Færsluflokkur: Dægurmál
6.9.2008 | 15:00
Þjóðin kveður máttarstólpa mannúðar og kærleika

Þjóðin öll kveður mikinn og öflugan leiðtoga. Hann var máttarstólpi mannúðar og kærleika. Alla mína ævi hef ég alist upp við orð hans, leiðsögn og forystu. Hún hefur verið leiðarstef þjóðarinnar áratugum saman. Dr. Sigurbjörn var ekki aðeins traustur leiðtogi trúar sinnar heldur og mannlegra áherslna. Hann náði til ólíkra kynslóða og sameinaði okkur öll.
Skarð hans er mikið fyrir íslensku þjóðina. En orð hans, boðskapur og trúarleg forysta mun lifa með þjóðinni.
![]() |
Sigurbjörn Einarsson jarðsunginn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
5.9.2008 | 11:47
Mannleg grimmd - frelsissvipting og ofbeldi
Að þetta gerist á þessum tæknivæddu nútímalegu tímum sem við lifum á - þeim tímum sem við stærum okkur af að allt sé svo fullkomið; tæknin og velsældin aldrei meiri. En það er því miður svo að skemmd epli finnast alltaf í stórum körfum. Sannast af þessari frétt og það er alltaf stingandi að sjá svona heim bakvið tjöldin; heim ofbeldis og kúgunar.
Sálrænt ofbeldi er engu skárra en líkamlegt ofbeldi. Oft vill það leggjast þyngra á sálina. Vissulega er hægt að bæla fólk með ýmsum hætti og slíkt ofbeldi er og verður jafnt því þegar að fólk er jafnvel barið sundur og saman.
![]() |
Sænsk kona innilokuð í 9 ár |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.9.2008 | 19:29
Goðsögnin Marilyn

Held að allir kvikmyndaáhugamenn, þeir sem dýrka eitthvað stjörnuglysið, séu innst inni skotnir í Marilyn. Hún var ekki aðeins þokkadís sjötta áratugarins, heldur 20. aldarinnar í raun. Engin kona skein skærar með kynþokkanum einum og enn í dag eru sögur sagðar af lífi hennar, bæði sorgum og sigrum. Líf hennar var hálfgerð sorgarsaga undir öllu glysinu og glamúrnum. Glassúrhúðin yfir þessari viðkvæmu konu, sem varð stjarna sumpart fyrir tilviljun og breytti sér frá a-ö bara fyrir að meika það í Hollywood, virkaði merkilega sönn.
Fyrir ekki svo löngu horfði ég á hina ógleymanlegu stórmynd Billy Wilder, The Seven Year Itch - sennilega í vel yfir hundraðasta skiptið. Marilyn Monroe var aldrei flottari en þar - þetta var hápunktur ferils hennar. Nafnlausa ljóskan á efri hæðinni í fjölbýlishúsinu sem hún gerði algjörlega stórfenglega var hlutverkið sem hún festist reyndar einum of mikið í. Þessi mynd hefur alltaf heillað mig. Marilyn var auðvitað goðumlík leikkona, ekki endilega fyrir leiktúlkunina eina heldur fyrir karakterinn og þann sjarma sem hún hafði. Hún var sjarmatröll aldarinnar.
Marilyn fékk aldrei þann sess sem alvöruleikkona sem hún hefði átt að hljóta. Hún lék reyndar ansi oft heimsku ljóskuna en hún sýndi og sannaði t.d. í Bus Stop að hún leikið dramatík frá a-ö. Í Seven Year Itch er hún lifandi fersk og þar er kómík eins og hún gerist best. Þar er eftirminnilegasta atriðið með Marilyn á ferlinum - er kjóll hennar lyftist örlítið upp í vindinum við lestarstöðina. Á auglýsingaskiltum var það reyndar ýkt allverulega, enda er það mun hófstilltara í myndinni sjálfri. Þeir kunnu að auglýsa myndir í Hollywood þá.
Marilyn hefði víst orðið 82 ára á þessu ári, hefði hún lifað. Það sér enginn eilífðarljóskuna miklu fyrir sér sem gamla konu. Sá þó fyrir nokkrum árum tölvugerða mynd þar sem sérfræðingar ímynduðu sér hvernig Marilyn liti út sem gömul kona. Var glettilega vel gerð mynd, kannski fullýkt en allavega ein tilraunin til að ímynda sér hvernig lífið hefði farið með þessa stórstjörnu hefði hún lifað af mótlæti lífsins.
Hún dó á tindi síns ferils, var sett í dýrlingatölu meðal kvikmyndaáhugamanna og hefur goðsagnarsess. Það var napurt á tindi frægðarinnar og hún varð fórnarlamb glyssins. Sagan hennar markast af sorg og glamúr í senn. Merkileg saga, eiginlega of ótrúleg að vera sönn. En allt getur gerst í Bandaríkjunum, ekki satt?
![]() |
Áður óséðar myndir af Marilyn Monroe |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 19:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.9.2008 | 00:37
Fjörugir útlendir öldungar á Seyðisfirði
Væntanlega er það visst krydd í tilveruna fyrir Austfirðinga að verða miðpunktur umræðunnar enn og aftur í dópmálunum. Vantar ekki fjörið þar.
![]() |
Gæsluvarðhald vegna fíkniefna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
2.9.2008 | 15:00
Blessað barnalán - undarlegt orðalag
![]() |
Fengu þrjú börn á einu bretti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
2.9.2008 | 13:54
Alþýðuhetju lagt lið - jákvæð málalok
Og auðvitað er það fyrirtækinu Mjólku til sóma að leggja Ástþóri lið með þessum hætti. En þarna sést vel hvað skiptir miklu máli að fjalla um svona mál opinberlega.
![]() |
Fékk styrk til að leysa út vélarnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.9.2008 | 15:48
Sóðalegar busavígslur

Busavígslurnar hafa á sér blæ þess að vera manndómsvígsla fyrir nýnema. Í því skyni finnst sumum allt í lagi að ganga mjög langt. Finnst að á þessu verði að vera eðlileg mörk, enda er jafnan stutt á milli þess að ganga of langt og vera með athöfn sem eigi að vera á mörkunum. Það er oft ekki gott að finna millistigið þegar að svona athöfn er skipulögð. Mér finnst busavígsla ekki þurfa að hljóma sem niðurlæging á nýnemum. Það er hægt að tóna alla hluti niður. En það er oft ekki þægilegt að finna mörkin sem þurfa að vera til staðar.
Auðvitað er ágætt að fá fram umræðu um þessar busavígslur. Kannski er þetta upphafið á því að fólk hugsi sig almennilega um. Jafnvel að það þurfi ekki að ausa nýnemum upp úr forarsvaði og eða rækjumjöl til að það verði hluti samfélagsins. Hvort að mildari og mannlegri leið sé ekki til staðar. Kominn er tími til þess að busavígslunum verði breytt, einkum til að nýnemar haldi virðingu sinni á eftir og þurfi ekki að ganga í gegnum ómannúðlega meðferð til að teljast verða einn af hópnum.
Man eftir samskonar umræðu í fyrra. Þá skrifaði ég um busavígslu á Ísafirði. Þessi mynd er þaðan held ég. Þá var ausið rækjumjöli og flórsykri yfir nemendur - voru skítug upp fyrir haus í for og ógeði. Velti þá fyrir mér hversvegna þyrfti slíka yfirhalningu og hreina niðurlægingu. Á þetta að vera lexía og niðurlæging?
![]() |
Varað við busavígslum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 16:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
31.8.2008 | 11:03
FL Group - In Memoriam
Skammlíf saga FL Group var ævintýri líkust - fallið mikla varð þó dramatískt rétt eins og tímabundin velgengni Hannesar Smárasonar. Fyrir nokkrum árum vildu allir verða eins og Hannes - þetta var aðallínan í skaupinu 2006. Frægðarsól hans hneig til viðar og FL Group fuðraði upp.
Fjöldi sérfræðinga í viðskiptum hafa sagt söguna alla í mörgum orðum og í löngum skrifum, analíseraða í botn. Myndklippurnar um FL Group eru hinsvegar alveg frábærar og segja alla söguna á örfáum mínútum. Skylduáhorf, hvorki meira né minna!
Væri sagan af þessu kvikmynduð, með einkalífi aðalsöguhetjanna með, væri þetta örugglega eins og Dallas með Ewing-fjölskyldunni í forgrunni í miðju olíubraskinu og sukkinu.
Kannski væri tilvalið að Stöð 2 próduseri seríu um þetta yfirgengilega rugl með Jóni Ásgeiri sjálfum í gestahlutverki.
Seinni klippan er jafnvel betri en sú fyrri ef eitthvað er.
Hér er sú fyrri.
![]() |
Nýtt myndband um FL Group |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 11:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
31.8.2008 | 01:27
Stórriddaratreyjan boðin upp - gott málefni

Ólafur Stefánsson er annars klárlega maður mánaðarins. Fyrirliðinn í handboltaævintýrinu mikla sem verið hefur einskonar himnasending fyrir þjóðina núna í þessum mánuði. Algjört ævintýri og mikið afrek. Strákarnir fengu svo yndislega heimkomu og þjóðin sýndi þeim í eitt skipti fyrir öll hvað við erum stoltir af þeim og öllum sem standa að liðinu.
Óli var samt maðurinn sem leiddi þetta áfram og var hinn sanni leiðtogi. Ræðan hans á Arnarhóli í vikunni var toppurinn á öllu í þessari viku; einlæg, traust og vel flutt - einhvern varð til á staðnum í þessu mikla augnabliki. Alveg magnað.
![]() |
Treyja Ólafs fór á milljón |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.8.2008 | 20:45
Alþýðuhetjan á Melanesi
Ég heillaðist mjög af sögu Ástþórs sem sögð var í heimildarmynd Þorsteins Jónssonar, Annað líf Ástþórs, sem sýnd var í Sjónvarpinu fyrir nokkrum mánuðum. Þar sýndi okkur hvernig lífsreynsla það er að þurfa að lifa öðru lífi þar sem fótunum er kippt undan manni í orðsins fyllstu merkingu. Dugnaðurinn og krafturinn í honum eru aðdáunarverð.
Í raun var helsta lexían fyrir okkur sem getum labbað um allt og gert það sem okkur langar til að við höfum í raun enga hugmynd um hversu erfitt er að missa undirstöðuna sem mestu skiptir. Eflaust gildir það um okkur flest að við hugsum aldrei um hvernig þetta líf er fyrr en við reynum það sjálf eða í gegnum veikindi nánustu ættingja.
Hvet Sjónvarpið til að endursýna þessa mynd um alþýðuhetjuna á Melanesi. Ætla svo rétt að vona að hann fái vélarnar sínar fljótlega.
![]() |
Lamaður bóndi sviptur sérbúnum vélum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)