15.4.2010 | 14:50
Vigdís áttræð
Mér þykir mjög vænt um Vigdísi og finnst mikils virði að hún sé til staðar fyrir okkur öll, á meðan flest lykilembætti njóta lítils stuðnings og fólkið í landinu hefur misst nær alla trú á stjórnmálamenn og helstu forsvarsmenn í stjórnkerfinu. Hún hefur mjög mikið fram að færa og hefur þann trausta styrkleika að njóta trausts og stuðnings allra - er hafin yfir dægurþrasið. Þó orðið sé nokkuð um liðin síðan hún flutti frá Bessastöðum er Vigdís og verður alla tíð forseti í huga okkar allra.
Vigdís var sameiningartákn þjóðarinnar um langt skeið og er það í raun enn. Á þeim tímum þegar forseti Íslands, sem ætti að öllu eðlilegu að vera sameiningartákn þjóðarinnar, er ekki lengur traustsins verður og hefur farið svo illa úti í efnahagshruninu verður rödd Vigdísar enn meira virði.
Við getum treyst því að hún talar af visku og sannleika um stöðuna og hefur þann sess að vera hafin yfir þessar átakalínur - ein af fáum landsmönnum sem allir geta treyst til að tala einlægt og án þess að hefja sjálfa sig upp.
Slíkt er og mikils virði. Eftir að Sigurbjörn biskup dó eru mjög fáir sem eru svo einstakir í þessu samfélagi að vera hafin yfir átök og hversdagslegt blaður. Vigdís er ein af þeim og verður enn mikilvægari fyrir vikið í huga landsmanna.
![]() |
Vigdís gerð að heiðursborgara í Reykjavík |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.4.2010 | 10:26
Skýrslan komin á netið - lesturinn hafinn
Ég vonast eftir víðtæku pólitísku uppgjöri á því sem úrskeiðis fór og vil að þeir fái makleg málagjöld sem klúðruðu málum. Annað er ekki í boði eftir alla þessa bið... við verðum að fá það á tilfinninguna að eitthvað muni breytast vegna þessarar skýrslu og málið sé loks að komast á endastöð. Uppgjörið er eftir.
Vona svo að þið hafið gaman af því að lesa þessa skýrslu... á netinu mun ég lesa hana. Skil ekki alveg hvernig fólk nennir að panta hana í prentuðu formi, eins og einhvern reyfara. En kannski er þessi uppgjörskýrsla hálfgerður reyfari í og með.
![]() |
Ör vöxtur bankanna orsökin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.4.2010 | 15:22
Pólsku forsetahjónin farast í flugslysi
Flugslysið sem grandaði Lech Kaczynski, forseta Póllands, eiginkonu hans Maríu og fjölda pólskra embættismanna er mikill þjóðarharmleikur fyrir Pólverja. Kaczynski var mjög umdeildur stjórnmálamaður, pólitískur klækjarefur sem var mjög dómínerandi í pólitísku litrófi, ekki aðeins á heimavelli heldur á alþjóðavettvangi. Skarð hans er mikið fyrir pólsku þjóðina.
Kaczynski forseti var eins og flestir vita barnastjarna. Hann og tvíburabróðirinn Jaroslaw léku saman forðum daga í kvikmyndinni Drengirnir sem stálu tunglinu. Jaroslaw og Lech komust saman til valda eftir að Kwasniewski lét af völdum árið 2005. Jaroslaw varð forsætisráðherra fyrri hluta forsetaferils bróður hans og þeir voru mjög umdeildir, enda sem jarðýtur.
Eftir að Jaroslaw tapaði í þingkosningunum 2007 hefur Kaczynski forseti þurft að deila völdum með Donald Tusk, sem hann sigraði í forsetakosningunum 2005. Það hefur verið lífleg valdasambúð, svo ekki sé fastar að orði kveðið.
Fróðlegt verður að sjá hvort þessi harmleikur sameinar pólsku þjóðina í forsetakjöri sem halda verður innan tveggja mánaða eða leiðir til aukinna átaka.
![]() |
Kaczynski ferst í flugslysi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.4.2010 | 03:11
Snilldarútspil hjá Villa Bjarna í Útsvari
Vandræðalegt líka að stjórnendur RÚV settu Þóru Arnórsdóttur, eiginkonu Svavars Halldórssonar, fréttamanns, í þá aðstöðu að vera að dreifa vinningum frá Iceland Express Pálma Haraldssonar, eftir það sem á undan er gengið með tilraunum Pálma til að ráðast að heiðarlegri fréttamennsku.
En Garðabær átti sigurinn skilið: flott lið og flott frammistaða í vetur. Innilegar hamingjuóskir í Garðabæinn.
![]() |
Afþakkaði gjafabréf í Útsvari |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.4.2010 | 12:47
Dýrar pizzur gera sig ekki vel í kreppunni
Dýr veitingahúsamenning gerir sig ekki beint núna, allra síst þegar pizzur eru annars vegar.
![]() |
Pizza Hut lokar tveimur stöðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.4.2010 | 11:44
Burt með Álfheiði af ráðherrastóli
Álfheiður hefur sýnt á örfáum mánuðum að hún er algjörlega óhæf um að gegna ráðherraembætti. Öll framkoma hennar og stjórnunarstíll er ekki boðlegur. Vinstri grænir hljóta að leiða hana af velli.
![]() |
Ákvörðun Álfheiðar ólíðandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.4.2010 | 15:33
Sagnameistarinn mikli
Ég ákvað að lesa Njálu eftir að hafa hlustað á mjög inspíreraðan fyrirlestur hans um þetta mikla rit og heillaðist af því. Jón var töframaður sagnanna og opnaði augu okkar fyrir mikilvægi þess að rækta sagnaarfinn.
Hafi hann virðingu og þökk fyrir.
![]() |
Jón Böðvarsson er látinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.4.2010 | 17:45
Áminntur fyrir vandvirkni - valdníðsla Álfheiðar
Mér finnst það hrein valdníðsla hjá Álfheiði Ingadóttur að áminna Steingrím Ara Arason, forstjóra Sjúkratrygginga, fyrir það eitt að leita til Ríkisendurskoðunar. Síðan hvenær er það ámælisvert að stunda vandvirk vinnubrögð og leita álits innri endurskoðunar? Er þetta ekki vönduð og góð stjórnsýsla? Held það nú.
Álfheiður er forræðishyggjan uppmáluð: í hennar bókum eru skoðanakúgun, valdboð og siðferðispredikanir í hávegum hafðar. Þessi valdníðsla segir mikið um ráðherrann, yfirgangur og hótanir virðast hennar vinnuaðferðir. Þetta er hrokafullt og ömurlegt, frekar á að hrósa því að leitað sé álits.
En þetta er svosem eins og margt annað í þessari lánlausu vinstristjórn: breytingarnar eru framlenging á afdönkuðum vinnubrögðum. Þessi vinstristjórn er gamaldags og þreytt stjórn með yfirboðum og hótunum frá hinu villta gamla vinstri.
![]() |
Ráðherra ætlar að áminna forstjóra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.3.2010 | 11:01
Er vinstristjórnin með eitthvað plan B?
Eftir nýjustu yfirlýsingar Dominique Strauss-Kahn er ljóst að Steingrímur J. og Gylfi hafa farið sneypuför hina mestu til Washington. Samstarfið við AGS er í upplausn og óljóst hvað vinstristjórnin ætlar að gera, enda hefur stjórnin ekki haft neitt plan B í sinni einstefnu undanfarna mánuði. Hún hefur ekki haft þingmeirihluta til að gera neitt af viti og er logandi í innri ólgu og skítkasti, þar sem forsætisráðherrann lýsir samstarfsmönnum sínum sem kattahjörð í smölun.
Hefði ekki verið betra fyrir íslensku þjóðina að heyra stöðuna beint frá Steingrími og Gylfa í stað þess að láta handrukkarafrakkann segja það. Hversu lengi ætlar Steingrímur að vera eins og barinn hundur og láta eins og ekkert sé? Þó hann sé eins og kúgaður eiginmaður í afleitu hjónabandi á hann að tala hreint út við þjóðina og segja hvernig staðan er.
Pólitískt kapítal þessarar stjórnar fór í það eitt að sækja um aðild að ESB og koma handónýtum Icesave-díl í gegnum þingið. Nú virðist samstarfið farið í hundana... og þó... nei afsakið í kettina :)
![]() |
Ísland kann að skorta stuðning |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.3.2010 | 14:32
Óánægja í kattahjörðinni í VG
Á meðan flestir hlæja að óförum vinstristjórninnar og kattasmölun Jóhönnu Sigurðardóttur eru vinstri grænir niðurlægðir, sárir og bitrir - skal engan undra. Brandararnir grassera á netinu og fátt um annað talað en lánleysi þessarar vinstristjórnar.
Svona gengur víst kattasmölun fyrir sig.
![]() |
Þingflokkur VG á fundi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.3.2010 | 21:21
Harðjaxl í eldgosaferð
Ég þekki vel bróður Jóns, Berg Þorra Benjamínsson. Hann lamaðist líka fyrir neðan mitti fyrir rúmum áratug. Þeir bræður hafa haldið áfram af fullum krafti þrátt fyrir lömunina, ekki látið hana vera endastöð lífsins, verið duglegir í baráttunni.
Þeir hafa mikinn styrk af hvor öðrum, en hafa karakterinn ræður mestu. Þeir eru sannkallaðar hvunndagshetjur.
![]() |
Fór lamaður að eldgosinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.3.2010 | 15:27
Jóhanna sendir eitraða pillu til vinstri grænna
Jóhanna Sigurðardóttir niðurlægir vinstri græna með eitraðri pillu sinni í dag - segir eins og að smala saman köttum að ná þingmeirihluta. Skilaboðin eru einföld til VG og Steingríms: ef vinstri grænir sameinist ekki um lykilmál sé samstarfinu lokið. Þetta eru hótanir af sama tagi og Jóhanna er svo fræg fyrir, stór hluti stjórnmálaferils hennar hefur einkennst af hótunum bæði við samflokksmenn og pólitíska andstæðinga. Ekkert nýtt.
Auðvitað er erfitt fyrir Jóhönnu að vera verkstjóri í lánlausri ríkisstjórn - henni hefur aldrei tekist að verða traustur leiðtogi á pólitískum vettvangi né sýnt nokkur merki þess að kunna með verkstjórn að fara. Enda sést það best á þessari stjórn í nafni hennar. Hún hefur verið feig mánuðum saman, allt frá því að Ögmundur Jónasson var hrakinn út úr henni með hótunum og yfirgangi.
Þetta getur ekki endað nema á einn veg. Við skulum fara að búa okkur undir þingkosningar fljótlega. Þessi lánlausa vinstristjórn er gjörsamlega komin á endastöð.
![]() |
Ósamstaða VG veikir stjórnina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.3.2010 | 13:43
Ægifögur náttúra

Íslensk náttúra er rómuð á veraldarvísu. Hún er ægifögur og lifandi, eins og við höfum öll séð síðustu dagana eftir að eldgosið á Fimmvörðuhálsi hófst. Myndirnar og frásagnirnar af gosinu hafa vakið athygli allrar þjóðarinnar og víða um heim er fylgst með því sem gerist.
Allir vilja komast á staðinn - áhættan hlýtur að vera í huga þeirra sem taka slaginn og halda af stað. Kannski kemst það upp í vana að láta líf sitt í hendur náttúrunnar. Náttúran getur verið yndisleg en hún getur líka tekið sinn toll.
Mér finnst þessi mynd einna fallegust þeirra sem sést hafa, enda nýtur gosið sín best í náttmyrkrinu.
![]() |
Beinist að Hvannárgili |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.3.2010 | 00:48
Flottur listi hjá sjálfstæðismönnum í Garðabæ
Eftir neikvæða umræðu um stöðu kvenna hjá Sjálfstæðisflokknum í Garðabæ leysir hinn gamalreyndi leiðtogi, Erling Ásgeirsson, málin með því að víkja úr fyrsta sætinu fyrir konu, sem hlaut mikið fylgi í annað sæti og stíga til hliðar mun neðar á listann. Áslaug Hulda er vel að þessu komin, traust og flott kona sem á eftir að standa sig vel í sveitarstjórnarmálum.
Þessi tillaga Erlings styrkir flokkinn hinsvegar til muna og er honum umfram allt persónulega til mikils sóma, en um leið vekur athygli að hann stígi sjálfur til hliðar eftir að hafa sigrað leiðtogaslag við Pál Hilmarsson. Þarna fer maður sem hugsar um hag heildarinnar umfram sína eigin, virðingarvert vissulega.
Ekki þarf að efast um hvernig þessum lista muni ganga í vor. Garðabæ er og hefur verið blár bær og verður það auðvitað áfram.
![]() |
Áslaug Hulda leiðir listann |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.3.2010 | 12:22
Jónína Ben og Gunnar í Krossinum gifta sig
Þrátt fyrir að mikið hafi verið hvíslað um samband Jónínu Ben og Gunnars í Krossinum er óhætt að segja að þeim hafi tekist að koma öllum á óvart, vinum, slúðurblöðum og allt þar á milli, með að gifta sig snögglega og án þess að gera tilstand úr því. Þau hafa bæði verið umdeild og samband þeirra verið á milli tannanna á fólki svo eflaust er þetta skiljanleg ákvörðun að drífa í þessu.
Ég vil óska þeim innilega til hamingju með giftinguna og óska þeim alls góðs.
![]() |
Jónína og Gunnar í hjónaband |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.3.2010 | 02:19
Hjónabandssælan súrnar
Ansi er það kaldhæðnislegt að óskarsverðlaunaleikkonur í aðalhlutverki síðustu tveggja ára, konur sem lofsungu eiginmenn sína í þakkarræðunum, eigi í hjúskaparvandræðum í sömu vikunni. Sandra Bullock jafnar sig á framhjáhaldi mannsins síns sem brosti svo innilega til hennar þegar hún fékk óskarinn fyrir Blind Side í síðustu viku og Kate Winslet er skilin við eiginmann sinn, óskarsverðlaunaleikstjórann Sam Mendes (sem gerði American Beauty).
Frægðin er hverful og hamingjan ekki síður. Svolítið spes að horfa á þessa tíu daga gömlu ræðu Söndru Bullock nú þegar hjónabandi hennar virðist vera að ljúka.
Bandaríska pressan gerir þó grín að þessu með því að kalla Jesse James "the worst supporting husband of a lead actress".
![]() |
Hélt framhjá Söndru Bullock |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.3.2010 | 14:43
Klofningur í Sjálfstæðisflokknum á Akureyri
Ég taldi að úrslitin myndu standa og kjörnefnd myndi reyna að sameina flokksmenn á bakvið þennan sex manna hóp. Sigurður var 25 atkvæðum frá því að hljóta fjórða sætið og 40 atkvæðum að mig minnir frá bindandi kosningu. Hann tók vissulega mikla áhættu með mótframboði við sitjandi leiðtoga og virðist refsað fyrir það.
Þetta eru óþarfa leiðindi og boðar sárindi í flokkskjarnanum, enda er leitt að úrslitum prófkjörsins sé ekki fylgt og reynt að gera gott úr málum. Sérframboð er skaðlegt fyrir flokkinn, þetta ættu reyndir menn í starfinu að vita, menn sem upplifðu átökin eftir prófkjörið 1994 þar sem Jón Sólnes yngri og fylgismenn hans fóru sárir frá velli.
Þau sárindi komu illa niður á flokknum í kosningunum 1994. Sérframboð Sigurðar Guðmundssonar er vond tíðindi fyrir flokkinn, enda má hann varla við miklum áföllum. Sjálfur hef ég ekki verið virkur í félagsstarfinu í nokkurn tíma og horft á verkin þar úr fjarlægð, mætt á fundi, enda haft áhuga á pólitík.
Svona vinnubrögð laða fólk ekki að starfinu, því miður. Þessi vinnubrögð boða ekki gott.
![]() |
Segir sig úr flokknum og boðar sérframboð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.3.2010 | 12:04
Mun Árni Páll verða eftirmaður Jóhönnu?
Samfylkingin hefur verið leiðtogalaus mánuðum saman. Jóhanna hefur ekki karakterinn og styrkinn sem þarf í embætti forsætisráðherra, verið ósýnileg og ekki náð að vera sá leiðtogi sem þjóðin þarf á þessum örlagatímum, þegar tala þarf kjark og kraft í íslensku þjóðina. Árni Páll, sem sló við Lúðvík Geirssyni í Kraganum, hefur verið á uppleið innan flokksins en frekar dalað að undanförnu.
Nú er hann greinilega að byrja slaginn og ætlar að reyna að festa sig í sessi í flokkskjarnanum, sem eins og þjóðin þarf mjög á leiðtoga að halda, eftir því sem líður að endalokum stjórnmálaferils Jóhönnu og þegar límið í þessari lánlausu vinstristjórn gefur æ meira eftir.
![]() |
Saka Árna Pál um ódýrt útspil |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.3.2010 | 15:13
Egill Helgason sækir um stöðu dagskrárstjóra
Umsókn Egils ætti að vekja mun meiri athygli, enda einn af mest áberandi fjölmiðlamönnum landsins, bæði í sjónvarpinu og á netinu, en skrif hans vekja jafnan mikla athygli og hafa skrif hans og þættir verið umdeildir en notið mikilla vinsælda.
Nú verður fróðlegt að sjá hvort yfirstjórnin á RÚV velji Egil til að stýra dagskrárdeildinni. Umsækjendahópurinn er reyndar úr öllum áttum og þar sækja miklir reynsluboltar úr fjölmiðlum um.
En nafn Egils vekur þar óneitanlega mesta athygli, þó lítið sé um það fjallað, merkilegt nokk. Enda kannast ekki allir við Egil Óskar Helgason. :)
![]() |
37 sóttu um starf dagskrárstjóra RÚV |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.3.2010 | 12:34
Ódýr kjaftagangur hjá Steingrími J.
Allir sjá að VG er rjúkandi rúst, þar er baráttan um stólana hafin og verður greinilega ekkert áhlaupsverkefni að koma Ögmundi, manninum sem er með puttann á on/off-takkanum á öndunarvélinni, fyrir aftur í stjórninni. Allt annað í landinu er á einu risastóru stoppi meðan VG fuðrar upp.
Þetta er raunalegt. Þetta lið ætti að skammast sín og koma sér að verki, það hefur þegar spanderað heilu ári í ESB og Icesave-klúður sitt!
![]() |
Þreyttur á þessu kjaftæði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |