REI, REI ekki um jólin

REI-myndbandiðÞað verður ekki um það deilt að REI-málið er eitt mesta pólitíska hitamál ársins í íslenskum stjórnmálum. Það væri gaman að vita hversu margar fréttamínútur ljósvakamiðlanna á aðeins örfáum vikum hafa snúist um REI. Þetta mál hefur legið þungt yfir Orkuveitu Reykjavíkur og því skiljanlegt að starfsmenn þar hafi snúið þessu upp í grín nú fyrir jólin.

Þeir hafa nú gert bráðskemmtilegt myndband þar sem málið er sett í spéspegil með laginu Nei, nei ekki um jólin eftir Björgvin Halldórsson við ljóð Björgvins, Þorsteins Eggertssonar og Ladda. Lagið heitir að sjálfsögðu REI, REI ekki um jólin.

Það ættu allir að hafa gaman af þessu myndbandi. Skemmtilegur húmor og vel gert hjá starfsmönnum OR. Sérstaklega gaman að sjá vin minn úr flokksstarfi Sjálfstæðisflokksins, Loft Má Sigurðsson, sem hefur verið mjög virkur í flokksstarfinu í Grafarvogi, í aðalhlutverki þarna.




« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband