafulltrúa Jóhönnu Sigurðardóttur. Enn hefur forsætisráðherrann ekki komið fram og sett ofan í við aðstoðarmann sinn. Ekki er einu sinni reynt að lágmarka skaðann hjá þessu liði.
Þetta var reyndar vondur dagur fyrir þessa arfaslöku vinstristjórn, sem virðist endanlega að spila út. Fyrir utan að vinnubrögð Jóhönnu og Steingríms eru tætt niður lið fyrir lið í skýrslunni ræður viðskiptaráðherrann sér aðstoðarmann úr Landsbanka Björgólfsfeðga sem hjalaði útrásartóninn allt þar til hrundi yfir hann og félagsmálaráðherrann staðfestir loks að skjaldborgin fyrir almenning er engin.
Þetta er ekki beysið. Þessi vinstristjórn er að fjara út hraðar en jafnvel svartsýnustu menn spáðu fyrirfram.
![]() |
Mesta hættan fólksflótti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |