Verður gula slúðurblaðamennskan endurvakin?

DVÍ lok ársins sem slúðurblaðamennskan á DV beið algjört skipbrot og var hafnað af íslensku þjóðinni með eftirminnilegum hætti stefnir margt í að byggt verði ofan á rústir þess dagblaðs sem heitir DV, en kemur nú út aðeins í mýflugumynd þess sem áður var. Talað er um að Sigurjón M. Egilsson og fleiri nátengdir honum muni byggja aftur upp DV með einum eða öðrum hætti, nú er Sigurjón hefur sagt skilið við Blaðið. Ekki er vitað um hvert formið er eða hvað gerist. Aðeins er um að ræða sögusagnir á Netinu, en þó sögusagnir sem fylgst er með, enda innanbúðarmenn víða sem þar skrifa um stöðu mála. Tekið er auðvitað mark á þeim skrifum. Með þeim skrifum er svo sannarlega vel fylgst.

Í janúar hné sól DV til viðar í þeirri mynd sem hún hefur lengst af verið þekkt. Þá neyddust báðir ritstjórar DV, Jónas Kristjánsson og Mikael Torfason, til að segja af sér. Með því lauk miklum umhleypingatímum í samfélaginu - byltingu fólksins gegn DV og vinnubrögðum blaðsins seinustu árin. Óhætt er að segja að samfélagið hafi skekist vegna "fréttamennsku" DV viku eina í janúar. Hafði blaðið reyndar virkað sem ein tímasprengja allt frá því að gerðar voru breytingar á blaðinu og ritstjórnarstefnu þess um leið og nýir eigendur tóku við eftir gjaldþrot gamla DV árið 2003. Slúðurblaðamennskan með breskri fyrirmynd fékk svo hægt andlát í apríl, er DV var slegið af virka daga, en umskiptin urðu ekki þá að mínu mati, enda voru atburðir í janúar þáttaskilin.

Í kjölfar sorglegrar umfjöllunar DV í janúar var ákveðið að efna til undirskriftasöfnunar gegn ritstjórnarstefnu DV. Var hún samstarfsverkefni Deiglunnar, Sambands ungra sjálfstæðismanna, ungra jafnaðarmanna, stúdentaráðs HÍ, Sambands ungra framsóknarmanna, Tíkarinnar, Múrsins, ungra frjálslyndra, ungra vinstrigrænna, Heimdallar, Vöku, Röskvu og H-listans. Söfnun undirskrifta stóð í nákvæmlega tvo sólarhringa. Alls skráðu 32.044 einstaklingar nafn sitt við áskorun þessara aðila um endurskoðun ritstjórnarstefnunnar. Þar kom fram mjög breið samstaða landsmanna. Sú samstaða var afgerandi. Samfélagið logaði og blaðið féll í hitanum sem þeim tímum fylgdu. Þessir tímar gleymast ekki.

Hvað á að gerast nú? Verður slúðurblaðamennskan nú endurvakin. Getur Sigurjón M. Egilsson strax orðið ritstjóri á öðrum vettvangi eftir að hafa sagt skilið við Blaðið? Allir vita hvernig farið hefur fyrir sjónvarpsfólki sem skiptir um skútu. Það er allt að því falið mánuðum saman meðan að samningsmörk líða undir lok. Hvað gerist í tilfelli Sigurjóns? Sé rétt að DV verði endurvakið hvernig blað verður nýtt síðdegisblað? Á að fylgja eftir slóð gamla DV? Mun það heita DV? Varla, enda er DV gjörsamlega ónýtur stimpill eftir þau þáttaskil sem fyrr er lýst. Er Gunnar Smári að koma frá Köben? Margar spurningar í stöðunni.

Eru rústir gamals slúðurblaðs að vakna við? Stórt er spurt svosem. Fróðlegt verður að sjá framvindu mála.


mbl.is Fyrrum ritstjórar DV dæmdir í sekt og Jónína fær miskabætur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll  Stefán. Eins sorglegt og það er þá virðist alltaf vera markaður fyrir slúður og ljótar fyrirsagnir, reynslusögur fólks sem lent hefur undir á einn eða annan hátt. DV eða eitthvað því líkt mun koma aftur á markað en sennilega með öðru sniði. Af hverju ætli blað geti ekki gengið sem eingöngu flytur góðar og jákvæðar fréttir? Mannskepnan er þekkt fyrir að rífa niður það sem vel er gert, hvort sem það er metingur um hver hafi komið með hugmyndina eins og alþingismennirnir, eða bara rífa niður til að rakka fólk í svaðið. Við þurfum markað fyrir jákvæðni.

kveðja, Gunnþór Eyfjörð 

Gunnþór Eyfjörð G. (IP-tala skráð) 9.12.2006 kl. 11:06

2 Smámynd: Stefán Friðrik Stefánsson

Er alveg sammála því að það er hægt að vera með jákvætt lifandi síðdegisblað með beittum undirtón. Þannig var gamla DV fram að gjaldþrotinu árið 2003. Gula pressan sem sett var á 2003-2006 varð gjaldþrota. Það er sú tegund sem ég óttast að komi til baka, en kannski eru það óþarfa áhyggjur miðað við skell DV á árinu. En þetta verður allt að ráðast. Þetta eru ekta pælingar bara hjá mér.

Stefán Friðrik Stefánsson, 9.12.2006 kl. 15:30

3 Smámynd: Sigríður Laufey Einarsdóttir

Hryllileg tilhugsun ef Samfylgingin nær tangarhaldi á Bifröst.

Flokkur sem misbýður jafanaðastefnunni með staðfestuleysi og er ekki einu sinni  fær um gegna stöðu sinni sem stjórnarandstaða. Vantar stefnufestu og samstöðu í eigin flokki.

 Mætti ég þá heldur biðja um gömlu framsókn aftur og þá allra helst að  Jónas frá Hriflu gengi aftur sem skólastjóri.

Ef til vill birtist arftaki hans seinna meir, lifi í voninni.

Sigríður Laufey Einarsdóttir, 13.12.2006 kl. 06:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband