Drög lögð að Norðurvegi - flott framtak

Norðurvegur Í dag kynnti félagið Norðurvegur ehf. tillögur sínar um að leggja nýjan veg yfir Kjöl í einkaframkvæmd. Er stefnt að því að vegurinn stytti vegalengdina milli Reykjavíkur og Akureyrar um 47 kílómetra. Kostnaður er áætlaður 4,2 milljarðar króna. Þetta eru tillögur fullar af metnaði og krafti að mínu mati og gleðiefni að lögð séu drög að vegi sem stytti leiðina suður yfir heiðar og verði nýr og traustur valkostur þeirra sem þurfa að fara oft á milli.

Norðurvegur ehf. var formlega stofnað á Akureyri í febrúar 2005. Fyrst var stefnt að því að leggja hálendisveg úr Skagafirði um Stórasand, Arnarvatnsheiði og Kaldadal sem stytt hefði leiðina milli Akureyrar og Reykjavíkur um rúmlega 80 kílómetra og leitt til mikilla þáttaskila í samgöngumálum Norðlendinga. Sú tillaga sem stjórnmálamenn hér á svæðinu höfðu m.a. talað fyrir og var áberandi í kosningabaráttu Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi við þingkosningarnar 2003 er nú ekki lengur á borðinu og þessi nýji valkostur, leiðin yfir Kjöl, kominn til sögunnar.

Hef ég lengi verið mjög hlynntur því að vegagerð af þessu tagi komi til sögunnar. Stytting á borð við þá sem um er að ræða mun skipta sköpum varðandi vöxt og viðgang Akureyrar á komandi árum og skiptir okkur hér mjög miklu máli. Er enginn vafi á að mikilvægt er að ná fram sem mestri styttingu á leiðinni milli Akureyrar og Reykjavíkur. Það er nauðsynlegt að lækka flutningskostnað milli Akureyrar og Reykjavíkur og ekki síður milli Norðausturlands og Austfjarða til Reykjavíkur. Hér er um mikið forgangsmál að ræða fyrir okkur á landsbyggðinni og mikilvægt að hefjast handa og sameinast um að koma þessu í gegn sem fyrst.

Við hér fyrir norðan fögnum því mjög að alvöru tillögur að verklagi eru komin á borðið. Það er mjög til eflingar landsbyggðinni og okkar mikilvægustu þáttum að fá þennan mikilvæga samgöngukost í gegn. Svo má auðvitað benda á að slíkur vegur mun auðvitað ekki einvörðungu nýtast Akureyringum og Eyfirðingum, vel enda er sýnilegt að Austfirðingar og fólk frá Norð-Austurlandi muni njóta góðs af þessum vegi, enda leiði þessi stytting til þess að norðurleiðin muni verða góður valkostur fyrir fólk sem býr á Austfjörðum.

mbl.is Vilja hefja undirbúning nýs vegar yfir Kjöl í einkaframkvæmd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ragnar, þú hefur greinilega litla reynslu af því að keyra þjóðveg 1 á milli Akureyrar og Reykjavíkur.  Mjór, holóttur og ójafn vegur sem á köflum er stórhættulegur.  Og oft er nú ekki mjög góð færð uppi á Holtavörðuheiði, þar var vegurinn lagður mun hærra en þurfti, það hefði semsagt verið hægt að fara lægri leið.  

Ég vona bara að þessi vegur yfir kjöl verði að veruleika og menn beri gæfu til að gera hann öruggann fyrir vegfarendur með því að hafa 2 akgreinar í hvora átt og vegrið á milli.  Það gefur líka möguleika á að hafa sambærilegan hámarkshraða og er á svipuðum vegum t.d. á norðurlöndunum.  Það myndi stytta ferðatímann ennþá meira. 

Bjarki Hilmarsson (IP-tala skráð) 4.2.2007 kl. 20:57

2 Smámynd: Stefán Friðrik Stefánsson

Takk fyrir kommentin.

Ragnar: Það er alveg ljóst að öll stytting er góð stytting. Auk þess er vegurinn á milli og AK og RVK frekar leiðinlegur og löngu sprunginn. Fyrir löngu kominn tími til að hugsa nýja og ferska tíma í samgöngumálum hér á milli og þessi stytting er mikilvæg, það að sneiða af Holtavörðuheiðina er stór plús.

Bjarki: Innilega sammála hverju einasta orði!

Stefán Friðrik Stefánsson, 4.2.2007 kl. 21:35

3 identicon

Já þetta er algjör snilld, mikll munur sérstaklega ef ferðinni er heitið á Suðurlandið.  Finnst samt ansi dýrt að borga 2000 kall fyrir ferðina, ég myndi allavega keyra þessa auka 47 km til Reykjavíkur frekar nema náttúrulega að maður væri mjög tímabundinn...

Hilmar Vilberg Gylfason (IP-tala skráð) 4.2.2007 kl. 21:39

4 identicon

Sæll, Stefán Friðrik !

Jú, jú...... ekki er bölvuð frjálshyggjan, sem betur fer; enn búin að brjóta niður þjóðlegan metnað þess ágæta drengs; Kjartans Ólafssonar alþm. og hans liðsmanna, í þessu þjóðþrifamáli.

Fagna þessu framtaki mjög, ekki síður fyrir hönd ykkar Norðanmanna, en  Sunnlenzkra nærsveitamanna minna. Má segja, að létti stórum á Holtavörðuheiðinni, þá frá líður, og er það vel !

Beztu kveðjur norður um, úr Efra- Ölfusi /

Óskar Helgi

  

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 4.2.2007 kl. 22:50

5 Smámynd: Bjarni Kjartansson

EF menn kjósa að láta land undir svona veg er það auðvitað alger krafa, að vegurinn verði að tilsettum tíma liðnum, eign landsmanna og fjárfestar láti eignarhald á honum laust.

Samkvæmt fyrstu tillögum skal vegurinn vera um 8 metra breiðaur og ein akrein í hvora átt.  Tel það óásættanlegt, nema að verktakar bjóði uppá einhverjar þær lausnir, sem tryggja sem mest öryggi vegfarenda.

Annars er ég hlynntur svona einkaframkvæmd.  Menn sem kjósa að greiða ekki vegtoll, eiga annarra kosta völ, svo sem er í Hvalfirði.

bestu kveðjur

Bjari

Bjarni Kjartansson, 5.2.2007 kl. 10:15

6 identicon

Bjarni, takk fyrir upplýsingarnar.  Ef vegurinn verður 8 metra breiður mætti alveg eins sleppa þessu!  Nema þetta verði til þess að flutningabílarnir hætti að nota hringveginn Annaðhvort að gera þetta almenninlega eða sleppa því!

Bjarki Hilmarsson (IP-tala skráð) 5.2.2007 kl. 10:31

7 identicon

Jújú, það er ekkert mál að leggja fjögurra akreina hraðbraut yfir hálendið ef kúnninn verður til í að borga 4000 kall fyrir ferðina. Ég held að það veiti ekki af smá skammti af raunsýni inn í þessa rosalegu tvöföldunarumræðu, það er engin leið að réttlæta það að vegur með 500-1000 bíla umferð á dag skuli vera 4 akreinar. 2+1 lausnir með vegriði eru kannski nær lagi en ég efast um að það sé gáfulegt upp á snjósöfnun sem þá verður við vegriðið á vetrum. 8,5 metrar er breiðari vegur en 90% af leiðinni á milli Ak og Rvk í dag og vegurinn verður einnig hannaður samkvæmt nútíma hönnunarstöðlum og laus við þessar dauðabeygjur og mishæðir sem einkenna núverandi þjóðveg. Þetta verður því mikið mun öruggari vegur en þjóðvegur 1, bæði per ekna kílómetra en ekki síður vegna þess að hann er styttri.

Ég verð þó að viðurkenna að ég hef áhyggjur af einu varðandi öryggið og það er viðbragðstími lögreglu og sjúkraflutningamanna þegar slys verða uppi á fjöllum langt frá byggð. Á þá að senda sjúkrabíl frá Selfossi eða Sauðárkróki? Einnig spyr maður sig um GSM samband á leiðinni, það er ekki til staðar á þessu svæði eins og er en er mikið öryggisatriði.

Bjarki Sigursveinsson (IP-tala skráð) 5.2.2007 kl. 11:32

8 Smámynd: Fannar frá Rifi

Þetta verður einkaframkvæmd og einkaaðilar standa að veginum. Eins og með göngin verður hægt að rukka fyrir afnot þangað til búið er að borga af honum og eða í ákveðið langan tíma. Að tala um að eiga vegin um ókomna tíma er bara bull. nema eigendurnir sjái alfarið um allt sem tengist vegin eins og t.d. örrygi þeirra sem keyra hann. Þeir gætu ekki gert kröfu að lögreglan myndi vakta þannig veg alveg eins og ég get ekki gert þá kröfu að löggan leggi bílnum og verndi húsið mitt persónulega meðan ég er í burtu. 

En einkaframkvæmdir eins og Hvalfjarðargöngin og þessi fyrirhugaði vegur er lang besta leiðinn til að gera góð samgöngu mannvirki á fjölförnum leiðum. Suðurlandsvegur, Vesturlandsvegur og fleyri ættu einnig að fall undir þetta. Vegargerðin ætti að einbeita sér að taka úr umferð hættulega kafla úr vegakerfi landsins eina og: Einbreiðarbrýr, krappar beygjur sem koma strax og komið er yfir brú og síðan blindhæðir svo eitthvað sé nefnt. 

Vegatollar er eðlileg leið. Vegatollar taka einnig til sín pening úr vösum ferðamanna þannig að þeir hjálpa til við að búa til veigi sem þeir nota hér á landi. Ég meina hver hefur ekki borgað vegatolla erlendis?  

Fannar frá Rifi, 5.2.2007 kl. 15:08

9 identicon

Steingrímur, hvar hefur komið fram að þessi framkvæmd styðjist við ríkisábyrgð? í öllu falli þá er arðbærari samgönguframkvæmd í íslensku vegakerfi vandfundin.

Bjarki Sigursveinsson (IP-tala skráð) 5.2.2007 kl. 16:54

10 Smámynd: Stefán Friðrik Stefánsson

Lífleg og góð skoðanaskipti hér - þakka sérstaklega Bjarka H, Bjarka S, Bjarna Kj, Hilmari, Ragnari og Fannari fyrir líflegar pælingar og góð komment. Það er greinilegt að þetta er málefni sem vekur upp skemmtilegt spjall.

mbk.

Stefán Friðrik Stefánsson, 6.2.2007 kl. 01:25

11 Smámynd: Sigfús Þ. Sigmundsson

Styð þetta mál en aldrei þannig að hlutafélagið eigi veginn um aldur og ævi.  Hafa sama fyrirkomulag og hjá Speli, ríkið taki mannvirkið yfir eftir einhvern ákveðinn tíma.  

Sé að Stefán mun ekki nota veginn kosti kr. 2000 að stytta sér leiðina.  Er búið að gera könnun varðandi þetta?  Þ.e. hvar þolmörkin liggja.  Er krafan 2000 kr. á bíl til að þetta borgi sig og mun einhver nota þetta ef það á að kosta þennan pening að stytta sér leið?    

Sigfús Þ. Sigmundsson, 6.2.2007 kl. 19:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband