Áfellisdómur yfir Vilhjálmi - pólitískt viðskiptatafl

Vilhjálmur Þ.

Það er ekki hægt að segja annað en að REI-skýrslan sé áfellisdómur yfir stjórnsýslu alls málsins og einkum Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni, formanni borgarráðs og fyrrum borgarstjóra, en fram kemur þar orðrétt að hann hafi ekki haft afgerandi umboð til vinnubragða sinna í málinu. Verður áhugavert að sjá hvernig hann svarar þessari skýrslu á morgun.

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson á samkvæmt meirihlutasamkomulagi Sjálfstæðisflokks og F-lista að verða aftur borgarstjóri í Reykjavík eftir rúma þrettán mánuði, 22. mars 2009. Þar sem Björn Ingi Hrafnsson hefur hætt þátttöku í stjórnmálum og sagt af sér sem borgarfulltrúi er Vilhjálmur Þ. einn lykilmanna REI-málsins enn í borgarstjórn Reykjavíkur og því ljóst að spurt verður um hvort málið skaði hann frekar, jafnvel það mikið að hann verði ekki borgarstjóri að nýju samkvæmt samkomulaginu.

Las skýrsluna áðan á vef vísis. Það er áhugaverð lesning og öllum holl sem vilja kynna sér málið betur. Auk alls þess stórundarlega sem gerðist í því máli og vitað var eru þar ýmis atriði sem varpa öðru ljósi á heildarmyndina. Það sem er hið allra ljótasta er hvað FL-Group var með puttana í öllu ferlinu, reyna að manípúlera þessu öllu frá stjórnmálamönnum með umboð kjósenda, ná yfirráðum yfir málinu. Mjög ógeðfellt og áhrif fyrirtækjanna yfir þessu máli eru það dapurlegasta. Aðkoma þeirra var greinilega ráðandi, með því er illur grunur minn og fleiri allan feril málsins staðfestur.

Frá upphafi skrifaði ég gegn ákvörðunum þeirra sem héldu á málinu. Það var illa unnið, of hratt og flausturslega. Þetta lyktar af spillingu og skýrslan gefur fullt tilefni til þess að svo hafi verið. Það sem er verst er hvað stjórnmálamennirnir léku eins og lítil börn með auðjöfrunum, vildu vera peð í mjög stóru viðskiptatafli.

Þetta fólk á að hætta í pólitík og fara í bissness með eigin peninga, ekki annarra. Kannski endar Björn Ingi í bissness núna, eins og annar fallinn krónprins framsóknarmanna, Finnur Ingólfsson.


Pólitískt hneykslismál í Reykjavík

OR Allt frá fyrsta degi hefur mér þótt REI-málið skítugt pólitískt hneykslismál sem er til skammar fyrir alla hlutaðeigandi, einkum þá sem leiddu mál í meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, þá Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson og Björn Inga Hrafnsson. Það er staðfest í REI-skýrslu stýrihópsins. Það sem mér finnst merkilegast er hversu mikil ítök fyrirtæki úti í bæ, FL-Group, hafði í öllu ferlinu og virtist keyra málið áfram af mun meiri krafti en stjórnmálamenn.

REI-málið var eitt klúður frá upphafi til enda. Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks hélt illa á málum og úr varð risavaxið pólitískt klúður sem lyktaði af mikilli spillingu. Í því áttu sér stað ákvarðanir sem ekki var hægt að una við. Kaupréttarsamningarnir voru hið versta í málinu og er með ólíkindum að stjórnmálamenn sem vilja kenna sig við hugsjónir Sjálfstæðisflokksins hafi staðið þar á bakvið.

Umfjöllun Helga í Kastljósinu áðan var vönduð og vel gerð - góð súmmering á málinu, sem er fjarri því bjartasta stund Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.

mbl.is REI skýrslan áfellisdómur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Unglingaklíkur slást í Kringlunni

Unglingaklíkur

Öll höfum við heyrt af slagsmálum klíkuhópa unglinga erlendis og séð það í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum. Þetta er æ meir að verða veruleiki hérna heima og sést einna best með slagsmálum hópanna sem tókust á í Kringlunni í dag. Öryggisverðir þar höfðu nóg að gera við að ráða við þessa hópa.

Það væri gaman að vita hvað sé verið að slást um í þessum hópum. Hver sé drifkrafturinn á bakvið svo harkaleg slagsmál. Það hefur verið svolítið sérstakt að sjá myndir af því þegar að klíkur mætast, oftast nær að kvöldlagi, og berjast og ekki langt síðan að slík slagsmál voru stöðvuð hér við Glerártorg á Akureyri.

Finnst þetta fjarri því góð þróun. Það vekur þó æ meiri athygli þegar að slagsmálin eiga sér stað um hábjartan dag og það í Kringlunni af öllum stöðum. Það væri ágætt að vita hvað hafi verið barist um, hver átökin séu.


mbl.is Skrílslæti í Kringlunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heath Ledger lést af slysförum

Heath Ledger Það er nú ljóst að leikarinn Heath Ledger lést af slysförum, vegna ofneyslu á lyfseðilsskyldum lyfjum. Þetta mun slá á kjaftasögurnar sem hafa grasserað allt frá dauða hans fyrir hálfum mánuði um að hann hafi látist af ofneyslu eiturlyfja og verið í viðjum fíkniefnaneyslu er hann lést. Engin merki eru um að hann hafi látist af þeim völdum.

Það hefur verið talað mikið um að samband Heath og Michelle Williams hafi lokið vegna eiturlyfjaneyslu og sum blöð hafa gengið mjög langt síðustu dagana að ráðast að minningu leikarans með sleggjudómum og fullyrðingum um að hann hafi látist af völdum eiturlyfja. Upprúllaður peningaseðill, sem slúðurblöðin töldu merki um dópneyslu, hafi fundist í íbúð leikarans og hann hafi farið í gegnum mörg verkefni á síðustu mánuðum ævinnar í dópvímu.

Andlát Heath Ledger er mikill harmleikur, hann hefur verið syrgður af kvikmyndaáhorfendum um allan heim, enda eftirsjá af leikara sem var eitt mesta talent sinnar kynslóðar og var að komast á toppinn í Hollywood, eftir glæsilegan leiksigur í Brokeback Mountain. Það er ánægjulegt að það hafi verið skorið úr því að andlát hans var af slysförum en ekki vegna dópneyslu eins og gula pressan gaf í skyn með frekar ómerkilegum hætti.

Það má vel vera að talað verði um það lengi hversu grimm örlög Heath Ledger voru, svipað og var með annað mikið efni minnar kynslóðar í leiklist, River Phoenix, sem lést aðeins rúmlega tvítugur á tíunda áratugnum. Minning hans var mörkuð dópneyslu og ofnotkun eiturlyfja á andlátsstundinni, auk minninga um mikinn og góðan leikara. Ledger verður minnst sem góðs leikara sem átti harmræn örlög umfram allt.

mbl.is Heath Ledger lést af ofskammti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Blóðrautt sólarlag demókrata í Denver í ágúst?

Sífellt fleiri tala um það af alvöru að Hillary Rodham Clinton og Barack Obama berjist um útnefningu demókrata fram á sumarið. Það er freistandi að telja það eftir ofur-þriðjudaginn, þar sem þau hrósuðu bæði sigri; hún í þingfulltrúum en hann í fylkjum. Svartsýnustu menn tala um showdown á flokksþinginu í Denver í Colorado síðla ágústmánaðar. Það yrði vægast sagt mikið uppgjör dragist þetta fram í ágúst.

John F. Kennedy náði útnefningu demókrata ekki fyrr en á flokksþinginu í Los Angeles sumarið 1960 í kosningu upp á hvern þingfulltrúa en vann Hvíta húsið síðar um árið, naumlega reyndar í harðri baráttu við Richard M. Nixon. Kennedy ákvað að fylkja liði með helsta keppinaut sínum á flokksþinginu um útnefninguna, suðurríkjamanninum Lyndon B. Johnson. Sameiginlegt framboð þeirra var feiknasterkt og þeir bættu hvorn annan upp. En það eru aðrir tímar nú en árið 1960 - margir telja draumateymi Hillary og Obama óhugsandi eftir harða baráttu. Hún myndi ekki vilja vonarstjörnu sem skyggði á sig og hann vildi ekki prímadonnu í aukahlutverk. Undir niðri eru væringarnar milli þeirra miklar.

En þessi barátta er greinilega bara rétt að byrja. Það er það jafnt á öllum tölum að óvissan ein er vís. Það fer allt eftir því hvern er spurt hvort þeirra er yfir í slagnum, það hefur hver sitt mat á stöðunni, en það ræðst líka mjög af persónulegri aðdáun á Hillary eða Obama. Það er þó ekkert öruggt í óvissunni og hver verður að fylla í eyðurnar eins og hann vill. Í óvissunni geta falist tækifæri um spennandi slag sem fangar athygli flokks og þjóðar en í því geta líka falist erfiðar átakalínur sem skilja eftir sár, sár sem skaða samstöðu flokksins í helstu átökunum, þeim sem snúa að alvöru andstæðingum í kosningunum í nóvember.

Það eru allar líkur á því að repúblikanar klári sín mál langt á undan demókrötum. Þó að John McCain hafi ekki náð að stinga algjörlega af tók hann það væna forystu að nær vonlaust er fyrir Huckabee og Romney að ná honum. Allt bendir til þess að McCain geti slappað af, unnið sína kosningstrategíu og lagt grunninn að sínum málum fyrir forsetakosningarnar á meðan að Hillary og Obama taka langa rispu í baráttuna um útnefninguna. Og á meðan getur McCain einnig sameinað flokkinn að baki sér. Sumir þar hafa ekki enn áttað sig á því að McCain er frambjóðandinn og enn aðrir geta ekki horfst í augu við það. Það gerist þó fyrr en síðar.

Það sem skiptir máli nú er í sjálfu sér hversu lengi demókrataslagurinn muni standa og hvort þeirra fái meiri byr úr ofur-þriðjudegi. Demókratafléttan varð enn tvíræðari og spennandi. En heilt yfir finnst mér þó að Hillary hafi sigrað. Eftir kannanirnar og bylgjuna sem sýndu styrk Obama náði hún að sigrast á veigamiklum hindrunum sem voru í vegi hennar. Hún tók stóru bitana og getur brosað breiðar. Nú snýst þetta bara um kjörmenn. Fyrst að þetta kláraðist ekki á ofur-þriðjudegi verður þetta hausatalning á flokksþingið; fulltrúar og aftur fulltrúar. Þar verða átakalínur næstu vikna og öll teikn á lofti um að öllum brögðum verði beitt.

Það skyldi þó ekki fara svo að það yrði blóðrautt sólarlag yfir Denver í ágústlok.....

mbl.is Hætta á klofningi demókrata
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Prodi hættir - Berlusconi með pálmann í höndunum

Berlusconi og ProdiSilvio Berlusconi er með pálmann í höndunum nú eftir að Giorgio Napolitano, forseti Ítalíu, gafst upp við að endurmynda vinstristjórn í landinu og boðaði til kosninga í apríl. Innan við tveim árum eftir að Ólífubandalagið vann nauman sigur á hægriblokk Berlusconis hefur samstaða hennar brostið og stjórnmálaferli Romano Prodi, fráfarandi forsætisráðherra og fyrrum forseta ESB, er lokið með skipbroti stjórnar sinnar.

Allar kannanir benda til þess að Berlusconi muni vinna góðan og traustan sigur í þingkosningum og endurheimta þau völd sem hann hafði fyrir þingkosningarnar 2006. Hann sat á forsætisráðherrastóli í fimm ár og náði að tryggja lengsta stöðugleikatímabil ítalskra stjórnmála frá stríðslokum. Vinstristjórn Prodis entist aðeins í tvö ár, rétt eins og gerðist áður er hann var forsætisráðherra 1996-1998, en þá náði vinstriblokkin að endurmynda sig og klára tímabilið. Nú er hún sundruð og ekki til stórræðanna. Og Prodi fer út úr stjórnmálum með öðrum hætti en hann stefndi að.

Það er fyrir löngu orðin pólitísk hefð að kenna óstöðugleika í stjórnmálum við ítalskt ástand. Sú var enda tíðin að forsætisráðherrar komu og fóru á Ítalíu og meirihlutar riðluðust til og frá. Stöðugleikinn var allt að því enginn. Það varð þegar ljóst með úrslitunum 2006 að þetta yrði erfitt hjá Prodi. Hann hafði ekki ráðandi meirihluta í öldungadeildinni og það reyndist ekki duga honum í nema rúmlega 20 mánuði. Þó að vinstrimaðurinn Napolitano væri allur af vilja gerður að koma í veg fyrir kosningar með forsetavaldi sínu og reyndi að endurmynda stjórn undir forsæti þingforsetans kom allt fyrir ekki. Hann hefur nú gefist upp við að blokkera kosningar.

Berlusconi barðist fyrir kosningum. Það var ekki hægt að mynda starfhæfa stjórn eftir að Ólífubandalagið missti meirihlutann í öldungadeildinni og því fór sem fór. Nú mun koma í ljós hver hugur ítölsku þjóðarinnar er. Margir töldu Berlusconi búinn að vera þegar að hann tapaði naumt fyrir Prodi í apríl 2006. Hann vildi lengi vel ekki viðurkenna tapið. Hann sagði alltaf að stjórnin myndi ekki ná að sitja hálft tímabilið. Þar varð hann sannspár. Prodi, einn harðasti keppinautur hans í ítölskum stjórnmálum, hafði fyrir löngu tilkynnt að hann stefndi ekki á kosningar 2011. Hann yfirgefur sviðið mun fyrr en ella og fer beygður af velli.

Það eru spennandi vikur framundan í ítölskum stjórnmálum. Það verður sannarlega áhugavert að sjá hvort að Berlusconi nær þeim góða sigri og kannanir spá honum. Það yrði glæsileg endurkoma fyrir þetta sjötuga pólitíska ljón. Berlusconi er reyndar fæddur árið 1936, rétt eins og John McCain. Báðir eru þeir að sýna að pólitíkin er ekki búin fyrir sjötugt. Virðist vera góður árgangur allavega.

mbl.is Prodi gefur ekki kost á sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hillary sigrar í kjörmönnum en Obama í fylkjum

Hillary Rodham Clinton Spennan heldur áfram í baráttunni um forsetaembættið eftir ofur-þriðjudaginn. Barack Obama vann í fleiri fylkjum en Hillary Rodham Clinton, en hún tók hinsvegar stóru fylkin, sem voru stærstu hnoss kvöldsins. Niðurstaðan er því sú að hún sigraði í kjörmannatalningu en Obama í fylkjum. Nokkurra vikna jafnur slagur tekur því við næstu vikurnar hjá demókrötum.

Held að það sé nær ómögulegt að spá um hvort þeirra verði frambjóðandi demókrata núna. Þetta stendur það tæpt og enn ekki ljóst hvort fær bylgjuna í kjölfar dagsins. En samt, það var gríðarlega mikill persónulegur sigur fyrir Hillary að vinna mjög afgerandi í Kaliforníu, eftir allar kannanir síðustu dagana sem sýndi hana með tapaða stöðu þar. Hinsvegar var að sama skapi vont fyrir hana að tapa í fylkjum eins og Missouri og Connecticut. Hún hefur samt um hundrað þingfulltrúa forskot og er yfir í slagnum - tók einfaldlega stóru og verðmætu bitana í baráttunni. Það skiptir máli.

Sætasti sigur Hillary var í Massachusetts, fylki Kennedyanna og John Kerry. Bæði Ted Kennedy og Kerry studdu Obama af krafti og beittu sér mjög fyrir hann. Samt náði Hillary að sigra fylkið þeirra. Auk Kaliforníu var þetta táknrænasti sigur hennar, fyrir utan auðvitað New York og New Jersey, en það áttu allir von á að hún tæki þau auðvitað, verandi þingmaður NY. Stærsta hnossið hjá Obama var að taka suðurríkjafylki, t.d. Missouri (reyndar mjög tæpt) og auk þess Connecticut. En hann tók ekki stærstu hnossin og getur því ekki hrósað sigri á deginum. Eins og kannanir voru síðustu dagana náði Hillary að taka kvöldið, þó tæpt sé það.

John McCain er kominn mjög nærri útnefningu Repúblikanaflokksins. Hann hefði samt þurft að taka fleiri suðræn fylki til að klára baráttuna. Suðurríkjamaðurinn Huckabee vann fimm mjög mikilvæg fylki og getur haldið áfram. Romney náði líka góðum sigrum. En þegar á hólminn kemur eru þeir þó að berjast um fylgið lengst til hægri á meðan að McCain situr einn um hitt fylgið innan flokksins. McCain hefði samt þurft stuðning lengst til hægri til að ná útnefningunni í nótt; t.d. sigra í Georgíu og Tennessee. En það er enginn vafi að McCain nær þessu, spurningin er bara hversu fljótt það verði.

Í heildina er þetta enn mjög spennandi. Það fékk enginn reisupassann úr baráttunni. Hjá repúblikunum eru meginlínurnar þó skýrar. McCain er með ráðandi stöðu í baráttunni og vantar ekki mikið upp á að ná hnossinu mikla á meðan að Hillary og Obama eru rétt að byrja spennandi baráttu. Jafnt var það í nótt en Hillary náði veigameiri sigrum og náði að standa af sér bylgjuna til Obama. En nú verður áhugavert að sjá hvort nái meiri bylgju eftir ofur-þriðjudaginn. Hvort vegi meira; talning á kjörmönnum eða fylkjum.


Barack Obama
Georgía, Illinois, Delaware, Alabama, Norður-Dakóta, Utah, Alaska, Kansas, Connecticut, Colorado, Idaho, Missouri og Minnesota

Hillary Rodham Clinton
Kalifornía, New York, New Jersey, Oklahoma, Arkansas, Arizona, Tennessee og Massachusetts

------------

John McCain
Kalifornía, New York, Arizona, Missouri, New Jersey, Illinois, Connecticut, Delaware og Oklahoma

Mitt Romney
Massachusetts, Norður-Dakóta, Alaska, Colorado, Minnesota, Montana og Utah

Mike Huckabee
Arkansas, V-Virginía, Tennessee, Alabama og Georgía

mbl.is Clinton vann sæta sigra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hillary Clinton og John McCain sigra í Kaliforníu

John McCain og Hillary Rodham ClintonAllar helstu sjónvarpsstöðvarnar í Bandaríkjunum spáðu því nú á sjötta tímanum að John McCain og Hillary Rodham Clinton myndu sigra í forkosningunum í Kaliforníu, sem var stærsta hnossið á ofur-þriðjudeginum og mikilvægur áfangi í útnefningaferlinu. Hillary vinnur þar mikinn sigur á skoðanakönnunum, en margar þeirra nýjustu gerðu ráð fyrir sigri Obama í fylkinu, en hún virðist hafa unnið sannfærandi sigur.

Óvíst er þó enn hvernig þingfulltrúar skiptast, en þetta er ekki fylki þar sem sigurvegarinn tekur allt. En Kalifornía er eitt sterkasta vígi demókrata og það að taka fylkið er mikill móralskur sigur fyrir Hillary eftir harða baráttu, enda var staðan þannig síðustu dagana að Obama væri að raka að sér fylgi í fylkinu, en hann hefur greinilega verið ofmetinn þar. Kannski sést þarna vel Bradley-heilkennið margfræga, sem kennt er við þeldökka borgarstjórann sem mældist vel í könnunum en vann ekki er á hólminn kom.

Sigurinn er mjög mikilvægur fyrir McCain sem með því hlýtur alla 173 þingfulltrúa fylkisins og færist sífellt nær útnefningu flokksins. Það er orðið óhugsandi í sjálfu sér annað en að hann verði forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins í nóvember og þá hann hafi ekki enn náð fulltrúafjöldanum hefur hann tekið stærstu fylkin í körfunni á þessum ofur-þriðjudegi og er kominn langleiðina að markmiðinu mikla. Fyrir átta árum tapaði hann forkosningunum hjá repúblikunum fyrir George W. Bush á ofur-þriðjudegi. Nú er hann með pálmann í höndunum og fær á áttræðisaldri tækifærið til að leiða flokkinn.

Staðan eftir ofur-þriðjudaginn er í heildina með þeim hætti að enginn frambjóðandanna fékk rothögg og þau eru öll enn í slagnum. Samt hafa línur skýrst nokkuð. McCain hefur konungstign í flokki sínum. Sumir hafa ekki enn áttað sig á því þar og vakna brátt upp við það - hvernig þeim gangi að sætta sig við það er svo annað mál. Obama og Hillary eru í jafnri baráttu. Það er þó mikilvægt fyrir Hillary að hafa sigrað í Kaliforníu og New York - henni tókst að vissu marki að stöðva stórsókn Obama. Enn er allt opið þar og baráttan stendur þar allavega einhverjar vikur enn.

Ofur-þriðjudagurinn er æsispennandi fyrir alla sanna áhugamenn um stjórnmál. Hann olli sannarlega ekki vonbrigðum að þessu sinni. Eftir stendur að McCain er orðinn nokkuð öruggur - Huckabee og Romney eru að splitta fylginu lengst til hægri. Þeir eru að færa McCain þetta endanlega ofan á alla stóru sigrana í dag. Enda brosti sá gamli breitt í Phoenix í kvöld. Hillary fékk latínófylgið og stuðning hvítra og kvenna sem skipti máli í Kaliforníu og Obama virðist með blökkumennina og ungt fólk traust með sér.

Yndislegt að finna kraftinn í kosningunum, það eru líka breytingar í loftinu. Bush-tíminn virðist brátt að baki, hvernig sem fer úr þessu, þar sem nýjir tímar virðast framundan meðal repúblikana og demókratar bjóða nýja sýn. Enginn fékk farmiðann alla leið á þessum degi en samt vekur athygli hvað þetta var traustur sigur hjá McCain og Hillary í gullna fylkinu. Það er freistandi að velta því fyrir sér hvort að þau, vinnufélagarnir og vinirnir í öldungadeildinni, muni fara alla leið í aðalslaginn í nóvember.

Það verður nú spurt að því hvort Hillary eða Obama nái mestum byr í kjölfar þessa ofur-þriðjudags. Bæði náðu þau að sigra í fjölda fylkja um gervöll Bandaríkin og hvorugt þeirra var afgerandi sigurvegari, þó að Hillary hafi vissulega náð merkilegri sigrum með því að taka þau hin stóru. Nú þegar að McCain er orðinn allt að því öruggur um útnefninguna er spurt um hversu lengi fyrsta konan og fyrsti blökkumaðurinn með alvöru forsetadrauma sláist um að mæta honum í nóvember.


Jöfn barátta Hillary og Obama - McCain á siglingu

Obama og Hillary Nú þegar að kjörstöðum hefur verið lokað í Kaliforníu, og beðið er eftir því hvernig pólitíska landslagið verður í gullna fylkinu, stærsta hnossi ofur-þriðjudagsins, er ljóst orðið að Hillary Rodham Clinton og Barack Obama berjast jafnri og spennandi baráttu um útnefningu demókrata á meðan að John McCain drottnar yfir hjá repúblikunum með mikilvægum sigrum í fylkjum þar sem fjöldi þingfulltrúa eru valdir. Er orðið nær öruggt að hann vinni útnefninguna.

McCain á Rudy Giuliani auðvitað mikið að þakka, vann góða og afgerandi sigra í New York og New Jersey með afgerandi stuðningi hans. Hann tók svo áðan auðvitað heimafylkið sitt Arizona. Huckabee hefur nú sigrað í Georgíu, stendur sig vel í suðrinu á meðan að Romney hefur sigrað í fimm fylkjum. Hillary vann merkilegan sigur í Massachusetts, vígi Ted Kennedy og John Kerry, en þar liggja rætur Kennedy-fjölskyldunnar eins og allir vita. Þetta er sætur sigur fyrir Hillary eftir allt sem á undan er gengið sérstaklega stuðningsyfirlýsingu Kerrys við Obama í síðasta mánuði.

Obama hefur staðið sig vel í kvöld, náð góðum árangri í suðrinu og í traustum demókratafylkjum eins og Connecticut og Minnesota. Hann hefur unnið ellefu fylki og á góðan möguleika á útnefningunni. Það er ekkert búið þarna og baráttan heldur áfram á fullu á meðan að McCain hefur allt að því hlotið kóngstign í repúblikanaslagnum. Þó að Romney og Huckabee beri sig mannalega og telji sig eiga einhvern séns er vandséð hvernig þeir geti snúið stöðunni við, þrátt fyrir að hafa tekið fimm fylki hvor. Reyndar getur Huckabee brosað suðrænu brosi í kvöld, en það er nú bara þannig að sértu úr suðrinu og getir ekki sigrað þar ertu búinn að vera.

Það er þó alveg ljóst að muni McCain sigra í Kaliforníu er hann orðinn óstöðvandi. Huckabee má reyndar eiga það að hann stóð sig vel í suðrinu og sýndi vel að hann getur sigrað. Muni Romney ekki sigra í Kaliforníu er vandséð hvað hann ætlar sér að gera meira með framboðinu, þó næga peninga eigi. Og á Huckabee peninga í langan slag í viðbót? Er kannski Huckabee byrjaður að stefna á að verða varaforsetaefni McCain? Ekki nema von að spurt sé.

Hér er listi yfir stöðuna í fylkjunum þar sem úrslit eru ljós og hverjir hafa náð að sigra. Súmmeruð staða mála áður en tölurnar frá Kaliforníu fara að berast. Það eru tafir á því að línur skýrist þar og svartsýnustu menn tala um að það ráðist ekki fyrr en með hálftíu-morgunkaffinu! Jahá.....


Barack Obama
Georgía, Illinois, Delaware, Alabama, Norður-Dakóta, Utah, Kansas, Connecticut, Colorado, Idaho, Missouri og Minnesota

Hillary Rodham Clinton
Oklahoma, Arkansas, Arizona, Tennessee, New York, Massachusetts og New Jersey

------------

John McCain
New York, Arizona, Missouri, New Jersey, Illinois, Connecticut, Delaware og Oklahoma

Mitt Romney
Massachusetts, Norður-Dakóta, Minnesota, Montana og Utah

Mike Huckabee
Arkansas, V-Virginía, Tennessee, Alabama og Georgía

McCain að ná útnefningunni - spenna demókrata

John McCainÞað er svaðalega spennandi að fylgjast með tölunum streyma inn um gjörvöll Bandaríkin á ofur-þriðjudeginum. Mikið fjör. John McCain er að ná útnefningu repúblikana; hefur tekið Connecticut, Illinois, Delaware og New Jersey nú þegar og vann rétt í þessu sigur í New York. Rakar að sér þingfulltrúum og er kominn langleiðina. Það bendir flest til þess að suðrið ráði ekki úrslitum þar - sigri McCain í Kaliforníu er þetta í raun búið.

Hjá demókrötum er mikil spenna. Obama hefur tekið heimafylkið Illinois og vann um miðnættið góðan sigur með stuðningsbylgju blökkumanna í Georgíu, hefur auk þess unnið Delaware. Hillary Rodham Clinton sigraði í New York með yfirburðum (enda þingmaður þar), tók New Jersey og hefur sigrað í suðrinu; Oklahoma, Arkansas (þar sem hún var ríkisstjórafrú árum saman) og Tennessee. Og hún var rétt í þessu að taka Massachusetts, fylki Kennedy-anna og John Kerry! Slagur demókrata er fjarri búinn og spennan leiftrandi, þvert á það sem er að gerast hjá repúblikunum.

Auk þessa hafa svo auðvitað Mitt Romney og Mike Huckabee unnið heima í Massachusetts og Arkansas, en þeir hafa báðir verið ríkisstjórar þar. Auk þessa var Huckabee búinn að taka Vestur-Virginíu eins og fyrr segir og vann Alabama áðan (engin tíðindi þar fyrir suðurríkjamanninn í sjálfu sér). Baráttan er hörð í Georgíu hjá repúblikunum og ekkert ljóst enn. Romney virðist ekki vera að

Óvissa er enn yfir mörgum fylkjum og nóttin rétt að byrja - fjörið heldur áfram!


Obama byrjar nóttina með sigri - háspenna í USA

Hillary, Obama og McCainÍslenskum sprengidegi er lokið, en ofurstuðið á þeim stóra kjördegi er þó rétt að byrja vestanhafs þar sem úrslit í yfir 20 fylkjum eru byrjuð að tikka inn. Barack Obama tekur Georgíu sannfærandi, með miklum stuðningi blökkumanna, í takt við kannanir. McCain, Romney og Huckabee eru nær jafnir í fylkinu og ekki víst um úrslitin. Suðurríkjamaðurinn Huckabee verður að sigra þar og McCain treystir á sigur, enda studdu báðir öldungadeildarþingmenn repúblikana í fylkinu hann.

Þetta er lífleg kosninganótt, forsmekkur að því sem koma skal, spennandi kosningahasar sem startar í raun veigamesta hluta baráttunnar, alvöru slag þeirra sem eiga alvöru von á Hvíta húsinu. Kosning um allt land. Frá þessari stundu skiptir sigur í fylkjum ekki aðalmáli heldur það eitt að safna þingfulltrúum á flokksþingin. Klárist slagurinn ekki í nótt í báðum flokkum, eins og gerðist á ofur-þriðjudegi fyrir átta árum þegar að Gore og Bush kláruðu sín mál og hófu spennandi einvígi sitt sem varð hið mest spennandi í bandarískri stjórnmálasögu endar þetta með þingfulltrúatalningu þar sem þetta getur tekið sinn tíma.

Nóttin hófst nú á miðnætti í Georgíu. Kjörstaðir loka í Connecticut, Illinois, Massachusetts, New Jersey, Delaware, Alabama, Missouri, Tennessee og Oklahoma klukkan eitt að íslenskum tíma og klukkan hálf tvö í Arkansas. Klukkan tvö munu línur fara að skýrast með lokun kjörstaða í Arizona, Colorado, Kansas, Minnesota, Nýju Mexíkó og svo stærsta hnossið sem er auðvitað sjálf New York. Klukkan þrjú er komið að Idaho, Norður Dakóta og Utah. Stærsta hnoss næturinnar er Kalifornía en þar loka kjörstaðir klukkan fjögur. Í Montana er kjörstöðum lokað klukkan fimm og í Alaska klukkan hálf sex.

Vestur-Virginía kláraði sín mál, fyrst allra fylkja, í kvöld. Huckabee tók fylkið, eftir að hafa orðið undir fyrir Romney í fyrri umferð. Stuðningsmenn McCain studdu þá Huckabee og tryggðu honum sigurinn og alla kjörmennina. McCain veit sem er að þetta er einvígi hans við Romney og með þessu getur hann blokkað hann með þeim hætti að eftir er tekið.

Þetta er því spennandi nótt og auðvitað er vakað eftir úrslitum, nema hvað.


mbl.is Obama sigraði í Georgíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mun Obama láta drauma dr. King rætast?

Barack Obama Þegar að blökkumannaleiðtoginn dr. Martin Luther King lést fyrir fjórum áratugum átti hann sér draum um samfélag þar sem litaraft skipti ekki máli og þeldökkir hefðu sömu tækifæri í lífinu og hvítir. Sú barátta kostaði hann lífið. Svo gæti farið að Barack Obama láti drauma baráttumannsins frá Atlanta rætast í dag, á ofur-þriðjudegi í Bandaríkjunum, þegar að kosið er um allt land um meirihluta þeirra þingfulltrúa sem velja frambjóðanda Demókrataflokksins á flokksþingi í Denver í haust.

Það er alveg ljóst að sigri Barack Obama í forkosningunum í Kaliforníu, eins og sumar spár gefa sterklega til kynna, hefur blökkumaður þegar unnið stærsta sigur sinn í bandarískum stjórnmálum. Ekki einu sinni dr. King hefði látið sér detta í hug þegar að hann talaði um draumsýn sína í Washington á sjöunda áratugnum að það gæti gerst í upphafi nýrrar aldar. Flestir áttu eflaust von á að sú barátta tæki lengri tíma að blökkumaður ætti raunhæfa möguleika á Hvíta húsinu, þó að handritshöfundar hafi gert blökkumanninn Palmer að forseta í hasarþáttunum 24 í upphafi áratugarins.

Hann hefur rakað að sér stuðningi síðustu dagana úr öllum áttum. Ethel Kennedy ákvað að styðja Obama með þeim orðum að hann væri eini maðurinn sem hefði komið til sögunnar í bandarískum stjórnmálum í áratugi sem minnti sig á eiginmann sinn, Robert F. Kennedy, og Maria Shriver ákvað að rjúfa hlutleysi sitt sem demókrata við hlið repúblikans, eiginmanns síns, á ríkisstjórastóli í Kaliforníu með því að styðja Obama. Og Caroline Kennedy Schlossberg sagðist styðja hann því að í honum sæi hún hugsjónir og kraft föður síns. Þær tóku sömu afstöðu og Ted frændi, sem ræður ferðinni í Kennedy-fjölskyldunni og hafði markað línur fyrir börn fallinna bræðra sinna, sem hann gekk í föðurstað.

Barack Obama er fersk pólitísk stjarna. Hann kom, sá og sigraði á flokksþingi Demókrataflokksins í Boston í júlí 2004 með glæsilegri ræðu. Gleymi þeirri ræðu aldrei, enda var hún að mínu mati stærstu tíðindi þess þings, þvílík stjörnuframmistaða. Það fundu allir fyrir því að þar fór sannkölluð vonarstjarna. Enda er hann alvöru, það má kannski deila um hvort að hann sé ekta algjörlega í gegn en hann svo sannarlega hljómar og virkar þannig á alla sem hlusta á hann. Hann er ekki bara stjórnmálamaður, hann er einstakur pólitískur predikari sem nær til fólks og hefur áhrif á það. Hann er stjarna þessa forkosningaslags hvort sem hann nær að sigra Hillary eður ei.

Eðlilega finnst mörgum demókrötum Barack Obama vera ferskur valkostur, unglegur og heillandi, og hugsa ósjálfrátt til Kennedys forseta, sem heillaði bandarísku þjóðina fyrir hálfri öld er hann hóf forsetaframboð sitt og naut mikils stuðnings allt þar til að öllu lauk svo snögglega er hann féll fyrir morðingjahendi í Dallas á nöprum föstudegi sem markaði mikil þáttaskil í bandarískum stjórnmálum. Ólíkt er vissulega með Obama og Kennedy að sá síðarnefndi hafði að baki setu í bæði öldungadeildinni og fulltrúadeildinni í 13 ár er hann varð forseti en Obama á aðeins að baki þriggja ára setu í öldungadeildinni.

Hann er því talinn reynsluminni og það er einmitt það sem margir nefna sem helstu veikleika hans. Margir segja það ekki skipta máli, hann hafi ferskleikann sem flokkinn vanti og hafi vantað frá gullaldardögum Bill Clinton fyrir einum og hálfum áratug er hann komst í Hvíta húsið á stjörnuljóma, snúnum frösum og gullnum spinntöktum. Það verða stórpólitísk tíðindi nái hann, eftir allt sem á undan er gengið og hina löngu bið eftir pólitísku tækifæri Hillary, að stela frá henni pólitísku tækifæri ferils hennar; aðgöngumiða flokksins að Hvíta húsinu og að hefja seinni hluta Clinton-tímabilsins.

Sigri Obama í Kaliforníu í dag hefur draumur dr. Martins Luthers Kings í raun þegar ræst. Þá er sannað að litaraft skiptir ekki lengur máli, allir hafa jöfn tækifæri til að láta að sér kveða og það sem meira er að með því er staðfest að blökkumaður getur orðið valdamesti maður heims. Það eitt og sér verður stærsti sigur blökkumanna frá því að King leiddi þá með táknrænni draumsýn sinni í leiftrandi ræðu. En Obama hugsar lengra og getur farið lengra náist sá tímamótasigur í dag.

mbl.is Obama með forskot í Kaliforníu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

24 stundir er að verða besta dagblað landsins

Óli Steph Er ekki hissa á því að 24 stundir sé að vaxa í lestri. Mér finnst það að verða besta dagblað landsins. Les það fyrst á morgnana og hef gaman af. Finnst það vera ferskt og vera að gera hlutina fagmannlega og umfram allt vel. Ólafur Þ. Stephensen hefur staðið sig vel sem ritstjóri, eins og við var að búast og er að gera blaðið að stórveldi í blaðalitrófinu hérna heima.

Það sást vel að Fréttablaðið svaraði tilkomu 24 stunda í stað Blaðsins með mikilli auglýsingaherferð og ef marka má stöðuna mega þeir fara að passa sig með toppsætið. Þetta blað er í mikilli sókn og ég tel að þessi lestraraukning marki ekki hápunkt þeirrar bylgju sem það er að fá með sér eftir breytinguna á blaðinu með nýju nafni og umgjörð.

Það hefur mikið verið spáð í hvort að Ólafur verði eftirmaður Styrmis á Mogganum, en hann hættir í október - verður sjötugur í mars eins og flestir vita. Hann yrði mjög vænlegt ritstjóraefni þar og er að sýna með verkum á 24 stundum að hann kann sitt fag. Það kannski fer svo að hann vilji ekkert fara og halda áfram með góð verk á þeim miðli sem er í sókn.

mbl.is Lestur á 24 stundum eykst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vinnusamar köngulær - pödduhræðslan fræga

Köngulær Mér hefur alla tíð verið meinilla við köngulær og þær verða ekki lífseigar í návist minni, svo mikið er víst. Það eru ansi margir sem kippast við þegar að köngulær eru annars vegar og þola ekki skordýr mjög vel. Sama má svosem segja um mig, þoli ekki mjög vel að hafa skordýr í kringum mig og ræðst til atlögu gegn þeim frekar hratt þegar að ég verð var við þær, en ekki er ég svosem hræddur við þær. Þó er alltaf eitthvað við köngulær sem verður þess valdandi að maður kippist aðeins við.

Ég hef séð ótrúlega margar kvikmyndir þar sem köngulær hafa komið við sögu og ekkert kippt mér svosem upp við það. Þó er ein mynd þar sem könguló tókst að kippa mér aðeins til og ég varð svona aðeins nervös. Það var Lord of the Rings: The Return of the King, hin margverðlaunaða óskarsverðlaunamynd og lokapunktur trílógíunnar ógleymanlegu. Þar er risaköngulóin Shalob svo sannarlega í stóru hlutverki um miðja myndina og eltingarleikur hennar við Fróða er bæði spennandi og nett ógnvekjandi, enda er köngulóin miskunnarlaus og vel úthugsuð.



Aðrar myndir um skordýr sem vekja alltaf tilfinningar eru t.d. The Giant Spider Invasion, Arachnophobia, Mimic (skelfilega spennandi skordýramynd - risapöddurnar gleymast ekki svo glatt), Them (nett scary :), Mothra (skáldleg og merkilega falleg innst inni), Eight Legged Freaks (þessi gleymist ekki fyrstu næturnar), Tarantula (nema hvað :), The Monster that Challenged the World (ekta skordýrakölt), Starship Troopers (sannarlega ekki gamanmynd), Tremors (gleymi henni aldrei hehe), The Deadly Mantis og The Wasp Women. Þær eru miklu fleiri en þessar koma fyrst upp í hugann. Slær þó enginn þeirra út Shalob í LOTR: ROTK held ég.

Skordýr eru hluti tilverunnar. Samt skelfa þær fólk, mismikið þó. Sumir leika sér að hræðslunni í nett pirrandi kvikmyndum, bækur hafa verið skrifaðar og heimildarþættir gerðir. Gleymi aldrei löngum þætt fyrir nokkrum árum þar sem Attenborough skannaði hugarheim köngulóanna. Ógleymanlegur þáttur. Sá maður er reyndar algjör snillingur en hann fór ansi nærri því að toppa sig í þeirri skordýraþáttaröð.

En sennilega fer aldrei hræðslan í huga fólks. Það er þó misjafnt hvernig fólk lifir með hræðslunni. Ráðlegg þeim sem eru verst haldnir fóbíunni að horfa alls ekki á fyrrnefndar myndir. Það gæti orðið svolítið nastý kvöldstund yfir þeim með popp og kók. Þá er nú betra að horfa frekar á góða pöddulausa spennumynd eða rómantískan sykursnúð, ekki satt??.

mbl.is Tarantúlan reyndi að flýja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bankarán brúnkulitaða FM-hnakkans upplýst

Frá handtöku Það hefur aðallega verið hlegið að brúnkulitaða FM-hnakkanum Ásgeiri Hrafni Ólafssyni, sem framdi bankaránið í Lækjargötu í gær, enda var það sem betur fer svo illa skipulagt að hann ásamt vitorðsmönnum sínum voru allt að því gripnir með buxurnar á hælunum. Ásgeir Hrafn var reyndar gripinn eftir brúnkumeðferð og klippingu í Garðabæ. Verður hér eftir nefndur brúnkuræninginn sennilega.

Annars vantar Ásgeiri Hrafni ekki reynslu í ránum; hafandi bæði rænt 10-11 verslun og Select. En eitthvað hefur honum gengið illa í þessu ráni og löggan rakti slóð hans á aðeins örfáum klukkutímum og allt hafði verið upplýst fyrir síðdegið. Vel gert hjá lögreglunni.

Það er ekki nema von að gárungarnir segi að þetta rán sé best súmmerað með því að gefa því eina öxi.

mbl.is Bankaránið upplýst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kuldalegir vetrardagar

Það hefur verið vetrarríki á Norðausturlandi síðustu dagana. Það segir allt sem segja þarf þegar að maður verður að grafa sig í fönn til að eiga lífsvon og þegar að lítil stelpa er í lífshættu hér á Akureyri og fær yfir sig snjóhengu ofan af þakinu heima. Blessunarlega fór vel í báðum tilfellum, Guðs mildi sannarlega. Hér snjóaði og snjóaði á föstudag og laugardag og kuldinn var nístandi. Finnst ég í fyrsta skipti frá snjóárinu 1995 vera að upplifa alvöru vetur með kulda og fönn, fönn, fönn.

Þetta er allavega mesta vetrarríki sem ég hef upplifað síðan að ég flutti í Þórunnarstrætið fyrir fimm árum. Það var nóg að gera við að moka sig hreinlega út á laugardag og sunnudagurinn fór í að moka upp bílinn og stéttina hérna úti, svona svo að manni liði ekki eins og snjóhúsabúa hreinlega. Við höfum eiginlega ekki upplifað vetur með stóru vaffi síðasta áratuginn og verið ótrúlega heppin, eiginlega haft sælutíð að vetri miðað við það sem búast má við hér nyrst í Ballarhafinu.

Ætla samt að vona að það róist aðeins yfir þessu núna. Samt er þetta hressileg upplifun, kannski er betra að hafa vetur þegar að hann stendur samkvæmt tímatalinu og fá frekar brakandi gott sumar. Heiðarlegt mat. Það er allavega á við væna ískalda vatnsfötu að upplifa svona tíð með öllum kostum og göllum.

mbl.is Gróf sig í fönn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hillary grætur, McCain brosir og Obama leiftrar

Hillary, Obama og McCainFrambjóðendur eru nú á fleygiferð um Bandaríkin að afla sér stuðnings á hinum spennandi ofur-þriðjudegi, þar sem kosið er í yfir tuttugu fylkjum. Hillary Rodham Clinton grét í Connecticut í dag til að sýna tilfinningar og reyna að ná aftur svipaðri bylgju og í New Hampshire til að stöðva velgengni Barack Obama síðustu dagana, en hann hefur verið á miklu flugi, virðist vera að raka fylgi John Edwards að sér og öðlast stjörnuljóma með stuðningi nær allrar Kennedy-fjölskyldunnar.

Það er eðlilegt að tilfinningar séu í þessu. Morgundagurinn er make or break-dagur í bandarískum stjórnmálum. Oftast nær hafa línur þar markað stöðuna í flokkunum hvað varðar útnefninguna. George W. Bush og Al Gore náðu báðir útnefningu flokka sinna á ofur-þriðjudegi 2000 og John Kerry árið 2004. Tvísýnn slagur er meðal demókrata á meðan að flestir búast við að John McCain rúlli þessu endanlega upp hjá repúblikunum. Kannanir sýna hann með helmingsforskot á Mitt Romney. Eftir sigra í Flórída, New Hampshire og Suður-Karólínu er hann nær óstöðvandi.

Það bendir flest til þess, eftir atburðarás síðustu daga, að harður og erfiður slagur sé framundan hjá demókrötum á meðan að repúblikanar klára sín mál og geta horft fram til kosninganna eftir níu mánuði. Það virðist vera að hvorki Hillary né Obama nái afgerandi stöðu t.d. í Kaliforníu og splitti bróðurlega með sér þingfulltrúum fylkisins. Fyrir nokkrum dögum var Hillary með unna stöðu í flestum stóru fylkjunum en allt í einu er hún orðin jöfn Obama í Kaliforníu, Missouri og það sem meira er, sjálfri New Jersey, en það hefði enginn trúað því fyrir skömmu að hún þyrfti að heyja alvöru slag við Obama svo nærri heimavelli í New York. En sú er raunin.

Á meðan að Hillary grætur og Obama leiftrar af krafti og með stjörnuljómann í farteskinu brosir John McCain breitt, er að leika gömlu góðu reyndu týpuna, aka einskonar Ronald Reagan, og er að ná útnefningunni. Af því leiðir að hann getur slappað af á meðan að Hillary og Obama bíta í hvort annað og línur verða harðskeyttar þar. Þvert ofan á öll falsbros Hillary og Obama í Kodak-höllinni um daginn er barist upp á líf og dauða og með öll vopn í farteskinu. Hillary og Bill þekkja ekki orðið tap í orðabók sinni og berjast allt til enda og hún mun aldrei taka varaforsetaútnefningu. Þar verður ekkert slappað af.

Það stefnir því í demókrataslag, þvert ofan á margra spár fyrir nokkrum dögum, þar sem flestir töldu jafnvel ofur-þriðjudag klára mál beggja flokka. Hillary kreistir fram tár til að stöðva hinn leiftrandi Kennedý-íska Obama og sýnir tilfinningar. Það hefur dugað áður og gæti dugað á morgun til að merja fram þýðingarmikinn sigur, enda er ljóst að ljómi þessa dags skiptir máli. Því er öllu beitt til í baráttunni.

Þetta verður spennandi dagur og vonandi munu línur skýrast. Það verður þó kaldhæðnislegt ef McCain getur farið heim og slappað af og unnið sína strategíu meðan að demókratar berjast blóðugri sögulegri baráttu blökkumanns og konu um flokksútnefningu fram á vorið og settlað flokkskjarnann sem enn er að sætta sig við að hann fronti flokkinn.


mbl.is Spennandi forkosningar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ræningjar fóru í brúnkumeðferð og klippingu

Af vettvangi Það verður ekki sagt annað en að ræningjarnir í Lækjargöturáninu séu þeir seinheppnustu mjög lengi. Tveir þeirra sem stóðu að ráninu munu hafa verið handteknir eftir brúnkumeðferð og klippingu í Garðabæ. Það er kannski spurning hvort að þeir verði nefndir brúnkuræningjarnir eða jafnvel vel klipptu ræningjarnir?

Að öllu gamni slepptu að þá er kannski spurning hvort að samfélagið okkar sé of lítið til að svona glæpur geti komist upp. Sumir hafa sagt það. Er ekki fjarri lagi. Við lifum sem betur í samfélagi þar sem erfitt er að leynast og komast undan réttvísinni, eða við vonum allavega að það sé málið. Annars er greinilegt að þeir skipulögðu sem betur fer ránið svo illa að heildarmyndin small nokkuð vel saman.

En það væri annars gaman að vita af hverju ræningjarnir fóru í brúnkumeðferðina og klippinguna? Var það til að þekkjast ekki eða voru þeir bara að skemmta sér með peninginn? Ekki vantar spurningarnar. Þeir hafa verið skúffaðir að mæta löggunni í kjölfar brúnkunnar, ekki hægt að segja annað.

mbl.is Fjórða ræningjans leitað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Illa skipulagt bankarán með öxi úr BYKO

Frá vettvangi Eftir því sem heildarmyndin í bankaráninu í Lækjargötu skýrist betur sést hversu það var í raun illa skipulagt og það var komið upp um þá sem rændu bankann á aðeins örfáum klukkustundum. Og nú hefur ránsfengurinn verið endurheimtur og öxin, sem keypt var í BYKO í morgun, fannst skammt frá bankanum. Þannig að málið er upplýst og reyndist ekki mikil ráðgáta.

Það er greinilegt að þeir sem skipulögðu þetta hafa greinilega ekki lagst í bestu bækur eða kvikmyndir um bankarán og hafa eitthvað flaskað á því að gera þetta fagmannlega. Gárungarnir hljóta að gefa þessu ráni bara eina öxi, verðskuldar varla meira. En kannski er löggan svona í og með klár, virðast hafa staðið sig vel en það virðist kannski ekki hafa verið erfitt að rekja slóð þessara manna og rekja svo upp þráð atburðarásarinnar og fá fram heildarmyndina.

Í heildina er þetta eitt þessara mála þar sem greinilega hefur verið farið af stað án þess að hafa vel skipulagt framhald á ráninu. Strax farið að tala um að þetta hafi verið útlendingar, án þess að varla verði séð að það sé aðalatriði málsins. En samt, það er fyrir öllu að peningarnir hafi nást og mennirnir hafi gleymt að horfa á vandaðar bankaránsmyndir og flaskað á skipulagningunni.

mbl.is Öxin fannst og þýfi endurheimt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þrír handteknir - bankarán upplýst?

Frá handtöku Það er ekki hægt að segja annað en að löggan hafi unnið vel við að upplýsa bankaránið í Lækjargötu. Strax búið að handtaka þrjá menn og vonandi verður ljóstrað upp um alla söguna á bakvið ránið fyrr en síðar. Myndræn var handtaka mannsins við Hjálpræðisherinn en fjölmiðlar voru auðvitað á staðnum þegar að hann var tekinn og þetta sýnt í hádegisfréttum Stöðvar 2.

Skil samt ekki í því af hverju það er trúnaðarmál hversu miklu var stolið úr bankanum. Finnst að það ætti að opinbera þann þátt málsins, enda skil ég ekki hversvegna það ætti að vera leyndarmál. Annars er fólkið í útibúinu auðvitað í sjokki, enda óskemmtileg lífsreynsla að lenda í. Þurfa að jafna sig á þessu. Nýbúin að vera öryggisæfing þarna en það er greinilegt að eitthvað þarf að hugsa öryggismálin almennt upp á nýtt.

Annars skilst mér að það eigi að rífa þennan banka bráðlega og þar verða reist hótel. Þetta verður því væntanlega síðasti hasarinn þarna í bráð. Annars var bankaútibúið í Lækjargötu auðvitað vettvangur hins margfræga Skeljungsráns árið 1995, en það var upplýst seint og um síðir fyrir nokkrum árum.

mbl.is Tveir í haldi lögreglu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband