Stjarnan Emiliana



Emiliana Torrini hefur veriđ uppáhaldssöngkonan mín árum saman, eiginlega síđan ég heyrđi hana fyrst syngja. Hún er einfaldlega algjörlega í sérflokki - frábćr rödd og traustur persónuleiki. Hún er ekki ađ ţykjast vera neitt nema hún sjálf. Hefur alltaf veriđ trú sínu og ekki breytt sér fyrir frćgđina eđa eitthvađ stjörnulúkk, hefur einfaldlega komist áfram af eigin verđleikum og skapađ sína ímynd, ekki ósvipađ Björk.

Ég er ekki fjarri ţví ađ mér hafi fundist hún ná traustum stalli í sínum bransa á síđustu árum, ekki ađeins hérna heima heldur um víđa veröld. Lagiđ hennar Jungle Drum ţótti mér sérstaklega gott og ţađ var ekki hćgt annađ en hrífast međ. Algjörlega magnađ lag. Hitti beint í mark.



Emiliana ávann sér sess í huga og hjarta ţjóđarinnar međ plötunum sínum um miđjan tíunda áratuginn. Ţćr eru urđu báđar feykivinsćlar hér heima og stjarna var fćdd. Af öllum frábćru lögunum sem hún söng ţá finnst mér The Boy who giggled so sweet algjörlega í sérflokki. Yndislegt lag.



Gollum song úr kvikmyndinni Lord of the Rings: The Two Towers frá árinu 2003 er traust lagasmíđ. Yndislegt lag, međ dökkum og sorglegum undirtón en yndislega fallegt samt sem áđur. Nćr ađ fanga tóninn í myndinni, sálarflćkjur og innri baráttu Gollums, sem er margklofinn og andlega bugađur.



Ekki má svo gleyma túlkun Emiliönu á Simon og Garfunkel-smellinum Sounds of Silence úr sýningunni frábćru Stone Free á árinu 1996. Ógleymanleg sýning fyrir alla ţá sem hana sáu. Yndisleg og sćtt.

mbl.is Emilíana fćr góđa dóma í NYT
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sporđdrekinn

Já hún er topp listakona. Mér var gefin fyrsta platan hennar thegar ad ég bjó langt frá heima högum en hún flutti mig heim med röddu sinni og tónum.

Sporđdrekinn, 31.3.2009 kl. 02:25

2 identicon

Ég get ekki annađ en tekiđ undir hvert einasta orđ sem ţú skrifar, alger demantur daman sú arna.

Viđar Ingólfsson (IP-tala skráđ) 31.3.2009 kl. 06:58

3 Smámynd: TARA

Mikiđ hjartanlega er ég sammála ţér...hún hefur fallega rödd...einlćga framkomu og er hún sjálf...en ţađ verđur ekki sagt um ţorra listamanna, sem sífellt eru ađ ţykjast til ađ ganga í augun á almenningi. Svo er hún afskaplega falleg stúlka ađ öllu leyti.

TARA, 31.3.2009 kl. 10:58

4 identicon

Ég gaf vini mínum sem býr í Los Angles "Me and Armani" og hann var svo hrifinn af ţví hvađ Emiliana er látlaus og falleg međ ţessa yndislegu rödd, en hann er vanur plastik dömunum í L.A.

sveina sigurdardottir (IP-tala skráđ) 31.3.2009 kl. 14:16

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband