Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
30.8.2008 | 14:45
McCain trompar demókrata með valinu á Palin

Sárindi demókrata eru augljós, enda hefur McCain gert það sem þeir vildu að sinn frambjóðandi gerði með því að velja konu í framboðið. McCain virkar líka djarfur og ákveðinn með valinu. Tekur pólitískar áhættur og fetar sögulegar slóðir innan síns flokks. Ef Obama hefði valið Hillary eða Kathleen Sebelius með sér hefði þessi umræða ekki komið upp og þeir ekki verið svo viðkvæmir. McCain nýtti sér einfaldlega traustan veikleika þeirra með snilldarbragði. Þeir eru algjörlega mát og veittu sjálfir höggstað á sér.
Fyrstu viðbrögð frá yfirstjórn kosningabaráttu Obama við valinu á Palin fólu í sér nokkra kvenfyrirlitningu þar sem reynsluleysið var dregið upp. Þar á bæ var gengið beint í gildruna; talað var um að Palin skorti þekkingu og vit á utanríkismálum. Þetta var algjört sjálfsmark hjá talsmanni Obama, enda var viðkomandi fljótlega tekinn úr umferð við að tjá sig um málið. Með þessu opnaði talsmaðurinn bæði á reynsluleysi Obama í pólitík og þekkingarleysi hans um utanríkismál, sem leiddi til þess að Joe Biden varð varaforsetaefnið.
Síðla kvölds gáfu svo Obama og Biden út yfirlýsingu þar sem talað var um sögulegt val á Palin, henni hrósað með hlýlegum lýsingum. Ég held að Obama og menn hans hafi séð að betra væri að þegja heldur en fara með málið sömu glapstigu og fólst í fyrstu yfirlýsingunni. Bara sú yfirlýsing ein leit út eins og kvenfyrirlitning og viðurkenning á reynsluleysi Obama. Af hverju valdi frambjóðandi breytinganna þingmann með 36 ára starfsreynslu bakvið tjöldin í Washington með sér í framboðið og fórnaði þar með breytingastimplinum? Því Obama hafði svo mikla reynslu? Onei.
Þarna var því gengið beint í gildruna. Í ofanálag vakti mikla athygli sérstök yfirlýsing frá Hillary Rodham Clinton þar sem hún talaði vel um Palin og hrósaði McCain fyrir að velja hana. Merkileg skilaboð. Í herbúðum demókrata, þar sem allir töldu sig vera með pálmann í höndunum eftir flokksþingið, þarf skyndilega að tækla þetta skynsamlega val hjá McCain. Og þeir eiga ekkert svar við því, ekkert traust og afgerandi. Held að demókratar hafi verið búnir að gera ráð fyrir því að Romney yrði valinn. Voru með heilt vopnabúr tilbúið gegn því. En þeir eiga ekkert svar nú.
Obama getur heldur ekki hjólað í Palin með þeim rökum að hún sé hluti af valdakerfinu. Hún er miklu hreinni af tengslum við Washington en hann sjálfur svo að það gengur ekki upp. Eftir stendur mögulega að hægt er að ráðast að henni fyrir hugsjónir sínar og persónulegan bakgrunn. En þeir komast stutt á því. Og með reynsluleysið. Palin hefur sem ríkisstjóri haft meiri tengsl í framkvæmdavaldið en Obama hefur nokkru sinni náð eða Biden ef út í það er farið. Þannig að varla verður séð hvernig þeir geti tæklað McCain eftir þetta val. Hann trompaði þá einfaldlega.
Fyrstu viðbrögðin hjá Obama og co voru svolítil karlremba. Þeir græða ekki mikið á því og auðvitað voru þeir fljótir að skipta um plötu. Ef framboðið talar áfram eins og talsmaðurinn í gær færir það McCain enn meiri tromp á hendi. Staðan er bara einföld: demókratar eiga ekki svar við þessu. Þeir geta kannski sótt Hillary og farið með hana hringinn í kringum landið. En hún er ekki varaforsetaefni. Hún er ekki í framboði. Þetta er dæmt til að mistakast. Obama hefur ekkert svar við fyrstu konunni í framboði fyrir repúblikana í forsetakjöri. Þvílíkur bömmer sem hlýtur að vera í þeim herbúðum nú.
Sumir spunameistarar demókrata fundu svo það eitt að Palin í gær að hún þekkti nú ekkert inn á Washington, vissi ekki hvernig pólitíkin það væri. Ekki hægt annað en hlæja að þessu, enda hefur McCain næga reynslu af Washington fyrir þetta framboð og það er skynsamlegt að hann vilji alvöru frambjóðanda breytinganna með sér; konu sem hvorki á heimili í Washington né er hluti af valdakerfinu þar. Þingið undir forystu demókrata er óvinsælla en Bush forseti svo að það er aðeins hrós að vera ekki með tengingar þar inn.
Þetta verða spennandi kosningar - annaðhvort verður fyrsti blökkumaðurinn forseti Bandaríkjanna eða fyrsta konan varaforseti Bandaríkjanna. Sögulegra verður það ekki. En ég held að allir séu sammála um það að McCain trompaði demókratana í gær. Enda eiga þeir ekkert svar við valinu. Þeir eru mát.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
29.8.2008 | 17:46
John McCain hristir upp í bandarískri pólitík
John McCain tókst sannarlega að hrista upp í bandarískum stjórnmálum með valinu á Söru Palin sem varaforsetaefni sínu. Fór ekki hefðbundnu leiðina sem flestir höfðu spáð með því að velja yngri karlmann, heldur velur fyrstu konuna í forystu forsetaframboðs fyrir repúblikana, unga fimm barna móður sem er augljóslega mikil vonarstjarna fyrir flokkinn. Hann hugsar til framtíðar með valinu, telur réttilega að reynsla sín sé nóg fyrir framboðið og kemur með nýjar og áhugaverðar tengingar. Með þessu er framboðið yngt verulega upp. Skilaboðin eru skýr.
Sarah Palin og John McCain lúkkuðu mjög vel saman á fyrsta framboðsfundinum í Dayton í Ohio fyrir stundu. Þau eru mjög ólík en hiklaust sterk framboðsflétta. Hann með sína miklu og víðtæku pólitísku reynslu og hún sem konan við hlið hans, með mikla lífsreynslu að baki og augljóslega mikil kjarnakona. Þetta eru söguleg tímamót fyrir Repúblikanaflokkinn, enda hefði fáum órað fyrir því þegar George W. Bush valdi Dick Cheney sem varaforsetaefni fyrir átta árum að næst á eftir yrði kona fyrir valinu. Bara með því að velja Palin breytist ásýnd flokksins.
Sarah Palin er líka frábær ræðumaður og traust baráttukona með tengsl við venjulegt fólk. Sá bakgrunnur hennar á eftir að reynast vel fyrir McCain. Hún er ekki hluti af valdakerfinu að einu né neinu leyti og færir því baráttuna á aðrar slóðir. Með þessu ætti McCain að eiga betur að höfða til kvenna og alþýðufólks, þeirra hópa sem helst fylgdu Hillary Rodham Clinton í gegnum hennar sögulegu baráttu fyrir því að vera fyrsta kvenkyns forsetaefnið. Nú hefur Sarah Palin tekið sess Hillary í baráttunni. Skilaboðin eru líka skýr að því leyti.
Palin getur nú tekið sér stöðu á sviðinu sem konan í framboðinu. Það gerði hún mjög ákveðið og áberandi í ræðunni í Dayton. Hún sagðist ætla sér að brjóta glerþakið sem Hillary Rodham Clinton setti 18 milljón sprungur í. Á þessu mun framboðið keyra alveg hiklaust. McCain mun geta talað um jafnréttismál vígreifur og hress hafandi valið fyrstu konuna í forystu forsetaframboðs í 24 ár, aðra konuna í stjórnmálasögu landsins. Allt í einu hafa jafnréttisáherslur baráttunnar breyst og McCain tekið frumkvæðið - gert það sem Obama lagði ekki í að gera.
Og svo verður Sarah Palin konan án tenginga við Washington - það sem Hillary tókst ekki að nota sér í vil. Hún er sú eina af forseta- og varaforsetaefnum stóru flokkanna sem hefur ekki unnið í höfuðborginni eða á heimili þar. Þetta er skýr yfirlýsing hjá McCain um breytingar í DC - hann ætlar sér að hrista upp með varaforseta sér við hlið sem hvorki hefur verið í fulltrúa- né öldungadeildinni. Gleymum því ekki að varaforseti Bandaríkjanna er um leið forseti öldungadeildarinnar og getur greitt þar oddaatkvæði, breytingin verður því afgerandi nái McCain kjöri.
McCain telur sig greinilega vera með næga reynslu og þekkingu á Washington, enda verið í fulltrúa- og öldungadeildinni samfellt í 26 ár. Obama hefur verið í öldungadeildinni í tæp fjögur ár og Biden er einn þaulsetnasti öldungadeildarþingmaður Bandaríkjanna með 36 ára reynslu. Þegar Biden og Palin eru sett hlið við hlið er ekki nokkur spurning hvort verður frambjóðandi breytinganna sem varaforsetaefni. Hún án nokkurra tenginga við Washington en hann einn af lykilspilurum þar bakvið tjöldin síðan Barack Obama var ellefu ára gamall.
McCain mýkir líka framboðið með þessu vali. Það er allt í einu gjörólíkt því sem var í gær. Breytingin er algjör. John McCain hefur innan við sólarhring eftir að Obama flutti ræðu sína gjörbreytt pólitísku landslagi í Bandaríkjunum og hefur allt í einu sér við hlið konuna sem gæti orðið varaforseti Bandaríkjanna. Eitt og sér er það veglegt og traust veganesti inn í næstu 66 dagana.
![]() |
Hver er Sarah Palin? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
29.8.2008 | 14:55
Sögulegt val - McCain velur Söruh Palin sem VP

Fyrir nokkrum mínútum var staðfest að John McCain hefur valið Söruh Palin, ríkisstjóra í Alaska, sem varaforsetaefni. Þetta er sögulegt val, fyrsta konan sem verður hluti af forsetaframboði fyrir Repúblikanaflokkinn, ung kona með stjörnuljóma.
Þetta er áhætta fyrir McCain en mun eflaust borga sig. Hann afþakkar reyndustu kandidatana, telur sig hafa næga reynslu fyrir framboðið, en velur þess í stað unga konu með sér, vonarstjörnu fyrir flokkinn.
Hann ætlar sér að reyna að ná óánægðum stuðningsmönnum Hillary með sér. Stórmerkilegt val í alla staði. Verður gaman að sjá fyrsta kosningafundinn þeirra á eftir.
Er viss um eitt; Obama á eftir að sjá mjög mjög mjög mikið eftir því að velja ekki Hillary Rodham Clinton með sér.
![]() |
Varaforsetaefni McCain |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
29.8.2008 | 14:15
Óstaðfest: Sarah Palin varaforsetaefni McCain

Mér finnst það mjög merkileg ákvörðun hjá John McCain ef það er rétt að Sarah Palin verði varaforsetaefnið. Með því slær hann á traustustu valkostina í stöðunni; Romney og Pawlenty og fer sínar eigin leiðir. Velur konu, unga og trausta konu sem hefur ekki verið lengi á sviðinu en nýtur mikillar virðingar. Það eitt að McCain velji konu mun verða stórmerkilegt ef satt er. Aðeins ein kona, Geraldine Ferraro, hefur áður náð í forystu forsetaframboðs í sögu Bandaríkjanna.
Palin er 44 ára gömul, varð ríkisstjóri í Alaska með því að fella sitjandi ríkisstjóra repúblikana í forkosningum og síðan sigra fyrrum ríkisstjóra demókrata í sögulegri kosningu. Hún er fimm barna móðir, á þar af eitt barn með Downs heilkenni og ákvað að eiga það þrátt fyrir að vita um það. Hún er traust íhaldskona og myndi fara létt með að færa McCain íhaldsfylgið sem hann vantar að tryggja sér.
Ef John McCain velur konu með sér er það söguleg ákvörðun. Hún yrði fyrsta konan í framboði fyrir Repúblikanaflokkinn í forsetakjöri og myndi tryggja sig sem traust forsetaefni síðar. Þetta færir John McCain gullið tækifæri til að ná kvennafylginu og það sem meira er; ná óánægðum kjósendum Hillary Rodham Clinton á sitt band.
McCain fer langt með að vinna þessar kosningar bara með því að gera það sem Obama þorði ekki, velja konu með sér.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.8.2008 | 22:17
Flokksþing demókrata í Denver: 4. dagur
Komið er að lokakvöldi flokksþings demókrata í Denver og því mikilvægasta. Í nótt mun Barack Obama formlega þiggja útnefningu sem forsetaefni Demókrataflokksins og verða fyrsta þeldökka forsetaefnið í bandarískri stjórnmálasögu. Hann heldur tímamótaræðu á sínum stjórnmálaferli á Invesco-íþróttaleikvangnum í Denver þar sem tæplega 80.000 manns komast í sæti og kynnir áherslur sínar á lokaspretti kosningabaráttunnar.
Staðan í kosningabaráttunni nú er önnur en demókratar eflaust stefndu að þegar Barack Obama náði útnefningu flokksins 3. júní. Hann hefur ekki forskot í könnunum, virðist ekki hafa náð neinni marktækri fylgisaukningu á valinu á Joe Biden sem varaforsetaefni og virðist vera að missa stuðning hjá óháðum kjósendum. Í könnunum í þessari viku hafa frambjóðendurnir mælst annað hvort hnífjafnir eða John McCain hefur forystu.
Fyrst nú í dag sést einhver uppsveifla en hún er mjög hefðbundin miðað við að flokksþingið stendur. Þetta eru sláandi niðurstöður fyrir demókrata sem ættu að öllu eðlilegu að hafa mikið forskot miðað við að repúblikanar hafa ráðið Hvíta húsinu í tvö kjörtímabil og eiga óvinsælasta forseta Bandaríkjanna í sögu skoðanakannana. Þrátt fyrir allar kjöraðstæður demókrata til að klára þessar kosningar hefur John McCain raunhæfa möguleika á að sigra kosningarnar. Þetta eitt og sér hlýtur að vera áhyggjuefni fyrir frambjóðanda breytinganna.
Barack Obama þarf í ræðu sinni ekki aðeins að kynna sig og áherslur sínar. Hann þarf að selja landsmönnum framboðið sem hann leiðir, bæði sig og Biden. Eins og kannanir standa núna þarf Obama að tala hreint út um lykilmál, utanríkis- og efnahagsmál, það sem mestu skiptir fyrir demókrata að tækla í þessari stöðu. Hann má heldur ekki missa sig í tæknilegu blaðri um smáatriði. Barack Obama þarf að skipta um gír, ekki aðeins kynna sig sem frambjóðanda breytinganna heldur og mun frekar sýna að framboðið hafi reynslu til að taka við á fyrsta degi.
Förum yfir nokkra lykilpunkta fjórða og síðasta þingkvöldsins.
- Barack Obama flytur ræðu á Invesco-íþróttaleikvangnum og þiggur útnefninguna. Leggur línurnar fyrir lokasprett kosningabaráttunnar, kynnir sig og áherslur sínar. 45 ár eru í dag liðin frá hinni sögulegu ræðu dr. Martin Luther King í Washington þar sem hann tjáði draumsýn sína um jafna stöðu hvítra og þeldökkra. Því munu sagnfræðilegir tónar eflaust einkenna ræðu Obama um leið og hann horfir til framtíðar - talar um breytingarnar sem hann vill tryggja í Washington.
- Al Gore, fyrrum varaforseti Bandaríkjanna, flytur ávarp. Gore hlaut fleiri atkvæði en George W. Bush á landsvísu í forsetakosningunum 2000 en tapaði kosningunum í kjörmannasamkundunni eftir sögulega baráttu fyrir 25 kjörmönnum Flórída í dómstólum í fylkinu og Hæstarétti Bandaríkjanna. Gore er traust söguleg tenging við fyrri tíma innan Demókrataflokksins, er mikils metinn innan flokksins og á alþjóðavettvangi sem stjórnmálamaður og friðarverðlaunahafi Nóbels.
- Framlags Dr. Martin Luther King í sögu Bandaríkjanna verður minnst á afmælisdegi draumaræðunnar margfrægu. Sýnd verður myndklippa um dr. King. Börn Dr. Kings, Martin Luther King III og Bernice King munu heiðra minningu föður síns.
- Howard Dean, formaður Demókrataflokksins, og Bill Richardson, ríkisstjóri í Nýju-Mexíkó, munu flytja ræður.
- Tim Kaine, ríkisstjóri í Virginíu, ávarpar þingið. Mikið var rætt um Kaine sem varaforsetaefni. Demókrati hefur ekki sigrað í Virginíu síðan Lyndon B. Johnson var kjörinn árið 1964.
- Dick Durbin, öldungadeildarþingmaður fyrir Illinois - vinur og félagi Barack Obama árum saman, mun flytja ræðu og kynna Barack Obama.
- Vegleg tónlistaratriði verða flutt. Stevie Wonder og Sheryl Crow munu syngja. Auk þess mun óskarsverðlaunaleikkonan Jennifer Hudson syngja þjóðsönginn.
Þetta verður eflaust veglegt og eftirminnilegt kvöld, bæði fyrir demókrata og alla áhugamenn um stjórnmál. Mikilvægt er fyrir demókrata að ljúka þinginu með stæl. Obama þarf að kynna sig og áherslur sínar af krafti, sýna kontrastana á sér og McCain, auk þess sýna kjósendum bæði eitthvað nýtt og eftirminnilegt, ofan á stjörnuljómann og nýjabrumið sem færði honum útnefninguna.
Sumir hafa reyndar gagnrýnt Obama mjög fyrir umgjörðina á Invesco-leikvanginum. Þar hefur verið reist mikil sviðsmynd sem helst minnir á grískt hof og heilaga biblíuumgjörð. Spunameistarar á vegum demókratar óttast mest að augnablikið mikla fyrir Obama springi framan í hann og almennir kjósendur telji þetta bruðl og hann fjarlægist enn frekar venjulegt fólk.
Öllu mánudagskvöldinu var varið í að kynna hann sem venjulegan mann og færa hann niður á jörðina, hann væri einn af fólkinu en ekki elítumaður. Messíasarumgjörð kvöldsins gæti fælt einhverja frá. En er á hólminn kemur er þetta allt undir Obama komið. Hann þarf að toppa sig í kvöld og veit það mætavel.
![]() |
McCain hrósar Obama |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 29.8.2008 kl. 00:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
28.8.2008 | 18:21
McCain búinn að velja - tekur sviðsljósið af Obama

Fróðlegt verður að sjá hvort McCain muni velja annan af líklegustu kostunum í stöðunni. Mikið hefur verið talað um Mitt Romney, fyrrum ríkisstjóra í Massachusetts, og Tim Pawlenty, ríkisstjóra í Minnesota, þar sem flokksþing repúblikana verður haldið í næstu viku. Er mjög líklegt að annar þeirra verði fyrir valinu ef McCain vill fá einhvern við hlið sér sem hefur mikla reynslu af að vera í forystu í fylkjunum og geti fært honum eitthvað af lykilfylkjunum í baráttunni auk þess. McCain vantar klárlega yngri frambjóðanda og einhvern sem getur fært honum hnoss sem skiptir máli.
Síðustu dagana hef ég æ oftar heyrt nafn Kay Bailey Hutchison, öldungadeildarþingmanns í Texas. Hún hefur setið í öldungadeildinni frá árinu 1993, var kjörin í þingsæti demókratans Lloyd Bentsen, sem var varaforsetaefni Michael Dukakis árið 1988. Hutchison myndi geta fært McCain eitthvað af kvennafylgi Hillary Rodham Clinton og þá demókrata sem studdu hana - myndi val á henni leiða til sögulegra þáttaskil. Ef Hutchison verður varaforsetaefnið er hún aðeins önnur konan í sögu Bandaríkjanna í framboði stóru flokkanna.
Erfitt um að spá hvað gerist. Hef samt verið viss um það nokkuð lengi að Romney yrði varaforsetaefnið. Þeir hafa verið að ná vel saman að undanförnu þó þeir hafi barist í forkosningunum af miklum krafti. Hann hefur traustar tengingar í lykilfylki og styrkleika í efnahagsmálum sem McCain vantar sárlega.
En þetta verður mikilvægt val fyrir McCain. Hann þarf að fá eitthvað mjög öflugt út úr varaforsetaefninu. Gæti því komið á óvart með djörfum valkosti sem eykur stjörnuljóma framboðsins eða valið traustan valkost, mann sem yrði með honum á forsetavakt og tilbúinn í forsetahlutverkið á örlagastundu.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.8.2008 | 15:30
Súmmering: Sættir á yfirborðinu í Denver
Á þriðja kvöldi flokksþings demókrata var lykilatriðið að sýna samstöðu flokksins, bæði til að kveða í kútinn sögusagnir um persónuleg átök og hjaðningavíg milli flokksmanna í kjölfar forkosninganna. Setja varð punkt á eftir sögulegum kafla um væringarnar sem klufu flokkinn í tvær sögulegar fylkingar; með fyrstu konunni og fyrsta þeldökka manninum sem áttu raunhæfa möguleika á Hvíta húsinu. Það hefur nú tekist á yfirborðinu en ekkert meira en það. Samningar tókust um að tryggja flokkshag en sært stolt og heiður er enn til staðar og verður væntanlega gert upp síðar.
Gærkvöldið var sögulegt. Kjör Barack Obama var endanlega staðfest og með því mörkuð þau þáttaskil að fyrsti þeldökki maðurinn getur náð í Hvíta húsið. Ekki síður var það áhugaverð tímamót heldur hvernig þau urðu. Hillary Rodham Clinton innsiglaði sættirnar á yfirborðinu innan flokksins og stóð við hinn hluta dílsins, gekk frá kosningunni á gólfinu á þingstað, hafði áður gefið eftir þingfulltrúana sína en gekk þá skrefinu lengra með því að gefa kosninguna formlega eftir og færði þar með Barack Obama útnefninguna á silfurfati. Þetta var sterkt augnablik fyrir flokkinn.
Clinton-hjónin hafa nú gert sitt til að tryggja samstöðu í flokknum. Stóra spurningin er hvað verði um 18 milljón atkvæðin á landsvísu sem Hillary vann. Kannanir gefa til kynna að þau séu ekki öll á valdi hennar. Fjölmargir flokksmenn hafa ekki enn sætt sig við Barack Obama sem forsetaefni sitt og horfa í aðrar áttir, bæði til þess að sitja heima eða kjósa John McCain í Hvíta húsið. En nú geta Clinton-hjónin með sanni sagt að þau hafi lagt sig fram. Þau munu líka segja að nú verði Barack Obama að sækja þessi atkvæði. Ef hann tapar munu þau kenna honum um að hafa ekki sótt þau.
Við getum verið viss um að Demókrataflokkurinn hefur lægt öldurnar innbyrðis. En verkefnið er framundan. Ekki munu Clinton-hjónin sigra þessar kosningar fyrir Obama. Þau hafa lagt sitt lóð á vogarskálarnar. Hillary fékk flest atkvæði allra sem hefur mistekist að ná flokksútnefningu og hefur með því einu gríðarleg áhrif og völd. Þau áhrif hafa verið greinileg í gegnum allt þingið. Í og með var þetta flokksþingið hennar - ekki var hægt að ná flokkssamstöðu án hennar. Margir sem fylgdu henni eru illir með að Obama stóð ekki við sitt. Nú er það verkefni hans að vinna fyrir þessu.
Förum yfir helstu punkta þriðja þingkvöldsins í Denver.
- Joe Biden, öldungadeildarþingmaður frá Delaware, var útnefndur varaforsetaefni samhljóða af flokksþinginu. Hann flutti tilfinningaríka og trausta ræðu en með mjög beiskum og reynslumiklum pólitískum tón. Biden fór í gegnum allan skalann í orðavali sínu; var bæði mjög persónulegur og einlægur og sneri sér svo jafnharðan yfir í hörð pólitísk átök; setti upp pólitísku brynjuna og gerðist mjög vígreifur. Þetta var þýðingarmesta ræðan á stjórnmálaferli hins gamalreynda Bidens, sem greinilega á að tala upp reynsluna í forsetaframboði hins lítt reynda frambjóðanda frá Chicago.
Biden talaði fallega um fjölskyldu sína, rakti söguna af pabba sínum og mömmu. Heiðraði sérstaklega móður sína sem var í salnum og minntist á hvað hann hefði lært af henni; að vera heiðarlegur og trúr sínu. Notalegt og vel gert; Bandaríkjamenn elska það þegar frambjóðendur eru góðir við mömmu sína á svona augnabliki. Svo talaði Biden einlægt og fallega um þá lífsreynslu þegar eiginkona hans og dóttir fórust í bílslysi nokkrum vikum eftir að hann var kjörinn í öldungadeildina árið 1972; lífsreynslu sem hefur markað hann alla tíð síðan. Traust orðaval.
Jafnharðan sneri Biden sér í það verkefni að ráðast að John McCain. Línan sem hann markaði verður örugglega sú sem notuð verður næstu 67 dagana; John sé einlægur og vandaður maður, traustur föðurlandsvinur og stríðshetja, en hann hafi einfaldlega rangt fyrir sér og sé ekki treystandi vegna þess. Þetta er traust lína og gæti skilað þeim árangri. Biden afhjúpaði sig allavega í ræðunni sem maðurinn er á að tækla John McCain. Hann á að byggja undirstöðuna fyrir lokasprettinn og standa sig í átökunum; hann á að verða varðhundurinn í framboðinu og tala einn um utanríkismál.
Biden er þannig gerður að hann þekkir utanríkismál út og inn. Í þessari ræðu talaði hann um lykilmál á svæðinu sem Barack Obama heimsótti fyrr í sumar. Bara í þessari tiltölulega stuttu ræðu fjallaði hann betur um það en Obama gerði á öllum blaðamannafundunum og ræðunum sem hann flutti í M-Austurlöndum. Þannig að enginn vafi leikur á því hver verður á vaktinni í utanríkismálum í forsetatíð Barack Obama. Það verður Biden, rétt eins og Dick Cheney var á vaktinni fyrir George W. Bush. Bush sótti Cheney vegna reynslunnar, sama gerði Obama með Biden.
- Beau Biden, saksóknari í Delaware og sonur frambjóðandans, kynnti föður sinn á sviðið. Hann flutti einlægustu og traustustu ræðu sem ég hef heyrt son flytja um föður sinn mjög lengi. Auðvitað var fjallað um slysið sem kostaði móður hans lífið fyrir 36 árum. Beau talaði um lífsreynsluna og hversu vel pabbi hans stóð með honum í gegnum allt, en hann slasaðist alvarlega í slysinu og var fyrst varla hugað líf. Biden sór embættiseið sinn í öldungadeildina frá sjúkrabeði Beau, en hann vék ekki frá honum á sjúkrahúsinu vikum saman.
Beau talaði um þetta bæði til að ljá föður sínum persónulegan styrk í gegnum baráttuna en ekki síður til að tryggja honum persónulegri sjarma. Skoðanakannanir gefa vel til kynna að mörgum finnst Biden vera gamall maður án stjörnuljóma. Ein skilaboðin hafa því greinilega verið að tala hann upp sem persónu og sýna persónuna á bakvið kerfiskarlinn á þingi síðustu 36 árin. Það tókst mjög vel. Svo var þetta auðvitað framboðsræða fyrir Beau í og með. Mjög líklegt er að hann taki við þingsæti föður síns verði hann varaforseti.
- Bill Clinton, fyrrum forseti Bandaríkjanna, flutti frábæra ræðu, að mínu mati eina sína bestu og traustustu síðan að hann lét af forsetaembætti fyrir tæpum átta árum. Hann var einlægur, traustur og kraftmikill í orðavali og sýndi allar sínar bestu hliðar. Á góðum degi er enginn ræðumaður í heiminum betri og einlægari en Clinton forseti. Hann er einfaldlega frábær. Á vondu dögunum er hann reiður, úrillur gamall karl sem enginn hefur samhug með. Of oft sýndi hann síðarnefndu týpuna í kosningabaráttu Hillary þegar á móti blés og lék sinn þátt í að Hillary tókst ekki að ná leiðarenda.
Clinton forseti var hylltur er hann kom á sviðið og varð að bíða mínútum saman eftir því að geta komist að. Eftir allt sem á undan er gengið heldur hann virðingu sinni og stöðu innan flokksins. Enda hefur hann stöðu innan flokksins sem enginn annar núlifandi maður getur státað sig af; vann tvisvar Hvíta húsið og hefur setið lengst allra demókrata á forsetastóli ef aðeins Franklin Delano Roosevelt er undanskilinn. Með ræðunni í gærkvöldi sótti Clinton forseti sér þessa stöðu að nýju og fékk hana án þess að þurfa að hafa í sjálfu sér mikið fyrir því.
Hinsvegar stóð hann við sitt, flutti ræðuna sem allir vildu fá. Hann er og verður áfram sjarmatröllið mikla í flokknum. Eftir allt sem á undan er gengið sté hann fram, gekk alla leið og studdi Obama. Hann lagði að lokum sitt af mörkum til að tryggja sameinaðan flokk. Talaði af virðingu og notalegheitum um Obama. Í öllum átökum síðustu mánaða hafði hann ekki sagt eitt einasta notalegt orð um Obama-hjónin og kosningabaráttu þeirra.
Frá því að Barack Obama náði útnefningunni og allt til gærdagsins hafði Clinton forseti aðeins slegið úr og í með afstöðu sína til Obama og ekki heitið honum traustum stuðningi og ekki sagt neitt um hvort hann væri yfir höfuð tilbúinn til að verða forseti Bandaríkjanna frá fyrsta degi. Clinton forseti sló þetta tal út af borðinu. Hitt er svo annað mál hvort hann meinti orð af því sem hann sagði. Eflaust ræðst það ekki fyrr en örlög Obama ráðast í nóvember.
- Eitt eftirminnilegasta augnablik kvöldsins var þegar Hillary Rodham Clinton batt enda á kosninguna um forsetaefni flokksins með yfirlýsingu sinni. Hún fór í gegnum þvöguna í þingsalnum eins og stormsveipur, geystist fram ásamt sínum traustustu stoðum í stjórnmálastarfinu, tók hljóðnemann og tók forystuna um að tryggja þá samstöðu sem varð fyrirsögn gærkvöldsins. Eftir allt sem á undan er gengið er þetta stórglæsileg frammistaða. Með þessu hefur Hillary ekki aðeins tryggt stöðu sína og pólitísk áhrif, heldur og mun frekar útnefningu flokksins ef Obama tapar.
- John Kerry, öldungadeildarþingmaður í Massachusetts og forsetaefni demókrata árið 2004, flutti einlæga, vígreifa og trausta ræðu um hermennsku og afrekin miklu í eigin lífi. Þetta var hin fullkomna ræða fyrir John Kerry, í sannleika sagt. Vandamálið var aðeins að þessi ræða kom fjórum árum of seint, allavega fyrir hann. Ef hann hefði talað svona í kosningabaráttunni fyrir fjórum árum væri hann örugglega forseti Bandaríkjanna og flokksþingið í Denver væri hans. Talandi um pólitíska óheppni og kaldhæðni.
Mér fannst Kerry alltaf eins og tréhestur; fíll í postulínsbúð síðast. Var vandræðalegur og veikburða forsetaefni þrátt fyrir alla sína reynslu og pólitísk verk áratugum saman. En í gærkvöldi stóð hann sig vel, svolítill kjaftur á karlinum og hann var ekki eins skelfilega leiðinlegur og í síðustu baráttu. Kerry gerði mörg mistök síðast sem hann sér eftir. Mest sér hann eftir að velja John Edwards sem varaforsetaefni. Bigtime klúður. Edwards er fjarri núna - sleikir sárin eftir hjákonuna. Allir hafa snúið við honum baki.
- Flott augnablik í blálok dagskrárinnar þegar Barack Obama sté fram á sviðið í Pepsi Center eftir ávarp Joe Biden. Þetta var fyrsta skiptið sem Obama kom fram opinberlega eftir að hann hlaut formlega útnefningu flokksins. Flutti stutta og vandaða ræðu, súmmeraði upp flokksþingið fram að því og talaði um stóra kvöldið framundan, þegar hann tekur formlega við flokknum og heldur inn í lokasprett baráttunnar. Fín fjölskyldustund fyrir Obama og Biden, sem hafði alla fjölskylduna sína á sviðinu. Þetta þurfa demókratar að gera; passa upp á fjölskyldumyndirnar sínar.
Kvöldið var því mikilvægt fyrir demókrata, mikill success. Samstaðan hafðist í gegn, með herkjum þó. Clinton-hjónin hafa sætt sig við Obama og feta fram á veginn með honum. Nú er að sjá hversu lengi sú samstaða helst sem innsigluð var í gærkvöldi. Framundan eru 70 dagar sem ráða því hversu lengi sú samstaða helst aðeins á yfirborðinu.
![]() |
Bill Clinton styður Obama |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.8.2008 | 23:16
Söguleg stund - Obama útnefndur forsetaefni

Fyrir nokkrum mínútum útnefndi flokksþing Demókrataflokksins í Denver í Colorado Barack Obama sem forsetaefni flokksins í forsetakosningunum eftir 68 daga, þriðjudaginn 4. nóvember nk. Þetta eru söguleg tímamót í bandarískum stjórnmálum. Obama er fyrsta þeldökka forsetaefnið í sögu Bandaríkjanna og verður næstyngsti forseti Bandaríkjanna ef hann nær kjöri. Aðeins John F. Kennedy var yngri, en hann var 43 ára gamall er hann var kjörinn forseti árið 1960.
Eftir kosningu á gólfinu í þingsalnum í Pepsi Center-íþróttahöllinni í tæplega klukkustund þar sem bæði Obama og Hillary höfðu verið útnefnd af stuðningsmönnum sínum og fengið atkvæði fylkjanna steig Hillary Rodham Clinton fram þegar röðin kom að New York og dró sig út úr kosningunni og bar fram tillögu um að Obama yrði forsetaefni demókrata án frekari kosningar. Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildarinnar og þingforseti, bar tillöguna upp og var hún samþykkt samhljóða.

Með þessu hefur Hillary tryggt endanlega flokkssamstöðuna sem hún talaði fyrir í gær. Staða hennar hefur styrkst mjög í gegnum þetta ferli. Hún hefur lagt sig fram um að vinna að flokkshag umfram allt annað, stendur við dílinn - kemur út úr þessu ferli sem viss táknrænn sigurvegari. Hún hefur ekki skaðast sem stjórnmálamaður á tapinu í forkosningunum, hefur mikil pólitísk áhrif og heldur styrkleika sínum. Með framgöngu sinni í kvöld tryggir hún sig aftur sem forsetaefni ef Obama tapar.
Þegar að blökkumannaleiðtoginn dr. Martin Luther King lést fyrir fjórum áratugum átti hann sér draum um samfélag þar sem litaraft skipti ekki máli og þeldökkir hefðu sömu tækifæri í lífinu og hvítir. Sú barátta kostaði hann lífið. Á þessum sögulega degi í bandarískum stjórnmálum hefur Barack Obama látið drauma baráttumannsins frá Atlanta rætast með því að ná útnefningu Demókrataflokksins. Þetta eru söguleg tímamót.
Fyrir aðeins átta til tíu árum hefði engum órað fyrir því að fyrir lok fyrsta áratugar 21. aldarinnar myndi þeldökkur forsetaframbjóðandi ná alla leið í forkosningaferli stóru flokkanna, hljóta atkvæði hvítra kjósenda um gervöll Bandaríkin og sverja embættiseið sem valdamesti maður heims. Ef marka má kannanir er þó hvergi nærri öruggt að Obama nái alla leið og spennandi kosningaslagur framundan.
Á morgun eru 45 ár liðin frá því að dr. King tjáði draumsýn sína í Washington í hinni frægu ræðu. Á þeim degi þiggur Obama formlega útnefninguna. Í og með er það kaldhæðnisleg tilviljun, enda var tímasetningin þingsins ákveðin nokkru áður en Obama náði útnefningunni. Nú tekur þá alvaran við. Hálfur sigurinn er aðeins unninn fyrir demókrata og Obama - mikið verk er eftir. Kannanir sýna að ekkert er öruggt.
Sigur Obama í kvöld eru engin stórpólitísk tíðindi - löngu var vitað hvernig myndi fara. Þetta eru þó umfram allt söguleg tímamót. Hillary hefur í verki tryggt sameinaðan flokk. Nú er það Obama að sýna hvort hann hafi það sem þarf til að leiða draum dr. Kings allt á leiðarenda; í Hvíta húsið - blökkumaður verði valdamesti maður heims.
![]() |
Demókratar útnefna Obama |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.8.2008 | 21:24
Flokksþing demókrata í Denver: 3. dagur
Flokksþing demókrata heldur áfram í kvöld í Denver. Í gær var reynt að tala upp samstöðuna. Hillary Rodham Clinton talaði flokksmenn saman með fítonskrafti og auk þess sóttu þungavigarmenn í flokknum að John McCain af mun meiri krafti en fyrsta þingkvöldið, þar sem mörgum fannst vanta markvissa pólitíska baráttu gegn andstæðingnum í kosningunum.
Hillary Rodham Clinton innsiglaði síðan endanlega samstöðu innan flokksins af sinni hálfu nú síðdegis og stóð við sinn hluta dílsins með því að gefa eftir rúmlega 1700 þingfulltrúa sína sem hún vann í forkosningunum. Þeir eru nú frjálsir að því leyti að þeir eru ekki bundnir henni að neinu leyti og geta kosið eins og þeir vilja í hinni formlegu útnefningakosningu, fylgja aðeins eigin sannfæringu. Bæði er það vottur um samstöðu og stuðning við Obama. Nú reynir á hversu margir hlýða samstöðukallinu frá Hillary.
Spunameistarar demókrata töldu annað kvöldið mun betur heppnað en það fyrsta, enda meiri pólitískur þungi og minna um pólitískt glys. Kannanir hafa ekki breyst mikið meðan þingið hefur staðið. Enn er staðan jöfn og sumar kannanir sýna forskot John McCain. Val á varaforsetaefni hefur ekki haft neitt að segja, skv. könnunum. Í kvöld fær valkostur Obama í baráttu næstu 70 dagana að tala og eins mun Bill Clinton reyna að tala upp þá samstöðu sem kona hans talaði um í gærkvöldi.
Förum yfir nokkra lykilpunkta þriðja þingkvöldsins.
- Formleg kosning á forseta- og varaforsetaefni Demókrataflokksins fer fram. Barack Obama verður þá formlega fyrsti þeldökki forsetaframbjóðandinn í sögu Bandaríkjanna sem nær útnefningu sem forsetaefni hjá stóru flokkunum. Hann náði útnefningunni í síðustu forkosningunum 3. júní en fær loks sess sem forsetaefni í kvöld.
Þar sem Hillary Rodham Clinton hefur gefið eftir kjörmenn sína má búast við samstöðukosningu, þar sem Barack Obama fær mun fleiri atkvæði en hann vann í hinum sögulegu forkosningum. Þá kemur endanlega í ljós hversu mikil samstaða er í flokknum og hversu margir styðja Hillary þrátt fyrir að hún hafi gefið eftir atkvæði sín.
- Varaforsetaefnið Joe Biden flytur formlegt útnefningarávarp sitt. Þetta verður þýðingarmesta ræða hins 65 ára gamla öldungadeildarþingmanns frá Delaware á ferlinum. Væntanlega mun hann þar afhjúpa hlutverk sitt í kosningabaráttunni, sem varðhundur framboðsins í árásum og átakapunktum gegn John McCain.
Auk þess mun Biden reyna að tala sig upp í það hlutverk að vera hinn sterki stjórnmálamaður við hlið Obama, með reynsluna og kraftinn. Hann þarf að selja bandarískum kjósendum þá ímynd sína að vera hinn trausti reynsluhlekkur hins óreynda forsetaframbjóðanda í átökum næstu 70 dagana.
- Bill Clinton, fyrrum forseti Bandaríkjanna, mun flytja ávarp. Beðið hefur verið eftir ræðunni mjög lengi. Hann var ósáttur með að vera úthlutað því að tala aðeins um þjóðaröryggismál og búist er við að hann muni gera það að engu og fara yfir víðan völl, sýna með því sjálfstæði sitt.
Auk þess er talið að Clinton muni tala sig upp úr átakamálum forkosningabaráttunnar þar sem eiginkona hans tapaði. Í gegnum samstöðutal muni hann minna á hversu vel hann skildi við samfélagið fyrir átta árum og bera saman við stöðuna nú, sér í vil.
- John Kerry, öldungadeildarþingmaður í Massachusetts og forsetaefni demókrata árið 2004, mun flytja ávarp, auk þess Harry Reid, meirihlutaleiðtogi demókrata í öldungadeildinni og þingmaður í Nevada. Auk þess tala Evan Bayh, öldungadeildarþingmaður í Indiana, og Jay Rockefeller, öldungadeildarþingmaður í Vestur-Virginíu.
- Barack Obama kemur til Denver í kvöld. Hann hefur verið á ferð um nokkur lykilfylki síðustu dagana og fylgst með flokksþinginu úr fjarska. Nú þegar sögulegt útnefning hans er í sjónmáli kemur hann loksins á flokksþingið og verður sýnilegur þar. Útnefningarræðan er á morgun.
- Richard Daley, borgarstjóri í Chicago í Illinois, flytur ávarp. Auk þess tala Bill Richardson, ríkisstjóri í Nýju-Mexíkó, öldungadeildarþingmaðurinn Jack Reed og James Clyburn, fulltrúadeildarþingmaður í S-Karólínu.
Þetta verður kvöldið þar sem sagan er mörkuð með sögulegri kosningu á þeldökku forsetaefni og þar sem gráhærðir þrautreyndir menn í stjórnmálum, tveir menn sömu kynslóðar, bregða sér í ólík hlutverk. Annar talar upp samstöðu en hinn kynnir sig í nýju hlutverki og reynir að ná þeim sess að verða á forsetavakt næstu árin.
Þetta verður sannarlega áhugavert kvöld þar sem mun koma endanlega í ljós hvort samstaða demókrata sé staðreynd eða aðeins orðin tóm.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.8.2008 | 13:21
Súmmering: Leitað að samstöðunni í Denver
Á öðru kvöldi flokksþings demókrata snerist allt um að leita að samstöðu í allri sundrungunni sem er undir niðri innan flokksins. Hillary Rodham Clinton, konan sem hlaut 18 milljón atkvæða í baráttu sinni fyrir því að verða fyrsti kvenkyns forseti Bandaríkjanna, gaf draum sinn um Hvíta húsið upp á bátinn og brosti í gegnum tárin er hún talaði upp andstæðing sinn í forkosningunum, Barack Obama, í langri og ítarlegri ræðu. Ræðan var traust og vel flutt, en fáir bjuggust við að hún meinti í raun það sem hún sagði. En þvílíkur ræðusnillingur þessi kona er.
Annað kvöldið var mun sterkara pólitískt og umgjörðin alvöru og traust. Þar var loksins ráðist af krafti gegn repúblikunum og frambjóðanda þeirra. Fyrsta kvöldið var minnst á John McCain í aðeins einni ræðu af alvöru. Nancy Pelosi tók þá það verkefni að sér. Nú var hún ekki eins einmana. Væmnin vék fyrir pólitískum þunga. Hver lykilmaðurinn í flokksstarfi demókrata kom fram á sviðið og talaði um hvað John McCain væri nú afleitur og komu með rökin sem þurfa ef demókratar vilja eiga einhvern séns á að sigra gömlu stríðskempuna.
Demókratar þurfa fyrst af öllu að sameinast ef þeir vilja eiga von á að ná á leiðarenda. Obama hefur ekki grætt neitt á varaforsetavalinu og að óbreyttu, skv. könnunum og stemmningunni fyrstu dagana, verður það metið sem pólitísk mistök. Hann virðist hafa valið mann sem færði honum enga fylgissveiflu eða traust kjarnafylgi inn í framboðið. En þess þá frekar verður hann að stóla á sjálfan sig. Hann verður líka að stóla á Clinton-hjónin. Hillary stóð við sinn hluta dílsins af einlægni og krafti. En það kraumar heldur betur undir niðri.
Förum yfir helstu punkta annars þingkvöldsins í Denver.
- Hillary Rodham Clinton var stjarna kvöldsins, skein í gegnum allt og skyggði á alla aðra viðstadda, lykilræðumann þingsins, kvenkyns félaga í þingstarfinu, varaforsetaefnið og eiginkonu forsetaefnisins. Hillary leiftraði af orðfimi og krafti - algjörlega allur pakkinn, traust og ákveðin í að tala upp samstöðuna í flokknum. Hillary var hyllt mínútum saman áður en hún tók til máls, klappið ætlaði engan endi að taka - sýndi þar vel hversu sterk staða hennar er innan flokksins. Hillary er ekki að fara eitt né neitt. Ef Obama tapar mun hún sækjast eftir hnossinu aftur. Enginn vafi á því.
Hillary talaði samstöðuna upp. Talaði gegn John McCain vinnufélaga sínum í öldungadeildinni af fítonskrafti. Þakið ætlaði að rifna af Pepsi Center þegar hún sagði með blik í auga brosandi: No Way, No How, No McCain. Hún spurði stuðningsmenn sína hvort þeir hefðu stutt sig vegna áherslna sinna eða til að koma repúblikana í Hvíta húsið. Talaði eins fallega um Obama eins og mögulega var unnt og hún treysti sér til. Aldrei í ræðunni sagði hún þó Obama vera tilbúinn til að verða forseti Bandaríkjanna né talaði um bakgrunn hans í embættinu. Þetta var því hol stuðningsræða.
Chelsea Clinton kynnti mömmu sína með fáum en fallegum orðum. Chelsea er orðin pólitísk stjarna, þvert á það þegar hún varla talaði í forsetatíð föður síns opinberlega. Hún hlaut sína eldskírn í pólitískri baráttu mömmu sinnar. Þegar þurfti að mýkja baráttuna var hún sótt til að leika lykilhlutverk við að kynna mömmu sína. Nú er talað um að stutt sé í að hún sjálf fari í framboð. Er efni í það. Mikið innilega var kynningarmyndin um Hillary flott og skemmtilega klippt. Snilld.
Hyllingin á Hillary var algjörlega ótrúleg. Ætlaði engan endi að taka. Þarna sáu Obama og stuðningsmenn hans hversu traust staða Hillary er. Konur felldu tár þegar Hillary sagði lífsreynslusögur kvennanna sem studdu hana og lögðu henni til peninga bara til að eygja von á kvenforseta. Margir karlarnir í salnum voru heillaðir líka. Stjörnuljóminn er til staðar og innst inni mátti sjá að margir sáu eftir að hafa ekki tryggt Hillary útnefninguna. Enda ef flokkurinn tapar á þessu ári þar sem allt á að leika þeim í lyndi munu allir sjá eftir því að hafa ekki kosið hana.
Michelle Obama var samt heldur vandræðaleg í hyllingunni. Eins gott að Barack var ekki þarna. Hillary átti sviðið og salinn algjörlega. Drottnaði yfir og minnti á að Clinton-stjörnuljóminn er algjör. Eins gott að draga ekki í efa mátt Hillary. Hún hefur í fjóra áratugi verið í flokkskjarnanum, unnið baki brotnu og hefur reynsluna. Ekki var hægt annað en velta fyrir sér meðan Hillary talaði flokksþingið upp úr vitleysunni og til skýjanna af hverju hún varð ekki varaforsetaefnið! Bara vegna heiðurs Obama-hjónanna?
- Bill Clinton ljómaði eins og sól í heiði á meðan eiginkona hans talaði. Var stoltur og hrærður, líka íhugull og klappaði manna mest. Clinton forseti mun vera mun ósáttari við Barack Obama en eiginkona hans og hreinlega illur yfir meðferð Obama-hjónanna á eiginkonu sinni í valferlinu á varaforsetaefni og á sér í forkosningaslagnum. Auk þess varð hann trylltur yfir því að sér væri skammtað eitt umræðuefni í ræðunni sem hann á að flytja í kvöld.
Nánustu samherjar Clinton-hjónanna fullyrða að hann láti þann ramma lönd og leið og tali um það sem hann vill, sérstaklega efnahagsmálin. Hann þorir líka að láta finna fyrir sér. Hann ætlar ekki að vera viðstaddur ræðu Obama í Denver þar sem hann þiggur útnefninguna annað kvöld og ætlar að fara aftur til New York í fyrramálið á meðan Hillary hefur ákveðið að vera þingið út. Sterk skilaboð hjá sjarmatröllinu frá Hope í Arkansas. Hann þolir ekki Obama.
- Mark Warner, þingframbjóðandi og fyrrum ríkisstjóri í Virginíu, flutti lykilræðu þingsins. Frekar átakalaust allt saman, slétt og fellt stuðningstal fyrir Obama. Fannst þetta flöt og léleg ræða. Má vera að Warner sé öruggur í öldungadeildina eftir nokkra mánuði en ég var að sofna yfir ræðunni hans. Sorrí, þetta var slappasta lykilræða demókrata síðan Bill Clinton talaði endalaust í lélegustu ræðu ferilsins á flokksþinginu 1988.
- Dennis Kucinich var alveg magnaður í sinni ræðu. Átti alveg salinn, var kjaftfor og hress, baðaði út höndunum og öskraði boðskapinn. Hjólaði í McCain fram og til baka án þess að hika. Þetta er það sem demókratar verða að gera ef þeir ætla að gera þingið að success, hjóla í andstæðinginn og gera hann ótrúverðugan. Sykurblaður kemur þeim ekki neitt.
- Þetta var sérstakt kvennakvöld demókrata. Minnt á stöðu kvenna almennt og styrk þeirra innan flokksins. Minnt á hvað flokkurinn ætti nú marga kvenkyns ríkisstjóra og þingmenn í öldungadeildinni. Sterkt móment þegar þær komu saman fram á sviðið, en vakti samt spurningarnar um að demókrötum mistókst að tryggja konu alla leið í Hvíta húsið á sögulegu ári, sem hefði getað orðið þeirra.
- Kvöldið var því allt í senn flott stjörnumóment og með miklum pólitískum þunga. Mun betur heppnað en það fyrsta. Og í kvöld mun Bill Clinton eiga sviðið, mun frekar en varaforsetaefnið Joe Biden, sem skv. könnunum virðist ekki vera að færa framboðinu neina fylgisaukningu. Allir fylgjast með því sem Clinton forseti segir og hvernig og hvort hann muni gera það sem hann hefur aldrei gert fram að þessu, tala upp Barack Obama sem forsetaefni.
Fréttaskýrendur spá því að það verði honum erfitt og því muni ræðan verða mun frekar um það sem hann afrekaði en það sem Obama gæti afrekað. Clinton forseti er langrækinn og skapmikill og gleymir engu. Hans pólitíska minni frá árinu 2008 er vel í lagi og það mun eflaust lita ræðuna. Fyrir Obama sjálfan er biðin eftir ræðunni erfið, enda veit hann að Clinton forseti hatar hann jafnmikið og pestina.
![]() |
Erum í sama liði" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)