Frábært fiskisúpukvöld á Dalvík

Fiskisúpukvöld á Dalvík Mikil og góð stemmning var á fiskisúpukvöldinu á Dalvík í kvöld. Það er virkilega notalegt að sjá hversu vel heimamönnum hefur tekist að byggja þennan dag upp með öllu því sem til þarf. Stemmningin verður sífellt meiri með ári hverju og hátíðin heldur áfram að vaxa undir forystu Júlla Júll.

Þar hefur verið unnið af krafti árum saman og öllum ljóst að hátíðin er rós í hnappagat bæjarbúa útfrá. Held að fáum sem störtuðu þessum hátíðarhöldum fyrir sjö árum hafi í raun órað fyrir því að svo vel myndi ganga sem raun ber vitni.

Þetta var skemmtileg kvöldstund á Dalvík. Fiskidagurinn mikli hefur gert mikið fyrir Dalvík. Þetta er auðvitað öflug bæjarhátíð. Þar er allur matur og öll skemmtun að mestu ókeypis. Sannkölluð gleðistund. Það geta mörg sveitarfélög lært mikið af því sem Dalvíkingar hafa gert til góðs með þessari hátíð.

Fiskidagurinn er sannkallaður yndisauki í mannlífið hér í firðinum á hverju ári. Þar eru allir velkomnir og engin hlægileg aldurstakmörk. Þar gleðjast allar kynslóðir saman.

mbl.is Um 20 þúsund manns á fiskisúpukvöldi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

frábært að svona bæjarfélag haldi svona skemmtun án þess að hugsa bara um beinan gróða,auðvita græða þeir á mikilli umfjöllun um dalvík og fá miklu meiri umferð túrhesta um sumartíman sem er bara gott mál, áfram dalvík þið kunnið þetta

haukur (IP-tala skráð) 9.8.2008 kl. 02:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband