30.6.2008 | 21:17
Seigla í Benedikt Lafleur
Finnst reyndar alltaf merkilegt að heyra fréttir af svona afrekum. Auðvitað þarf kraft og kjark til að leggja í svona, hvort sem það er sund um heimsins höf, klifur á heimsins tinda eða gönguferð á pólana. Ég hef reyndar aldrei skilið fyllilega í því hvað það er sem keyrir fólk í að reyna að leggja svona afrek á sig.
Hlýtur að vera einhver fítonskraftur á bakvið það. Við sem lifum okkar hversdag og teljumst góð að komast í gegnum hann hljótum að dást að þeim sem leggja svona á sig.
![]() |
Barðist við vindinn í 10 tíma" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.6.2008 | 01:24
Verðskuldaður sigur hjá Spánverjum á EM

Þó að ég hafi haldið með Þjóðverjum alla tíð var ekki annað hægt en verða fyrir vonbrigðum með hversu daufir þeir voru í þessum úrslitaleik. Átti von á sterkari leik og hann myndi verða jafnari. Bæði lið voru hungruð í sigur á mótinu en krafturinn, einbeitingin og samstaðan í spænska liðinu var miklu sterkari. Þeir tóku þetta mót yfirvegað og klókt, voru mjög góðir.
Eiginlega átti ég von á því fyrirfram að þetta yrði enn eitt mótið þar sem Spánverjar myndu klúðra sínum málum. Þeir hafa ekki unnið titil síðan á heimavelli á EM 1964. Þeir voru eiginlega í bakgrunni góðs árangurs Króata, Rússa og Hollendinga. Fóru síðar lengra en þeir og trompuðu mótið, slógu niður þýska stálið.
Þeir eiga þetta skilið. Það kemur sér allavega vel núna að Spánn er það lið sem ég hef haldið með á EM, fyrir utan Þýskaland. Er ánægður með að þeim tókst loksins að losna við bölvunina miklu, að ná ekki að vinna stórmót áratugum saman.
Ekki annað hægt en hugsa hlýlega til Spánar á þessum kuldalega sumardegi hér fyrir norðan. Mikið væri helvíti gaman að vera á spænskri sólarströnd eða í Barcelona, fallegustu borg Evrópu, núna.
Viva España! :)
![]() |
Spánn Evrópumeistari |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.6.2008 | 19:27
Sunnudagsbíltúr í móðu
Þeir sem þetta gera bera hvorki virðingu fyrir sjálfum sér né öðrum í umferðinni. Þar vantar alla rökrétta hugsun í ölæðinu. Það þarf að taka á þeim sem svona gera. En auðvitað er það slæmt að eftir allar auglýsingarnar um ölvunarakstur og skilaboð um afleiðingar þess sé þetta að gerast.
Þeir sem lenda í þessu ná vonandi áttum og geta hugleitt hverjar afleiðingar slíkrar vitleysu geti orðið.
![]() |
Ofurölvi í sunnudagsbíltúr |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.6.2008 | 16:46
Afmælisbarnið og yfirráðin yfir veislunni

Þegar ég var barn bauð ég öllum þeim sem ég vildi þekkja og vildi eiga sem vini. Ekki bauð ég öllum bekknum mínum eða öllum jafnöldrum í skólanum sem ég var í. Fannst eiginlega að þetta væri augnablik sem ég vildi eiga með mínum nánustu og þeim vinum sem næst mér voru. Efast reyndar um að ég hefði viljað allan hópinn heim. Það er eðli afmæla að maður býður þeim sem maður vill helst fá í veisluna.
Finnst það frekar fyndið að eitt aðalumræðuefnið í Svíþjóð sé hvort bjóða eigi öllum jafnöldrum sínum í afmælisveisluna. Þetta er skondið mál en er merki um ótrúlega smámunasemi hjá frændum okkar Svíum. Hefði frekar trúað því að svona drama gæti gerst í Bandaríkjunum en í Svíþjóð, en alltaf heyrir maður eitthvað nýtt.
Hef enga samúð með þeim sem var ekki boðið í þetta afmæli. Afmælisbarnið hlýtur að ráða hvern hann vill, varla eiga aðrir að fá yfirráð. Þetta er veislan hans/hennar. Annað skiptir ekki máli. Þvílík sænsk væluklessa
![]() |
Barnaafmæli veldur uppnámi í Svíþjóð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.6.2008 | 02:11
Sterk skilaboð - umhverfismál eru mikilvæg
Held að öllum landsmönnum sé annt um Ísland og náttúru þess. Þetta á að vera okkar lykilmál. Öll viljum við vernda það og tryggja að komandi kynslóðir njóti þeirrar fegurðar sem við höfum upplifað. Stóru skilaboð þessara tónleika er hvað þessi mál eru mikilvæg og hvað við unnum landinu okkar mikils. Enda held ég að allir vilji gera sitt til að tryggja að það land sem við erfðum fái komandi kynslóðir að njóta.
Upplifði reyndar í dag merkilegan atburð í mínu lífi. Í dag fór ég í fyrsta skipti á minni ævi í Héðinsfjörð, sem var einn afskekktasti staður landsins. Mörg ár eru liðin frá því að ég vildi fyrst fara þangað. Þar til fyrir nokkrum mánuðum var aðeins hægt að komast þangað sjóleiðina. Fegurð Héðinsfjarðar hefur verið mörgum fjarlægur leyndardómur og margir aðeins látið sig dreyma hvernig þar sé. Þó kalt væri í Héðinsfirði í dag fannst mér það merkilegur áfangi að geta farið þangað. Þetta var yndislegur dagur.
![]() |
Óður til náttúrunnar í Laugardal |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
28.6.2008 | 09:48
Þrjú kynlífshneyksli nemanda og kennara í USA
Áttu þær allar í sambandi við stráka á aldrinum 14-17 ára, fleiri en einn nemanda. Sú elsta hafði reyndar átt í sambandi við sjö til átta hið minnsta að undanförnu. Mál af þessum toga bera vitni talsverðu siðleysi í Bandaríkjunum. Það er auðvitað skuggalegt þegar að kennarar sofa hjá nemendum sínum og misnota það traust sem skólayfirvöld gefa þeim með starfi sínu.
Engar málsbætur með því að kennarar eigi í kynferðislegu sambandi við nemanda sína, sem hafa ekki náð lögaldri. Það hefur reyndar fylgt sögunni í Bandaríkjunum að skv. könnunum telja margir Bandaríkjamenn eðlilegra að kvenkyns kennari sofi hjá nemanda en að karlkyns kennari geri slíkt hið sama.
Á þessu á varla að vera nokkur munur og greinilegt að eitthvað stórlega vantar á siðferði þeirra sem starfa í bandarískum skólastofnunum.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
28.6.2008 | 09:30
Eldur í Myndlistarskólanum á Akureyri
Vinur minn, Helgi Vilberg, skólastjóri Myndlistarskólans, hefur unnið gott verk þar og staðið sig vel við að byggja upp vandaða og góða kennslu í sínum fræðum. Þetta er skóli sem nýtur mikillar virðingar og hefur t.d. nýlega unnið til verðlauna á erlendum vettvangi, svo eftir var tekið. Mikilvægt er að hlúa vel að því starfi.
En þarna fór vel miðað við allar aðstæður. Vonandi mun uppbyggingin ganga vel eftir þennan eldsvoða. Færi Helga og hans fólki bestu kveðjur, með von um að vel gangi á næstu mánuðum.
![]() |
Bruni í Myndlistarskólanum á Akureyri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.6.2008 | 21:18
Er það nú sumar....
Segi bara eins og Ríó Tríó forðum í góðu lagi: Er það nú sumar....
![]() |
Varað við snjókomu og hálku |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
27.6.2008 | 14:11
Urriði verður minkabani í Ljósavatni
Margar eru þær veiðisögurnar sem vekja athygli og sumir þeir sem veiða hreykja sér af veiðinni einum of, sumir sýna stærð laxanna með handabendingum og lengja þá örlítið meira en eðlilegt telst. Alltaf gaman af skemmtilegum veiðisögum. Held þó að þessi slái flestar aðrar út. Ekki aðeins er hún sönn, heldur ótrúlega sönn.
![]() |
Urriði át mink |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.6.2008 | 11:22
Samið við flugumferðarstjóra - ánægjuleg tíðindi
Nógu skaddaður er hann nú fyrir vegna fjöldauppsagna og ástandsins í efnahagsmálum. Langt verkfall hefði haft víðtæk áhrif og skaðað þá sem síst skyldi. Væntanlega hefði það getað sloppið fyrir horn að taka einn til tvo daga í verkfall en lengra mátti það ekki vera.
Hefðu samningar ekki tekist fljótt og vel, eins og reyndin varð, hefði ríkisstjórnin átt að setja bráðabirgðalög. Ekki hefði verið viðunandi að hafa verkfall hér fram í júlímánuð. Samstillt átak afstýrði því. Eflaust verður hugleitt nú hvort stokka eigi upp rekstrarþætti flugumferðarinnar.
![]() |
Búið að semja |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.6.2008 | 01:18
Íslenskir fossar setja mark sitt á Austurá

Michael Bloomberg, borgarstjóri í New York, hélt flotta ræðu til heiðurs Ólafi þegar fossarnir voru vígðir og talaði þar mikið um hinar dönsku og íslensku rætur listamannsins. Hann komst mjög vel að orði. Þetta er metnaðarfullt og flott verk og er kjörið til að vekja athygli og um þetta er fjallað í öllum fjölmiðlum vestanhafs í kvöld. Slær í gegn.
Alltaf gaman að sjá þegar Íslendingum gengur vel á erlendum vettvangi. Ólafur er að gera það gott og ánægjulegt að sjá hversu mikils metin list hans er. Hönnun hans á glerhjúpnum á Tónlistar- og ráðstefnuhúsinu í Reykjavík er stórglæsileg og verður gaman að sjá hana lifna við er húsið rís.
![]() |
Fossar falla í Austurá |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
26.6.2008 | 22:26
Spánverjar valta yfir Rússana

Varla var að sjá að Rússar væru hungraðir í sigur, voru skugginn af liðinu sem valtaði yfir Hollendinga um síðustu helgi og virtust líklegir til að fara jafnvel alla leið. Í kvöld voru þeir lélegir og báru meiri virðingu fyrir Spánverjum en flestir áttu von á að þeir myndu sýna í svo mikilvægum leik. Niðurstaðan því háðugleg útreið fyrir Rússa og eflaust er bömmer í Rússlandi í kvöld.
Maðurinn sem stýrði yfirtökunni á Hollandi á laugardaginn, Arshavin, var tekinn úr umferð og var ekki mjög áberandi. Auk þess var greinilegt að Rússar voru ekki í stuði og því fengu þeir svo vondan skell.
Líst vel á úrslitaleikinn á sunnudag. Verður fínn lokapunktur á mótinu. Spánverjar hafa beðið lengi eftir sínu tækifæri og Þjóðverjar eiga harma að hefna eftir HM 2006. Bæði lið ættu því að mæta hungruð til leiks.
Fátt annað hægt að segja í lokin en Deutschland über alles!

![]() |
Spánn mætir Þýskalandi í úrslitum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
26.6.2008 | 19:00
Stelpurnar að brillera - farseðill á EM í sjónmáli

Ef þær halda áfram að spila eins og þær gerðu í kvöld er næsta víst að það mun takast. Fókusinn er nú á kvennalandsliðið mun frekar en karlaliðið, sem er heillum horfið og í tómum vandræðum. Nú flykkist fólk á völlinn til að sjá stelpurnar okkar, sem eru að uppskera flott. Loksins er kvennaboltinn að fá verðskuldaðan sess. Nú er hann í ljóma sigursældar og góðs árangurs.
Þeir dagar eru liðnir að litið sé á kvennaboltann sem minna spennandi en karlaboltann. Þetta er hið besta mál. Þetta er lið sem getur farið mjög langt - liðsheildin er öflug og landsmenn styðja stelpurnar 110%. Allt skiptir þetta máli - úr verður sigursæl blanda, sem varla getur klikkað. Það sjáum við vel á þessum fagra júnídegi.
![]() |
Yfirburðasigur á Grikkjum, 7:0 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
26.6.2008 | 12:06
Nektarmynd af Dorrit - ný hlið á forsetafrúnni

Dorrit hefur greinilega farið úr hverri spjör til að vera nektarfyrirsæta fyrir vinkonu sína, listamanninn, einhvern tíma löngu áður en hana óraði fyrir að hún ætti eftir að enda sem forsetafrú á Íslandi, við hlið Ólafs Ragnars Grímssonar. Ekki verður allavega sagt hið sama um Kristin Styrkársson Proppé og Dorrit að þau geri allt fyrir frægðina nema að koma nakin fram. Enda sjá allir sem horfa á myndina að þarna hefur Dorrit setið nakin fyrir.
Þrátt fyrir að Dorrit Moussaieff hafi verið við hlið Ólafs Ragnars Grímssonar í tæpan áratug, fyrst sem framandi kona í matarboði á Bessastöðum sem enginn kannaðist við, síðar sem unnusta hans í þrjú ár og loks eiginkona og forsetafrú í fimm ár vita fáir hver Dorrit er á bakvið myndavélablossann og brosin á myndunum. Hún er enn framandi, viss leyndardómur fyrir þjóðina
Nakta konan á þessari mynd er allavega forsetafrúin okkar. Finnst stórmerkilegt að forsetaskrifstofan hafi ekki staðfest að þetta er Dorrit sem er nakin á þessari mynd. Eru þeir að reyna að afneita fréttinni eða hún gleymist. Væri gaman að vita hvaða vandræðalegheit felast í því hiki sem er á bakvið þá bið eftir staðfestingu um að nakta konan á myndinni sé konan í lífi forseta Íslands.
Eða er nektin kannski vandamál fyrir forsetaskrifstofuna og konuna á forsetavakt? Má vera, varla getum við þá átt von á að forsetinn sitji fyrir hjá listakonunni.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
26.6.2008 | 00:29
Þjóðverjar í úrslit - Tyrkir fara heim með sæmd

Þvílíkur megapirringur að leikurinn datt út æ ofan í æ og aðeins hægt að sjá á svipbrigðum stuðningsmanna í Tyrklandi og Þýskalandi hvernig staða leiksins var - hvað væri eiginlega að gerast. Sérstaklega var biðin eftir sambandi við leikinn erfið á meðan tvö mörk komu undir lokin og menn voru að reyna að spá í svipbrigði fólksins hvað væri að gerast í leiknum. Svolítið sérstakt að horfa á leik þannig og eiginlega ekki beint áhugavert.
En þetta var fínn leikur og flott að sjá Þjóðverja í úrslitum. Þjóðhetjan Lahm tók þetta með trompi undir lokin og sendi Tyrkina heim með stæl. Hef haldið með þýska landsliðinu á knattspyrnustórmótum síðan ég man eftir og þetta mót engin undantekning þar á. Vonandi ná þeir að vinna Spánverja eða Rússa á sunnudag.
Rússar hafa verið að standa sig mjög vel og eru með sannkallað spútnikk-lið með Arshavin fremstan í flokki. Finnst líklegra að þeir komist í úrslitin. Verður spennandi fótboltakvöld á morgun.
![]() |
Þjóðverjar unnu Tyrki 3:2 og leika til úrslita |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 00:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
25.6.2008 | 23:31
Magga Blöndal stýrir hátíðarhöldum um versló

Með því að fá nýtt fólk að borðinu, með góð tengsl og nýjar hugmyndir, má reyna að læra af mistökum síðustu ára hvað varðar hátíðarhöld um versló og gera enn betur. Margt gott hefur verið gert í vinnu síðustu ára og enginn vafi leikur á því að Akureyri hefur verið með eina öflugustu og sterkustu hátíðina um þessa helgi síðustu ár og þangað hefur fjöldi fólks komið. Deilt hefur þó verið um umgjörð hátíðarhaldanna af miklum krafti og sitt sýnist hverjum.
Enginn vafi leikur á því að ríflegur meirihluti bæjarbúa vill hátíðarhöld á Akureyri um verslunarmannahelgina. Það sýna kannanir - virða á þann afgerandi vilja bæjarbúa. Það form af hátíðarhöldum og verið hefur síðustu ár er þó fjarri því heilagt og hægt að gera marga og spennandi hluti í þeim efnum. Treysti Möggu Blöndal vel til að taka á því og stýra því af krafti og ábyrgð. Bæjaryfirvöld og þeir sem hafa verið lykilbakhjarlar hátíðarhaldanna reyna nú að finna nýtt upphaf - skapa nýja og vel heppnaða umgjörð að versló á Akureyri - vonandi tekst það vel.
![]() |
Margrét Blöndal stýrir verslunarmannahelginni á Akureyri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.6.2008 | 12:43
Eru bankarnir að fegra sjálfa sig í krísutíðinni?
Ekki er við því að búast að tíðindin um að bankarnir hafi hagnast um 80 milljarða króna vegna veikrar stöðu íslensku krónunnar styrki stöðu þeirra meðal almennings. Stóra spurningin er reyndar hvort bankarnir séu að fegra ársfjórðungsuppgjör sitt með gjaldeyrisviðskiptum. Varla mun það verða til að styrkja stöðu þeirra.
Almenningur í landinu fer brátt að finna vel fyrir vondri tíð, sannkallaðri krísutíð. Sumarið verður mörgum erfitt, en varla mun þó niðursveiflan koma endanlega fram fyrr en í haust. Flest bendir til að þá verði lendingin hörð og erfið, þegar eru merki um hvert stefnir og augljóst að hátt bensín- og matarverð eru fyrstu áþreifanlegu merkin um hvernig staðan sé fyrir fólkið í landinu. Fjöldauppsagnirnar hjá Icelandair eru því miður boðberi þess sem koma skal.
Þessar tölur og tíðindi um hvernig bankarnir styrkjast á falli krónunnar, styrkjast á því að eigur landsmanna og þeirra einkahagur fuðrar upp, er þeim ekki til vegsauka. Stóra spurningin verður hvernig bönkunum gangi að plumma sig í stöðunni og hvort ríkið muni verka þá upp eftir allt útrásarfylleríið síðustu árin, sem virðist hafa verið innistæðulausara en mörgum óraði fyrir.
![]() |
Bankarnir fá 80 milljarða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 21:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
25.6.2008 | 01:18
Trúir virkilega einhver svona peningasvindli?
Varla líður sá mánuður, stundum enn skemmra jafnvel, að maður fái ekki einhvers konar svona skilaboð um peningasvindl í tölvupósti. Auðvitað hvarflar ekki að manni að taka mark á þessu rugli en vonandi eru aðrir orðnir meðvitaðir um að það er bara verið að hafa það að fífli. Þessi svikamylla með símaskilaboðum er þó nýtt, en vonandi fellur enginn fyrir þessu.
Skilaboðin eru giska einföld; föllum ekki flöt fyrir peningasvindlinu.
![]() |
Varað við SMS skilaboðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
24.6.2008 | 13:16
Geir reynir að tala upp krónuna í krísutíð
Ummæli Geirs í dag um krónuna hljóma þannig að hann vilji ekki taka meiri áhættur en orðið er, hann ætli sér að standa við stefnu sína og afstöðu til lykilmála. Hann tekur pólitíska áhættu með því að halda fast við fyrri afstöðu og telur það rétta skrefið. Staðan er að öllu leyti mjög óljós og greinilegt að Geir heldur fast við fyrri afstöðu þrátt fyrir að ástandið sé farið úr böndunum og við stefnum í mikla óvissutíð þar sem ekkert er öruggt.
Ekki er við öðru að búast en óánægjan vegna verðhækkana á öllum sviðum komi niður á stjórnarflokkunum rétt eins og almennt er þessa stundina víðar í Evrópu, t.d. Bretlandi þar sem Gordon Brown er orðinn óvinsælasti forsætisráðherra Bretlands frá valdadögum Neville Chamberlain og Verkamannaflokkurinn mælist helmingi minni en Íhaldsflokkurinn. Nú reynir á þá sem eru við stjórnvölinn og augljóslega eru erfiðir tímar framundan, þar sem reynir bæði á stjórnarflokkana og forystumenn þeirra. Ef þeir missa ekki fylgi til stjórnarandstöðunnar, í takt við nýjustu kannanir, er það merkileg þróun.
Eflaust munu margir blóta Geir fyrir að verja íslensku krónuna og reyna að tala upp botnstöðuna. Hann heldur þar með fast við fyrri afstöðu og tekur þá pólitísku áhættu sem felst í stöðunni. Fróðlegt verður að sjá hvort hann mun koma sterkur frá þeirri krísutíð sem markar nú stjórnmálaferil hans og reynir á forystu hans í íslenskri pólitík.
![]() |
Forsætisráðherra: Gengi krónunnar of lágt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
24.6.2008 | 00:33
Er hvolpaeigandinn sjálfur hundaníðingurinn?
Mikilvægt er að þetta mál verði upplýst að fullu og tekið á því. Sá sem ætlaði að kviksetja hundinn verður að horfast í augu við gjörðir sína og taka út refsingu fyrir það. Annað er eiginlega ekki í stöðunni. Finn vel að mikil reiði er vegna málsins og ólga í þeim sem skrifa um það. Finnst það eðlilegt. Þetta var grimmilegur verknaður, alveg skelfilegur, og ekki undarlegt að fólk skrifi af tilfinningarhita í þeim efnum.
Sé að sumir líkja þessu máli við Lúkasarmálið fyrir ári. Þar var farið af stað með sögusagnir um hverf hunds og ýmislegt sagt í hita leiksins án þess að vita hvað væri rétt eða rangt. Þarna er talað um alvarlegt mál, þar sem átti að grafa hund lifandi. Finnst þetta ekki sambærilegt. Kannski er þetta líkt að því leyti að þarna er deilt um hunda, en lengra nær samanburðurinn ekki.
![]() |
„Allur að koma til“ |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)