Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
14.8.2008 | 17:10
Ólafur F. hafnaði Tjarnarkvartett - ósannur spuni
Ég sagði í bloggfærslu minni fyrr í dag að orðrómur um að Ólafur F. Magnússon vildi víkja fyrir Margréti Sverrisdóttur væri ósannur og vitnaði í sögusagnir sem ég hafði heyrt. Enda hefði það verið kostulegt ef Ólafur F. hefði endað á að segja af sér og upphefja Margréti eftir allt sem á undan er gengið þegar hún vildi ekki styðja hann sem borgarstjóra.
En annars skiptir þetta uppgjör og spunamennska vinstrimannanna í minnihlutanum litlu sem engu máli. Þau munu ekki verða aðalleikarar í því sem tekur við. Nýr meirihluti er að fæðast án aðkomu þeirra og Tjarnarkvartettinn mun ekki endurfæðast við völd að nýju.
Hann gafst upp í janúarmánuði og vandséð hvernig eigi að vera hægt að endurnýja þau heit á þeim rústum sem þá urðu. Auk þess væri Ólafur F. Magnússon með afsögn úr borgarstjórn að gefa þeim í minnihlutanum sem mest hafa ráðist að honum allt frá borgarstjórnarfundinum þar sem hann var kjörinn borgarstjóri sigur í þeirri rimmu sem hann hóf sjálfur með því að slátra Tjarnarkvartettinum.
Það verða margir stjórnmálaspekingar og fræðingar sem munu keppast um síðar meir að skrifa sögu þessa kjörtímabils í stærsta sveitarfélagi landsins. Sagan af borgarstjóraferli Ólafs F. verður örugglega sérstök og enn sérstakari ef svo hefði farið að hann hefði skrifað sig þar út og hleypt Margréti inn eftir vinslit þeirra.
![]() |
Bera til baka fréttir um Tjarnarkvartett |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.8.2008 | 15:30
Ólafur F. tilbúinn til að kvitta upp á eigið klúður
Mér finnst það mjög kómískt að Ólafur F. Magnússon, fráfarandi borgarstjóri, hafi verið tilbúinn til að skrifa upp á eigið klúður í embætti með því að afsala sér borgarfulltrúasætinu til að reyna að endurvekja Tjarnarkvartettinn sáluga, sem hann sjálfur slátraði. Þetta er held ég besti pólitíski brandari ársins, burtséð frá mörgu öðru fyndnu.
En ég held að rétt sé að vorkenna Ólafi F. nú þegar hann missir borgarstjórakeðjuna. Hann hefur spilað svo ævintýralega rassinn úr buxunum með verklagi sínu að undanförnu að leitun er að öðru eins. Fyrst henti hann Ólöfu Guðnýju út úr skipulagsráði, svo ræður hann Gunnar Smára í óljós verkefni undir formerkjum Dægradvalar og svo þegar hann hefur misst allt býðst hann til að upphefja Margréti Sverrisdóttur.
Þvílíkt og annað eins - er þetta ekki efni í sápuóperu um ástir og pólitísk örlög frjálslyndra og óháðra, hvað svo sem sá hópur heitir annars frá degi til dags. En ætlar Ólafur F. að axla sín pólitísku skinn með því hvernig hann spilaði sig út úr borgarstjóraskrifstofunni og afhenda Margréti Sverrisdóttur sætið eða er þetta bara pólitískur leikaraskapur?
Hversu einlægt eða trúverðugt þetta boð Ólafs F. Magnússonar um afsögn telst mun eflaust ráðast. Mínir heimildarmenn innan Sjálfstæðisflokksins telja þetta uppspuna og auglýsingabrellu hjá leifum Tjarnarkvartettsins. En beðið er nú yfirlýsingar borgarstjórans fráfarandi um framtíð hans í borgarmálunum sem greinilega er í óvissu ef þessi orðrómur er réttur, burtséð frá því að hann er að missa borgarstjórastólinn.
Mikið væri það nú fyndið ef hann myndi nú standa við fyrra boð og leyfa Margréti að klára kjörtímabilið. Eða ætlar hann að sitja sem áheyrnarfulltrúi í borgarráði?
![]() |
Ólafur vildi Tjarnarkvartett |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
14.8.2008 | 14:53
Meirihlutinn sprunginn - Hanna Birna borgarstjóri

Nú hefur endanlega verið staðfest að meirihlutasamstarfi Sjálfstæðisflokks og F-lista í borgarstjórn Reykjavíkur er lokið eftir 204 daga við völd. Heimildir herma, þó þær hafi ekki verið staðfestar, að Hanna Birna Kristjánsdóttir hafi handsalað samning við Óskar Bergsson og verði næsti borgarstjóri í Reykjavík, sá tuttugasti í röðinni og fjórði á innan við ári. Þetta verður fjórði meirihlutinn á tíu mánuðum við völd, sannarlega sögulegt tímabil í borgarmálunum.
Með þessu eru borgarmálin komin á upphafsreit fyrir deilur um REI-málið. Sama samstarf og var við völd í sextán fyrstu mánuði kjörtímabilsins endurreist, en auðvitað án Björns Inga Hrafnssonar. Þó þetta samstarf verði veikara en hitt í atkvæðafjölda verður það sterkara en ella, enda verður með því hægt að þoka málum áfram og taka skynsamlega afstöðu til fjölda mála sem hafa verið í gíslingu í borgarstjóratíð Ólafs F. Magnússonar.
En auðvitað er stöðugleikinn enginn í borgarmálum. Stærsta verkefni Hönnu Birnu og Óskars Bergssonar verður umfram allt að ná trausti við borgarbúa og reyna að tryggja stöðugleika við stjórn borgarinnar í því ítalska ástandi sem mun þó óhjákvæmilega verða meginpunktur þessa sögulega kjörtímabils.
![]() |
Nýr meirihluti að fæðast |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.8.2008 | 13:50
Meirihlutasamstarfinu við Ólaf F. slitið síðar í dag

Þessi meirihluti hefur allt frá upphafi verið mjög veikur og ekki til stórræðanna. Því koma endalokin varla að óvörum. Þegar menn eru farnir að hlaupa upp og niður stiga og fara huldu höfði til að sleppa við að mæta fjölmiðlamönnum er ljóst að endalokin eru ekki langt undan. Þetta er orðið allt mjög sérstakt og reyndar er niðurlægingartímabil borgarfulltrúa í Reykjavík orðið algjört og afleitt ef mynda þarf fjórða meirihlutann í þessu ítalska ástandi.
En það er ábyrgðarhluti fyrir sjálfstæðismenn að halda þessu áfram og bera ábyrgð á Ólafi F. Magnússyni sem borgarstjóra í Reykjavík. Það er ekkert eftir í þessu samstarfi sem réttlætir að hann sitji sem borgarstjóri í umboði sjálfstæðismanna eða annarra ef út í það er farið.
![]() |
Borgarfulltrúar segja fátt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.8.2008 | 00:52
Edwards viðurkennir framhjáhald - ferillinn í rúst

Ekki aðeins er ímynd hans nú í molum heldur trúverðugleikinn. John Edwards hafði byggt sér upp ímynd stjórnmálamannsins sem var trúr konu sinni, hinn trausti heimilisfaðir og sem hélt vörð um fjölskyldugildin. Hann var framamaðurinn sem auglýsti fjölskylduna sína sem hornstein persónu sinnar. Á þessu byggði hann bæði forsetaframboð sín, 2004 og 2008, auk þess framboðið í öldungadeildina og síðast en ekki síst þegar hann var varaforsetaefni John Kerry fyrir fjórum árum.
Allt frá því Edwards hætti við forsetaframboð sitt fyrr á árinu, þar sem hann var klemmdur á milli sögulegu valkostanna; fyrstu konunnar og fyrsta blökkumannsins sem gat unnið Hvíta húsið, og síðar lýsti yfir stuðning við Barack Obama á þeim tímapunkti sem hentaði honum best hefur verið velt því fyrir sér hver pólitísk framtíð hans væri. Voru margir sem töluðu um að hann gæti orðið varaforsetaefni Obama og verið hinn trausti hvíti frambjóðandi við hlið blökkumannsins í forsetaframboði.
Sá möguleiki er fokinn út í veður og vind eftir þessa uppljóstrun. Barack Obama er nógu veikur fyrir í þessari kosningabaráttu, þar sem hann er jafn John McCain skömmu fyrir flokksþingið, til að hann velji mann með sér sem hefur lagt ímynd sína í rúst á nokkrum mánuðum með því að ljúga og neita fyrir framhjáhald. Edwards er ekki bógur í varaforsetaframboð á þessum tímapunkti. Hann hefur enga undirstöðu til að fara þar fram sem traustur valkostur og hann myndi ekki gera neitt annað en draga með sér spurningarnar um hversu óheiðarlegur hann var við bandarísku þjóðina og fjölskylduna.
Kannski verður Edwards dómsmálaráðherra í stjórn Obama, ef hann nær kjöri. Er þó ekki viss um það. Efast um að Edwards hafi stöðu í eitt né neitt núna. Hann hefur spilað undirstöðum stjórnmálaferils síns undan sér og þarf að finna sér nýtt upphaf. Með framkomu sinni hefur John Edwards lagt feril sinn í rúst og þarf að byggja sér ímynd og karakter að nýju áður en lengra er haldið.
Auk þess sýnist mér fleiri pólitísk hneyksli í uppsiglingu. Starfsmenn forsetaframboðs Edwards hafa viðurkennt að hafa borgað hjákonunni peninga og fullyrt er að Edwards sé faðir barnsins hennar. Hvaðan komu peningarnir? Þetta er örugglega ekki búið.
Hefði Edwards strax viðurkennt framhjáhaldið fyrir ári, er það komst fyrst í umræðuna, í stað þess að neita æ ofan í æ hefði hann átt auðveldar með að endurreisa sig. Nú virðist skaðinn skeður.
![]() |
Edwards viðurkennir framhjáhald |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.8.2008 | 02:11
Feigur meirihluti í Reykjavík - hvað gerist í Valhöll?
Boltinn er nú hjá forystu Sjálfstæðisflokksins í borginni. Hversu lengi ætlar flokkurinn að standa vörð um Ólaf F. Magnússon, borgarstjóra? Telur flokksforystan það verðugt verkefni að styðja hann til verka fram í marsmánuð 2009 þegar Hanna Birna Kristjánsdóttir á að verða borgarstjóri í Reykjavík? Er eitthvað eftir í þessum meirihluta sem gefur til kynna að hann muni geta snúið stöðu sinni við? Ég fæ ekki séð að nein traust brú sé eftir á milli meirihlutans og þeirra sem hafa stutt Sjálfstæðisflokkinn. Gjá er á milli.
Allar fylgismælingar að undanförnu hafa sýnt að fjöldi sjálfstæðismanna vill ekki styðja meirihlutann og eða hefur misst trúna á forystu hans. Stóri vandinn virðist vera að margir sjálfstæðismenn vilja ekki þennan borgarstjóra og hafa gefist upp. Enda verður ekki séð að margir séu beinlínis að bakka upp borgarstjórann og margir þaga frekar en leggja upp í að verja það sem gert hefur verið. Nýjustu verkin þar sem helsta púðrið fer í að verja undarlegan brottrekstur konu úr nefnd á vegum borgarinnar sem ekkert hefur af sér gert er absúrd í meira lagi.
Þessar fylgismælingar hljóta að vera umhugsunarefni fyrir þá sem fara með völd í Valhöll. Það er óviðunandi með öllu að Sjálfstæðisflokkurinn sé orðinn kvartflokkur í Reykjavík. Margar ástæður valda því en sú sem vegur þyngst nú er óvinsæll meirihluti með umboðslausan borgarstjóra. Ég man satt best að segja ekki eftir veiklulegri borgarstjóra, manni sem hefur ekkert umboð til að gegna embættinu lengur. Það er ekkert eftir sem segir að hann hafi nokkurn fjöldastuðning.
Afleitt er að þetta gerist á vakt Sjálfstæðisflokksins - flokkurinn sitji uppi með borgarstjóra án umboðs. Í ofanálag berast sögusagnir um að þessi maður ætli sér að krefjast þess að gegna embættinu út kjörtímabil, fram á sumardaga árið 2010. Þvílíkur brandari. Hvort sem það er satt eður ei eiga sjálfstæðismenn að horfa annað. Það er allt betra en þessi vitleysa.
![]() |
Tæp 2% borgarbúa kysu F-lista |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.8.2008 | 01:28
Sundraðir demókratar þrem vikum fyrir flokksþing

Obama virðist nú reyna allt til að tryggja friðinn við Clinton-hjónin. Hillary verður aðalræðumaður annars flokksþingskvöldsins, þann 26. ágúst og nú er ljóst að Bill Clinton mun flytja ræðu kvöldið eftir, áður en varaforsetaefnið mun ávarpa flokksþingið. Þau verða í sviðsljósinu á þinginu og fá sína stjörnustund. Obama veit að án þeirra verður erfitt að vinna kosningarnar, einkum þar sem kannanir sýna að staðan er algjörlega í járnum. Ekkert má klikka til að Obama landi sigri eftir þrjá mánuði.
Enn hefur Obama ekki ljáð máls á að Hillary verði varaforsetaefnið. Hann skaut það niður með tveim ákvörðunum sem vöktu þó mismikla athygli. Hin fyrri að ráða Patti Solis-Doyle sem starfsmannastjóra fyrir varaforsetaefnið og hin síðari að láta Hillary tala annað kvöldið, en hefð er fyrir því að varaforsetaefnið tali hið þriðja, kvöldið áður en forsetaefnið þiggur formlega útnefningu flokksins. Patti Solis-Doyle var ein þeirra sem klúðruðu forsetaframboði Hillary með röngum ákvörðunum á mikilvægum tímapunkti. Hillary rak hana og þær hafa ekki talast við síðan í mars.
Michelle og Barack Obama vilja ekki Hillary sem varaforsetaefnið. Þau vilja einhvern við hlið Obama sem skyggir ekki á hann og dómínerar ekki framboðið, en það er vitað mál að fari Hillary á póstinn mun hún taka sviðsljósið frá Obama, hversu mikið er erfitt að spá en hún yrði mjög fyrirferðarmikil með sína pólitísku sögu og auk þess með Bill Clinton á eftir sér. Clinton forseti er viss stofnun í bandarískum stjórnmálum sem forseti tvö kjörtímabil og hann er líka óútreiknanlegur og ekki hægt að hafa hann í taumi. Það ætti Hillary að vita manna best reyndar.
En staðan er brothætt. Margir stuðningsmenn Hillary hafa ekki sætt sig við tapið og eru enn að brugga Obama launráð, þrem vikum áður en hann þiggur útnefninguna formlega. Verði einhver læti á flokksþinginu, t.d. með formlegri skráningu Hillary í útnefningaferlið sem forsetaefnið má búast við sködduðu flokksþingi og Obama myndi veikjast gríðarlega. Niðurstaðan yrði þá sú að hann réði ekki við hlutverk sitt sem flokksleiðtogi í aðdraganda mikilvægra kosninga. Hann myndi verða veikur og færi skaddaður í mikilvægasta hluta baráttunnar.
Og enn þarf Hillary að segjast styðja Obama, tveim mánuðum eftir að forkosningaferlinu lauk. Þetta er flokkur í vanda og virðist á góðri leið með að klúðra kosningunum algjörlega án hjálpar.
![]() |
Clinton styður Obama |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3.8.2008 | 14:58
Obama missir forystuna - spennandi kosningar
Á innan við hálfum mánuði hefur Barack Obama misst forystuna í bandarísku forsetakosningunum og John McCain tekist að tryggja að repúblikanar eiga raunhæfa möguleika á að vinna Hvíta húsið þriðja kjörtímabilið í röð, þvert á spár flestra fyrir aðeins nokkrum mánuðum. Það stefnir í spennandi kosningar.
Frægðarsól Obama virðist vera farin að hníga allverulega og þegar þrír mánuðir eru til kjördags er ljóst að hann er orðinn þreyttur og er ekki eins snarpur og beittur og hann var í forkosningaslagnum við Hillary. Þreytumerkin eru orðin afgerandi og greinilegt að hann skiptir orðið æ oftar um skoðanir og hefur valdið mörgum vonbrigðum þegar áður en kosningarnar fara fram. Hann virðist auk þess mun brothættari frambjóðandi en flestir töldu í forkosningaslagnum.
Innihaldsleysið í málflutningi, þegar standard talið um breytingar á sögulegu kosningaári sleppir, er líka farið að há honum mjög. Í baráttunni við Hillary var hægt að halda langar og innlifaðar flokksræður með messíasarbrag en það er ekki hægt í þessum hluta baráttunnar. Af því leiðir að Obama er ekki eins sannfærður og staðfastur í skoðunum og hann virkaði lengst af. Auk þess er opinberu ástarsambandi Obama við fjölmiðlana greinilega lokið og farið að sækja meira að honum þegar vantar svör við alvöru spurningum.
Þegar repúblikanar töpuðu þingdeildunum í nóvember 2006 var ég sannfærður um að demókratar myndu vinna forsetakosningarnar 2008. Bæði hefði Bush þá setið í átta ár á forsetastóli og þreytan í garð repúblikana orðin talsverð. Ég er ekki eins sannfærður lengur. Ef repúblikanar taka kosningabaráttuna af trompi, eru óhræddir við Obama og þora að taka umræðuna af alvöru, eins og þeir hafa gert með umdeildri en árangursríkri auglýsingabaráttu, geta þeir alveg lagt Obama.
Þegar eru komnar sprungur í breytingamaskínuna hans Obama og augljóst að hann má eiginlega ekki við mörgum áföllum úr þessu. Í ofanálag finnst blökkumönnum Obama hafa gleymt sér. McCain getur með skynsömu varaforsetavali tryggt sér góða stöðu, en hann þarf að yngja framboðið og koma með ferskari ásýnd á það meðan Obama þarf að velja eldri frambjóðanda sem þó skyggir ekki á sig. Þar með er auðvitað Hillary útilokuð, enda myndi hún skyggja á hann í framboðinu.
Sýnist á öllu að margir sakni þó Hillary. Baráttan varð litlausari án hennar, hvað svo sem okkur öllum þykir um Hillary að þá er ekki um það deilt að hún er kjarnakona, og eiginlega má segja að fjarvera Hillary frá baráttu Obama geti bæði styrkt hann og veikt. Stuðningsmenn hennar margir hverjir virðast hafa ákveðið að segja pass, konurnar eru ansi margar fúlar og beita sér ekki af alvöru fyrir Obama og margir virðast ætla að sitja heima.
Við bætist að það er svolítið lélegt hjá Obama að guggna á boði McCain um viðræðufundi með þeim tveimur. Kappræðurnar þrjár eru standard og engin tíðindi að þær fari fram. Viðbótakappræður með líflegu formi hefði getað gert baráttuna enn snarpari og öflugri. En Obama er ekki góður í kappræðum, það sást í kappræðum demókrata þar sem Hillary glansaði jafnan, og óttast að gefa McCain höggstað á sér.
Flokksþingin eru nú framundan. Þar sem þau liggja saman að þessu sinni vegna Ólympíuleikanna verður áhugavert að sjá hvor frambjóðandinn kemur sterkari úr því ferli. Val á varaforsetaefnum munu líka skipta máli. Báðir frambjóðendur hafa augljóslega veikleika og þurfa að vanda valið vel á varaforsetaefnum til að styrkja sig á lokaspretti baráttunnar.
![]() |
Frambjóðendur hnífjafnir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.8.2008 | 23:34
Fylgishrun ríkisstjórnar - veik stjórnarandstaða

Að hluta skýrist þetta fylgishrun ríkisstjórnarinnar af því hversu lítið afgerandi hún hefur verið og hefur höktað áfram. Það hefur vantað afgerandi og trausta forystu í lykilmálum, flokkarnir hafa ekki enn eftir alla þessa mánuði náð að slípa sig saman og keyra samhent til verka. Ríflegur þingmeirihlutinn hefur ekki bætt úr skák og virðist frekar vera veikleikamerki en tákn um styrkleika. Svo er staðan í efnahagsmálum þannig að það má búast við að fylgið falli eitthvað.
Stóru tíðindin eru þó að slæm staða ríkisstjórnarinnar, sem virðist vera að keyra út í skurð, hefur ekki þau áhrif að stjórnarandstaðan styrkist að sama skapi. Flokkunum og forystumönnum þeirra í andstöðunni hefur ekki tekist að nýta sér veika stöðu Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar við stjórn landsins, eins kómískt og það hljómar. Enda varla furða að talað sé um að leiðtogar allra þessara flokka spili sig út úr pólitík á kjörtímabilinu.
Stjórnarandstaða sem getur ekki náð fylgi við þessar kjöraðstæður er ekki bógur til að taka við forystunni. Greinilegt er að fjöldi þeirra sem kusu stjórnarflokkanna í kosningunum 2007 eru ósáttir við verk hennar og eru ekki áhugasamir um að verja hana. Ég er ekki hissa á að það stefni í þá átt.
![]() |
Fylgi við ríkisstjórn minnkar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 3.8.2008 kl. 01:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
2.8.2008 | 02:34
Gjaldþrotahrinan á fullu - erfiðir tímar framundan
Þessi staða vekur spurningar um hversu erfið staðan verði í vetur. Hverjir munu standa sterkast að vígi í þeirri baráttu sem verður hjá mörgum fyrirtækjum. Auglýsingamarkaðurinn virðist vera farinn að hökta allsvakalega. Við finnum öll orðið vel hvað þeir hafa styst. Áhugavert verður að sjá hvernig gengur í vetur í þeim bransa.
Finnst reyndar mest áhugavert, þar sem ég fylgist vel með fjölmiðlum, hvernig gangi að reka þá í vetur þegar auglýsingatekjur minnka. Þegar er Ísland í dag á Stöð 2 orðið smáhorn á innan við tíu mínútum og eðlilegt að spáð sé í hvort það prógramm sé feigt.
Þetta verður kuldalegt haust fyrir einhverja, en kannski verður blóðrautt sólarlagið þegar sól lækkar á lofti á þessu síðsumri.
![]() |
HP Farsímalagerinn gjaldþrota |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |