Fylgið á fleygiferð í NA - margir óákveðnir

Stærstu tíðindin í könnun Gallups hér í Norðausturkjördæmi er hversu margir taka ekki afstöðu, tæp 40%. Kosningabaráttan hefst ekki fyrir alvöru hér fyrr en með borgarafundinum í kvöld, hefðin er sú að mesti hitinn í baráttunni hér eru tíu dagar. Framsókn tókst að vinna kosningarnar í Norðaustri á innan við tíu dögum árið 2003 og bætti við sig á lokasprettinum síðast á kostnað vinstri grænna og náði þriðja manni inn, þvert á allar spár. Fylgið hefur jafnan verið á fleygiferð síðustu dagana og ég tel núna að margir muni hreinlega ekki ákveða sig fyrr en á kjördegi.

Staða Sjálfstæðisflokksins styrkist frá síðustu kjördæmakönnunum, þar sem fylgið var nánast í frjálsu falli og staðan grafalvarleg. Staða Tryggva Þórs virðist orðin mjög trygg, ef marka má þetta. Stærsta áhyggjuefni Sjálfstæðisflokksins er þó án nokkurs vafa hversu lágt fylgið er hér á Akureyri. Staðan hér er ekki gæfuleg þegar litið er til næstu sveitarstjórnarkosninga sé þetta áreiðanleg mæling. Kosningabaráttan næstu dagana verður mælikvarði á styrk Kristjáns Þórs. Útkoman ræður miklu um pólitíska framtíð hans og styrk á þingi næstu árin.

Ég átti von á að Samfylkingin væri með meira, sérstaklega miðað við stöðuna á landsvísu. Ég yrði ekki hissa þó Kristján Möller væri dragbítur á þá að þessu sinni. Síðast tapaði Samfylkingin nokkru fylgi hérna og varð minni en Framsóknarflokkurinn. Slíkt virðist ætla að gerast aftur núna þrátt fyrir nokkra endurnýjun, en Sigmundur Ernir kemur nýr inn og Jónína Rós hefur færst upp í þriðja sætið. Samfylkingunni hefur tvisvar mistekist að gera það að þingsæti, þegar Lára komst ekki í kjördæmasæti 2003 og jöfnunarsæti 2007, missti það í báðum tilfellum til Framsóknar.

Mér finnst merkilegt hvað Framsókn er að styrkjast og ansi margt sem bendir til að þeir fái mest fylgi hérna í vor, rétt eins og 2003. Framsókn hefur oftast verið vanmetin í könnunum hér, þetta sást í síðustu tveimur kosningum. Ég held að þeir hafi misst mikið með brotthvarfi Völlu Sverris. Hún er pólitísk kjarnakona, enginn fetar í fótspor hennar. Þó bæði Birkir og Höskuldur séu traustir ungir menn eiga þeir enn nokkuð í land að ná pólitískum styrkleika Völlu. Ekki hefur mikið borið á nýju konunni í vonarsæti, Huld, en mér sýnist samt stefna í að hún komist inn.

VG hefur áður mælst með mikið fylgi í aðdraganda kosninga en tekist að glutra því niður. Stóra spurningin næstu dagana er hvort Steingrími haldist á þessu mikla fylgi. Síðast varð VG minnstur fjórflokkanna þrátt fyrir að leiða í mörgum kjördæmakönnunum, missti dampinn á mikilvægum tímapunkti. Ekki er lengur eins öruggt að þeir nái inn þremur kjördæmakjörnum mönnum og þá getur margt farið að gerast með jöfnunarsætið.

En ómögulegt er að spá í hvernig fer. Þetta er ágætis vísbending um styrkleika Framsóknar, möguleika VG, veikleika Samfylkingar og brothætta stöðu Sjálfstæðisflokksins, sérstaklega á Akureyri, sem þó hefur styrkt sig frá síðustu könnun. Litlu framboðin virðast lítinn styrk hafa.

Baráttan hér hefst nú fyrir alvöru. Fjölmargir hafa ekki tekið afstöðu og nú ræðst hvernig framboðunum muni ganga að höfða til þeirra sem hafa ekki ákveðið sig.

mbl.is VG stærst í Norðausturkjördæmi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Skúli Víkingsson

Það má merkilegt heita ef Kristján Möller er dragbítur á fylgi Samfylkingar. Þrátt fyrir sjóflutningabullið í honum, þá virðist hann vera einna skárstur af þessu liði. Það er rökrétt að gamla framsóknarfylgið fari til VG þar sem sá flokkur hefur tekið við afturhaldskyndli gömlu Framsóknar. Við verðum að vona að Kristjáni Þór takist að snúa þessu til betri vegar á þeim stutta tíma sem eftir er til kosninga.

Skúli Víkingsson, 16.4.2009 kl. 18:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband