Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
12.4.2008 | 12:52
Hversu mikið mun stóra stoppið skaða bílstjórana?
Þegar að þessi mótmæli byrjuðu velti ég fyrir mér hversu lengi væri hægt að halda þeim á siðsamlegu plani og hversu langt þeir gætu farið með þau. Langvinn mótmæli beind að almenningi í umferðinni var ekki vænlegt til árangurs, var það kannski fyrstu dagana, en stórt stopp mun ekki gera neitt annað en kalla fram reiði almennings og útþynna þessi mótmæli. Eftir atvikið í gær og talsmáta þess sem frontar hópinn yrði það frekar stórslys en stórt stopp.
Það er erfitt að skynja hvað er rétt og rangt í mótmælum þegar að hitinn ber fólk ofurliði við að tjá skoðanir sínar. Mér sýnist sem að bílstjórarnir séu að gera elstu mistökin í mótmælum, en það er að skaða málstaðinn með rangri framsetningu mótmælanna.
![]() |
Bílstjórar ræða um „stórt stopp“ |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.4.2008 | 20:17
Háskaakstur í mótmælum - mildi að ekki fór illa

Finnst eins og botninn sé að fara úr mótmælum bílstjóranna. Þeir höfðu samúð fólks framan af, en virðast vera að missa þann stuðning með frjálslegum talsmáta þess sem leiðir hópinn og með þessu aksturslagi í dag, sem er stórhættulegt og óafsakanlegt með öllu.
Fréttamyndirnar í kvöld voru allavega sláandi myndrænt dæmi um að ekkert er hugsað um þá sem eru í umferðinni. Það var mildi að þarna fór vel, en spurt er um hvaða áhrif svona myndir hafi á mótmælin, en við flestum blasir að bílstjórarnir hafa ekki lengur eins sterkan stuðning almennings og í upphafi.
![]() |
Viljum ekki sjá svona aksturslag" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.4.2008 | 15:39
Stór dagur fyrir Grímseyinga með nýjum Sæfara

Á þessu máli er þó auðvitað viss skuggi. Nýja ferjan hefur verið mikið í fréttum vegna þess hversu dýrt var að kaupa hana frá Írlandi, flikka hana upp og koma í almennilegt stand. Biðin eftir henni hefur verið alltof löng - þetta er í raun sorgarsaga í alla staði hvað varðar undirbúning málsins og hversu lengi beðið hefur verið. Auðvitað eru allar hliðar málsins pólitískt hneykslismál. Það þarf ekkert að efast um það.
Í raun er saga þessarar ferju skólabókardæmi um hvernig ekki eigi að vinna hlutina. Þar voru alvarleg mistök gerð, öllum hlutaðeigandi til skammar. Það hefði farið mun betur á því að ný ferja hefði verið keypt. Hefði bæði verið fljótlegra og kostað mun minni pening, en það er öllum ljóst að þessi ferja uppgerð er orðin mun dýrari en ný hefði orðið. Mikil mistök, sem ég tel að lengi verði í minnum höfð. Á þeim mistökum þarf þó að læra lexíuna um hvernig taka eigi á málum í framtíðinni.
Þrátt fyrir langa leiðindasögu pólitískra afglapa og klúðurs Vegagerðarinnar, sem sumir vildu reyndar hengja á saklausan skipaverkfræðing en urðu frá því að hverfa, vil ég óska heimamönnum í Grímsey til hamingju. Þó að mikil mistök hafi verið gerð er þessi ferja þó framför frá því sem var. En það hefði verið hægt að gera svo mun betur.
![]() |
Stór stund fyrir Grímseyinga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.4.2008 | 10:16
Sturla boðar mótmæli - alveg að missa sig

Mér finnst reyndar ummæli Sturlu með þessari frétt einum of og finnst mótmæli þeirra vera að fara endanlega út í einhverja vitleysu ef talsmaður þeirra ætlar að missa sig í svona talsmáta. Held að menn ættu aðeins að fara að róa sig niður og tjá sig með einhverjum snefil af stillingu og yfirvegun heldur en koma með yfirlýsingar af því tagi og kemur nú frá Sturlu.
Held að svona derringur og oftúlkanir gagnist bílstjórum ekki neitt í þeirra baráttu. Það fer þá kannski svo að bílstjórar missa endanlega samúð almennings í baráttu þeirra vegna eldsneytisverðs áður en hápunkti þeirra er náð.
![]() |
Sturla: Málið verður klárað" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.4.2008 | 01:25
Ætla atvinnubílstjórar að loka borginni á morgun?

Eftir að Sturla Jónsson, talsmaður bílstjóranna, var ákærður vegna mótmælanna og boðaður til skýrslutöku kom fram kergja hjá bílstjórum en þeir hafa ekki sýnt nein merki þess að vera að gefa eftir, þó að mótmælin hafi verið hófstemmd alla þessa viku, fyrir utan mótmælin fyrir utan Hafnarhúsið. Auk þess heyrist að ummæli ráðherranna í vikunni hafi orðið til að gera þá enn reiðari en áður.
Það er eitt að mótmæla stundarkorn en sé það rétt að lama eigi borgina verða það umdeildustu mótmæli hérlendis í seinni tíð. Það blasir við öllum. Bílstjórar munu að ég tel ekki fá mikla samúð með mótmælum af slíku tagi, en það er greinilegt að þeir eru tilbúnir að taka þetta alla leið fari þeir með mótmælin á þetta stig.
Svo er að velta því fyrir sér hvort þeir leggi í þann krappa dans að gera þetta. Fari svo að þeir lami borgina reynir virkilega á það hvað þeir vilja taka þetta langt.
10.4.2008 | 18:26
Ingibjörg Sólrún lítur í heimsókn til Condi Rice

Það er ekkert nema gott um það að segja að Ingibjörg Sólrún vilji heimsækja kollega sinn í utanríkisráðuneytið í Washington. Enda þarf hún ekkert að skammast sín fyrir það. Condi er ekki aðeins valdamesta blökkukonan í bandarískri stjórnmálasögu, heldur aðeins önnur konan á stóli utanríkisráðherra í Bandaríkjunum. Hún er sérfræðingur í málefnum A-Evrópu, M-Austurlanda og Rússlands - talar rússnesku, frönsku, kínversku, spænsku og ítölsku reiprennandi. Var ráðgjafi George H. W. Bush í forsetatíð hans, 1989-1993, í málefnum Sovétríkjanna og Rússlands og var áberandi í þeim málaflokki sérstaklega við lok kalda stríðsins í upphafi tíunda áratugarins.
Samstarf hennar og forsetans hófst þó meðan hann var varaforseti 1981-1989 og Rice starfaði fyrir varnarmálaráðuneytið. Allt frá þeim tíma hefur samstarf Rice við Bush-fjölskylduna verið náið. Samvinna hennar og Bush eldri var reyndar svo náin að sá síðarnefndi kynnti Mikhail Gorbatsjov fyrir Rice á leiðtogafundi árið 1989 með orðunum: "This woman tells me everything I have to know about the Soviet Union". Hún varð aðalráðgjafi Bush yngri í utanríkismálum eftir að hann tilkynnti um forsetaframboð sitt árið 1999 og hefur frá sumrinu 1999 unnið sem lykilráðgjafi hans í málaflokknum.
Eftir að George W. Bush var kjörinn forseti í nóvember 2000 tilkynnti hann að Condi yrði þjóðaröryggisráðgjafi, fyrst kvenna. Hún hefur verið í lykilhlutverki alla tíð síðan í forsetatíð Bush og áberandi í fjölmiðlum og hefur síðustu þrjú árin verið forystumaður í utanríkismálapólitík Bandaríkjanna, topp diplómat landsins. Eins og flestir vita hefur Bush útnefnt tvo valdamestu blökkumenn í bandarískri pólitík; Powell og dr. Rice.
Það virðist á skrifum sumra um þessi tíðindi að þeir séu grautfúlir með að Ingibjörg Sólrún ráðfæri sig við bandarísk stjórnvöld um heimsmálin. Það er samt sem áður skynsamt og gott að hún fari til Bandaríkjanna og ræði við þá sem ráða för þar og svo víðar um heiminn. Því ekki?
![]() |
Utanríkisráðherra fundar með Condoleezzu Rice |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.4.2008 | 14:59
Sleifarlag samgönguyfirvalda á Reykjanesbraut
Nú er ljóst að heimild er í lögum til að grípa inn í framkvæmdir, án útboðs, vegna neyðarástands. Það hefði vel átt við á Reykjanesbraut. Reiði almennings vegna sleifarlags samgönguyfirvalda við að klára framkvæmdir á vegarkaflanum þar sem bílslysið varð í gær er vel skiljanleg og gott betur en það. Fyrir löngu átti að vera búið að gera eitthvað í þeim málum.
Fannst reyndar athyglisverðast í gær að heyra Jón Rögnvaldsson, vegamálastjóra, segja í prime time sjónvarpsviðtali að þetta væri nú svo flókin aðgerð að það hefði ekki verið hægt að gera neitt annað. Heyr á endemi, svona talar bara embættismaður með engan sans fyrir því sem er að gerast. Um er að ræða stórhættulegan vegarkafla og þar hefur fjöldi slysa verið síðustu mánuði á meðan að beðið er eftir því að samgönguyfirvöld vakni til lífsins.
Það eru engar afsakanir í þessu máli fyrir Vegagerðina og samgönguráðuneytið. Ekki þýðir fyrir ráðherrann að beina ábyrgðinni annað. Hann hefði vel getað tekið málið sínar hendur og fengið því hnikað fram hefði hann látið það sig skipta. Sé að meira segja harðir vinstrimenn eru í bloggskrifum farin að fordæma þennan ráðherra, sumir telja hann ekki starfi sínu vaxinn og vilja að hann segi af sér. Skal engan undra. Þessi sofandagangur ætti að vera dýrkeyptur fyrir hvaða stjórnmálamann sem væri. Þarna er um að ræða einu leiðina í millilandaflugið og svona sleifarlag er algjörlega óviðunandi.
Einkum og sér í lagi er við því að búast að fólk sé óánægt með stöðu mála þegar að heimild er í lögum til að taka af skarið og gera eitthvað. Það er enginn öruggur á þessum vegarkafla, allavega ekki eftir svona mörg slys, og þar er neyðarástand uppi, alveg klárlega. Sofandagangur þeirra sem með samgönguvaldið fara í svona máli er algjörlega óviðunandi.
![]() |
Þrennt er enn á gjörgæslu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.4.2008 | 21:49
Alvarleg mistök hjá Vegagerð og ráðuneytinu
Tek heilshugar undir ummæli Björgvins Halldórssonar, söngvara, um sleifarlag Vegagerðarinnar og samgönguráðuneytisins í málefnum Reykjanesbrautarinnar, sem er til skammar bæði fyrir Kristján Möller, samgönguráðherra, og Jón Rögnvaldsson, vegamálastjóra. Þar hafa mjög alvarleg mistök verið gerð og til skammar að bíða þurfi eftir stórslysi til að einhver opni augun.
Björgvin talar vissulega af tilfinningum í þessu máli - umfram allt þó af mikilli skynsemi, enda vita allir að hann hefur rétt fyrir sér. Svala, dóttir hans, liggur slösuð, ásamt nokkrum öðrum á sjúkrahúsi, eftir alvarlegt slys á þessum umdeilda vegarkafla sem hefur verið látinn dankast mánuðum saman vegna þess að fyrirtækið sem fékk verkið fór yfir um og enginn hefur haft manndóm í sér til að taka á því megaklúðri, hvorki fyrir gjaldþrotið né síðustu vikur. Þetta er vítavert gáleysi og óafsakanlegt.
Jón Rögnvaldsson var að reyna að afsaka þetta sleifarlag í viðtölum í dægurmálaspjallþáttunum í kvöld. Það má vel vera að Jón sé ágætismaður og vilji öllum vel en þetta klúður á vakt hans er svo mikið að það verður ekki afsakað í settlegum viðtalsbút í sjónvarpi. Þar þarf aðgerðir til og skelfilegt að þurfi slys til að augu manna opnist. Samgönguráðherrann virðist hafa opnað augun sín í dag, er það vel, en þó alltof seint. Það er til staðar lagaheimild sem hefði verið hægt að beita í þessu máli fyrir löngu og koma allavega framkvæmdum af stað.
Þetta er algjörlega óafsakanlegt rugl, einkum og sér í lagi á einu leiðinni í millilandaflugið, þarna um þarf fjöldi fólks að fara reglulega, sumir daglega. Það er ljóst af atburðum dagsins að þessi vegarspotti er algjör slysagildra. Það var slys á þessum kafla fyrir nokkrum mánuðum, þrátt fyrir það sváfu þeir menn sem auglýsa sjálfa sig sem menn valdsins löngum svefni og þurftu að láta vekja sig með stórslysi til að lofa bót og betrun.
Sveiattan segi ég bara. Það er spurning hvort svona ráðherra sé starfi sínu vaxinn.
![]() |
Reiður út í þá sem bera ábyrgð á Reykjanesbraut |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.4.2008 | 20:04
Umhverfispostulinn Al Gore kominn til Íslands

Það hefði fáum órað fyrir því þegar að Gore hvarf úr miðpunkti stjórnmálaumræðu fyrir tæpum átta árum, beygður og sár, eftir að hafa naumlega mistekist að verða forseti Bandaríkjanna í jöfnustu forsetakosningum í sögu landsins að hann myndi hljóta friðarverðlaun Nóbels og yrði ein af stjörnunum við afhendingu óskarsverðlaunanna í Los Angeles. Allt þetta hefur honum tekist á innan við einu ári. Gore hafði vissulega stuðning fræga fólksins og peningafólksins í borg englanna á sínum tíma og safnaði miklum fjárhæðum í kosningabaráttuna árið 2000 og vann Kaliforníu þá með nokkrum yfirburðum, en hann var þó aldrei með stjörnuljóma á við leikarana.
Það leikur enginn vafi á því að Al Gore varð fyrir þungu áfalli í forsetakosningunum 2000. Hann vann.... en tapaði samt. Hann er enn að vinna við að byggja sig upp eftir þann þunga skell en virðist hafa tekist það með undraskjótum hætti. Hann er orðinn gúrú í umhverfismálum og hefur markað sér sess sem mikilvægur postuli í umræðunni um loftslagsmálin. Á sama tíma og sól Bush forseta hnígur hratt til viðar hefur Gore tekist að halda sviðsljósinu og ljómanum af fyrri frægð og áhrifum. Hann hefur byggt upp áhrif sín á öðrum vettvangi - vettvangi sem honum hefur tekist nokkurn veginn að gera að sínum, algjörlega í gegn.
Al Gore náði aldrei að heilla mig í forsetakosningunum 2000. Mér fannst hann grobbinn og fjarlægur. Það er alveg ljóst að með þessari ímynd sem hann hefur nú hefði hann unnið forsetakosningarnar vestan hafs þá. Talað er um pólitíska endurkomu hans - verði jafnvel málamiðlun fyrir demókrata á klofnu flokksþingi í Denver. Al Gore hlaut fleiri atkvæði í forsetakosningunum 2000 á landsvísu en George W. Bush en mistókst að sigra í fleiri fylkjum Bandaríkjanna og tapaði því í kjörmannasamkundunni. Það er ekki fjarlægur möguleiki. Persónulega myndi ég telja hann sterkasta valkost demókrata nú.
Ég tel að Gore sé lífsreyndari og sterkari nú en áður. Hann virðist hafa farið í algjöra endurnýjun, það er öllum mönnum hollt. Mér finnst Gore allavega sterkari karakter nú en fyrir átta árum. Richard M. Nixon og Al Gore eiga það sameiginlegt að hafa tapað naumlega forsetakosningum meðan að þeir gegndu embætti varaforseta. Báðir tóku þeir tapið gríðarlega nærri sér. Merkilega margt er líkt með sálrænu áfalli þeirra eftir tapið. Nixon tapaði fyrir John F. Kennedy með svo naumum hætti að lengi vel var óvíst um úrslitin. Deilt var um úrslitin í Illinois meðal annars. Ólíkt Gore véfengdi Nixon ekki stöðu mála þar og bakkaði frá stöðu mála.
Ósigur Gore var mun tæpari en Nixons fjörutíu árum áður. Það hefur margt verið rætt og ritað um tap Nixons. Hann var brennimerktur af því alla tíð. Gore gekk í gegnum svipaðan sálrænan öldudal. Nixon tókst að eiga sér endurkomu og varð forseti átta árum eftir tapið sögufræga. Það verður seint sagt að Nixon og Gore eigi pólitískt margt sameiginlegt. Um margt voru þeir sem dagur og nótt. Bitur reynsla þeirra við tap í forsetakosningum er þó kaldhæðnislega lík þegar á er litið. Báðir mörkuðust þeir alla tíð af tapinu. Nixon tókst að eiga sér endurkomu og eiga söguleg ár á forsetastóli, með mörgum afrekum á vettvangi utanríkismála, sem féllu öll í skugga Watergate.
Al Gore hefur endurnýjað sig. Mér finnst hann sterkari nú en fyrir átta árum. Hann hefur helgað sig málstað, málstað sem ég tel að sé þverpólitískur. Fyrir vikið er hann sterkari leiðtogaímynd. Margir telja hann eitt sterkasta forsetaefni flokksins þrátt fyrir mistækan stjórnmálaferil sem markast af góðum og slæmum dögum í stjórnmálum. Lykiltromp Gore er fyrst og fremst pólitísk reynsla. Hann var varaforseti Bandaríkjanna á tímum Clinton-stjórnarinnar 1993-2001 og hefur reynslu á vettvangi alþjóðastjórnmála og málum í Washington. Barátta hans í umhverfismálum hefur líka markað honum aðra tilveru sem gæti orðið honum drjúg er á hólminn kemur.
Það verður fróðlegt að sjá hvort að hann snýr aftur á pólitíska sviðið í aðdraganda kosninganna þar sem eftirmaður keppinautar hans í sögulegustu forsetakosningum Bandaríkjanna frá upphafi verður valinn. Enda velt því fyrir sér hvort hann geti orðið málamiðlun fyrir demókrata í harðvítugum slag sem klofið hefur flokkinn, enda hann ekki tekið afstöðu til Hillary eða Obama. Enn er of snemmt þó um það að spá.
![]() |
Al Gore á Bessastöðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
7.4.2008 | 15:00
Hver skaut með loftriffli á flutningabílinn?
Ekki vantar hitann í mótmælum atvinnubílstjóra, en þeir króuðu utanríkis- og forsætisráðherra af í Hafnarhúsinu og voru með mótmæli við samgönguráðuneytið. Þeir eru nú að beina mótmælunum greinilega að ráðamönnum, enda augljóst að það var ekki til vinsælda fallið að stöðva algjörlega umferð tímunum saman marga daga í röð.
Það sem vekur mesta athygli frá mótmælunum í morgun er þó að skotið var með loftriffli á flutningabíl. Þetta virðist nokkur ráðgáta og ekkert komið fram sem varpar ljósi á þetta. Væri fróðlegt að vita hvort að skotið kom úr nærliggjandi húsi eða einhver á svæðinu hafi fengið nóg af mótmælunum og látið vaða. En það ætti varla að fara framhjá neinum hafi svo verið gert.
Væri gott að vita hver skaut á bílinn og hvers vegna, annað en þá að ná sér niðri á bílstjórunum. En já, þvílíkur hasar, og það á mánudegi.
![]() |
Skotið á flutningabíl? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |