Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík er rúinn trausti

Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins Mjög illa er komið fyrir Sjálfstæðisflokknum í Reykjavík, hann er rúinn trausti. Gallup-könnunin staðfestir aðeins það sem allir hafa vitað mánuðum saman - flokkurinn er forystulaus og hefur ekki náð að leiða mál áfram af krafti og myndugleik. Sífellt betur sést hversu gríðarleg pólitísk mistök það voru að taka ekki af skarið með leiðtogaskipti eftir að ljóst var orðið að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson var búinn að vera sem stjórnmálamaður og trúverðugur leiðtogi.

Fylgishrunið er auðvitað afgerandi merki þess að kjósendur flokksins sætta sig ekki við forystuleysið og vandræðaganginn sem einkennir stærsta flokk borgarmálanna á kjörtímabilinu. Núverandi meirihluti hefur þar að auki staðið sig illa og er réttilega að fá falleinkunn. Eftir REI-málið og vandræðaganginn í febrúar sem náði hámarki með klaufalegasta blaðamannafundi íslenskrar fjölmiðla- og stjórnmálasögu er borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins í alvarlegum vandræðum og fylgismæling Gallups eru afgerandi skilaboð til flokksmanna í borginni og um land allt að taka af skarið og krefjast þess að þar verði unnið úr málum og tekið á vandanum.

Þetta fylgishrun eru sterk skilaboð sem verður að taka mjög alvarlega, einkum meðal flokksmanna í hverfisfélögum Sjálfstæðisflokksins. Þetta er áfall sem verður að vinna sig úr, ekki aðeins í lokuðum herbergjum í Valhöll heldur með fundum í flokksfélögum í borginni. Þetta mesta fylgishrun flokksins frá því á vordögum 1994 í aðdraganda afsagnar Markúsar Arnar Antonssonar, þáverandi borgarstjóra, er tíðindi sem eru grafalvarleg fyrir flokkinn. Þetta eru mælingar sem ekki er hægtað sætta sig við og því algjörlega með ólíkindum að ekki hafi verið tekið af málum af forystu flokksins. Hún hefur sofið allt of lengi þetta mál af sér.

Ef ekki verður tekið á málum mjög fljótlega og línur skýrðar með vali nýs leiðtoga og borgarstjóra að ári er Sjálfstæðisflokkurinn dæmdur til þess að stefna í mikið og sögulegt afhroð í næstu kosningum. Ekki er viðunandi að flokkurinn mælist með svo lítið fylgi og andstæðingar hans með meirihlutafylgi, þar af Samfylkingin ein flokka með meirihluta. Þetta sýnir vel að tryggir kjósendur Sjálfstæðisflokksins eru unnvörpum að snúa baki við flokknum og horfa þeir helst til Samfylkingarinnar til að finna nýja kjölfestu í borgarmálunum. Þetta er þróun sem verður að snúa við. En fyrst verða menn að vakna.

Við öllum blasir að Sjálfstæðisflokknum í Reykjavík hefur mistekist að taka völdin af ábyrgð og krafti eftir tólf ára minnihlutasetu undir forystu Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar. Hann á að axla ábyrgð á glataðri forystu sinni og víkja sem fyrst, ella eiga menn sem hafa til þess völd að leiða hann af velli. Nú verður að fara að sýna myndugleik og snúa hinu tapaða spili og afglöpum sem orðið hafa á vakt flokksins við í tækifæri. Verði ekki snúið vörn í sókn erum við hér að stefna í mesta afhroð flokksins í höfuðvígi hans.

Kominn er tími til að forysta Sjálfstæðisflokksins í höfuðvígi hans á landsvísu verði að fara að sýna myndugleik og taka á slæmri stöðu flokksins í borgarmálunum, ella taka ábyrgð á henni. Þetta er skrípaleikur sem flokksmenn á landsvísu sitja ekki þegjandi undir.

mbl.is Fylgi D-lista aldrei minna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sorglegt slys

Dapurlegt er að heyra fréttir af sprengingunni í húsbílnum í Grindavík. Vonandi mun drengurinn, sem slasaðist svo illa þar, ná sér að fullu. Sá áðan myndband á YouTube sem sýnir bílinn og aðstæðurnar sem blöstu við eftir sprenginguna. Tæknin er orðin þannig að svona myndefni er fljótt að fara á netið. Eflaust er það alltaf umdeilt.

Þó að myndbrotið segi vissulega meira en mörg orð um hversu alvarlegt slysið var og hversu aðstæður voru erfiðar er vafamál hvaða tilgangi slík myndbirting þjóni. Hef ég aldrei verið hlynntur myndbirtingum af slysavettvangi og á það jafnt við í þessu máli sem öðrum.

Alltaf er sorglegt að heyra fréttir af svona slysi og mest um vert að senda hlýjar hugsanir til aðstandenda.

mbl.is Drengurinn alvarlega slasaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Snarpir eftirskjálftar - jörð skelfur fyrir sunnan

Skemmdir í skjálftunum Ekkert lát virðist vera á skjálfahrinunni fyrir sunnan og enn ríða yfir miklir skjálftar nálægt þéttbýli, en þó er þetta vonandi að fjara út eftir sviptingarsama tvo daga skjálfta og umhleypinga. Heyrði í vini mínum á Selfossi áðan og er mun áhugaverðara að heyra þær lýsingar en allar pælingar fréttamannanna. Enda eru viðtölin við fólkið á staðnum og svipmyndir af því sem hefur gerst áhugaverðast.

Myndirnar úr öryggismyndavélunum sem opinberaðar voru í dag eru sérstaklega áhugaverðar, en þar sést best hversu öflugir skjálftarnir tveir um fjögurleytið í gær voru en myndirnar úr verslunum sýna vel stöðu mála. Myndirnar af ísbílnum við bensínstöðina voru líka ansi magnaðar og eiginlega merkileg heimild um hversu mikið gekk á. Enda eðlilegt að fólk sé hreinlega í losti eftir þessa lífsreynslu og hafi hikað við að sofa heima hjá sér í nótt. Þvílík læti, það tekur sinn tíma að jafna sig á því.

Við hér í Eyjafirði þekkjum sannarlega vel þá tilfinningu sem þeir á Suðurlandi finna fyrir. Búum hér á miklu jarðskjálftasvæði og gætum hvenær sem er eiginlega upplifað hið sama og gengur nú yfir fyrir sunnan. Fundið marga skjálfta í seinni tíð þó enginn jafnist á við Dalvíkur- og Kópaskersskjálftana 1934 og 1976, auk skjálftans mikla 1963. Hef mikið stúderað Dalvíkurskjálftann, enda stór partur af sögunni okkar hér og sýnir okkur vel á hverju við getum átt von hér í firðinum.

En já, vonandi fer nú að róast yfir fyrir sunnan. Þetta er komið gott af hristingi.

mbl.is Snarpir eftirskjálftar í kvöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rótarý-félagar hittast á Akureyri

Í dag sat ég formót Rótarý-hreyfingarinnar í Brekkuskóla hér á Akureyri, þar sem ég er verðandi ritari í mínum klúbbi. Eftir hádegið hófst svo umdæmisþingið og það mun halda áfram aftur á morgun. Þingið er haldið nú hér þar sem fráfarandi umdæmisstjóri Rótarý, Pétur Bjarnason, er í Rótarýklúbbi Akureyrar.

Ekki er nema rúmt ár síðan að ég gekk í Rótarý, hefur bæði verið gagnlegt og gaman að taka þátt í verkum þar. Nú tek ég svo við trúnaðarstörfum fyrir klúbbinn. Hef verið lengi í félagsstörfum af ýmsu tagi og verður bæði áhugavert og spennandi að taka þátt í þessu. Þetta er mjög góður félagsskapur.

Á fundi fyrir okkur verðandi ritara var farið yfir mörg spennandi verkefni sem verða á næsta starfsári og ekki laust við að við sem sátum fundinn teljum hlutverk okkar veigamest í félagsstarfi klúbbanna, enda mjög mikið, einskonar tengiliður félagsmanna við umdæmið hérlendis og margt sem fylgir því.

Var gaman að hitta góða félaga, einkum verðandi ritara, en meðal þeirra er Siv Friðleifsdóttir, alþingismaður og fyrrum heilbrigðis- og umhverfisráðherra. Var gaman að ræða um blogg og pólitík við Siv yfir kaffibolla í dag. Segir hún vel frá þingstörfum í dag á vefsíðu sinni og birtir myndir.


Beðið eftir tvíburum þokkaparsins í Hollywood

Brad Pitt og Angelina Jolie Sennilega segir það sitt um fréttadaginn þegar að stærsta fréttin af erlendum vettvangi er hvort að óskarsverðlaunaleikkonan Angelinu Jolie sé búin að eiga tvíburana sína eður ei, en um það er deilt núna, þar sem bæði er fullyrt af krafti. Angelina Jolie hefur verið umdeild eins lengi og hún hefur verið fræg, ekki aðeins talin ein mesta þokkadís síðustu ára, heldur auk þess mjög góð leikkona sem hefur túlkað dramatík og húmor í hæfilegri blöndu og skapmikil að auki.

Jolie er eins og flestir vita ekki ættarnafn. Franska er það heillin, enda þýðir nafnið hin fagra - réttnefni er það á Angelinu sem þykir með fögrustu konum kvikmyndaheimsins. Hún hefur enda verið kyntákn alla tíð. Ættarnafn hennar er auðvitað Voight, enda er faðir Angelinu óskarsverðlaunaleikarinn Jon Voight sem var einn af þekktustu leikurum sinnar kynslóðar, og hlaut óskarinn fyrir eftirminnilega túlkun á lamaða hermanninum í Coming Home, manninum sem kemur heim lamaður frá Víetnam á sínum tíma. Ekki er langt síðan þau sömdu frið eftir að hafa ekki talað saman í fimm ár. Bæði eru þekkt fyrir svæsin skapgerðarköst.

Ástarsamband Brad Pitt og Angelinu Jolie hefur verið eitt af þeim mest áberandi á síðustu árum og telst eitt það heitasta í kvikmyndabransanum til fjölda ára. Umtalið við upphaf sambands þeirra við gerð kvikmyndarinnar Mr. and Mrs. Smith árið 2005 var enda engu minna en þegar að Elizabeth Taylor og Richard Burton voru að byrja að draga sig saman við gerð kvikmyndarinnar Kleópötru í upphafi sjöunda áratugarins. Og myndirnar af upphafi sambands þeirra minntu marga á hinar heitu myndir sem staðfestu að Burton og Taylor voru að draga sig saman fyrir fjórum áratugum.

Um fá sambönd hefur meira verið skrifað og pælingarnar um eðli sambandsins var deilt nær allt árið 2005 uns að því kom að það var að fullu opinberað. Ástríðuhitinn milli þeirra leynir sér enda ekki þegar að kvikmyndin, sem reyndar er ekkert meistaraverk en hörku hasarbomba, er skoðuð. Lengi vel var reyndar spáð í hvort að þau ættu nokkru sinni skap saman. Þau eru báðir vel þekktir skaphundar og er Angelina Jolie með skapmeiri konum sem þekkjast í kvikmyndabransa nútímans og hefur ekki langt að sækja það þar sem er faðir hennar, óskarsverðlaunaleikarinn Jon Voight.

Enn hafa þau þó ekki gift sig og um tíma virtist sambandinu ætla að ljúka á deilum um það. Jolie vildi ekki festa sig og hinn 45 ára ráðsetti fjölskyldufaðir sem var farinn að róa sig eftir litríkan feril vildi skuldbindingu. Jolie er reyndar illa brennd af hjónaböndunum, hún hefur tvisvar gengið í það heilaga, fullyrða má að ekki hafi það verið farsæl hjónabönd; hún giftist breska leikaranum Jonny Lee Miller (syni leikarans Bernard Lee sem lék M í Bondmyndunum 1962-1979) 1996 og skildi við hann 1999 og giftist ári síðar leikaranum Billy Bob Thornton og var gift honum í þrjú ár.

Samband Jolie og Thornton var gríðarlega umdeilt og kom mjög óvænt aðeins örfáum mánuðum eftir að Jolie hlaut óskarsverðlaunin fyrir Girl, Interrupted í mars 2000. Thornton, sem er tveim áratugum eldri en Jolie, þótti vera fjarri því hennar týpa en hann er mjög skapmikill og kostulegur karakter. Enda var sambúðin hæðótt, upp og niður eins og rússíbani. Að því kom að sambúðin gekk ekki og varð ekki mörgum undrunarefni. Pitt á að baki eitt hjónaband, mjög þekkt auðvitað, en hann var giftur "Vininum" Jennifer Aniston í fimm ár.

Því hefur oftar en einu sinni verið spáð frá frægu skoti þeirra skötuhjúa við gerð Mr. and Mrs. Smith að þau ættu hvorki skap saman né gætu verið saman. Börnin hafa sameinað þau - þau eiga saman dótturina Shiloh (sem er lifandi eftirmynd föður síns) og auk þess hafa þau ættleitt heilan helling af börnum, minnir að þau séu þrjú eða fjögur sem Jolie hefur ættleitt og Pitt hefur gengið í föðurstað.

Fróðlegt verður að sjá hvort að tvíburarnir sameini stjörnurnar endanlega og þau gifti sig eftir áralangar vangaveltur um tímasetningu þess.

mbl.is Tvennum sögum fer af fæðingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þingmaður tekur flugið með flugdólgi

Undir niðri er ekki hægt annað en hlæja að þessum flugdólgi sem tók flugið með Karli V. Matthíassyni, alþingismanni. Er samt frekar ömurlegt að lenda í svona fólki sem kann fótum sínum ekki forráð með drykkju og áreitir farþega í flugvélum. Þetta er sem betur fer ekki daglegt brauð, en eflaust gerist það æði oft að fólk fær sér einum of mikið neðan í því í fluginu og sumir fá sér ágætis skammt fyrir flugið. Fólk er mjög misjafnt fullt og það er fátt ömurlegra en lenda í að sitja með fólki sem hefur fengið sér of mikið og veit ekki alveg hvað þá á að gera nema að eyðileggja flugferðina fyrir öðrum.

Var reyndar einu sinni í flugstöð á Bretlandi fyrir nokkrum árum og þar tók ég einmitt eftir einum manni sem lá greinilega mjög vel áfengismareneraður á bekkjarunu í bið eftir flugvél. Hann var þó ekki dauður eins og við segjum en það varð að benda honum nokkuð vel á að vélin væri að fara, þegar að kallið kom. Og hann staulaðist um borð, náði að redda því og fékk sér meira og svaf hinu værasta á leið til Íslands. Hann missti sig reyndar aðeins í vélinni og tók væn köst en bar sig að öðru leyti sig vel. En hann náði athygli allra um borð. Stjarna flugsins.

Varð loks rólegur og settlegur er Keflavík var í sjónmáli. Hef heyrt í mörgum sem hafa upplifað vissa dramatík í fluginu yfir Atlantshafi með þeim sem hafa gengið lengra. Frægust er sennilega sagan sem ég heyrði af einum í fluginu með tannlækninum sem tók vænt kast og allt varð vitlaust út af. Man mjög vel eftir viðtalinu við hann eftir á þar sem hann vildi skaðabætur frá flugfélaginu og alles. Reyndar ekki heyrt af málinu síðan, nema þá í fyndinni ferðasögu, sem viðstöddum fannst reyndar ekki fyndið meðan á henni stóð.

Held af lýsingum að dæma að þessi maður hafi ekki beint fengið blessunarorð frá þingmanninum og klerkinum Karli, en vonandi hefur Guðs blessun samt tekið við eftir að maðurinn var yfirbugaður og fékk loks að sofa úr sér gleðivímuna og lætin.

mbl.is Flugdólgur í vél með íslenskum þingmanni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dagar Guðmundar hjá OR og REI taldir

Guðmundur Þóroddsson Ekki kemur það að óvörum að dagar Guðmundar Þóroddssonar í forystusveit hjá Orkuveitu Reykjavíkur og REI séu taldir eftir það sem gengið hefur á síðustu mánuði í borgarmálunum, einkum eftir augljós átök á milli hans og þáverandi borgarstjóra í Reykjavík í fjölmiðlum er REI-málið stóð sem hæst í vetur. Deilt var þá um trúverðugleika þeirra beggja og augljós trúnaðarbrestur milli aðila.

Þá þegar var varla pláss fyrir báða þessa menn eftir það sem gekk á og átök um atburðarás og stefnuna sem taka ætti í REI og orkuútrásinni. Þá var greinilega kallað eftir því meðal sjálfstæðismanna að Guðmundur ætti að víkja. Hik á að hann kæmi aftur til starfa hjá OR staðfesti það og þessar fregnir um að hann hætti störfum alfarið hjá fyrirtækjunum rökrétt framhald þeirra sögusagna sem geisað hafa síðustu mánuði og deilur um hvert ætti að stefna og persónuleg átök milli aðila í meirihluta og í forystu OR.

Allar lykilpersónur REI-málsins voru stórlega skaddaðar eftir það og gilti þar einu um þá sem leiddu málið innan Orkuveitunnar og innan borgarkerfisins, hinna kjörnu pólitísku fulltrúa. Enda eiga þeir allir að víkja úr lykilstöðum, slík voru mistökin sem gerð voru og mikilvægt að tekið væri á því. Er enginn munur í sjálfu sér hvort að það væru embættismenn eða kjörnir fulltrúar. Niðurstaða REI-málsins er giska einföld og afgerandi hvað það varðar.

Í REI-málinu var sérstaklega alvarlegt að borgarfulltrúar voru ekki upplýstir um hvað var að gerast í Orkuveitunni, í fyrirtæki sem er rekið af borginni sjálfri. Enda varð ljóst að þarna væri uppi sama verklag og var í valdatíð Alfreðs Þorsteinssonar, nú haldið áfram undir stjórn Sjálfstæðisflokksins, hlutirnir voru illa kynntir meira að segja fyrir borgarfulltrúum meirihlutans og minnihlutinn var í kuldanum. Þetta var afleitt verklag.

Brotthvarf Guðmundar leiðir til þess að spurningin um pólitísk örlög Vilhjálms verði æ háværari. Hann er auðvitað stórlega skaddaður. Staða hans sem leiðtoga hefur gufað að verulega miklu leyti upp. Eftir tólf ára minnihlutasetu Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn var með ólíkindum hversu illa hann stóð sig einkum í REI-málinu. Enda tel ég að enginn geri ráð fyrir því að hann verði borgarstjóri aftur, hafi ekki stöðu í það.

Vilhjálmur hefur misst stuðning og traust samherja sinna, þó einhver sátt að nafninu til hafi náðst. Eftir eru brestir sem erfitt er að sparsla í, nema þá bara fyrsta kastið á eftir. Nú þegar að Guðmundur yfirgefur skipið er spurt um stöðu Vilhjálms Þ, þess hins eina sem enn situr með umtalsverð völd af þeim sem mótuðu málið sem fór svo arfavitlausa leið.

mbl.is Guðmundur hættir hjá OR og REY
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skjálftadagurinn mikli á Suðurlandi

Skemmdir í skjálftanum Þetta var dagur hinna stóru tíðinda á Suðurlandi í gær. Eðlilega er fólk í losti á þessu svæði eftir hinn mikla Suðurlandsskjálfta. Innbú fólks á svæðinu, sérstaklega á Selfossi og í Hveragerði, er illa farið og tekur sinn tíma að ná áttum eftir svo mikið áfall, sem hefur svo mikil áhrif. Var alveg sláandi að sjá skemmdirnar í húsunum í fréttatímum kvöldsins.

Ólafur Ragnar og Dorrit voru til fyrirmyndar í að fara á svæðið og tala við fólkið. Eitt veigamesta hlutverk þjóðhöfðingja er að hugsa um fólkið og tala til þess, láta sér annt um það og sýna því hlýhug. Það gerðu forsetahjónin í gærkvöld og mér fannst þau standa sig vel í því að fara strax á svæðið og sýna nærveru sína svo skömmu eftir jarðskjálftana. Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, og Geir Haarde, forsætisráðherra, stóðu sig líka vel í viðbrögðum sínum við náttúruhamförunum.

Sá viðtalið þegar að Sigmar Guðmundsson labbaði með Kjartani Ólafssyni, alþingismanni, um heimili hans á Selfossi. Þar var fátt ef nokkuð heillegt og allt á rúi og stúi og gott dæmi um það hversu mikið skemmdist af innanstokksmunum og persónulegum hlutum fólks. Erfitt að ímynda sér hversu mikið áfall það sé í raun og veru að koma að heimili sínu svona og er áfall út af fyrir sig, burtséð frá því sjokki að upplifa náttúruhamfarir. Getur enginn sett sig í þau spor nema þeir sem upplifa það.

Mér fannst Ríkissjónvarpið standa sig frábærlega í útsendingu sinni á áttunda tímanum í gærkvöld og færa okkur atburðarásina og stöðuna á svæðinu vandað og yfirvegað mitt í öllum þeim hamagangi og geðshræringu sem óhjákvæmilega fylgir þessu. Stórt hrós til þeirra á Sjónvarpinu. Vona svo að fólkið á Suðurlandi nái að byggja sitt upp aftur fljótt og vel og jafna sig á þessu áfalli.

mbl.is Ingólfsskáli eyðilagðist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jörð skelfur fyrir sunnan - öflug skjálftahrina

skjalfti08Ekki liðu nema nokkrar sekúndur frá því að ég kom inn í flugstöðina á Akureyri laust eftir fjögur er ég kom heim úr fríinu að ég fékk fyrstu fregnir í SMS-skeytum af stóra Suðurlandsskjálfanum sem reið yfir á fjórða tímanum. Fann ekki fyrir skjálftanum, enda í fluginu heim og sennilega yfir Langjökli er hann reið yfir.

Gleymi aldrei skjálftanum sem reið yfir 17. júní 2000. Þá var ég einmitt í Reykjavík og það er mesti skjálfti sem ég hef upplifað. Þá nötraði allt fyrir sunnan og miklar skemmdir urðu t.d. á Hellu og nágrannabyggðum. Vissulega er mikil lexía að búa á jarðskjálftasvæði, enda er aldrei að vita hvenær að skjálftar ganga yfir og náttúruhamfarir verða; bíða í raun eftir stóra skjálftanum og þeim hinum minni.

Við hér í Eyjafirði þekkjum sannarlega vel þá tilfinningu sem þeir á Suðurlandi finna fyrir í dag og gerðu fyrir átta árum. Margir skjálftar hafa í áranna rás dunið á okkur Norðlendingum og segja má að Eyjafjarðarsvæðið sé mikið jarðskjálftasvæði. Ekki eru nema rúm sjötíu ár frá Dalvíkurskjálftanum, sem er sögufrægur, en þá urðu miklar skemmdir á húsum þar. Síðan hafa margir skjálftar komið, sennilega er skjálftinn árið 1963 þeirra eftirminnilegastur en ennfremur er mörgum hér fyrir norðan í fersku minni skjálftinn árið 1976, þar sem tjón varð mikið t.d. á Kópaskeri.

Ef marka má fréttirnar er þetta stór og mikill skjálfti fyrir sunnan. Auðvitað er þetta alltaf nokkuð sjokk fyrir þá sem helst finna skjálftann, en ef marka má lýsingarnar er þetta á svipuðum kalíber eða meira en árið 2000. Enda varla við því að búast að hrinan árið 2000 hafi klárast þá. Ekki eru nema nokkrir mánuðir síðan að skjálfahrina gekk yfir Suðurlandið og væntanlega tengist þetta allt. Vonandi lægist brátt yfir þessum skjálftum.

mbl.is Afar öflugur jarðskjálfti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísland í 14. sæti - landamærapólitíkin blómstrar

Regína Ósk og Friðrik Ómar Jæja, Ísland lenti í 14. sæti í Eurovision - áhyggjur okkar um hvar ætti að halda keppnina og hvernig við ættum að gera það reyndust óþarfar. Er mjög stoltur af Frikka og Regínu. Þau stóðu sig vel, gerðu sitt besta og við getum verið mjög stolt af þeim. Það er erfitt að ná árangri í þessari keppni eins og hún er orðin, enda er landamærapólitíkin algjör. Enda var þetta mjög fyrirsjáanlegt.

Er alveg sammála Sir Terry Wogan um að keppnin er komin út í algjört rugl og breytinga er þörf. Þetta sást mjög vel þegar að undankeppnunum sleppti og stigagjöfin endurspeglaði öll þessi lönd. Vesturhluti Evrópu situr meira og minna hjá og góð lög frá þeim hluta fá ekki brautargengi. Þetta er orðin pólitísk keppni en ekki eingöngu tónlistarkeppni. Bitur staðreynd en hún blasir við.

Sigurlagið var lala, ekkert meira svosem. Hefði frekar viljað að Grikkland eða Úkraína myndu vinna. Árangur okkar var kannski fyrirsjáanlegur, en fór ekkert eftir því hversu vel við stóðum okkur. Við vorum klárlega með eitt besta atriði kvöldsins. En svona er þetta. Charlotte hin sænska komst áfram á dómnefndarvali og varð fyrir neðan okkur. Ekki græddi hún mikið á endurkomunni.

mbl.is Söngvakeppnin gekk fram af Sir Terry
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfrí

Ætla að taka mér frí frá bloggskrifum næstu dagana, þar sem ég er að fara í leyfi næstu dagana. Kem aftur væntanlega síðla þessarar viku.


18 ára Harry Potter-leikari myrtur í London

Var að horfa á umfjöllun á SKY um morðið á 18 ára Harry Potter-leikaranum Rob Knox í Kent í nótt, en hann var stunginn til bana í kráarátökum. Knox er þriðji maðurinn sem myrtur er í London á innan við hálfum mánuði, en t.d. hafa þrettán unglingar verið myrtir í London á þessu ári. Sorglegt er að heyra allar fréttirnar af þessum morðum og ekki er hægt annað en velta því fyrir sér hvað sé að gerast í bresku samfélagi. Fjöldi stungumorða er allavega sérlega áberandi.

Á síðasta ári voru fjöldi unglinga myrtir líka, mest var sennilega fjallað um skotárás þar sem þrír unglingar létust í febrúar 2007. Stóra spurningin í London er hvað hægt sé að gera í stöðunni. Þeir á Sky hafa fjallað jafnan um þessi mál af ábyrgð og talað um allar hliðar þessara sorglegu morða og reynt að varpa ljósi á þá þætti sem mestu skipta. Þetta hefur sett þungan svartan blæ yfir allt mannlíf í borginni. Virðist fátt vera til ráða, blasir við að um uppsafnaðan vanda í samfélaginu sé að ræða.

David Cameron, leiðtogi Íhaldsflokksins, hefur bent á að þessir atburðir endurspegli alvarlega bresti í bresku samfélagi. Telur hann hættulega framkomu, einmanaleika og þunglyndi ungmenna m.a. stafa af ábyrgðarleysi fullorðinna og mjög skorti á ást og umhyggju í samfélaginu. Vísa íhaldsmenn óspart á að upplausn í fjölskyldum og agaleysi sé alvarlegt vandamál og hafa vísað á skýrslu Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, en bresk börn eru á botninum hvað snertir hamingju og ánægju í lífinu.

Þetta mál virðist erfitt fyrir Verkamannaflokkinn sem skiljanlega vill ekki staðfesta að alvarlegir brestir séu í bresku samfélagi. Eftir áratug við völd er varla við því að búast að bresk stjórnvöld taki undir það mat að breskt samfélag sé á botninum hvað þetta varðar. Það er ljóst að þarna er fyrst og fremst um að ræða samfélagsbresti og sumir vilja ekki greina þá.

Þetta eru dökkir dagar í London. Þetta var eitt þeirra mála sem Boris Johnson, borgarstjóri, nefndi mikið í kosningabaráttu sinni og hefur talað mikið um nú að undanförnu. Vonandi mun takast að stöðva þessa morðöldu í heimsborginni London.

mbl.is 18 ára leikari stunginn til bana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Charlotte mætir í nýjum kjól með nýtt lag og andlit

Charlotte Perelli Held að það sé alveg heiðarleg fullyrðing að Íslendingar hafi elskað að hata blondínubombuna Charlotte Nilsson Perelli síðan að hún sigraði Selmu í Jersúsalem fyrir níu árum. Nú er hún komin aftur í nýjum kjól með nýtt lag og þetta líka glænýja andlit. Svo nýtt að varla þekkir nokkur maður hana.

Eiginlega er það sláandi hvað sú Charlotte sem nú raular lagið Hero er ólík þeirri sem söng Take Me To Your Heaven í vínrauða dressinu forðum daga á meðan að við blótuðum henni í sand og ösku heima í stofu. Breytingin á henni er eiginlega sláandi. Hún er greinilega orðin andlit lýtaaðgerða.

Einn sem sá keppnina um daginn hélt reyndar að hún væri klæðskiptingur, enda vottar varla fyrir kvenlegum þokka í þessu andliti, miðað við það sem blasti við áhorfendum þegar að hún vann keppnina. Er engu líkara en andlitið hafi verið sett saman upp á nýtt.

Ætla rétt að vona að Charlotte vinni ekki keppnina í kvöld. Lagið hennar er ekkert spes og vindblásturinn er orðinn einum of þreyttur fyrir Svíana. Þetta er eins og blessunin hún Carola sem varla mátti taka lagið nema vera með vindinn í fangið.

Carola náði ekki að sigra keppnina þegar að hún ætlaði að eiga sér endurkomu fyrir tveim árum, eftir að hafa sigrað með Fangad av en Stormvind árið 1991. Ætla rétt að vona að hin sænska Charlotte nái ekki að landa öðrum sigrinum með nýja andlitinu sínu.

mbl.is „Fegin að Dustin datt út"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óheppileg ummæli Hillary um Bobby Kennedy

Hillary Rodham ClintonEnginn vafi leikur á því að Hillary Rodham Clinton urðu á mistök þegar að hún talaði sérstaklega um morðið á Bobby Kennedy, fyrrum dómsmálaráðherra Bandaríkjanna og öldungadeildarþingmanni, í júní 1968, sem sérstakt dæmi um atburði í langvinnum forkosningaslag. Þó mátti skilja tóninn er hún talaði um forkosningabarátturnar 1968 og 1992 en þetta var mjög óheppilega orðað og eðlilega biður hún afsökunar á þeim hluta, enda var morðið á Bobby mikill harmleikur.

Hillary hefur, eins og ég benti á í síðustu færslu, rétt fyrir sér með það að forkosningaslagir geta verið langvinnir og erfiðir. Demókratar hafa oft upplifað erfiðleika í valinu og það hefur dregist á langinn. Sjálfur líkti ég reyndar forkosningaslagnum nú og 1968 saman fyrir nokkrum vikum í skrifum hér, en það var auðvitað í ljósi þess hve flokkurinn var sundraður í valinu þá. Hið sama hefur stefnt í að undanförnu og stóra spurningin nú er reyndar hvernig muni ganga að sameina brotin, enda hafa tveir frambjóðendur sögulegra þáttaskila barist mánuðum saman og enn enginn náð útnefningunni í slagnum, þó öllu hafi verið beitt. En beint tal um morðið á Bobby er óheppilegt.

Hillary hefur hlotið lítinn stuðning frá Kennedy-fjölskyldunni í baráttu sinni fyrir því að verða fyrsta konan á forsetastóli. Ted Kennedy studdi Obama og í kjölfarið studdu systkinabörn hans; Caroline Kennedy Schlossberg, dóttir Kennedys forseta, og Maria Shriver, ríkisstjórafrú í Kaliforníu, hann. Börn Bobby Kennedy hafa þó skipst í fylkingar í þessum slag. Kathleen Kennedy Townsend, fyrrum vararíkisstjóri í Maryland, og Bobby Kennedy yngri hafa stutt Hillary á meðan Patrick Kennedy, fyrrum fulltrúadeildarþingmaður, og Rory Kennedy, sem var ófædd er faðir hennar var myrtur, fylgdu fordæmi Teddys frænda síns og studdu Obama. Eins og vel hefur komið fram hefur Ethel Kennedy, ekkja Bobbys, stutt Obama og það með þeim orðum að kraftur hans minni sig á kraftinn í Bobby.

Hillary hefur sögulegar tengingar við Bobby Kennedy í pólitísku starfi. Hún situr í öldungadeildarþingsætinu í New York sem hann sat í á sjöunda áratugnum, eftir að hann yfirgaf ríkisstjórnina eftir dauða bróður síns vegna ósættis við Johnson forseta og allt til dauðadags. Aðdáun Hillary á Bobby hefur alltaf komið vel fram en Hillary byrjaði að starfa í flokknum að mig minnir í forkosningaslagnum 1968, þá tvítug, og þekkir því aðstæður vel. Hún hefur alla tíð talað vel um Bobby Kennedy og pólitísk verk hans. Því átti hún að vita betur, enda eiga sorgleg örlög hans ekki að vera umræðuefni í þessum leðjuslag demókrata nú.

Vissulega er alltaf rétt að minnast Bobby Kennedy. Hann var einn traustasti forystumaður demókrata og var bæði mikill pólitískur hugsuður og framkvæmdamaður á mikilvægu skeiði flokksins við völd á sjöunda áratugnum. Bobby lék lykilhlutverk er bróðir hans var kjörinn forseti Bandaríkjanna árið 1960, varð dómsmálaráðherra í stjórn hans og var mjög umdeildur sem slíkur en um leið mjög áhrifamikill og stóð sig mjög vel, reyndar svo vel að ný bygging dómsmálaráðuneytisins sem byggð var í upphafi aldarinnar var kennd við hann. Hann var svo mjög traustur sem þingmaður fyrir New York á síðustu árum ævi sinnar.

Bobby Kennedy var í baráttu ævi sinnar þegar að hann dó. Forkosningaslagurinn 1968 var í senn sögulegur og harkalegur. Hann fór í slaginn eftir að Lyndon B. Johnson ákvað að gefa ekki kost á sér til endurkjörs vegna óvinsælda sinna í Víetnam-stríðinu og átti góða möguleika á að ná alla leið. Enginn veit hvort Bobby hefði náð forsetaembættinu ef hann hefði lifað, en barist var upp á hvern þingfulltrúa í þeirri sögulegu rimmu og náði það hámarki með óeirðunum á götum Chicago-borgar er flokksþingið fór fram.

Eðlilegt er að segja þá sögu. Hinsvegar á Hillary Rodham Clinton bæði að vera það reynd og mælsk að geta talað um aðstæður árið 1968 án þess að tala sérstaklega um sorgleg örlög baráttumannsins Bobby Kennedy, en morðið á honum í miðjum forkosningaslag er einn sorglegasti atburður í sögu bandarískra stjórnmála. Þar sem Hillary situr í þingsætinu hans Bobby Kennedy í New York átti hún að vita betur.


mbl.is Clinton biðst afsökunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hillary ætlar að berjast á meðan að stætt er

Hillary Rodham ClintonEkki fer á milli mála að Hillary Rodham Clinton ætlar að berjast í forkosningaslag demókrata meðan að stætt er. Hún sættir sig ekki við að forsetaefni flokksins þurfi aðeins 2026 þingfulltrúa til að hljóta útnefninguna - ætlar að berjast fyrir því að Michigan og Flórída hafi áhrif á valið. Með öðrum orðum; Hillary ætlar að vera áfram í forkosningaslagnum fram yfir 3. júní og jafnvel taka slaginn alla leið á flokksþingið í Denver ef ekki verður tekið á málum í fylkjunum.

Þetta er áhætta fyrir Hillary, vægast sagt, í þeirri stöðu sem blasir við. Obama er þegar búinn að segja pent og afgerandi að hann hafi náð markmiðinu, þó enn hafi hann ekki náð lágmarkinu, án Flórída og Michigan. Sögusagnir eru um að hann hafi þegar hafið leit að varaforsetaefni og horfi framyfir flokksþingið; til átaka við John McCain um forsetaembættið. Á meðan berst Hillary af krafti. Hún hefur unnið forkosningar að undanförnu þó flestir telji slaginn búinn og hefur sýnt að hún á sterka stuðningsmannasveit sem snýr ekki við henni baki í mótlætinu, þegar að flestir telja framboðið af.

Orðið tap hefur ekki verið til í orðabók Clinton-hjónanna og þau ætla greinilega að taka slaginn eins langt og hægt er. Með því geta þau bæði reynt að ná að sigra gegn öllum líkindum og um leið skaðað Barack Obama svo mjög að hann bakki frá forkosningaslagnum með því að bjóða henni varaforsetaútnefninguna. Með því að halda framboðinu áfram síðustu vikurnar hefur Hillary afhjúpað helstu veikleika Obama sem forsetaframbjóðanda. Kannanir sýna að hann á erfiðara með að ná lykilfylkjunum en Hillary og hann á erfitt með að ná til alþýðu flokksmanna. Niðurstöður síðustu forkosninga og kannanir sýna það vel.

Ef slagurinn stendur lengur en til 3. júní má búast við að stóra spurningin verði hvort Hillary og Obama geti sæst á sameinað framboð. Þau munu þurfa að ná sameiginlegum grunni í baráttunni fyrr en síðar eigi flokkurinn að fara sameinaður frá þessum forkosningum og inn í alvöru átök um Hvíta húsið, sem fyrr en síðar tekur við. Hillary ætlar greinilega að reyna að ná því sem hún getur í þessari stöðu og öllum er ljóst að fyrr en síðar mun Obama þurfa á henni að halda nái hann útnefningunni. Sá sem tapar getur náð áhrifum með því að spila sitt rétt.

Auðvitað er það rétt hjá Hillary að forsetaefni demókrata hafa oft verið valin í langvinnum forkosningaslag. Átökin um útnefninguna árið 1968 voru erfið fyrir Demókrataflokkinn. Bobby Kennedy var myrtur kvöldið sem hann vann forkosningarnar í Kaliforníu og við tóku átök innan flokksins um útnefninguna sem lauk með sögulegu flokksþingi í Chicago í Illinois. Hubert Humphrey vann útnefningaslaginn þar á gólfinu í miklum átökum á meðan að harðvítug átök geisuðu fyrir utan þingsalinn.

Og auðvitað vann Bill Clinton hnossið mikla eftir sögulegan slag þar sem hvert atkvæði skipti máli, rétt eins og nú. Ekki er langt síðan og þá var barist eftir sömu leikreglum og nú eru í gangi. Svo að Hillary hefur margt til síns máls og auðvitað er það rétt að enginn hefur enn náð útnefningunni. Flokkurinn er klofinn í valinu, það blasir við. Þó er ljóst að fyrr en síðar verður að ná endapunkti til að flokkurinn rústi ekki möguleikum sínum á forsetaembættinu á kosningaári sem fyrir löngu var metið þeirra.

Hillary ætlar sér ekki að gefast upp. Hún er eina konan sem hefur komist þetta nálægt því að komast í Hvíta húsið sem forseti Bandaríkjanna og ætlar að falla úr leik með bravúr frekar en gefast upp þegar að enn er möguleiki. Þetta er söguleg barátta og miðað við stöðuna núna hefur Hillary enn sóknarfæri, enda enn að vinna forkosningar. En oft er erfitt að vita hvenær hætta beri leik er hann hæst stendur.

mbl.is Clinton vísar til morðsins á Robert Kennedy
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verður Eurovision haldin á vellinum ef við vinnum?

Keflavíkurflugvöllur Ég glotti út í annað þegar að ég heyrði að Þórhallur og hans fólk hjá Sjónvarpinu væru farin að undirbúa sig undir að halda Eurovision á gamla varnarliðssvæðinu ef við vinnum keppnina á morgun. Kannski er eðlilegt að hafa plan í stöðunni og gott að Sjónvarpið sé farið að velta þessu fyrir sér.

Finn mikla eftirvæntingu eftir morgundeginum. Við erum eðlilega hungruð í sigur eftir slæmt gengi í Eurovision nær allan þennan áratug, eftir að Selma var nærri búin að vinna í Jerúsalem fyrir níu árum. Er líka við hæfi að vera sigurviss, við erum með besta lagið okkar klárlega í keppninni síðan þá og eðlilegt að við höfum trú á okkar fólki. Við unnum hálfan sigur svosem með því að komast áfram eftir svo langa ógæfusögu og við eigum alveg að geta komist mjög langt á morgun.

Flestir spá okkur sæti á topp tíu og ég held að við munum enda þar, alveg klárlega. Ef gæði laganna eru metin er alveg ljóst að við erum með lag sem hefur kraft og stöðu til að fara mjög langt. Og auðvitað eigum við að vera með á að við getum unnið keppnina. Ég man reyndar þegar að við tókum fyrst þátt með Gleðibankann fórum við eiginlega til Björgvins í Norge með það að markmiði að vinna. Íslenska keppnisskapið út í eitt.

Vonbrigðin þá voru mikil. Höfum svosem lært okkar lexíu. Þá var stóra spurningin hvar við gætum haldið keppnina ef við myndum vinna. Allir spurðu sig að því þegar að Sigga og Grétar voru í toppslagnum 1990 með Eitt lag enn og þegar að Nei eða já fór vildum við fara alla leið. Þeir sem héldu utan um málefni RÚV voru með öndina í hálsinum þegar að Selma leiddi atkvæðagreiðsluna 1999 og þá stóðum við næst sigri.
 
Við getum alveg haldið þessa keppni. Nóg af stöðum til að spá í að hafa keppnina. Við erum þekkt fyrir að vera frumlegheit og redda hlutunum á mettíma. Verð þó að viðurkenna að ég sá ekki þessa hugmynd Þórhalls fyrir, eins smellin og hún er. Ágætt innlegg í sigurtilfinninguna degi fyrir úrslitin.

mbl.is Evróvisjón á vellinum?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslensk hitabylgja í kortunum

SólinVeðurspáin fyrir næstu dagana er alveg yndisleg. Hitabylgja í kortunum og stefnir í grillpartý hér allsstaðar á morgun samhliða Eurovision, sýnist mér. Verður allavega stuð og gleði á morgun, þegar að úrslitakeppnin fer fram. Svona spá er allavega algjör bónus við stemmninguna og eiginlega gulls ígildi.

Er líka mjög gott að fá svona góða tíð eftir veturinn. Eigum þetta öll svo vel skilið. Verður fróðlegt að sjá hvort við fáum jafngott sumar og í fyrra. Þá var mikil sól og mjög þurrt allt sumarið. Man varla eftir þurrari sumri, enda voru bændurnir fúlir og rigningardagarnir hér á Akureyri voru allavega léttilega teljandi.

En þetta er kærkomið fyrir okkur öll, verður syngjandi sæla þessa Eurovision-helgi.

mbl.is Næstum óraunveruleg veðurspá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslensk þjóðargleði - frábær árangur í Eurovision

Regína Ósk og Friðrik Ómar Eiginlega er það fyrst núna sem maður er að ná sér niður eftir gærkvöldið. Þvílík skemmtun í gærkvöldi. Algjörlega magnað. Þetta var auðvitað sannkölluð íslensk þjóðargleði, það var allavega fagnað alveg eins og við hefðum unnið keppnina. Eftir svo mörg ár í undankeppninni án nokkurs árangurs er þetta gleðilegur áfangi, hvað svo sem gerist á morgun. Allt í viðbót er plús.

Gleðin í gær var svo sönn. Finnst þetta jafnast eiginlega við gleðina eftir að við urðum í öðru sætinu árið 1999. Við vorum allavega komin í þörf fyrir því að fagna eftir mjög vond ár í Eurovision-keppninni. Höfum ekki verið í úrslitakeppninni síðan að Jónsi söng Heaven fyrir fjórum árum og löngu kominn tími til að við næðum lengra. Ef við hefðum ekki náð áfram með þessa flottu frammistöðu hefði verið hin stóra spurning hvað gæti þá eiginlega virkað á tónlistaráhugamenn Evrópu. En þetta gekk upp og gott betur en það.

Fannst reyndar merkileg tilviljun að við erum næst á eftir Póllandi á svið á morgun. Sama gerðist árið 1999. Selma Björnsdóttir var næst á svið eftir pólska laginu þá, sem ég man ekki hvað hét reyndar, enda minnir mig að því hafi ekki gengið sérstaklega vel. Pólska lagið er rólegt og vonandi mun stuðbylgjan í okkar lagi verða góð á eftir því. Held að við höfum verið heppin með okkar númer á úrslitakvöldinu.

Svo er auðvitað bara stuð og fjör á morgun, enn eitt Eurovision-partýið. Held að við getum verið stolt og ánægð hvernig sem fer úr þessu. Aðalmarkmiðið var að komast áfram, gera út af við bömmerinn mikla og þunglyndið yfir því að við næðum ekki upp úr undankeppninni. Úr þessu verður þetta bara stuð og gleði. Enda gerir okkar fólk sitt besta og gott betur en það.

mbl.is „Kom skemmtilega á óvart“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísland áfram - glæsilegt hjá Frikka og Regínu

Regína Ósk og Friðrik Ómar Loksins, eftir fjögurra ára bið, tókst Íslandi að komast upp úr undankeppninni í Eurovision í kvöld. Glæsilegur árangur. Frikki og Regína Ósk stóðu sig alveg glæsilega og leiftraði af þeim krafturinn og keppnisgleðin í atriðinu, sem var gríðarlega vel unnið og þau sungu sig inn í úrslitakeppnina með miklum glans.

Var alltaf viss um að þeim tækist þetta, enda eru þau svo miklir fagmenn í sínu, gera þetta pró og flott, að annað kom varla til greina. Keppnin hefur verið ein vonbrigði fyrir okkur síðan að Birgitta Haukdal náði tólfta sætinu með Open Your Heart vorið 2003. Selmu Björnsdóttur, Silvíu Nótt og Eiríki Haukssyni mistókst að komast áfram og því er það svo sætt að loksins hafi það tekist, burtséð frá því hvað gerist á laugardaginn.

Mikil gleði braust út í partýinu sem ég var í áðan. Verð þó að viðurkenna þegar að umslagið með Albaníu var dregið upp, á undan því íslenska, hugsaði ég með mér hvort að þetta myndi virkilega ekki takast. Áhyggjur voru óþarfar og væntanlega hefur gleðiöskur landsmanna glumið í hverju húsi með sjónvarp í lagi þegar að umslagið íslenska var fiskað upp úr körfunni. Svo var sérstaklega flott að bæði Svíþjóð og Danmörku tækist að komast áfram, þó að við hötum flest Charlotte Nilsson Pirrelli út í eitt eftir að hún rændi sigrinum af Selmu okkar fyrir níu árum.

Mörg flott lög komust áfram, var mest hissa á því að Portúgal tækist að komast áfram og svo var valið á hinum gamaldags reynsluboltum frá Króatíu skemmtilega óvænt. Norrænu þjóðirnar mega vel við una og verða öll á sviðinu á laugardag. Er það í fyrsta skiptið í fjöldamörg ár sem samnorrænn bragur verður á úrslitakvöldinu. Vonandi græðum við á því.

Líst annars vel á þetta á laugardaginn. Lykilmarkmiðið var að sanna að við kæmumst upp úr fjandans undankeppninni og það tókst. Allt annað er og verður plús. En vonandi náum við allavega inn á topp tíu, efri hluti þess yrði yndisleg búbót fyrir söngfuglana okkar, sem hafa staðið sig svo vel. Fyrir þjóðina er þetta fersk og góð vítamínssprauta á vordögum.

Óska ykkur innilega til hamingju með glæsilegan árangur Frikki og Regína Ósk. Þið hafið unnið vel fyrir ykkar - mikið er það nú sætt að ógæfa undankeppnanna síðustu árin er að baki og loksins eigum við skemmtilegt laugardagskvöld yfir keppninni eftir sorrífíling síðustu ára.

mbl.is Ísland áfram í Eurovision
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hversu þung refsing er 16 ára fangelsi í raun?

Litla-Hraun Alltaf eru það nokkur tíðindi þegar að einstaklingar eru dæmdir í 16 ára fangelsi fyrir manndráp. Held að lengsta refsing hérlendis í morðmáli hafi reyndar verið 20 ár í morðmálinu á Snorrabraut 1993 og svo 17 ár í Geirfinnsmálinu margfræga og Stóragerðismálinu fyrir tæpum tveim áratugum. Held að það hafi hinsvegar aldrei gerst að morðingjar sitji allan þann tíma sem þeir eru dæmdir til.

Þeir sem fá svona dóma geta væntanlega sloppið er rétt rúmlega helmingur hefur verið afplánaður. Svo eru dæmi um að þeir sem fremja alvarleg morð fá mun vægari refsingu og losna mun fyrr út þar af leiðandi. Held að morðmál séu þau mál sem flestir vilja þungar refsingar í. Mannslífið er það dýrmætasta sem hver og einn á. Sá sem bindur enda á það með ógeðfelldum hætti eiga að fá þunga refsingu og oftast nær hefur það farið svo hérlendis. Þó eru til þau mál þar sem mjög hefur verið deilt um hvort of vægt hafi verið dæmt og þeir sem fremja þau morð sleppi ekki einum of auðvelt frá sínu voðaverki.

Oft er rætt um hvort að morðingjar á Íslandi fái of væga dóma þegar að þeir þekktustu hefur verið sleppt út löngu áður en dæmd refsing er liðin. Refsirammi í svona alvarlegum málum verður í sjálfu sér alltaf umdeildur og eðlilegt að skiptar skoðanir séu á því. Mér hefur alltaf fundist of vægt dæmt í alvarlegum málum, gildir þá einu hvort það eru kynferðisafbrot eða morð. Hef alltaf litið á kynferðisafbrot sem sálarmorð í sjálfu sér, enda verður aldrei hægt að bæta úr þeim skaða sem unninn hefur verið, t.d. hafi slíkt staðið árum saman.

Kannski er ein ástæða þess að refsiramminn er umdeildur hversu léleg aðstaða fangelsismála hafi verið. Húsakostur íslenskra fangelsa er almennt fyrir neðan allt. Það er t.d. með ólíkindum að enn hafi ekki risið almennilegt fangelsi á höfuðborgarsvæðinu. Þrátt fyrir áralangt tal um að bæta húsakost fangelsa hefur lítið í því gerst, nema ef frá er skilin viðbygging á Litla Hrauni í dómsmálaráðherratíð Þorsteins Pálssonar, ritstjóra Fréttablaðsins. Eftir margra ára baráttu er loksins komið almennilegt fangelsi hér á Akureyri þó.

En dómurinn í dag vekur spurningar um hvort hann sé of þungur eður ei. Fyrir mér finnst mér stóra spurningin vera hvað felist í þessum þyngstu dómum. Er refsingin jafn harkaleg og hún hljómar. Þegar að umdeildir morðingjar sem hafa framið kaldrifjað morð eru lausir úr fangelsinu innan tíu ára er ekki nema von að spurt sé.

mbl.is Dæmdur í 16 ára fangelsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband