Hátíđleg jólastund

AkureyrarkirkjaAđfangadagskvöldiđ var stund hátíđleika og helgi í huga mér og eflaust allra annarra sem vefinn lesa. Kl. 18:00, eftir ađ hafa óskađ hvoru öđru gleđilegra jóla, var borđađur notalegur og góđur matur. Svo tóku viđ hefđbundnar stundir ađ lesa jólakortin og opna pakka. Ţađ er hefđ á mínum slóđum lífsins ađ lesa kortin á undan og fara svo í pakkana. Ég held ađ ég hafi aldrei fengiđ eins mörg kort og var nú á ţessum jólum. Yngstu fjölskyldumeđlimum fannst mjög merkilegt ađ ég skyldi fá jólakort frá sjálfum forsćtisráđherranum ţessi jólin, en ţađ hefur nú vissulega gerst áđur.

Eftir hefđbundnar stundir var kveikt á sjónvarpstćkinu og horfđum viđ saman á aftansöng jóla í Ríkissjónvarpinu. Ţar predikađi biskup Íslands, Hr. Karl Sigurbjörnsson, í Áskirkju ţar sem bróđir hans, Árni Bergur Sigurbjörnsson heitinn, var prestur í áratugi. Ţađ var hugheil og vel mćlt predikun eins og Karls er von og vísa. Sterkast viđ Karl á biskupsstóli hefur mér alla tíđ ţótt hversu góđur predikari hann er. Ţegar ađ hann talađ er mćlt af innlifun og sannri meiningu. Tókst honum mjög vel til og tónlistin var stórfengleg. Ţetta var notaleg og góđ stund á ađfangadagskvöld.

Kl. 23:30 fór ég í Akureyrarkirkju, sóknarkirkjuna mína í miđnćturmessu. Miđnćturmessan bar yfirskriftina englamessa. Ţar predikađi sr. Óskar Hafsteinn Óskarsson. Mćltist honum vel og var predikun hans vönduđ og vel flutt. Mér líkar mjög vel áherslur og verk Óskars Hafsteins á prestsstóli hér og tel hann mjög öflugan í sínum verkum Kammerkórinn Hymnodia söng og var Eyţór Ingi Jónsson organisti ţessa heilögu kvöldstund í ađdraganda jólanćtur, heilögustu nćturstundar ársins. Hymnodia fór algjörlega á kostum. Nýlega söng söngflokkurinn međ Óskari Péturssyni á geislaplötu hans og brillerađi ţar. Frábćrt ađ hlusta á ţau syngja.

Er heim kom hlustađi ég á upptöku af söngskemmtun Hvítasunnusafnađarins sem var flutt á sama tíma og ég var á miđnćturmessunni. Ţađ er stórfenglegt ađ hlusta á jólatónleika Hvítasunnumanna og er á hverju ári. Ţvílík tónfegurđ og ţvílík listagáfa af Guđs náđ. Ţetta voru stórfenglegir tónleikar og ţeir fylltu mann gleđi og krafti. Ţetta var yndislegt, í einu orđi sagt. Sérstaklega var notalegt ađ hlusta á Björgvin Halldórsson syngja međ Gospelkórnum nokkur jólalög. Heims um ból í blálok söngskemmtunarinnar var svo listilega vel flutt. Ţeir Hvítasunnumenn eiga heiđur skiliđ fyrir glćsilega tónleika sína og vandađ yfirbragđ ţeirra.

Ég fór ađ sofa fljótlega eftir tónleikana, enda var mađur eiginlega úrvinda eftir síđustu daga. Mikiđ um ađ vera og notalegt ađ hvíla sig vel. Nú í dag hefur mađur fariđ vel yfir jólagjafirnar. Ţađ er svona handan viđ horniđ ađ byrja ađ lesa nokkrar eđalbćkur sem ég fékk í jólagjöf. Ţar eru efstar á lestrarlistanum ćvisaga sr. Matthíasar Jochumssonar, sóknarprests og heiđursborgara okkar Akureyringa, en ćvisaga hans er listilega rituđ af Ţórunni Valdimarsdóttur, Óvini ríkisins eftir Guđna Th. Jóhannesson, og Skáldalíf eftir Halldór Guđmundsson, ţar sem lýst er ćvi Gunnars Gunnarssonar og Ţórbergs Ţórđarsonar. Allar eru tilnefndar til bókmenntaverđlaunanna.

Svo fékk ég mynddiska međ stórfenglegum tónleikum Björgvins Halldórssonar og Bubba Morthens. Alveg yndisleg tónlist. Leit ađeins á tónleika Björgvins. Alveg meistaralegur umbúnađur utan um tónleikana og ekki feilnóta slegin. Björgvin kann sitt fag. Bubbi sló í gegn međ tónleikunum sínum í sumar sem endanlega sönnuđu kraft hans og snilli. Ţetta eru algjörir kóngar í íslenskri tónlist í dag. Engin spurning. Auk ţess fékk ég frá Krissa bróđur ţrjá mynddiska í öskju um sögu 20. aldarinnar. Ţađ myndefni heillađi mig mest og ég horfđi á einn diskinn nú eftir hádegiđ áđur en haldiđ er út í jólabođ. Krissi ţekkir mig og veit hvađ ég vil. Yndislegir diskar sem ég gleymdi mér yfir. :)

En semsagt, yndisleg og góđ jól - hátíđ í bć. Vona ađ ţiđ hafiđ ţađ öll sem best á ţessum hátíđlega tíma.

Gleđileg jól!


mbl.is Íhugun og ró á ađfangadag
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband