Umdeildur Herra Ísland endurheimtir æruna

Herra Ísland 2005 Það er ekki hægt að segja annað en að Ólafur Geir Jónsson, sem sviptur var titlinum Herra Ísland fyrir þrem árum, hafi endurheimt æruna með niðurstöðu héraðsdóms, sem tekur undir öll meginrök hans í málinu gegn fegurðarsamkeppni Íslands. Ekki aðeins eru honum dæmd peningagreiðsla heldur er tekið sérstaklega fram að ekki átti að dæma hann frá titlinum.

Ólafur Geir er því sigursæll og með pálmann í höndunum. Verði þessi dómur endanlegur, eða staðfestur í Hæstarétti, er því komið fordæmi þess að nær vonlaust verði fyrir fegurðarsamkeppni Íslands að svipta sigurvegara titli á eigin forsendum og komi upp deilur milli keppninnar og sigurvegarans. Þegar að hann missti titilinn var hann illa skaddaður, enda voru notuð rök um að hann væri í svallinu og hefði ekki hagað sér siðsamlega, hann væri ekki karakter sem þau gætu stutt opinberlega.

Það eru svolítið kuldaleg endalok fyrir aðstandendur keppninnar að tapa málinu svo afgerandi, ákvörðunin sé dæmd ólögleg og að ummælin um hann hafi verið ósönn. Það verður áhugavert að sjá hvort að þau una þessu, en með því eru þau að staðfesta að þau geti ekki skipt um sigurvegara í miðju ferlinu.

Held að þetta hafi annars aldrei gerst hérna heima áður - að sigurvegari fegurðarsamkeppni sé sviptur titli. Það hefur oft gerst erlendis, t.d. í Bandaríkjunum þar sem skandalar hafa komið upp. Hér er greinilega dæmt gegn forsendum þess að hann hafi verið sviptur titlinum og aðstandendur keppninnar fá ákvörðunina framan í sig á meðan að sá sem að þau vildu taka titilinn af vinnur fullnaðarsigur.

mbl.is Fær bætur fyrir að missa fegurðartitil
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Langlífar kjaftasögur um samkynhneigð Jónsa

Jónsi Það var svolítið sérstakt að sjá aftur kjaftasögurnar um samkynhneigð Jónsa lifna við eftir frétt í Mogganum og hér á mbl.is um atriði á árshátíð Icelandair. Þar gerði hann grín að þessari kjaftasögu. Sumir hafa skrifað um þennan atburð sem vitnisburð um að hann sé samkynhneigður, á meðan að aðrir hafa skrifað með mun yfirvegaðri hætti og séð grínið í atriðinu.

Fannst hinn annars ágæti bloggari Jens Guð fara lengst í þessum pælingum og eiginlega orða hlutina í svolitlum fyrirsagnastíl þar sem hann gefur sér að Jónsi sé hommi, vegna þess að hann aktar með þeim hætti að mögulega sé hann það. Allir sem þekkja til hans vita að karakterinn er bara svona og ekkert meira svosem um það að segja. Það er samt leitt að sjá svona sleggjudóma.

Annars hefur Jónsi sjálfur svarað þessum kjaftasögum í viðtölum eftir þessa fjölmiðlaumfjöllun og gerir það vel. Kjaftasögurnar virðast samt lifa allt annað af sér, en kannski er það bara þannig að kjaftasögurnar munu alltaf grassera um þekkt fólk og margt er það dæmt af karakternum, en ekki út frá staðreyndum.

Gefið í skyn að Ólafur F. sé flughræddur

John Edwards Mér finnst það svolítið kostulegt að búið sé að koma á flot þeirri kjaftasögu að Ólafur F. Magnússon, borgarstjóri, hafi ekki farið á fund norrænna borgarstjóra vegna þess að hann sé kannski flughræddur. Það virðist vera að kjaftasögurnar og orðrómurinn um hitt og þetta hvað varðar Ólaf F. sé ekki beinlínis að minnka.

Það hefur verið sagt svo mikið að það er kannski erfitt að toppa það, en þessi saga er aðallega fyndin. Fannst það rétt hjá borgarstjóranum að sinna sínum verkum heima í stað þess að fara. Staðan er bara þannig að nýr borgarstjóri þarf mun frekar að vera sýnilegur borgarbúum í verkum en starfsfélögum hans á erlendri grundu.

Það hefur ekki vantað pælingarnar um þá ákvörðun Ólafs F. að sitja heima. Ein þeirra var sú að hefði meirihlutinn fallið. Það er í meira lagi fyndin kenning, enda stendur fundurinn frá deginum í dag til föstudags. Næsti borgarstjórnarfundur er ekki fyrr en á þriðjudag.


John Edwards dregur framboð sitt til baka

John Edwards Það kemur engum að óvörum að John Edwards hafi ákveðið að draga framboð sitt til embættis forseta Bandaríkjanna til baka. Hann varð undir, nær allt frá upphafi, í harðri baráttu fyrstu konunnar og fyrsta blökkumannsins sem eiga raunhæfa möguleika á forsetaembættinu, gat ekki komist upp á milli þeirra og náði aldrei flugi í forkosningabaráttu demókrata. Það verður áhugavert að sjá hvort hann muni styðja Obama eða Hillary - hann gæti orðið örlagavaldur í þessari baráttu með því.

Þegar að John Edwards gaf kost á sér í desember 2006 kom það engum að óvörum; hann hafði jú verið ein skærasta stjarna forkosningaferlisins árið 2004 og varð varaforsetaefni John Kerry í kosningunum. Hann náði þó aldrei að byggja undir framboðið sem trúverðugt að þessu sinni og stóð og féll með forkosningunum í Iowa í byrjun mánaðarins, þar sem hann varð í öðru sætinu, og í Suður-Karólínu, sínu gamla heimafylki, þar sem hann náði ekki hljómgrunni, en hann hafði sigrað hið síðarnefnda árið 2004 og náði alvöru sess sem frambjóðandi í hinu fyrrnefnda.

Segja má að Edwards hafi fengið skellinn mikla fyrir hálfum mánuði þegar að John Kerry lýsti yfir stuðningi við Barack Obama og gekk framhjá varaforsetaefni sínu fyrir fjórum árum. Lífseigar sögur hafa þó verið um að Kerry hafi séð eftir valinu og þeir hafi ekki átt samleið, haft ólíkar skoðanir á mörgum málum og ekki náð flugi saman. Það hafi jafnvel skipt sköpum er yfir lauk að framboðið náði ekki að stilla saman strengi sína vel. Með yfirlýsingu Kerry var þessu lokið og útreið Edwards í Suður-Karólínu gekk endanlega frá framboðinu. Hann bar sig vel og sagðist þá berjast fram að ofur-þriðjudegi en það voru hreinir draumórar.

Nú er það endanlega staðfest að forkosningaferli demókrata er algjört einvígi Barack Obama og Hillary Rodham Clinton. Það hefur þó verið ljóst vikum saman að svo myndi fara. Nú verður áhugavert að sjá slaginn sem átök þeirra tveggja. Allir spyrja sig að því hvað Edwards geri. Stuðningur hans getur skipt sköpum í þeim jafna slag sem framundan er innan flokksins, þar sem margt bendir til að þessu ljúki með hreinni talningu upp á hvern þingfulltrúa á þingið í Denver.

Fáir búast við því að Edwards verði varaforsetaefni í kosningunum, þó ekki sé rétt að útiloka það. Líklegra er þó að Hillary gæti hugsað sér að hafa hann sér við hlið, en Obama mun horfa í aðrar áttir. Tekið var eftir því að Hillary og Edwards áttu fund sín á milli baksviðs eftir kappræðurnar í Suður-Karólínu. Umræðuefnið er ekki vitað, en mörgum grunaði þó hvað var rætt. Lífseig hefur verið sagan um að Obama vilji fá stuðning hans.

Edwards er kannski úr sögunni sem forsetaefni en áhrif hans gætu orðið nokkur er yfir lýkur, sérstaklega ef hann styður opinberlega annan frambjóðandann fyrir ofur-þriðjudag.

mbl.is Edwards hættur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rétt ákvörðun hjá Kaupþingi

Kaupþing Það er skynsamleg ákvörðun hjá Kaupþingi að hætta við yfirtökuna á NIBC. Eins og staðan er nú hefði það verið glapræði að láta fyrri ákvarðanir standa. Þetta styrkir Kaupþing til lengri tíma litið, en efasemdir voru uppi um hvort að þessi biti væri of stór fyrir bankann.

Eins og nú árar er skynsamlegt að halda að sér höndum og það er mikilvægt að Kaupþing sendi þau skilaboð nú um stundir. Eftir langa uppsveiflu í viðskiptalífinu hefur bissnessinn verið krappur dans síðustu vikur og sér ekki enn fyrir endann á því.

Það er ekki við því að búast að yfirmenn Kaupþings staðfesti að hætt hafi verið við því bitinn hafi verið of stór, þó það blasi reyndar við eins og staðan var. Það er vonandi að viðskiptalífið rétti úr kútnum á næstunni, það verði hægt að tóna niður þær blikur sem eru á lofti.

mbl.is Hætt við yfirtöku á NIBC
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kusk fellur á hvítflibba Dr. Phil

Dr. Phil Það eru ótrúlega margir sem horfa á vandamálaþætti Dr. Phil, Opruh og fleiri sjálfskipaðra snillinga sem heilagan sannleik og finnst þau vera boðberar hins rétta og heiðarlega í einu og öllu. Finnst svona þættir ekkert spes og skil ekki aðdráttaraflið sem t.d. Dr. Phil virðist hafa. Hann hefur nú á síðustu dögum sannað eðli sitt sem peningaplokkari með því hvernig hann þröngvaði sér inn á Britney Spears og ætlaði að hala inn fjölmiðlaathygli með því að ætla að hjálpa henni.

Nú eru að koma fram atriði sem sýna fram á vafasama fortíð sjónvarpssálfræðingsins. Hann er víst ekki heilög stjarna á fjölmiðlahimninum, eins og svo margir héldu, heldur mannlegur eins og aðrir og hefur kusk á hvítflibbanum. Það verður sennilega erfitt fyrir hann að halda stjörnu sinni bjartri eftir þetta, reyndar tel ég að margir hafi verið búnir að sjá í gegnum hann fyrir margt löngu. Sögusagnir hafa verið um að áhorfið á þættina hans hafi dalað og Oprah mun hafa fengið nóg þegar að hann ætlaði sér að ná athygli allra með því að "bjarga" Britney Spears úr því öngstræti sem hún hefur komið sér í.

Það hefur oft sannast að sjónvarpsfólk sem virðist hafa allar lausnir, sálfræðingar sjónvarpsins og sérfræðingar, eru ekki heilagir. Eru mannlegir eins og aðrir en byggja sér upp ímynd þess sem getur reddað öllu og fær aðra til að trúa að þeir séu heilagir. Dr. Phil virðist hafa misst eitthvað þessa ímynd niður og spurning hvort að hann verður höggvinn af og missi sjónvarpsplássið sitt.

mbl.is Dr. Phil sagður eiga sér vafasama fortíð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

John McCain færist nær útnefningu repúblikana

John McCain John McCain fór langleiðina með að tryggja sér útnefningu repúblikana í forsetakosningunum í nóvember með sigrinum í sólskinsfylkinu Flórída í gær. Á áttræðisaldri hefur honum tekist að eiga stórmerkilega pólitíska endurkomu, sigrast á vondri stöðu lengi vel síðasta árs þegar að hann hafði lítið fylgi í könnunum, mistókst að safna digrum sjóðum peninga og missti reynt starfsfólk sem taldi hann ekki eiga möguleika.

Það mun styrkja hann mjög í sessi að fá stuðning Rudy Giuliani, fyrrum borgarstjóra í New York, síðar í dag. CNN fullyrti um leið og kjörstaðir lokuðu og ósigur Giuliani var staðfestur í Flórída að hann myndi draga framboð sitt til baka og styðja McCain - viðræður hefðu staðið milli framboðanna um að tilkynna þetta í Kaliforníu í dag. Þeir hafa verið að berjast um sama fylgið og því er mikilvægt fyrir McCain að fá svo góðan stuðning. Með þessu er nokkuð öruggt að hann mun vinna nokkuð afgerandi bæði í New York og New Jersey og fær stuðning á öðrum stöðum þar sem stefndi í jafnan slag við Mitt Romney.

Eina von Mitt Romney úr þessu er ef að Mike Huckabee myndi draga framboð sitt til baka eða að hann geti náð oddastöðu í lykilfylkjum á ofur-þriðjudegi. Huckabee er að takast á við Romney um sama fylgið í flokkslitrófínu og það dregur máttinn úr Romney að þetta verður á pappírnum ekki enn orðinn tveggja manna slagur í næstu viku. Það er þó borin von að svo fari. Romney þurfti að eiga sólskinssigur í Flórída til að ná að snúa lukkuhjólinu við. Úr þessu ræðst þetta á stærstu fylkjunum í næstu viku þar sem McCain mun að öllu óbreyttu raka að sér þingfulltrúum og tryggja stöðu sína enn í sessi.

Það má vel vera að Mitt Romney muni verða í slagnum fram eftir febrúarmánuði, en hann þarf meiriháttar bylgju stuðnings úr þessu til að stöðva John McCain og ná útnefningunni. Það má fullyrða nokkuð afgerandi að eftir ofur-þriðjudaginn muni McCain ná þeim sess í huga flestallra sem fylgjast með bandarískum stjórnmálum. Virtir flokksmenn hafa verið að lýsa yfir stuðningi við McCain og öllum er ljóst að hann tryggði sér í raun sigurinn í Flórída með stuðningi Crist og Martinez, sem hafa sterka stöðu í fylkinu. Örlög Giuliani voru líka endanlega ráðin með því.

Það eru aðeins fjórir eftir með alvöru von á Hvíta húsinu; John McCain og Mitt Romney hjá repúblikunum, og Hillary Rodham Clinton og Barack Obama hjá demókrötum. Ofur-þriðjudagurinn er úr þessu sviðsljós þessara fjögurra. Óvissan hjá demókrötum verður meiri, en þar stefnir í allsherjar talningu upp á hvern þingfulltrúa, þó að ég telji að Hillary muni lenda í mestu prófrauninni en þá mun sjást hvort að stuðningur Ted Kennedy og Caroline Kennedy Schlossberg skipti yfir höfuð máli. Standi hún það af sér og nái góðum sigrum í lykilfylkjum fær hún útnefninguna.

Það stefnir í spennandi sprengidag og línur munu þá skýrast enn, þó ég telji að barátta repúblikana sé í raun búinn. John McCain hefur náð afgerandi forskoti í útnefningaferlinu og hann verður ekki stöðvaður úr þessu. Til þess hefur staða hans styrkst það mikið að Romney þarf að dæla út öllum heimsins peningum til að ná að stöðva bylgjuna. Eini sénsinn hans til þess er þó eftir viku.

mbl.is McCain sigraði í Flórída
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

McCain sigrar - Giuliani styður McCain á morgun

John McCain John McCain hefur sigrað forkosningar repúblikana í Flórída. Sigurinn er mjög mikilvægur fyrir McCain - það verður erfitt að stöðva hann úr þessu. Forysta McCain í útnefningaferlinu hefur verið endanlega staðfest með þessum sigri og ef marka má kannanir fær hann góðan byr á ofur-þriðjudegi eftir viku, svo mikinn að hann mun fara langleiðina með að tryggja sér útnefningu flokksins.

Rudy Giuliani fékk skellinn mikla sem spáð var. Hann hlaut aðeins 16% og átti aldrei möguleika síðustu dagana á því að snúa við glataðri stöðu. Þetta var tapað fyrir um tíu dögum. Hann átti ekki roð við þeim frambjóðendum sem komu í sólskinsfylkið á bylgju stuðnings. Það er nú orðið endanlega ljóst að hann mun ekki vinna útnefningu flokksins, baráttan er töpuð og það er öllum ljóst að hann mun draga sig út úr baráttunni, væntanlega strax á morgun. Sögusagnir eru um að hann muni lýsa yfir stuðningi við John McCain í Kaliforníu á morgun.

Mike Huckabee varð fjórði, sjónarmun á eftir Giuliani. Hann bar sig vel í kvöld og talar um suðræna sigra í næstu viku. Vel má vera, en hann þurfti að sigra í Suður-Karólínu til að hafa alvöru stöðu, þá varð hann að sigra í suðrinu. Það er orðið of seint fyrir hann að snúa úr þeirri stöðu sem hann er í. Þetta er slagur McCain og Romney. Romney mun þurfa að reiða út alla heimsins peninga þó til að snúa þessu við. Örlög hans ráðast á ofur-þriðjudegi, þar sem hann þarf að ná að stöðva McCain til að eiga einhverja von.

Ég er handviss um það að þegar að saga þessarar forkosningabaráttu í einum mest spennandi forsetakosningum í síðari tíma stjórnmálasögu í Bandaríkjunum verður skrifuð muni Flórída verða talið stóra augnablikið í forkosningaslag repúblikana. Þá hafi John McCain tryggt sér útnefningu repúblikana í eitt skiptið fyrir öll. Með sigri í New Hampshire og Suður-Karólínu hafi hann náð áfangasigrum á þeirri leið en sólskinsfylkið fært honum útnefninguna.

Það er merkilegt að McCain, sem verður 72 ára í ágúst, sé kominn langleiðina að útnefningunni. Hann stefnir í að verða elsti maðurinn sem á möguleika á Hvíta húsinu, þrem árum eldri en Ronald Reagan var árið 1980 er hann var kjörinn forseti Bandaríkjanna. Það verður seint sagt að aldur skipti máli í þessum efnum. Kannski er það jákvætt og gott að þau skilaboð séu send út að stjórnmálamenn séu ekki búnir að vera um sjötugt.

-----

Hillary vann Flórída. Enginn slagur þar, en samt mikilvægur sigur fyrir hana, móralskur sigur á mikilvægu augnabliki í aðdraganda ofur-þriðjudags. Merkilegt að sjá sundurliðun úrslitanna; Obama hefur blökkumennina en nær ekki að taka hvíta og konur. Þarna er vandi Obama. Til að geta orðið sigursæll á ofur-þriðjudegi og náð útnefningunni þarf hann að fókusera á þessa hópa.

Það kannski fer svo að vinnufélagarnir í öldungadeildinni, góðvinirnir, Hillary og McCain verði þau sem berjist um Hvíta húsið í nóvember. Það verður heldur betur barátta um miðjuna.

Spenna í Flórída - Giuliani búinn að vera?

Romney, McCain og GiulianiÞað bendir flest til þess að forkosningar repúblikana í Flórída verði örlagaríkar fyrir frambjóðendur. John McCain og Mitt Romney, eru samkvæmt könnunum líklegastir til sigurs og berjast um forystusess í baráttunni um útnefninguna í forsetakosningunum í nóvember á meðan að Rudy Giuliani rær þar pólitískan lífróður sinn. Það er allavega ljóst að það skiptir máli hvernig fer, enda hlýtur sigurvegarinn alla þingfulltrúa fylkisins, tæplega sextíu að tölu.

John McCain hefur átt stórglæsilega endurkomu sem frambjóðandi á síðustu vikum, eftir að hafa verið talinn af fyrir nokkrum mánuðum. Sigrar hans í New Hampshire og Suður-Karólínu hafa fært honum byr í seglin. Sigur í Flórída nú myndi færa honum mjög sterka stöðu í ofur-þriðjudaginn eftir viku, þar sem kosið verður í rúmlega tuttugu fylkjum, en skv. könnunum hefur hann forskot í stærstu fylkjunum og hefur t.d. styrkst mjög á skömmum tíma í Kaliforníu. Sigri hann í dag verður því erfitt að stöðva hann.

Mitt Romney myndi með sigri í Flórída takast að stöðva sigurgöngu John McCain og hleypa meiri lífi í forkosningaferli flokksins. Það er að verða æ augljósara að baráttan er milli hans og McCain. Hinir frambjóðendurnir skipta æ minna máli og rétt eins og hjá demókrötum eru línurnar orðnar skýrar og munu eflaust skýrast mjög með útkomunni í Flórída, í aðdraga ofur-þriðjudagsins. Romney varð þó fyrir nokkru áfalli um helgina er McCain fékk stuðning öldungadeildarþingmannsins Mel Martinez og hins vinsæla ríkisstjóra fylkisins, Charlie Crist. Allir frambjóðendur höfðu reynt að fá stuðning Crist og McCain hefur minnt vel á í hvaða herbúðum ríkisstjórinn er.

Fyrir nokkrum mánuðum töldu flestir það öruggt mál að Rudy Giuliani myndi taka Flórída og það með sannfærandi hætti. Hann ákvað að leggja allt undir í fylkinu, sleppa fyrstu fylkjunum í forkosningaferlinu og stóla á að slagurinn yrði enn opinn þegar að Flórída kæmi og taka ofur-þriðjudaginn í kjölfarið á bylgju stuðnings þaðan. Þessi áætlun var frá upphafi talin vægast sagt djörf. Nú er hún fokin út í veður og vind. Með þessu missti Giuliani máttinn og hefur veðrast upp sem frambjóðandi á aðeins nokkrum vikum. Hann var nær allt síðasta ár með mikið forskot á aðra frambjóðendur en er nú heillum horfinn.

Af því leiðir að léleg útkoma í Flórída bindur enda á framboð hans. Nýjustu kannanir sýna að Giuliani mælist með 13-16% fylgi og þriðji eða fjórði. Hann mun ekki þola svo lélegt fylgi og þó hann yrði þriðji tel ég hann búinn að vera. Hann verður að sigra í Flórída eða í versta falli verða annar til að halda haus sem frambjóðandi. Giuliani þarf að eiga pólitíska endurkomu í þessum forkosningaslag fyrir lok mánaðarins til að geta haldið velli. Það er ekki flóknara en það. Hann virðist vera að tapa stöðu sinni á heimavelli í New York og hefur misst flugið í öllum fylkjum.

Það hefur verið ljóst síðustu dagana að mjög er dregið af borgarstjóranum sem leiddi New York í gegnum hryðjuverkin fyrir sjö árum. Hann þarf á sigri að halda, ella er þessu lokið. Það virðist ekki umflúið fyrir hann að tapa þessum slag og þá má telja öruggt að hann pakki saman og hann gaf það í skyn í dag. Þetta verður spennandi nótt. Ætla að spá McCain sigri, eins og svo margir hafa gert. Með stuðning bæði Crist og Martinez getur varla öðruvísi verið en að hann taki þetta kjör.

Forkosningarnar í Flórída marka viss tímamót í ferlinu. Aldrei hefur Flórída skipt meira máli og sennilega mun ofur-þriðjudagur aldrei skipta meira máli heldur í forkosningaferli repúblikana, sem er hið opnasta í áratugi. Aldrei fyrr hefur slagurinn verið jafn spennandi og opinn. Þó eru línur að skýrast og ég tel blasa við að eftir þennan dag verði aðeins Romney og McCain með alvöru stöðu í að vinna útnefninguna. Þannig að hringurinn þrengist í þessum spennandi átökum - spennan vex og mun meira er lagt undir.

Allra augu verða því á þessum tveim frambjóðendum og Rudy Giuliani líka. Það virðist allt stefna í að litríkri kosningabaráttu hans ljúki í sólskinsfylkinu, fylkinu þar sem hann ætlaði að rísa upp sterkur í aðdraganda ofur-þriðjudags en mun væntanlega eiga lokaspil stjórnmálaferils síns. En um leið gleðjast hinir tveir sem munu eiga spennandi baráttu eftir viku, þó ég telji að McCain vinni útnefninguna taki hann Flórída. Hann mun fara á mikilli bylgju í ofur-þriðjudaginn með sigri allavega.

mbl.is Framboð Giulianis á bláþræði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 30. janúar 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband