Reykjavík suður

Kosningar 2007 Það eru aðeins tveir dagar til alþingiskosninga. Í kosningaumfjöllun dagsins á sus.is er hringferðinni um kjördæmin lokið með umfjöllun um Reykjavíkurkjördæmi suður. Farið er yfir stöðu mála í kjördæminu; úrslit síðustu kosninga, sviptingar í stjórnmálum á kjörtímabilinu og í aðdraganda þessara þingkosninga. Ennfremur er fjallað um frambjóðendur, um mörk kjördæmisins og komið með fróðleiksmola.

Reykjavíkurkjördæmi suður er eitt fjölmennasta kjördæmi landsins. Það nær yfir sunnanverða Hringbraut, gömlu Hringbraut, Miklubraut og Vesturlandsveg. Reykjavík suður er helmingur höfuðborgarinnar, mjög fjölmennt kjördæmi, og er því að upplagi mynduð í kjördæmabreytingunni árið 2000 úr Reykjavíkurkjördæmi. Eina breytingin var þó sú auðvitað að borginni var skipt upp í tvö kjördæmi til að jafna vægi atkvæða umtalsvert.

Á kjörtímabilinu hafa þingmenn kjördæmisins verið 11 talsins; níu kjördæmasæti og tvö jöfnunarsæti. Á því verður engin breyting í kosningunum þann 12. maí.

Umfjöllun um Reykjavíkurkjördæmi suður

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband