Jónína Bjartmarz rífst við Helga í Kastljósinu

Jónína Bjartmarz Það var athyglisvert að horfa á rifrildi Jónínu Bjartmarz, umhverfisráðherra, og Helga Seljans, frænda míns, í Kastljósinu rétt í þessu. Umræðuefnið var að sjálfsögðu veiting ríkisborgararéttar með mjög umdeildum hætti til tengdadóttur Jónínu. Þetta hefur verið mál málanna frá því að það varð aðalfréttauppsláttur í gærkvöldi hjá Ríkissjónvarpinu.

Jónína er greinilega mjög ósátt við umfjöllun Sjónvarpsins en á í erfiðleikum með að svara ýmsum spurningum málsins. Þetta er vissulega mjög vandræðalegt mál, sérstaklega fyrir ráðherra flokks sem heyr varnarbaráttu í tvísýnni kosningabaráttu hálfum mánuði fyrir alþingiskosningar. Stórar spurningar eru áberandi í málinu og það er alveg ljóst að þetta mál vekur athygli fyrir umdeilt verklag og tengsl umsækjandans við ráðherra í ríkisstjórn eru mjög vandræðaleg, þó ekki sé fyrir neitt annað liggur við.

Það verður fróðlegt að sjá hvort að þetta mál hefur einhver áhrif fyrir Framsóknarflokkinn í Reykjavík á þessum tvísýna lokaspretti. Jónína er í erfiðri baráttu fyrir endurkjöri á þing og pólitískt staða hennar er mjög ótrygg. Þetta viðtal svaraði fáum spurningum. Rifrildi milli Jónínu og Helga er það sem helst stendur eftir. En þetta er vont mál fyrir ráðherrann, það blasir við öllum. Flestir hafa áhuga á að sjá þó hvaða áhrif málið hafi á stöðu ráðherrans og hvort að hún nær endurkjöri yfir höfuð á þing eftir 15 daga.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gestur Guðjónsson

Jónína á ekki í erfiðleikum með að svara ýmsum spurningum málsins. Hún vill ekki greina frá þeim ástæðum sem liggja að baki afgreiðslu allsherjarnefndar, enda kom hún þar hvergi nærri. Bjarni Benediktsson hefur svarað fyrir það og meira má ekki gera án þess að það brjóti um leið á persónuvernd allra þeirra sem sóttu um.

Gestur Guðjónsson, 27.4.2007 kl. 20:45

2 Smámynd: Sveinn Hjörtur

Mér fannst hún svara því afar vel sem Helgi var að bera á hana. Helgi Seljan fór yfir strikið.

Jónína er skynsöm kona og lætur ekki pjakk eins og Seljan bera svona á sig, bara til þess eins að sverta mannorð hennar. Þetta er ljótt að gera.

Og nú segja einhverjir sem lesa þetta að Framsókn standi saman með Jónínu. Já, já. Það má svo sanni segja það, enda heiðarlegur stjórnmálamaður hún Jónína.

Sveinn Hjörtur , 27.4.2007 kl. 20:50

3 Smámynd: Óðinn Þórisson

Þetta mál eins og Landsvirkjunarmálið verða flokknum mjög erfið.
Hvort og hve mikil áhrif þetta hefur 12.mai veit ég ekki en sjálfsmörk eru aldrei leið til að vinna neinn leik.

Óðinn Þórisson, 27.4.2007 kl. 21:22

4 Smámynd: Guðrún Magnea Helgadóttir

Eins og allir alþingismenn þrætir Jónína fyrir staðreyndir málanna. Þetta er siðlaust pa...

Guðrún Magnea Helgadóttir, 27.4.2007 kl. 21:41

5 Smámynd: Helgi Már Barðason

Ég held að mörgum hafi ofboðið framkoma nafna míns áðan. Hér á mínum bæ fór fólk smám saman að "halda með" Jónínu þó að hér sé fátt um Framsóknarmenn.

Helgi Már Barðason, 27.4.2007 kl. 21:50

6 identicon

Enn vantar svarið við spurningunni:

Hvað réttlætti undanþáguna til stúlkunnar?? 

Már Högnason (IP-tala skráð) 27.4.2007 kl. 21:54

7 Smámynd: Kristján Pétursson

Helgi Seljan stóð sig vel,svona eiga fréttamenn að vera.Hann lét ráðhr.viðurkenna að hún hafi ráðlagt tengdadóttur að sækja um ríkisborgararétt til  Allsherjarnefndar.Síðan verður þjóðin að leggja saman 2 og 2 um sannleiksgildi ráðhr.Svona alvarlegt mál á náttúrlega að rannsaka til hlýtar.Fyrst umsóknina til Útlendingastofnunar og afgreiðslu hennar,síðan umsókina til Allsherjarnefndar,bókun nefndarinnar og rökstuðning fyrir að veita stúlkunni ríkisborgararétt.Svona mál á að upplýsa,sannleikurinn er sagna bestur.

Kristján Pétursson, 27.4.2007 kl. 21:56

8 Smámynd: Hans Jörgen Hansen

Ef maður lítur í kringu um sig þá veit maður svona cirka hvað er að gerast hjá vinnufélögum og öðru fólki sem maður hittir, á samskipti eða hefur veð af í gegnum vinnu sína, ætlar þetta pakk og já ég segi pakk!! að halda það að fólk trúi því að nefndin hafi ekkert vitað að þessum tengslum!!!!
Held að síðastliðnir dagar hafi verið okkar besta sönnun á því að mikil þörf sé á stjórnarskiptum....

Hans Jörgen Hansen, 27.4.2007 kl. 22:28

9 Smámynd: Guðmundur Ragnar Björnsson

Sæll Stefán

Ég sá ekki Jónínu rífast við einn né neinn heldur fylgdist hún pollróleg með Helga hálf-froðufellandi eins og hundur sem er búið að rífa af kjötbein. Hún svaraði því sem hún gat svarað, skýrt og skilmerkilega þeas. að hún hefði EKKI haft afskipti af málinu og að hún hefði bent stúlkunni á að hægt væri að sækja um undanþágu til alsherjarnefndar. Sér einhver glæp í því? Allir þrír aðilar í allsherjarnefnd (þar af einn frá Samfylkingu) bera það að ekkert óeðlilegt hafi verið við afgreiðslu málsins og að um 30% þeirra sem hafi fengið ríkisborgararétt á kjörtímabilinu hefðu haft skemmri dvalartíma en 2 ár líkt og stúlkan sem um ræðir. Þetta lyktar af ófrægingarherferð á hendur Jónínu og ég held að Helgi og Rúv ættu að biðjast afsökunar hið snarasta á sínu framferði sem er ekki sæmandi fjölmiðli sem vill láta taka sig alvarlega. Þeir yrðu menn meiri af því heldur en að halda fast við svona vitleysu.

Kv 

Guðmundur Ragnar Björnsson, 27.4.2007 kl. 23:04

10 Smámynd: Þórður Runólfsson

Því miður missti Helgi Seljan tökin, hann bar ekki virðingu fyrir Jónínu Bjartmarz sem viðmælanda. Og því miður gerði Jónína málið ennþá tortryggilegra. Hvaða ráð gaf hún við umsóknina, kann hún einhver trix sem tryggja rétta afgreiðslu?

Þórður Runólfsson, 27.4.2007 kl. 23:39

11 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Mér finnst að menn séu að missa sig. Þegar einn segir hér að framan að þetta sé einmitt dæmi um nauðsyn þess að skipta um stjórn, ands. heimska er þetta. Hafa menn ekkert hjarta? er þetta að gerast í fyrsta skipti? getið þið ekki bara trúað Jónínu? gefið því sjens að hún segi satt, það geri ég þó svo ég sé hvorki Framsóknarmanneskja eða aðdáandi Jónínu. Þetta er pólutískt skítkast sem fólk í öllum flokkum er að nota sér og ekkert annað. MÍN skoðun.

Ásdís Sigurðardóttir, 27.4.2007 kl. 23:51

12 Smámynd: Gústaf Níelsson

Helgi Seljan er leiðinlega sjálfumglaður montrass. En það er aukaatriði í þessu samhengi. Afgreiðsla málsins, en óvenjuleg, og stafar auðvitað af því að í hlut á væntanleg tengdadóttir ráðherrans. Lakara er ef "tengdadóttirin" hyrfi af landinu, þegar ríkisfangið og vegabréfið yrði í höfn.

Gústaf Níelsson, 28.4.2007 kl. 00:00

13 identicon

 Sæll Stefán.

Jónína var alls ekki að rífast neitt

En mér finnst framganga Helga Seljan í þessu máli vera til skammar fyrir Kastljós. Hann var afar ágengur við Jónínu, greip ítrekað fram í fyrir henni og var vægast sagt dónalegur.

Mér fannst framkoma hans einkennast af illgirni og dónaskap, sem ég tel að eigi ekki heima í umfjöllun af þessu tagi.

Hann minnti mig einna helzt á gaggandi hana á haug, þegar ákafinn og frammmígripin náðu hæstum hæðum.

Nú er langt í frá að ég sé einhver sérstakur talsmaður Framsóknarflokksins eins og einhverjir kynnu að halda eftir þennan lestur. Mér leiðast hinsvegar svona kosningabombur, sem einhverjir vanþroskaðir fréttasnápar bera á borð fyrir fólk í aðdraganda kosninga.

Og hver var svo glæpurinn eiginlega?

Sé hann einhver, þá get ég ekki séð að Jónína sé glæponinn.

Glæponarnir hljóta að vera í Allherjarnefnd, þar sem ákvörðunin var tekin.

Kveðja,



Kári S. Lárusson (IP-tala skráð) 28.4.2007 kl. 00:21

14 Smámynd: Ágúst Dalkvist

Jónína svaraði fyrir allt sem hún mátti og gat svarað fyrir í Kastljósþættinum í kvöld.

Hún er sjálf "opinber" manneskja en það er kærasta sonar hennar ekki og á því ekki að þurfa að hafa sitt mál í fjölmiðlum. Þess vegna átti Jónína ekkert með að telja upp allar hennar aðstæður sem hún líka sleppti þó það gæti bjargað hennar pólitíska ferli. Greinilegt að hún metur annað fólk meira en sinn eigin stjórnmálferil. Greinilegt að það eru ekki allir sem kommenta hér sem kunna að meta slíka framkomu.

Og ekki batnar umhverfisráðherra við það að hafa sagt henni til og hjálpað henni með umsóknina um ríkisborgararéttinn. Hvers konar bull er það að halda því fram að það hafi verið slæmt. Auðvitað hjálpar hún þeim sem til hennar leita í þeim málaflokkum þar sem hún þekkir til, það vonandi gerum við öll eftir bestu getu. Engin klíka er í því að benda verðandi tengdadóttur sinni á það hvert hún skuli leita.

Auðvitað frétta vinnufélagar manns margt af því sem maður lendir í frá degi til dags. Jónína tók það fram að hún gerði í því að þeir fréttu það ekki til þess að stúlkan fengi réttláta meðferð og til þess að vera heiðarleg í þessu máli.

Alveg eins og við þolum ekki spillingu af okkar þingmönnum og ráðherrum þá megum við ekki heldur láta aðstandendur þeirra líða fyrir það eitt að vera aðstandendur þeirra.

Helgi Seljan varð sér, því miður, algjörlega til skammar í þessum þætti og ekki í fyrsta skipti, en hann batnar vonandi með meiri reynslu.

Best að taka það fram að ég er ekki framsóknarmaður, hef aldrei verið og verð sennilega aldrei

Ágúst Dalkvist, 28.4.2007 kl. 00:45

15 Smámynd: Björn Heiðdal

Er tilvonandi tengdadóttir Jónínu björtu ekki bara ófrísk eins og Peturty segir í blogi sínu?

Björn Heiðdal, 28.4.2007 kl. 00:45

16 Smámynd: Gunnar Th. Gunnarsson

Svona fara kjaftasögurnar af stað.  Lestu betur það sem Pétur skrifar, Björn Heiðdal, áður en þú spreðar út svona sögum í bloggheimum.

Gunnar Th. Gunnarsson, 28.4.2007 kl. 01:28

17 Smámynd: Svava frá Strandbergi

Helgi Seljan hagaði sér óafsakanlega. Hann virðist aldrei hafa lært neitt í mannasiðum t. d. greip hann ítrekað fram í fyrir Jónínu, en það eru nú svo sem ekki nein ný bóla þegar sumir fréttamenn eiga í hlut.
Jónína fór með sigur af hólmi í þessum viðræðum og hélt ró sinni þrátt fyrir ruddaskap Helga sem varð sér ærlega til skammar. Svona yfirgang og barnalega frekju kalla ég ekki góða fréttamennsku.

Svava frá Strandbergi , 28.4.2007 kl. 02:36

18 Smámynd: Sigríður Laufey Einarsdóttir

Mér kom í hug hvort Helgi hefði verið ráðinn í sjónvapið tll höfuðfs FRamsókn ef svo er þarf að ráða fleiri til höfðus öðrum flokkum.

Framkoma Helga við ráðherrann var langt frá því að vera hlutlaus. Það er annars eðlis en að fá fram það sanna í máli hverju sinni.

Leðinlegt mér er hlýttt til Helga vegna ætternis hans.

Ekki var framkoma hans betri við sr. Geir Waage sem ekki fékk að útskýra mál sitt heldur var bara klippt á viðtalið.

Ef svo heldur áfram sem horfir gæti Helgi þurft að taka pokann sinn.

En oft verður góður hestur úr göldum fola og reyna að vona það besta.

Alltaf sama gamla vinstri klíkan hjá RUV líka hjá Páli, (allt stáli).

Sigríður Laufey Einarsdóttir, 28.4.2007 kl. 04:46

19 Smámynd: Salvör  Kristjana Gissurardóttir

Kristján Pétursson segir hér ofar: "Helgi Seljan stóð sig vel,svona eiga fréttamenn að vera.Hann lét ráðhr.viðurkenna að hún hafi ráðlagt tengdadóttur að sækja um ríkisborgararétt til  Allsherjarnefndar."

Þetta er alveg fáránlegt. Auðvitað hefur Jónína ráðlagt tengdadóttur sinni hvernig hún ætti að bera sig að, hverjum dettur annað í hug? Það er ekkert óeðlilegt við að ráðleggja fólki og það er beinlínis skylda okkar að ráðleggja því fólki sem stendur okkur næst. 

Salvör Kristjana Gissurardóttir, 28.4.2007 kl. 05:14

20 Smámynd: Sigursteinn Gunnar Sævarsson

Mig langar rétt að bæta við og benda á það sem mestu máli skiptir í þessari umræðu. 
 Auðvitað og sjálfsagt er að Jónína skildi ráleggja tengdadóttir sinni með þessum hætti og benda henni á hvert hún gæti vísað málinu eftir að útlendingastofnun hafði hafnað umsókninni.  
 Það sem er þó óeðlilegt og ósangjarnt í þessu máli öllu er það að Jónína kaus sjálf með því að þessi umsókn yrði samþykt þegar að kosið var um veitingu ríkisborgararéttsins í þinginu.    
 
 Jónína hefði þar átt að ganga úr þingsal/eða sleppa því að taka þátt í kosningunni þar sem henni var fullljóst að kringumstæður málsins væru harla óvenjulegar. 

  Þetta mál lyktar illa af spillingu og mun ráða því hverjum ég legg mitt atkvæði í komandi kosningum.

Sigursteinn Gunnar Sævarsson, 28.4.2007 kl. 07:05

21 Smámynd: Ester Sveinbjarnardóttir

Mikið af mjög góðu fólki af erlendu bergi brotnu býr á íslandi.  Einn sem ég þekki er að kenna við Háskóla Íslands, hann hefur ekki tækifæri á að fá íslenskan ríkisborgararétt fyrr en eftir 7 ára búsetu á landinu.  Dorrit Moussaieff fékk enga undanþágu, það er eðlilegt að fólk vilji vita hvað er þess valdandi að einhverjir ertu teknir fram fyrir aðra.  Þetta er alls ekki einkamál Jóninu og fjölskyldu hennar, lögin eiga að liggja ljós fyrir og fréttamenn eiga rétt á skýringu og alsherjarnefndin á að upplýsa um þær undantekningar sem heimila hraðafgreiðslu ríkisborgararéttinda.  

Persónulega fannst mér Jónina koma illa fram, hún hefði átt að upplýsa  frétta manninn um þær reglur sem gilda án þess að tilgreina persónulegar aðstæður tengdadóttur sinnar.  Þannig hefði hún getað komist vel frá þessu máli.  Í stað þess kaus hún að bjóða okkur landsmönnum uppá skítkast og leiðindi.  Frétta menn þurfa líka að gæta betur að framsetningu frétta, þeir eru til þess að fræða og upplýsa.

Ester Sveinbjarnardóttir, 28.4.2007 kl. 08:14

22 Smámynd: Ár & síð

Ein spurning: Bjarni Ben. fullyrti að enginn í nefndinni hefði vitað af tengslunum við Jónínu, ekki heldur framsóknarmaðurinn. En hvaða tvo meðmælendur hafði stúlkan á umsókn sinni?
Matthías

Ár & síð, 28.4.2007 kl. 08:44

23 Smámynd: Hallgrímur Egilsson

Ætli Helgi sé að nota tækifærið og hefna sína á Framsókn... Eftir að Björn Ingi Hrafnsson benti honum á að hann hafi fengið starfið sitt í gegnum klíku.

Ég hef aldrei verið hrifin af Helga Seljan sem fréttamanni. Frá því ég sá hann í fyrsta sinn á skjánum.

Hallgrímur Egilsson, 28.4.2007 kl. 09:08

24 Smámynd: Haukur Nikulásson

Þetta er bara S P I L L I N G.

Ég er eiginlega orðinn bara steinhissa á því fólki sem reynir að verja Jónínu. Í þessu dæmi er besta vörnin að steinþegja og láta gagnrýnendur líta illa út í vanþóknun sinni og nöldri.

Ég varð fyrir verulegum vonbrigðum með Jónínu. Ég hélt að hún væri heiðarleg, það var bara rangt. Hún notfærir sér aðstöðu sína af bestu getu. Hún reynir núna bara að nota sína huggulegu framkomu til að breiða yfir þetta. Það bara tekst ekki.

Siv Friðleifsdóttir missti sig líka þegar hún seildist í framkvæmdasjóð aldraðra til að borga fyrir sig kosningabæklinginn.

Nýlega fékk kunningi minn bréf sem merkt var Alþingi bæði á umslagi og bréfhaus. Þar var verið að kynna opnun kosningaskrifstofu Framsóknarflokksins. Þeir hika ekki lengur við að nota allt tiltækt í þessari kosningabaráttu.

Haukur Nikulásson, 28.4.2007 kl. 09:34

25 Smámynd: Kolbrún Baldursdóttir

Það eru greinilega afar skiptar skoðanir og upplifanir á þessu viðtalið. Mér leið nú hálf illa að hlusta á þetta, þau hreinlega hnakkrifust. Hins vegar fékk maður aldrei svar við spurningunni hvað það var sem réði úrslitum um að stúlkan fékk þessa undanþágu.
Ég prófaði einnig að setja mig í þessi spor Jónínu og þá fannst mér það frekar ótrúverðugt að hún hafi EKKERT fylgst með þessu og líka að ENGINN í Alsherjarnefnd hafi vitað um þessi tengsl stúlkunnar við hana.
En maður vill jú trúa fólki.

Kolbrún Baldursdóttir, 28.4.2007 kl. 09:44

26 Smámynd: Eysteinn Ingólfsson

Mér finnst sorglegt þegar enfalt mál er látið fara í svona vitleysu. En Helgi, takk fyrir að bera þetta á torg fyrir okkur þó svo að meira hófs hefði mátt gæta. 

Eftir alla þessa umræðu þá vitum við ekki neitt og það er ekki hægt að upplýsa þetta því þeir sem komu að málinu geta ekki tjáð sig um mál einstaklinga. Við skulum því ekki dæma heldur vona að yfirvöld taki á þessu eins og siðmenntað fólk. Þessi siðmenntaða leið er að mínu mati að óháðir aðilar fái aðgang að öllum upplýsingum málsins (án þess að þurfa að upplýsa almenning um þau) og skoði hvort þessi undanþága sé í samræmi við fyrri undanþágur og í samræmi við lög. Þetta þarf að gerast hratt. Þetta mál ætti að vera einfalt þannig að þetta ætti ekki að taka langan tíma 1-2 daga kannski. Vona að við berum gæfu til að hætta að rífast um keisarans skegg Jónínu, nafndarmanna og kjósenda vegna.

Eysteinn Ingólfsson, 28.4.2007 kl. 10:22

27 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Það er gjörsamlega forkastanlegur andskoti að almúgadrengur eins og Helgi Seljan yngri skuli voga sér að bugta sig ekki og beygja fyrir Valdinu.

Jónína Bjartmarz stóð sig afskaplega vel að vanda með sitt klassíska háborgaralega glanspíubros á vör.

Okkur er hollt að muna að frú Bjartmarz fer aldrei yfir nein strik, þveröfugt við það sem Seljan yngri lætur sér sæma.

Jóhannes Ragnarsson, 28.4.2007 kl. 10:51

28 Smámynd: Örvar Þór Kristjánsson

Jónína stóð sig vel.  Það er ansi illa af henni vegið.  Er ekki Framsóknarmaður en það er verið að gera úlfalda úr mýflugu.

Örvar Þór Kristjánsson, 28.4.2007 kl. 11:38

29 Smámynd: Júlíus Valsson

Nú er tímabært að selja RÚV. Ríkið á ekki að kosta svona blaðamennsku. "Hin nýja blaðamennska" er vel geymd á tímaritinu Ísafold.  Helgi ætti að sækja um starf á þeim vettvangi . Útvarpsstjóri hlítur að bera einhverja ábyrgð á þessari skömm! 

Júlíus Valsson, 28.4.2007 kl. 12:17

30 Smámynd: Gestur Guðjónsson

Haukur. Hvað er spilling í þessu máli hennar Jónínu. Það er ekki nóg að gala eins og hani á priki, þú verður að rökstyðja mál þitt, en vera ómerkingur ella.

Gestur Guðjónsson, 28.4.2007 kl. 12:21

31 Smámynd: Stefán Friðrik Stefánsson

Takk fyrir kommentin.

Sitt sýnist hverjum. Skoðanirnar eru ólíkar og borin von að allir verði sammála. Sínum augum lítur hver í senn þetta mál og viðtalið í Kastljósinu. Það verður mjög athyglisvert að sjá hvort að Jónína Bjartmarz nær endurkjöri þann 12. maí fyrst og fremst og auðvitað hvernig mælingar Framsókn fær í könnunum í kjölfarið.

mbk.

Stefán Friðrik Stefánsson, 28.4.2007 kl. 12:41

32 identicon

Já Helgi stóð sig hræðilega þarna og þetta var mikil niðurlæging fyrir annars góða og fagmannlega fréttastofu Rúv. 

Svavar Friðriksson (IP-tala skráð) 28.4.2007 kl. 14:13

33 Smámynd: Salvör  Kristjana Gissurardóttir

Ester nefnir að Dorritt Musareff hafi ekki fengið undanþágu og nefndir dæmi um mann sem hún þekkir sem hefur verið hér í 7 ár og ekki fengið ríkisborgararétt. Um Dorritt er það að segja að hún sótti aldrei um undanþágu, ég held að það hefði verið alveg glerljóst að umsókn hennar um það hefði verið samþykkt alveg umræðulaust. Hún er eiginkona þjóðhöfðingja okkar og þar með oft fulltrúi okkar á erlendri grund og við móttökur. Það var ekki fyrr en hún missti sig í einhverju landamærastússi og það var tekið upp á vídeó og spilað í ísraelsku sjónvarpi henni til háðungar að hún gekk í að sækja um ríkisborgararétt hérna. 

Það er áhugavert að heyra sögur af því að fólk hafi sótt um undanþágu  til þessarar alsherjarnefndar og verið synjað, það eru einu tilvikin sem hægt er að bera saman við þessa afgreiðslu. Mér sýnist ekki hafa verið margar umsóknir og  sennilega eru fáir sem vita af og nota þessa leið. Ég ætla að hvetja alla útlendinga í fjölskyldu minni núna til að prófa þetta, það er sjálfsagt að sjá hvað kemur út úr þessu.

Salvör Kristjana Gissurardóttir, 28.4.2007 kl. 16:19

34 Smámynd: Gunnar Björnsson

Fróðlegt að setja þetta mál í samhengi við karlmennina em Björn Bjarnason lét senda úr landi brott á þeim forsendum að þeir væru ekki orðnir 24 ára árið 2005 en báðir voru þeir giftir íslenskum konum.  Misjafnlega er farið með fólk.   

Gunnar Björnsson, 28.4.2007 kl. 16:59

35 Smámynd: Óttarr Makuch

Mér þótti framganga Helga Seljans hins ágæta Samfylkingarmanns helst til of harkaleg.  Hann virðist þó alltaf detta í þá gryfju að leyfa ekki gestum þáttarins að svara spurningum sem hann leggur fyrir þá.  Hann vill helst hafa þetta allt hjá sér þe að spyrja og svara og það er ekki góð blanda af fréttamanni! 

En hitt er svo allt annar handleggur - þessi vesen á Framsóknarmönnum, það er eins og þeir séu að koma öllum sínum að á "réttum" stöðum áður en flokkurinn fer úr stjórn!  Sem hann mun án efa gera eftir kosningar með þessu áframhaldi!

Óttarr Makuch, 28.4.2007 kl. 22:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband