Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Obama velur Joe Biden sem varaforsetaefni

BidenObamaAllar helstu fréttastöðvarnar vestan hafs hafa nú fengið staðfest eftir miðnættið að Joe Biden, öldungadeildarþingmaður frá Delaware, verður varaforsetaefni Barack Obama í forsetakosningunum 4. nóvember nk. Endanleg staðfesting frá traustum heimildarmönnum kemur áður en Obama tilkynnir formlega um valið með tölvupósti til stuðningsmanna.

Biðin langa eftir því að yfirstjórn kosningabaráttu Barack Obama sendi tölvupóstinn reyndist vera einum of mikið af því góða fyrir bæði bandaríska fjölmiðla og stjórnmálaáhugamenn vestan hafs. Upphaflega áttu þetta að vera stórtíðindi til kjósenda í baklandi Obama og þeir áttu að fá forskot á ákvörðunina. Þegar pósturinn loks fer út eftir fjóra til fimm klukkutíma verða það engin tíðindi. Væntanlega munu þeir sjá eftir því að hafa ekki tekið af skarið seinnipartinn í gær þegar í raun hefði verið hægt að slá af alla umræðuna og taka frumkvæðið, enda var fyrirsjáanlegt að þetta myndi berast út um allt þegar vænlegum varaforsetamöguleikum myndi fækka.

Valið á Biden á í sjálfu sér ekki að vera nein pólitísk stórtíðindi. Hann hefur mjög mikla reynslu í utanríkis- og varnarmálum og getur fært Obama styrkleika í þeim málaflokki þar sem hann er veikastur fyrir. Augljóslega hefur Obama metið það sem svo að hann þyrfti að fá mann við hlið sér með mikla reynslu til að vega upp víðtækt reynsluleysi sitt á mörgum sviðum, einkum í alþjóðastjórnmálum. Með Biden sér við hlið fær Obama á sig blæ reynslunnar og bætir upp fyrir marga veikustu punkta hans í kosningabaráttunni.

Greinilegt er að Obama hefur metið það meira að hafa mann sér við hlið sem gæti tæklað lykilmálin og fært reynslublæ yfir það, en velja einhvern sem myndi hjálpa honum við að vinna lykilfylkin. Með þessu er Obama í raun að treysta á eigin stjörnuljóma einvörðungu. Biden gæti lagt honum lið í umræðunni. Hann færir honum hinsvegar engin fylki í baráttuna né heldur alvöru kraft til þess að ná óákveðnum á sitt band, enda ekki beinlínis traustasti fulltrúi demókrata til að boða breytingaboðskap Obama í allri baráttunni.

Biden hefur verið í öldungadeildinni nærri alla sína starfsævi. Hann var kjörinn á þing þrítugur að aldri og hefur verið eigin herra í mörg ár. Nú verður hlutverk hans að styrkja undirstöður kosningabaráttu manns sem var aðeins ellefu ára þegar hann tók sæti í öldungadeildinni og hefur reynslu sem hverfur í skugga alls þess sem hann hefur nokkru sinni gert. Framundan er áhugaverð barátta þar sem Obama og Biden ná taktinum.

Hlakka til að sjá hvernig þetta teymi fer í kjósendur. Hvort það nái marktækri uppsveiflu fyrir flokksþingið og áður en þeir flytja ræður sínar í Denver á miðvikudag og fimmtudag. Obama hefur þarna tekið sína þýðingarmestu ákvörðun í allri baráttunni. Hann leggur mikið undir með að velja ekki frambjóðanda sem leggur honum lið við lykilfylkin en á að fókusera sig nær eingöngu að því að skapa framboðinu trúverðugleika.


Kastljósið beinist að Biden - fjölskyldan hittist

Vefmyndavél við heimili Joe Biden
Æ líklegra verður með hverri stundinni sem líður á þessu kvöldi að Joe Biden, öldungadeildarþingmaður í Delaware, verði varaforsetaefni Barack Obama og hafi fengið formlega tilkynningu um það, eftir fyrri kjaftasögur um að Evan Bayh hefði verið valinn. CNN sagði fyrir stundu að fjölskylda Biden væri að koma saman á heimili þingmannsins í Delaware, lögreglulið er komið á svæðið og flest bendir til að hann sé á leiðinni til Illinois.

Vefmyndavélin á fréttavef CNN sem hefur verið beint að heimili Biden í allan dag virðist vera að koma upp um hvern Obama hefur valið. Lítil sem engin hreyfing var í kringum húsið mestan part dagsins og þegar rökkva tók voru fyrst litlar breytingar. Um áttaleytið í kvöld að staðartíma tóku hinsvegar fjöldi bíla að koma að húsinu og er nú ljóst að eiginkona Bidens er í húsinu, ennfremur dóttir hans og sonur og nánustu ráðgjafar hans.

Vel má vera að þetta sé enn eitt falsljósið á þessu kvöldi þegar allir bíða eftir að hulunni verði svipt af varaforsetaefninu en þó líklegra að Biden sé að tilkynna fjölskyldu sinni um hvert stefni. Á meðan öll ljós eru kveikt á heimili Bidens í Delaware er ekkert að gerast við heimili Bayh og Kaine, sem NBC fullyrti fyrir stundu að yrðu ekki fyrir valinu.

Spennandi klukkutímar framundan. Líklega mun tölvupósturinn margumræddi ekki verða þau stórtíðindi með morgni eins og allt benti til að hann yrði. Hver veit?

Rifjum upp plúsa og mínusa Joe Biden, úr grein fyrr í vikunni, fyrst að hann virkar allt í einu líklegasti valkosturinn af þeim þrem sem helst hefur verið nefndur.

Joe Biden
+ Með mikla og víðtæka þekkingu, einkum í utanríkismálum, er formaður utanríkismálanefndar öldungadeildarinnar og komið til greina sem utanríkisráðherra fyrir demókrata. Verið þingmaður í öldungadeildinni fyrir Delaware síðan Obama var ellefu ára, árið 1973. Enginn efast um víðtæka reynslu hans og á hann er hlustað. Er þungavigtarmaður sem myndi færa Obama styrkleika í lykilmálaflokkum, sem honum vantar sárlega.

- Verið mjög lengi hluti af valdakerfinu í Washington, verið þar í innsta hring í hálfan fjórða áratug, síðan í forsetatíð Richards Nixon, og talinn táknmynd liðinna tíma af sumum, þó hann sé traustur að mörgu leyti. Gæti skaðað boðskap Obama um breytingar í DC. Er talinn lausmáll og gæti gefið höggstað á sér og framboðinu. Delaware hefur aðeins þrjá kjörmenn og skiptir ekki máli í kjörmannapælingum. Hefur ekki unnið undir stjórn annarra í marga áratugi. Er sex árum yngri en McCain, 66 ára síðar á árinu.

Verður Joe Biden varaforsetaefni Obama?

Biden/Obama
Skömmu eftir að fregnir tóku að berast um að Evan Bayh yrði varaforsetaefni Barack Obama var það skotið niður af enn traustari heimildarmönnum. Þar er fullyrt að bæði Bayh og Tim Kaine hafi fengið símtöl fyrir nokkrum klukkutímum frá Obama þar sem þeim var tilkynnt að þeir hefðu ekki orðið fyrir valinu. Merkileg lok á þeirri fléttu að Evan Bayh hefði verið valinn og vitnað í að verið væri að prenta efni með nöfnunum þeirra.

Þar sem þeir eru báðir úr sögunni er eðlilegt að velta tvennu fyrir sér. Obama hefur skv. þessu ákveðið að velja ekki þann sem hafði engar tengingar við valdakjarnann í Washington en hefði getað fært honum sigur í Virginíu næstum því á silfurfati né heldur þann sem hefur traustar tengingar við Hillary Rodham Clinton og í miðvesturríki Bandaríkjanna. Merkilegar staðreyndir sé þetta rétt.

Eftir stendur stóra spurningin; hefur Obama ákveðið að velja reynslu í utanríkismálum eða traustasta kostinn, þann að velja sjálfa Hillary Rodham Clinton sem varaforsetaefni. Eftir allt tal dagsins um að Hillary komi ekki til greina og hafi ekki verið á lista Obama er líklegra að Biden hafi orðið fyrir valinu.

Biden er traustur í utanríkismálum og hefur mikla reynslu. En getur hann farið fram undir slagorðinu "Change we can believe in"? Varla, eða hvað. Auðvitað þarf Obama að gera fleira en gott þykir og utanríkismálin eru mikill veikleiki fyrir hann.

En eðlilegt er að velta því fyrir sér hvort Hillary eigi virkilega séns. Hann hafi ákveðið að velja traustasta valkostinn, þó hann sé ekki sá sem hann hafi akkúrat viljað. Geri þar með hið sama og Kennedy er hann valdi Johnson 1960.

Eða mun hann kannski velja Chet Edwards og gera það sem engum hefði órað fyrir. Velja einhvern nær algjörlega óþekktan og stóla algjörlega á stjörnusjarma sinn og styrk. Það væri óvænt en kannski einum of djarft.

Hvað með það. Sögusagnirnar eru orðnar óteljandi og erfitt að átta sig á hverju skal trúa. Hitt er þó ljóst að mjög stutt er í tilkynningu. Hún kemur ekki úr þessu í kvöld og mun væntanlega koma í bítið.

Með því fær varaforsetaefnið nokkra klukkutíma í sviðsljósi fjölmiðlanna áður en haldið verður í flugferðina til Illinois á fyrsta kosningafund framboðsins undir nýjum formerkjum.

Óstaðfest: Barack Obama velur Evan Bayh

Obama/Bayh
Fyrir stundu tóku traustar sögusagnir að leka út um að Barack Obama hefði valið Evan Bayh, öldungadeildarþingmann í Indiana, sem varaforsetaefni sitt. DrudgeReport hefur nú pikkað þetta upp og birt og nefnir starfsmenn sem vinna á þessari stundu að því að framleiða spjöld með nöfnum þeirra fyrir kosningafundinn í Illinois á morgun sem heimild.

Enn hefur Obama ekki sent út hinn margumrædda tölvupóst með formlegri tilkynningu. Því er þetta óstaðfest. Í allan dag hef ég reyndar fengið á tilfinninguna að Evan Bayh yrði varaforsetaefnið. Spáði því í skrifum hér í gær. Bayh hefur svo margt með sér að valið á honum er bæði rökrétt og traust fyrir Barack Obama á þessum tímapunkti.

Í skrifunum í gær rakti ég plúsa og mínusa Bayh. Förum yfir þá svona í svipinn:

Evan Bayh
+ Traustur valkostur í tæpri baráttu, unglegur og myndarlegur en samt hokinn af reynslu; verið í öldungadeildinni frá 1999 en þar áður ríkisstjóri í Indiana tvö tímabil. Studdi Hillary í forkosningaferlinu og tryggði henni nauman sigur í Indiana og gæti leikið lykilhlutverk í að græða sárin milli fylkinganna, sem enn eru til staðar. Með trausta stöðu í miðvesturríkjunum sem munu jafnvel ráða úrslitum. Gæti fært Obama sigur í Indiana, ellefu kjörmanna fylki sem repúblikanar hafa unnið í öllum kosningum frá 1936, nema einum, auk þess leikið lykilhlutverk í Ohio og Iowa. Myndi ekki skyggja á Obama.

- Studdi innrásina í Írak og allar helstu ákvarðanir Bush-stjórnarinnar í hinu umdeilda stríði áður en það hófst og á fyrstu stigum þess. Hefur ekki gengið í takt með Obama í málefnum Írak allt frá upphafi og gæti valið á honum vakið spurningar um hvort þeir séu samstíga og sammála í utanríkismálum. Gæti talist litlaus þrátt fyrir stjörnusjarmann og einum of fyrirsjáanlegur kerfiskarl. Verið í öldungadeildinni í rúman áratug og myndi fúnkera illa með breytingamaskínu Obama.

Beðið eftir Obama - varaforsetaefnið kynnt í dag

obama appBarack Obama mun svipta hulunni af varaforsetaefni sínu á næstu klukkustundum. Hann hefur tekið ákvörðun en lætur fjölmiðlana engjast í biðinni og nýtur sviðsljóssins. Pressan bíður spennt eftir því að valið verði opinberað, en svo mikil spenna er reyndar í loftinu að CNN hefur beina útsendingu frá heimilum allra líklegustu varaforsetaefnanna á vefsíðu sinni, þeir eru greinilega við öllu búnir þegar tilkynningin kemur.

Obama brýtur blað í bandarískri stjórnmálasögu með því að opinbera varaforsetavalið í tölvupósti til allra þeirra sem eru á póstlista hans, en ekki á kosningafundi í lykilríki í kosningabaráttunni, nú þegar rúmir 70 dagar eru til kjördags. Þetta er til marks um hina nýju tíma þar sem netið skiptir öllu máli, mun frekar en gamaldags trix baráttu fyrri tíma. Nýstárlegt og flott - segir allt sem segja þarf um hvort sé mikilvægara nú, netið eða gömlu góðu kosningafundirnir.

Fjölmiðlarnir vestanhafs velta helst fyrir sér Bayh, Biden og Kaine sem valkostum, rétt eins og ég gerði í pistli hér á vefnum í gær. Enda eru þeir traust veðmál. Eftir því sem liðið hefur á daginn hafa vangaveltur um Chet Edwards, fulltrúadeildarþingmann í Texas (reyndar fyrir heimahérað Bush forseta), hinsvegar aukist. Er sagður vera líklegur valkostur. Kemur fjölmörgum á óvart, enda Edwards fjarri því þekktur og gæti orðið áhugavert val einkum vegna þess. Auðvitað verða það stórtíðindi ef hann verður valinn, umfram þremenningana.

Obama hefur þegar hringt í alla sem komið hafa til greina á síðustu vikum og tilkynnt þeim niðurstöðuna. Þrátt fyrir það hafa Biden, Kaine og Bayh verið eins og pókerfés og látið á engu bera, þó þeir viti niðurstöðuna. Fannst þó Bayh brosa ansi breitt reyndar, veit ekki hvort það bendir til þess að hann verði varaforsetaefnið.

Skráði mig áðan á þennan margfræga póstlista og bíð því eftir niðurstöðunni eins og aðrir. Verður áhugavert að sjá hvað Obama gerir eftir biðina löngu, hvern hann velur. En mikil verður nú sæla fjölmiðlanna þegar að þeir losna úr þessari spennu sem hefur verið svo áberandi í allri umfjöllun þeirra síðustu daga.


Gott skref tekið í Ramses-málinu

Mér líst vel á ákvörðun dómsmálaráðuneytisins að taka mál Paul Ramses fyrir aftur. Auðvitað var það hið eina rétta í stöðunni og mátti ljóst vera fyrir nokkrum vikum að það væri hið skynsamlegasta að gera. Miðað við aðstæður Ramses var framkoman við hann frekar harðneskjuleg og hefði mátt taka málið fyrir með formlegum hætti og fara betur yfir það.

Held að Ramses-málið sé dæmi um mál þar sem almenningur rís upp og tjáir sína skoðun og stjórnmálamenn hlusta á. Ekkert nema gott um það að segja að Ramses fái annað tækifæri í kerfinu.

mbl.is Mál Ramses tekið fyrir á ný
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kommarnir í Peking hrósa Ólafi Ragnari

ÓRGJintaoEkki vantar að Hu Jintao og einræðisstjórnin í Kína ausi lofsorðunum yfir Ólaf Ragnar Grímsson í Kínaför hans. Kannski er það ekki nema von að þeir fagni honum svona mikið miðað við það hversu áfjáður hann er í að eiga samskipti við þá, bæði með því að fara á Ólympíuleikana og eiga samskipti við þá sem ráðið hafa för þar á undanförnum árum.

Ég skil ekki hvað Ólafur Ragnar er að gera í Peking, í sannleika sagt, annað en njóta sviðsljóssins. Forseti Íslands hefur aldrei áður farið á Ólympíuleika og tekið þátt í þeim, en nú velur íslenska forsetaembættið Peking-leikana sem þá fyrstu og setur furðulegt fordæmi, hvað svo sem síðar verður. Annars verður fróðlegt að sjá hvort eftirmaður Ólafs Ragnars eftir fjögur ár muni fara á leikana í London.

Mér finnst þetta vafasöm tenging við umdeild stjórnvöld og undrast ákvörðun Ólafs Ragnars um að fara. En kannski vildi hann fá þessi lofsorð ráðamannanna í Peking, hver veit.

mbl.is Forsetar Íslands og Kína á fundi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er hið rökréttasta sanna lausnin á ráðgátunni?

911Eftir allar samsæriskenningarnar um það sem gerðist 11. september 2001, þar sem farið hefur verið hringurinn í öllu því ótrúlega í hugarórunum um tvíburaturnana, er ekki óeðlilegt að niðurstaðan á því hvað gerðist sé bæði einföld og trúanleg. Ég hef fyrir löngu misst töluna á öllum þeim vangaveltum sem blómstrað hafa á þessum sjö árum en fagna því mjög að eitthvað skynsamlegt bætist í flóruna.

Veit ekki hvort að þessar uppljóstranir rannsóknaraðila slá svosem nokkuð á alla þá aðila á veraldarvísu sem hafa ekki hugsað um annað í mörg ár en hvað hafi gerst og reynt að gera allar skynsamlegar raddir um atburðarásina ótrúverðugar og sá efasemdum og tortryggni. En verður nokkru sinni hægt að sameinast öll sem eitt um atburðarás þess sem gerðist þennan dag sama hversu augljósar staðreyndirnar eru?

Man eftir því að ég lenti einu sinni í afmælisveislu fyrir nokkrum árum þar sem þetta var liggur við eina umræðuefnið. Þvílíkt augnablik. Ég var orðinn ringlaðri en stuðningsmenn F-listans þegar samræðunum lauk, auðvitað án niðurstöðu. En ég held að þarna sé nú hægt að finna skynsamlegan flöt á niðurstöðu.

En munu þeir sem hafa eytt sjö árum í að kynda undir absúrd-veruleika tengdum 11. september 2001 hætta að velta þessu fyrir sér nú? Sennilega er það jafnlíklegt og þeir Ólafur F. og Jón Magnússon mæti saman í Kvöldgesti hjá Jónasi.

mbl.is Ráðgátan leyst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábær frammistaða hjá Hönnu Birnu í kvöld

Hanna Birna KristjánsdóttirHanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri, stóð sig mjög vel í spjallþáttum kvöldsins, talaði af myndugleika, skýrt og án nokkurra málalenginga sem einkennt hefur síðustu borgarstjóra. Sérstaklega fannst mér hún eiga frábæra frammistöðu í Kastljósi. Þorfinnur og Helgi komu báðir með erfiðar spurningar og ætluðu að sækja að henni en höfðu ekki erindi sem erfiði í því.

Hanna Birna er hörkutól, ákveðin og einbeitt og það sást vel í þessum viðtölum að hún ætlar hvergi að hika. Talar mannamál. Auðvitað hefur vantað í borgarmálunum að hafa fókusinn einbeittan. Málefnin hafa horfið í skuggann á öllum sviptingunum en ég er þess fullviss að þegar rykið sest og farið verður að vinna eftir þeim málefnum sem mikilvægust eru muni meirihlutinn verða traustur og hann sitji út kjörtímabilið.

Stóra spurningin er hvort Hanna Birna muni festa sig í sessi sem borgarstjóri út kjörtímabilið og verða sterkur leiðtogi sjálfstæðismanna í aðdraganda næstu kosninga. Ef hún heldur áfram af sama krafti og einkenndi viðtölin í kvöld held ég að sjálfstæðismenn nái að fóta sig að nýju eftir vandræðaganginn í leiðtogatíð Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar og eiga sér nýtt upphaf þrátt fyrir allt.

Enn er mjög langt til kosninga og erfitt að spá nokkru um hvað 20 mánuðir í pólitík bera í skauti sér. Það miklar sviptingar hafa orðið á tíu mánuðum að vonlaust er að segja til um hvernig landið liggur eftir 20 mánuði. En hinsvegar held ég að Hanna Birna muni standa sig. Með myndun nýs meirihluta hefur hún markað sjálfri sér stöðu á eigin forsendum og virðist ætla að vinna sín verk af krafti.


mbl.is Lyklaskipti í Ráðhúsinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvern velur Barack Obama sem varaforsetaefni?

BarackLjóst verður innan tveggja sólarhringa hvern Barack Obama velur sem varaforsetaefni sitt í kosningabaráttuna næstu 70 dagana. Flokksþing demókrata hefst í Denver í Colorado á mánudag og þegar er ljóst að Obama ætlar sér að eiga fyrsta kosningafundinn með varaforsetaefninu í Springfield í Illinois síðdegis á laugardag, þar sem hann tilkynnti formlega um forsetaframboð sitt í febrúar 2007.

Tilkynnt var síðdegis að Obama hefði tekið ákvörðun um valið en það yrði ekki gert opinbert strax. Bandarískir fjölmiðlar hafa fjallað það vel um valkosti Obama að þeir eru flestir orðnir vel kunnir, meira að segja þeim sem ekki þekkja vel til bandarískra stjórnmála. Þar hefur biðin verið löng og erfið og teygð í gegnum gúrkutíðina allt frá því Obama náði útnefningunni formlega í júníbyrjun. Hann hefur þó staðið allt tal fjölmiðlanna af sér og fikrað sig nær ákvörðun.

Eins og staðan er núna eru þrír taldir líklegri en aðrir til að ná útnefningunni. Mest er talað um Tim Kaine, ríkisstjóra í Virginíu, Joe Biden, öldungadeildarþingmann frá Delaware, og Evan Bayh, öldungadeildarþingmann frá Indiana. Traustustu veðmálin þar á ferð. Enn er þó hávær orðrómur um þann fjarlæga möguleika að Hillary Rodham Clinton, keppinautur Obama í hinni sögulegu forkosningabaráttu, verði fyrir valinu, á meðan margir sem vilja konu tala um Kathleen Sebelius, ríkisstjóra í Kansas.

Bayh, Biden og Kaine eru mjög ólíkir valkostir, hafa allir trausta styrkleika en líka áberandi veikleika í stöðunni fyrir Barack Obama. Förum yfir þá.

BidenJoe Biden
+ Með mikla og víðtæka þekkingu, einkum í utanríkismálum, er formaður utanríkismálanefndar öldungadeildarinnar og komið til greina sem utanríkisráðherra fyrir demókrata. Verið þingmaður í öldungadeildinni fyrir Delaware síðan Obama var tólf ára, árið 1973. Enginn efast um víðtæka reynslu hans og á hann er hlustað. Er þungavigtarmaður sem myndi færa Obama styrkleika í lykilmálaflokkum, sem honum vantar sárlega.

- Verið mjög lengi hluti af valdakerfinu í Washington, verið þar í innsta hring í hálfan fjórða áratug, síðan í forsetatíð Richards Nixon, og talinn táknmynd liðinna tíma af sumum, þó hann sé traustur að mörgu leyti. Gæti skaðað boðskap Obama um breytingar í DC. Er talinn lausmáll og gæti gefið höggstað á sér og framboðinu. Delaware hefur aðeins þrjá kjörmenn og skiptir ekki máli í kjörmannapælingum. Hefur ekki unnið undir stjórn annarra í marga áratugi. Er sex árum yngri en McCain, 66 ára síðar á árinu.

BayhEvan Bayh
+ Traustur valkostur í tæpri baráttu, unglegur og myndarlegur en samt hokinn af reynslu; verið í öldungadeildinni frá 1997 en þar áður ríkisstjóri í Indiana tvö tímabil. Studdi Hillary í forkosningaferlinu og tryggði henni nauman sigur í Indiana og gæti leikið lykilhlutverk í að græða sárin milli fylkinganna, sem enn eru til staðar. Með trausta stöðu í miðvesturríkjunum sem munu jafnvel ráða úrslitum. Gæti fært Obama sigur í Indiana, ellefu kjörmanna fylki sem repúblikanar hafa unnið í öllum kosningum frá 1936, nema einum, auk þess leikið lykilhlutverk í Ohio og Iowa. Myndi ekki skyggja á Obama.

- Studdi innrásina í Írak og allar helstu ákvarðanir Bush-stjórnarinnar í hinu umdeilda stríði áður en það hófst og á fyrstu stigum þess. Hefur ekki gengið í takt með Obama í málefnum Írak allt frá upphafi og gæti valið á honum vakið spurningar um hvort þeir séu samstíga og sammála í utanríkismálum. Gæti talist litlaus þrátt fyrir stjörnusjarmann og einum of fyrirsjáanlegur kerfiskarl. Verið í öldungadeildinni í rúman áratug og myndi fúnkera illa með breytingamaskínu Obama.

KaineTim Kaine
+ Er ekki hluti af innsta valdakerfinu í Washington og myndi tóna vel með Obama sem upphafsmaður nýrra tíma í höfuðborginni, myndi ljá breytingamaskínu Obama nýjan og leiftrandi kraft. Sem ríkisstjóri Virginíu gæti hann fært Obama sigur í fylkinu, sem demókrati hefur ekki unnið síðan Lyndon B. Johnson var kjörinn árið 1964 og hefur verið traust vígi repúblikana áratugum saman. Var fyrsti ríkisstjórinn sem lýsti yfir stuðningi við Obama utan Illinois.

- Situr sitt fyrsta kjörtímabil sem ríkisstjóri og hefur því litla pólitíska reynslu líkt og Obama. Hefur jafnan verið talið mikið veikleikamerki í bandarískum stjórnmálum að í forsetaframboði saman séu tveir menn á fyrsta tímabili. Hann gæti veikt framboðið í miðvesturríkjunum jafnmikið og hann myndi styrkja það í Virginíu, einu því mikilvægasta. Of lítið þekkt andlit til að fara með lítt reyndum forsetaframbjóðanda alla leið á sjötíu mikilvægum dögum.


Fínt að velta þessu fyrir sér. Hef verið viss um það frá upphafi að Obama myndi velja Bayh eða Biden. Þeir eru það traustir valkostir að það liggur beinast við. Sérstaklega er mjög áberandi hvað Bayh er traustur valkostur, varla er veikan blett á honum að finna. Hann hefur svo margt sem Obama vantar í þessum kosningum, auk þess þann sjarma og kraft sem honum vantar án þess þó að skyggja á hann.

Enn er talað um Hillary, skiljanlega. Kannanir sýna að rök hennar í baráttunni fyrir stuðningi ofurfulltrúanna í forkosningaslagnum eru að verða napur veruleiki. Obama var ekki sá draumavalkostur sem talið var lengstan part vetrarins og hann hefur mikla veikleika. Auk þess er blaðran sprungin og hann er ekki eins öflugur Messías eins og í byrjun ársins, áður en Wright-málið skall á. Allt sem Hillary sagði gegn honum hefur ræst og gott betur en það.

Auðvitað væri það traustast fyrir Obama að velja Hillary. Hún myndi færa honum fylgi sem sárlega vantar, með því yrði samstaða flokksins tryggð og Obama fengi trausta uppsveiflu. Hinsvegar myndi Hillary skyggja mjög á Obama, sem hefur veikst mjög í sumar, og gæti í raun tekið forystuhlutverk í framboðinu sem varaforsetaefni. Það er sem eitur í beinum Obama-hjónanna sem vilja upplifa sitt augnablik.

Svo tala sumir um Kathleen Sebelius. Það mun ekki gerast að hún verði valin, tel ég. Þá myndi Obama stuða allar konurnar sem börðust nótt og dag fyrir Hillary og hún yrði söguleg áminning um að vera konan sem fékk sess Hillary á þessu sögulega kosningaári. Er gjörsamlega dæmt til að mistakast og springa framan í Obama, eins frambærileg og Sebelius annars er.

Eitt er víst; Obama mun reyna að stuða sem fæsta með valinu, nógu veikur er hann nú samt. Því er langlíklegast að hann velji reyndan mann með sér og þar standa eftir aðeins Bayh og Biden. Finnst líklegra að hann velji Bayh. Hann er ungur og sjarmerandi en samt með mikla reynslu.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband