28.2.2008 | 22:50
Dagur vill frekar austurríska liðið en hið íslenska

Það er greinilegt að Dagur ætlar sér að halda áfram starfi hjá Val með þjálfun í Austurríki. Þetta er svolítið sérstök staða fyrir okkur íslenska handboltaáhugamenn sem vildum að Dagur tæki við landsliðinu. Þó að um sé að ræða landslið sem er nokkrum klössum lægri en hið íslenska er þetta visst tækifæri fyrir Dag að sýna styrk sinn sem þjálfara og reyna sig fyrir önnur verkefni. Enda vill hann greinilega verða landsliðsþjálfari hér síðar meir.
Þetta er allt mjög spes og eðlilegt að spurt sé hvort að framtíðarsýn HSÍ með landsliðið hafi verið of veik fyrir sterkan þjálfara að taka við. Enda er greinilegt að samið er við nýjan landsliðsþjálfara, Guðmund Guðmundsson, til skamms tíma og greinilegt að eftir Ólympíuleikana á að hugsa hlutina upp á nýtt. Það þarf að skapa alvöru framtíðarsýn með landsliðið og tryggja farsæla forystu í gegnum næstu verkefni. Vonandi mun Guðmundi takast það.
Svo er aftur á móti stórt spurningamerki hver verði landsliðsþjálfari í árslok, þegar að verkefni Guðmundar er lokið og hvort að staðan verði þá ákjósanlegri fyrir þá íslensku þjálfara sem höfnuðu að taka við liðinu, meira að segja til að prufa sig áfram með önnur slakari lið.
![]() |
Dagur að taka við þjálfun austurríska landsliðsins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
28.2.2008 | 19:40
María Sigurðardóttir nýr leikhússtjóri hjá LA
Ég er ánægður með að stjórn Leikfélags Akureyrar hefur valið Maríu Sigurðardóttur, leikkonu og leikstjóra, sem nýjan leikhússtjóra í stað Magnúsar Geirs Þórðarsonar, nýs leikhússtjóra Borgarleikhússins. Með því fáum við pottþétt fagmanneskju úr leikhúsi til starfa, sem kann sitt fag og getur tekið við starfinu með tryggan bakgrunn og getur stýrt af þekkingu og krafti.
Við hér á Akureyri höfum upplifað yndislega spútnikk-tíma með leikhúsið, þar sem það hefur slegið hvert metið á eftir öðru og mikill kraftur verið í uppbyggingu. Það starf hefur Magnús Geir leitt með sóma og ég tel að við getum verið viss um að María mun halda áfram því verki og standa sig virkilega vel.
María leikstýrði Fló á skinni, sem nú er á fjölunum hjá leikfélaginu. Það er frábær og vönduð sýning sem vert er að mæla með. Vil óska Maríu til hamingju með starfið og býð hana velkomna hingað norður.
![]() |
María leikhússtjóri á Akureyri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.2.2008 | 17:27
Hrottaleg árás - mun lögreglan fá rafbyssur?
Það er alveg ljóst að þessi árás á lögreglumennina mun verða notað sem ástæða til að vopnvæða lögregluna enn frekar og það er þegar augljós undiralda í þá átt nú þegar að lögreglan þurfi að fá rafbyssur til að verjast. Þessi árás er það hrottaleg og skelfileg að það verður erfitt að stöðva það að löggan fái þau vopn og greinilegt er að yfirmenn lögreglunnar og ráðherrann horfa til þess í kjölfar þessarar árásar að lögreglan geti varið sig betur.
Hef ekki verið hlynntur því að lögreglan noti rafbyssur en það er ljóst að þessir menn hafa veitt lögreglunni og þeim sem ráða þar för sterk rök fyrir máli sínu að taka upp þessi vopn.
![]() |
Minnti á rothögg í boxi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
28.2.2008 | 17:02
Borgin á verk Kjarvals - fjölskyldukröfu hafnað

Eins og flestir vita er meginhluti verkanna geymdur á Kjarvalsstöðum, en safn borgarinnar var nefnt eftir Jóhannesi og er á Klambratúni í Reykjavík. Barátta Ingimundar og fjölskyldu hans er orðin mjög löng. Hef ég fylgst með henni nokkurn tíma, en á síðustu árum hefur Ingimundur verið virkur við að skrifa á spjallvefnum Málefnin, en þar skrifaði ég reglulega þar til að ég hætti því endanlega fyrir rúmu ári.
Niðurstaðan í dag er mjög lík niðurstöðu héraðsdóms í janúar 2007. Stór hluti niðurstöðunnar í dómnum í dag virðist enda, rétt eins og í héraðsdómi, byggður á orðum og ummælum Geirs Hallgrímssonar, fyrrum forsætisráðherra, sem var borgarstjóri í Reykjavík árið 1968 er samningurinn kom til sögunnar.
Það verður fróðlegt að fylgjast með þessu máli í kjölfarið. Ingimundur hefur barist árum saman fyrir því að fá yfirráð yfir listasafni afa síns. Sú barátta er nú töpuð og fróðlegt að heyra viðbrögð Ingimundar við þessu.
![]() |
Dánarbú Kjarvals á ekki myndir Reykjavíkurborgar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.2.2008 | 12:12
Í minningu Árna frænda

Hefur mér alla tíð þótt mjög vænt um Árna og metið hann mikils. Hann var aðeins örfáum mánuðum yngri en amma mín, Sigurlín Kristmundsdóttir, en þau voru æskuvinir á Eskifirði og höfðu samskipti alla tíð. Árni var fyrsti skólafélaginn hennar eftir að hún fluttist til Eskifjarðar árið 1923 og héldust þau vinabönd alla tíð - hann skrifaði fallega minningargrein um hana þegar að hún lést aldamótaárið sem mér þótti svo innilega vænt um.
Árni var einfaldlega traustur og sannur maður. Hann var trúr sínum lífsskoðunum og baráttumálum. Hann lagði engum illt til. Á ættarmótum Högnastaðafjölskyldunnar var Árni sjálfkjörinn í að setja saman fróðleik og vísur, en hann var rómaður hagyrðingur sem setti saman vísur við öll tilefni og skilur hann eftir sig merkilegt safn fallegra vísna, sem fjalla vel um bæði stjórnmál og mannlífið sjálft.
Það var alltaf virkilega notalegt að fylgjast með eljunni í Árna. Hann var alltaf að, skrifaði greinar í Morgunblaðið nær alveg fram í andlátið, skrifaði dagbókina sína þar til daginn áður en hann dó og hafði skoðanir á öllum málum. Áhugi á þjóðfélagsmálum var honum sem í blóð borið og það var honum mikilvægt að fylgjast vel með. Það mátti alltaf stóla á að hann væri á landsfundi Sjálfstæðisflokksins. Hann sat landsfundi í yfir sextíu ár - var vel með á alla hluti og algjör fróðleiksbrunnur.
Mér þótti mjög vænt um að sjá hann á sambandsþingi SUS í Stykkishólmi haustið 2005. Þar var hann, rúmlega níræður, einn af fundarmönnum nær allt þingið. Hann sat yfir þingstörfum og fylgdist mjög vel með, einkum á laugardeginum þegar að farið var yfir ályktanir og ræddi málin við okkur. Tók spjall við mig um hvernig staðan væri með þetta mál hjá okkur og hitt. Þannig var Árni, hann var áhugasamur um það sem við vorum að gera og fylgdist með.
Árni var rómaður bindindismaður og varði þau gildi sín alla tíð, oftast nær í greinum í Morgunblaðinu. Það var gagnlegt og fróðlegt að lesa skrif Árna um áfengismál og hann lét ekki sinn hlut í þeirri baráttu, var einlægasti og traustasti bindindismaður sem ég hef kynnst. Hann var um áratugaskeið fréttaritari Moggans - hann unni blaðinu og vann því vel alla tíð. Það væri gaman að vita, nú að leiðarlokum, hversu margar greinar hann skrifaði í blaðið.
Og trúr var hann Sjálfstæðisflokknum. Það var alltaf yndislegt að heyra sögur Árna af samskiptunum við forystumenn flokksins, en hann þekkti þá alla persónulega, nema Jón Þorláksson sennilega. Árni var í hópi þeirra sem fyrstur tók þátt í stjórnmálaskóla Sjálfstæðisflokksins og varð eftir það traustur vinur og bandamaður Gunnars Thoroddsens, sem var um tíma þingmaður Snæfellinga.
Þrátt fyrir að Árni frændi væri heiðursborgari í Stykkishólmi var hann ekki úr Hólminum, þó að hann sé einn þeirra manna sem helst eru tengdir við staðinn. Hann var Eskfirðingur, en fluttist vestur í upphafi fimmta áratugarins og bjó þar alla tíð síðan. Þangað fluttu ennfremur tveir bræður móður minnar, Kristinn og Guðni Friðrikssynir. Settu þeir sterkan svip á samfélagið þar.
Að leiðarlokum kveð ég Árna frænda minn með virðingu og þakklæti fyrir allt sem hann gerði fyrir fjölskyldu mína. Hann var trúr sínu fólki og var í góðum samskiptum við móður mína síðustu mánuðina sem hann lifði og sendi henni notalegar kveðjur í veikindum hennar, skrifaði henni meðan að kraftar entust og hafði símasamband við okkur.
Það er skarð fyrir skildi við andlát Árna. Guð blessi minninguna um þennan heilsteypta og vandaða mann.
![]() |
Árni Helgason látinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.2.2008 | 00:23
Dapurt ástand - verður Eurovision haldið í Serbíu?
Það vekur athygli að sérstaklega þurfi að hafa áhyggjur af öryggi þátttakenda í Eurovision er keppnin verður haldin í Serbíu eftir nokkra mánuði. Það er svosem eðlilegt að umræða sé um pólitíska stöðu í landinu og greinilegt er að staða mannréttinda þar er ekki beint beysin. Samkynhneigðir þátttakendur virðast óttast um öryggi sitt við að fara til Serbíu og reyndar er öllum ljóst eftir óeirðir og læti í Serbíu að það er ekkert öruggt við að fara þangað.
Sérstaklega er þessi umræða um stöðu samkynhneigðra í Serbíu mjög merkileg einkum í ljósi þess að serbneska söngkonan, Marija Serifovic, sem vann keppnina í Helsinki í fyrra er samkynhneigð og var mjög fjallað um persónu hennar og lífsstíl einmitt fyrir ári þegar að hún vann. Það er eðlilegt að rætt sé opinskátt um stöðuna í Serbíu. Heyrði umræðu um daginn þar sem velt var fyrir sér hvort Serbía væri ákjósanlegur keppnisstaður og öruggur að öllu leyti. Sitt sýnist hverjum um það og það virðist vera ólga undir niðri með staðsetninguna.
Það hefur þó ekki gerst áratugum saman, jafnvel frá upphafi, að keppnin sé færð til og gestgjafinn afsali sér því að halda utan um pakkann. Var síðast rætt um það þegar að Írland hélt keppnina í fimmta skiptið á innan við áratug og þótti mörgum þar þá nóg komið um kostnaðinn og fleira. Síðan hafa Írar reyndar ekki þurft að hafa miklar áhyggjur og er reyndar svo komið nú að þeir senda kalkún sem sinn fulltrúa.
Mér finnst áhyggjur um stöðuna í Serbíu réttmætar og eðlilegt að taka þessa umræðu. Það bendir þrátt fyrir allt þó til þess að þeir sem greinilega óttast um öryggi sitt verði að fara til Serbíu, nema þá að yfirmenn keppninnar taki af skarið af ótta við stöðu mála á svæðinu. En kannski munu menn taka áhættuna, vitandi af pólitísku ástandi þar og stöðu mannréttindamála.
![]() |
Samkynhneigðir varaðir við því að fara til Serbíu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 00:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)