15.3.2008 | 13:55
Hörð átök Hillary og Obama - sex vikna pása
Hef satt best að segja ekki nennt að skrifa mikið um forkosningaslag demókrata síðan á míní ofur-þriðjudegi 4. mars, enda ljóst með sigrum Hillary Rodham Clinton þá að ekkert yrði ráðið í þessum harða og spennandi slag fyrr en í fyrsta lagi í Pennsylvaníu 22. apríl. Úrslit í Mississippi og Wyoming höfðu nær ekkert að segja og ekki spennandi að fylgjast með, enda vitað að Obama myndi sigra þar og bíða þyrfti alvöru átaka í Pennsylvaníu.
Síðustu tíu dagana hefur ekkert breyst í þessu valdatafli nema það að Hillary fékk tækifæri til að fara til Pennsylvaníu sem trúverðugur frambjóðandi. En hún þarf að sigra þar til að eiga einhvern möguleika áfram. Kannanir benda til þess að hún muni sigra þar. Það er alveg ljóst að nái Hillary að sigra í forkosningunum í Pennsylvaníu mun þessi slagur standa fram í júnímánuð hið minnsta og jafnvel allt fram að flokksþinginu í Denver í ágústlok. Hafi Hillary vonarneista eftir Pennsylvaníu munu Clinton-hjónin ekki hika við að fara með slaginn alla leið þangað. Nái Hillary að taka Pennsylvaníu með hinum stóru ríkjunum er þetta slagur upp á hvern þingfulltrúa fram að þinginu.
Það er að verða æ augljósara að hvorugur frambjóðandinn mun ná lágmarkinu til að tryggja sér útnefninguna nema með því að hafa ofurþingfulltrúana svokölluðu, kjörna forystumenn og embættismenn innan flokksins á sínu bandi. Horft er til Michigan og Flórída, þar sem forkosningar voru ógiltar, og öllum ljóst að þar verður annaðhvort að kjósa að nýju eða gera eitthvað til að láta þingfulltrúana þar verða virka á flokksþinginu. Í svo jafnri stöðu má Demókrataflokkurinn ekki við því að láta stór ríki sitja hjá, eða einhver ríki ef út í það er farið. Það er t.d. algjör skandall ef atkvæði frá Flórída munu ekki skipta máli við val forsetaefnisins.
Núningur er að verða æ meiri á milli frambjóðendanna. Eðlilegt eftir því sem ólgan eykst meira, einkum nú þegar að repúblikanar hafa valið forsetaefni sitt og hörð átök demókrata aðeins í fréttum. Geraldine Ferraro, sem er eina konan í forystu forsetaframboðs stóru flokkanna í sögu Bandaríkjanna, sem varaforsetaefni Walter Mondale árið 1984, lét hörð orð flakka um Obama í vikunni og hætti í forystu framboðs Hillary. Lykilráðgjafi Obama í utanríkismálum kallaði Hillary skrímsli og varð að hætta og nú kemur þetta frá fjölskylduklerki Obama-hjónanna og Obama reynir að sverja tal hans af sér. Harkan er áberandi í slagnum.
Nú tekur við sex vikna pása í demókrataslagnum. Það er langt í forkosningarnar í Pennsylvaníu. Oft er sagt að vika sé langur tími í pólitík, sex vikur geta verið sem eilífð í svona átökum. En á meðan að Hillary og Obama eyða fúlgum fjár í að slást um útnefninguna hefur McCain náð útnefningu repúblikana, safnar peningum í kosningabaráttuna síðla árs, velur varaforsetaefni og sameinar repúblikana alla að baki sér. Þvílíkur munaður.
![]() |
Sóknarprestur Obama veldur uppnámi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.3.2008 | 22:02
Spennandi viðureign - MR sigrar í bráðabana
MA má þrátt fyrir tapið mjög vel við una í sjálfu sér, þó það sé skelfilega vont og sárt að tapa að sjálfsögðu. Það var eiginlega afrek í stöðunni 26-19 fyrir MA að snúa við töpuðu spili í það að jafna og eiga raunhæfa möguleika á að sigra í bráðabana. Konni var bjargvætturinn þegar að honum tókst að svara spurningunni um Sovétleiðtogana og það hefur eflaust verið öskrað mikið í heimahúsum hér á Akureyri þegar að það tókst.
Að sama skapi voru það gríðarleg vonbrigði, gígantísk satt best að segja, þegar að Konna mistókst að giska á rétta hljómsveit í bráðabana, leggja allt undir Black Sabbath en bíða aðeins sekúndubrot og komast þá auðvitað að því að spurt var um Duran Duran. En það er þannig þegar að komið er á þennan stað í keppnina er keppt um að vera fyrstur á bjölluna. Stundum skilar áhættan sér en stundum er hún afleit. Þannig fór það fyrir MA í kvöld. En þau Konni, Svala og Arna mega þó vera stolt af sínu, sérstaklega að koma skólanum í bráðabanann.
Þetta er í fjórtánda skipti sem MR sigrar í Gettu betur frá því að keppnin hófst árið 1986. Skólinn sigraði fyrst árið 1987, en síðan vann skólinn keppnina í heil ellefu ár í röð, á árunum 1993-2003, og svo aftur í fyrra. Langa sigurtímabilið var ótrúleg sigurganga, sem andstæðingum þeirra á þessu langa tímabili gramdist mjög í geði vissulega en gerði þá sigursælasta lið í sögu keppninnar. Þeir festa það enn í sessi á þessu kvöldi. Óska MR innilega til hamingju.
MR og MA voru með bestu liðin í ár, bæði sterk og satt best að segja fannst mér erfitt að spá um sigur fyrir kvöldið, þó auðvitað vonaði ég að MA tæki þetta. Nema hvað. MA stóð sig mjög vel í gegnum allt ferlið og eru varla síðri sigurvegarar í kvöld í raun. Þetta var svo tæpt að þetta gat í raun fallið á hvorn veginn sem var. En tvö glæsileg lið sem stóðu sig firnavel. En sárindi MA-inga hljóta að vera mikil, en þeir geta verið stoltir með sitt þó.
Það var reyndar andskoti súrt í broti að keppnin skyldi ekki fara fram hér nyrðra, enda áttu MA-ingar klárlega inni keppni frá því að blása varð af norðlenska keppni fyrst í sjónvarpshlutanum. Það væri gott ef að það yrði hugsað betur um þetta að ári. Finn til með Konna í kvöld, enda var það skrambi sárt að giska á vitlaust band eftir að hafa tekist að komast þó þetta langt. Eiginlega grátlegt klúður, en þetta er allt í hita leiksins og allt getur gerst.
En svona er þetta, spenna og fjör - svoleiðis á það að vera. MR sigrar í bráðabana annað árið í röð og MA þarf að sjá á eftir sigurmöguleika eftir magnaða endurkomu í tapaðri viðureign. Allavega; klárlega með skemmtilegri úrslitaviðureignum í Gettu betur-sögunni.
![]() |
MR vann eftir bráðabana |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
14.3.2008 | 16:19
Shannon Matthews finnst eftir 24 daga leit

Eftir þriggja vikna leit voru margir orðnir vondaufir en foreldrarnir héldu alltaf í vonina. Það er greinilegt að henni var rænt. Það er skelfilegt að fullorðið fólk geti verið svo kaldrifjað að ræna börnum og fara illa með þau og skilja þau við foreldra sína, vini og ættingja. Það eru mörg málin síðustu árin þar sem börnum er rænt.
Rúmt ár er liðið síðan að stelpan Natascha Kampusch fannst í Austurríki. Hún hafði verið týnd í átta ár og verið talin af. Henni var haldið á heimili vitfirrts manns og lifði mjög hrörlegu lífi. Fréttamyndirnar af vistarverum hennar í kjallara hússins sem henni var haldið fanginni í fóru um allan heim og voru sláandi. Fréttaviðtalið við Kampusch var alheimsviðburður og með ólíkindum þótti af hversu mikilli stillingu hún gat talað um lífsreynslu sína, sem var ógnvekjandi og sorgleg í senn.
Mikið er talað um kynferðislega misnotkun. Það á vissulega eftir að fá úr því skorið hvað þessi 39 ára gamli maður gerði við níu ára gamalt barn, en kynferðisleg misnotkun er því miður algengt í tilfellum sem þessum.
![]() |
Shannon Matthews fannst á lífi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
14.3.2008 | 14:34
Merkilegur dómur

Hef heyrt af dæmum þess að nemendur takist eitthvað á og einhver ólga sé vegna þess, en það eru allavega fá dæmi þess að kennari kæri forráðamann nemenda og skólann sem hún kennir í og krefjist svo hárra skaðabóta. Þetta er allavega sögulegt, og um leið sérstakt fordæmi, sem sett er með þessu.
Persónulega finnst mér þessar bótagreiðslur frekar háar og finnst þetta mál reyndar allt mjög sérstakt. Erfitt að finna einhverja sögu þar sem nemandi skaðar kennara og þeir sem að henni standi þurfi að greiða miklar bætur. Í heildina er þetta mál sem vekur umræður og eflaust hneykslan.
Þetta mál hljómar sem óraunveruleikasaga og eðlilegt að Hæstiréttur felli sitt mat á því. Verði þessi dómur staðfestur þar að mestu leyti er allavega komið merkilegt fordæmi ef kennarar telji sig verða fyrir einhverjum skaða af hálfu nemenda.
![]() |
Dæmd til að greiða kennara 10 milljónir í bætur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.3.2008 | 13:03
Sjálfskaparvíti Guðmundar í Byrginu
Það er ekki hægt að segja annað en að sjálfskaparvíti Guðmundar Jónssonar í Byrginu sé algjört. Það er kómískt að hann neiti öllum sakargiftum og reyni að telja fólki trú um að þessi stórskandall sé allur einn stór misskilningur, þegar að við öllum blasir að pottur var brotinn í Byrginu undir hans stjórn og þar var sukkað með peninga og starfsmenn stunduðu kynlíf með sjúklingum sínum.
Það hljómar ekki trúverðugt í þessu máli að Guðmundur segi málið allt á einhverjum villigötum. Það besta fyrir hann nú væri einfaldlega að fara að tala af viti og segja söguna eins og hún er frá a-ö. Það getur varla vont batnað fyrir honum. Það kostulegasta var reyndar þegar að hann ætlaði að reyna að telja fólki trú um að honum hafi verið nauðgað af stelpunni, sem var í afvötnun í Byrginu, sem hann sagði eitt sinn að hann hefði aldrei sofið hjá.
Í ljósi þess að Byrgið átti að reka sem meðferðarheimili fyrir langt leidda fikla og drykkjusjúklinga og var rekið á kristilegum grunni er þetta mikið hneykslismál og á að dæma þunga refsingu að mínu mati. Sukk á almannafé og dómínerandi kynlíf starfsmanna með sjúklingum eru hápunktar þessa sorglega máls og það þarf að koma afgerandi refsing til í þeim efnum.
![]() |
Ákæra um kynferðisbrot í Byrginu fyrir dómi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.3.2008 | 00:04
Hasar í Reykjanesbæ - sérsveitin á salernið
Þetta atvik minnir mjög vel á það, hversu brýnt er að lögreglan sé undir það búin að takast á við verkefni af ýmsu tagi, stór sem smá. Fyrir nokkrum árum þótti ekki öllum sem sitja á Alþingi mikilvægt að breyta skipulagi á yfirstjórn sérsveitar lögreglunnar til að sveitin væri ávallt til taks og sveigjanlegri en áður hefði verið. Því síður virtist skilningur á því hjá fjölda fólks þá að nauðsynlegt væri að efla sérsveitina og fjölga í henni.
Þessi staða sýnir vel hversu rétta stefnu sérsveitin hefur tekið og að hún sé vel búin fyrir ástand sem getur komið úr óvæntustu átt, rétt eins og þessi heimiliskrísa á Suðurnesjum.
![]() |
Lokaði sig inni með haglabyssu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
13.3.2008 | 23:23
Gleðidagur - Vaðlaheiðargöng á dagskrá

Með þessu er tryggt að byggðir báðu megin við Vaðlaheiðina verði eitt atvinnusvæði og ein lykilstoð álvers við Bakka verði að veruleika, en bættar samgöngur milli svæða voru klárlega lykilatriði í þeim efnum. Það eru vissulega tíðindi að innheimta eigi vegtolla og fer ekki saman við það sem Samfylkingin talaði um hér síðasta vor, en þar var talað fyrir að ríkið kostaði Vaðlaheiðargöng, eins og við munum flest öll hér.
En hvað um það, öll gleðjumst við í dag. Þetta eru mikil og góð tímamót. Ég vil hrósa Kristjáni L. Möller, samgönguráðherra, fyrir gott verk. Hann hefur staðið sig í þeim efnum við að tryggja þessi göng og við hér öll þökkum þingmanni okkar gott verk að sjálfsögðu.
![]() |
11 milljarðar í framkvæmdir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
13.3.2008 | 22:10
Sýn ekki lengur til - klénar breytingar hjá 365

Sýn í þeirri mynd sem við þekkjum hana hefur verið til í um einn og hálfan áratug. Áður en íþróttaefni drottnaði algjörlega yfir henni voru þar bíómyndir og margir ágætisþættir. Sýn stóð sig vel og síðasta misserið hefur verið Sýn 2 sem hefur verið ágæt með, þeir sem eru mest hrifnir af íþróttaefni hafa getað treyst á hana til að miðla til sín frábæru efni. Það var í sjálfu sér engin þörf á að breyta til og þessi nafnabreyting er vandræðaleg og eiginlega óskiljanleg.
Fannst það klént og skrítið þegar að Bíórásin var gerð að Stöð 2 Bíó fyrir nokkrum árum, enda var Bíórásin mjög gott heiti á stöð sem sýnir aðeins bíómyndir. Nú á Sirkus að fá sömu örlög sem Stöð 2 Extra og Fjölvarpið fær Stöðvar 2 nafnið með. Skil allavega ekki hvers vegna þetta er gert. Held að það hefði verið betra að hafa þetta óbreytt og leyfa Stöð 2 að halda sér einni og sér og hinum stöðvunum óbreyttum í leiðinni. Þetta Stöðvar 2 lúkk yfir öllum stöðvunum hjá 365 er klént, svo ekki sé meira sagt.
Finnst t.d. skondið í meira lagi að Sýn 2 eigi nú að heita Stöð 2 Sport 2. Held að þetta verði ekki lengi svona, spurning hvort að það nái árinu. Ef það nær því er það bara vegna þess að menn vilja ekki viðurkenna að hafa haft rangt fyrir sér. Sýn er því orðið að Stöð 2 Sport. Er eiginlega enn að bíða eftir að einhver segi að þetta sé brandari og þeir hjá markaðsdeild 365 hafi tekið hversdagslegt flipp yfir áhorfstölunum sem sýna fréttir Stöðvar 2 fallið af topp 20 í áhorfi.
Eitt enn; Stöð 2 Bíó er skelfilegt nafn á stöð sem ætti að heita Bíórásin. Enn verra er hversu lélegar bíómyndir eru sýndar þar. Kannski ein til tvær, í mesta lagi, myndir á sólarhring sem varið er í. Það er furðulegt metnaðarleysi hjá þessum fjölmiðlarisa að hafa ekki meiri metnað en svo að sýna nýlegt rusl á bíómyndastöð en fókuserar ekki á gamlar eðalmyndir kvikmyndasögunnar, til þess að gera þetta að stöð fyrir okkur kvikmyndaáhugafólk.
Bara varð að koma þessu á framfæri eftir skrifin um Stöð 2 Sport 2 og hvað þetta flipp allt annars heitir.
![]() |
Nafnabreytingar á sjónvarpsstöðvum 365 miðla |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
13.3.2008 | 19:30
Mogginn og myndbirtingar á bílslysum
Það bregst ekki að þegar að fjallað er um umferðarslys að þá birtist nær alltaf myndir af vettvangi hjá Netmogganum, sama hversu sorglegar aðstæður eru í slysunum. Hef alltaf talið að myndbirtingar af vettvangi umferðarslyss þjóni mjög litlum tilgangi, hef aldrei talið það skipta miklu máli að sýna bílflökin.
Kannski er það ábending til annarra að svona geti farið í umferðinni, en fyrir þá sem tengjast þeim sem slasast eða láta lífið í umferðarslysi er þetta særandi myndræn umgjörð um mikinn harmleik. Veit ekki hvort það er einhver algild regla hjá fjölmiðlum í þessum efnum. Sumir fjölmiðlar eru þó meira áberandi í þessu.
Það er alltaf þörf á að velta því fyrir sér hvað sé eðlilegt og hvað ekki í fjölmiðlun. Mér finnst svona myndbirtingar bæði óþarfar og óskiljanlegar í sjálfu sér.
![]() |
Umferðarslys í Kömbunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.3.2008 | 17:44
Hannes dæmdur til að greiða Auði fébætur
Mér finnst þessi dómur mjög harkalegur og ganga í sjálfu sér mjög langt. Fer ekki leynt með þá skoðun mína. Í raun má segja að dómurinn tjái það mat sitt að yfir 200 blaðsíður af fyrsta bindi ævisögunnar hafi brotið gegn rétti nóbelskáldsins og er greinilegt á dómsorði að rétturinn telur fyrsta bindið meingallað og ganga gegn fjölskyldu skáldsins.
Það er alveg ljóst að ævisaga Hannesar um Halldór Kiljan Laxness hefur verið umdeild frá því að áður en Hannes hóf ritun hennar og deilurnar stóðu mun lengur en frá þeirri stund er fyrsta bindið varð opinbert. Það hefur verið mitt mat að þessi þriggja binda ævisaga Laxness eftir Hannes hafi verið vönduð og vel úr garði gerð, sérstaklega annað bindið.
Hvað varðar hið umdeilda fyrsta bindi má vissulega velta því fyrir sér hvort að þar hafi verið rétt að verki staðið. Hinsvegar finnst mér þessar bætur út úr öllu korti og eiginlega setja bótakröfur á svolítið hærra plan, þar sem þolendum alvarlegra glæpa eru stundum dæmdar aðeins brot af þessari upphæð sem HHG þarf að greiða Laxness-fjölskyldunni.
Það er margfræg sú þjóðsaga að Sjálfstæðisflokkurinn hafi yfirráð yfir Hæstarétti og vinir hans ráði þar för og þeir sem þeim tengist fái þar auðvelda og góða meðferð. Sú þjóðsaga vissra aðila í samfélaginu á sennilega ekki vel við á þessum degi.
![]() |
Bótaskyldur vegna ævisögu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 17:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
13.3.2008 | 12:03
Annþór í afplánun - áralöng fangavist tekur við

Það var auðvitað afleitt að margdæmdur ofbeldismaður, grunaður um alvarleg afbrot og átti að sæta einangrun, gat leikið lausum hala á lögreglustöðinni, komist í síma, fundið reipi og síðast en ekki síst stokkið út um glugga án þess að nokkur tæki eftir því. Ofan á allt annað að þá liðu að minnsta kosti tveir tímar frá flóttanum þar til löggan áttaði sig loks á honum.
Ef marka má stöðu málsins á Annþór væna refsingu framundan og hefur brotið talsvert meira af sér en það sem hann situr inni fyrir nú. Það er ágætt að hann fái tíma til að hugleiða sín mál og lögreglan líka, sem leit af Annþóri eitt augnablik og lærði vonandi sitt af því klúðri.
![]() |
Annþór sendur í afplánun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 12:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
13.3.2008 | 00:48
Ný og spennandi tækifæri á Miðnesheiði
Ég fór sumarið 2006 á herstöðvarsvæðið. Þetta var nokkrum mánuðum áður en síðustu hermennirnir fóru. Var þetta í eina skiptið sem ég kom þangað. Fannst mér vissulega leitt að koma svo seint til að sjá svæðið, en þá minnti íbúðahverfið einna helst á draugabæ. Sárafáir voru á ferð þar um og húsin voru að mestu yfirgefin og mannlaus. Þetta var ógleymanleg sjón og skemmtileg heimsókn að mjög mörgu leyti. Það sem kom mér mest á óvart við að fara þarna var að sjá hversu umfangsmikið svæðið var í raun og veru. Þarna blöstu tækifærin við er kom að breyttum aðstæðum og þau tækifæri voru svo sannarlega nýtt.
Hef ég heyrt um fólk, og þekki suma þeirra líka, sem stundar nám í Reykjavík sem hefur ákveðið að búa á þessu svæði. Það hlýtur að vera sérstök tilfinning að búa þarna. Þetta er skemmtilegt tækifæri og eðlilegt að ungt fólk sækist eftir því að vera þarna. Þeir hjá Keili hafa byggt menntastofnun þar upp á skömmum tíma og tækifærin blómstra.
Vona að þeir sem hafa flutt í samfélagið á Miðnesheiði líði vel þar og fagna því að þetta svæði hafi fengið nýtt hlutverk.
![]() |
Draugabær að blómlegu þorpi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
13.3.2008 | 00:31
Hver er afstaða stjórnvalda til stóriðjumála?

Það er ekki nema von að spurt sé eftir daginn í dag hvort að Geir Haarde og Þórunn Sveinbjarnardóttir séu ekki í sömu ríkisstjórninni. Ummæli Þórunnar vekja spurningar um hver sé afstaða ríkisstjórnarinnar til álvers í Helguvík og á Bakka við Húsavík. Talar ríkisstjórnin einum rómi eða er þetta marghöfða stefnuþurs?
Það er svolítið sérstakt að sjá umhverfisráðherrann með varnanaglana á lofti þegar að öllum er ljóst að forsætisráðherrann hennar hefur talað máli þess að það þurfi að hugsa álversmálin áfram en ekki stöðva keyrsluna sem við erum augljóslega á. Ingibjörg Sólrún talaði vinalega til álvershugmynda á Bakka í Mannamáli Sigmundar Ernis um síðustu helgi en Þórunn virðist vera pikkföst á meðan að aðrir velta fyrir sér möguleikum.
Hversu lengi mun þessi vandræðalega togstreita sveitarstjórnarmanna á Suðurnesjum og Samfylkingarinnar standa? Er verið að draga fólk á asnaeyrunum? Af hverju er ekki komið með eina afgerandi stefnu og skoðun á málum frá ríkisstjórninni? Er umhverfisráðherrann virkilega ráðherra í ráðuneyti Geirs Haarde? Ekki nema von að spurningarnar grasseri.
Tvennt er í stöðunni; annaðhvort gefur ríkisstjórnin út afgerandi skoðun (plús SólóÞórunn að sjálfsögðu) eða að hún stöðvar umræðuna um álvershugmyndirnar. Biðin og hálfkákið er fyrir neðan allt í þeirri stöðu sem uppi er.
![]() |
Efast um réttmæti leyfisins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.3.2008 | 21:23
Loksins fáum við gömlu leikverkin á skjáinn

Þegar að Sjónvarpið varð 30 ára, árið 1996, voru gerðir þættir um sögu þess og sýnt brot úr myndasafninu, kaflaskiptir þættir eftir efni. Þorfinnur Ómarsson tók saman góðan og vandaðan þátt með broti af leiknu efni. Þar var margt mjög áhugavert klippt saman og hrein veisla að sjá viss brot og eiginlega viss eftirsjá að hafa aldrei séð þessi verk í Sjónvarpinu. Sum leikverkin voru vissulega ekkert spes en það eru miklar perlur þarna inn á milli sem væri gaman að sjá.
Leikna efnið í Sjónvarpinu hefur verið að minnka á síðustu tíu til fimmtán árum. Mér fannst meiri metnaður í þessum efnum í dagskrárstjóratíð Hrafns Gunnlaugssonar og Sveins Einarssonar, en síðan hefur verið þó að Sigurður G. Valgeirsson hafi staðið sig ágætlega með Sunnudagsleikhúsið einhvern veturinn fyrir rúmum áratug. Þá voru nokkur verk endursýnd og leikverkið Þrek og tár var í beinni útsendingu úr Þjóðleikhúsinu. Ríkisrisinn hefur gjörsamlega sofið á verðinum síðasta áratuginn og ekki staðið sig að einu eða neinu leyti og hrein hræsni að tala um að það standi vörð um menningarlegt hlutverk.
Þórhallur og hans fólk í Sjónvarpinu er greinilega að laga til þarna og ætlar að taka sig á. Um páskana sjáum við leikið verk, Mannaveiðar, byggt á sögu Sveinbjörns Baldvinssonar, og eflaust er það aðeins fyrsta verkefnið. Ekki er langt síðan að Björgólfur Guðmundsson ákvað að leggja fé til innlendrar dagskrárgerðar í formi leikins efnis.
Og nú opnast safn gamalla verka og vonandi fáum við vænan skerf af því á dagskrá. Enda er full þörf á að við kynnumst aftur hinu gamla og góða sem gert var á árdögum íslensks sjónvarps.
PS: Fyrst og fremst vildi ég fá að sjá þáttaröðina Undir sama þaki. Hef heyrt margar sögur um þessa þætti og hversu góðir þeir voru. Væri gaman að fá að sjá þá!
![]() |
RÚV semur við félög leikara og tónlistarmanna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 21:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
12.3.2008 | 17:43
Beckham-hjónin óánægð með Bandaríkjadvölina

Það verður aldrei af þeim skafið þeim David og Victoriu að þau eru sannkallaðir snillingar að ná fjölmiðlaathygli og beina henni rétt að sér. Þau hafa ótrúlega góð sambönd við að ná réttum blaðaviðtölum og hljóta góð ljósvakaviðtöl sem kemur þeim í kjarna allrar umfjöllunar. Þetta tókst þeim áður og ekki brást þeim bogalistin við komuna til Bandaríkjanna. Reyndar ef frá er skilin athyglin tengd Rebeccu Loos fyrstu dagana, en skuggi hennar fylgdi þeim yfir atlantshafið.
Beckham var hylltur eins og kóngur á rauðum dregli í Los Angeles. Sá glansi er slokknaður að mestu. Í upphafi töldu þau að flutningur til Bandaríkjanna væri sá fjölmiðlavænasti. Jafnan hefur manni fundist þau hjónin helst meta tækifærin í fjölmiðlamínútum, hversu lengi glampinn haldist. Það er allavega freistandi að halda það, hafandi fylgst með þeim fyrr og nú, einkum í borg englanna. En það er greinilegt að þau eru ekki að fíla að falla í skuggann, sem þau hafa gert er liðið hefur á vistina.
![]() |
Beckham hjónin vilja burt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
12.3.2008 | 16:25
Kynlíf í skjóli nætur í almenningsgarðinum
Það hefur svosem aldrei vantað frelsisandann í borgaryfirvöld í Amsterdam en þetta er með því skondnara og von að fólk spyrji sig að því hvað sé næst á dagskrá borgaryfirvalda.
![]() |
Kynlíf leyft, ekki hundar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 17:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.3.2008 | 15:40
Sviðshræddu stjörnurnar með grímuna

Þegar að Madonna lék í Dick Tracy árið 1990 og átti í stuttu ástarsambandi við leikarann Warren Beatty, sem lék Tracy eins og flestir vita auðvitað, þótti hún vera á vissum hápunkti. Átti marga smelli undir lok níunda áratugarins og í byrjun þess tíunda - var líka djörf á því skeiði og ófeimin við að syngja fáklædd á sviði og opinbera allt hið heilagasta í einkalífi sínu og karakter. Það er því svolítið sérstakt að Madonna skuli viðurkenna, nú þegar að hún er orðin fimmtug, að hún sé paníkeruð fyrir hverja framkomu og óttist um að geta jafnvel ekki klárað prógrammið.
Það er margþekkt að stjörnur setji á sig vissa grímu, fari í annan karakter, til að klára prógrammið sitt og nái vissum hæðum í túlkun sinni í leik og söng með því að vera allt annar en innsti kjarninn ætti að sýna í sjálfu sér. Flestir muna eftir leikaranum Peter Sellers, sem aldrei var í eigin karakter en gat leikið óteljandi karaktera með miklum glans en faldi sig á bakvið allan þann fjölda alla tíð. Margir tala líka um leikarana Bill Murray, Steve Martin og Chevy Chase með sama stíl. Laddi er þekkt dæmi hér heima og í söngbransanum eru til fjöldi söngvara sem hafa viðurkennt að setja á sig grímu til að fela innsta óttann í eigin karakter fyrir aðdáendum.
Madonna bætist nú í þann flokk. Það eru viss tíðindi. Þeir sem hafa fylgst með henni í þessa tvo áratugi sem hún hefur verið á toppi sinnar frægðar hafa jafnan talið hana eina sviðsöruggustu manneskju bransans, sem þorir að gera allt og sýna allt til að halda í frægðina. En kannski er það eitt stórt skuespil til að fela innsta kjarnann og þann viðkvæmasta.
![]() |
Óttast að deyja á sviðinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.3.2008 | 14:48
Spitzer segir af sér

Það hefur sést vel í umræðunni frá því á mánudag að enginn vildi verja Spitzer, nema þá mögulega Alan Dershowitz, lærifaðir hans í lögfræði, sem reyndi með ósannfærandi hætti að líkja þessu hneykslismáli við Clinton-málið. Þetta er tvennt ólíkt, þessi maður stundaði viðskipti við vændishring og eyddi miklum peningum í þá. Hann hefur markaðssett sig sem siðariddara, réðist gegn vændi og glæpum í New York sem saksóknari og fellur í sama pyttinn.
Enda hefur verið hálf vandræðalegt að sjá fréttastöðvarnar rifja upp ummæli Spitzers um vændishringana og tengda aðila frá saksóknaraferlinum og sýna flokksfélögum hans. Hann er auðvitað í óverjandi stöðu og getur ekki annað en farið frá. Það er gott að stjórnmálamaður í svona krísu segi af sér og send séu út þau skilaboð að siðferði eigi að vera í stjórnmálum, altént þarf þess þegar að sjálfskipaðir siðariddarar standa ekki við eigin prinsipp.
![]() |
Búist við að Spitzer segi af sér í dag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.3.2008 | 00:22
Átakanlegur þáttur - ákall eftir upplýsingum
Það var átakanlegt að horfa á fréttaskýringarþáttinn Kompás á Stöð 2 í kvöld, en þar var fjallað um lát Kristins Veigars Sigurðssonar, fjögurra ára drengs í Reykjanesbæ, sem keyrt var á í nóvemberlok. Þetta er mjög dapurlegt mál og það tók á að hlusta á frásögn foreldra drengsins, sem hafa gengið í gegnum svo margt og þurfa að horfast í augu við að málið er ekki upplýst enn.
Eðlilega kalla þau eftir upplýsingum og aðstoð við að upplýsa málið. Það eru tímamót að íslenskur þáttur sé sýndur með pólskum texta. En það er eðlilegt í ljósi þess að sá sem grunaður er í málinu er pólskur og nánasta samfélag hans í Reykjanesbæ er pólskt. Það þarf að ná til þessa fólks og vonandi mun takast að leiða fram óyggjandi sönnunargögn sem svara spurningunni um það hver hafi keyrt á drenginn og verið svo kaldrifjaður að stinga af frá vettvangi.
Þetta mál verður sem mara yfir samfélaginu í Reykjanesbæ, einkum fjölskyldu drengsins, meðan að ekki hefur verið svarað lykilspurningum málsins. Þetta er mikill fjölskylduharmleikur og þessi saga er sorgleg. Það var ágætt að fá þessa upprifjun á málinu og heyra í foreldrunum, sem sjálf kölluðu eftir þessar umfjöllun og að umræðan um málið yrði opinberuð með þeirra hætti. Það er eðlilegt og rétt, þó frásögnin taki á.
Ég vil enn og aftur votta fjölskyldu Kristins Veigars innilega samúð mína. Ég vona að þetta mál verði upplýst og klárað með þeim eina hætti sem fær er svo nánustu ættingjar geti horft til framtíðar. Það er skelfilegt ef það gerist ekki.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
11.3.2008 | 23:28
Evrópsk framtíðarsýn - ESB kosningamál 2011?
Hinsvegar væri vissulega heiðarlegt að taka Evrópuumræðu í kosningabaráttu næst. Því ekki? Það er þó vissulega mjög merkileg staðreynd að enginn flokkur hefur gert Evrópumálin að alvöru kosningamáli í alþingiskosningum á þessum áratug. Samfylkingin setti málið á oddinn í aðdraganda kosninga 2003 en skipti um plötu fyrir kosningar þegar að sást vel að ekki var stemmning fyrir boðskapnum. Sama gerðist í kosningunum í fyrra, eins og allir vita. Það var engin stemmning fyrir Evrópuumræðu. Allt annað var þá á oddinum.
Ég tel allar hugleiðingar um þetta mál góðar í sjálfu sér. Við eigum alltaf að taka stöðuna á því sem er að gerast í heiminum, fjarstæðukennt að loka einhverjum dyrum vegna þess að eitthvað megi ekki ræða. En það er innan við ár síðan að mynduð var ríkisstjórn sem kortlagði þessi mál á kjörtímabilinu. Það virðist ekki vera einhugur um það innan þessarar stjórnar að horfa eindregið í Evrópuátt og við það situr í augnablikinu.
Þrátt fyrir allar eðlilegar pælingar er staðan því nokkuð ljós. En umræðu getur enginn stöðvað fái hún byr. Það má vera að Evrópuumræðan fái byr, en eftir stendur að ekki er þingmeirihluti fyrir því að ganga í Evrópusambandið eða halda í þá átt, eða ég sé hann ekki blasa við altént. Hvað svo sem síðar verður.
![]() |
Nýr gjaldmiðill innan 3 ára? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |