Færsluflokkur: Dægurmál

ABBA.... Thank You For The Music

abbaEkki verður um það deilt að hljómsveitin ABBA markaði söguleg skref í tónlistarsögunni á áttunda og níunda áratugnum. Þó hljómsveitin hafi ekki verið starfandi í hálfan þriðja áratug hafa lögin staðist algjörlega tímans tönn og enn er fólk að vonast eftir endurkomunni sem aldrei varð. Ekki kemur það að óvörum að saga hljómsveitarinnar sé öll og endurkoman margumtalaða sé endanlega blásin af.

ABBA þarf ekki að koma saman aftur til að sess hennar sé staðfestur á okkar dögum. Nóg er að sjá tilvísanir í verk hljómsveitarinnar síðustu áratugi, kvikmyndir og söngleiki byggða á lögunum margfrægu og fjölmargar eftirapanir af lögunum og stíl hljómsveitarinnar síðustu áratugi. Þetta er einfaldlega vörumerki sem enn skiptir miklu máli þó hljómsveitin og saga hennar sé komin í sagnfræðihlutann í tónlistarsögunni.

Alla mína ævi hefur ABBA hljómað í bakgrunninum. Ekki hefur verið hægt annað en hrífast með og meta mikils þessa hljómsveit. Á mínu heimili voru þessar plötur spilaðar í tætlur af systrum mínum og minningarnar eru óteljandi frá þessu gullaldartímabili þegar norræn hljómsveit náði heimsfrægð og varð vinsælli en nokkur önnur frá því svæði á alþjóðavísu. Auðvitað hafa komið viss tímabil í lífi mínu að ég hef ekki haft áhuga á ABBA og hef eiginlega fengið nóg af henni en alltaf kemur þetta tímabil og þessi lög sterk aftur og hafa sinn sess. Því er ekki hægt að neita.

Sagan um hatur vissra aðila á ABBA er margfræg. Fjölmargir þeirra sem aldrei sögðust fíla ABBA og ekki vilja hlusta á tónlist hljómsveitarinnar, fannst hún of glaðvær og glammúr-leg, enduðu samt alltaf út í plötubúð og keyptu verk ABBA. Þetta minnir mig reyndar mjög mikið á einn vin minn sem talaði alltaf svo illa um ABBA og fannst ekkert varið í lögin, gerði lítið úr óumdeildum sögulegum sess hljómsveitarinnar. Þegar ég fór eitt sinn í heimsókn til hans í gleðskap sá ég ABBA-geisladiska upp í hillu. Nett fyndið að sjá þetta.

Vissulega er margt við ABBA hallærislegt. Búningarnir og glammúrinn varð kannski yfirmáta hallærislegur eins og svo margt á þessu blessaða tímabili. Hver hlær ekki þegar hann sér myndir af foreldrum sínum eða ættingjum á þessu tímabili og með hárgreiðslu sem er svo gjörsamlega out of date. En tónlistin hefur lifað tískustælana af og skiptir alltaf mestu máli. Enda á tónlist að geta staðið af sér tíðarandann í tískufyrirbrigðum. Enda sést alltaf í gegn hvort tónlist sé góð eða hvort hún er yfirkeyrð af ytri áhrifum.



Tónlist ABBA lifir um alla eilífð - endurkoma, þó áhugaverð væri, hefur engin áhrif á stöðu hljómsveitarinnar eða styrkir sögulegan sess hennar. Og brátt munu allir yfirlýstir aðdáendur hljómsveitarinnar fara í bíó og sjá myndina nýju og eins allir hinir líka. Og öll þökkum við fyrir tónlistina í stíl við margfrægt lag ABBA, undir lok ferilsins.


mbl.is Aldrei saman á ný
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Yndisleg ferðahelgi

Laxá í Aðaldal Var að koma heim til Akureyrar eftir yndislega daga án netsambands. Hef verið á ferð og flugi síðustu dagana og því ekki bloggað nema mjög stopult og ekki haft tíma til að skoða athugasemdir eða umræðuna almennt, ekki séð póstinn eða neitt. Ágætt að taka smá frí frá þessu og hugsa um eitthvað annað.

Veðrið hefur líka verið þannig að nauðsynlegt er að gefa tölvunni frí. Sérstaklega var veðrið gott í gær og yndislegt að sleikja sólina og finna ylvolga hlýjuna. Mætti mörgum sem ég þekkti á ferðalaginu. Greinilegt að margir tóku þá ákvörðun að fara í ferðalag, enda víða skemmtilegar hátíðir og nóg hægt að gera í slíkri veðurblíðu.

Umferðin heim var ansi mikil og eiginlega er þetta ekki orðin minni ferðamannahelgi en verslunarmannahelgin, enda er 17. júní helgin, þessi fyrsta helgi í júlí og versló, allar orðnar svipað stórar að umfangi og fólk er á ferð og flugi þessa dagana. Ekki er það amalegt eins og veðrið var sérstaklega um þessa helgi núna.

Þar sem ég hef ekki verið við tölvu síðustu dagana hef ég ekki getað staðfest athugasemdir, en þær eru allar komnar inn núna. Þakka þeim sem sendu komment við síðustu færslu.

mbl.is Þung umferð á hringveginum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skemmdarverk og sóðaskapur fyrir náttúruna?

Tónleikar Náttúru Frekar leitt er að skemmdarverk og sóðaskapur séu eftirmálinn á annars vel heppnaða Náttúrutónleika um síðustu helgi. Táknrænt var það eftir allan lofsönginn um náttúruna að allt væri vaðandi í drasli á svæðinu og einkum áldósir út um allt. Miðað við baráttuna gegn stóriðju er þetta skondið.

Held að sumir sem mættu á tónleikana hefðu átt að velta boðskap þeirra betur fyrir sér. Ekki er nóg bara að hafa náttúruvernd sem tískuboðskap og fylgja öðrum í því blint og hugsunarlaust heldur velta boðskap þeirra fyrir sér af alvöru og taka til hjá sjálfum sér áður en aðrir eru fordæmdir fyrir að fara illa með náttúruna.

Skemmdarverkin eru sér kapítuli. Leitt er ef satt er að þeir sem stóðu fyrir skemmdunum á fallturninum í fjölskyldugarðinum hafi ráðist að fólki og skemmt fyrir þeim sem voru á tónleikunum. Ekki hægt annað en velta því fyrir sér hvað þeir eru að hugsa sem þurfa að skemma leiktæki og ráðast að fólki. Er þetta bara hreinræktuð villimennska eða almenn heimska?

 


mbl.is Gengu berserksgang í Laugardal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kuldalegt augnablik á sjúkrahúsi í New York

Látin kona á biðstofu

Myndbandið sem sýnir lækna, hjúkrunarfólk, öryggisverði og sjúklinga láta konu afskiptalausa á biðstofu á sjúkrahúsi í Brooklyn í sólarhring allt þar til hún lést hefur eðlilega vakið heimsathygli. Ekki er hægt að segja annað en það sé beinlínis óhugnanlegt að starfsfólk með fagmenntun í lækningu og hjúkrun hafi ekki hugað að konunni.

Eins og sést í myndbandinu var það ekki fyrr en eftir um klukkutíma frá því að konan lést að öryggisvörður kom að henni og kallaði þá eftir aðstoð fyrir hana. Finnst þetta bæði óhugnanlegt og sorglegt að svona gerist á sjúkrahúsi, að enginn komi til bjargar eða aðstoðar og meira að segja fólk sem á að vera þjálfað í aðstæðum af þessu tagi gangi bara framhjá. Enda hefur þetta atvik leitt til uppstokkunar á þessu sjúkrahúsi.

Kannski er náungakærleikurinn hverfandi í nútímasamfélaginu eða fjarlægðin í samskiptum fólks orðin svo mikil að æ ólíklegra er að þeim sé komið til bjargar sem þurfa á aðstoð að halda. En að fólk sem er ráðið sérstaklega í umönnunarstörf taki ekki á aðstæðum sem þessum er óhugnanleg staðreynd sem hlýtur að fá alla til að hugsa sitt.


mbl.is Látin kona lá afskiptalaus í klukkutíma á biðstofu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað varð um Madeleine McCann?

mccanns Eftir fjórtán mánaða fjölmiðladrama og ævintýralega leit að Madeleine McCann hefur málinu verið lokað án þess að spurningunni hvað hafi orðið um hana, eftir að hún hvarf sporlaust í bænum Praia de Luz á Algarve í Portúgal, hafi verið svarað. Mikil dulúð hefur umlukið málið og foreldrar hennar leiddu leitina að henni með áberandi hætti og enduðu sjálf á tímapunkti sem sakborningar, en það var síðar dregið til baka.

Þetta mál er fjarri því einstakt, á meðan leitinni að Madeleine stóð var leitað að fjölda barna um allan heim, en þetta mál varð einhvern veginn langmest áberandi. Foreldrarnir hófu alheimsherferð til að reyna að finna Madeleine og hún varð ein þekktasta persóna sumarsins 2007 í fjölmiðlum, myndir af henni fóru um allan heim og foreldrarnir gerðu sér ferð til Rómar til að hitta Benedikt páfa til að vekja athygli á málinu.

Svo var reynt að ljúka málinu með hinu augljósasta í stöðunni, þau hefðu drepið hana. Portúgalska lögreglan hafði klúðrað rannsókn málsins og reyndi að komast út úr því pent og kaldrifjað með því að fá sakborninga sem þeir gætu klínt málinu á án þess að hafa miklar sannanir. Sannanirnar héldu ekki vatni og lögfræðingateymið á vegum McCann-hjónanna hnekkti málatilbúnaði portúgalanna og málið fór á upphafsreit.

Fjölmiðlar fjölluðu ótrúlega mikið um málið. Fyrsta hálfa árið var fókusinn hinn sami en síðan hefur áhuginn á því minnkað mjög hratt og varla heyrist talað um það lengur. Mál Madeleine virðist gleymt þó enn velti allir fyrir sér hvað varð um hana. Og nú hefur málinu verið lokað. Hverfandi líkur eru því á að spurningunni um örlög Madeleine McCann verði nokkru sinni svarað.

mbl.is Rannsókn á máli Madeleine hætt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Seigla í Benedikt Lafleur

Ekki vantar seigluna í Benedikt Lafleur, en hann gefst ekki upp í því að ná settu marki að synda yfir Ermarsundið, þó á móti blási. Er ekki viss hvað hann hefur reynt oft að synda þessa leið, en man þó að hann varð að hætta í fyrrasumar á elleftu stund, en hann átti þá aðeins eftir um fimm sjómílur til að klára verkið.

Finnst reyndar alltaf merkilegt að heyra fréttir af svona afrekum. Auðvitað þarf kraft og kjark til að leggja í svona, hvort sem það er sund um heimsins höf, klifur á heimsins tinda eða gönguferð á pólana. Ég hef reyndar aldrei skilið fyllilega í því hvað það er sem keyrir fólk í að reyna að leggja svona afrek á sig.

Hlýtur að vera einhver fítonskraftur á bakvið það. Við sem lifum okkar hversdag og teljumst góð að komast í gegnum hann hljótum að dást að þeim sem leggja svona á sig.

mbl.is „Barðist við vindinn í 10 tíma"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sunnudagsbíltúr í móðu

Ekki er hægt annað en spyrja sig að því hvað sé að gerast hjá þeim sem keyra ofurölvi og próflausir. Hvað eru viðkomandi að hugsa þegar þeir taka ákvörðun um að fara af stað eftir drykkju og hafa ekki bílpróf. Eða eru þeir sennilega ekki bara að hugsa eitt né neitt. Taka augnablikákvörðun og velta ekki fyrir sér afleiðingunum af því. Láta allt lönd og leið.

Þeir sem þetta gera bera hvorki virðingu fyrir sjálfum sér né öðrum í umferðinni. Þar vantar alla rökrétta hugsun í ölæðinu. Það þarf að taka á þeim sem svona gera. En auðvitað er það slæmt að eftir allar auglýsingarnar um ölvunarakstur og skilaboð um afleiðingar þess sé þetta að gerast.

Þeir sem lenda í þessu ná vonandi áttum og geta hugleitt hverjar afleiðingar slíkrar vitleysu geti orðið.

mbl.is Ofurölvi í sunnudagsbíltúr
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afmælisbarnið og yfirráðin yfir veislunni

afmælisgrátÁ hverjum degi um allan heim eiga óteljandi mörg börn afmæli. Eflaust fer það allt eftir efnum og ástæðum hjá foreldrunum hversu vel er haldið upp á þau, á meðan sumir eyða miklum peningum í gjafir og veislu gefa sumir börnunum bara umhyggju og kærleik í afmælisgjöf. Sumir hafa ekki efni á afmælisveislu meðan önnur eru hlaðin veglegum gjöfum. Í veisluna sína bjóða flest börn þeim sem þau vilja þekkja og þykir vænt um sem vini sína.

Þegar ég var barn bauð ég öllum þeim sem ég vildi þekkja og vildi eiga sem vini. Ekki bauð ég öllum bekknum mínum eða öllum jafnöldrum í skólanum sem ég var í. Fannst eiginlega að þetta væri augnablik sem ég vildi eiga með mínum nánustu og þeim vinum sem næst mér voru. Efast reyndar um að ég hefði viljað allan hópinn heim. Það er eðli afmæla að maður býður þeim sem maður vill helst fá í veisluna.

Finnst það frekar fyndið að eitt aðalumræðuefnið í Svíþjóð sé hvort bjóða eigi öllum jafnöldrum sínum í afmælisveisluna. Þetta er skondið mál en er merki um ótrúlega smámunasemi hjá frændum okkar Svíum. Hefði frekar trúað því að svona drama gæti gerst í Bandaríkjunum en í Svíþjóð, en alltaf heyrir maður eitthvað nýtt.

Hef enga samúð með þeim sem var ekki boðið í þetta afmæli. Afmælisbarnið hlýtur að ráða hvern hann vill, varla eiga aðrir að fá yfirráð. Þetta er veislan hans/hennar. Annað skiptir ekki máli. Þvílík sænsk væluklessa

mbl.is Barnaafmæli veldur uppnámi í Svíþjóð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sterk skilaboð - umhverfismál eru mikilvæg

Tónleikar Náttúru Gott að vita að tónleikar Náttúru gengu vel fyrir sig. Missti því miður af þeim þar sem ég var á ferðalagi í allan dag og er bara nýlega kominn heim eftir það. Áhuginn á þessum tónleikum eru sterk skilaboð um hvað umhverfismál skipta almennt miklu máli. Virðist þar einu skipta hverjar flokkspólitískar skoðanir eru, enda var þarna fólk með ólíkar skoðanir í stjórnmálum.

Held að öllum landsmönnum sé annt um Ísland og náttúru þess. Þetta á að vera okkar lykilmál. Öll viljum við vernda það og tryggja að komandi kynslóðir njóti þeirrar fegurðar sem við höfum upplifað. Stóru skilaboð þessara tónleika er hvað þessi mál eru mikilvæg og hvað við unnum landinu okkar mikils. Enda held ég að allir vilji gera sitt til að tryggja að það land sem við erfðum fái komandi kynslóðir að njóta.

Upplifði reyndar í dag merkilegan atburð í mínu lífi. Í dag fór ég í fyrsta skipti á minni ævi í Héðinsfjörð, sem var einn afskekktasti staður landsins. Mörg ár eru liðin frá því að ég vildi fyrst fara þangað. Þar til fyrir nokkrum mánuðum var aðeins hægt að komast þangað sjóleiðina. Fegurð Héðinsfjarðar hefur verið mörgum fjarlægur leyndardómur og margir aðeins látið sig dreyma hvernig þar sé. Þó kalt væri í Héðinsfirði í dag fannst mér það merkilegur áfangi að geta farið þangað. Þetta var yndislegur dagur.

mbl.is Óður til náttúrunnar í Laugardal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þrjú kynlífshneyksli nemanda og kennara í USA

Ekki er langt síðan að það komst í heimsfréttirnar að 25 ára stærðfræðikennari í Nebraska hefði átt í ástarsambandi við þrettán ára nemanda sinn og stungið af með honum yfir landamærin til Mexíkó. Á síðustu dögum hafa komið upp þrjú mál af svipuðum toga í Bandaríkjunum. Um er að ræða kvenkyns kennara í öllum tilfellum, sú elsta er sextug og hinar á tvítugs- og þrítugsaldri. Ein þeirra hafði kennt í tæp 40 ár og önnur var nýlega trúlofuð og var að fara að gifta sig.

Áttu þær allar í sambandi við stráka á aldrinum 14-17 ára, fleiri en einn nemanda. Sú elsta hafði reyndar átt í sambandi við sjö til átta hið minnsta að undanförnu. Mál af þessum toga bera vitni talsverðu siðleysi í Bandaríkjunum. Það er auðvitað skuggalegt þegar að kennarar sofa hjá nemendum sínum og misnota það traust sem skólayfirvöld gefa þeim með starfi sínu.

Engar málsbætur með því að kennarar eigi í kynferðislegu sambandi við nemanda sína, sem hafa ekki náð lögaldri. Það hefur reyndar fylgt sögunni í Bandaríkjunum að skv. könnunum telja margir Bandaríkjamenn eðlilegra að kvenkyns kennari sofi hjá nemanda en að karlkyns kennari geri slíkt hið sama.

Á þessu á varla að vera nokkur munur og greinilegt að eitthvað stórlega vantar á siðferði þeirra sem starfa í bandarískum skólastofnunum.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband