Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
18.6.2008 | 01:05
Össur gagnrýnir hvítabjarnarveiðar á Skaga
Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra og fyrrum umhverfisráðherra, skrifar athyglisverðan pistil í kvöld þar sem hann gagnrýnir drápið á birnunni á Skaga að viðstaddri Þórunni Sveinbjarnardóttur, umhverfisráðherra, og hvernig staðið var að hvítabjarnarveiðunum. Vill hann breyta lögum um veiðar á hvítabjörnum, sem upphaflega voru sett í ráðherratíð hans en breytt í ráðherratíð Sivjar Friðleifsdóttur árið 2002.
Sjálfur var Össur gagnrýndur harkalega á fyrstu ráðherradögum sínum í umhverfisráðuneytinu er ísbjörn var drepinn á Vestfjörðum og málið varð allt mjög eftirminnilegt. Eins og flestir muna voru lögin sett til að koma í veg fyrir að ísbirnir væru drepnir sjálfkrafa hérlendis og uppfylla alþjóðlega samninga. Auk þess vildi Össur koma málunum lengra og taka á vafaatriðum. Merkilegast af öllu er þó að engin áætlun hefur verið til staðar og ráðaleysið er fyrri björninn kom í þessum mánuði var algjört.
Ekki var hægt að sjá annað en flumbrugangur, hik og almennur vandræðagangur hafi verið í fyrra skiptið. Í hið seinna virtust embættismenn og ráðherrann staðráðin í að fanga dýrið en atburðarásinni við Skaga lauk með því að birnan var felld. Augljóst er að Össur gagnrýnir hvernig staðið var að málum og hefur miklu við málið að athuga. Ekki er annað að sjá en erfiðara hafi verið að fara eftir lögunum en stefnt var að, enda enginn undirbúningur til staðar við því hvernig taka ætti á aðstæðum er ísbjörn kemur til landsins.
Má vera að umhverfisráðuneytið og undirstofnanir þess hafi lært sína lexíu síðustu vikurnar en greinilega vantaði eitthvað upp á raunhæfa framkvæmd laganna og hvernig þau virki er ísbjörn kemur til landsins áður en þessir tveir birnir komu. Það er lexían fyrir ráðherrann sem kom norður til að sjá birnuna skotna.
![]() |
Daprir en um leið sáttir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.6.2008 | 20:13
Blóðrauður ísbjarnarblús á Skaga

Væntanlega var ekkert annað hægt að gera. Sennilega var allt tal um að svæfa birnuna og flytja hana burt, hvort sem væri í dýragarð eða til síns heima draumórar frá upphafi þrátt fyrir að allt væri gert, sérstaklega út frá pólitískum sjónarhóli til að reyna að bjarga því sem bjargað væri fyrir birnuna og ráðherrann sem fékk yfir sig væna gusu af neikvæðni og ádeilu frá eigin flokksfólki rétt eins og öðru fólki í samfélaginu og kom illa fyrir þar að auki.
Ef marka má fréttir var dýrið mjög illa sært og ekki vel á sig komið og hefði ekki þolað flutning frá svæðinu. Þetta voru því endalok sem voru óumflýjanleg. Fagaðilar sem best til þekkja halda því allavega fram og eðlilegt að taka mark á því, burtséð frá því hvað kemur öðrum vel á þessari stundu, eða í tali þeirra sem helst hafa talað fyrir björgun. Ekki gengur að hafa svona dýr laust í náttúru Íslands og þetta því eðlileg endalok. Allt var þó reynt en það var ekki nóg.
En væntanlega er þetta hámark hinnar pólitísku óheppni fyrir Þórunni Sveinbjarnardóttur. Á hálfum mánuði hafa tveir ísbirnir dáið á hennar ráðherravakt og náttúrusinnar kenna henni greinilega mjög um. Svo þegar að hún telur sig geta snúið ógæfunni við snýr hún aftur úr fríinu á einkaflugvél og ætlar að fanga stemmninguna til að vera bjargvættur dýrsins. Allt fer svo á annan veg en ætlað var. Ekki nýtur Þórunn sviðsljóssins í kvöld sennilega.
Þessi blóðrauði ísbjarnarblús er nett fíaskó fyrir ráðherrann. En væntanlega var ekkert annað hægt að gera. Svo fer sem fer, sagði forðum.
![]() |
Ísbjörninn að Hrauni dauður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
17.6.2008 | 17:59
Vanvirðing við íslenska fánann
Finnst það nú frekar dapurlegt að íslenska fánanum sé sýnd slík vanvirðing á þjóðhátíðardeginum eins og maðurinn gerði sem klippti hann í ræmur við Stjórnarráðið. Vel má vera að fólk hafi ólíkar skoðanir á því hvort fáninn okkar sé fallegur eða hvort aðrir fánar fyrri tíðar, t.d. fáni Jörundar, Hvítbláinn eða fálkafáninn hafi betri sögulegar tengingar fyrir Ísland.
Þetta er mjög lágkúruleg framkoma sérstaklega á þessum degi og setur skugga á hátíðlegan dag. Eflaust er sá sem þetta gerði að kalla eftir athygli með einum eða öðrum hætti eða senda pólitísk skilaboð, greinilega anarkísk. Svosem gott og blessað að hafa skoðanir en það að skera fánann á Stjórnarráðshúsinu í ræmur á þjóðhátíðardeginum er ekki beint vel viðeigandi.
Ég hef reyndar alla tíð verið sérstaklega stoltur af íslenska fánanum, finnst hann fallegur og held að flestir séu á þeirri skoðun. Enda flagga flestir landsmenn á þessum degi og allt er vel skreytt í fánalitunum á hátíðisdeginum, sérstaklega á þessum degi auðvitað. Hef ekki orðið var við þrýsting um að breyta fánanum eða háværar skoðanir þess efnis að hann sé ekki viðeigandi.
Þetta er auðvitað bara vanvirðing við þjóðfánann og með þessu eru lög brotin. Allt tal um pólitíska yfirlýsingu eða byltingareðli hljómar hlægilegt á þessum degi þegar fólk um allt land flaggar þjóðfánanum og fánaskreytingar eru í öllum bæjum.
![]() |
Skar íslenska fánann á Stjórnarráðinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.6.2008 | 13:36
Spenna á Skaga - björgum Bangsa og Þórunni
Átti ekki að flytja bangsa heim á norðlægar slóðir. Hvað varð um gaulið um að hann ætti að vera heima hjá sér. Verða heimkynnin kannski að búri í dýragarði, breyta eigi dýrinu í sýningarskepnu í dönskum skemmtigarði bara til þess eins að Þórunn megi hökta lengur í ráðherrastól sínum. Fyndið.
Þetta á eftir að verða eitt vænt skuespil á Skaga, spái ég.
![]() |
Beðið átekta að Hrauni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.6.2008 | 00:32
Ísbjarnarblús á Skaga - kemst bangsi heim?

Mesta kaldhæðnin í þessu er þó sú að eiginlega er ekki verið að bjarga bara þessum ísbirni heldur stjórnmálaferli Þórunnar Sveinbjarnardóttur, umhverfisráðherra. Hún á mjög mikið undir því að málið klárist farsællega. Þórunn var mjög vandræðaleg í ísbjarnarmálinu fyrra og vissi varla í hvorn fótinn ætti að stíga, leit ekki vel út sem ráðherra og virkaði bæði klaufaleg og flumbruleg.
Enda er greinilegt að margir Samfylkingarmenn eru orðnir langþreyttir á klúðrinu í henni - andstaðan við hana kemur vel fram í nýjasta riti vinstriblaðsins Herðubreiðar, ef marka má fréttir. Greinilegt er að flokksfélagar Þórunnar hafa orðið fyrir vonbrigðum með ráðherraferil hennar. Fyrir Þórunni verður því björninn að lifa og þetta er björgunaraðgerð fyrir stjórnmálaferil hennar mun frekar en dýrið. Eðlilega var því reynt að taka á málinu með öðrum hætti en síðast.
Þessi ísbjarnarblús verður spennandi á morgun þegar að "björgunaraðgerðin mikla" hefst á Skaga fyrir alvöru. Væri gaman að vita hvernig þeim líður sem stendur vaktina yfir dýrinu í nótt. Og nú fer bangsi í ný heimkynni í boði Björgólfs Thors. Fær þó sennilega ekki flugferð í einkaflugvél Björgólfsfeðga. Mikið PR fyrir feðgana, ætli Baugsfeðgarnir sjái ekki eftir að hafa ekki boðið í verkið, jafnvel betur.
En fer bangsinn virkilega heim. Á að senda hann í dýragarð og geyma hann þar? Hvað varð um allt hástemmda talið um að senda hann "heim" til sín? Svolítið fyndin yfirborðsmennska undir öllu glamrinu.
En já, aumingja Þórunn. Vonandi nær hún að klára þetta mál með sóma. Björgunaraðgerðin "Björgum Bangsa og Þórunni" verður eflaust aðalfréttaefnið á sautjánda júní þetta árið.
![]() |
Ísbjörninn rólegur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.6.2008 | 21:23
Tjaldsvæðabaráttan heldur áfram - flott hjá SUS!

Fyrir ári gagnrýndi ég mjög sambærilega ákvörðun bæjaryfirvalda hér á Akureyri, en hún varð mjög umdeild og ég er enn sannfærður um að þar hafi feilspor verið stigið sem ekki var þeim til frægðarauka og var illa að því staðið að öllu leyti. Ég hef hvergi á nokkrum vettvangi sem ég hef fylgst með og heyrt rökstuðninga með og á móti þessum fáránlegu aldurstakmörkum heyrt þeirri spurningu svarað af hverju mörkin voru sett við 23 ára aldur. Af hverju ekki 22 ára, nú eða 24 ára, eða kannski 25 ára? Talan er beinlínis fáránleg.
SUS hefur allt frá sambandsþinginu á Seyðisfirði síðasta haust minnt á afstöðu sína með áberandi hætti. Þá var harðorð ályktun gegn ákvörðun Sigrúnar Bjarkar Jakobsdóttur, bæjarstjóra hér á Akureyri, samþykkt, skömmu eftir hátíðina um verslunarmannahelgina. Mikilvægt er að hún og bæjaryfirvöld séu minnt á afstöðu SUS til málsins aftur nú. Enda mikilvægt að gera það, þar sem styttist í verslunarmannahelgina að þessu sinni og enn ekki verið ákveðið hvernig staðið verður að málum að þessu sinni.
Mikla athygli vekur að öll sveitarfélögin; Akureyri, Akranes og Eyjafjarðarsveit, eru undir forystu Sjálfstæðisflokksins og bæjar- og sveitarstjórar þar allir flokksbundnir í Sjálfstæðisflokknum. Þess þá meiri ástæða er til þess að SUS sendi þeim harðort bréf og minni þá á stefnu þess flokks sem þau eru sjálf öll í.
![]() |
SUS mótmælir aldurstakmarki á útihátíðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.6.2008 | 13:19
Geir sakar fréttamann um að sýna dónaskap
Mér finnst eðlilegt að spyrja sig að því hvers vegna forsætisráðherrann geti ekki svarað eðlilegum spurningum um efnahagsmál þegar eftir því er leitað og auk þess sýnt almennilega kurteisi. Mér fannst svör forsætisráðherrans ekki viðeigandi og spyr mig að því hvers vegna spurningum er ekki bara svarað. Þessi mál eru þess eðlis að allir spyrja sig að því hvað gera eigi og hvað stjórnvöld ætli sér að gera í stöðunni.
Að saka fréttamann sem vill aðeins heiðarleg svör frá þeim sem stjórna landinu um dónaskap er ekki til sóma.
Hér á eftir fara samskipti þeirra:
Sindri: Jæja, hvar eru peningarnir sem eiga að komast inn í landið?"
Geir: Á þetta að vera viðtal?
Sindri: Já, ég myndi vilja heyra aðeins um þetta..."
Geir: Þú verður að hafa samband fyrir fram."
Sindri: Geir, þjóðin náttúrlega bíður eftir einhverjum aðgerðum frá ríkisstjórninni. Geturðu ekki gefið okkur smá komment?"
Geir: Ég vildi gjarnan gera það, Sindri, ef þú hagaðir þér ekki svona dónalega."
13.6.2008 | 01:41
Nígeríusvindlið blómstrar - óþolandi sendingar
Merkilegast í þessu er að enn falla sumir flatir fyrir þessu rugli. Ekki er langt síðan að það þurfti að vara sérstaklega við Nígeríusvindlinu hér á Netmogganum, var þá varað við vefsíðum sem eru ekkert nema svikamylla í gegn, þar sem reynt er að ná peningum af fólki. Svo mikið hefur heyrst af svona svindli síðustu árin að stórundarlegt er að enn falli fólk fyrir þessu. Lottóskilaboðin að utan eru svo annar kapítuli.
Varla líður sá mánuður, stundum enn skemmra jafnvel, að maður fái ekki einhvers konar svona skilaboð um peningasvindl í tölvupósti. Ekki er hægt að taka mark á svo augljóslegri svikamyllu en vonandi eru allir meðvitaðir um að það er bara verið að hafa það að fífli með þessum póstsendingum.
Skilaboðin eru giska einföld; föllum ekki flöt fyrir peningasvindlinu. Vonandi nær Einar veðurfræðingur aftur yfirráðum yfir netfanginu sínu. Óskemmtileg lífsreynsla þetta.
![]() |
Ný tegund Nígeríusvindls herjar á netföng Gmail |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.6.2008 | 17:58
Bragi Bergmann snýr baki við Sigrúnu Björk

Auðvitað eru það mikil tíðindi að Bragi láti ummæli sem þessi falla og snúi baki við Sigrúnu Björk með svo áberandi hætti. Bragi hefur verið nátengdur öllum kosningabaráttum Sjálfstæðisflokksins á Akureyri undir forystu Kristjáns Þórs Júlíussonar 1998, 2002 og 2006 og leikið þar lykilhlutverk sem pólitískur ráðgjafi ekki aðeins Sjálfstæðisflokksins heldur og mun frekar Kristjáns Þórs Júlíussonar. Hann hefur verið mjög nátengdur Kristjáni Þór og haldið utan um allar kosningabaráttur sem hann hefur tekið þátt í síðustu tíu árin.
Eðlilegt er að spyrja sig um hver áhrif þessa verði fyrir Sigrúnu Björk og Sjálfstæðisflokkinn hér á Akureyri að maður sem svo nátengdur hefur verið forystu flokksins ekki aðeins hér á Akureyri heldur og í Norðausturkjördæmi og verið lykilmaður þar snúi baki við hinum nýja leiðtoga flokksins vegna ákvarðana hennar. Um leið er eðlilegt að harma að engin niðurstaða sé komin og allt ferlið vegna verslunarmannahelgarinnar sé í einhverju biðferli, hálfgerðum hring eftir að hver og einn taki af skarið.
Get allavega ekki annað sagt, sem sjálfstæðismaður hér til fjölda ára og starfsmaður í kosningabaráttu flokksins í sveitarstjórnarkosningunum 2006, að greinaskrif Braga og hvöss ummæli hans um bæjarstjórann sem hann vann fyrir í kosningunum 2002 og 2006 og vann mjög náið með séu bæði táknræn og veki spurningar um hvað gerist næst, þar sem Bragi er greinilega að afskrifa hana sem leiðtoga sem hann vinni fyrir í stjórnmálum.
Þegar að maður svo nátengdur Kristjáni Þór Júlíussyni skrifar svo harkalega um eftirmann hans á bæjarstjórastóli vakna stórar spurningar.
![]() |
Hvernig verður Ein með öllu? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.6.2008 | 15:18
Hasar á Akranesi - dramatískur eltingarleikur
Þetta atvik minnir mjög vel á það, hversu brýnt er að lögreglan sé undir það búin að takast á við verkefni af ýmsu tagi, stór sem smá. Fyrir nokkrum árum þótti ekki öllum sem sitja á Alþingi mikilvægt að breyta skipulagi á yfirstjórn sérsveitar lögreglunnar til að sveitin væri ávallt til taks og sveigjanlegri en áður hefði verið.
Því síður virtist skilningur á því hjá fjölda fólks þá að nauðsynlegt væri að efla sérsveitina og fjölga í henni. Þessi staða sýnir vel hversu rétta stefnu sérsveitin hefur tekið og að hún sé vel búin fyrir ástand sem getur komið úr óvæntustu átt, rétt eins og þessi krísa á Skaganum.
![]() |
Eftirför lokið á Akranesi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |