Færsluflokkur: Dægurmál
10.8.2008 | 17:20
Sextán ára á 101 - háskaakstur í umferðinni
Þessi áhætta er sem rússnesk rúlletta. Ökumaðurinn setur sjálfan sig í lífshættu með slíku aksturslagi og þann sem ferðast með honum. Sem betur fer fór vel miðað við aðstæður en þarna hefði getað farið mjög illa. Lögreglan verður að taka á svona málum, enda bein almannahætta um að ræða.
En þetta er svosem ekkert einsdæmi. Verst af öllu er að þrátt fyrir fjölda hraðakstursmála sé alltaf nóg af þeim sem hugsa ekkert um afleiðingar hraðaksturs og taka áhættuna fyrir sig og aðra í umferðinni.
Þrátt fyrir allar auglýsingar og baráttu gegn hraðakstri lærir fólk ekki af reynslunni. En ég held að þessi sextán ára strákur eigi eftir að læra eitthvað af þessu, ætla rétt að vona það allavega.
![]() |
Ungur ökuníðingur handtekinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
10.8.2008 | 04:11
Niðursveifla Bubba - áhættan dýrkeypta
Sorgarsaga Bubba Morthens í viðskiptum er ekkert einsdæmi. Fjöldi Íslendinga hefur farið flatt á því að sýsla með verðbréf og oft hafa traustustu fyrirtækin reynst þau veikustu er á hólminn kemur. Auk þess er erfitt að samræma ofurtrú og veruleika.
Þó þessi saga hans Bubba sé örugglega meira umtöluð en margar aðrar verðbréfasögurnar er eðlilegt að velta því fyrir sér hvenær verðbréf verða alveg örugg leið til að efnast. Erfitt er að velja eitthvað sem öruggt veðmál í þessum bransa.
Ef þetta væri einhver annar en Bubbi hefðum við sennilega ekki heyrt þessa sögu. En kannski er það alltaf tíðindi hvað þessi umdeildi poppari segir og gerir í sínu lífi.
![]() |
Allur sparnaðurinn fór |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
9.8.2008 | 20:04
Frábær fiskidagur - glæsilegt hjá Dalvíkingum
Fiskidagurinn mikli á Dalvík var stórvel heppnaður að þessu sinni eins og alltaf áður. Vel á fjórða tug þúsund manns voru á Dalvík í dag og allir fengu nóg að borða af eyfirsku sjávarfangi. Svo vel gekk að aðeins eitt atvik er í fréttum eftir helgina sem leiðinlegt telst að einhverju leyti. Að öðru leyti virðist allt hafa farið vel fram og gengið mjög vel. Það telst gott miðað við allan mannfjöldann sem var staddur á Dalvík.
Held að flestallir sem fóru á fiskidaginn hafi farið þaðan glaðir í hjarta og ánægðir með daginn. Þessi hátíð er mikil rós í hnappagat Dalvíkinga og þeim til mikils sóma. Þeir geta verið stoltir með helgina. Þetta er glæsilegt í einu orði sagt. Þarna tóku heilu fjölskyldurnar saman höndum og unnu alla helgina, buðu heim í mat og byggðu upp notalega stemmningu. Það er mikið mál að halda svona bæjarhátíð svo vel sé og allt verður saman að smella til þess. Það leikur enginn vafi á því að þetta er bæjarhátíð eins og þær gerast bestar.
Einn helsti aðall hátíðarinnar er að þar er allur matur ókeypis. Ég heyrði einhversstaðar að á annað hundrað þúsund matarskammta hafi verið grillaðir og yfir tíu tonn af sjávarfangi hafi verið borðað. Auðvitað segir það eitt okkur allt um umfang hátíðarinnar. Fiskidagurinn mikli er kominn til að vera. Það sanna vel viðtökur landsmanna við deginum og góð skipulagning heimamanna sem leggja sig alla í verkefnið. Ég þakka kærlega skipuleggjendum og aðstandendum hátíðarinnar fyrir að veita okkur góða og ánægjulega skemmtun.
Þetta var yndislegur dagur - sjáumst að ári aftur á fiskideginum mikla á Dalvík!
![]() |
Aldrei fleiri á Fiskideginum mikla |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.8.2008 | 01:33
Frábært fiskisúpukvöld á Dalvík

Þar hefur verið unnið af krafti árum saman og öllum ljóst að hátíðin er rós í hnappagat bæjarbúa útfrá. Held að fáum sem störtuðu þessum hátíðarhöldum fyrir sjö árum hafi í raun órað fyrir því að svo vel myndi ganga sem raun ber vitni.
Þetta var skemmtileg kvöldstund á Dalvík. Fiskidagurinn mikli hefur gert mikið fyrir Dalvík. Þetta er auðvitað öflug bæjarhátíð. Þar er allur matur og öll skemmtun að mestu ókeypis. Sannkölluð gleðistund. Það geta mörg sveitarfélög lært mikið af því sem Dalvíkingar hafa gert til góðs með þessari hátíð.
Fiskidagurinn er sannkallaður yndisauki í mannlífið hér í firðinum á hverju ári. Þar eru allir velkomnir og engin hlægileg aldurstakmörk. Þar gleðjast allar kynslóðir saman.
![]() |
Um 20 þúsund manns á fiskisúpukvöldi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
6.8.2008 | 20:41
Lærir fólk aldrei sína lexíu?
Mér finnst það alvarlegt mál að aðili sem hefur ekki leyfi til farþegaflutninga hafi flutt fólk milli Bakkafjöru og Vestmannaeyja og þar að auki án þess að hafa öryggisútbúnað í lagi. Þó að erfitt hafi verið að komast á milli vegna veðurs getur varla verið rétt að taka þann valkost. Leitt er það ef fólk hugsar ekki meira um öryggi sitt en taka áhættur af slíku tagi.
Mér finnst það ekki beinlínis merki um að fólk læri sína lexíu af ólöglegum flutningi að taka frekar þann kost að bíða óveður af sér en leggja upp í ferð sem það veit ekki hvort það lifir af. Er ég þá aðallega að tala um ferðalög þar sem öryggisbúnaður er annað hvort ekki í lagi eða ekki fyrir hendi. Þegar haldið er í sjóferð án eðlilegs öryggisbúnaðar er fólk að bjóða hættunni heim og tekur áhættu með líf sitt sem það ætti ekki að taka.
Svo er það eitt hvort það sé í lagi að flytja fólkið án þess að taka greiðslu fyrir. Vel má vera að einhverjir vilji taka áhættuna og hugsi ekki út í öryggi sitt, en það að borga fyrir ólöglegan flutning er annað sem vert er að velta fyrir sér. Og því er auðvitað eðlilegt að lögregla kanni þessi mál. Held að það sé verðugur eftirmáli á þetta.
Annars má velta því fyrir sér hvort fólk hugsar almennt um öryggi sitt. Það getur enginn tekið ábyrgð á fullorðnu fólki nema það sjálft. Hver og einn metur sínar aðstæður. En hvað eru þeir að hugsa sem borga öðrum fyrir að flytja sig án öryggisbúnaðar?
![]() |
Lögregla rannsakar siglingar til Eyja |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt 7.8.2008 kl. 01:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
4.8.2008 | 13:41
Þekktustu tvíburar áratugarins frumsýndir

Annars er ekki svo galið að velta fyrir sér hvort það sé í lagi, í besta falli siðferðilega rétt, að selja myndir af börnunum sínum til hæstbjóðenda og farið með þau eins og markaðsvörur. En kannski er þetta bara eðli bransans í Hollywood að allt er til sölu og þar með börnin, seldur sé aðgangur að því og einkalífinu sem hlýtur að fylgja fæðingu barnanna.
En kannski eru foreldrarnir með sölunni að reyna að halda í við ásókn fjölmiðla að börnunum, enda vilja allir eiga fyrstu myndirnar. Sennilega verður þó aldrei sett stopp á það. Annars er frægðin oft dýru verði keypt, sennilega sést það best þegar frægt fólk selur aðgang að börnunum sínum til að eiga auðveldar með að eiga við fjölmiðla.
![]() |
Tvíburar frumsýndir" á netinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
3.8.2008 | 16:12
Róleg og góð verslunarmannahelgi
Ekki virðist sú ákvörðun að lækka mörkin aftur í 18 ár hafa leitt til neinna leiðinda. Hér hefur vissulega verið eitthvað fyllerí en þetta hefur allt farið vel fram og gengið í alla staði mjög vel. Bæjaryfirvöld og Vinir Akureyrar stóðu vel að hátíðinni Einni með öllu, hér í bænum, að þessu sinni og um að gera að hrósa Möggu Blöndal og hennar fólki hjá Akureyrarstofu fyrir gott skipulag og fjölskylduvæna umgjörð sem skilaði árangri.
Eftir hádegið fékk ég mér svo Vallash, gamla góða Sana-appelsínudrykkinn, og akureyrska pylsu, sem er með öllu plús rauðkál, við Iðnaðarsafnið. Þar var gamaldags og góð stemmning. Guðrún Gunnars og Inga Eydal spiluðu þar öll gömlu Sjallalögin með Ingimar yngri, syni Ingu. Frábært að vera þar og spjalla við fólk og eiga góða stund.
Þetta var fín helgi, akkúrat eins og við viljum hafa hana. Þetta er módelið sem við höfum leitað að og loksins fundið. Meira af svona.
![]() |
Metfjöldi á þjóðhátíð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt 4.8.2008 kl. 02:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
30.7.2008 | 14:05
Þessi fallegi dagur....
Við eigum ekki alltof marga svona sæludaga á hverju ári og því tilvalið að nýta hann alveg í botn.
![]() |
29 gráður og sólskin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
29.7.2008 | 15:12
Frábært framtak - grasið á að vera á torginu
Ég er mjög ánægður með framtak þeirra sem þökulögðu Ráðhústorgið hér á Akureyri í nótt. Að mínu mati eiga bæjaryfirvöld að leyfa þökunum og blómunum að vera á miðju torginu, allavega fram eftir sumri. Síðan eiga þau að taka þá pólitísku ákvörðun að breyta Ráðhústorgi aftur og hafa grænt svæði þar, eins og var lengi vel. Þetta á ekki að vera flókið mál.
Í bernskuminningu minni, þegar Hanna amma og Anton afi bjuggu í Brekkugötu 9, var Ráðhústorgið notalegur staður þar sem var líf og fjör. Eftir að svæðið var allt hellulagt dó þessi stemmning algjörlega. Eru orðin mörg ár síðan staldrað var við á Ráðhústorgi og notið þess að vera þar. Kannski hefur myndasýningin þar gefið manni tækifæri til þess, annað ekki.
Grámygla steinsteypunnar hefur alla tíð verið lítið spennandi þar og ég tel að eyðilegging torgsins sé ein ástæða þess hvernig komið sé fyrir miðbænum. Þeir sem stóðu að þessu hafa fært bæjaryfirvöldum gott tækifæri til að taka af skarið og staðfesta að þarna eigi að vera grænt svæði.
Ég skora á Sigrúnu Björk að sýna myndugskap og trausta pólitíska forystu og beita sér fyrir því að Ráðhústorgið verði fært til fyrri tíðar, þegar þar var notalegt að vera lengur en eina mínútu.
![]() |
Ráðhústorgið þökulagt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
22.7.2008 | 18:53
Ábyrgðarleysi foreldra
Reglulega heyrast sögur um að foreldrar reddi ólögráða börnum sínum áfengi og sígarettur áður en þau ná löglegum aldri til að kaupa það og ráða sér sjálf en mér finnst það hálfu verra þegar að foreldrar bregðast skyldu sinni í að ala upp börnin sín frá upphafi og fari í slíka hasssölutúra með kornabarn með sér.
Það læra börnin sem fyrir þeim er haft og það er ekki til að auka trúverðugleika foreldra þegar að svona nokkuð klúður gerist og allt undir eftirliti foreldranna.
![]() |
Tóku barn með í hasssöluferð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)