15.5.2008 | 21:43
Hanna Birna á að verða næsti borgarstjóri

Finnst það mjög hlægilegt að það sé komið með það sem raunhæfan möguleika að Júlíus Vífill, sem sat í fimmta sæti framboðslistans fyrir tveim árum og tapaði slag um annað sætið, eigi að verða borgarstjóri í þessari stöðu. Á mjög erfitt með að sjá hvernig eigi að réttlæta slíkt val sem þeir félagar töluðu fyrir á Hrafnaþingi í kvöld með Júlíus sér við hlið. Þá væri gengið gegn prófkjöri sem haldið var og farið mjög neðarlega á listann í leit að leiðtoga flokksins.
Sjálfstæðisflokkurinn heldur prófkjör til að marka línur og raða fólki til sætis í virðingarröð. Bæði Hanna Birna og Gísli Marteinn hafa sterkasta stöðu og auðvitað eiga þau bara að færast upp í hlutverkum þegar að Vilhjálmur Þ. hættir sem leiðtogi. Annað er skrípaleikur fyrir flokkinn að vinna úr, mun aðeins gera illt verra í þessari ísköldu stöðu sem blasir við öllum. Auk þess kom sterk staða Hönnu Birnu fram í könnun fyrir nokkrum mánuðum, þar sem hún bar höfuð og herðar yfir aðra borgarfulltrúa flokksins.
Tvisvar á þessu kjörtímabili hefur það gerst að sterkir leiðtogar Sjálfstæðisflokksins í sveitarstjórnarpólitík hættu sem bæjarstjórar og flokksleiðtogar; Kristján Þór Júlíusson og Ragnheiður Ríkharðsdóttir. Eftirmenn þeirra urðu þau sem skipuðu annað sætið á framboðslista; Sigrún Björk Jakobsdóttir og Haraldur Sverrisson. Umboð þeirra var mjög skýrt og enginn efaðist um það. Hér á Akureyri var þetta ekki einu sinni rætt, þetta var svo sjálfsagt.
Tími Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar er liðinn. Honum urðu á alvarleg mistök í hlutverki sínu sem flokksleiðtoga og brást á örlagastundu flokknum og þeim sem unnu fyrir hann í prófkjöri og kosningum. Hann brást sérstaklega þeim sem kusu hann sem sterkan leiðtoga reynslunnar til verka. Honum ber að víkja og væntanlega er stutt í að það gerist þegar að menn eins og Ingvi Hrafn er búinn að snúa við honum baki sem leiðtoga.
Nýr leiðtogi á að verða valinn með tilliti til þeirra lína sem markaðar voru í prófkjöri haustið 2005. Vilhjálmur situr enn í krafti þess umboðs og óeðlilegt er að vera að velja leiðtoga eftir öðru en því hverjir hlutu þar stuðning til verka. Ef valkosturinn sem Hrafnaþing blessaði verður niðurstaðan í leiðtogaleitinni þarf fyrst að svara því hversvegna eigi að ganga gegn þeim sem hafa mun sterkara umboð flokksmanna.
Slíkt yrði vandræðalegt klúður fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík og með því yrðu send þau skilaboð að prófkjör skipti í raun engu máli. Einkum yrði tekið eftir slíku í þeirri vondu stöðu sem blasir við sem eftirmæli um misheppnaða leiðtogatíð Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar.
![]() |
Lýsir stuðningi við Júlíus Vífil |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
15.5.2008 | 15:44
Bloggarar biðjast afsökunar á upplognum sögum
Bloggið er fjölmiðill. Það sem er skrifað þar getur haft mikil áhrif, einkum þegar skrifað er með þessum hætti. Hægt er að rekja skrifin þó ekki fylgi nafn. Það sést mjög vel í þessu tilfelli. Eflaust verður þetta mál lexía fyrir þá sem telja að hægt sé að skrifa hvað sem er án þess að láta nafnið fylgja með.
Held að þau sem skrifuðu þessar færslur eigi eftir að sjá eftir því. Má vera að þau hafi viljað kanna viðbrögðin og reyna að stuða þá sem lesa. En þetta verður sennilega ekki sú athygli sem þau vildu ná.
Lesa má afsökunarbréfin á blabla.is
![]() |
Lögregla rekur slóð bloggara |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
15.5.2008 | 15:16
Lúðvík vill leggja Ríkislögreglustjóra niður
Ekki aðeins deila Samfylkingarmenn og ráðherrann um þetta embætti heldur ennfremur breytingarnar á Suðurnesjum. Enn hefur þingflokkur Samfylkingarinnar ekki afgreitt margfrægt frumvarp um uppstokkun mála í embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum og útséð um að það fikrist áfram eða klárist á þessu starfstímabili þingsins. Ágreiningurinn um embætti Ríkislögreglustjóra vekur mesta athygli vegna þess að forystumaður Samfylkingarinnar í þingstarfinu talar svo afgerandi og gegn öllu því sem ráðherrann hefur gert í þessum efnum.
Augljóst er eftir þingumræðuna að þarna er vík milli stjórnarflokkanna - stjórnarandstæðingar voru auðvitað fljótir að notfæra sér þennan höggstað með því að tala um ágreininginn á milli aðila. Enda skiljanlegt. Með þessu er ágreiningur um heildarstefnu lögreglumála á milli stjórnarflokkanna staðfestur og væntanlega munu átökin um embætti Ríkislögreglustjóra verða miklu erfiðari að vinna úr en nokkru sinni um embættið á Suðurnesjum.
![]() |
Nauðsynlegt að leiða lögreglustjóraembættið út úr fjárhagsvanda |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.5.2008 | 12:37
Mótmæli bílstjóranna að renna út í sandinn
Núna telja þeir málstað sínum best borgið með því að öskra á alþingismenn við störf í þinghúsinu. Er hættur að skilja þessi mótmæli, það vantar forystuna og strategíuna í pakkann og eftir er ekkert nema vandræðaleg mótmæli úr fókus. Innan við 100 manns svöruðu kalli bílstjóranna og tóku þátt í mótmælum þeirra. Þeir fengu vissa samúðarbylgju fyrstu vikurnar í baráttunni. Þeir sendu út statement um stöðu sína og náðu athygli en höfðu ekki kraft og klókindi til að fara með þá baráttu alla leið.
Held að engum hópi með kröfur gegn ríkinu hafi áður tekist að klúðra sínum málum jafn illa og bílstjórunum. Þeim tókst ekki að ná samstöðu með þjóðinni - fóru fram úr sér og verða víst að bíta úr nálinni með það. Held að þeir hafi fyrst og fremst byrjað á vitlausum enda í mótmælunum og gert þetta rangt, enda standa þeir eftir mjög einir. Þetta eru ekki mótmæli fjöldans.
![]() |
Hrópað af þingpöllum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.5.2008 | 01:44
Magnús Þór flýgur fram af hengifluginu

Magnús Þór hefur farið hamförum í tali sínu og gengisfellt sig (toppað fyrri klúður) og Frjálslynda flokkinn endanlega sem einhverskonar andstæðing innflytjenda. Hvers vegna eigum við ekki að taka á móti erlendu flóttafólki og styðja við bakið á því. Við hér fyrir norðan höfum tekið við fjölda innflytjenda; til Dalvíkur komu fjöldi flóttamanna frá Kósóvó árið 1999 og hingað til Akureyrar komu sex fjölskyldur frá fyrrum Júgóslavíu árið 2003. Þetta fólk aðlagaðist okkar samfélagi vel og eru mætir íslenskir þegnar í dag. Enginn hefur talað um vandræði vegna þess.
Skil ekki þetta vandamálatal í frjálslyndum þegar kemur að innflytjendum. Bíður við svona tali og finnst það einum flokki til skammar að hafa talsmann á borð við þann sem við horfðum á í Kastljósinu í kvöld, sem elur á vandamálum og efasemdum um komu innflytjenda til landsins í samræmi við alþjóðsamþykktir. Við erum aflögufær og eigum að leggja okkar að mörkum. Það er mitt mat.
Undarlegast finnst mér tal Magnúsar Þórs um Karen Jónsdóttur. Þetta er konan sem hann valdi prívat og persónulega til að leiða listann á Skaganum og taldi rétta kostinn þá. Undarlegt er að hún hafi breyst eitthvað. Sennilega hefur það eitt breyst að hún fékk nóg af ofríki hans og lét eigin sannfæringu ráða för, en ekki skoðanir Magnúsar Þórs.
Finnst hann tala niður til Karenar, bæði sem konu og stjórnmálamanns. Gerir lítið úr hæfileikum hennar og verkum, á þeim forsendum að hún hafi nú aldrei verið hæf. Hvers vegna valdi hann þá hana? Sem strengjabrúðu sína í einu og öllu? Ef svo er verður skiljanlegra hvers vegna hann er fúll núna.
Mikið er annars þessi stjórnmálamaður auvirðilegur. Vonandi kemst hann aldrei til neinna áhrifa í íslenskum stjórnmálum, nema þá kannski að drepa endanlega þennan flokk.
![]() |
Lýsa yfir stuðningi við Magnús Þór Hafsteinsson |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.5.2008 | 00:54
Þorgerður Katrín talar hreint út um lykilmál

Enda ekki óeðlilegt þar sem kannanir á stöðu mála í borginni eru alvarlegt mál sem Sjálfstæðisflokkurinn á ekki að sætta sig við og eru alvarleg áminning um að flokksmenn haldi vöku sinni. Þögn eða afneitun á þeirri alvarlegu stöðu á ekki að vera valkostur. Sérstaklega sárnar þeim sem vilja flokknum vel hversu mjög hefur verið haldið illa á málum og afleitt ef ekki á að ákveða sem fyrst hver verði borgarstjóri. Óvissan mánuðum saman hefur skaðað flokkinn mjög og verður að taka á því sem fyrst.
Hvað varðar Evrópumálin fagna ég því að forystumaður innan flokksins tekur frumkvæði í umræðunni og kemur með afgerandi stefnu. Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, hefur talað mjög skynsamlega um þessi mál en mér hefur þótt vanta að formaður eða varaformaður flokksins kæmu með skýr svör við þeim mikilvægu spurningum sem brenna á fólki. Tvöföld þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB hljómar vel og ég held að það sé rétt skref sem felst í því að láta þjóðina taka af skarið um þessi mál, en láta ekki aðeins stjórnmálamenn móta vegvísinn í áttina að því að meta hvort við viljum tilheyra ESB.
Þorgerður Katrín talar af krafti og ábyrgð um þessi mál. Fyrir það verður að þakka. Hef ekki alltaf verið sammála henni, en met það helst við hana að hún er einbeitt og ákveðin í tali sínu um lykilmál. Það er alltaf mikilvægt að stjórnmálamenn hafi skýrar línur og leiði mál áfram og taki af skarið en láti ekki hlutina dankast og vera of lengi í biðferli. Svör hennar á fundinum sýna vel að þar fer leiðtogi sem þorir að tjá sig hreint út.
![]() |
Hefur áhyggjur af borgarmálum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |