Sveitarstjóri rekinn - fjárdráttur í Grímsey

Grímsey Sveitarstjórn Grímseyjarhrepps hefur nú sagt Brynjólfi Árnasyni, sveitarstjóra, upp störfum en hann hefur eins og kunnugt er dregið sér umtalsvert fé frá hreppnum. Sögusagnir herma að fjárdrátturinn nemi allt að tugum milljóna. Enginn vafi leikur á því að þetta mál er mikill harmleikur fyrir hið fámenna samfélag í Grímsey, þar sem það er í raun eins og ein stór fjölskylda. Spurningar vakna þó hvernig svo víðtækur fjárdráttur gat gengið árum saman.

Eftir því sem ég hef heyrt hefur enda þessi fjárdráttur greinilega staðið meira og minna öll þrjú ár Brynjólfs sem sveitarstjóra. Þetta hlýtur að teljast eitt alvarlegasta brot trúnaðarmanns hjá sveitarfélagi í seinni tíð, jafnvel frá upphafi. Man hreinlega ekki eftir beinum dæmum þess að stjórnandi sveitarfélags hafi dregið sér fé frá honum í áraraðir og misnotað með því bæði traust umbjóðanda sinna og samstarfsmanna í sveitarfélaginu.

Veit svosem ekki hvernig eyjaskeggjar vinna sig frá áfalli af þessu tagi. Það hlýtur að taka dágóðan tíma. Í samfélagi sem telur aðeins um hundrað íbúa hlýtur þetta að vera sem skarð á viðkvæmasta stað. Þetta er svo gróft brot að það tekur tíma fyrir sárin að gróa.

Kiddi Konn og Hamraborgin

Kristján Jóhannsson Mér finnst enginn syngja Hamraborgina, lag Sigvalda Kaldalóns við ljóð Davíðs Stefánssonar frá Fagraskógi, betur en Kristján Jóhannsson, eða Kiddi Konn eins og við Akureyringar nefnum hann. Krafturinn í laginu verður aldrei meiri en í flutningi Kidda. Hann er söngvari kraftsins og þetta lag markar hápunkt ferils hans, enda syngur Kristján jafnan lagið þegar að hann heldur tónleika hér heima.

Síðustu tónleikar hans hérna í haust voru eftirminnilegasti tónlistarviðburður ársins hér fyrir norðan og sýndu okkur öllum að Kiddi er enn í toppformi, þó hann hafi vissulega dregið mjög úr tónleikahaldi og sé farinn að róa sig aðeins niður eftir þrjá áratugi í fremstu röð víða um heim og virka tónlistaþátttöku, eftir að hann flutti til Ítalíu. Kiddi fékk mikið lof eftir þá tónleika, sannarlega verðskuldað enda heillaði hann alla sem þar voru staddir.

Gott að hann ætli sér að vera heima um jólin. Vissulega situr enn í mörgum viss leiðindi fyrir nokkrum árum, en ég held að þær deilur séu að mestu gleymdar og grafnar.

mbl.is Hamraborgin nötraði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er íslenskt starfsfólk óheiðarlegra en erlent?

Finnst það frekar sláandi staðreynd ef það er rétt sem fullyrt er að íslenskt starfsfólk steli sjálft helmingi þess sem er hnuplað í verslunum. Veit þó ekki hversu áreiðanlegar þessar mælingar eru, en ef rétt er hlýtur þetta að vekja umræðu um búðahnupl almennt. Það hefur jafnan verið nokkuð mikið um þetta talað og ég man eftir áhugaverðri umfjöllun Páls Benediktssonar í fréttaskýringaþættinum, Brennidepli, fyrir nokkrum árum, þar sem komu fram athyglisverðar tölur og samantekt um helstu þætti búðahnupls.

Það eru ekki mörg ár liðin frá því að stórt búðahnupl varð hér á Akureyri í versluninniHagkaup. Þar komst upp um áralangan þjófnað eins starfsmanns, bæði á matvörum og fatnaði. Man ekki andvirði þjófnaðarins en það voru gríðarlegar upphæðir og viðkomandi aðili fékk mjög þungan dóm. Veit þó ekki hvernig það er hægt að stela svo miklu framhjá öðrum starfsmönnum. Þetta kemst stundum ekki upp en það hlýtur að þurfa kaldrifjaðan hug að leggja í svoleiðis feluleik.

Kannski verður þessi könnun til að vekja umræðu um búðahnupl almennt en þessi tala er svo há að það hlýtur að vekja spurningar um heiðarleika þeirra sem vinna í verslunum. Það er áhyggjuefni ef starfsfólk verslana hér er talið óheiðarlegra en annarsstaðar í heiminum og varla er það gott fyrir starfsfólk að sitja undir í sjálfu sér.

mbl.is Starfsfólk stelur helmingnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Starbucks til Íslands, takk!

Starbucks Líst mjög vel á framtak Bjarna Kristinssonar að berjast fyrir því að fá Starbucks hingað til Íslands. Það er löngu kominn tími til þess að við fáum kaffihúsakeðjuna hingað á klakann. Eflaust hafa þeir litið á markaðinn sem alltof lítinn. Það gerist oftast nær þegar að útlendingar heyra um Ísland og okkur 300.000 sálirnar með eldkraftinn. En við erum ekkert venjulegt 300.000 manna samfélag!

Það hefur verið mjög notalegt að geta farið á Starbucks þegar að maður fer út. Minnist sérstaklega ferðarinnar til Washington fyrir þrem árum en þar var ferð á Starbucks sem sæluvist. Þetta er svona víðar um heiminn. Þetta er einfaldlega kaffihús fyrir algjörlega sælkera. Mikil upplifun.

Hvet alla til að fara á starbucks.is og skrifa undir áskorun um Starbucks á klakann!

mbl.is Ræðir við Starbucks um opnun á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Útrás í boði hins opinbera - á að einkavæða?

Þorgerður Katrín og Geir Það er ekki óeðlilegt að stofnun Landsvirkjun Power veki spurningar um það hvort að einkavæða eigi Landsvirkjun. Þó að REI og Landsvirkjun Power séu alls ekki algjörlega sambærileg í sjálfu sér, enda engir kaupréttarsamningar og annars konar afleitt rugl sem fylgifiskar, finnst mér útrásarverkefni með áhætturekstri því samhliða á vegum hins opinbera afleit. Ég tjáði mínar skoðanir hvað varðar REI-málið óhikað og þau eiga enn vel við.

Þó að Geir H. Haarde, forsætisráðherra, hafi sagt í kvöldfréttum í gær að ekki væru háværar raddir uppi um einkavæðingu Landsvirkjunar getur hann ekki neitað því að þær eru til staðar, einkum innan Sjálfstæðisflokksins. Það er enginn samhljómur í þeim efnum. Þeir eru til sem vilja stokka þessa hluti upp og hugsa hlutina með öðrum hætti. Það kristallast vel nú af ummælum Gísla Marteins Baldurssonar, formanns borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins. Það hefur verið talað með þessum hætti í ræðu og riti víða og innan ungliðahreyfingar Sjálfstæðisflokksins hafa verið ummæli í þessa átt allt frá því að ég gekk í flokkinn fyrir fimmtán árum.

Ég get ekki sagt að stofnun Landsvirkjun Power sé álíka hneyksli og stofnun REI. Það var svo margt sem fylgdi REI-málinu sem gerði það mál allt verra og hneykslið þess því meira. En stofnun Landsvirkjun Power vekur spurningar, fyrst og fremst um hugsjónir og afstöðu Sjálfstæðisflokksins í orkumálum. Það er alveg kristaltært að mínu mati að það eru skiptar skoðanir innan Sjálfstæðisflokksins í þessum efnum. Það sást vel af átökum Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar við svokallaða sexmenninga innan borgarstjórnarflokksins. Þar var deilt vissulega mjög harkalega um vinnubrögð Vilhjálms en líka hugmyndafræðina.

Það hefur ekki virkað vel á mig að sjá pólitískt kjörna fulltrúa með kjánaglott og með dollaramerki í augum eins og Össur Skarphéðinsson sýndi í Silfri Egils um daginn er hann talaði um orkuútrásina. Hrifnæmi Össurar fór í taugarnar á mörgum og rifjuð var upp tímaritsforsíða sem sýndi Össur tala fyrir laxeldisævintýrinu með svipuðum hætti. Allir vita hvernig því drama lauk. Orkuútrásin skiptir vissulega máli, en það eiga að vera einkaaðilar sem halda utan um hana. Í því ljósi fólst afstaða mín í REI-málinu og hún hefur ekki breyst.

Það er kannski kominn tími til að taka umræðu um einkavæðingu Landsvirkjunar og hversu langt eigi að fara í uppstokkun mála í orkugeiranum. Það er alveg greinilegt að lífleg umræða er framundan innan Sjálfstæðisflokksins um þessi mál í kjölfar bæði stofnunar REI og Landsvirkjun Power.

mbl.is Vill einkavæða Landsvirkjun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Máttur fyrirsagnanna

RRbíllÞað er alltaf gaman af því þegar að fréttamenn leika sér með fyrirsagnir á fréttirnar. Þetta dæmi um leikfangabílinn sem Atli Fannar skrifar um er mjög gott dæmi þess. Hélt svona smástund að verið væri að skrifa um alvöru Range Rover-bíla sem foreldrar væru að gefa börnum sínum og ætlaði að fara að hneykslast alveg svakalega á því. Svo eru þetta bara leikfangabílar.

Það er varla undrunarefni að þetta verði jólagjöf barnanna í dag. Man vel sjálfur hvað ég var stoltur af fjarstýrðum eðalbíl sem ég fékk í jólagjöf frá bróður mínum fyrir eitthvað um tveim áratugum. Þá var hann það flottasta sem í boði var. Hann er enn flottur, reyndar niðrí geymslu nú til dags en samt flottur. Er eitt af því fáa af mínu æskuefni sem ég á reyndar enn. Annars hef ég aldrei verið mikið fyrir bíla, svo að þetta er ágætis minning um þann frekar skammlífa áhuga.

Annars verður vonandi ekki harkalegur slagur um þessa leikfangabíla. Það heyrast margar sögur af því að fólk takist allt að því á um leikföngin í búðunum þessa dagana, sérstaklega eftir að Toys´r´us kom til landsins. Spaugstofan tók reyndar ansi fyndið á dótasamfélaginu í þætti um daginn, einn þeirra besta í vetur. Finnst þetta bara góð gjöf handa börnunum. Þetta virðist vera algjör kaggi með öllu og kannski undirbúningur að því að krakkar spái í bílum, hver veit. Allavega virka þessir leikfangabílar mjög raunverulegir.


mbl.is Börn fá Range Rover í jólagjöf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

REI, REI ekki um jólin

REI-myndbandiðÞað verður ekki um það deilt að REI-málið er eitt mesta pólitíska hitamál ársins í íslenskum stjórnmálum. Það væri gaman að vita hversu margar fréttamínútur ljósvakamiðlanna á aðeins örfáum vikum hafa snúist um REI. Þetta mál hefur legið þungt yfir Orkuveitu Reykjavíkur og því skiljanlegt að starfsmenn þar hafi snúið þessu upp í grín nú fyrir jólin.

Þeir hafa nú gert bráðskemmtilegt myndband þar sem málið er sett í spéspegil með laginu Nei, nei ekki um jólin eftir Björgvin Halldórsson við ljóð Björgvins, Þorsteins Eggertssonar og Ladda. Lagið heitir að sjálfsögðu REI, REI ekki um jólin.

Það ættu allir að hafa gaman af þessu myndbandi. Skemmtilegur húmor og vel gert hjá starfsmönnum OR. Sérstaklega gaman að sjá vin minn úr flokksstarfi Sjálfstæðisflokksins, Loft Má Sigurðsson, sem hefur verið mjög virkur í flokksstarfinu í Grafarvogi, í aðalhlutverki þarna.




Þrælahald í nútímanum

Þrælahaldarinn Svona innst inni taldi maður að þrælahald væri arfur frá liðinni tíð og það væri nú til dags væri aðeins hægt að lesa um það í sögubókum. Það er þó alls ekki svo. Að slíkt skuli gerast hjá auðugum hjónum á Manhattan í New York vekur að sjálfsögðu heimsathygli og um leið spurningar um hvort að mörg fleiri dæmi af slíku tagi séu til í hinum vestræna heimi.

Það er gefið í skyn að indónesísku konurnar sem voru vistaðar hjá þessum auðugu hjónum hafi bæði verið misþyrmt líkamlega og andlega. Þetta er í einu orði sagt skelfilegur vitnisburður um hugsunarhátt fólks. Það er ekkert verra en þegar að fólk meðhöndlar starfsfólk sitt, hvar sem það er, sem þræla og jafnvel ber það eins og harðfisk.

Það hlýtur að verða refsað harkalega fyrir svona brot á almennum mannréttindum. Í Bandaríkjunum, þar sem mikið er talað um frelsið og mannréttindin, hlýtur að vera tekið á svona skelfilegum málum í nútímanum.

mbl.is Fundin sek um þrælahald
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 18. desember 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband