Million Dollar Baby - rífleg fatakaup

Britney Spears Það er nett skondið að fylgjast með fréttaflutningi af ríflegum fatakaupum glamúrgellunnar Britney Spears, sem eyðir milljón á mánuði í spjarirnar. Það væri reyndar áhugavert að vita hvernig það er eiginlega hægt að eyða svo miklum peningum per mánuð í fatakaup ein og sér. Það hlýtur að vera bara einblínt á dýrustu og flottustu merkin sem til eru og allan annan umbúnað sem dýrastur telst. Eitt er þó víst að ekki fer stóri hluti tólf milljónanna á ári í nærbrækurnar.

Það er oft erfitt að hugsa sér heiminn séð með augum þessara stjarna vestanhafs sem lifa sínu lífi í myndavélablossum og mismikilli óreglu í og með. Það er vissulega svo að flestar þessar stjörnur þurfa að eyða vænni fúlgu í að hugsa um útlitið, fötin og allt annað sem máli skiptir.

Samt eru þetta upphæðir sem meðaljóninn í mannlífshafinu botnar ekkert í. Ekki færa þessir peningar fólkinu hamingju en það þarf vænan skilding til að halda þeim lífsstandard sem mestu skiptir.

mbl.is Britney kaupir föt fyrir milljón á mánuði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Agnar Ólason

Þarna sannast rækilega hið fornkveðna; stíll fæst aldrei keyptur. Annað hvort hefurðu stílinn í þér eða ekki. Milljón kall breytir þar engu um...

Jón Agnar Ólason, 2.11.2007 kl. 14:58

2 Smámynd: Stefán Friðrik Stefánsson

Nákvæmlega Jón Agnar. Orð að sönnu.

mbk.

Stefán Friðrik Stefánsson, 2.11.2007 kl. 17:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband