6.8.2010 | 00:12
Er Jón Gnarr borgarstjóri eða trúður?
Ég hélt fyrst þegar ég sá Jón Gnarr, borgarstjóra, í draginu í kvöld að þarna væri Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, mætt. Hún fannst loksins í flugi í dag og hafði verið ósýnileg dögum saman, meðan ein helsta vonarstjarna Samfylkingarinnar fuðraði upp, sem telst víst visst afrek í gúrkunni. Engum í pressunni datt í hug að leita að formanni Samfylkingarinnar. Segir allt sem segja þarf um stöðu hennar.
En hvað með það. Mér fannst þetta frekar hallærislegt hjá borgarstjóranum. Mér finnst það alltaf frekar kjánalegt þegar menn klæða sig upp í kvenmannsföt sem hafa ekki kenndir til þess að gera það. Þessi brandari Besta flokksins er farinn að verða ansi súr. Eru ekki nokkrir dagar síðan leitað var að þessum borgarstjóra til að efna kosningaloforð um hreinsunarátak í borginni en hann talaði um vinabæjarsamband við Múmíndal?
Ætla Reykvíkingar að hafa skemmtikraft á fullum borgarstjóralaunum í fjögur ár við að leika trúð? Eru ekki nóg önnur og brýnni verkefni á dagskrá?
![]() |
Óvæntur gestur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.8.2010 | 19:21
Botnlaust klúður Árna Páls
Runólfi hefur með yfirlýsingu sinni tekist að magna hitann undir Árna Páli og er alls óvíst um að hann bjargi ráðherrastólnum. Draumurinn um formennsku Samfylkingarinnar virðist úti og gott betur en það.
Nú er spurning hvort ráðherranum tekst með hundakúnstum að bjarga sér frá pólitískri glötun. Þar skiptir mestu pólitískur stuðningur þingflokks og formannsins, forsætisráðherrans ósýnilega.
En hvernig er það, ætlar enginn að bera ábyrgð á þessu klúðri? Hefur ekki Samfó alltaf talað um pólitíska ábyrgð?
Þetta er lánlaust lið, ekki annað hægt að vorkenna pínkupons þeim sem geta klúðrað svona massíft æ ofan í æ.
![]() |
Ástu boðið starfið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3.8.2010 | 20:28
Árni Páll losar sig við Runólf
Engu að síður hefur Árni Páll veikst mjög í sessi vegna þessa máls og er mjög skaddaður pólitískt. Sterk ímynd hans eftir leiðtogasigurinn í Kraganum og hafa fengið tækifærið til að fara í lykilráðuneyti eftir hrun er í molum. Fjarri því er hann vonarstjarna lengur fyrir Samfylkinguna. Þeir dagar eru liðnir eftir þetta fíaskó.
Reyndar er að verða fátt um fína drætti í leiðtogaspekúleringum Samfó. Flokkurinn er leiðtogalaus og hefur fáa á hliðarlínunni sem hafa sterka stöðu, enginn þeirra hefur styrkst í þessu lánlausa stjórnarsamstarfi. Ætli Gutti sé sá eini sem hefur stöðu í leiðtogahlutverk vegna þess að hann er á hliðarlínunni?
En hvað með það: raunalegt var að sjá Runólf í Kastljósi barma sér yfir því að ráðherrann hafi ekki haft manndóm til að standa með sér og fara svo beint í að verja fjármálasukkið honum tengt. Hann var enn staddur á árinu 2007 í að réttlæta ruglið sem hann var í.
![]() |
Umboðsmaður skuldara hættur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.8.2010 | 13:41
Dýrkeypt einkavinavæðing
Hann kom illa út úr blaðamannafundi í morgun og vísaði til þess að hafa ekki vitað um skuldaskil og þess háttar. Afar klaufalegt og subbaleg afneitun á staðreyndum. Þetta mál á eftir að skaða Samfylkinguna mjög mikið verði ekki klippt á þetta mjög fljótlega.
Pressan stendur sig vel og þjarmar vel að ráðherranum, spyr spurninganna sem allir spyrja sig. Kominn tími til að hún standi sig vel og sinni sínu hlutverki. Mjög vel gert og spurningarnar sem ráðherrann fær eru góðar og hann á í vök að verjast.
Annað hvort mun ráðherrann fórna pólitískum ferli sínum eða losa sig við Runólf.
![]() |
Vissi að Runólfur tapaði fé |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.7.2010 | 20:52
Hver slekkur á öndunarvél vinstristjórnarinnar?
Vinstristjórn Samfylkingar og VG, sem hefur verið í öndunarvél mánuðum saman, er feig. Þetta sjá allir með pólitískt nef. Hvort hún fellur á Magma-málinu eða einhverju öðru á næstu mánuðum mun þó ráðast. Skiptir í sjálfu sér litlu máli. Örlög hennar eru ráðin. Hún mun fara í sögubækurnar sem ósamstígasta og lánlausasta ríkisstjórn lýðveldissögunnar, slær þar meira að segja við minnihlutastjórn Alþýðuflokksins undir forsæti Benedikts heitins Gröndal 1979-1980.
Þessari arfaslöku vinstristjórn hefur ekki lánast að tryggja stöðugleika og byggja framtíðarsýn, þvert á móti klúðrað öllu því sem hún hefur komið nærri með sundrungu og ósætti. Þetta er mjög dapurlegt, einkum vegna þess að fjöldi fólks taldi að þessir flokkar myndu breyta stjórnmálunum, bæði í verklagi og hugsun. Þess vegna fengu þeir svo afgerandi umboð sem raun bar vitni. Þeim var treyst til að taka til hendinni. Blaður þeirra reyndist innistæðulaust með öllu.
Margir tala um hvað taki við. Talið um utanþingsstjórn finnst mér rómantísk draumsýn sem mun ekki gera sig. Stjórn þarf alltaf þingmeirihluta til verka. Það hefur vantað allt frá því ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar féll. Þar var þó allavega þingmeirihluti til staðar, þó sú stjórn hafi verið afleit og staðið sig skelfilega illa, engu síður en þessari veiku stjórn. Þar var þó ekki deilt um að meirihluti væri til staðar.
Þessir tveir vinstriflokkar fengu svo afgerandi umboð í kosningunum 2009, eftir hrunið og allt sem því fylgdi, að engir flokkar aðrir hafa umboð til að fara í stjórn með góðu móti. Eina vitið eru nýjar þingkosningar þar sem spilin eru stokkuð upp og þjóðin tekur af skarið með framtíðina. Þar verða flokkarnir að koma með einhverja framtíðarsýn og tala um málefnin, hvað eigi að gera hér á næstu árum.
Þetta var ekki gert í kosningunum 2009. Þær snerust mun frekar um að refsa flokkum og stjórnmálaflokkum en málefnin sjálf. Það verður að stokka spilin núna, þegar þessi lánlausa vinstristjórn verður loks tekin úr öndunarvélinni.
En hver mun taka hana úr sambandi? Verður það Steingrímur J. sjálfur með afgerandi pólitískri framgöngu eða munu þingmenn í óánægjuhópnum, sem hefur verið séraðili að þessu samstarfi frá Icesave-klúðrinu, gera það?
Mun Ögmundur taka það verkefni að sér? Fáir hafa verið meiri örlagavaldar í þessu samstarfi en Ögmundur, sem hefur veitt Steingrími J. hverja skráveifuna eftir aðra, fórnaði meira að segja ráðherrastól á sínum tíma.
![]() |
Gæti ógnað ríkisstjórninni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.7.2010 | 17:28
Íslenska þjóðin gefur Ómari veglega afmælisgjöf
Ég vil óska Ómari Ragnarssyni innilega til hamingju með gjöfina frá þjóðinni. Hún segir meira en mörg orð hversu hlýjan hug Íslendingar bera til Ómars, virða verk hans og karakerinn sjálfan. Þetta er þakkargjöf sem ber vitni hversu sterkan sess Ómar hefur sem skemmtikraftur og dagskrárgerðarmaður áratugum saman.
Það er vel við hæfi að rifja upp þetta tuttugu ára gamla viðtal við Ómar, þar sem Ómar fer á kostum og tekur eitt sitt frægasta lag Sveitaball. Til hamingju Ómar.
![]() |
Ómar orðinn skuldlaus |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.7.2010 | 23:27
Veruleikafirring Össurar - einangrun Samfó
Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, er á miklum pólitískum villigötum ef hann telur stuðning við aðildarumsókn Íslands að ESB vera að aukast. Samfylkingin hefur einangrað sig í málinu og keyrir umsóknarferlið áfram án þess að þjóðin fylgi með. Veruleikafirringin er algjör. Af þessu hafa ráðamenn í Brussel miklar og vaxandi áhyggjur, enda eru þeir ekki vanir því að svo mikill mótbyr mæti þeim þegar þeir fara út í aðildarferlið.
Flestir með pólitískt nef sjá að þessi barátta er þegar töpuð. Eftir því sem andstaðan mælist meiri verður Samfylkingin harðari í því að bakka ferlið áfram. Ekki kemur það að óvörum. Þeir hafa lagt mikið undir til að fara þessa leið og varla valkostur að snúa við, þó það sé þjóðinni fyrir bestu að sleppa því að fara þetta feigðarflan.
Samfylkingin á í miklum vandræðum þessa dagana. Flokkurinn er leiðtogalaus og veiklulegur. Forsætisráðherra Samfylkingarinnar er á síðustu metrunum pólitískt - hefur spilað sína síðustu skák og hefur enga hæfileika til að vera verkstjóri ríkisstjórnar eða forystumaður stjórnmálaflokks. Þetta sést best í Magma-málinu.
Niðurlæging íslenskra stjórnmála verður algjör meðan þessi bastarður vinstriflokkanna verður við völd. Hún hefur enga stjórn á verkefninu og hefur enga framtíðarsýn fyrir þjóðina.
![]() |
Aukinn stuðningur við aðild |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.7.2010 | 17:26
Hugsjónir og sannfæring Ómars
Ómar hefur með mikilli elju fært okkur minningar um landið okkar, minningar sem við metum mikils. Í barnsminni eru plötur hans auðvitað ógleymanlegar. Þar var hann í essinu sínu. Við erum minnt á fjársjóðinn sem hann hefur fært okkur öllum með endursýningum Sjónvarpsins á Stiklum, sem eru óumdeilanlega merkustu þættir íslenskrar sjónvarpssögu. Það er einfaldlega landið í hnotskurn sem birtist þar, það er ekki annað hægt en elska það.
Ómar á sennilega heiðurinn af stærstu stund íslenskrar sjónvarpssögu. Það var þegar hann kynnti okkur fyrir Vestfirðingnum Gísla á Uppsölum, alþýðumanni sem lifði sem á 19. öld væri en í raun var uppi á tækniáratugum 20. aldarinnar. Magnað móment. Ómar færði okkur þennan mann fornra tíma heim í stofu og kynnti okkur fyrir honum, þó með nærgætni og tilfinningu. Þessi næma mannlega taug er sýnileg í öllum hans verkum.
Ég virði framlag Ómars í þessum efnum mikils og tel hann eiga heiður okkar allra skilið fyrir þau verk sín. Enginn hefur betur kynnt okkur fyrir svæðum; fjarlægum og fallegum. Á 40 ára sjónvarpssögu okkar hefur Ómar verið í hlutverki íþróttafréttamanns, skemmtikrafts, íhuguls spyrils í mannlegum og heillandi viðtölum og fréttamanns sem kannað hefur landið og mannsálina í víðri merkingu þess orðs.
En umdeildir menn kalla fram ólíkar skoðanir. Ómar hefur orðið umdeildur með árunum og oft á tíðum gengið lengra en mörgum finnst eðlilegt að styðja. Sjálfur hef ég verið ósammála Ómari oft á tíðum á síðustu árum. Það er eins og það er. Fróðlegt verður að sjá hversu margir styðja hann í verki.
![]() |
Orðlaus, hrærður og þakklátur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.7.2010 | 18:14
Handónýtt innritunarkerfi sem allir eru ósáttir við
Óánægja fer skiljanlega sífellt vaxandi með hið ósanngjarna innritunarkerfi framhaldsskólanna. Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra, ætti að taka á sig rögg og sýna pólitískan kjark með því að hlusta á foreldrana og beita sér fyrir breytingum - koma til móts við námsmenn og foreldra þeirra. Ella verður hún tákngervingur þessa gallaða innritunarkerfis og óvinsæl fyrir rétt eins og þegar Tómas Ingi Olrich barðist árangurslaust fyrir samræmdu stúdentsprófunum hér um árið.
Mér finnst það flott hjá væntanlegum framhaldsskólanemum og foreldrum þeirra að rjúfa þögnina og taka slaginn gegn kerfinu og kalla fram nauðsynlega umræðu um það. Enda eðlilegt að þau berjist í staðinn fyrir að vissir aðilar sem hafa skarað fram úr verði skilgreind sem einhver afgangsstærð í kerfinu.
![]() |
Valdi of sterka skóla |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.7.2010 | 12:23
Skiljanleg óánægja með innritunarkerfið
Óánægja námsmanna eykst sífellt, enda afleitt að nú geti nemendur í vissum borgarhverfum eða sveitarfélögum sem hafa staðið sig vel ekki valið draumaskólann sinn eða átt möguleika á því að skara fram úr í skóla sem þeir óska og hefðu að öllu eðlilegu áður flogið inn í.
Ekki er hægt annað en taka undir með góðri og uppbyggilegri gagnrýni Lárusar og Hersis Arons á þetta kerfi. Þeir koma vel fyrir og færa málefnaleg rök fyrir skoðun sinni og hafa auðvitað rétt fyrir sér.
Þessi vitleysa var gerð í nafni jöfnuðar, niðurstaðan er að nemendur máttu ekki skara fram úr og skólarnir greinilega ekki heldur. Stokka verður kerfið upp og gera vinnubrögðin sanngjarnari.
![]() |
Nían nægði ekki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.7.2010 | 13:33
Verðskuldaður sigur Spánverja á HM
Spánverjar unnu HM mjög verðskuldað að mínu mati, voru einfaldlega fremstir meðal jafningja á þessu móti og sýndu mátt sinn og megin æ ofan í æ. Þeir voru hungraðir í sigur, náðu að slá af sér Hollendinga, sem voru frekar brútal og beittir, það skildi einfaldlega á milli í framlengingunni þegar Spánn tók þetta, traust og flott.
Bæði lið voru hungruð í sigur á mótinu en krafturinn, einbeitingin og samstaðan í spænska liðinu var miklu sterkari. Þeir tóku þetta mót yfirvegað og klókt, voru í sérflokki. Þetta er einfaldlega besta liðið í dag, bæði á pappírunum sem og í verki.
S-Afríka hélt flott mót, stóðu sig vel, þvert á vondar spár margra sem töldu að HM yrði þeim ofviða. Geta verið stoltir af vandaðri umgjörð - mótið er rós í hnappagat þeirra, ekki spurning með það.
Mjög ánægjulegt að sjá gömlu kempuna Nelson Mandela á úrslitaleiknum. Mandela var traustur leiðtogi, sem sýndi sanna forystu í verki með því að sýna styrk, fyrirgefa hið ófyrirgefanlega.
Hann er og verður ein besta fyrirmynd sannra leiðtoga. Nærvera hans á mótinu, sem hann lék svo mikinn þátt í að tryggja í Suður-Afríku, var mikils virði.
Og já spænsku íþróttafréttamennirnir sýndu okkur hvernig á að fagna og það alla leið. Þetta minnir örlítið á Bubba og Ómar í boxinu.
Viva España! :)
![]() |
Spænsku sjónvarpsmennirnir misstu sig (myndband) |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.7.2010 | 14:14
Siðblinda Jóns Ásgeirs
Fréttaflutningur 365 miðla verður æ skiljanlegri þegar fréttist af þessum greiðslum. Fréttablaðið undir ritstjórn Ólafs Stephensens hefur slegið skjaldborg um þennan siðblinda auðmann. Þar er varla minnst á siðblindu Jóns Ásgeirs. Þar er frekar þagað en sagt fréttir. Enda er blaðið orðið vandræðalegt.
Sífellt meira vellur fram af ógeði sem sýnir vel hversu siðblindur og spilltur Jón Ásgeir er. Vonandi er að hann fái makleg málagjöld.
![]() |
Jón Ásgeir fær ráðgjafarþóknun frá 365 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.7.2010 | 12:16
Eiríkur Björn ráðinn bæjarstjóri á Akureyri
En hvað með það. Niðurstaðan sem talað hefur verið um síðan í maímánuði með bæjarstjórakandidatinn hafa nú loks verið staðfestar og ágætt í sjálfu sér að því sjónarspili sé lokið. Full ástæða er til að vona að Eiríki og Lista fólksins muni ganga vel í vegferð sinni í hreinum meirihluta næstu fjögur árin. Nú reynir á, enda fer hveitibrauðsdögum L-listans greinilega mjög fækkandi. Fjölskyldustemmning í nefndakerfinu ber vitni um það.
Lista fólksins vantar traust og gott akkeri til að stjórna bænum: mann með reynslu og þekkingu á viðfangsefninu. Því má treysta að Eiríkur sinni verkinu vel, enda með langa reynslu sem bæjarstjóri og hefur auk þess unnið hjá Akureyrarbæ áður, hann var íþrótta- og tómstundafulltrúi í bæjarstjóratíð Jakobs Björnssonar og Kristjáns Þórs Júlíussonar 1996-2002.
Nú reynir á hvort Eiríkur Björn verði með sanni bæjarstjóri allra Akureyringa og vinni heilsteypt með minnihluta jafnt sem meirihluta. Ég óska honum alls hins besta í verkefninu framundan.
![]() |
Ráðning Eiríks staðfest |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.7.2010 | 14:43
Lúðvík sættir sig loksins við kosningaósigurinn
Bæjarbúar höfðu líka fengið nóg og ætluðu að krefjast íbúakosningar um ráðningu Lúðvíks í bæjarstjórastólinn. Þar hefðu vinstri grænir þurft að leggja allt sitt undir fyrir Lúðvík til að meirihlutinn héldi og það hefði verið pólitískt hættuspil. Það var ekki að fara að gerast og endalokin því alveg augljós.
Lúðvík hefði betur horfst í augu við þetta að loknum kosningum, en betra er seint en aldrei. Menn geta nefnilega ekki setið umboðslausir við völd. Þetta sá meirihlutinn í Hafnarfirði að lokum.
![]() |
Sér eftir Lúðvík |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.7.2010 | 18:56
Oddur Helgi fetar í fótspor Kennedyanna sálugu
Þetta er í sjálfu sér algjörlega óverjandi og því er vörn Odds Helga í besta falli pínleg. Ég held að þeir sem kusu L-listann til valda til að stuðla að breytingum hafi verið illa sviknir þegar nefndakapall bæjarins var afhjúpaður. Svona fjölskyldutengsl í öllu batteríinu er afleitur og hreinlega til skammar að mínu mati. Eru þetta breytingarnar sem fólk kaus hér á Akureyri?
1.7.2010 | 15:12
Bæjarstjóraráðning og fjölskyldutengsl L-listans
Altalað hefur verið hér á Akureyri síðustu vikur að Eiríkur Björn Björgvinsson, fráfarandi bæjarstjóri á Fljótsdalshéraði, verði næsti bæjarstjóri á Akureyri. Heyrði þá kjaftasögu fyrst síðustu viku kosningabaráttunnar, þegar allt stefndi í að L-listinn myndi sigra kosningarnar, að þeir myndu koma með nafn hans í meirihlutaviðræður við ráðningu bæjarstjóra.
Sú kjaftasaga magnaðist allnokkuð að kvöldi kjördags þegar ljóst var að L-listinn hefði hlotið hreinan meirihluta og réði bæjarstjórastólnum alfarið eitt. Opna ráðningaferlið sem L-listinn hafði sem kosningaloforð hefur vakið margar spurningar og ekki hefur L-listanum tekist að stöðva þær sögusagnir að auglýst hafi beinlínis verið eftir Eiríki Birni í bæjarstjórastólinn.
Eftir að L-listinn tók við völdum hefur nefndaskipan bæjarins óneitanlega vakið athygli. Tengdasonur Odds Helga Halldórssonar, Dagur Fannar Dagsson, var valinn sem varaformaður félagsmálaráðs og eiginmaður Höllu Bjarkar Reynisdóttur, bæjarfulltrúa og formanns Akureyrarstofu, Preben Pétursson, valinn sem varaformaður skólanefndar.
Ekki má gleyma því að Helga Mjöll Oddsdóttir, dóttir Odds Helga, er fyrsti varamaður í stjórn Akureyrarstofu. Haraldur Helgason, móðurbróðir Höllu Bjarkar, er varaformaður skipulagsnefndar og eiginkona Haraldar, Hulda Stefánsdóttir, er varaformaður umhverfisnefndar. Auk þess má heldur ekki gleyma að Oddur er móðurbróðir Geirs Kristins, oddvita L-listans.
Ekki hefur beinlínis verið hefð fyrir því að oddvitar og bæjarfulltrúar framboðslistanna hér raði mökum, tengdabörnum og nánustu fjölskyldumeðlimum í nefndir bæjarins og vonandi er þetta slys hjá L-listanum. Svona vinnubrögð eru ekki beint æskileg.
Ég hef margoft óskað L-listanum góðs eftir að þeir unnu kosningarnar. Vona að þeir muni standa undir trausti bæjarbúa og stýra bænum af krafti þó fyrstu verkin og nefndaskipan fái mann til að efast nokkuð.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.6.2010 | 20:58
Þora Evrópusinnar eða eru þeir bara að hóta?
Nú reynir á hvað félagsskapurinn Sjálfstæðir Evrópumenn muni gera. Miðað við dramatíkina sem einkennir fundahöld þeirra á ég ekki von á að þeir muni lúta vilja afgerandi meirihluta flokksmanna og fundarmanna á landsfundi. Þeir verða að eiga það við sig hvað þeir gera.
Ég hef fengið leið á þessum prímadonnustælum tiltekinna aðila. Þeir eiga að sýna okkur á spil sín sem fyrst. Þora þeir að fara úr flokknum og stofna félagsskap klappstýra fyrir aðildarumsókn Samfylkingarinnar að Evrópusambandinu? Hafa þeir pólitískt kapítal í það?
Svar óskast.
![]() |
Harma samþykkt landsfundar um ESB |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.6.2010 | 00:30
Sjálfstæðisflokkurinn hafnar ESB afdráttarlaust
Þetta ætti ekki að koma neinum að óvörum. Enda hver vill styðja ESB-blaður Samfylkingarinnar nema kannski undirlægjurnar í ráðherrahópi vinstri grænna sem hafa fyrir löngu kyngt öllum hugsjónum og ársgömlum kosningaloforðum fyrir völdin ein.
Enginn vilji var fyrir almennt orðaðri málamiðlunartillögu á þessum landsfundi - afgerandi meirihluti fundarmanna fékk sína breytingatillögu í gegn. Enda eðlilegt að talað sé hreint út í stað þess að koma með útvatnaða tillögu sem nýtur ekki stuðnings.
Sjálfstæðisflokkurinn á ekki að hjálpa lánlausu vinstristjórninni í misheppnuðu Evrópudaðri sínu, sem virðist aðeins draumsýn Samfylkingarinnar, sem VG er nauðbeygt að styðja til þess eins að halda völdunum, sem þeim eru svo kær.
![]() |
Óþarfi að sundra flokksmönnum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.6.2010 | 18:27
Ólöf kjörin varaformaður Sjálfstæðisflokksins
Ég vil óska pólitískum samherja mínum, Ólöfu Nordal, innilega til hamingju með varaformannskjörið í Sjálfstæðisflokknum. Hún er vel að því komin, dugleg og drífandi forystukona sem á framtíðina fyrir sér og á eftir að standa sig vel sem ráðherra þegar Sjálfstæðisflokkurinn kemst aftur í ríkisstjórn fljótlega. Sjálfstæðisflokkurinn styrkist mjög með Ólöfu sem varaformann sinn, er ekki í vafa um það.
Ég þekkti Ólöfu lítið sem ekkert sem stjórnmálamann en þess þá meira verk hennar og afburðaþekkingu á mörgum málum, sem hafa komið sér vel fyrir hana í þingstarfinu, þegar hún hringdi í mig í aðdraganda alþingiskosninganna 2007, fyrir prófkjör okkar í Norðaustri síðla árs 2006, þar sem hún tók slaginn og stefndi hátt, og bað mig um stuðning við framboð sitt. Síðan hef ég stutt hana ötullega í pólitískri baráttu.
Er stoltur af því að hafa lagt henni lið allt frá prófkjörinu 2006 þegar við tryggðum hana í baráttusæti framboðslistans í Norðausturkjördæmi og tryggðum svo setu hennar á þingi árið 2007. Það var skemmtilegur slagur og gaman að vinna að því að tryggja Ólöfu fast sæti við Austurvöllinn. Var viss um það þá að hún væri framtíðarmanneskja í flokksstarfinu og myndi leika lykilhlutverk.
Auðvitað var það áfall fyrir okkur hér þegar Ólöf flutti sig suður en hún hefur sífellt styrkt stöðu síðan þá og sérstaklega verið traust og öflug í stjórnarandstöðunni eftir að hlutskipti Sjálfstæðisflokksins gjörbreyttist í kjölfar hrunsins. Hún á eftir að vera flott í því verkefni að byggja upp innra starf flokksins á landsvísu og hlakka til að vinna með henni að því.
Innilega til hamingju, kæra vinkona!
![]() |
Ólöf Nordal fékk 70% atkvæða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.6.2010 | 15:25
Bjarni sigrar Pétur í formannskjöri
Sjálfstæðisflokkurinn og Bjarni Benediktsson sem formaður hans er sterkari, tel ég, eftir þessa kosningu. Hávær orðrómur hafði verið um að Bjarni yrði sjálfkjörinn formaður og yrði klappaður upp eftir gömlu rússnesku fyrirmyndinni. Þetta var snörp en drengileg barátta, báðum formennsefnunum til sóma.
Fjarri því á að vera sjálfgefið að flokksleiðtogar séu einróma endurkjörnir á þessum umbrotatímum í íslenskum stjórnmálum og mjög jákvætt að tekist sé drengilega á um formennsku í flokkunum. Slíkt er lýðræðislegt og styrkir aðeins Sjálfstæðisflokkinn. Umboð formannsins er betra eftir slíka rimmu.
![]() |
Bjarni kjörinn formaður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)