Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
15.4.2008 | 16:54
Er Sveðju-Plank pólskur leigumorðingi?
Skil ekki af hverju hinn meinti pólski sveðjumorðingi Premyslaw Plank er með hettu fyrir utan Héraðsdóm. Hann kom fram í Kastljósi í gærkvöldi og varla nein þörf á því fyrir hann að hylja andlit sitt. Í því viðtali sagðist hann reyndar aldrei hafa komist í kast við lögin hér. Það leið ekki á löngu uns það var blásið af borðinu. Í dag birti Vísir mynd af handtöku hans hérlendis í síðasta mánuði.
Reyndar hefur fulltrúi saksóknara í Póllandi sagst hafa óyggjandi sannanir um sekt Planks í sveðjumorðinu margumtalaða. Þar er því haldið fram að Plank sé vægðarlaus sérfræðingur hjá glæpaklíku ytra og hafi verið leigumorðingi þeirra, alveg vægðarlaus hrotti. Það er greinilegt að þeir virðast hafa nokkuð traust mál á hendur honum.
Eins og ég sagði hér í gær tel ég að það eigi að framselja Plank sem fyrst til síns heima. Það er algjör óþarfi á því að við séum að vista hann hér og við eigum að láta hann svara til saka á heimavelli sínum. Alveg óþarfi fyrir okkur að vera að taka hann upp á okkar arma í þeirri baráttu sem hann á fyrir höndum.
Þetta mál allt minnir frekar á atburðarás í svæsinni bandarískri glæpamynd. Þetta er ekki veruleiki sem ég tel að við viljum hér og það er afleitt ef Ísland er að breytast í einhvern griðastað fyrir erlent glæpafólk.
Er mér nokkuð sama í sjálfu sér hvort hann sé sekur eða saklaus. Það er hið eina rétta að framselja manninn úr landi.
![]() |
Úrskurðaður í gæsluvarðhald til 6. maí |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.4.2008 | 15:42
Álver sett á dagskrá - bæ bæ "Fagra Ísland"

Staða mála er mjög afgerandi. Samfylkingin hefur ekkert gert til að fara þá leið og hefur látið þessa kosningastefnu fyrir róða í raun. Það er bara staðreynd, sem ekkert fær breytt. Greinilegt er að niðurlæging Þórunnar Sveinbjarnardóttur, umhverfisráðherra, í málum Helguvíkurálvers er algjör. Hún var annar af tveim þingmönnum Samfylkingarinnar sem kusu gegn Kárahnjúkavirkjun en hefur nú blessað í raun álver við Helguvík með verkum sínum að undanförnu. Það gerir hún þó greinilega með óbragð í munni, leit ekkert hamingjusamlega út allavega þá.
En var ekki Fagra Ísland alltaf draumórar? Aðeins hentistefna sem sett var fram kortéri fyrir kosningar, til að reyna að koma í veg fyrir að VG yrði stærsti vinstriflokkurinn í alþingiskosningunum 2007. Hef alltaf talið svo vera. Þegar að Ingibjörg Sólrún kynnti Fagra Ísland á sínum tíma var ég viss um að þar væri um að ræða hentistefnu. Skrifaði um það ítarlega grein í september 2006. Get ekki betur séð en að þar hafi mjög margt ræst. Þá þegar voru Samfylkingarmenn á heimavelli að berjast fyrir stóriðjukostum í Helguvík og Bakka, eins og allir vita.
Þessi stefnuáhersla Samfylkingarinnar kom mörgum spánskt fyrir sjónir þegar að litið var á þá staðreynd að Samfylkingin var mjög afgerandi í stuðningi sínum við Kárahnjúkavirkjun og álver á Austurlandi fyrir nokkrum árum. Sérstaklega voru þingmenn flokksins í Norðausturkjördæmi, þeir Kristján L. Möller og Einar Már Sigurðarson, afgerandi stuðningsmenn þess og sagði Kristján í viðtali að loknum blaðamannafundi þá að hann væri enn þeirrar skoðunar að álver hafi verið réttur kostur fyrir austan. Sjálf studdi reyndar ISG virkjunina í borgarstjórn.
Veit ekki hvort að það teljast tíðindi að Fagra Ísland sé í raun gufað upp úr stefnupólisíu Samfylkingarinnar. Og þó. Mikil áhersla var lögð á þetta plagg. Þeir hljóta að bera harm sinn í hljóði sem sömdu þetta plagg fyrir Ingibjörgu Sólrúnu á sínum tíma, en hafa reyndar nú nýlega varið einkaflug formannsins opinberlega, eru allavega mun rólegri í harmi sínum en þeir sem kusu flokkinn og hafa þorað að tjá sorg sína á bloggsíðum. Enda voru þeir illa sviknir sennilega. En svona er víst pólitíkin.
![]() |
Reikna með Helguvíkurálveri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
15.4.2008 | 09:08
Hillary fær sér bjór og viskískot á bar í Indiana
Hló vænt þegar að ég sá klippu af Hillary Rodham Clinton fá sér viskískot og bjórglas á bar í Indiana um helgina. Auðvitað var þetta gert til að Hillary virkaði í tengslum við almenning eftir fræg snobbummæli Obama, sem hann var að reyna að verjast alla helgina. Þetta er djarft hjá Hillary, en varla verður hún sökuð um snobb eftir þetta. Lítið á klippuna allavega.
15.4.2008 | 00:29
Pólverjinn handtekinn - mikilvægt að breyta lögum
Fagna því að pólski maðurinn hefur verið handtekinn, í kjölfar þess að handtökuskipun barst. Finnst skipta litlu máli hvort maðurinn er saklaus eða sekur um morðið ytra. Hann þarf að svara fyrir þau mál á heimavelli og réttast er að framselja hann til pólskra yfirvalda. Sjálfsagt er að taka vel á móti útlendingum en taka verður á málum þeirra sem brjóta af sér og í þessu tilfelli er ómögulegt að gera ekki neitt.
Þetta mál er í alla staði mikil lexía fyrir okkur, en reglur um framsal sakamanna eru flóknari og strangari hér en innan Evrópusambandsins. Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, hefur nú þegar tekið á málinu með lagafrumvarpi um einföldun á framsalsreglum. Það er afleitt að Ísland verði einhvers konar skjól þeirra sem brjóta af sér og eru sakaðir um alvarlegan glæp.
Skil reyndar ekki af hverju Pólverjar voru svo seinir að koma með alþjóðlega handtökuskipun. Við lærum þó okkar lexíu á svona málum vonandi - mikilvægt er að nýjar framsalsreglur verði staðfestar sem fyrst.
![]() |
Efirlýstur maður handtekinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
14.4.2008 | 22:36
Silvio Berlusconi snýr aftur - sætur pólitískur sigur

Held reyndar að þetta hafi aldrei verið í hættu fyrir Berlusconi. Allar kannanir síðustu mánuði sýndu að hann væri með pálmann í höndunum. Eftir að vinstristjórn Romano Prodi sprakk, eftir aðeins 20 mánuði við völd, hafði hann mjög vænlega pólitíska stöðu og missti aldrei forystuna í kosningabaráttunni gegn Walter Veltroni, fyrrum borgarstjóra í Róm. Síðustu dagana benti margt til þess að vinstriblokkin væri að ná Berlusconi og gæti veitt honum alvöru samkeppni. Niðurstaðan hlýtur að vera vinstriblokkinni mikið áfall og uppstokkun framundan þar.
Vissulega var það mjög erfitt fyrir Berlusconi að hætta sem forsætisráðherra eftir þingkosningarnar 2006. Hann fór beiskur og mjög særður frá völdum, vildi í fyrstu ekki viðurkenna tapið. Lærði vissulega sína lexíu og var alltaf staðráðinn í að leita hefnda, sem honum hefur tekist nú með listilegum hætti. Gamall fjandvinur hans, Romano Prodi, hafði snúið aftur í ítölsk stjórnmál, eftir að hafa verið forseti ESB og var með vænlega stöðu, hafði líka verið forsætisráðherra áður. Þótti reyndur og vandaður maður sem gæti leitt vinstrið til valda. Honum tókst það.
Prodi felldi Berlusconi frá völdum í takt við kannanir þá, en það var mjög beiskur sigur, tæpur í alla staði og meirihlutinn í öldungadeildinni var reyndar aldrei starfhæfur. Ólífubandalagið var bandalag alls níu vinstriflokka með mjög ólíka eigin stefnu, Prodi leiddi engan þeirra og var aðeins frontur á kosningabandalagi. Það brotnaði tvisvar upp og var ekki hægt að klastra í það aftur í ársbyrjun, þegar að það sprakk upp í seinna skiptið. Prodi fór mjög beygður út úr ítölskum stjórnmálum við skipbrot stjórnar sinnar.
Berlusconi lærði það eflaust á tapinu fyrir tveim árum að hann vildi ekki gera andstæðingum sínum það til geðs að hætta við svo búið - sór að ná fram hefndum. Það tókst og gott betur en það. Sigurinn er sætur nú fyrir hann. Sá orðrómur er á kreiki að leikfléttan sé hjá Berlusconi að ná ítalska forsetaembættinu og sitja þar á friðarstóli á efri árum og drottna yfir sviðinu. Það yrðu stórmerkileg endalok ef hann næði þeirri endastöð þegar að Napolitano hættir.
Áhugavert verður að sjá hvernig Berlusconi muni nota völd sín, þennan mikla sigur í kosningunum. Þetta er sterkara umboð sem hann fær en marga óraði fyrir áður. Hann hefur mjög gott svigrúm til að gera það sem hann vill og klára stjórnmálaferil sinn með þeim glansa sem flestir töldu útilokað eftir kosningarnar 2006.
Þetta er auðvitað glæsileg endurkoma fyrir þetta sjötuga pólitíska ljón. Berlusconi er reyndar fæddur árið 1936, rétt eins og John McCain. Báðir eru þeir að sýna að pólitíkin er ekki búin fyrir sjötugt. Virðist vera góður árgangur allavega.
![]() |
Finn til ábyrgðar" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 15.4.2008 kl. 01:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
14.4.2008 | 18:47
Hvenær kemur handtökuskipun á Pólverjann?
Afleitt er að maður sem grunaður er um hrottalegt morð geti um frjálst höfuð strokið hérlendis. Á því þarf að taka sem fyrst. Ástæða er til að hafa áhyggjur af ummælum ræðismanns Pólverja á Íslandi um að hingað sé greið leið fyrir pólskt glæpafólk að koma, vegna flókinna framsalsreglna. Ísland á ekki aðild að framsalssamningum sem Evrópusambandslöndin hafa gert sín á milli.
Þetta er afleitt ástand og það þarf að taka af málum þeirra sem brjóta af sér án hiks. Þennan mann á að senda til síns heima sem allra fyrst. Um leið þurfum við að velta því fyrir okkur hvort við séum að verða að hæli glæpafólks úr austurvegi.
![]() |
Hefur enn ekki gefið sig fram |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.4.2008 | 13:24
Gordon Brown riðar til falls vegna óvinsælda

Fáir hefðu trúað því fyrir ári þegar að Brown fékk leiðtogastólinn í breska Verkamannaflokknum og húsbóndavaldið í Downingstræti 10 á silfurfati að hann ætti eftir að klúðra sínum málum svo rosalega. Blair-armurinn í flokknum leyfði honum að taka völdin án baráttu, en þeir bíða nú eflaust í hliðarsölum valdsins og plotta atburðarás til að svæla Brown út. Svona mælingar þýða það að Verkamannaflokkurinn mun taka til. Nú þegar að nær vonlaust er fyrir Brown að ná kjöri í næstu kosningum má búast við að mikil barátta hefjist innan flokksins milli fylkinganna.
Mesti áfellisdómur kjósenda yfir Brown fellst í því að þeir hafa algjörlega misst allt traust á forystu hans í efnahagsmálum. Hann var fjármálaráðherra Bretlands í áratug, hið lengsta í stjórnmálasögu Breta síðustu aldir, og þótti þar táknmynd stöðugleikans og valdsins. Var þar hinn trausti sem hægt var að treysta að gæti tekið á málum fumlaust og af ábyrgð. Honum hefur ekki gengið vel í efnahagsmálum í forsætisráðherratíð sinni og hefur misst þetta fræga orðspor sitt. Hann hefur hikað og þykir ekki með á stöðuna og virðist ekki fúnkera vel sem leiðtogi í mótlæti og þegar þarf að taka af skarið snöggt og ákveðið.
Eins og staðan er núna virðist Gordon Brown dæmdur til að tapa forsætisráðherraembættinu fyrr en síðar, annaðhvort í innri uppreisn innan Verkamannaflokksins, sem er í raun þegar komin af stað og á eflaust eftir að verða öflugri haldi mótlætið áfram, eða í næstu kosningum. Tapi Ken Livingstone borgarstjóraembættinu í London þann 1. maí eru það skýrustu merki þess að flokkurinn er að missa fókusinn og þarf á uppstokkun að halda. Þar verður sagt skilið við fulltrúa New Labour frá fyrri tíð og kallað til fulltrúa yngri kynslóðanna til að taka við embættinu.
Upphaf endalokanna fyrir Brown tel ég að hafi verið þegar að hann heyktist á að boða til kosninga í nóvember 2007. Hann daðraði við hugmyndina um kosningar alltof lengi, fór í gegnum flokksþingið án þess að svara hreint út um kosningarnar en gaf þeim möguleika byr undir báða vængi. Enda byrjaði Brown vel og var fyrstu hundrað dagana með gott forskot. Það blasir samt við að það var aðallega vegna ánægju kjósenda með að losna við Tony Blair. Eftir að frá leið jafnaðist staðan út og Brown missti forskotið.
Brown hefur ekki séð til sólar pólitískt síðan að hann missti kosningaplottið út úr höndunum. Hann virkaði eins og ræfill þegar að hann blés kosningarnar af og hefur virkað skelfilega ólánslegur síðan. Fálmurskennd vinnubrögð hafa einkennt forystu hans. Lítill agi hefur verið yfir stjórn Verkamannaflokksins, ráðherrar eru í sóló og þingmenn eru byrjaðir að láta til sín taka. Innan við ári eftir að Brown tók við er hann því kominn í sömu stöðu og Tony Blair var eftir tæpan áratug við völd.
Lífseigasta kjaftasagan í þinghúsinu í Westminster er að Brown verði sparkað með uppreisn innan frá eins og Margaret Thatcher ef borgarstjóraembættið í London tapast og hann taki sig ekki á. En Thatcher hafði þá ríkt í ellefu ár, Blair var vissulega sparkað innanfrá fyrr en hann vildi, en það var eftir tæpan áratug við völd. Gordon Brown hefur klúðrað sínum málum á vel innan við ári. Og brátt stefnir í að Brown lendi í sömu pressu og hann sjálfur lagði á Blair forðum. Kaldhæðnislegt.
Ætli það fari svo að Gordon Brown muni ekki þrauka út árið og verði sparkað til að Verkamannaflokkurinn geti eygt einhverja von á fjórða kjörtímabilinu við völd? Engum hefði órað fyrir þeim möguleika á fyrstu hundrað dögum hans við völd, er allt var í blóma og allt virtist ganga honum í hag.
En þetta er staðan núna og hvernig sem fer virðist Brown dæmdur til pólitískrar glötunar - verði annaðhvort bolað frá af flokksfélögum eða kjósendum í kosningum innan tveggja ára. Þvílík endalok fyrir hinn reynda Skota sem beið í þrettán ár eftir húsbóndavaldi í Downingstræti.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.4.2008 | 02:07
Fáránlegar kröfur - ansi langt gengið hjá Árna
Missti endanlega alla virðingu fyrir Árna M. Mathiesen, fjármálaráðherra, við framgöngu hans nýlega í þjóðlendukröfum á svæðum hér. Þar er lýst kröfu á efri hluta fjallsins Súlur og auk þess ásælist fjármálaráðherra í nafni ríkisins vatnsból Akureyringa. Finnst ansi langt gengið í þessu og velti því fyrir mér hversu lengi enn fjármálaráðherra muni ganga í fáránlegum þjóðlendukröfum sínum.
Í kosningabaráttunni hér í fyrra var mjög deilt á verklag ráðherrans og var það sérstaklega gott að Kristján Þór Júlíusson, fyrsti þingmaður kjördæmisins, tók undir það. Er ánægður með að Sigrún Björk Jakobsdóttir, bæjarstjóri, hefur talað mjög ákveðið í þessum efnum og ætlar að standa vörð um þetta svæði. Það verður ekki gefinn þumlungur eftir.
Það væri gott að heyra sama sjónarmið hjá Kristjáni Þór Júlíussyni, forseta bæjarstjórnar og fyrrverandi bæjarstjóra, í fjölmiðlum. Hann er leiðtogi Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu og fyrsti þingmaður okkar og þarf að tjá sig um þetta mál, sem kjörinn fulltrúi í bæjarstjórn og á Alþingi í okkar nafni. Er þó ekki í vafa um að hann er sömu skoðunar og bæjarstjórinn.
Eftir allt sem á undan er gengið finnst mér undarlegt að ríkið reyni enn að seilast þetta langt í þjóðlendukröfum. Þeim þarf að mótmæla af krafti. Hvað varðar ráðherrann finnst mér hann ekki rísa hátt eftir þessa framkomu.
13.4.2008 | 19:23
Þorgerður Katrín á að sniðganga Ólympíuleikana
Geri þá kröfu til Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, menntamálaráðherra, að hún sniðgangi Ólympíuleikana í Peking í sumar og tali með því gegn mannréttindabrotum stjórnvalda í Kína. Ákveði hún að fara er ekki hægt annað en líta svo á að ráðherrann sé að hampa stjórnvöldum í Kína og mannréttindabrotum þeirra. Við eigum að taka af skarið sem fyrst um að ekki verði farið. Þetta hefur Angela Merkel, kanslari Þýskalands, þegar gert með myndarbrag.
Öllu mannréttindasinnuðu fólki er fyrir löngu nóg boðið hvernig stjórnvöld í Kína fótumtroða mannréttindi. Á þessu Ólympíuári í Kína er mikilvægt að taka af skarið og tala máli mannréttinda, ekki bara í Kína heldur um víða veröld. Það er gert með því að sniðganga Ólympíuleika í landi einræðis og skoðanakúgunar. Það er gullið tækifæri að berja á Kínverjum á þessu ári og tala gegn stjórnvöldum þar með því einmitt að sniðganga Ólympíuleikana.
Þorgerður Katrín á að vita þetta og ætti að senda út þau skilaboð sem fyrst að hún ætli að sitja heima. Fari stjórnmálamenn á íþróttahátíð í einræðisríki er auðvelt að túlka það sem svo að mannréttindi skipti þá engu máli. Í slíkri ferð felast allavega pólitísk skilaboð. Ætla rétt að vona að Þorgerður Katrín sé það merkilegur stjórnmálamaður að afþakka pent að fara til Kína.
![]() |
Murderers" málað á kínverska sendiráðið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
13.4.2008 | 18:19
Klúður hjá Obama - sjálfstortíming demókrata

Þegar allt kemur til alls er Barack Obama því miður ekkert annað en reynslulaus stjórnmálamaður og virðist bæði snobbaður og úr tengslum við almenning. Obama hefur gert alvarleg mistök á síðustu vikum og er að færa bæði Hillary og John McCain gullin tækifæri til að leggja hann í rúst pólitískt. Enginn stjórnmálamaður með viti í baráttu um valdamesta embætti heims lætur svona ummæli flakka, nema þá að honum sé skítsama um allt. Enda hefur það komið fram að Obama sagði þetta á lokuðum fundi í San Francisco, vissi ekki að ummælin voru tekin upp og hefur tekið klaufalega á viðbrögðum almennings.
Sérstaklega eru þetta alvarleg mistök fyrir Obama í ljósi þess að hann á eftir að fara í forkosningar í Pennsylvaníu og Indiana - sannfæra almenning þar, sem hann hefur talað kuldalega um, um að kjósa sig og það sem fulltrúa vonar og nýrra tíma. Sá grunnur veikist mjög með svona ummælum og vandséð hvernig fólk á þessum slóðum geti séð að Obama sem sannan boðbera málflutnings síns. Svona ummæli skaða hann í þeim ríkjum sem hann má ekki við að tapa í, hvort sem það verður gegn Hillary eða McCain. Það má treysta því að þessi ummæli verði spiluð aftur og aftur, ekki mun vanta þá sem vilja rústa þessum manni.
Held reyndar að demókratar séu búnir að klúðra þessu kosningaári. Obama hefur afhjúpað sig sem hatursfullan tækifærissinna, nauðaómerkilegan stjórnmálamann að öllu leyti, og Hillary náði ekki að sameina flokkinn að baki sér. Flokkurinn er klofinn og vandséð hvernig þar verði sameinast um frambjóðanda. Mistök Obama veikja hann ekki síst meðal óákveðinna kjósenda sem munu hér eftir taka öllu sem hann segir með varúð. Honum hefur verið hrósað með skrúðmælgi sínu en hann virðist mjög gloppóttur og falskur innst inni eftir allt saman.
Er farinn að hallast að því að John McCain verði næsti forseti Bandaríkjanna. Hann nýtur góðs af sjálfstortímingu demókrata. Heimskulega kjaftablaðrið í Obama og vitleysan í Hillary hefur leitt til þess að þau hafa bæði fallið í áliti. Get ekki betur séð en að demókratar séu komnir í algjört fen með forkosningaferlið og hafi misst sig út í algjöra vitleysu. Obama hefur sérstaklega fallið í áliti, átti eiginlega von á að hann væri vandaðri stjórnmálamaður og missti sig ekki í svona snobbhatur á almúgafólki.
Það versta er að hann hefur ekki einu sinni manndóm til að biðjast afsökunar á ruglinu í sér. En við hverju má búast frá manni sem fór með konu og börn í sunnudagsmessu til rugludallsins Jeremiah Wright.
Þetta kallast víst elítuismi sem hrjáir Obama - ekki satt?
![]() |
Obama harmar ummæli sín |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)