Færsluflokkur: Dægurmál

Líflegt ástarlíf litríkrar kvikmyndaleikkonu

Drew Barrymore Það virðist vera fjörlegt ástarlífið hjá leikkonunni Drew Barrymore. Ef marka má fréttirnar á hún í ástarsambandi samtímis við bæði leikstjórann Spike Jonze, sem gerði tímamótamyndina Being John Malkovich árið 1999 og var giftur leikstjóranum Sofiu Coppola - sem gerði Lost in Translation- dóttur leikstjórans Francis Ford Coppola, og leikarann Zach Braff, sem þekktastur er hérlendis fyrir að leika J.D. Dorian í gamanþáttunum Scrubs.

Drew Barrymore hefur alltaf átt sér litríka ævi og verið í sviðsljósinu síðan að hún var krakki. Hún er í þekktri leikarafjölskyldu. Afi hennar, John Barrymore, var þekktur leikari og var bróðir hinna þekktu leikara gullaldartíma Hollywood, Lionel og Ethel Barrymore, sem bæði hlutu óskarinn og heimsfrægð á löngum leikferli. Faðir Drew, John yngri, var líka þekktur en var mun brokkgengari í bransanum og átti litríka ævi, sem einkenndist af mikilli óreglu og villtu líferni umfram allt annað.

Drew Barrymore varð ung stjarna og fetaði í fótspor forfeðra sinna. Drew var ekki nema sex ára gömul þegar að Steven Spielberg ákvað að velja hana í hið þýðingarmikla hlutverk Gertie í kvikmyndinni E.T. - the Extra Terrestrial, sem varð ein vinsælasta síns tíma. Hún átti ekki langan feril að baki þá en varð stjarna á einni nóttu. Samleikur hennar og hins skringilega E.T. varð gullið á hvíta tjaldinu. E.T. var reyndar fyrsta bíómyndin sem ég sá í bíó, mjög sællar minningar. En frægðin getur verið fallvölt. Sú varð reyndin hjá Drew sem eftir barnastjörnutilveruna lenti í óreglu eins og faðir hennar og var næstum orðin henni að bráð.

Eftir að hún reisti sig við aftur hefur hún átt fjöldann allan af eftirminnilegum hlutverkum. Nægir þar að nefna Ivy í Poison Ivy, Casey í Mad Love, Sugar í Batman Forever, Skylar í Woody Allen-söngvamyndinni litríku Everyone Says I Love You (þar sem hún ein leikhópsins fékkst ekki til að syngja - Allen sjálfur, Edward Norton og Goldie Hawn sungu þar með bravúr), Casey Becker í hinu nöturlega upphafsatriði Scream, Julia í hinni nostalgísku The Wedding Singer, Josie í Never Been Kissed, Dylan í Charlie´s Angels, Nancy í hinni sprenghlægilegu Duplex, Lindsey í Fever Pitch og Sophie í Music and Lyrics.

Drew hefur aldrei verið feimin í að stuða. Það verður fróðlegt að sjá hvernig að þessir rómansar hennar fari. Varla eru þeir Braff og Jonze þó glaðir við að deila sæng með hinni frægu leikkonu saman mikið lengur eftir þessar neyðarlegu fréttir. Annars hefur ástarlíf Drew aldrei verið slétt og fellt. Nægir þar að nefna hið fræga (og ótrúlega langlífa) samband hennar við grínistann Tom Green, sem þótti ekki beinlínis draumur allra tengdamæðra.

mbl.is Ástarþríhyrningur Barrymore
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Risavaxið mongólskt brúðkaup í Kína

Brúðhjónin Það var mjög merkilegt að sjá góða klippu á vef BBC áðan frá brúðkaupi hæsta manns heims, sem giftist helmingi yngri konu og sem nær honum aðeins í mittismál. Sérstaklega er sláandi að sjá þessa mynd, sem hér er til hliðar, af brúðhjónunum. Ég hafði nú heyrt af hinum 56 ára gamla Bao Xishun, en hann hefur verið hæsti maður heims um nokkuð skeið, en barðist lengi fyrir því að hljóta þann sess frá Guinness-heimsmetabókinni og hlaut hann loks fyrir rúmu ári.

Það hlýtur að vera skelfilegt líf - jafnvel hrein bölvun - að vera svo hávaxinn, enda þrengir það lífsskilyrðin mjög og lífsins tækifæri ennfremur. Hinsvegar hefur Bao verið lengi í sviðsljósi fjölmiðla sökum sérkennis síns, ekki ósvipað því sem að Svarfdælingurinn Jóhann Kristinn Pétursson upplifði á ævi sinni, en hann var reyndar meginþorra ævi sinnar notaður sem hreint og beint sirkusdýr. Bao hefur þó getað notað athyglina öðruvísi og mun meir sér í vil.

Það verður fróðlegt að sjá hvernig að gangi í þessu brúðkaupi. Mér skilst að hann hafi auglýst á alheimsvettvangi eftir maka og í gegnum það kynnst Xiu, konu sinni, sem er aðeins 29 ára. Þetta virka allavega mjög ólík hjón og víst er að þau þurfa að yfirvinna risavaxin vandamál áður en yfir lýkur eflaust.

mbl.is Hæsti maður heims giftir sig
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hasar í Hnífsdal - deilt um vinnutímann

Frá Hnífsdal

Það er ekki geðslegt að heyra lýsingar á því sem gerðist á milli hjónanna í Hnífsdal áður en karlmaðurinn á heimilinu greip til haglabyssunnar og skaut að konu sinni. Það var auðvitað með ólíkindum að heyra fyrst af því máli, en sérsveit lögreglunnar var kölluð vestur vegna þess heimilisofbeldis. Það er öllum ljóst að mjög tæpt stóð með konuna og hefði ekki miklu mátt muna svo að hún hefði látist í þessari atburðarás.

Þetta er sláandi hasar fyrir lítið byggðarlag. Þarna sannaðist þó vel mikilvægi sérsveitarinnar að mínu mati. Lögreglan brást vel og skipulega við þessari ógn að mínu mati - sérsveitin hefur þjálfun og getu til að bregðast við svona ástandi. Þetta var hrein og klár ógn, enda sást það vel af öllu verklagi og þeim viðbúnaði sem var til staðar. Þegar að maður með haglabyssu gengur laus, hefur skotið að eiginkonu sinni og er yfirbugaður er eitthvað meira en lítið að. Það blasir við öllum. Það er reyndar með ólíkindum að það sem olli látunum voru deilur um vinnutíma konunnar.

Þetta atvik minnir mjög vel á það, hversu brýnt er að lögreglan sé undir það búin að takast á við hættuleg verkefni, í takt við þetta. Fyrir nokkrum árum þótti ekki öllum sem sitja á Alþingi mikilvægt að breyta skipulagi á yfirstjórn sérsveitar lögreglunnar til að sveitin væri ávallt til taks og sveigjanlegri en áður hefði verið. Því síður virtist skilningur á því hjá fjölda fólks þá að nauðsynlegt væri að efla sérsveitina og fjölga í henni.

Þessi staða sýnir vel hversu rétta stefnu sérsveitin hefur tekið og að hún sé vel búin fyrir ástand sem getur komið úr óvæntustu átt, rétt eins og þetta heimilisofbeldi vestur á fjörðum.


mbl.is „Ég sá blossa nálægt vanganum"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lady Bird Johnson látin

Lady Bird JohnsonLady Bird Johnson, fyrrum forsetafrú Bandaríkjanna, lést í Texas í dag, 94 ára að aldri. Hún fæddist 22. desember 1912. Við eigum því sama afmælisdag, ég og Lady Bird. Hún lifði næstlengst allra eiginkvenna forseta Bandaríkjanna. Aðeins Bess Truman hefur lifað lengur, en hún varð 97 ára gömul. Lady Bird var það sem kalla mátti fyrirmynd maka stjórnmálamanna á 20. öld, hún var við hlið eiginmanns síns alla tíð og sinnti sínum verkum við hlið hans alla tíð með glæsibrag.

Lady Bird giftist Lyndon Baines Johnson í nóvember 1934. Þau eignuðust tvær dætur; Lyndu Baines, og Luci Baines. Lyndon Baines Johnson er einn litríkustu stjórnmálamanna í sögu Texas-fylkis. Hann gegndi trúnaðarstörfum fyrir Demókrataflokkinn áratugum saman og var um árabil þingmaður og var sérstaklega gamalgróinn Texas-maður. Hann þótti óheflaður og sérlundaður. Konan við hlið hans hélt vörð utan um störf hans og þau voru sterkt stjórnmálapar frá upphafi til enda.

Lady Bird var þó ekki litlaus eiginkona stjórnmálamanns. Hún átti sér sín áhugamál og lét skoðanir sínar óhikað í ljósi. Hún var ekta Texas-kona sem stóð með manni sínum í einu og öllu en talaði af krafti hafði hún skoðanir og var ekki fjarlæg í framkomu. Barátta Lady Bird fyrir umhverfismálum setti alla tíð svip á persónu hennar. Hún var eindreginn talsmaður þess að standa vörð um náttúruna og var áberandi í skógrækt og tengdum málum. Hún gróðursetti jafnan tré í opinberum heimsóknum á forsetaferli eiginmanns síns um Bandaríkin.

Lyndon B. Johnson varð atvinnustjórnmálamaður í Washington skömmu eftir giftingu hans og Lady Bird. Hann var kjörinn í fulltrúadeildina árið 1937 og átti þar sæti í tólf ár. Johnson var kjörinn í öldungadeildina árið 1949 og átti þar sæti ennfremur í tólf ár. Hann var leiðtogi demókrata í öldungadeildinni í átta ár, 1953-1961, allan tímann í meirihluta. Lyndon B. Johnson sóttist eftir forsetaembættinu fyrst árið 1956. Hann náði ekki útnefningunni í fyrstu atrennu og ekki heldur í þeirri annarri, en hann tapaði fyrir John F. Kennedy árið 1960. Það vakti mikla athygli þegar að hinn ungi Kennedy valdi suðurríkjamanninn Johnson í kjölfarið sem varaforsetaefni sitt.

Lyndon Baines Johnson sver embættiseið

John F. Kennedy og Lyndon Baines Johnson voru mjög ólíkir stjórnmálamenn en voru saman sterk pólitísk blanda sem tókst loksins að færa Demókrataflokknum tækifæri til sigurs eftir að hafa verið utan valda í Hvíta húsinu í átta ár. Kennedy var sterkur fulltrúi norðurs og Johnson var með lykilstöðu í suðrinu. Þeir unnu forsetakosningarnar 1960, en naumlega þó. Johnson tók við varaforsetaembættinu í janúar 1961. Fáum óraði fyrir því á þeim tímapunkti að hann ætti eftir að taka við forsetaembættinu. Allir töldu hinn unga Kennedy táknmynd hreystis og glæsileika - ekki myndi reyna á pólitíska klækjarefinn frá Texas sem húsbónda í Hvíta húsinu.

En allt breyttist það á föstudeginum 22. nóvember 1963. John F. Kennedy var myrtur í opinberri heimsókn í Dallas í Texas, fylki varaforsetans. Morðið á hinum unga forseta er enn í dag sama ráðgátan og blasti við á þessum sviptingasama degi sem breytti stjórnmálalitrófinu í Bandaríkjunum með nöprum hætti. Johnson varð því forseti Bandaríkjanna í einni svipan í eigin fylki. Hann sór embættiseið sinn sem 36. forseti Bandaríkjanna í forsetaflugvélinni á flugvellinum í Texas síðar sama dag, rétt áður en flugvélin hélt af stað til Washington með kistu hins fallna forseta. Starfsmenn Kennedys og fjölskylda hans höfðu þá varla áttað sig á endalokunum.

Sögufræg er ljósmyndin af Johnson að sverja embættiseiðinn í Air Force One. Við hlið hans voru Lady Bird og Jacqueline Kennedy, sem var skyndilega búin að missa hlutverk sitt, var ekki lengur forsetafrú Bandaríkjanna. Jackie var enn í blóðugu dragtinni sem hún var í er forsetinn var skotinn í miðborg Dallas og var í henni þar til seint um kvöldið er hún kom loks í Hvíta húsið. Lady Bird tók við skyldum forsetafrúar en var í skugga Jackie dagana sem framundan voru er Kennedy forseti var kvaddur. Johnson-hjónin fluttu ekki inn í Hvíta húsið formlega fyrr en í desember 1963, þegar að Jackie hafði jafnað sig á vistaskiptunum sem fylgdu dauða eiginmanns hennar.

Jackie Kennedy og Lady Bird Johnson voru ólíkar sem dagur og nótt. Jackie var tískudrottning, kona sviðsljóssins og glamúrsins. Lady Bird var annarrar kynslóðar og um leið hin sanna eiginkona stjórnmálamannsins á fyrri hluta 20. aldarinnar, konan við hlið mannsins á valdastóli. Hún var hin sterka og áberandi týpa, sem ekki barst mikið á og sinnti sínum helstu verkum með glæsileika. Margar kjaftasögur hafa gengið um samskipti Johnson-hjónanna við Jackie þann tíma sem í hönd fór eftir hin sögulegu valdaskipti um borð í forsetaflugvélinni. Ásýnd forsetaembættisins breyttist mjög er hin miðaldra suðurríkjahjón, sem voru úr allt öðru umhverfi en Kennedy-hjónin, tóku við.

Johnson var forseti Bandaríkjanna í rúm fimm ár, var endurkjörinn í nóvember 1964 með miklum meirihluta. Hann stóð fyrir fjölda mikilvægra mála og lauk t.d. lykilstefnumálum Kennedys, t.d. mannréttindamálum blökkumanna. Það voru mikil tímamót sem fylgdu því að rótgróinn suðurríkjastjórnmálamaður skyldi klára þau mál. Óvinsældir Johnsons jukust mjög á skömmum tíma vegna Víetnam-málsins og hann ákvað að sækjast ekki eftir endurkjöri vegna þess árið 1968. Johnson varð bráðkvaddur á heimili sínu í Texas í janúar 1973, nákvæmlega fjórum árum eftir að hann lét af embætti.

Lady Bird Johnson lifði langa og merkilega ævi. Hún var áberandi á stjórnmálaferli manns síns og markaði skref í stjórnmálasögu Bandaríkjanna og Texas-fylkis með hlutverki sínu við hlið Johnsons forseta. Hún var sönn suðurríkjakona og þótti sterk í sínu. Þrátt fyrir heilsuleysi kom hún reglulega fram þar til nærri undir hið síðasta. Fyrst og fremst mun svipmynd hennar við hlið Johnsons á örlagastundinni í Air Force One á föstudeginum sviptingasama sem breytti ævihlutverki hennar og manns hennar verða lengst greypt í minni þeirra sem fylgst hafa með stjórnmálum fyrr og síðar.


mbl.is Lady Bird Johnson látin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sorglegt mál úr fortíðinni

Það hefur verið sláandi að heyra lýsingar á því kynferðislega og sálræna ofbeldi sem gerðist á drengjaheimilinu í Breiðavík fyrir áratugum. Heildarmynd þeirrar skelfingar hefur verið að opinberast hægt og rólega síðustu mánuði með nöprum hætti. Það að lýsingar á kynferðisofbeldinu og líkamlegum barsmíðum sem börn þurftu að þola komist fyrst í umræðuna fyrir alvöru nú allt að fjórum áratugum síðar er að mínu mati stóralvarlegt mál.

Hversvegna var þetta mál í þagnarhjúpi öll þessi ár? Hvar var eftirlitið á þessum tíma eiginlega og hvar voru þeir sem báru ábyrgð á málaflokknum? Þetta er skelfilegt í einu orði sagt. Þetta er auðvitað mjög stórt hneykslismál að mínu mati - mikill áfellisdómur yfir þeim sem héldu á málum á þessum tíma. Það var sláandi að sjá harðfullorðna menn, meira að segja Lalla Johns sem þarna var vistaður sem barn, brotna saman við tilhugsunina eina um þennan stað í Kastljósviðtali, þessi örlög að vera þar neyddur til vistar, allt ofbeldið og ógeðið.

Það var stingandi stund að sjá Kastljósviðtölin fyrir nokkrum mánuðum og skynja það sem hefur þarna gerst. Það er skylda þeirra sem leiða málaflokkinn í dag að taka á því og það hefur verið gert að verulegu leyti, sem mikilvægt er. Það er enda ekki til of mikils mælst að stjórnvöld dagsins í dag biðji þessa menn opinberlega afsökunar á því að hafa verið neyddir til vistar á þessum vítisstað sem þetta heimili hefur verið og liðsinni þeim til að finna lífshamingju að nýju, sé það þá hægt eftir slíkar skelfingar.

mbl.is Þagði yfir martröðinni í tæp fjörutíu ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Haldið áfram í Eurovision - syngja má á ensku

Eiríkur Hauksson Ríkisútvarpið hefur ákveðið að halda áfram þátttöku í Eurovision. Það hefur eflaust legið löng umhugsun að baki áður. Okkur Íslendingum hefur mistekist þrjú ár í röð að komast áfram í keppninni og Eiríkur Hauksson náði ekki að fleyta okkur áfram þrátt fyrir að hann væri með að flestra mati skothelt lag. Blærinn á keppninni hefur verið markaður af sterkri stöðu austantjaldsþjóða og sú staða markaðist vel með forkeppninni í vor.

Áfram á að halda. Svipað fyrirkomulag verður áfram við lýði. Reglurnar hafa þó breyst. Mikla athygli vekur að ekki er lengur útilokað að lög séu á ensku í undankeppninni, þó að það sé þó talið æskilegast að lögin séu á íslensku. Það er allavega ekki útilokað lengur að hafa ensku fyrirfram. Það eru stórtíðindi. Ennfremur er klausan um að þeir sem taki þátt, bæði laga- og textasmiðir, þurfi að hafa íslenskt ríkisfang eða vera búsettir á Íslandi frá 1. október 2007 og fram yfir keppnina. Þetta gæti hæglega opnað leið annarra að keppninni. Það er mjög jákvætt að mínu mati.

Mikil ólga varð innan Eurovision-samfélagsins í heild með úrslitin í vor. Ekkert lag frá Vestur-Evrópu komst í úrslitapakkann úr forkeppninni, heldur röðuðu þar sér upp lög úr austanblokkinni. Slóvenía var það land sem næst stóð vesturhlutanum. Það segir sína sögu vel. Það er alveg ljóst, og staðfestist af úrslitum kosningarinnar í gærkvöldi, að möguleikar Íslands á að komast upp úr botninum eru hverfandi og margir telja að stokka eigi keppnina upp. Ólgan hefur oft verið ráðandi hér heima allt frá því að Selmu Björnsdóttur mistókst að komast upp úr botninum með If I had your Love í maí 2005 í keppninni í Kiev.

Í fyrra var talað um að Silvía Nótt hefði skemmt fyrir sér og því ekki komist áfram. Staða Eiríks nú vakti nýjar spurningar. Ekki aðeins reyndar var staða okkar rædd heldur staða Vestur-Evrópu almennt. Í raun væri heiðarlegast að brjóta upp keppnina. Þarna keppa yfir 40 lönd um árangur. Það væri auðvitað best að hafa keppni fyrir vestur- og austurhlutann. En sama fyrirkomulag á að hafa á næsta ári, en það er dæmt til að breytast, tel ég.

Mér finnst reyndar mikið álitaefni hvort Ísland eigi að taka áfram þátt í keppninni. Það verður að stokka hana upp, enda er orðrómurinn um samsærið ekki lengur íslenskur heldur ómar um alla V-Evrópu. Það er engin furða á því eftir það sem gerðist í vor.

mbl.is Reglum um Söngvakeppni sjónvarpsins breytt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hildur Sif Helgadóttir látin

Hildur Sif Helgadóttir er látin. Hildur Sif skrifaði hér á Moggablogginu um þá lífsreynslu að berjast við krabbamein nær alveg fram í andlátið - hún vann hug og hjörtu allra þeirra sem lásu vefinn, rétt eins og varð í tilfelli Ástu Lovísu Vilhjálmsdóttur sem skrifaði um veikindi sín og baráttu. Það var lærdómsríkt að fylgjast með henni blogga um lífsreynslu sína og örlög með í senn hetjulegum og eftirminnilegum hætti. Baráttuhugur hennar var aðdáunarverður.

Ég las vefinn hennar þann tíma sem hún skrifaði hér og fylgdist með stríði hennar, sem því miður tapaðist eins og svo margar barátturnar við þennan vágest sem þessi sjúkdómur er. Það eru alltaf tíðindi þegar að eitt okkar sem skrifar hér deyr. Þó að þeir sem berjist við krabbamein séu um leið að berjast við dauðann sjálfan er það alltaf sorglegt högg þegar að endalokin verða veruleiki. Þó að Hildur Sif hafi verið mikið veik var andlátsfregn hennar mikið áfall okkur hér.

Hildur Sif barðist til hinstu stundar og bloggaði nær alveg fram í andlátið. Vefurinn hennar er minning um hetju, eins og svo margir fleiri slíkrar gerðar. Það eru margir í dag í sömu sporum sem skrifa opinberlega um lífsreynslu sína og vekja okkur öll til umhugsunar um að það er í raun ekkert sjálfsagt í þessum heimi. Ég dáðist mjög að Hildi Sif. Styrkur hennar var aðdáunarverður, allt til hinstu stundar. Það er sjónarsviptir af henni fyrir bloggsamfélagið okkar hér.

Ég votta eiginmanni Hildar Sifjar og fjölskyldu hennar mína innilegustu samúð.

Innilegar samúðarkveðjur

Minningarkrossinn í Kirkjugarði AkureyrarÉg vil votta fjölskyldu mannsins sem lést í umferðarslysinu í Norðurárdal um helgina innilega samúð mína. Það er alltaf sorglegt að heyra af því þegar að ungt og efnilegt fólk fellur í valinn í svona hörmulegu slysi.

Það var mjög dapurlegt að heyra af þessu umferðarslysi, sérstaklega vitandi það að brátt styttist í að nýji vegarkaflinn á þessum slóðum verði tekinn í notkun, sem breytir stöðu mála þar mjög. Það er mjög vondur vegarkafli sem liggur að gömlu einbreiðu brúnni og getur verið viðsjárverður í litlu skyggni og rigningarveðri og auðvitað sérstaklega í vetrarófærð. Þarna hafa áður orðið mjög alvarleg slys.

Þegar að ég fór þarna síðast um, í apríl sl, fannst mér gott að sjá nýja vegarstæðið vera að myndast og það verður mjög ánægjulegt þegar að það verður tekið formlega í notkun bráðlega. Þessi gamli vegarkafli er mjög slæmur og það verður engin eftirsjá af honum. Reyndar er enn verulega dapurlegt hversu margar einbreiðar brýr eru á þjóðveginum. Það gengur alltof hægt að skipta þeim út.


mbl.is Lést í umferðarslysi í Norðurárdal á sunnudag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er Útvarp Saga búin að kaupa málefnin.com?

Það vekur mikla athygli að fram kemur á nýjum spjallvef Útvarps Sögu að útvarpsstöðin hafi fest kaup á spjallvefnum málefnin.com, sem hefur verið einn helsti spjallvefur landsins í rúm fjögur ár, með aðstoð fjársterkra aðila og muni hann smá saman flytjast þangað yfir. Þetta kemur orðrétt fram í innleggi á vefnum frá aðila sem skrifar undir nafninu Bloggstjóri. Þessi tilkynning kemur sem athyglisvert innlegg í umræðuna um stöðu þessa spjallvefs sem hefur verið reglulega í fréttum og umtali fólks á milli árum saman.

Umræða hefur verið um eignarhald þessa spjallvettvangs, en Stefán Helgi Kristinsson sem stofnaði vefinn sumarið 2003 komst í umræðuna á síðasta ári er hann gaf Jónínu Benediktsdóttur upp IP-tölur nokkurra þeirra sem skrifað höfðu á vefinn. Kjaftasagan segir að Netheimur eigi nú spjallvefinn, eftir að Stefán Helgi hætti með hann eftir hið fræga mál sem komst í kastljós fjölmiðlanna. Eftir það hefur verið lítið talað um eignarhaldið af þeim sem halda utan um vefinn.

Málefnin voru um tíma lykilstaður á netinu, þar hefur þó róast mjög yfir. Rétt eins og víðar hefur spjallvefaformið sígið niður. Það er þó vissulega athyglisvert ef Arnþrúður Karlsdóttir og hennar fólk hefur fest sér eignarhald á spjallvefnum og öllum leyniupplýsingum hans eins og fram kemur á Útvarpi Sögu.

Heilagi blærinn farinn af fröken París Hilton

Paris Hilton Það líður varla sá dagur vestan hafs er París Hilton er ekki í sviðsljósi fjölmiðlanna. Stutt er síðan að hún losnaði úr fangelsi og sagðist hún í viðtali við Larry King síðla júnímánaðar orðin dauðleið á djamminu og vildi helst hætta því. Heilagi blærinn er farinn af henni nú þegar, enda berast fréttir um að hún sé komin strax aftur í djammgírinn eftirminnilega. Það er greinilega fylgst með hverju spori hennar og eru minnstu athafnir hennar komnar í pressuna um leið.

Það er oft hlægilegt að lesa fréttirnar af fræga og ríka fólkinu, sérstaklega vestan hafs. Paris Hilton er sennilega orðin frægust af þeim uppagellum sem hafa flaskað á frægðinni og runnið til á göngunni á rauðu rósum glamúrlífsins. Það voru tíðindi þegar að hún rann til á svellinu og fékk dóminn um að afplána refsingu sína. Ekki virðist hún hafa lært mikið af þessu falli og er þegar komin í sama gírinn, ef marka má fréttirnar, sem flæða endalaust yfir allt vestan hafs.

Það er reyndar stutt síðan að fréttakona þar neitaði að fjalla um París Hilton og eyddi fréttinni í beinni. Það var vel af sér vikið. Það eru flestir búnir að fá hundleið á prímadonnustælum þessarar aumingjans konu.

mbl.is Paris Hilton í fínu formi út á lífinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband