29 í prófkjörið í Reykjavík - öflugir kandidatar

Ég er mjög ánægður með það hversu margir frambjóðendur verða í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík eftir tæpan mánuð. 29 manns hafa gefið kost á sér og augljóst að mikil barátta verður um efstu sætin, enda gefa þrír þingmenn í forystusveitinni ekki kost á sér til endurkjörs, þar af forystumenn í flokknum í tæpa tvo áratugi, þeir Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi forsætisráðherra, og Björn Bjarnason, fyrrverandi dóms- og menntamálaráðherra, auk Guðfinnu Bjarnadóttur, sem kom ný inn í prófkjöri haustið 2006 og varð forystukonan í framboði í borginni í stað Sólveigar Pétursdóttur.

Þegar litið er yfir hópinn finnst mér sérstaklega ánægjulegt að sjá að Guðrún Inga Ingólfsdóttir, vinkona mín úr flokksstarfinu, einkum innan SUS í denn, gefur kost á sér í framboð og er á heimleið frá Boston. Mér finnst hún mjög sterkur frambjóðandi og tel að það væri sterkt fyrir flokksmenn að velja hana ofarlega á lista. Ólöf Nordal, vinkona mín úr kjördæmastarfinu hér í Norðausturkjördæmi, er farin suður í framboð og ég bind miklar vonir við að hún nái sæti ofarlega á lista í borginni, enda svo sannarlega mjög traustur valkostur.

Auk þess eru þarna forystumenn úr ungliðastarfinu á undanförnum árum og góðir vinir, Þórlindur Kjartansson og Erla Ósk Ásgeirsdóttir, auk Valdimars Agnars Valdimarssonar, en við höfum þekkst mjög lengi og vorum saman í stjórn SUS um tíma. Svo er auðvitað ekki síður gaman að sjá að Sigga Andersen sækist eftir sæti ofarlega á lista og Siggi Kári ætlar sér stóra hluti, sem eðlilegt er. Pétur Blöndal kom flestum á óvart með að halda áfram og fróðlegt að sjá hvernig honum gengur ásamt öðrum sitjandi þingmönnum.

Krafan um endurnýjun verður væntanlega mikil og því verður helst fylgst með hvernig sitjandi þingmenn koma út úr þessu prófkjöri. Þrír þingmenn, allir ofarlega á lista síðast, víkja og fróðlegt að sjá hvort sitjandi þingmenn færast upp eða aðrir blanda sér í slaginn. Nú er Jón Magnússon aftur kominn heim, eins og segja má svosem, enda var hann formaður Heimdallar í tvö ár og formaður SUS í fjögur ár, forveri Geirs H. Haarde á þeim stóli.

Var reyndar mest hissa á að Ingi Björn Albertsson færi í framboð, en hann fór af þingi fyrir fjórtán árum en kom þangað inn fyrst í framboði föður síns Alberts Guðmundssonar, Borgaraflokknum, árið 1987. Svo er auðvitað svolítið skondið að sjá t.d. Guffa bílasala þarna. Einhverjir gárungar munu segja að það sé merki um lélega tíð í bílabransanum þegar bílasalar fara í framboð og vilja komast í þingsæti.

Í heildina er þetta góður hópur frambjóðenda og engu að kvíða með framtíðina. Verður gaman að fylgjast með hvernig þetta fer.


mbl.is Geir gefur ekki kost á sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gústaf Níelsson

Ég veit ekki betur en að Guffi bílasali hafi verið góður og gegn sjálfstæðismaður frá því áður en þú fæddist Stefán!! Í hvaða stöðu ert þú til svona flokkunarstarfa? Mér finnst ekkert skondið við framboð hans. Þú fyrirgefur?

Gústaf Níelsson, 21.2.2009 kl. 02:15

2 Smámynd: Stefán Friðrik Stefánsson

Guffi bílasali er mjög góður maður. Ég er ekki að tala illa um hann. Fjarri því. Var bara að tala um það á þeim forsendum að það sé erfitt í ári hjá bílasölum þegar þeir vilja frekar fara á þing en vera í sínum bransa. Ég er ekki á móti neinum sem gefur kost á sér í þessu prófkjöri svo við höfum það á hreinu.

Stefán Friðrik Stefánsson, 21.2.2009 kl. 02:19

3 Smámynd: Elinóra Inga Sigurðardóttir

Ekki gleyma frumkvöðlinum.

Elinóra Inga Sigurðardóttir, 21.2.2009 kl. 11:03

4 Smámynd: Óðinn Þórisson

Ánægjulegt hvað margar konur gefa kost á sér og tilbúnar í slaginn á jafnréttisgrundvelli og komast inn á þing á eigin forsendum en ekki af því þær eru konur.

Óðinn Þórisson, 21.2.2009 kl. 11:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband