Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Ólafur Ragnar hlýtur Nehru-verðlaunin

Ólafur Ragnar GrímssonÞað er mikill heiður fyrir Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, að hljóta Nehru-verðlaunin, til minningar um Jawaharlal Nehru, fyrsta forsætisráðherra Indlands, föður Indiru Gandhi og afa Rajivs. Þekktir þjóðarleiðtogar og mannréttindapostular hafa hlotið þessi verðlaun áður. Umfram allt staðfestir þetta hvað Ólafur Ragnar er vel tengdur Gandhi-fjölskyldunni.

Ólafur Ragnar hefur áður hlotið friðarverðlaun Indiru Gandhi og verið forseti alþjóðlegu þingmannasamtakanna Parliamentarians for Global Action. Ólafur Ragnar er vinur Soniu Gandhi, ekkju Rajivs og valdamestu konu Indlands nú um stundir sem leiðtogi Kongressflokksins, og hefur hitt hana margoft á síðustu árum.

Eins og flestir vita stjórnar Sonia öllu í Indlandi nú um stundir, þó hún hafi reyndar afþakkað að verða forsætisráðherra eftir þingkosningarnar 2004. Mun Pratibha Patil, forseti Indlands, afhenta verðlaunin, en eins og allir vita fékk hún forsetaembættið út á tryggð sína við Gandhi-fjölskylduna.

Óska Ólafi Ragnari til hamingju með þennan heiður.

mbl.is Hlýtur Nehru verðlaunin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ólympíueldurinn slökktur í mótmælum í París

Ólympíueldurinn í París Bjarmi mestu íþróttahátíðar sögunnar dó táknrænt í mótmælaöldunni sem mætti honum í París í morgun. Af tvennu illu ákvað lögreglan að slökkva ólympíueldinn sjálf frekar en láta mótmælendur slökkva hann. Þetta er táknrænt að öllu leyti - væntanlega aðeins forsmekkur þess sem koma skal á næstu mánuðum og þegar að Ólympíuleikarnir verða haldnir í Peking síðar á þessu ári. Ólgan vegna Tíbet er alþjóðleg og nú er tækifærið notað til að berja á Kínverjum.

Það var reyndar súrrealískt að sjá fréttamyndirnar frá miðborg Lundúna í gær þar sem sveit lögreglumanna varð að passa upp á kyndilinn og þann sem hljóp með hann hvert skref. Reyndu mótmælendur öll brögð til að slökkva kyndilinn og tókst það næstum því er þeir reyndu að hrifsa hann til sín. Ef ekki hefði verið fyrir vel æfða breska lögreglumenn hefði ólympíuneistinn slokknað þar með. Merkilegar fréttamyndir og táknrænar að öllu leyti.

Man ekki eftir öðrum eins mótmælum í aðdraganda Ólympíuleikanna - að það þurfi hóp lögreglumanna til að beinlínis vernda ólympíueldinn á ferð um vestrænar borgir. Það var reyndar viðbúið að þetta myndi gerast. Það eru allir búnir að fá nóg af yfirgangi Kínverja og hvernig þeir hafa komið fram í málefnum Tíbet. Það voru mikil mistök hjá alþjóða ólympíusambandinu að ákveða að hafa leikana í Peking, einkum í skugga þessarar grafalvarlegu stöðu sem blasir við og einkum mannréttindabrota Peking-stjórnarinnar.

Þeim er að hegnast fyrir það núna. Þó að margt misjafnt sé í alþjóða ólympíusambandinu hafa Ólympíuleikarnir allt að því verið heilagir í huga flests fólks og notið alþjóðavirðingar. Fólk sætti sig merkilega við það að hafa leikana í Berlín á Hitlerstímanum og Moskvu á Brésnef-tímanum. En þetta er eitthvað sem öllum sundlar yfir - og eðlilega er reynt að koma með pólitískar yfirlýsingar með mótmælum.

Er hræddur um að þessir ólympíuleikar anno 2008 í vöggu mannréttindabrotanna verði sögulegir og eftirminnilegir.

mbl.is Slökkt á ólympíueldi í París
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þotulíferni ráðamanna - á að kaupa einkaflugvél?

Geir H. Haarde Það virðist vera orðin hefð hjá ráðamönnum þjóðarinnar að fljúga um heiminn í einkaþotu. Eðlilegt er að því sé svarað hvað það kosti að leigja þessar einkaflugvélar og hversu dýr þessi nýji standard sé fyrir landsmenn. Mér finnst þessi hálfgerði flottræfilsháttur vekja stórar spurningar um hvert stefni með ferðalög æðstu ráðamanna þjóðarinnar.

Það er allavega lágmark að því sé svarað hvað þetta kostar og hvort að þetta sé aðeins byrjunin á því sem koma skal. Þetta eru varla góð skilaboð í krísutíð, þar sem talað er um að allir reyni að tempa niður bruðlið. Finnst þetta ekkert sérstaklega ánægjuleg þróun og er jafnmikið á móti þessu og var í tilfelli Ólafs Ragnars, sem var reyndar enn verra þar sem auðmenn voru að skutla honum milli landa og tryggja að hann gæti komist heimshorna á milli.

Ef ráðamenn þjóðarinnar geta ekki ferðast í almennu millilandaflugi með öðru fólki (Saga Class hefur í seinni tíð ekki verið neitt slor) eiga þeir að óska eftir því að ríkisstjórnin kaupi einkaflugvél handa þeim til að geta sinnt sínum verkum. Það er mun skárra - þó virðist þotulíferni hinna ríku meira að segja á undanhaldi í krísustöðunni.

Fannst reyndar fyndnast að sjá umhverfissérfræðingana í Samfylkingunni vera að verja einkaflugið hennar Ingibjargar Sólrúnar í vikunni. Já, það er margt lagt á sig fyrir flokkinn sinn og leiðtoga lífsins.

mbl.is Forsætisráherra á ferð og flugi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verða eldflaugavarnir á Íslandi?

Ingibjörg Sólrún og Geir H. Haarde Mjög áhugavert að lesa vandaða umfjöllun á vef Viðskiptablaðsins sem Örn Arnarson, blaðamaður, skrifaði. Þar kemur fram að Geir Haarde og Ingibjörg Sólrún staðfestu afdráttarlaust eldflaugavarnaáform Bandaríkjastjórnar í Evrópu á leiðtogafundi NATÓ í Búkarest ásamt öðrum bandalagsþjóðum.

Áform af þessu tagi hafa ekki verið rædd hérlendis af neinni alvöru, svo ég viti til, hvað þá að Ísland styðji þau algjörlega afdráttarlaust. Mesta athygli vekur að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, utanríkisráðherra, staðfesti áform af þessu tagi án athugasemda og hlýtur að vekja spurningar um utanríkisstefnu Samfylkingarinnar, þar sem lengi vel var mjög kuldalega talað til Bandaríkjanna.

Stóra spurningin sem ég velti fyrir mér er hvort áformin þýði að hér á Íslandi verði eldflaugavarnir settar upp á næstu árum. Ekki er óeðlilegt að spyrja þannig. Hér hefur engin umræða farið fram af alvöru um þetta mál. Ekki er hægt að afsaka þetta með að Geir og Ingibjörg hafi setið hjá - þarna eru allir með eða á móti. Einfaldara verður það ekki. Væri gaman að heyra hvernig þetta fer í Samfylkingarfólk.

Hvernig stóð á því að íslenska pressan svaf þetta algjörlega af sér og þetta hefur ekki verið rætt meira og af alvöru? Var það vegna þess að allir gleymdu sér við að tala um einkaflug ráðherranna? Sumir kalla það flottræfilshátt, ekki óeðlilegt svo sem.

Dershowitz á Íslandi - saga af sekt eða sakleysi

Alan Dershowitz

Hinn frægi bandaríski lögfræðingur, Alan Dershowitz, kom til Íslands í vikunni. Dershowitz er einna þekktastur fyrir að hafa tekist að fá blökkumanninn O.J. Simpson sýknaðan fyrir morðið á fyrrum eiginkonu sinni og ástmanni hennar á miðjum tíunda áratugnum, í einu umtalaðasta sakamáli síðari tíma í Bandaríkjunum. Hann er þekktur þjóðfélagsrýnir og er einn besti málflytjandi vestan hafs, með sterk rök og einbeittur í tjáningu.

Dershowitz er ekki síður þekktur fyrir að verja greifann Claus Von Bulow í einu umdeildasta máli níunda áratugarins í Bandaríkjunum. Eiginkona hans, greifynjan Sunny Von Bulow, féll í dá árið 1980. Hún liggur enn í dái á sjúkrahúsi í New York, hefur sofið í tæpa þrjá áratugi, tja svefninum langa skulum við segja bara. Von Bulow var sakaður um að hafa reynt að drepa eiginkonuna, það hafi mistekist en hún hafi verið kálfóður á eftir. Sagan af þessu umdeilda sakamáli var rakin í hinni eftirminnilegu kvikmynd Reversal of Fortune, en Jeremy Irons hlaut óskarinn fyrir stórfenglega túlkun sína á greifanum Claus. Það er rosalega sterk og öflug mynd, sem fer yfir málið með heilsteyptum hætti.

Fyrst og fremst fjallar myndin auðvitað um eftirmála þess að Sunny féll í dá. Enn er því haldið fram að Claus hafi reynt að drepa Sunny, en hann vann fræg réttarhöld, þar sem reynt var að negla hann, með stuðningi lagasnillingsins Dershowitz, sem leikinn er af Ron Silver í myndinni. Deilt var um hvort að Sunny hefði reynt sjálfsvíg eða verið reynt að drepa hana. Hún var sprautuð með of stórum skammti af insúlini, en hún var sykursjúk. Enn er stóru spurningunni ósvarað hvers eðlis þetta allt var.

Myndin varð mjög rómuð, sérstaklega fyrir flashback-atriðin þar sem sett eru bæði tilfellin á svið, hvort um morðtilraun eða sjálfsvígstilraun var að ræða. Virkilega vandað allt og myndin býður lesandanum fjölbreytt sjónarhorn á málið. Það sem er einna merkilegast við myndina er hiklaust að Sunny, í gríðarlega góðri túlkun Glenn Close er sjálf sett sem sögumaður við upphaf og endi myndarinnar. Þar eru engir dómar felldir yfir því hvort sé rétt heldur málið allt sýnt og áhorfandinn dæmir sjálfur.

Ég man þegar að ég sá myndina fyrst í bíó fyrir sextan árum, mikil upplifun. Keypti mér hana svo fyrir nokkrum árum og upplifði hana aftur. Sterk mynd í frásögn og túlkun aðalleikaranna. Jeremy Irons átti stórleik ferilsins í hlutverki hefðarmannsins Claus sem bæði er sýndur sem snobbaður aðalsmaður og kuldalegur eiginmaður, en það er vægt til orða tekið að sambúð þeirra var við frostmark þegar að Sunny féll í dáið.

Ég gerði mér ferð áðan á Wikipedia til að sjá hver örlög Sunny eru. Hún var í dái er myndin var gerð, áratug eftir að hún fannst meðvitundarlaus. Skv. alfræðivefnum yndislega er allt nákvæmlega óbreytt. Henni er enn haldið lifandi af börnum sínum, sem vilja ekki að Claus erfi hana, enda eru þau auðvitað enn gift, eins merkilegt og það hljómar eftir 28 ára dásvefn og það að hjónaband þeirra var komið rækilega á endastöð. 

Sá myndina reyndar um páskana aftur, og mæli með henni. Það var gaman að sjá hana eftir nokkuð langan tíma. Leikurinn er hreinasta afbragð og myndin eldist vel. Þetta er merkilegt mál allavega. Þar er Dershowitz leikinn mjög vel og hann fær að njóta sín mjög vel í umfjölluninni.

Síðast sá ég reyndar Dershowitz í viðtali á CNN er hann var að verja Spitzer, fyrrum ríkisstjóra í New York, frá falli vegna vændishneykslisins. Hann var lærifaðir hans í lögfræði, og talaði máli hans með ósannfærandi rökum en mikilli fimni, sem hefur einkennt hann alla tíð.

Á morgun verður Dershowitz hjá Agli í Silfrinu. Hlakka til að sjá það viðtal. Hvet alla til að líta á Reversal of Fortune.


Clinton-hjónin opinbera það allra heilagasta

Clinton-hjóninEftir margra vikna umræður um fjárhagsstöðu Clinton-hjónanna í hinni harðnandi forkosningabaráttu demókrata hefur Hillary Rodham Clinton nú svipt hulunni af persónulegustu upplýsingum þeirra frá því að þau yfirgáfu Hvíta húsið. Fáir, ef nokkrir stjórnmálamenn vestan hafs, hafa gefið jafn mikið upp um persónuleg atriði sín og um leið gert hreint fyrir sínum dyrum. 

Það er fátt orðið heilagt í hinni hatrömmu baráttu Hillary og Barack Obama fyrir útnefningu Demókrataflokksins í forsetakosningunum í nóvember. Baráttan er fyrir löngu orðin ein sú kuldalegasta í bandarískri stjórnmálasögu, altént síðustu áratugina, þar sem öllum brögðum er beitt og hnútuköstin ganga á milli á hverjum einasta degi. Enda eru margir demókratar orðnir logandi hræddir um að flokkshag sé varpað fyrir róða hjá báðum frambjóðendum til þess eins að upphefja sjálfan sig til skýjanna. Fáir eru hlutlausir í þeim slag og flokkurinn logar stafnanna á milli.

Finnst fátt við þessar prívatupplýsingar Clinton-hjónanna koma að óvörum. Það vita það allir að Bill Clinton er einn eftirsóttasti ræðumaður Bandaríkjanna og ferðast heimshorna á milli til að flytja ræður sínar og er mikið borgað til að fá hann til að flytja boðskap sinn á alþjóðavettvangi, enda einn af litríkustu stjórnmálamönnum síðustu áratuga. Bækur hans og rit hafa selst vel og skrif hans verið í hávegum höfð. Fyrir bókaskrif og ræðumennsku hefur hann auðgast vel og það eru engin ný tíðindi fólgin í því að hann hafi það gott í þeim bransa.

Hillary Rodham Clinton hefur sjálf ritað pólitíska ævisögu sína, Living History, mjög áhugaverða og vel skrifaða bók sem var gefin út um allan heim og seldist t.d. vel hér á Íslandi. Enginn deilir um að þau eru vel stæð og þessar upplýsingar staðfesta það vissulega. Það hefur verið deilt um að þau skyldu ekki opinbera þessar upplýsingar fyrr. Nú hefur það gerst. Efast stórlega um að birting þessara gagna marki einhver vatnaskil í þessari baráttu. Hillary og Obama eru að berjast jafnri og hatrammri baráttu um hnossið mikla og virðist ekkert ráðið í þeirri baráttu í þessum mánuði.

Það hafði verið þrýst mjög á Hillary að gera þessar upplýsingar opinberar fyrir forkosningarnar í Pennsylvaníu þann 22. apríl nk. Flest bendir til að hún sigri þar og hún verður að sigra þar til að verða áfram sterkur frambjóðandi. Henni tókst með forkosningunum í Texas og Ohio að tryggja sér farseðil lengra. Ekkert bendir til að örlög ráðist í þessum harkalega forkosningaslag fyrr en eftir einhverjar vikur hið minnsta.


mbl.is Skattaupplýsingar Clinton-hjónanna gerðar opinberar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjórir áratugir frá morðinu á Martin Luther King

Dr. Martin Luther King Þegar blökkumannaleiðtoginn dr. Martin Luther King var myrtur í Memphis í Tennessee fyrir fjórum áratugum átti hann sér draum um samfélag þar sem litaraft skipti ekki máli og þeldökkir hefðu sömu tækifæri í lífinu og hvítir. Sú barátta kostaði hann lífið. Dr. King lét baráttu sína ráða eigin örlögum og tók áhætturnar sem henni fylgdu. Þær voru hluti af baráttunni fyrir þeim draumi sem var honum allt. Draumurinn dó þó ekki með honum.

Arfleifð þessa áhrifamikla blökkumannaleiðtoga, sem sameinaði blökkumenn í samhentan hóp í baráttunni fyrir mannréttindum og viðurkenningu á jöfnu hlutskipti í frjálsu samfélagi, er traust. Hann var málsvari allra blökkumanna, traustur málsvari sem færði hugsjónir í ógleymanlegar og heilsteyptar ræður, fullar af baráttuanda og draumsýn sem þá virtist svo sjálfsögð en samt þess eðlis að berjast varð fyrir henni. Draumurinn um jafna stöðu þeldökkra og hvíta var barátta sem verður alla tíð tengd predikaranum frá Atlanta, hinum sanna baráttumanni.

Alla tíð sem ég hef fylgst með stjórnmálum hef ég hlustað á ræðurnar hans Martins Luthers Kings. Það var harmleikur að hann skyldi ekki geta leitt sitt fólk alla leið í þá einu réttu átt sem hann vildi sjá verða að veruleika. Hann komst ekki alla leið en hann tryggði sínu fólki baráttuandann og boðskapinn til að leggja í þá vegferð. Draumurinn hans var svo innilega fallega orðaður í hinni ódauðlegu ræðu í Washington fyrir rúmum fjörutíu árum, einni eftirminnilegustu ræðu sem nokkru sinni hefur verið flutt - ræðu sem sameinar öll helstu leiðarstefin í baráttunni fyrir mannréttindum.

Ræðan sem hann flutti kvöldið áður en hann dó er líka eitt af þessum meistaraverkum ræðusnilldarinnar í pólitískri baráttu. Einlæg og sönn ræða og kaldhæðnisleg að því leyti að þar talaði blökkumannaleiðtoginn um baráttuna og gerði ekki ráð fyrir sjálfum sér í sigurstund framtíðarinnar, þar sem allir myndu verða jafnir og það skipti engu máli hvort fólk væri þeldökkt eður ei. Það hefur mikið verið rætt og ritað um dr. King síðan að hann dó, en mér finnst ræðurnar hans besti vitnisburðurinn um styrk hans og leiðsögn. Hann var eldhugi sem barðist fyrir hinu rétta.

Svo gæti farið að Barack Obama láti drauma baráttumannsins frá Atlanta rætast á þessu minningarári hans, þegar að minnst er baráttunnar sem kostaði hann lífið og þeirri traustu leiðsögn sem einkenndi baráttuanda hans og styrkleika. Þetta gæti orðið sögulegt ár fyrir þeldökka. Varla hefði dr. King látið sér detta í hug þegar að hann talaði um draumsýn sína í Washington á sjöunda áratugnum að það gæti gerst í upphafi nýrrar aldar. Flestir áttu eflaust von á að sú barátta tæki lengri tíma að blökkumaður ætti raunhæfa möguleika á Hvíta húsinu.

Hvernig sem barátta anno 2008 um valdamesta embætti heims fer hefur draumur dr. Martins Luthers Kings í raun þegar ræst. Það er í raun þegar sannað með því að litaraft skiptir ekki lengur máli í forsetakjöri í fylkjum þar sem þeldökkir eru í minnihluta að hvítir kjósa blökkumann. Það er stóri sigurinn í baráttunni miklu sem dr. Martin Luther King lét lífið fyrir.

Allir hafa jöfn tækifæri til að láta að sér kveða og það sem meira er að með því er staðfest að blökkumaður getur orðið valdamesti maður heims. Það eitt og sér verður stærsti sigur blökkumanna frá því að King leiddi þá með táknrænni draumsýn sinni í leiftrandi ræðu.


--------





Bendi hérmeð á þessar klippur af sögulegustu ræðum dr. Kings - sú fyrri ræðan um drauminn mikla frá árinu 1963 - sú síðari er síðasta ræðan hans, hin táknrænu lokaorð hins mikla baráttumanns, kvöldið áður en hann var myrtur.

Það hefur svo margt fallegt verið ritað um baráttumanninn mikla frá Atlanta síðustu daga - frásögn blaðakonu af fundi sínum með ekkju blökkumannaleiðtogans að kvöldi dánardægurs hans er einna eftirminnilegust.

mbl.is 40 ár frá morðinu á King
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enn mótmæla bílstjórar - ummæli ráðherrans

Mótmæli bílstjóra Enginn bilbugur virðist vera á atvinnubílstjórum. Mótmælin á Selfossi sýna vel hversu samhentir bílstjórar eru, ekki bara á höfuðborgarsvæðinu heldur um allt land. Fannst ummæli Kristjáns Möllers í dag reyndar vera merkileg er hann sagði að eldsneytisverðið væri árás á þjóðina - tók þar með undir með bílstjórunum. Segiði svo að stjórnvöld ætli ekki að taka undir með bílstjórunum.

Þrátt fyrir það virðist vera að framundan sé önnur eins mótmælavika og þessi sem er að verða búin. Er einn þeirra sem hef velt fyrir mér hvort þessi mótmæli muni skila árangri, skil boðskap bílstjóranna og hef fulla samúð með þeim, en tel að langvinn mótmæli geti kannski skaðað málstaðinn. Tel þó að það velti allt á því hversu langvinn þau verða.

Ráðherrann var allavega maður dagsins með ummælum sínum. Eitthvað voru bílstjórar þó ósáttir bílstjórarnir með kaffifundinn hjá þessum mikla stuðningsmanni sínum þegar að rætt var um hvíldarálagið síðdegis. Kannski eru þau ummæli bara í orði en ekki í verki. Einhver hefði kallað þetta pópúlisma.

mbl.is Bílstjórar mótmæltu á Selfossi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jeppamenn mótmæla gegn eldsneytisverðinu

Mótmæli Greinilegt er að skiptar skoðanir eru um mótmæli atvinnubílstjóra, þó að flestir séu í raun sammála skoðunum þeirra á eldsneytisverðinu. Mótmælin hafa breiðst út og nú eru jeppamenn að mótmæla í Örfirisey og eru greinilega ekki í þeim hug að gefa eftir. Sturla, talsmaður bílstjóranna, viðurkenndi reyndar í gær að atvinnubílstjórar hafa misst tökin á mótmælunum - væru orðin mun víðtækari.

Mér finnst skilaboðin sem atvinnubílstjórar senda með þessum mótmælum mjög sterk og afgerandi. Það er svo annað mál hvort að svo afgerandi mótmæli verði umdeild og jafnvel kalli á að málstaðurinn fái ekki samúð almennings. Það er greinilegt að margir sem eru á eftir bílstjórunum hafa ekki verið sáttir við þessi mótmæli vegna þess að það sjálft var í bið eftir að komast sinnar leiðar.

Mótmæli með einum eða öðrum hætti geta komið skilaboðum vissra hópa í samfélaginu á framfæri. Þess eru líka dæmi að mótmæli skaði málstaðinn. Þetta er mál sem flestir eru sammála um. Að undanförnu hafa bílstjórar náð miklum árangri og vakið athygli á sínum málstað - spurningin er þó hvort að síendurtekin mótmæli af þessu tagi verði til að styrkja atvinnubílstjóra og málstað þeirra.

mbl.is Jeppamenn fara hvergi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mun álver við Bakka verða að veruleika 2015?

HúsavíkEkki fer á milli mála eftir íbúafundinn á Húsavík í kvöld að afgerandi stuðningur er á svæðinu við að reisa álver við Bakka. Ánægjuleg tíðindi af fundinum, næstu skref Alcoa í stöðunni, gefur stuðningsmönnum álversins væntingar um að það verði að veruleika fyrir árið 2015.

Kannanir hafa sýnt að afgerandi stuðningur er á öllu Norðausturlandi við þetta verkefni. Allt frá því að samstaða myndaðist um að stefna að álveri fyrir austan Vaðlaheiði höfum við verið samhent í þessari baráttu. Ekki er hægt að sjá annað en að stjórnvöld séu hlynnt álveri, en fyrir nokkrum vikum sagðist t.d. Ingibjörg Sólrún jákvæð í garð þess í Mannamáli á Stöð 2.

Álver við Bakka er mjög mikilvæg framkvæmd fyrir íbúa í norðanverðum hluta þessa kjördæmis. Það skiptir máli fyrir Þingeyinga að þeir fái að nýta orku sína með þessum hætti. Ekki get ég séð betur en að samstaða þeirra sé mikil. Enda vill fólk þar ný tækifæri og mikla uppbyggingu.

Andstæðingar álversins hafa jafnan sagt pass þegar þeir tala um að eitthvað annað eigi að koma í staðinn og hafa engar lausnir. Það er alveg óþarfi að hlusta á það mikið lengur - þessi fjölmenni fundur eru skýr skilaboð um vilja almennings á svæðinu.

Fagna þessum góða fundi og niðurstöðu hans, sem er enn einn áfanginn í rétta leið fyrir Húsvíkinga.


mbl.is Undirbúningur álvers á Bakka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband