26.6.2010 | 11:24
Pétur Blöndal fer fram á móti Bjarna Ben
Hið besta mál er fyrir Bjarna Benediktsson að láta reyna á stöðu sína í kosningaslag við annan þingmann flokksins. Þetta ætti aðeins að styrkja flokkinn til verkanna framundan og veita formanninum öflugra umboð í þeirri uppbyggingu sem framundan er.
Mér finnst samt að Bjarni Benediktsson eigi að vera áfram formaður Sjálfstæðisflokksins og styð hann til þess. Tel að hann eigi að fá að leiða flokkinn í næstu þingkosningar, sem verða eflaust fljótlega þar sem vinstristjórnin lánlausa er komin að fótum fram.
![]() |
Pétur vill formanninn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.6.2010 | 18:04
Einræðislegir tilburðir í Efstaleitinu
Brotthvarf Ernu Óskar Kettler úr stöðu sem hún hafði nýlega fengið átti að sjálfsögðu að leiða til þess að farið væri aftur í umsóknabunkann og velja þann hæfasta sem sótti um.
Svona vinnubrögð eru varla boðleg og hljóta að hafa einhver eftirmál. Ekki er boðlegt að ganga framhjá fjölda frambærilegra umsækjenda og handpikka í svo feita stöðu.
![]() |
Staðan ekki auglýst |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.6.2010 | 13:57
Breytir Jón Gnarr kerfinu eða breytir það honum?
Óneitanlega er það skemmtilega súrrealískt að sjá Jón Gnarr viðhalda öllum gömlu hefðunum sem borgarstjórar fyrri tíðar hafa tekið upp, t.d. að veiða í Elliðaánum. Ætli þetta sé einn gjörningurinn enn eða hreinlega bara nettur brandari? Erfitt að sjá. Jón hefur farið af stað á kómíkinni og skrifar skemmtilega netdagbók á facebook sem er skemmtilega samhengislaus og flottur djókur.
Einhvern tímann kemur að því að nýji borgarstjórinn verður að taka erfiðar ákvarðanir þar sem gamansemin er lítil sem engin. Þá reynir fyrst á hann. Jón nýtur á meðan hveitibrauðsdaganna. Grínistar fá kannski fleiri en hundrað slíka. Aldrei að vita.
![]() |
Borgarstjóri veiddi lax |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.6.2010 | 00:30
Hamingjuóskir til Helenu
Ég fagna því jafnan mjög þegar hvunndagshetjur og venjulegt fólk fær fálkaorðuna - mun frekar en embættismenn sem fá hana fyrir að mæta í vinnuna hjá hinu opinbera. Vil óska Helenu Eyjólfsdóttur sérstaklega til hamingju með að fá orðuna í dag. Hún hefur fyrir löngu sungið sig inn í hug og hjörtu landsmanna.
Það er ekki hægt annað en rifja upp þetta fallega lag, Ástarljóðið mitt, með þeim heiðurshjónum, Helenu og Finni Eydal, í upptöku frá árinu 1990.
![]() |
Tólf fengu Fálkaorðuna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.6.2010 | 18:04
L-listinn tekur við völdum á Akureyri
Fáum hefði órað fyrir því þegar Oddur klauf Framsóknarflokkinn fyrir tólf árum og batt í raun enda á lykilstöðu hans í bæjarmálunum að hann ætti eftir að vinna svo glæsilegan sigur og verða aðalmaðurinn í bæjarmálunum. Sá sigur er til kominn bæði vegna þess að L-listinn hafði engar tengingar við landsmálin og hafði breiðari skírskotun auk þess að hinir hefðbundnu fjórflokkar áttu allir í miklum innri erfiðleikum.
Þeir eru nú algjört blæðandi sár. Mikið uppbyggingarstarf blasir við okkur í Sjálfstæðisflokknum á Akureyri. Aldrei fyrr hefur oddviti D-listans setið einn í bæjarstjórn án þess að hafa fólk þar með sér af listanum. Eftir tólf ára lykilstöðu Sjálfstæðisflokksins á Akureyri er hann nú valdalaus og þarf að fara í mikla grasrótarvinnu á næstu árum. Það er mikil ögrun - mikið verkefni.
Á meðan Listi fólksins fer eitt með völdin er mikilvægt að Bæjarlistinn og hinn lamaði fjórflokkur standi í lappirnar og veiti aðhald, séu öflugir og samhentir í stjórnarandstöðu. Það er verkefnið framundan fyrir þá, auk þess sem allir eiga þeir erfiða vinnu framundan að byggja sig upp.
![]() |
Geir forseti bæjarstjórnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.6.2010 | 12:44
Tár, bros og brúnka á Alþingi
Súrrealískt hefur verið að fylgjast með þingstörfum. Oftar en ekki minnir þjóðþingið á sandkassa þar sem tækifærismennskan er algjör. Óbreyttir þingmenn gráta yfir óbreyttu verklagi, einkum þingmenn vinstri grænna sem hafa verið beittir kúgun og yfirgangi í takt við það sem áður þekktist þar sem yfirgangur stjórnarparsins er algjör. Stjórnarparið brosir yfir því að fá loksins að ráða og eru eins og sól í heiði, þó ríkisstjórnin þeirra sé þó algjörlega máttlaus og ráði ekkert við vandann.
Sumir eru svo í limbói - ráða talsverðu sem ráðherrar en eru í gíslingu. Gott dæmi er Jón Bjarnason, sem hefur algjörlega verið lokaður í búri og niðurlægður. Enda er hann ekki kallaður stjórnarandstæðingurinn í ráðherrabílnum fyrir ekki neitt. Forsætisráðherrann hefur ekki stýrt málum vel og hefur niðurlægt samstarfsmenn sína með háðsglósum á borð við kattasmölun í samstarfsflokknum, sem var mjög smábarnalegt og klaufalegt klúður.
Svo er rifist um brúnku eins ráðherrans.... er ekki hægt að lyfta þessu upp á hærra plan. Þjóðin mun ekki hafa þolinmæði fyrir smábarnastælunum á þingi miklu lengur.
![]() |
Rætt um brúnku Árna Páls á Alþingi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.6.2010 | 15:37
Hanna Birna á að hafna boði Besta Sam
Þá hefðu vinnubrögð í stjórnmálum verið stokkuð upp. Jón Gnarr klúðraði fyrsta prófinu eftir kosningar. Hann fór beint í hefðbundið flokkamakk, var alveg eins og allir hinir. Ekki verður séð að mikið hafi breyst með meirihlutamakki Besta Sam.
Boðið um stóla og völd hefur lítið að segja fylgi því engin áhrif á stefnumótun og ákvarðanatöku. Hanna Birna á ekki að vera nein skrautfjöður fyrir meirihluta sem myndaður var á sandi.
![]() |
Hanna Birna hefur ekki tekið ákvörðun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.6.2010 | 20:22
Hanna Birna fer ekki í landsmálin
En ég skil þessa ákvörðun. Hanna Birna ætlar að sinna borgarmálunum og fara í verkin þar. Heilsteypt og traust vissulega. Þó Sjálfstæðisflokknum hafi mistekist að verða stærsti flokkurinn í borgarmálunum á þessu kjörtímabili vann Hanna Birna nokkurn varnarsigur með því að vera aðeins 600 atkvæðum á eftir Besta flokknum og takast að lyfta flokknum talsvert upp í borginni eftir hrunið. Hún ætlar eflaust að sinna því verkefni vel.
Stóra spurningin nú er hvort Hanna Birna verði forseti borgarstjórnar þegar Besti Sam tekur við borginni. Mér finnst boðið til hennar koma frekar seint. Hefði Jóni Gnarr verið alvara með þverpólitísku samstarfi og þjóðstjórn allra flokka hefði hann stokkað pólitíkina upp og efnt til samstarfs við alla í stað þess að fara í makk með Samfylkingunni. Þar klúðraði hann stóra tækifærinu. Hann fór beint í sama makkið.
Ég ætla að styðja Ólöfu Nordal sem varaformann Sjálfstæðisflokksins á landsfundinum. Þekki hana úr flokksstarfinu hér í Norðausturkjördæmi, en hún byrjaði stjórnmálaferil sinn hér fyrir tæpum fjórum árum og stimplaði sig til leiks. Verið mjög vaxandi í pólitískum verkum í þeim ólgusjó sem fylgdi hruninu og því að fara í stjórnarandstöðu. Hún er góður valkostur.
![]() |
Hanna Birna býður sig ekki fram |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.6.2010 | 00:21
Vegleg gjöf til Sjúkrahússins á Akureyri
Það er í sjálfu sér mjög mikils virði og ber að virða mikils það framtak.
![]() |
Gaf sjúkrahúsinu 45 milljónir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.6.2010 | 21:25
Jóhanna flækt í eigin spuna
Hún tekur enga ábyrgð á afleitu verklagi sem unnið var á fulla ábyrgð hennar og af nánustu samstarfsmönnum hennar í ráðuneyti og bankaráði Seðlabankans. Hún er að fjara út og það skynja allir sem fylgjast með pólitíkinni.
Jóhanna getur ekki flúið ábyrgð í þessu máli. Hún er flækt í eigin spuna.
![]() |
Pólitískt áhlaup á mig" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.6.2010 | 19:17
Pínleg afneitun Jóhönnu
Atburðarásin sem opinberast gefur til kynna að löngu hafi verið ákveðið hver ætti að fá stöðuna og svo hafi verið reynt að fara marga hringi til að tryggja honum sem mestu launakjör miðað við þann ramma sem tryggður hafði verið. Unnið var í því á fullu af hálfu forsætisráðuneytisins og koma nánir samstarfsmenn forsætisráðherrans beint að því.
Fáir trúa því að forsætisráðherrann sjálfur hafi enga aðkomu haft að því eða lagt á ráðin um það. Þetta er vandræðalegt mál og hlýtur að vekja spurningar um af hverju forsætisráðherra komi ekki hreint fram og viðukenni hið augljósa.
![]() |
Ræddi ekki launamálin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.6.2010 | 21:37
Jóhanna laug að þingi og þjóð
Nú er endanlega staðfest að Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, laug að þingi og þjóð um launakjör Más Guðmundssonar, seðlabankastjóra. Því verður ekki neitað lengur að hún lofaði honum sömu launakjörum og fyrri bankastjórar höfðu og þar með 400.000 króna launahækkun, sem enginn vildi síðar kannast við. Þá féll Lára V. Júlíusdóttir, formaður bankaráðs Seðlabankans, á sverðið fyrir Jóhönnu vinkonu sína þó öllum mætti ljóst vera að hækkunin væri loforð úr forsætisráðuneytinu.
Jóhanna hefur sloppið ótrúlega billega frá þessu máli. Ekki er eðlilegt að forsætisráðherra ljúgi að þingi og þjóð um mál af þessu tagi. Furðulegt er að aldursforseti þingsins, sjálfur forsætisráðherrann, hafi lagst svona lágt til að þagga málið niður en það kemur nú allhressilega í bakið á henni.
Jóhanna Sigurðardóttir var sem stjórnarandstöðuþingmaður mikill og sjálfskipaður siðferðispostuli sem þóttist öllum öðrum fremur geta dæmt menn og málefni. Nú ætti hún að taka það til fyrirmyndar og ákveða næstu skref sín, hvort svo sem hún segir af sér eða reynir að snúa staðreyndum á hvolf.
Sé hún sjálfri sér samkvæm hlýtur hún að segja af sér embætti. Hún er reyndar þegar orðin ansi völt í sessi eftir sveitarstjórnarkosningarnar þar sem Samfylkingin galt afhroð á landsvísu en lafir samt enn á völdunum.
Hún ætti kannski að taka annan lame duck á forsætisráðherrastóli, Halldór Ásgrímsson, sér til fyrirmyndar, en í dag eru fjögur ár síðan hann sagði af sér forsætisráðherraembættinu, mæddur og sár.
![]() |
Már og Jóhanna ræddu launin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.6.2010 | 17:59
Stólapólitíkin lifir góðu lífi í Reykjavík
Pólitíkin er skrítin tík. Fjórflokkurinn fékk útreið í kosningum í Reykjavík og grasrótarframboð komst í oddastöðu - nýtti sér það ekki til að stokka pólitíkina upp og stofna til þjóðstjórnar á sínum forsendum heldur fór beint í faðm þess sem tapaði kosningunum. Skellur Samfylkingarinnar í Reykjavík var mikill og í raun með ólíkindum að Dagur B. Eggertsson hafi ekki þegar sagt af sér, enda rúinn trausti og fjarri því sá sem borgarbúar vildu að stýrðu málum í Reykjavík.
Jón Gnarr komst til valda og áhrifa á þeim forsendum að fólk vildi eitthvað nýtt. Síðasta atkvæðið hafði varla verið talið þegar þeir voru komnir í eltingaleik við Samfylkinguna og samdi um stólana. Málefnin hafa varla komist á blað. Blaðamannafundur Jóns og Dags í gær fjallaði aðeins um völdin og stólaskiptin, málefnin voru ekki til umræðu og þeir hafa ekki sýnt á spilin sín hvað málefnin varðar.
Þetta er í takt við myndun hundrað daga meirihlutans árið 2007 þegar enginn málefnasamningur var gerður og þau sett síðast á dagskrá. Samið var um stólana og valdahlutföll en málefnin sett til hliðar. Þetta var afar leitt. Nú á þessum tímum hefði ekki veitt af uppstokkun. Láta átti stólapólitíkina lönd og leið - henni var jú hafnað í kosningunum um síðustu helgi, ekki satt?
Mynda átti þjóðstjórn allra framboða og ráða faglegan borgarstjóra. Lengi vel hélt ég að Besti flokkurinn væri algjört grín. Fyrst farið var með brandarann alla leið átti Jón Gnarr að sjá sóma sinn í því að standa fyrir því að ráða faglegan borgarstjóra og kalla eftir samstarfi allra sem sitja í borgarstjórn. Með því hefði verið lagður grunnur að nýjum tímum og samvinnu allra aðila.
Ekki var byrjunin góð. Dagur og Jón litu út eins og tveir vonlausir trúðar í Kastljósi gærkvöldsins. Þeim gekk illa að útskýra framtíðarsýn nýs meirihluta. Stólar og völd voru eina umræðuefnið sem þeir gátu svarað. Nýjabrumið af þessum meirihluta er lítið og brandarinn er orðinn frekar súr. Nú verða menn að fara að sýna á spil sín og taka erfiðar ákvarðanir. Þetta er enn eftir.
Ég hef svo séð mikla umræðu um Danabrandarann hans Jóns Gnarr. Hann hefur augljóslega farið um allt í Norðurlöndunum. Þrír danskir vinir mínir á facebook og nokkrir í Svíþjóð og Noregi höfðu séð fréttina hjá Extrabladet og vildu vita meira um þennan furðulega borgarstjóra sem við hefðum eignast.
Tók smátíma að fara yfir það með þeim. Rétt eins og Silvía Nótt er þessi brandari Besta flokksins og Jóns Gnarr mjög lókal og ekki skiljanlegur á öðrum tungumálum. Versta virðist vera að hann ætlar að verða aulabrandari fyrir borgarbúa að óbreyttu. Stjórnmálin breytast lítið sýnist mér.
Stólapólitíkin sem leiddi af sér ítalska ástandið á síðasta kjörtímabili heldur áfram og vandséð hvort nokkur pólitískur stöðugleiki verði í þessum fimmaurabrandara.
![]() |
Danir rifja upp myndband með Jóni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
4.6.2010 | 18:45
Nú hefst fjörið fyrir alvöru hjá Jóni Gnarr
Sem stjórnmálamaður er hann hinsvegar óskrifað blað... fyrir utan nokkra brandara hefur fátt markvert komið frá honum á þeim vettvangi og öll viljum við fara að sjá meira, tel ég. Nú fær hann að láta ljós sitt skína og hefur Dag B. Eggertsson, hundrað daga borgarstjórann, með sér sem varaskeifu, hvorki meira né minna.
En nú hefst fjörið fyrir alvöru hjá Jóni. Nú verður hann að fara að tala eins og stjórnmálamaður og taka erfiðar ákvarðanir. Það er ekkert grín oftast nær.
Er eitthvað á bakvið brandarann? Það verður fróðlegt að sjá borgarstjóravakt Jóns, þar sem hann hefur lúserana í Samfylkingunni sem varaskeifur.
![]() |
Jón Gnarr verður borgarstjóri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
4.6.2010 | 11:36
Söngstjarnan Whitney fuðrar upp
Whitney brann upp upp fyrir í baráttunni við dópdjöfulinn sjálfan. Baráttan við fíknina hefur kostað hana söngröddina og tækifærin í bransanum og hjónabandið við Bobby Brown hefur orðið henni dýrkeypt og eyðilagt ferilinn. Persónulegir erfiðleikar Whitney hafa verið alþjóðlegt fjölmiðlaefni nú árum saman og eiginlega sorglegt að sjá hvernig fór fyrir henni. Sjálf tók hún rangar ákvarðanir og hafði ekki það sem þurfti til að byggja sig upp aftur.
Það vakti t.d. mikla athygli þegar að Whitney slaufaði sig út úr kvikmyndasöngatriði Burt Bacharach á óskarsverðlaunahátíðinni á aldamótaárinu, þar sem margar vinsælustu söngstjörnur seinni ára komu saman og tóku lagið. Whitney átti upphaflega að verða eitt af stærstu númerum atriðsins og Burt hafði valið henni nokkur lög til að syngja, þar á meðal óskarsverðlaunalagið úr A Star is Born. Hún mætti illa og stundum alls ekki á æfingar.
Burt rak hana úr atriðinu með eftirminnilegum hætti og skarð hennar var fyllt af Queen Latifah og frænku hennar, Dionne Warwick, sem kom fram eftir áralanga fjarveru og söng lagið úr Alfie. Þetta var fyrsta merkið um endalokin og síðan orðið æ fleiri. Tónleikaferðin hefur verið frekar sorglegur endapunktur og eiginlega stórundarlegt að ferðinni skyldi ekki slaufað eftir floppin í Bretlandi, þar sem augljóst var að Whitney var laglaus.
Þetta hlýtur að teljast eitt mesta stjörnuhrap bandarískrar tónlistarsögu - sjálfskaparvíti hið mesta hjá einni mestu söngstjörnu síðustu áratuga. Ekki dugar til að vera goðsögn í bransanum til að fóta sig aftur. Fallið getur orðið harkalegt.
![]() |
Whitney Houston gekk fram af Dönum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.6.2010 | 12:55
Hermann gerir mikil mistök með því að sitja áfram
Er frekar undrandi á því að Hermann Jón Tómasson ætli að gera Samfylkingunni á Akureyri þann mikla óleik að sitja áfram eftir að hafa verið hafnað afdráttarlaust af bæjarbúum. Kosningaúrslitin á Akureyri um síðustu helgi voru afgerandi skilaboð til Hermanns og Sigrúnar Bjarkar Jakobsdóttur - þeim var hafnað, forystu þeirra í meirihlutanum var hafnað og pólitískri forystu þeirra í Sjálfstæðisflokki og Samfylkingu var hafnað.
Sigrún Björk tók þá ábyrgu og traustu afstöðu að víkja af velli - ekkert annað var hægt í stöðunni fyrir Sjálfstæðisflokkinn á Akureyri og fyrir hana sjálfa var það rétt skref. Með því veitti hún grasrót flokksins sóknarfæri í þröngri stöðu - hefja endurreisnarferlið og fara í þá vinnu sem fylgir miklu áfalli, afhroði í kosningum. Þeir sem klúðra málum svo afgerandi og fá svo þungan áfellisdóm eiga ekki að sitja lengur á stólum sínum.
Fjórflokkurinn á Akureyri er eitt blæðandi sár eftir kosningaúrslitin. Áfall nýju leiðtoganna: Guðmundar Baldvins og Andreu Hjálmsdóttur, er mikið enda sátu flokkar þeirra í minnihluta en þeir töpuðu miklu fylgi og fengu alveg gríðarlega útreið - græddu ekkert á andstöðunni við fallna meirihlutann. En kosningaúrslitin voru pólitísk endalok fyrir Sigrúnu og Hermann - bæjarbúar einfaldlega ráku þau.
Samfylkingin á Akureyri þarf augljóslega á nýrri pólitískri forystu að halda, rétt eins og Sjálfstæðisflokkurinn. Meirihluti flokkanna var verulega floppaður og gerði mikil og alvarleg mistök. Bæjarbúar hentu honum í ruslatunnuna um síðustu helgi og spörkuðu leiðtogunum. Afhroðið er það mikið og afgerandi að því verður ekki neitað.
Ég vorkenni Samfylkingarfélögum að þurfa að sitja upp með þennan forystumann og fara ekki strax í gegnum þá endurnýjun sem þarf. Sigrún Björk veitti okkur sjálfstæðismönnum þetta mikilvæga tækifæri en Hermann skynjar ekki stöðuna rétt. Með því gerir hann félögum sínum mikinn óleik - get ekki ímyndað mér annað en eldar logi þar.
![]() |
Hermann situr áfram |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.6.2010 | 18:17
Víraður húmor í borgarmálunum
Óborganlegt hefur verið að fylgjast með farsanum í borgarmálunum eftir að grínið tók völd og Dagur B. Eggertsson varð að dansa víraðan dans til að ná athygli Jóns Gnarr - fyrst og fremst með því að fá seríurnar af Wire til að teljast gjaldgengur í viðræðurnar. Stundum veit maður varla hvort grínistinn eða "stjórnmálamaðurinn" Jón Gnarr talar - erfitt að finna algjörlega línuna þarna á milli.
Þessi brandari er að verða svolítið þreyttur og gæti endað með vænum timburmönnum... eða hvað, við sjáum til.
Kannski er þetta bara einn stór gjörningur eins og Guðni Ágústsson sagði í vikunni.
Verður það Borgarvaktin næst?
![]() |
Víraðar viðræður í borginni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.6.2010 | 01:02
Hugsjónirnar ekki sviknar í valdaplottinu
Besti flokkurinn og Næstbesti flokkurinn sviku sín loforð og voru komnir í sama gamla valdaplottið bakvið tjöldin um leið og síðasta atkvæðið hafði verið talið. Hafi einhverjir talið að með því að kjósa þau væri verið að gera eitthvað nýtt eða kjósa eitthvað nýtt var komið allsnarlega í bakið á þeim eftir kosningarnar. Sama gamla andskotans ruglið í nýjum umbúðum var varla það sem kosið var.
Y-listinn í Kópavogi getur verið stolt af þessu. Hrósa þeim fyrir að standa ekki að því að velja lúserinn sem bæjarstjóra.
![]() |
Samrýmist ekki stefnu listans |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
31.5.2010 | 16:42
Afsögn Sigrúnar Bjarkar Jakobsdóttur
Ég tel að hún eigi heiður skilið fyrir að hafa tekið þessa ákvörðun fljótt og vel - grunar að hún verði aðeins fyrsti flokksleiðtoginn sem tekur pokann í kjölfar þessara kosninga þar sem fjórflokkurinn fékk algjört kjaftshögg.
Ég vil persónulega þakka Sigrúnu allt hið góða í flokksstarfinu á síðustu átta árum og þakka henni fyrir að stíga fyrsta skrefið í endurreisn flokksins... hún er sterkari eftir og gefur flokknum sóknarfæri í þröngri stöðu.
![]() |
Sigrún Björk segir af sér |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.5.2010 | 23:17
Kjördagur óánægju - söguleg þáttaskil á Akureyri
Hér á Akureyri urðu einhver mestu pólitísk þáttaskil í manna minnum þar sem grasrótarframboð Odds Helga Halldórssonar náði hreinum meirihluta, pólitískt afrek sem ég taldi að engum myndi takast satt best að segja. Kjósendur á Akureyri létu hug sinn í ljós: höfnuðu öllum hefðbundnu stjórnmálaflokkunum og sendu skýr skilaboð. Þeir hafa fengið nóg af hinni gamaldags pólitík. L-listinn skrifar nýjan kafla í stjórnmálasögu Akureyrar og landsins alls með framgöngu sinni.
Sjálfstæðisflokkurinn á Akureyri galt sögulegt afhroð: fékk á kjaftinn í orðsins fyllstu merkingu. Ég er mjög ósáttur við útkomuna en enn ósáttari yfir því að við hefðum getað komið í veg fyrir þetta mikla afhroð með betri vinnubrögðum á síðustu árum. Mikil og víðtæk mistök hafa átt sér stað á vakt Sjálfstæðisflokksins hér á síðustu árum. Við áttum að skynja betur óánægjuna með miðbæjarskipulagið og síkið í miðbænum, bæjarstjóraklúðrið og tækla mál Sigrúnar betur.
Þetta er samt fortíð sem ekki skiptir máli að hugleiða. Við verðum að virða vilja kjósenda og læra eitthvað af honum. Þetta eru skilaboð sem við getum ekki hunsað og verðum að taka fullt mark á og sýna auðmýkt fyrir verkefninu framundan. Það þarf að taka til og við sjálfstæðismenn á Akureyri í grasrótinni verðum að skynja þau skilaboð umfram aðra.
Ekki þýðir að tala um afhroð hinna flokkanna, við verðum sjálf að taka þetta til okkar og byrja okkar grunnvinnu strax. Í þeim efnum verða hagsmunir einstaklinga að víkja fyrir hag heildarinnar.
![]() |
Ræddu við Samfylkingu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)