Tíu ára bið eftir sögulokum hjá Harry Potter á enda

J.K. Rowling Tíu ára bið eftir sögulokum ævintýrisins um galdrastrákinn Harry Potter er á enda. Lokabindið varð opinbert fyrir klukkustund þegar að sala hófst á því um allan heim. Nú ráðast örlögin. Víða hefur sögulokunum verið lekið, en með misjöfnum endum að því er virðist. Kjaftasagan segir að Voldemort og Ron muni deyja, en J.K. Rowling hafði fyrir margt löngu sagt að tvær sögupersónur myndu deyja í lokabindinu í uppgjörinu mikla.

Þetta hefur auðvitað verið gríðarlegt ævintýri, eins og ég sagði frá hérna fyrr í dag. Að baki eru tíu ár frá útkomu fyrstu bókarinnar, sex ár frá því að fyrsta kvikmyndin varð opinber og Daniel Radcliffe færði eina athyglisverðustu sögupersónu breskra bókmennta yfir á hvíta tjaldið og færði honum líf á nýjum vettvangi. Þessi sex ár hafa ekki verið síðra ævintýr fyrir Daniel Radcliffe, sem er orðinn heimsfrægur af túlkun sinni, en J.K. Rowling sem er ein auðugusta kona heims, og þarf ekki frekar en hún vill að pára meira á sinni ævi.

Það verður fróðlegt að sjá hvernig fer að sögulokum. Nú hafa aðdáendur um allan heim hafist handa við að lesa bókina og svala forvitni sinni. Sumir þora sennilega varla að byrja að lesa af ótta við að Potter verði allur í sögulok. Hef samt alltaf verið viss um að Harry myndi ekki verða skrifaður út, svo að möguleikinn á að framhald af einhverskonar tagi haldist inni í myndinni. Það er mjög ólíklegt að J.K. Rowling endi með svo drastískum hætti. Þess vegna er tilgátan um dauða Rons mjög líkleg og eiginlega langsennilegust í raun.

Nóttin verður sennilega löng fyrir aðdáendur Harry Potter. Margir þeirra hafa beðið klukkustundum saman eftir því að fá eintak af bókinni á ensku, enda þýðendum ekki treyst fyrir leyndarmálinu mikla frekar en mörgum öðrum. Fáar bækur hafa verið verndaðar meira en þetta lokabindi, verndaðar frá því að plottið þeirra berist ekki út. En nú verða sögulokin ljós og skemmtilegar pælingar eflaust framundan frá þeim sem mestan áhuga hafa á Potter. Við hin bíðum auðvitað.

mbl.is Biðin á enda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stjörnustælar hjá Sting

Trudie og Sting Mér fannst alveg kostulegt að lesa fréttina um Sting og framkomu hans á veitingastaðnum á Flórída, er hann mætti með eigin kokk til að elda ofan í sig og sína. Þetta eru auðvitað kostulegir stjörnustælar sem eru þekktum tónlistarmanni á borð við Sting ekki til sóma. Það hefur væntanlega orðið upplit á þeim á staðnum er kokkurinn á vegum Stings mætti til að taka til starfa.

Þetta er hlægilegt í besta falli, en stjörnustælarnir geta svosem orðið einum of stundum. Mér finnst þetta einum of mikið stærilæti allavega. Annars er það auðvitað alveg ljóst að Sting er einn af þekktustu tónlistarmönnum sinnar samtíðar. Hef alltaf virt hann mikils sem tónlistarmann, enda hefur hann gert góð lög og staðist tímans tönn í tónlistarbransanum.

Ætli að þekktasta lagið hans sé ekki Fields of Gold, sem er algjörlega frábært lag. Önnur góð eru Every Breath You Take, If You Love Somebody Set Them Free, Message in a Bottle, All This Time, Englishman in New York og If I Ever Lose My Faith in You, svo fáein séu nú nefnd. Allt sannkölluð topplög, þau tvö fyrstnefndu finnst mér standa uppúr. Finnst nú lögin hans á Police-tímanum alltaf best, en sólóferillinn hefur líka verið mjög fínn og hann hefur verið í essinu sínu mjög lengi.

Var annars að enda við að horfa á endurgerðina af The Thomas Crown Affair frá árinu 1999, enda ætla ég mér að horfa á eftir á fyrirmyndina frábæru og samnefndu með Steve McQueen og Faye Dunaway. Titillag beggja myndanna er Windmills of Your Mind, sem varð eitt vinsælasta lag síns tíma og hlaut óskarsverðlaunin sem besta kvikmyndalagið á sínum tíma í flutningi Noel Harrison, sonar leikarans Rex Harrison, sem flestir minnast sem Henry Higgins í My Fair Lady.

Fannst annars merkilegt að ramba á þessa frétt núna, enda söng Sting lagið í fyrrnefndri endurgerð með sannkölluðum bravúr í nýrri og frísklegri útgáfu. Bendi því á báðar útgáfurnar hér, svona til gamans. Við vonum svo að Sting fari framvegis kokkalaus á veitingastaðina og láti af sínum kostulegu stjörnustælum.

Windmills of Your Mind - Noel Harrison
Windmills of Your Mind - Sting

mbl.is Sting mætti með eigin matreiðslumann á veitingastað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dick Cheney mun sinna forsetaskyldum á morgun

Dick Cheney og George W. BushDick Cheney, varaforseti Bandaríkjanna, mun gegna forsetaskyldum í Bandaríkjunum á morgun í stað George W. Bush. Forsetinn mun gangast undir ristilspeglun á morgun í Camp David í Maryland og þarf að gangast undir svæfingu vegna þess. Þetta er í annað skiptið á rúmlega sex ára forsetaferli George W. Bush sem hann afsalar sér tímabundið völdum og Cheney gegnir embættisskyldum forseta Bandaríkjanna.

Fyrra skiptið varð 29. júní 2002 þegar að hann gekkst undir samskonar skoðun og nú fer fram. Bush þarf að gangast undir ristilskoðun á fimm ára fresti, en sepi fannst í ristli hans í aðgerð á ríkisstjóraárunum í Texas og hann hefur verið undir eftirliti síðan. George W. Bush er aðeins annar forseti Bandaríkjanna sem felur varaforsetanum vald sitt með þessum hætti skv. 29. grein stjórnarskrár Bandaríkjanna í rúmlega 200 ára sögu landsins.

Það gerðist fyrst í júlí 1985 þegar að George H. W. Bush, faðir núverandi forseta, gegndi forsetaembættinu í fjarveru Ronalds Reagans sem gekkst undir aðgerð er fjarlægt var úr honum krabbameinsæxli. Bush varð þó ekki starfandi forseti 30. mars 1981 þegar að Reagan forseti særðist lífshættulega í skotárás fyrir utan Hilton hótelið í Washington. Fyrst var talið að Reagan hefði sloppið ómeiddur úr skotárásinni en hann var fluttur á George Washington-spítala til öryggis. Kom í ljós við komuna á spítalann að ein byssukúla hafði lent nærri hjarta forsetans og þurfti hann að fara fljótt í aðgerð, til að bjarga mætti lífi hans.

Meðan Ronald Reagan lá á skurðarborðinu í skurðaðgerð upp á líf og dauða, var landið í stjórnskipulegri kreppu. Enginn sýnilegur leiðtogi var við stjórnvölinn. Bush, þáverandi varaforseti, var staddur í Texas. Á meðan að Bush var á leiðinni til Washington tók Alexander Haig, utanríkisráðherra, sér mjög umdeilt vald til forystu landsins þar til Bush gat tekið við völdum sem næstæðsti maður landsins. Var Haig ekki með á valdaröðina eins og vel kom fram á eftirminnilegum blaðamannafundi í Hvíta húsinu. Læknum tókst naumlega að bjarga lífi Reagans, sem sat á forsetastóli til ársins 1989.

Þrátt fyrir að forsetinn væri meðvitundarlaus þennan afdrifaríka marsdag og væri í móki næstu dagana á eftir var valdi hans ekki afsalað tímabundið, þó vissulega væri Bush starfandi sem æðsti embættismaður landsins. Þessum atburðum var lýst með eftirminnilegum og mun sýnilegri hætti en fólk upplifði þá í sjónvarpsmyndinni The Day Reagan Was Shot. Þar fór Richard Crenna mjög vel með hlutverk Reagans, í einni af sínum síðustu leikframmistöðum, og Richard Dreyfuss náði fullkomnum tökum á stjórnleysi Haigs.

En já, það má því með sanni segja að valdaafsal af þessu tagi, þó vissulega tímabundið sé, á sér ekki mörg fordæmi. Sennilega er þetta í síðasta skipti á forsetaferli núverandi forseta sem slíkt gerist, en hann á nákvæmlega eitt og hálft ár eftir í embætti.


Trúðaherinn heimsækir Royal Alfreð Hall

Orkuveitan Saving Iceland heldur áfram mótmælum sínum. Í dag heimsóttu þeir Royal Alfreð Hall, minnisvarða um stjórnmálaferil Alfreðs Þorsteinssonar, aka Orkuveituhúsið. Botna samt ekki í heiti hópsins. Þau kalla sig Trúðaherinn. Merkilegt nafn. Eru þetta trúðamótmæli eða er þetta yfirlýsing af einhverju tagi sem felst í nafnavali hópsins. Erfitt að átta sig á því.

Það gæti líka verið vegna þess að þau eru klædd í trúðsbúninga eða gervi af ýmsu tagi, eins og sást á Snorrabrautinni. Þessi mótmæli hafa vakið talsverða athygli. Enn er spurningunni ósvarað um hvort að þau ætli austur að Kárahnjúkum og horfa á Hálslón í sumar. Það verður eflaust mikil upplifun, sérstaklega fyrir þá sem voru þarna á síðasta sumri og létu þá í sér heyra.

Mótmælum á höfuðborgarsvæðinu er greinilega ekki lokið fyrst að vísiterað er þarna. Fróðlegt verður að sjá hvort og þá hvað meira muni gerast í þessum kostulegu mótmælum.

mbl.is Liðsmenn Saving Iceland fóru upp á þak OR
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sæmdarmorðin eru mannvonska af verstu sort

Banaz Mahmood Það er alltaf sorglegt að heyra fréttir og umfjöllun um svokölluð sæmdarmorð - morð á ungum konum sem hafa hið eina gert rangt í augum fjölskyldu sinnar að velja sér kærasta sem passar ekki inn í mynstrið, hafa önnur trúarviðmið eða af öðrum kynþætti. Svo er auðvitað til í dæminu að fjölskyldan sé ósátt við ráðahaginn af öðrum ástæðum. Það er reyndar erfitt að sjá hvaða heiður er varinn með slíku drápi, eins ógeðfelld og þau eru að öllu leyti.

Í flestum siðmenntuðum löndum er enginn sómi fólginn í drápum og mannvígum en það finnast önnur viðmið í þeim menningarheimum sem þetta fólk kemur úr. Svona morð hafa átt sér stað á Norðurlöndunum og hafa vakið mikla athygli, en svona verknaður er auðvitað í kastljósi fjölmiðla í siðmenntuðum löndum. Ein þeirra sem féllu í valinn með þessum hætti var Banaz Mahmood, tvítug kona í London, sem kom úr kúrdafjölskyldu. Hún gerðist sek í augum föður síns og bróður að verða ástfanginn af manni sem þeim líkaði ekki við. Réðu þeir mann til að drepa hana.

Lýsingarnar um það hvernig fór fyrir Banaz eru skelfilegar og í raun með ólíkindum að heyra af svona tilfellum, eins ömurleg og þau eru að öllu leyti. Það sem er þó verst í þessu er að hún leitaði margoft hjálpar en ekki var hlustað á neyðarkall hennar, ekki einu sinni þrátt fyrir misheppnaða morðtilraun föður hennar. Maðurinn sem síðar drap hana var á meðal þeirra sem hún benti á að væru sér hættulegir.

Það er ekki geðsleg sjón að sjá í þennan menningarheim, þar sem þetta þykir hreinlega sjálfsagt, allt vegna þess að fjölskyldufaðirinn og aðrir karlmenn fjölskyldunnar fallast ekki á ráðahag kvennanna sem tilheyra fjölskyldunni. En þetta er napur veruleiki og það er auðvitað með ólíkindum að sjá þetta í svo miklu návígi við okkur.

Þetta er auðvitað mannvonska af verstu sort. Svona siðferði er ekki geðslegt. Það er undarlegt ef sæmd fjölskyldu er meiri með því að drepa fjölskyldumeðlim en að sætta sig við lífsvilja og óskir þeirra sem henni tilheyra.

mbl.is Dæmdir í lífstíðarfangelsi fyrir sæmdarmorð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lífið á myspace

Ég er einn þeirra sem hef startað myspace-síðu. Þar eru síður ótrúlegs fjölda fólks, meira að segja eru þar síður um fólk sem hefur yfirgefið þennan heim. Allt mannlífslitrófið semsagt. Það er reyndar orðið meira en ár síðan að ég opnaði mína síðu, svo að ég varð snemma í því. Var samt ekki viss hvað fylgdi í þessu dæmi og hef eiginlega ekki áttað mig á því enn. Þetta er auðvitað fyrst og fremst svona tenglasíða, byggir tengsl og er ágætis samskiptavettvangur, bæði til að kynnast fólki og vera í sambandi við vini sína.

Samt finnst mér Facebook samt skemmtilegri vettvangur en myspace. Nota semsagt síðuna á myspace mjög lítið, en þess þá meira síðuna á Facebook, sem býður upp á marga aðra skemmtilega valkosti sem ekki eru auðvitað á myspace. En þetta er sennilega bara nútíminn í dag. Það er ótrúlegasta fólk sem vill tengjast manni í gegnum svona kerfi og er auðvitað bara gaman af því. Mér finnst flugið á myspace eitthvað hafa minnkað, en til marks um hversu mikilvægt þetta er að þá hafa stjórnmálamenn opnað vef þar.

Þeirra á meðal eru bandarískir forsetaframbjóðendur sem berjast fyrir atkvæðunum þessar vikurnar, þó óralangt sé enn í forkosningar flokkanna. Svo eru þekktir leikarar auðvitað þarna og er svolítið spes að vera með forsetaframbjóðendur og jafnvel leikara sem myspace-"vini".


mbl.is Vann milljón pund á MySpace
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig er hægt að lifa svona?

Fannst alveg kostulegt að lesa fréttina um manninn sem missti titilinn þyngsti maður heims með því að leggja af um 200 kíló. Hann er þó enn yfir 350 kíló. Það er ekki nema von að lesendur verði hugsi yfir því hvernig hægt sé að lifa svona lífi við þessar aðstæður. Það getur varla verið öfundsvert og eða áhugavert líf í sannleika sagt. Það er reyndar með ólíkindum að einstaklingur geti átt sér líf í þessum þunga, enda verða minnstu hreyfingar að pínu og kvöl, eða ég get hreinlega ekki ímyndað mér annað.

Ég sá fyrir nokkrum árum þátt á einhverri sjónvarpsstöð um einhvern mann í þessu ástandi, gæti verið að það hafi verið þessi Urbie, annars veit ég það svosem ekki alveg. Man það ekki. Man þó að það var í senn sorglegur þáttur en athyglisverður. Enda virtist viðkomandi einstaklingur vera fangi í líkama sínum. Það er reyndar með ólíkindum hvernig svona manneskja í svona ástandi geti lagt svona af, en það er auðvitað gleðilegt að það skuli þó allavega ganga upp.

mbl.is Þyngsti maður heims léttist um 200 kg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Langri bið eftir sögulokum Harry Potter að ljúka

Harry Potter and the Deadly Hallows Innan sólarhrings munu sögulokin í ævintýrasögunni um Harry Potter liggja fyrir með vissu. Sjöunda og síðasta bókin er væntanleg í verslanir og verða þar með ljós örlög Harrys og vina hans, Ron Weasley og Hermione Granger. Það er skondið að vita til þess að meira að segja sé farin að myndast röð fyrir utan Nexus á Hverfisgötu eftir síðustu bókinni. Þrjár sautján ára stelpur ætla að verða fyrstar til að næla sér í eintak. Þær verða að þrauka í 23 tíma ætli þær sér að ná því markmiði. Það er merkilegt að einhver nenni að leggja þá bið á sig.

Ég er einn af þeim sem hef aldrei haft nennu eða áhuga á að lesa þessar Harry Potter-bækur. Reyndi einu sinni að lesa fyrstu bókina, en fannst hún ekki beint spennandi. Kvikmyndaformið heillar mun betur. Ég hef séð allar myndirnar, en nýjasta kvikmyndin, sem er eftir fimmtu bókinni, Harry Potter og Fönixreglan, er nú í bíó. Ég hef reyndar heyrt á fleirum að þeir hafi ekki nennt að lesa bækurnar en þess í stað séð myndirnar og fundist þær skárri. Myndirnar eru auðvitað misjafnar en þær hafa þó verið að dökkna verulega eftir því sem á hefur liðið auðvitað og líður á vist Potters í Hogwarts-skóla.

J.K. Rowling hefur orðið ein auðugasta kona heims af því að skrifa þessa kyngimögnuðu og eftirsóttu sögu. Hún komst á standard við sjálfa Elísabetu II Englandsdrottningu með þessum eftirsótta bókaflokki. Hún mun altént ekki þurfa að hafa áhyggjur af salti í grautinn sinn. Það verður fróðlegt að sjá hversu mjög hún festir endalok sögunnar. Það er sennilega freistandi fyrir hana að halda áfram ef eftirspurn er eftir meiru. En samt, eftir áratug Harrys í sviðsljósinu er ansi líklegt að komið sé að endalokunum og Rowling standi við það. Það eru orðin tíu ár frá útgáfu fyrstu bókarinnar og það eru orðin sex ár frá því að fyrsta myndin var gerð. Enn eru allavega tvö til þrjú ár í að lokahlutinn verði frumsýndur á hvíta tjaldinu.

Vangaveltur hafa verið miklar um endinn. Honum hefur verið skúbbað með fleiri en einum endalokum og óljóst hvernig muni fara. Stærsta spurningin er auðvitað hvort að Harry Potter lifi endirinn af. Það var sagt frá því í fréttum um daginn að Rowling hefði grátið þegar að hún skrifaði endann á sínum tíma. Það verður fróðlegt að sjá hvort að aðdáendur Harrys muni gráta hann um allan heim er lokabindið verður opinbert.

mbl.is Sofið fyrir utan Nexus í nótt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 20. júlí 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband