Hugleiðingar Björns - skjálfti andstæðinganna

Björn Bjarnason Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, sem er einn fremsti sérfræðingur landsmanna í öryggis- og varnarmálum, flutti í gær merkilegt erindi á fundi sem SVS og Varðberg boðuðu til. Þar ræddi hann um þau miklu þáttaskil sem fylgdu brotthvarfi varnarliðsins í september 2006 og þeim úrlausnum sem því fylgdi fyrir íslensk stjórnvöld. Verkefnin sem þessum breytingum fylgja falla að verulegu leyti undir ráðuneyti hans.

Hann ræddi þar um tregðu Íslendinga til að axla sjálfir ábyrgð á eigin öryggi en viðfangsefnin hafi breyst og færst nær borgurunum í ríkara mæli en áður í stað þess að snúast um landvarnir. Gæsla öryggis borgaranna er enda að hans mati ekki utanríkismál, heldur mjög mikilvægt innanríkismál hvers ríkis. Er ég mjög hlynntur því mati enda er það málefni okkar en ekki alheimsins hvernig búið er að vörnum landsins. Þetta er mikilvægt að ræða fordómalaust og opinskátt.

Það kemur engum að óvörum að ræða Björns kallar fram ergju og biturð vinstrimanna. Það er ekki nein tíðindi sem gömul eru vissulega. Nú hefur Össur Skarphéðinsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, stigið fram og sett gömlu plötuna á fóninn; Björn sé að boða íslenskan her og allt hvað heitir. Það var einu sinni hægt að hlæja að þessu blaðri hans Össurar, en ég held að það sé ekki rétt núna. Þess í stað held ég að rétt sé að vorkenna Össuri og hans fólki í Samfylkingunni. Það gefur á bátinn þeirra núna og skiljanlegt að reynt sé að tyggja einhverjar gamlar klisjur, í von um að einhver trúi þeim.

Hvað þessar tillögur varðar finnst mér mjög mikilvægt að menn velti fram nýjum hugmyndum. Alvöru stjórnmálamenn verða að þora að segja það sem þeim finnst og þora að koma með hugmyndir sem velta upp nýjum flötum, fá fram umræðu og málefnaleg skoðanaskipti. Það er leitt að fulltrúar stjórnarandstöðunnar detti í sama vandræðagírinn og kjósi að koma fram með ómálefnalegum hætti í umræðu sem á að vera alvöru, alvöru í því skyni að varnir landsins eru ekkert afgangsmál. Skoðanakannanapólitík Samfylkingarinnar er enda orðin aðhlátursefni fyrir löngu.

Að því leyti fagna ég sérstaklega tillögum Björns. Hann hefur alla tíð þorað að tjá skoðanir sínar, verið beittur stjórnmálamaður og vinnusamur. Það eru stóru kostir hans sem stjórnmálamanns. Þar fer maður skoðana sem þorir að velta upp nýjum flötum í umræðuna. Eins og allir sjá sem lesa vefinn hans fer þar nútímalegur stjórnmálamaður með afdráttarlausar stjórnmálaskoðanir. Það er gott mál.

mbl.is Áhersla á heimavarnir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það sem mig langar að vita, er hvað er það akkúrat sem gerir Björn að "sérfræðingi í öryggis- og varnarmálum" vissulega er hann áhugamaður um þessi mál, en sérfræðingur er svolítið lagsótt held ég. Það sem Björn hefur verið að gera sem dómsmálaráðherra er að hefta frelsi mitt sem einstaklings, sem ætti ef ég man rétt að vera gagnstætt trú ykkar sem sjálfstæðismanna. Vissulega getur Björn fært góð rök með tillögum sínum, en ég spyr á móti, má ekki frekar efla björgunarsveitir og viðbragðsaðila, áður en við stöfnum "vísir að íslenskum her"

elmar (IP-tala skráð) 30.3.2007 kl. 17:25

2 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Ekki bara skjálfti anstæðinga lika okkar flokksmanna B.B. eg er ekki meðæltur þessu alls ekki/Hjálparsveitirnar eiga að fá n meiri peninga og þjálfast og vera til taks ,þær eru virkar i dag!!!Halli Gamli

Haraldur Haraldsson, 30.3.2007 kl. 17:54

3 identicon

Ef BB vildi láta taka þessar tillögur hátíðlega, hefði hann lagt þær fram á þingi, eða í það minnsta í ríkisstjórn. Blaður í saumaklúbbnum Varðbergi er bara það: Blaður. Þingið farið heim og mánuður til kosninga.

Hjörtur (IP-tala skráð) 30.3.2007 kl. 18:27

4 identicon

BÁÐIR AÐILAR eru með sama sönginn á sama vínilnum, tveggja laga plötu rispaðri í gegn. Báðir hafa rétt fyrir sér og báðir hafa rangt fyrir sér. Allir fullorðnir karlmenn hér með íslenskt ríkisfang eiga náttúrlega að vera í varaliðinu, eða ætla menn að sitja heima þegar Rússarnir láta svo lítið að láta sig hér loksins?!

Steini Briem (IP-tala skráð) 30.3.2007 kl. 19:19

5 identicon

ÆTLA MENN að sitja heima þegar Rússarnir láta svo lítið að láta sjá sig hér loksins?! ... átti þetta nú að vera.

Steini Briem (IP-tala skráð) 30.3.2007 kl. 19:30

6 Smámynd: Sigurður Viktor Úlfarsson

Ég hef ágætt álit á Birni sem stjórnmálamanni og hef oft kosið hann.  Eins og þú segir er hann vinnusamur og með sterkar skoðanir sem maður er einfaldlega annað hvort sammála eða ósammála.  Ég er ósammála þessari. 

Ég tel að íslenskur her (þetta er ekkert annað) sé ekki góð hugmynd.  Hann talaði um að við gætum þá kallað út þúsund manna lið á launum.  Þetta á að kosta 200 milljónir í upphafskostnað og rúmar 200 milljónir á ári eftir það.  Það mætti gera margt þarft fyrir þann pening, t.d. að efla björgunarsveitirnar.  Þær eru alltaf til taks en auðvitað óvopnaðar.  Síðan höfum við lögregluna sjálfa sem er einnig óvopnuð og loks sérsveitina sem er vopnuð. 

Ég var fylgjandi því að efla sérsveitina á sínum tíma til að taka á alls kyns vitleysingum sem eru í umferð og til að tryggja að almenna lögreglan verði ekki búin vopnum.  Daginn sem það gerist mun margt breytast á Íslandi og ég er tilbúinn að leggja mikið á mig, þar með talið hæfilegt óöryggi til að til þess þurfi ekki að koma.

Ég er hins vegar algerlega á þeirri skoðun að það að við séum herlaust land veiti okkur tækifæri í alþjóðastjórnmálum til að taka frumkvæði t.d. í samningaviðræðum og friðarumleitunum sem við ættum frekar að beina athyglinni að heldur en að setja upp smáher.  Ég held það sé spurning um grundvallarhugsun, þ.e. hvert við viljum stefna sem samfélag.

Nú hafa Bandaríkjamenn eytt milljörðum dollara í "stríðið gegn hryðjuverkum" og niðurstaðan er sú að heimsbyggðin hatar þá meira en nokkurn tímann áður og landið er  í mun meiri hættu í dag en það var fyrir 11. september 2001.  Það er hatrið sem skapar hættuna.  Í dag eru "hermenn" ekki fulltrúar tiltekins ríkis heldur einstaklingar og smáhópar sem mjög erfitt er að henda reiður á.

Við munum aldrei geta komið í veg fyrir að maður sprengi sig á Lækjartorgi ef hann á annað borð vill það.  Vörnin í stríði 21. aldarinnar snýst um að koma í veg fyrir að hann vilji það.  Það er mun flóknara stríð sem hernaðarsérfræðingum 20. aldarinnar er að ganga mjög illa að eiga við.  Kannski er besta vörnin fólgin í því að að rækta sambönd okkar við önnur lönd og önnur trúarbrögð annars vegar og því að það sé yfirlýst stefna okkar að hafa engan her.  Kannski er það öflugasta hernaðartaktík 21. aldarinnar.

Sigurður Viktor Úlfarsson, 30.3.2007 kl. 19:32

7 Smámynd: Ólafur Björn Ólafsson

Ég get ekki skilið það sem BB sagði á þann veg að um stofnun íslensks hers væri að ræða. Það sem ég náði og greip eftir að hafa hlustað á í fréttum ásamt því að lesa grein hans á bjorn.is var að talað væri um að stofna varalið til starfa í þágu allmennings, ekki til hernaðarstarfa.

Ef hinsvegar það kæmi upp að stofnaður verði her hér á landi þá þurfum við sem þjóð að hafa að lágmarki fimm hundruð þúsund mans í hernum en ekki þúsund sem er rétt nóg til að fylla eitt herfylki og hefði því bara einn offursta sem yfirmann.

Allt þetta bull og harmakvein frá rispuðum plötum og eða geisladiskum um það að BB sé alltaf að reina að koma á fót her er eitthvað sem blaðasnápar og samfylkingarmenn setja á fóninn, BB segir sjálfur að ekki kæmi til greina að vopnvæða þessa menn sem kæmu til með að fylla raðir þessa þúsund manna liðs.

Mun ég vona að mínir menn í VG komi ekki líka með sömu rispuðu plötuna og Össur þar sem ég er á því að BB sé eini ráðherrann sem eitthvað þorir.

Með kveðju

Ólafur B Ólafsson sjálfmenntaður herfræðingur

Ólafur Björn Ólafsson, 30.3.2007 kl. 22:20

8 Smámynd: Kristján Pétursson

Ég gat nú ekki annað en brosað,þegar þú Stefán ert að lofa Björn Bjarnason bak og fyrir og sérstaklega fyrir að hann sé nútímalegur stjórnmálamaður.Ég veit að þú hefur gott skopskyn,en er þetta ekki of langt gengið.

Hins vegar langar mig að vita hvort dómsmálaráðhr.hafi í samráði við menntamálaráðhr.heimilað fréttamanni ríkisútvarpsins og hans tækniliði að fara  samk.dómsúrskurði  til húsleitar inn á nokkur heimili í Reykjanesbæ í fylgd með  lögreglunni.Þessi aðgerð var sýnd í kastljósinu í gærkvöld og mér sem gömlum löggæslumanni brá.Ég taldi að ekki væri heimilt  að leyfa neinum óviðkomandi  aðilum að vera viðstaddir svona húsleitaraðgerð lögreglunnar,þar sem dómsúrskurður gefur henni ekki heimildir til veita  fjölmiðlum rétt til aðkomu eða myndatöku á vettvangi, það virðist mér vera klárt brot á heimilishelgi.Vonandi hafa ekki tveir ráðherrar gert á sig í þessu máli.Mer fannst þessi þáttur ekki vera lögreglunni til framdráttar,hafi hann  átt að vera ákveðin og hörð skilaboð til fíkniefnasala og handrukkara,þá held ég að þessi þáttur hafi ekki skilað neinu í þeim efnum.

Kristján Pétursson, 30.3.2007 kl. 22:42

9 Smámynd: Stefán Friðrik Stefánsson

Takk fyrir kommentin.

Elmar: Björn hefur skrifað mikið um öryggis- og varnarmál, sennilega með því mesta sem einn maður hefur gert hérlendis. Ég er svosem ekki að segja að hann standi einn ofar öllum en þekking hans er mikil, eftir langa þátttöku í stjórnmálum og hann hefur bæði fyrir stjórnmálaferilinn og á meðan honum hefur staðið verið metinn mikils í þessum efnum og verið mikill álitsgjafi í þessum efnum. Össur Skarphéðinsson sagði reyndar í fyrra að Björn hefði átt að vera í samninganefndinni við Bandaríkin vegna þekkingar sinnar, sem ég er honum algjörlega sammála með. Það var skandall að hann var ekki þar innanborðs. Ég lít ekki á þetta sem her, enda er kynningin ljós í þessum efnum - sjálfur er ég ekki hlynntur íslenskum her.

Halli: Ég hef aldrei verið hlynntur íslenskum her. Það sem BBj kynnir nú er ekki íslenskur her allavega, það er einfalt í huga mér. Heilt yfir finnst mér mikilvægt að ræða þetta. Þeir stjórnmálamenn sem ekki þora að tala og viðra skoðanir hvað varðar varnir landsins eiga ekki að vera í stjórnmálum.

Hjörtur: Það eru að koma kosningar og kjörtímabilinu er að verða lokið. Rétt er það vissulega. Ég lít á þetta sem skoðanir ráðherrans. Hann á að tjá sínar skoðanir. Upplegg fundarins var ákveðið og hann kemur með nýjar pælingar og með punkta í umræðuna. Það er ekkert nema gott við það.

Sigurður: Þakka þér góðar pælingar. Alltaf gott að fá löng og góð svör sem vit er í og áhugi á efninu. Gaman að lesa þetta, er ekki sammála öllu en samt gaman að lesa.

Ólafur: Góð skrif, mjög vel skrifað. Það er gott að fá svona öflug komment hér inn frá fólki sem þekkir efnið vel.

Kristján: Í mínum augum er Björn nútímalegur. Það hefur enginn íslenskur stjórnmálamaður betur notað netið og gert störf sín aðgengileg kjósendum í gegnum það. Þetta er nútími og Björn á heiður skilið fyrir verk sín, sérstaklega í netmálum. Það stenst enginn íslenskur stjórnmálamaður honum snúninginn á vefnum. Heimasíða hans er orðin tólf ára og hún skiptir máli í stjórnmálaumræðunni. Hann byrjaði fyrstur, er frumkvöðull í þessum geira, þorði að byrja meðan að margir voru hræddir við netið. Hann hefur mína virðingu alveg óskipta fyrir það.

mbk.

Stefán Friðrik Stefánsson, 30.3.2007 kl. 22:55

10 identicon

Heill og sæll, Stefán Friðrik og aðrir skrifarar !

Jú, jú margt er vel, um Björn Bjarnason; svo sannarlega. Ef einhver, núverandi framámanna hins lítt þjóðlega Sjálfstæðisflokks hefði burði og þrek, til að endurreisa gamla Íhaldsflokkinn; þá væri það Björn, einhverjar taugar halda honum samt innanborðs, í þessum frjálshyggju- og einkavæðingarflokki, hver langt er kominn frá uppruna sínum.

Mér finnst það strákslegt, og reyndar lítilmannlegt; að gera gys og hæðast að Birni, fyrir hans ágætu meiningar, með varalið Lögreglunnar. Fréttir dags daglega, utan úr þjóðfélaginu gefa alltof oft til kynna, að þess væri verulegrar þörf.

Kristján Pétursson er með allra skemmtilegustu skrifurum, á þessum síðum, oft geta alvarlegar meiningar hans virkað; sem beittasta háð, þótt svo eigi alls ekki að lesazt. Enginn þarf að efast, um sterka réttlætiskennd Kristjáns, einn þeirra góðu drengja, sem ekkert aumt má sjá. Ég hrifst oft að Kristjáni; þótt við séum algjörlega á öndverðum meiði oft, t.d. í þessu Evrópusambands vafstri, og þeim hugleiðingum öllum.

Með beztu kveðjum, í Norðuramt /

Óskar Helgi Helgason   

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 31.3.2007 kl. 00:35

11 Smámynd: Stefán Friðrik Stefánsson

Sæll Óskar Helgi

Þakka þér fyrir góð skrif og pælingar. Gaman að lesa þær.

bestu kveðjur suður yfir heiðar

Stefán Friðrik Stefánsson, 31.3.2007 kl. 00:42

12 identicon

Þannig að við erum semsagt sammála um það að hann sé áhugamaður en ekki sérfræðingur? Áhugi hans á þessum málum vissulega mikill og þekkingin þar af leiðandi talverð. Ég ætla mér ekki að gera lítið úr BBj (þó svo að ég sé sjaldnast sammála honum) hann hefur gert margt gott sem og margt slæmt, en það er náttúrulega þannig með menn sem gera ekki neitt, þeir gera ekki mistök

Bestu Kveðjur, Elmar 

elmar (IP-tala skráð) 31.3.2007 kl. 01:58

13 Smámynd: Kristján P. Gudmundsson

Mér finnst hugrenningar Björns Bjarnasonar um öryggismál mjög tímsbærsr og Björn má eiga það, að er óbanginn að tala tæpitungulaust. Sá eiginleiki gerir hann að miklum stjórnmálamanni, sem flestir sæmilega þenkjandi menn hlusta á, hvort sem menn eru sammála honum eða ekki.

Hvort við eigum að tala um her eða öryggissveitir skiptir ekki öllu máli. Við skulum samt kalla þetta varalið í þágu innra öryggis landsins.En í stuttu máli,

Björn Bjarnason hitti naglann á höfuðið á téðum fundi og hafi hann þökk fyrir það.

Með góðri kveðju frá Siglufirði, KPG.

Kristján P. Gudmundsson, 31.3.2007 kl. 11:20

14 Smámynd: Stefán Friðrik Stefánsson

Takk fyrir kommentin.

Elmar: Ég get ekki séð að við séum sammála um þetta. Björn hefur ritað það mikið um þessi mál að hann er varla neinn áhugamaður úti í bæ bara, hann er enda líka áhrifamikill ráðherra innanríkismála og auk þess með mikla þekkingu á stöðu mála.

Kristján: Algjörlega sammála, takk fyrir gott innlegg.

mbk.

Stefán Friðrik Stefánsson, 31.3.2007 kl. 20:42

15 identicon

Ég sagði nú ekki að hann væri áhugamaður úti í bæ, en engu að síður, í Bandaríkjunum, Þýskalandi, Bretlandi og annarsstaðar fara menn í háskóla og læra þessa hluti, og eru þar af leiðandi sérfræðingar. En mig minnir að þrátt fyrir umtalsverða þekkingu á þessum málum og vissulega mikinn áhuga að þá sé BBj lögfræðingur. En ég ætla mér ekki að munnhöggvast við þig um þetta, enda er það kanski aukaatriði hvort hann sé sérfræðingur eða áhugamaður. Persónulega hefði ég talið skynsamlegra að efla björgunarsveitirnar í landinu áður en við förum að stofna eitthvað sem varla er hægt að kalla annað en fyrsta skrefið í átt að litlum íslenskum her.

elmar (IP-tala skráð) 31.3.2007 kl. 21:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband