Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Halldórsarmurinn berst fyrir ESB-aðild í Framsókn

Jón SigurðssonGrein Jóns Sigurðssonar, fyrrum viðskiptaráðherra og formanns Framsóknarflokksins, þar sem hann hvetur til þess að Ísland sæki um aðild að Evrópusambandinu sýnir vel að Halldórsarmurinn í flokknum, undir forystu Valgerðar Sverrisdóttur, ætlar að setja málið á dagskrá og berjast fyrir því af alvöru á næstunni. Ekki hefur farið á milli mála að Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, hefur leitt harða andstöðu við ESB nú, og áður í formannstíð Jóns og Halldórs Ásgrímssonar.

Vakið hefur mikla athygli hvað Valgerður hefur talað afgerandi fyrir ESB-aðild, þvert á allt sem formaðurinn segir. Þetta sýnir andstæðurnar í forystusveitinni og hreina andstöðupóla sem hljóta um leið að flokkast sem átakapólar um valdasess í flokknum. Ef Evrópumálin verða sett á dagskrá innan Framsóknarflokksins má enda búast við miklum átökum. Á flokksþingi Framsóknarflokksins árið 2005 var hart tekist á um afstöðuna til Evrópusambandsins - Guðni og Halldór börðust hatrammlega fyrir opnum tjöldum um hversu langt ætti að ganga. Niðurstaðan varð málamiðlun.

Ekki ber að vanmeta afstöðu Jóns. Greinaskrif hans í dag eru mjög sterk skilaboð um að reyna mun á málið innan skamms. Innan við ár er síðan að Jón lét af formennsku í flokknum. Hann sat ekki það lengi sem formaður að reyndi virkilega á Evrópumálin undir forystu hans. Er á hólminn kom varð Jón mun hógværari í afstöðu sinni en Halldór, sem í forsætisráðherratíð sinni spáði að Ísland yrði komið í ESB eftir sjö ár, árið 2015. Valgerður hefur með afgerandi Evrópuforystu sinni innan Framsóknarflokksins tryggt að málið verður rætt fyrr en síðar. Hún talar ekki svona nema vegna þess að hún er viss um að reyna mun á málið fljótlega, sem og blasir við.

Staða Framsóknarflokksins er veik um þessar mundir. Hann hefur ekki náð sér á strik í stjórnarandstöðu undir forystu Guðna Ágústssonar síðasta árið og eðlilega er spurt um hversu sterk pólitísk staða hans er. Það ræðst á flokksþingi að ári. Fylkingamyndanir um Evrópusambandið gætu leitt til átaka um formennsku í flokknum. Halldór Ásgrímsson sætti sig ekki við Guðna sem eftirmann sinn fyrir tæpum tveim árum og lagði lykkju á leið sína til að sækja Jón í Seðlabankann, því hann taldi hann eina manninn sem gæti sigrað Guðna. Fullyrða má að traustið á Guðna hefur ekki aukist í þeim herbúðum eftir að hann tók við af Jóni, sem mistókst að ná kjöri á þing.

Stóra spurningin er hvort að Valgerður Sverrisdóttir fylgi eftir tæpitungulausum ummælum sínum um Evrópusambandið með formannsframboði að ári. Öllum er ljóst að Guðni Ágústsson mun sem formaður Framsóknarflokksins ekki leiða flokkinn í Evrópuátt, þó að nýleg könnun hafi sýnt að meirihluti kjósendanna styðji aðildarviðræður. Nýji Evróputónninn hennar Valgerðar er boðberi um að hún ætli að taka frumkvæðið innan flokksins, sýna forystu og myndugleika á meðan að formaðurinn bíður.

Átökin um Evrópusambandið verða án vafa stærstu átökin innan Framsóknarflokksins áratugum saman og bliknar átökin um formennsku Halldórs Ásgrímssonar væntanlega í samanburði. Afstaða formannsins mun ráða hvernig sá slagur verði á næstunni. Greinaskrif og tæpitungulaus ummæli þeirra sem standa næst Halldóri Ásgrímssyni, sem spáði ESB-aðild innan nokkurra ára, boða þau tíðindi að reyna muni á málið fyrr en síðar.

Væntanlega glottir sá vel við tönn sem situr nú á friðarstóli í Kaupmannahöfn. Enda munu þau átök verða um forystusess í Framsóknarflokknum ef formaðurinn tekur ekki skrefið með þeim sem pressa á málið nú.


mbl.is Tímabært að sækja um ESB-aðild
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gasið slær í gegn

Gasmóment Sennilega þarf það ekki að koma að óvörum að gas-viðvörunarhróp lögreglunnar við Rauðavatn hafi slegið í gegn og sé kominn út sem hringitónn. Hversu margir ætlu sé með þetta á símanum sínum?

Nú hafa rappararnir í Rottweiler gert lag um mótmælin stjórnlausu við Rauðavatn í síðustu viku og þar er einmitt gasið notað sem viðlag, nema hvað.

Meiri áhugi virðist vera á gasummælunum en flestum óraði fyrir daginn sem lætin voru við Rauðavatn. En á móti kemur að þetta gerist sjaldan.

Hefur verið mikill misskilningur um þessi gashróp, en þetta er auðvitað standard-aðgerð til að gefa fólki tækifæri til að bregðast við gasinu.

Spennandi að sjá hvort að þetta verði vinsælasti hringitónn ársins.

mbl.is Gas! Hringitónn slær í gegn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fámenni hjá Sturlu - byrjað á vitlausum enda?

Sturla og fylgismenn hans Ekki voru þeir nú margir sem studdu málstað Sturlu Jónssonar og bílstjóranna með því að labba með talsmanninum frá húsi verslunarinnar til Austurvallar í dag. Held að bílstjórarnir séu búnir að missa stuðning meginþorra þjóðarinnar á síðustu dögum. Sennilega hafði hasarinn á Kirkjusandi á sumardaginn fyrsta mestu áhrifin á hvernig komið er.

Held að bílstjórarnir hafi byrjað á vitlausum enda í mótmælum sínum. Hefðu þeir byrjað með einmitt svona týpu af mótmælum, löglegum fyrir það fyrsta, eins og Sturla var með í dag hefðu þeir náð meiri árangri; verið markvissari, yfirvegaðri og náð einhverjum stuðningi. Þeir höfðu sennilega mjög mikinn stuðning í upphafi en mistök talsmannsins og þeirra sem næst honum stóðu höfðu fljótt þau áhrif að landsmenn voru argir yfir að vera fastir í biðröð og þeir gengu einfaldlega of langt.

Í dag virkaði þetta eins og einn maður væri að mótmæla, maður án stuðnings, einkum almennings. Þetta var allavega mjög einmanalegt. Þetta hefur verið viðburðarík vika, hennar verður sennilega minnst sem vikunnar þegar að bílstjórarnir misstu stuðning almennings. Einvera Sturlu, með örfáa á eftir sér í göngunni verður táknræn fyrir það hvað hann var einmana.

mbl.is Sturla: Ég berst fyrir ykkur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bíllausi dagurinn hans Sturlu

Mótmælaganga Sturlu Bíllaus er Sturla Jónsson nú á hálfgerðri eyðimerkurgöngu um götur Reykjavíkur með boðskap sinn. Þetta er bíllausi dagurinn hans. Veit ekki hverju hann telur sig áorka með þessari gönguferð en sjálfsagt er fyrir hann að reyna að tala sínu máli ef hann telur þetta réttu aðferðina fyrir því að vekja athygli á honum. Sennilega er það þó gáfulegra en að blokkera umferð á götum borgarinnar.

Þetta var vond vika fyrir bílstjórana. Held að allir sjái það, ekki síður bílstjórarnir en almenningur allur. Hef farið yfir stöðu þeirra mála hér í síðustu færslu. Málstaður þeirra og staða er stórlega sködduð. Þeir gerðu alvarleg mistök í baráttuherferð sinni, fóru verst allra sjálfir með málstaðinn sem þeir trúðu á og Sturla hefur komið mjög illa fyrir sem talsmaður þessa hóps. Ber mikla ábyrgð á því hvernig komið er fyrir þeim.

Sturla hefur meira að segja opnað moggablogg til að reyna að ná til okkar allra, bloggaranna jafnt og landsmanna allra. Heldur er það samt holur boðskapur í heildina. Enda sést það vel að hann áttar sig á mistökum sínum síðustu dagana. Erfitt er þó að gleyma því og sennilega er þessi gönguferð einhver leið til þess að byggja upp baráttuna. Efast um að það beri mikinn árangur. Þeir fengu vissa samúðarbylgju fyrst. Þeir sendu út statement um stöðu sína og náðu athygli en höfðu ekki kraft og klókindi til að fara með þá baráttu alla leið.

Held að engum hópi með kröfur gegn ríkinu hafi áður tekist að klúðra sínum málum jafn illa og bílstjórunum í þessari viku. Þetta vita allir. Staðreynd mála bara. Þessi ganga um stræti borgarinnar mun ekki breyta því að ríkisvaldið mun ekki tala við þá um kröfur sínar og baráttumál. Einfaldlega vegna þess að þeim tókst ekki að ná samstöðu með þjóðinni - fóru fram úr sér og verða víst að bíta úr nálinni með það.

mbl.is Bílstjóri í mótmælagöngu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Snautleg afsökun á ofbeldinu á Kirkjusandi

Ágúst Fylkisson Ekki er hægt að segja annað en að yfirlýsing Ágústs Fylkissonar, sem réðst á lögregluþjóninn á Kirkjusandi á sumardaginn fyrsta, sé snautleg afsökun á ofbeldisverkinu. Staðreynd mála er að hann réðst að tilefnislausu á lögregluþjón og hefur sér engar málsbætur vegna þess. Miðað við frásagnir hafði hann haft litla stjórn á sér fyrir þetta atvik og var eins og eldibrandur á svæðinu. Vildu ekki einu sinni félagar hans kannast við hann, t.d. talsmaðurinn Sturla.

Eðlilegt er að Ágúst vilji reyna að bæta fyrir þessi mistök sín og reyna að svara fyrir sig. Það er þó oft erfitt þegar að engar eru málsbæturnar og afsökunarbeiðnin er hol í gegn. Finnst þetta frekar innantóm yfirlýsing, sett fram til þess eins að reyna að laga ásýnd sína í fjölmiðlum, en skiljanlega hefur þetta atvik eitt og sér gert út af við bílstjórabaráttuna miklu, fyrir utan öll önnur mistök þessa hóps, og gert það að verkum að samúð almennings við bílstjórana er meira og minna gufuð upp.

Sennilega var það dapurlegast af því öllu að Sturla Jónsson vildi ekki kannast við Ágúst á vettvangi en sagði samt í sömu andrá að maðurinn væri nýkominn úr hnéaðgerð. Sennilega er þetta eitt fyndnasta augnablik vikunnar rétt eins og þessi tilefnislausa líkamsárás á lögregluþjón er með þeim sorglegri. Ágúst má þó eiga það að hann sendir frá sér yfirlýsingu og er ekki alls varnað. En það vantar innilegheitin í yfirlýsinga. Það er eitthvað við þessa yfirlýsingu sem hljómar ekki heilt í gegn og ég held að allir sem lesi þetta finni það vel að innilegheitin vantar, því miður.

Öll þessi vika hefur verið dapurleg fyrir bílstjórana. Þeim tókst að klára sín mótmæli af algjörlega af eigin völdum og gera út af við alla möguleika á því að stjórnvöld töluðu við þá. Ferðin til Bessastaða, ruglið við Rauðavatn og þetta ofbeldi á Kirkjusandi, fyrir utan talsmanninn afspyrnuslaka hjálpast allt saman í vonda heildarmynd sem enginn gleymir. Og barátta bílstjóranna er því miður runnin út í sandinn, hafi hún einhvern tímann verið trúverðug.

mbl.is Missti stjórn á skapi sínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sættir á milli Ólafs F. og Spaugstofunnar

Grínið um Ólaf F. í Spaugstofunni í janúar 2008 Var gaman að sjá Ólaf F. Magnússon, borgarstjóra, og Spaugstofuna sættast í síðasta þætti vetrarins í kvöld þar sem Ólafur F. fékk "andlitið sitt" aftur en hann hefur verið sýndur blörraður í þættinum frá því að deilurnar stóðu um grínið um borgarstjórann í janúar. Þá var gert grín að geðheilsu hans er hann tók við embætti og varð grínið mjög umdeilt og fátt um meira rætt þá í bloggheimum.

Spaugstofan kvaddi reyndar með svolítið sérstökum þætti. Þar var Spaugstofan svolítið að biðjast afsökunar á húmor vetrarins og fengu þeir reyndar þekkta einstaklinga sem þeir hafa verið að grínast með í vetur til að taka þátt í herlegheitunum og voru allir sennilega að gera grín að sjálfum sér, ekkert síður Spaugstofumenn en gestirnir. Sérstaklega fyndin atriðin með Össuri, Birni Inga og Vilhjálmi Þ.

Mér skilst að Spaugstofan hafi ákveðið að næsti vetur verði þeirra síðasti á skjánum. Þeir eiga tuttugu ára afmæli með þáttinn á næsta vetri og viðeigandi fyrir þá að hætta á þeim tímamótum. Þó að Spaugstofan hafi stundum verið gloppótt verður því ekki neitað að þeir hafa leikið lykilhlutverk í grínsögu landsins. Hafa séð um þáttinn í tvo áratugi og haldið dampi í gegnum góða tíma og slæma. Ekki alltaf verið sammála gríninu þeirra, enda er aldrei hægt að hlæja svosem að öllu.

Allavega er gott að vita að Ólafur F. og Spaugstofan halda sáttir frá grínvetri þeirra síðarnefndu og hafa samið frið. Væntanlega verður þá Ólafur F. varla blörraður næsta vetur. Eða hvað?

Hvassar skeytasendingar milli Árna og Gunnars

Árni Johnsen Hvöss orð ganga nú á milli Gunnars Gunnarssonar, aðstoðarvegamálastjóra, og Árna Johnsen, alþingismanns, og hefur Gunnar ákveðið að kæra Árna fyrir ærumeiðingar í Morgunblaðsgrein í morgun. Það er orðið langt síðan að ég hef séð jafn harðorða yfirlýsingu gegn kjörnum fulltrúa og Gunnar beinir til Árna eftir þessi greinaskrif. Segir hann Árna vera Sjálfstæðisflokknum og þjóðinni til skammar.

Hef í sjálfu sér aldrei farið leynt með að ég vildi ekki Árna í þingframboð á síðasta ári. Fannst það rangt að hann færi aftur í framboð eftir alvarleg lögbrot sín fyrir nokkrum árum. Fannst það hvorki honum né Sjálfstæðisflokknum til góða. Fór meira að segja í viðtal á Stöð 2 til að tala gegn þingframboðinu eftir ítarleg bloggskrif. Er enn sömu skoðunar og finnst ekkert hafa breyst í þeim efnum að afleitt hafi verið að Árni hafi aftur farið á þing.

Enda sýnist mér það hafa sannast af því að Árna hefur ekki verið treyst fyrir trúnaðarstörfum innan flokksins, eftir að flokksmenn í Suðurkjördæmi völdu hann á þing, þó þeir hafi reyndar lækkað hann um sæti með útstrikunum á kjördegi og veikt pólitíska stöðu hans til muna. Hann hefur verið utangarðsmaður í þingflokknum. Var ekki treyst fyrir formennsku eða varaformennsku í þingnefndum eftir kosningarnar, né öðrum embættum, þó hann hafi átt fjórtán ára þingferil áður að baki er hann sneri aftur á þing.

Þegar að Einar Oddur Kristjánsson féll frá var Ólöf Nordal, nýliði á þingi, valin varaformaður samgöngunefndar fram yfir Árna. Árni hafði verið formaður samgöngunefndar áður, á árunum 1999-2001, er hann varð að segja af sér þingmennsku eftir að uppvíst varð um afbrot hans, sem mikið hefur verið fjallað um. Held að sagan muni dæma endurkomu hans á þing sem mistök og mér finnst forysta flokksins hafa fellt þann dóm vel með því að velja Árna ekki til neinna trúnaðarstarfa.

Árni gengur mjög langt í greinaskrifum sínum í dag og mér finnst hann ráðast ómaklega að Gunnari. Enda svarar hann vel fyrir sig og ætlar að kæra Árna. Má vera að Gunnar sé einum of hvassyrtur í yfirlýsingunni, en það þarf kannski ekki að koma að óvörum þar sem vegið er mjög að heiðri hans og þarf ekki að undrast að hann grípi til varna.

mbl.is Ætlar að kæra Árna Johnsen
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Voru umdeildar aðgerðir lögreglunnar réttar?

Frá mótmælum Deilt hefur verið um hlut lögreglunnar í mótmælunum við Rauðavatn á miðvikudag. Er sammála Láru Ómarsdóttur, fyrrum fréttamanni Stöðvar 2, í Kastljósviðtali í kvöld að lögreglan hafi ekki átt annarra kosta völ en taka á stöðu mála af ábyrgð og festu á miðvikudag. Mótmælin voru komin út í vitleysu. Ekkert benti til að bílstjórar ætluðu að færa bílana - engin stjórn var á því sem gerðist þar og flest sem benti til að ráðast ætti að lögreglumönnum.

Held að enginn sé hlynntur því að gas sé notað á fólk í mótmælum. En lögreglan þarf að beita valdi til að verjast ágangi þeirra sem veitast að henni. Sem betur fer eru ekki mörg dæmi um það í seinni tíð. Þarna var ástandið við suðumörk og flest sem benti til að stjórnleysið í hópnum væri orðið það mikið að taka yrði af skarið. Pétur Tyrfingsson ritaði ágætis grein á vef sinn um það hvernig öflugur leiðtogi hefði leitt sinn hóp í mótmælum en það hafi ekki gerst við Rauðavatn, þar sem enginn alvöru leiðtogi hefði frontað.

Mæli með þessari grein. Hann þekkir mjög vel mótmælasnilld og hvernig á að berjast frá verkalýðsdögunum og ég tel að hann hafi rétt fyrir sér hvar þetta varð að þeim skrípaleik sem blasti við þegar að leið á miðvikudaginn og unglingar í skemmtanaleit voru farnir að henda eggjum á lögreglumenn, bara vegna þess að það væri svo gaman en ekki vegna þess að þeir væru að verja af hugsjónaeldi málstað bílstjóranna. Lögreglunni ber að hafa stjórn á aðstæðum og ég tel að hún hafi orðið að grípa inn í.

Ekki ætla ég að segja hvort hún gekk of langt, en aðstæður voru þess eðlis að allt var farið út í vitleysu hvort eð er. Vonandi læra allir eitthvað á þessu máli, löggan sem og aðrir. Sérstaklega þó þessir bílstjórar, sem tókst undraskjótt að eyðileggja mótmælin fyrir sér, með lélegri taktík og afspyrnuslöppum talsmanni, sem því miður hefur alveg hjálparlaust gengisfellt í senn sjálfan sig og málstað þeirra sem hann frontar.

mbl.is Lögreglan eyddi gögnum af farsíma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rétt ákvörðun hjá Láru - trúverðugleikinn í húfi

Lára Ómarsdóttir Mikið hefur verið rætt og ritað um uppsögn Láru Ómarsdóttur eftir eggjakastsmálið margfræga sem skaddaði trúverðugleika hennar. Mikið hefur gengið á hjá henni og eðlilega hefur hún gengið í gegnum erfið kaflaskil eftir mikil mistök. Hún stóð sig misjafnlega við að svara fyrir sig í spjallþáttum kvöldsins, var fín í Kastljósi en öllu slappari í Íslandi í dag, en þar var líka gengið nær henni og hún átti greinilega í meiri erfiðleikum með að verjast og var þar að auki í meiri tilfinningalegu uppnámi.

Lára gerði rétt með því að segja upp. Þetta mál skaddaði bæði hana og fréttastofu Stöðvar 2 - stefndi í allsherjarvandræðagang fyrir alla þá sem þar vinna. Enda snýst fréttamennska fyrst og fremst um trúverðugleika, verði fréttamaður uppvís að því að tala óviðeigandi eða reyna að krydda fréttirnar á vettvangi þeirra er illt í efni. Trúverðugleiki fréttastofunnar var undir í þessum efnum og Lára vissi vel að málið myndi ekki gufa upp nema með því að hún tæki af skarið. Hún kláraði þetta mál því bæði af skynsemi og röggsemi án þess að hika og á réttum tímapunkti.

Efast ekki um að Lára er dugleg og samviskusöm í sínu. Efasemdir hafa þó heyrst um hvort hún væri alltaf hlutlaus og ekki hafa allir verið sáttir við hana. Ekki ætla ég að dæma hana fyrir það. Fannst Lára oft standa sig vel og gera hlutina vel, hún var ófeimin við að taka á fréttunum, spyrja erfiðra spurninga og sauma að þeim sem gera mistök í pólitíkinni eða hafa ekki gert hlutina í takt við það sem þeir lofuðu sjálfir í kosningum eða í dagsins önn þess einmanalega lífs sem oft fylgir stjórnmálum. Í eigin klúðri var eðlilega spurt um hvort hún ætti ekki að taka ábyrgð á þeim. Ekkert annað kom til greina og hún náði að ljúka málinu áður en það varð stórslys fyrir fréttastofuna.

Kemur mér samt mest á óvart að Steingrímur Sævarr Ólafsson, fréttastjóri, hafi ekki sjálfur tekið á þessu máli. Sé frásögn hans rétt af því að hann sem fréttastjóri hafi ekki tekið til sinna ráða eða viljað ljúka málinu af ábyrgð og án þess að skuggi félli á trúverðugleika vinnustaðarins er eðlilegt að spurt sé hversu sterkur fréttastjóri hann sé eiginlega. En kannski er óþarfi að spyrja: Lára lauk málinu áður en trúverðugleiki stöðvarinnar gufaði upp. En vissulega er hann skaddaður á eftir, það er ekki hægt að neita því.

Vona að allir fréttamenn læri sitt á þessu klúðri Láru. Í fréttamennsku skiptir máli að koma fram af ábyrgð og fjalla um fréttir en ekki búa þær til, hvort sem það er gert með vandræðagangi eða ásetningi.

mbl.is Steingrímur Sævarr: Lára er maður að meiri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Freaky Friday á Miklubraut

Mótmæli ungmenna Jæja, það er gott að löggan hefur tekið á málum á Miklubraut og náð að koma umferð þar á aftur eftir flipp ungmennanna. Einhver skilaboð er æska landsins sennilega að reyna að koma með á þessu föstudagssíðdegi og væntanlega fáum við að heyra eitthvað af því í kvöldfréttatímunum.

Hef aldrei verið á móti því að æska landsins hafi skoðanir á hitamálum og berjist fyrir einhverju sem það telur rétt. Sjálfur var ég einu sinni á þessum aldri og hafði mínar skoðanir, enda mjög pólitískur alla tíð og fylgdist vel með fréttum og stjórnmálum. Eðlilegt er að allt ungt fólk finni hugsjónum sínum farveg og berjist fyrir pólitískum áherslum eða það sem það einlæglega telur rétt.

En það er öllu verra þegar að æska landsins berst fyrir einhverju sem það hefur enga tilfinningu fyrir eða skilur ekki neitt í því. Því miður sást vel á mótmælunum á miðvikudaginn, sem enduðu í móa í orðsins fyllstu merkingu, að unga fólkið sem var að kasta eggjum var bara að gera það vegna þess að þeim þótti það kúl og flippaði með í takt við bílstjórana á staðnum. Ekki voru það neinar hugsjónir sem þar réðu för, allavega gátu þau ekki útskýrt hversvegna þau væru þarna. Þeim fannst þetta bara flott og spáðu ekki meira í því.

Stemmningin á Miklubraut virkar svipuð. Eitthvað flipp á föstudegi. Eða hvað?

mbl.is Rýmingu lokið á Miklubraut
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband