Færsluflokkur: Dægurmál
14.7.2008 | 11:26
Líf og dauði í spítaladrama

Finnst tilveran á sjúkrahúsunum þar stundum einum of slétt og felld í bland við alvöru lífsins sem þar er, en það er bara mitt heiðarlega mat. Fjöldi fólks eru miklir aðdáendur svona þátta eins og áhorfsmælingar sýna.
Enginn vafi leikur á að Grey´s Anatomy er einn heitasti þátturinn vestanhafs. Er samt einn þeirra sem er nokkuð sama hvort Izzie lifir eða deyr í þættinum, en dáist að þeim sem velta því fyrir sér.
Hinsvegar er ég ánægður með hversu sjálfstæð Katharine Heigl hefur verið en hún afþakkaði Emmy-tilnefningu vegna þess að henni fannst hún ekki verðskulda hana vegna lélegs handrits sem skrifað var fyrir hana.
Grey´s Anatomy á stóran aðdáendahóp hér og ekki er langt síðan Ísland fékk sína stundarfrægð í þættinum. Minnst var á landið í hugleiðingum dauðvona sjúklings sem vildi fá að kveðja þennan heim sáttur við lífið og tilveruna á Íslandi.
![]() |
Er Izzie dauðvona? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
13.7.2008 | 13:29
Tvöföld ánægja hjá þokkaparinu í Hollywood
Sennilega segir það sitt um fréttadaginn þegar stærsta fréttin af erlendum vettvangi er að óskarsverðlaunaleikkonan Angelina Jolie sé búin að eiga tvíburana sína. Reyndar var fullyrt þegar 30. maí sl. að leikkonan hefði átt börnin þá en það reyndist ekki rétt. Fjölmiðlar hafa átt svo erfitt með að bíða eftir börnunum að sérstök vakt hefur verið á eftir þeim og sátu þeir um sjúkrahúsið, svo mjög að þekja varð gluggana á sjúkrastofu leikkonunnar með dökku efni til að ekki yrði hægt að mynda þar.
Angelina Jolie hefur verið umdeild eins lengi og hún hefur verið fræg, ekki aðeins talin ein mesta þokkadís síðustu ára, heldur auk þess mjög góð leikkona sem hefur túlkað dramatík og húmor í hæfilegri blöndu og skapmikil að auki. Jolie er eins og flestir vita ekki ættarnafn. Þetta er franska orðið yfir hina fögru. Því vel við hæfi að hún eigi börnin sín í Frakklandi. Ættarnafn hennar er Voight, enda er faðir Angelinu óskarsverðlaunaleikarinn Jon Voight. Ekki er langt síðan þau sömdu frið eftir að hafa ekki talað saman í fimm ár. Bæði þekkt fyrir svæsin skapgerðarköst.
Ástarsamband Brad Pitt og Angelinu Jolie hefur verið eitt af þeim mest áberandi á síðustu árum og telst eitt það heitasta í kvikmyndabransanum til fjölda ára. Umtalið við upphaf sambands þeirra við gerð kvikmyndarinnar Mr. and Mrs. Smith árið 2005 var enda engu minna en þegar að Elizabeth Taylor og Richard Burton voru að byrja að draga sig saman við gerð kvikmyndarinnar Kleópötru í upphafi sjöunda áratugarins. Og myndirnar af upphafi sambands þeirra minntu marga á hinar heitu myndir sem staðfestu að Burton og Taylor voru að draga sig saman fyrir fjórum áratugum.
Um fá sambönd hefur meira verið skrifað og pælingarnar um eðli sambandsins var deilt nær allt árið 2005 uns að því kom að það var að fullu opinberað. Ástríðuhitinn milli þeirra leynir sér enda ekki þegar að kvikmyndin, sem reyndar er ekkert meistaraverk en hörku hasarbomba, er skoðuð. Lengi vel var reyndar spáð í hvort að þau ættu nokkru sinni skap saman. Þau eru báðir vel þekktir skaphundar og er Angelina Jolie með skapmeiri konum sem þekkjast í kvikmyndabransa nútímans og hefur ekki langt að sækja það þar sem er faðir hennar, óskarsverðlaunaleikarinn Jon Voight.
Enn hafa þau þó ekki gift sig og um tíma virtist sambandinu ætla að ljúka á deilum um það. Jolie vildi ekki festa sig og hinn 45 ára ráðsetti fjölskyldufaðir sem var farinn að róa sig eftir litríkan feril vildi skuldbindingu. Jolie er reyndar illa brennd af hjónaböndunum, hún hefur tvisvar gengið í það heilaga, fullyrða má að ekki hafi það verið farsæl hjónabönd; hún giftist breska leikaranum Jonny Lee Miller (syni leikarans Bernard Lee sem lék M í Bondmyndunum 1962-1979) 1996 og skildi við hann 1999 og giftist ári síðar leikaranum Billy Bob Thornton og var gift honum í þrjú ár.
Samband Jolie og Thornton var gríðarlega umdeilt og kom mjög óvænt aðeins örfáum mánuðum eftir að Jolie hlaut óskarsverðlaunin fyrir Girl, Interrupted í mars 2000. Thornton, sem er tveim áratugum eldri en Jolie, þótti vera fjarri því hennar týpa en hann er mjög skapmikill og kostulegur karakter. Enda var sambúðin hæðótt, upp og niður eins og rússíbani. Að því kom að sambúðin gekk ekki og varð ekki mörgum undrunarefni. Pitt á að baki eitt hjónaband, mjög þekkt auðvitað, en hann var giftur "Vininum" Jennifer Aniston í fimm ár.
Því hefur oftar en einu sinni verið spáð frá frægu skoti þeirra skötuhjúa við gerð Mr. and Mrs. Smith að þau ættu hvorki skap saman né gætu verið saman. Börnin hafa sameinað þau - þau eiga saman dótturina Shiloh (sem er lifandi eftirmynd föður síns) og auk þess hafa þau ættleitt heilan helling af börnum, minnir að þau séu þrjú eða fjögur sem Jolie hefur ættleitt og Pitt hefur gengið í föðurstað.
Fróðlegt verður að sjá hvort að tvíburarnir sameini stjörnurnar endanlega og þau gifti sig eftir áralangar vangaveltur um tímasetningu þess.
![]() |
Brangelina-tvíburarnir fæddir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
11.7.2008 | 20:50
Glæfralegur hraðakstur
Veit ekki hvað ökumenn sem taka ákvörðun um að taka slíka rússneska rúllettu í umferðinni fyrir sjálfa sig og aðra eru að hugsa. Væntanlega er ekki mikil vitglóra eftir hjá þeim sem geysast af stað af slíku hugsunarleysi. Verst af öllu er að þrátt fyrir fjölda þessara mála sé alltaf nóg af þeim sem hugsa ekkert um afleiðingar hraðaksturs og taka áhættuna fyrir sig og aðra í umferðinni.
Dapurlegt er að þrátt fyrir allar auglýsingarnar um hraðakstur læri fólk aldrei af reynslunni, enda varla heillaríkt að taka þessa áhættu.
![]() |
Mældur á 212 km hraða; reyndi að stinga af |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
11.7.2008 | 15:36
Flóttatilraunir fanganna
Auðvitað er gott að lögreglunni tókst að koma í veg fyrir flótta fanga í þeirra vörslu. Varla er hægt að ætlast til annars en lögreglan geti komið í veg fyrir slíkar flóttatilraunir. Varð þó mjög hugsi eftir að Annþóri Karlssyni tókst að sleppa úr varðhaldi úr lögreglustöðinni við Hverfisgötu. Þar komu fram alvarlegar brotalamir í varðhaldsvistun, meira að segja í höfuðstöðvum lögreglunnar, þar sem einangrunarfanga tókst að sleppa og ætlaði sér að pússa sig upp fyrir afmæli síðar sama dag.
Flótti Annþórs var vandræðalegt klúður fyrir lögregluna. Þar voru verklagsreglur brotnar og mjög illa staðið að málum á meðan að hann var í varðhaldi. Vonandi hafa menn lært sína lexíu vel á þeim bænum. Auðvitað er afleitt að margdæmdur ofbeldismaður, grunaður um alvarleg afbrot og í einangrun, geti leikið lausum hala á lögreglustöð, komist í síma, fundið reipi og stokkið út um glugga án þess að nokkur tæki eftir því.
Ofan á allt annað að þá liðu að minnsta kosti tveir tímar frá flóttanum þar til löggan áttaði sig loks á honum. Auðvitað má búast við að fangar notfæri sér glufur í kerfinu, sem þeir finna, og reyni að sleppa. En lögreglan á að geta brugðist við því fumlaust og vera undir það búin að svo geti farið. Vonandi hafa mistökin í máli Annþórs leitt til þess að löggan standi sig almennt betur og læri sína lexíu.
Svo er það auðvitað grunnatriði að mér finnst að fangar sem verið er að flytja á milli staða eigi að vera bæði í hand- og fótajárnum. Ef koma á í veg fyrir flóttatilraunir og taka á málum er það eina lausnin.
![]() |
Fangi reyndi að flýja |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 15:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
11.7.2008 | 01:09
Á að nafngreina grunaða kynferðisbrotamenn?
Sjálfur hef ég aðeins tvisvar skrifað um slík mál og nafngreint grunaða menn í slíkum málum. Nöfn þeirra beggja höfðu þá verið birt í fjölmiðlum og sú umfjöllun var ekki tíðindi á minni bloggsíðu. Var þar um að ræða sóknarprest og lögmann og málin voru alþekkt og í fjölmiðlaumræðu áður en ég skrifaði. En við lifum á öðrum tímum en áður og bloggið er mun öflugri fjölmiðill hvað varðar að setja fram ýmislegt, bæði kjaftasögur og staðreyndir sem aðrir hafa ekki fjallað um. Virðist kynferðisbrotamál vera eitt af því sem bloggarar fjalla um og nafnbirting á þeim vettvangi greinilega það sem koma skal ef marka má þessi skrif.
Hitt er svo annað mál að Moggabloggið var fljótt að taka á þessum málum og tóku greinilega bloggarana fyrir sem nafngreindu manninn. Þeir eru eftir því sem mér skilst best tveir eða þrír hið minnsta sem birtu nafnið, þó einn hafi verið meira umtalaður vegna þess en aðrir. Greinilegt er að Mogginn vildi ekki taka ábyrgð á skrifunum og tók málið fyrir, þó bloggararnir skrifuðu allir undir nafni. Töldu þeir ábyrgðina á nafnbirtingunni ekki bara bloggarans heldur þeirra sem umsjónaraðila kerfisins og hýsingaraðila skrifanna.
Þetta mál er merkilegt að mörgu leyti. Til þessa hefur reyndar verið lítið um svona nafnbirtingar fyrr en dómur fellur. DV á dögum Mikaels Torfasonar, Jónasar Kristjánssonar og Illuga Jökulssonar tóku þó afstöðu og nafngreindu menn svo mjög umdeilt þótti. Samfélagið logaði vegna þessara mála. Í fleiri málum hafa nöfn birst og verið talað um hitt og þetta málið sem helst hafa þótt sláandi, vegna umfangs þess og alvarleika brotanna. Flest dagblöðin tala þó bara um hvað viðkomandi aðili gerir og þrengir hópinn vissulega með því.
Afstaða Moggabloggsins í þessu máli hlýtur að teljast stefnumarkandi. Þarna er ritskoðun eiganda bloggkerfisins staðreynd og greinilegt að virk umsjón er á kerfinu. Þar sé ekki hægt að segja og skrifa hvað sem er án ábyrgðar, bæði bloggarans og þeirra. Þetta hlýtur að opna á alvöru umræðu um hvert stefnir í þessum málum. Mér finnst afstaða Moggamanna góð og tel hana ábyrga og rétta.
10.7.2008 | 16:53
Til styrktar Myndlistaskólanum á Akureyri
Í kvöld verða haldnir styrktartónleikar og listaverkauppboð til styrktar Myndlistaskólanum á Akureyri vegna brunans sem varð í húsnæði hans 27. júní síðastliðinn á veitingastaðnum Marínu hér á Akureyri kl. 20:00. Verk á uppboðinu eiga velunnarar skólans, bæði fyrrverandi og núverandi nemendur við skólann.
Opnaður hefur verið styrktarreikningur þar sem fólk getur lagt inn frjáls framlög til söfunarinnar. Númer reikningsins er 0565-14-400044 og kennitalan er 550978-0409.
Ég hvet alla til að koma á tónleikana í kvöld og eða leggja söfnuninni lið með öðrum hætti.
Mikilvægt er að hlúa vel að Myndlistaskólanum á Akureyri og tryggja að uppbygging skólans muni ganga vel.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 17:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.7.2008 | 16:41
Mun Björk fá jazzaða tengdadóttur í fjölskylduna?

Af öllum merkilegum sögum um aðdáun tónlistarunnenda á Björk og verkum hennar held ég að þessi sé bæði fyndnust og áhugaverðust. Veit svosem ekki hvort taka skal þessa yfirlýsingu trúanlega, hvort þetta sé grín. Annaðhvort er þessi yfirlýsing jazzistans Adele ein auglýsing út í eitt og ákall á fjölmiðlaathygli eða upphaf á áberandi baráttu fyrir því að komast í fjölskylduna. Hún segði þetta varla nema henni væri alvara eða þá vantaði athygli.
Ætli einhver fjölmiðillinn spyrji Sindra Eldon núna að því hvort hann sé jafnhrifinn af jazzsöngkonunni og hún af honum?
![]() |
Með augastað á syni Bjarkar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.7.2008 | 01:14
Frelsisbarátta Surtlu enn í minnum höfð
Ég er ekki hissa á því að þeir Strandamenn á Sauðfjársetrinu vilji minnast sauðkindarinnar Surtlu og telji það mikilvægan feng að geta sýnt höfuð hennar. Saga Surtlu er um margt stórmerkileg og eltingarleikurinn við hana á sínum tíma ævintýralegur í meira lagi. Með réttu ætti Surtla auðvitað að vera þar í öndvegi og ætti hvergi betur heima en þar.
Margar skemmtilegar frásagnir og sögur eru til um Surtlu og las ég eitt sinn bók þar sem sagt var frá nokkrum þeirra og þessum stórmerkilega eltingarleik við sauðkindina lýst nokkuð vel. Kindinni tókst að komast undan í að mig minnir eitt ár og gekk ekki þrautalaust að fella hana.
Daginn sem hún var að lokum drepin var hún elt langa leið og hafði klifið klettahamar sem ætti með réttu að vera ófær öllum venjulegum skepnum. Þeir sem felldu hana fóru með hausinn til yfirvalda og hann hefur varðveist. Fyrir verkið fengu þeir 2000 krónur, sem þótti mikið á þeim tíma. Ekki urðu þeir þó miklar þjóðhetjur fyrir vikið og voru allt að því hataðir fyrir.
Fjöldi fólks, einkum til sveita, voru ósáttir við að skepnan væri felld, hún hefði átt skilið að lifa og deilt var reyndar um hvort hún væri haldin mæðuveiki. Frelsisbarátta Surtlu lauk því með að þjóðin var á hálfgerðum bömmer yfir að sauðkindin væri felld og vísur voru ortar og greinar skrifaðar um hana.
Ætli að það sé ekki rétt að fullyrða að Surtla sómi sér vel sem frelsisboðberi íslenskra dýra. Nógu lengi barðist hún allavega fyrir frelsi sínu og sýndi áræðni sem höfð er í minnum.
![]() |
Tákngervingur frelsis |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
7.7.2008 | 16:42
Heilsteyptur boðskapur hjá Sigurbirni

Sigurbjörn hefur alla tíð talað kjarnyrta íslensku til þjóðarinnar hvort sem er úr predikunarstól eða í viðtölum og ritað bækur og íhuganir sem lifa með þjóðinni. Hann er einn áhrifamesti maðurinn í sögu íslensku þjóðkirkjunnar. Segja má að Sigurbjörn Einarsson sé í senn ennfremur merkasti Íslendingur 20. aldarinnar og áhrifamesti predikari þjóðarinnar frá upphafi kristni á Íslandi.
Áhrif hans innan kirkjunnar eru óumdeild; sem kennari við guðfræðideild Háskóla Íslands og biskup Íslands í tvo áratugi mótaði hann kynslóðir presta og varð andlegur leiðtogi í huga landsmanna allra. Sigurbjörn er einn þeirra manna sem hafa þá náðargáfu að tala af visku og kærleika svo að fólk hlustar. Þjóðinni er mikilvægt að eiga andlegan leiðtoga á borð við hann.
![]() |
97 ára bílstjóri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
7.7.2008 | 00:59
Seinheppni þjófurinn fellur á eigin bragði
Þetta er klárlega frétt helgarinnar hér á Akureyri. Bæði er þjófnaðurinn viss tíðindi og enn skemmtilegri frétt að heyra hvernig málinu lauk. Prik til lögreglunnar hér á Akureyri.
![]() |
Seinheppinn þjófur á Akureyri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)