14.9.2007 | 22:32
Fallin stjarna lifir í voninni um betri tíð

Þegar að Demi stóð á tindi ferilsins lék hún sterkar kvenpersónur með attitude eða sannan karakter. Hæst fór Demi sennilega er hún túlkaði Molly Jensen í vasaklútarmyndinni Ghost, þar sem hún lék kærustu manns sem var myrtur og sneri aftur til að vara hana við hættunni sem blasti við. Allir muna eftir ástarsenunni frægu í keramikgerðinni þar sem Demi og Patrick Swayze létu allt flakka með gamla slagarann Unchained Melody (sem varð vinsælt aftur svo um munaði) ómandi undir. Myndin sló í gegn og Whoopi Goldberg fékk óskarinn fyrir að túlka svikamiðilinn Odu Mae með glæsibrag.
Svo má ekki gleyma því að hún var í kvikmyndinni A Few Good Men í upphafi tíunda áratugarins með Jack Nicholson og Tom Cruise - frábærri réttarmynd með taugar í herlífið. Þar var hún sem hin klára og vinnusama Joanne Galloway sem varð að sætta sig við að vera aðstoðarmaður þess sem flutti málið vegna þess að hún væri kona. Yndisleg mynd og þríeykið small saman svo um munaði (Nicholson átti þar eina bestu túlkun ferilsins sem Jessup ofursti). Túlkun hennar í Disclosure þar sem hún var bitchy yfirmaður sem tók undirmann sinn (í góðri túlkun) Michael Douglas á taugum var svo eftirminnileg.
En Demi var ekki alltaf sú töggsama. Hún byrjaði ferilinn fyrir rúmum tveim áratugum sem ung og brosandi gella í gamanmyndinni Blame it on Rio, en þar lék Sir Michael Caine föður hennar. Síðar fékk Demi ýmis tækifæri sem komu henni á kortið og lék í myndum með fleiri ungsmellum þessa tíma; t.d. St. Elmo´s Fire þar sem voru m.a. Emilio Estevez, Rob Lowe og Andie MacDowell, og ástarræmunni About Last Night þar sem hún lék kærustu Rob Lowe. Margir hafa sagt að hún hafi aldrei lúkkað betur en þar. Þetta er eflaust með hennar betri myndum, einni þeirra sem kom henni best á framfæri.
Á þessum árum kynntist hún leikaranum Bruce Willis. Hann öðlaðist heimsfrægð skömmu eftir að þau tóku saman fyrir túlkun sína á John McClane í hasarreiðinni Die Hard árið 1988 og lék í framhaldi hennar skömmu síðar. Þau voru umtalaðasta parið í Hollywood í áratug, áttu nokkur börn saman og lifðu mjög opinberu ástarlífi til fjölda ára. Þau léku saman í kvikmyndinni Mortal Thoughts í upphafi tíunda áratugarins. Ennfremur ráku þau saman ásamt Arnold Schwarzenegger veitingastaði undir nafninu Planet Hollywood sem mörgum er í minni sem hafa farið til Bandaríkjanna eflaust.
Halla tók undan fæti hjá Demi um miðjan tíunda áratuginn. Eftir fjölda vel heppnaðra mynda varð hún æ óheppnari með hlutverk og valdi líka mjög vitlausar rullur. Þar standa upp úr eflaust þrjár myndir þessa tímabils; Striptease, The Juror og G.I. Jane. Síðastnefnda myndin gekk nærri frá ferli hennar endanlega. Allar urðu þær átakanlega stór flopp fyrir leikkonu sem hafði verið stór í bransanum og notið velgengni. Hún festist í feni vitlausra ákvarðana og ferill hennar festist átakanlega. Á svipuðum tíma fyrir áratug skildu Demi og Bruce. Það varð einn af stærstu skilnuðum áratugarins.
Hún lék ekki í kvikmyndum í sex ár ef undan var skilin ein kvikmynd árið 2000 sem fór vægast sagt ekki hátt. Hún tók saman við Ashton Kutcher árið 2003 að mig minnir, en hann er sextán árum yngri og var eitt helsta kyntákn þess tíma. Það vakti athygli þegar að Ashton fór frá Brittany Murphy fyrir Demi. Sambandið olli deilum en elsta dóttir Demi er aðeins átta árum yngri en Ashton. Á sama tíma kom endurkoman mikla í Charlie´s Angels: Full Throttle. Hún olli ekki miklum þáttaskilum en Demi hefur þó komið fram nokkrum sinnum síðan og nýlega lék hún á móti Kevin Costner og William Hurt í Mr. Brooks.
Það er ekki undarlegt að Demi kvarti yfir vondu gengi sínu. Hún má muna sinn fífil sannarlega fegurri. En það að ætla segjast vera of falleg eða of ung fyrir góðar rullur er hlægileg skýring. Rangar ákvarðanir hennar í hlutverkavali eyðilagði feril hennar og enn skal sopið seyðið af því fíaskói. Það er víst bara þannig.
Demi hefur verið strönduð sem leikkona meira og minna í rúman áratug og meira að segja nýr kærasti og fræg endurkoma með þekktustu bombum þess tíma í Charlie´s Angels breytti ekki stöðu hennar. Það verður fróðlegt að sjá hvort að henni gangi betur þegar að árin færast enn meira yfir.
![]() |
Demi Moore segist vera of falleg til að fá kvikmyndahlutverk |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Kvikmyndir | Breytt 15.9.2007 kl. 00:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
14.9.2007 | 17:30
Pólitísk klókindi bragðarefsins Pútíns

Fyrir áratug, síðsumars 1999, vissu fáir utan Rússlands hver Vladimir Pútín var þegar að Borís Jeltsín ákvað að skipa hann forsætisráðherra. Hann var vissulega gegnheill leyniþjónustukall frá KGB-tímanum og fáum óraði fyrir að þar færi næsti risi rússneskra stjórnmála, lykilspilari á alþjóðavettvangi. Margir töldu þá að þar væri kominn enn einn forsætisráðherrann sem færi fyrir lok forsetaferils Jeltsíns, sem hafði haft tögl og hagldir allt frá því að hann hafði tekið völdin afgerandi eftir valdaránið misheppnaða árið 1991 og hafði risið upp úr öskustó kommaveldisins. Hann var skapmikill drykkjumaður sem markaði áhrif - og var líka þekktur fyrir að sparka forsætisráðherrum.
Mörgum að óvörum ákvað Jeltsín að segja af sér forsetaembættinu í áramótaávarpi á gamlársdag 1999. Allt í einu var leyniþjónustudulan Pútín orðinn einn valdamesti maður heims sem starfandi forseti landsins fram að kosningum. Hann sigraði forsetakosningarnar í mars 2000 með mjög sannfærandi hætti og var endurkjörinn strax í fyrri umferð árið 2004. Hann er einn vinsælasti stjórnmálamaður í sögu Rússlands, hefur allt að 80% stuðning í könnunum - er með alla fjölmiðla að mestu á bakvið sig og ríkir með járnkrafti eins og fyrrum lykilstjórnmálamenn Sovétríkjanna. Hefur markað sig sem hinn stóra afgerandi drottnara veldis síns.
Staðan í Rússlandi er mikið áhyggjuefni. Mér finnst þar horfa ansi margt til fortíðar og vert að hugsa um framtíðina sem blasir við. Stjórnarskráin meinar Pútín að gefa kost á sér í kosningunum næsta vor og rúmlega átta ára forsetaferli er því að ljúka. Atburðarás vikunnar er þó ekki beinlínis með þeim hætti að Pútín ætli sér að hverfa út í sólarlagið eins og George W. Bush, sem brátt lætur ennfremur af embætti. Hann ætlar sér að stjórna atburðarásinni eins og kvikmyndaleikstjóri úr fjarska, halda um alla spotta og ráða örlögum landsins, jafnt sem stuðningsmannahjörðar sinnar. Hann ætlar sér að vera meginspilari áfram á sviðinu.
Það kæmi mér ekki að óvörum ef að Pútín ætlaði sér að velja þægan eftirmann. Líklegast er að það verði annaðhvort þessi litlausi nýji forsætisráðherra, Viktor Zubkov, eða Sergei Ivanov - menn sem myndu ganga fyrir björg bæði Pútín þá um það. Það á að setja þægan innanbúðarmann inn sem uppfyllingu til fjögurra ára. Ekkert meinar Pútín að fara fram eftir fimm ár í kosningunum þá og væntanlega er plottið að þá komi hann með sinn steinrunna svip eins og riddarinn á hestinum hvíta inn á pólitíska sviðið í Rússlandi.
Á meðan horfum við öll út í gráðið og hugsum okkur um það hvort að Rússland sé að verða sama sjúka einræðisríkið og það var áður en múrinn féll og kommagrýlan var sigruð. Flashbackið til fortíðar í Rússlandi er verulegt áhyggjuefni, segi ég og skrifa.
![]() |
Pútín segir Zúbkov hugsanlegan arftaka sinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.9.2007 | 12:11
Sigríður Lillý tekur við af Karli Steinari

Ráðning Karls Steinars fyrir fjórtán árum bar á sér brag þess að vera pólitísk ráðning, enda hafði hann verið alþingismaður Alþýðuflokksins árum saman og hann tók við embættinu af öðrum þingmanni og ráðherra Alþýðuflokksins á fyrri tímum, Eggert G. Þorsteinssyni.
Eins og flestum er í fersku minni var Sigríður Lillý varaþingmaður Kvennalistans kjörtímabilið 1987-1991. Það er hið eina rétta að ráða starfsmann innan TR til verksins en nota ekki forstjórastólinn til pólitískra bitlinga eins og svo oft hefur verið gert áður.
![]() |
Sigríður Lillý Baldursdóttir nýr forstjóri TR |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
14.9.2007 | 00:36
Leitað eftir ástinni á mjólkurfernu

Oftast nær horfi ég ekki mikið á fernuna nema þá kannski í þann mund sem ég er að kaupa hana eða hella úr henni við eldhúsborðið. En kannski þarf að gera fernurnar meira krassandi og auka skemmtunina með auglýsingum á þeim. Það er allavega svolítil ný sýn fyrir okkur hérna heima á klakanum að hægt sé að auglýsa eftir hinni einu sönnu ást á mjólkurfernunni - hvað svo sem ást er nú eiginlega, segi ég eins og Karl Bretaprins sagði svo klaufalega forðum með Díönu við hliðina á sér með roða í kinnum.
Þetta er allavega sæt saga. Það væri gaman að sjá mynd af þessu og eiginlega vonbrigði að Mogginn sé ekki með haldbæra mynd af því en birtir þess í stað skelfilega mynd af einhverri ófrumlegri fernumynd sem var í notkun hérna heima alltof lengi fyrir nokkrum árum.
![]() |
Ástarsaga í kjölfar auglýsingar á mjólkurfernu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
14.9.2007 | 00:12
Jodie Foster fellur fyrir fegurð Íslands
Það er ánægjulegt að Jodie Foster hafi fallið fyrir fegurð Íslands í sumarsælunni hér fyrir nokkrum vikum. Jodie hefur alla tíð verið ein af mínum uppáhaldsleikkonum. Hún er mjög sterk karakterleikkona og nær sterku valdi á þeim kventýpum sem hún túlkar og er hiklaust ein af allra bestu leikkonum sinnar kynslóðar. Enda hefur hún hlotið mörg verðlaun fyrir leik og hlaut t.d. óskarsverðlaunin fyrir leik í aðalhlutverki tvisvar áður en hún náði þrítugsaldri; afrek sem seint verður sennilega slegið.
Sterkasta leiktúlkun hennar á ferlinum hefur mér alla tíð þótt hlutverk alríkislöggunemans Clarice Starling í The Silence of the Lambs árið 1991. Það neistaði af henni þar í frábærum samleik með Sir Anthony Hopkins, sem var auðvitað rafmagnaður sem hin sálarsjúka mannæta dr. Hannibal Lecter. Bæði hlutu þau óskarinn og myndin er ein af þeim bestu á tíunda áratugnum - sannkölluð hasarreið frá upphafi til enda. Hún gerði Clarice klára en viðkvæma í senn. Sérlega flott túlkun á kjarnakonu. Það voru mikil vonbrigði að hún tók ekki þátt í Hannibal, beinu framhaldi myndarinnar áratug síðar. Julianne Moore, hin annars frábæra leikkona, náði ekki sama neistanum í hlutverki Clarice þar.
Jodie Foster sló fyrst virkilega í gegn í Taxi Driver á áttunda áratugnum. Var aðeins þrettán ára að mig minnir þá og var yndislega sönn sem vændiskonan Iris, sem Travis Bickle, í frábærri túlkun meistara Robert De Niro, reynir að bjarga úr eymdinni. Sú mynd er svört en yndisleg þrátt fyrir það. Ein besta mynd síns tíma og Jodie leikur stóran þátt í þeirri velgengni auk Roberts. Jodie komst á kortið þar og átti stórleik sem lengi verður í minnum hafður. Þegar að ég vil sjá sannkallað klassabíó set ég Taxi Driver í - stemmningin í henni er auðvitað engu lík. Allt fellur þar saman hjá Scorsese til að úr verði meistaraverk og yndislegt stef Herrmanns (hans síðasta verk) toppar allt.
Það var þó ekki fyrr en rúmum áratug síðar sem Jodie varð ein af stóru leikkonunum í Hollywood. Túlkun hennar á Söru Tobias í The Accused, sem er nauðgað með hrottalegum hætti á krá, er gjörsamlega magnþrungin. Það er ekkert annað orð til sem getur lýst þeirri upplifun að sjá myndina fyrst - þennan leiksigur Jodie. Hún hlaut fyrri óskarinn sinn fyrir þá túlkun og tókst meira að segja að slá þá við Meryl Streep, sem átti sama ár eina bestu leiktúlkun ferils síns, sem Lindy Chamberlain í A Cry in the Dark, móðurina sem var sökuð um að hafa myrt barnið sitt í Ástralíu og varð að sitja inni í sex ár áður en sakleysi hennar var loks staðfest með sönnunum.
Túlkun Jodie á Clarice The Silence of the Lambs krýndi hana sem eina stærstu leikkonu sinnar kynslóðar og hún hefur haldið þeim sess í gegnum árin. Hún hefur þó fleiri myndir á afrekaskránni en þessar þrjár. Hún túlkaði Nell yndislega á miðjum tíunda áratugnum og hélt öflugri mynd uppi með sláandi góðri túlkun. Ekki má gleyma myndinni Contact, en hún er flókið og ekki allra svosem, en túlkun hennar á Ellie er brilljans. Síðar hafa komið myndir á borð við Panic Room (hrá og mögnuð spenna sem heillaði mig algjörlega) og hún gerði hlutverk Meg Altman mjög bitastætt, Flightplan og Inside Man, báðar sterkar spennumyndir.
Vonandi mun Jodie Foster koma oftar til Íslands og ansi er það líklegt ef marka má góð orð hennar um landið.
![]() |
Jodie Foster hrifin af Íslandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Kvikmyndir | Breytt s.d. kl. 00:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)