28.3.2008 | 21:41
Þrír áratugir frá andláti Vilhjálms Vilhjálmssonar

Villi varð fyrst frægur þegar að hann söng lögin Vor í Vaglaskógi, Raunasaga, og Litla sæta ljúfan góða með Hljómsveit Ingimars Eydals hér á Akureyri árið 1965 og voru allir vegir færir eftir það. Ekki aðeins vegna þess að hann var bróðir einnar ástsælustu söngkonu þjóðarinnar, Ellyjar Vilhjálms, heldur vegna þess að hann hafði allt sem þurfti. Á þrettán árum tók hann upp fjölda laga og lét eftir sig fjölbreytt og vandað ævistarf þegar að hann kvaddi þennan heim langt um aldur fram í sorglegu slysi.
Það var mikið áfall fyrir íslenska tónlist að missa Villa sem aðeins 33 ára gamall hafði náð hátindi í sínum bransa og hafði planað svo margt meira í tónlistinni. Það var mikill harmleikur fyrir íslenskan tónlistarbransa að honum auðnaðist ekki að eiga fleiri ár í tónlistarsköpun sinni. En Villi lét eftir sig mikið og veglegt safn af vönduðu efni og enn í dag hlustar þjóðin á þennan frábæra söngvara. Ekki eru nema nokkrir mánuðir síðan að vegleg minningarútgáfa á lögum Villa fór í gull og er orðin ein mest selda plata af endurútgefnu efni til þessa. Hann heillar fólk af öllum kynslóðum - jafnt unga sem aldna.
Eftir því sem árin líða met ég Villa meira. Mér finnst hann vera sá söngvari á síðustu áratugum sem var einlægastur í tónlistarsköpun sinni, söng tærast og hljómþýtt. Hann náði að afreka mjög miklu og hans sess er ódauðlegur meðal þjóðarinnar í íslenskri tónlist. Það er mjög ánægjulegt að heyra að fundist hafi eitt lag til viðbótar við hans vandaða ævistarf og enn megi eiga von á að upplifa söngröddina hans Villa í nýju lagi á næstu mánuðum. Það er mikill fjársjóður fyrir íslenska tónlist.
Uppáhaldslögin mín með Villa Vill eru svo ótalmörg; en mér finnst þó Lítill drengur, Söknuður, Jamaíka, Þú átt mig ein, Það er svo skrítið, Ég labbaði í bæinn og Vor í Vaglaskógi standa upp úr. En það er hægt að telja endalaust upp eftirminnileg lög. Einshljóðfærissinfónían er svo algjörlega ógleymanlegt lag - þvílík snilld.
Villi er einfaldlega háklassi í íslenskri tónlist - ber mikla virðingu fyrir framlagi hans og ævistarfi í tónlist. Guð blessi minningu hans.
Tónlist | Breytt s.d. kl. 21:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
28.3.2008 | 15:29
Ólafur Ragnarsson látinn
Ólafur stóð sig mjög vel sem útgefandi verka Nóbelsskáldsins undir lok ævi hans. Keypti ég Laxness-bækurnar þegar að þær voru endurútgefnar af Vöku Helgafell - það var mikil upplifun að lesa bækurnar en sumar hafði ég aldrei lesið og það var mjög notalegt að eignast safnið. Mér fannst fyrst og fremst mikill metnaður einkenna allt starf Vöku Helgafells og Ólafur var einn af þessum bókaútgefendum sem lögðu sig allan fram í það sem hann gerði og verk þess báru þess merki.
Sem einn af fyrstu fréttamönnum Ríkissjónvarpsins gerði Ólafur marga skemmtilega þætti og tók eftirminnileg viðtöl. Er í fersku minni einkum viðtalið við Roger Moore, sem þá lék dýrlinginn Simon Templar og síðar njósnarann James Bond, sem ég á einhversstaðar á myndbandi og finnst alltaf svo skemmtilegt. Þættir hans um Íslendingaslóðir í Kanada á miðjum áttunda áratugnum eru sérlega eftirminnilegir en þar var farið um íslendingabyggðirnar og talað við fólk og rifjuð upp saga vesturferðanna með mjög eftirminnilegum hætti. Sá þessa þætti þegar að þeir voru endursýndir í upphafi tíunda áratugarins og fannst þeir alveg frábærir.
Það er vonandi að Sjónvarpið heiðri minningu Ólafs, sem eins fyrsta fréttamanns síns, með því að endursýna eitthvað efni sem hann gerði eða taki saman í einhvern pakka skemmtileg viðtöl eða umfjöllun um verk hans hjá stofnuninni. Enda eru þar mörg merkileg viðtöl og eftirminnilegir þættir sem væri gaman að sjá allavega eitthvað brot af. Sérlega væri gaman að sjá þættina hans Ólafs um Íslendingabyggðir vestra að nýju.
Sem bókahöfundur var Ólafur vandvirkur. Ævisaga hans um dr. Gunnar Thoroddsen, fyrrum forsætisráðherra og borgarstjóra, er virkilega vel gerð og skemmtileg lestrar. Uppbygging hennar er sérlega góð og flakkað á milli tíma með Gunnari, sem var á hápunkti ferils síns sem forsætisráðherra er hún var skrifuð. Bækur Ólafs um Halldór Laxness eru auðvitað meistaraverk.
Ég vil votta fjölskyldu Ólafs innilega samúð mína.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
28.3.2008 | 14:18
Er stutt í frönsku aðferðina hjá atvinnubílstjórum?

Það er vel þekkt í Frakklandi að í mótmælum bílstjóra sturti þeir skítahlassi, fiskhrati og allskonar úrgangi fyrir utan opinberar byggingar. Þetta hefur ekki verið algengt hérna heima á Íslandi og virðist takturinn það beittur hjá bílstjórum að farið verði í enn róttækari aðgerðir. Það er sérstaklega táknrænt að bílstjórarnir aki löturhægt eftir Suðurlandsvegi og tempi alla umferð niður. Í þessum efnum eru bílstjórarnir greinilega að taka upp erlendar baráttuaðferðir.
Eins og ég sagði hérna í gær tel ég þetta skiljanleg mótmæli eftir allt sem á undan er gengið. Það er engin furða að atvinnubílstjórar hafi fengið nóg af háu eldsneytisverði og fari nú í skæruhernað. Það er greinilegt að taka á þann slag alla leið.
![]() |
Vegi lokað við Rauðavatn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
28.3.2008 | 12:59
Mótmælin halda áfram - daglegur viðburður?

Í gær velti ég því fyrir mér hvaða áhrif dagleg mótmæli atvinnubílstjóra muni hafa. Það virðist hafa verið rétt að velta því fyrir sér, enda er greinilegt að bílstjórarnir munu loka umferð þegar að þeim sýnist. Þeir eru í þeim takti núna að vera alveg ófeimnir við að láta til sín taka.
Talsmaður bílstjóranna hótaði því reyndar í fréttaviðtali í gær að ef ekkert myndi bráðlega gerast yrðu mótmælin með þeim brag að bílstjórar myndu leggja bílunum og yfirgefa þá á aðalsamgönguæðum. Það þarf varla að velta því lengi fyrir sér hvaða áhrif það hafi.
Það er greinilegt að bílstjórum er nóg boðið og við getum átt von á mótmælum þá og þegar - jafnvel að farið verði lengra með mótmælin.
![]() |
Bílstjórar mótmæla |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
28.3.2008 | 11:52
Ofbeldið í Breiðholtinu
Ætla ekkert að dæma um hvort að ofbeldi hafi verið beitt þarna eður ei. En þessi mál í Breiðholtinu eru að sýna okkur svolítið nýjan íslenskan veruleika. Finnst Keilufellsmálið sérstaklega brútalt mál og eflaust eru þau mörg rukkunarmálin sem rata ekki í fjölmiðla þó að þetta tiltekna mál virðist gera það.
Og við stefnum í bandarískan veruleika æ ofan í æ, eins og við sjáum í svo mörgum hasarmyndum.
![]() |
Þrír rændu manni í Breiðholti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
28.3.2008 | 01:41
Jóhann Benediktsson segir upp í mótmælaskyni
Jóhann hefur staðið sig vel sem lögreglustjóri á Suðurnesjum og þar áður sem sýslumaður á Keflavíkurflugvelli. Það var mjög umdeilt þegar að Halldór Ásgrímsson, þáverandi utanríkisráðherra, skipaði Jóhann í sýslumannsembættið þegar að Þorgeir Þorsteinsson hætti eftir áratugalangt starf og gekk framhjá Kolbrúnu Sævarsdóttur. Það hefur þó reynst rétt val.
Það verður áhugavert að sjá hvað gerist næst í málefnum lögreglustjóraembættisins á Suðurnesjum. Vonandi mun Jóhann ekki hætta og skynsamlegast væri að hætta við þessar breytingar.
28.3.2008 | 00:53
Hversu mikið mun Wilders stuða múslima?

Wilders er einn umdeildasti stjórnmálamaður Hollands um þessar mundir og minnir í svipinn á Jörg Haider einkum að því leyti að báðir eru algjörlega ófeimnir við að fara frekar langt og koma með leiftrandi boðskap sem skiptir fólki gjörsamlega í tvær fylkingar. Hef ekki séð þessa mynd enn og þætti reyndar fróðlegt að sjá hana til að vita hversu langt Wilders gengur núna.
Gæti vel verið að þetta sé tóm steypa og hinsvegar eitt sjónarhornið í viðbót sem stuðar múslima. Ekki eru nema nokkrir dagar síðan að Bin Laden hótaði okkur í Evrópu, ekkert síður á Norðurlöndunum vegna skopmyndamálsins og þetta myndband mun ekki lægja öldur þar og spurning hvort að sá skeggjaði skuggabaldur komi fram aftur með sömu formælingar og dómsdagsspár fyrir okkur á Norðurlöndum.
Það má reyndar Wilders eiga í öllum sínum stormi að hann kemur með sjónarhorn sem margir tala fyrir, hversu umdeilt og hatað sem það annars er og verður alla tíð. Hann er ekki sá fyrsti sem stuðar með ummælum um múslima og ekki sá síðasti - og honum gengur vel ásamt fleirum að stuða einkum Bin Laden sem þolir ekkert nema sína eigin skoðun á málum.
![]() |
Umdeild kvikmynd á vefnum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |