12.11.2007 | 16:38
Guðný verðlaunuð - Veðramót rassskellt

Fannst mér mjög undarlegt að myndin, sem var gríðarlega vel gerð, hafi ekki fengið fleiri verðlaun. Sérstaklega fannst mér áberandi þar að Hera Hilmarsdóttir fékk ekki leikkonuverðlaunin fyrir sannkallaðan leiksigur í hlutverki Dísu. Fyrirfram taldi ég felast í ellefu tilnefningum Veðramóta að myndin yrði sigursæl, enda með fimm tilnefningar umfram Foreldra. Annars voru tilnefningarnar undarlegar, enda fékk t.d. Astrópía aðeins tilnefningu fyrir leikstjórn. Ekkert samræmi í þessu vali.
Guðný Halldórsdóttir hefur gert ólíkar kvikmyndir á sínum ferli; Ungfrúin góða og húsið og Veðramót eru hennar bestu verk á meðan að flestir vilja gleyma t.d. Stellu í framboði. Stella í orlofi var hennar hugmyndaverk og það var vel heppnað, enda myndin ein hinna bestu í gríndeildinni síðustu áratugina og klikkar aldrei. Það var því mjög ánægjulegt að kaupa hana á DVD og upplifa aftur þar sem spólan með myndinni var orðin þrælslitin af ofnotkun. Hinsvegar fannst mér hún ekki verðskulda þá niðurlægingu sem fólst í Edduverðlaununum í gær þar sem hún var algjörlega sniðgengin.
Óska Guðnýju til hamingju með bjartsýnisverðlaunin - um leið finnst mér rétt að taka undir það mat hennar að almenningur var hrifnari af Veðramótum en bransinn.
![]() |
Guðný Halldórsdóttir fékk bjartsýnisverðlaunin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 16:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.11.2007 | 15:39
Stórfréttir úr hinum vestræna heimi
Mér finnst oft spes að lesa þessar erlendu samfélagsfréttir. Þær birtast okkur sem stórfréttir utan úr heimi, en eru í raun sá moli sem þeim er ætlaður að vera. Það væri nú skemmtilegt ef þessir molar fengju bara að dekka bandarískan veruleika en ekki endilega okkar. Af hverju getur mbl.is ekki bara fært okkur fréttir af líðan mæðra íslenskra tónlistarmanna? Þegar að stórt er spurt verður oft því færra um svör.
![]() |
Móðir Kanye West látin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
12.11.2007 | 12:09
Körfuboltastarfsmaður missir þrjá fingur í Ísrael

Annars finnst mér heilt yfir harkan í íþróttum vera að aukast. Íþróttamenn eru vissulega alltaf í þeirri stöðu að geta slasast í miðjum leiknum. Enda eru íþróttamenn jafnan vel tryggðir og passað upp á heilsu þeirra og allan aðbúnað. Hinsvegar er hitinn í stuðningsmönnum að aukast alltaf. Hef tekið eftir þessu hérna heima, nægir þar að rifja upp frægan leik ÍA og Keflavíkur í boltanum í sumar, þar sem lá við handalögmálum.
Íþróttir eiga að vera skemmtilegar og drengilegt yfir þeim í hvívetna. Það á að vera grunnur þeirra að tekist sé drengilega á og svo takist menn í hendur að því loknu, sætti sig við hver vann og hver tapaði.
En aumingja maðurinn þarna í Ísrael. Vonandi geta þeir komist að því hvað gerðist þarna.
![]() |
Missti þrjá fingur á körfuboltaleik |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 12:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
12.11.2007 | 10:51
Þrjú ár frá andláti Yasser Arafat

Þeim lauk með fullnaðarsigri Hamas á Gaza-ströndinni og þeir hertóku megnið af svæðinu. Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, brá á það ráð að leysa upp palestínsku heimastjórnina og lýsa yfir neyðarástandi á Gaza-ströndinni. Vald forsetans var stórlega lamað með atburðarásinni á árinu en hann stjórnar í umboði sínu til fimm ára. Uppgjörið um framtíðina bíður betri tíma að því er virðist. Á meðan ræður hver valdablokkin sínum svæði og heldur um kjarnavöld sín þar.
Það er erfitt að sjá hvað er í raun eftir af palestínsku heimastjórninni nema sundurskotin eymdin ein. Palestína er á mestu krossgötum sínum allt frá upphafsárum baráttu Arafats. Það hefði fáum órað fyrir því fyrir ellefu árum er Arafat var kjörinn forseti heimastjórnarinnar að svo skömmu síðar yrði allt í bál og brand. Arafat hlaut á sínum tíma friðarverðlaun Nóbels með Peres og Rabin vegna sögulegs friðarsamnings. Hann kostaði Rabin lífið en Peres varð á gamals aldri forseti Ísraels. Ekki hafði þó langur tími liðið þar allt var í bál og brand.
Það er mikil hætta á því að Hamas komi á íslömsku ríki á þessu svæði. Fari svo er útséð með að nokkuð vestrænt ríki vilji ljá máls á að tala máli Palestínu. Þegar hafa fjöldi aðila afturkallað aðstoð við svæðið og Bandaríkjastjórn mun að sjálfsögðu styðja Mahmoud Abbas út í rauðan dauðann, meðan að hans nýtur við sem forseta. Hamas er fylking af því tagi sem ekki er hægt að styðja og viðbúið að þau ríki sem hafa ljáð máls á að styðja Palestínu hrökklist frá verði þarna íslamskt ríki og ofbeldið grasseri af því tagi sem verið hefur.
Það verður fróðlegt að sjá hvað tekur við. Það sem eftir er af palestínsku heimastjórninni er þó ekki beysið og vandséð hvernig þar verði komið á stjórntæku ástandi í þessum glundroða öllum. Helstu átakalínur verða um hvernig forsetaembættið verði mannað á komandi árum. Kjörtímabili Abbas sem forseta lýkur eftir um tvö ár. Hann tilkynnti þegar í forsetakosningunum 2005 að hann myndi ekki gefa kost á sér til endurkjörs. Baráttan um forsetaembættið verður hörð.
Yasser Arafat var umdeildur stjórnmálamaður en hinsvegar einn af þeim eftirminnilegustu síðustu áratugina. Ég fjallaði um hann í ítarlegum pistli er hann dó, í nóvember 2004.
![]() |
Þúsundir minnast Arafat á Gaza |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
12.11.2007 | 00:28
Ragnar sigurvegari Eddunnar - trompar Veðramót
Það kom skemmtilega á óvart að Foreldrar, kvikmynd Ragnars Bragasonar, skyldi hljóta Edduna í kvöld. Fyrirfram voru flestir á því að Veðramót, sem hlaut ellefu tilnefningar, yrði sigurvegari kvöldsins. Hún hlaut þó aðeins ein verðlaun, fyrir glæsilega túlkun Jörundar Ragnarssonar á hinum misþroska Samma. Foreldrar tóku hinsvegar helstu verðlaunin. Fyrir ári töpuðu aðstandendur Foreldra slagnum á Eddunni fyrir Mýrinni, kvikmynd Baltasar Kormáks, eins og frægt er, svo sigurinn er sennilega sætur.
Foreldrar var auðvitað stórgóð mynd, vel gerð í alla staði og er vel að verðlaununum komin. Ragnar Bragason hlaut leikstjóraverðlaunin, sem hann hefur sannarlega unnið fyrir. Verð að viðurkenna að ég átti ekki von á að Ingvar E. Sigurðsson myndi hljóta aðalleikaraverðlaunin fyrir leik sinn í Foreldrum, taldi að Pétur Jóhann tæki verðlaunin. Ingvar vann þessi verðlaun líka í fyrra, þá fyrir túlkun sína á Erlendi í Mýrinni. Hefur hann unnið Edduna fyrir leik í aðalhlutverki fimm sinnum á innan við áratug, hvorki meira né minna.
Ennfremur varð mjög óvænt að Hera Hilmarsdóttir skyldi ekki hljóta Edduna fyrir leik í aðalhlutverki kvenna. Hún vann sannkallaðan leiksigur í hlutverki sínu í Veðramótum. Eflaust hefur unnið gegn henni að Tinna Hrafnsdóttir var tilnefnd fyrir leik í sömu mynd. Nanna Kristín Magnúsdóttir hlaut verðlaunin fyrir leik sinn í Foreldrum. Það er vissulega verðskuldaður sigur, en engu að síður fannst mér súrt að Hera skyldi ekki vinna. Hún átti að mínu mati frábæra túlkun í Veðramótum. Jörundur var auðvitað frábær í hlutverki Samma í Veðramótum og kom ekkert annað til greina en að hann tæki þetta.
Næturvaktin hefur unnið hug og hjörtu landsmanna síðustu vikurnar. Fantagóðir og vel gerðir þættir, sem allir eru auðvitað að tala um. Það kemur því ekki að óvörum að þeir hafi verið valdir besta leikna efni ársins og besti sjónvarpsþátturinn, í símakosningu. Næturvaktin sýnir og sannar að hægt er að gera íslenskt efni vel og vonandi mun framleiðsla leikins íslensks efnis blómstra á næstu árum. Þess sjást þegar merki með Mannaveiðum, nýjum framhaldsþætti hjá Sjónvarpinu, og Pressu, sem verður á dagskrá Stöðvar 2 bráðlega.
Egill Helgason var valinn sjónvarpsmaður ársins. Egill á það sannarlega skilið, enda unnið bæði vel og af krafti í sjónvarpi árum saman - mikils metinn vegna verka sinna. Umfjöllun hans á netinu og í sjónvarpi hefur vakið athygli og allir fylgjast með hans sjónarhorni á málin. Kiljan hlaut svo auðvitað verðlaunin í sínum flokki. Egill hefur kennt okkur að það er hægt að gera góða þætti um bókmenntir. Hans þáttur er sá besti af þeim nýju og eru algjörlega ómissandi, fyrir bókafíkla sem og aðra. Vandaðir þættir á réttri leið.
Syndir feðranna var valin heimildarmynd ársins. Virkilega vel gerð mynd um viðkvæmt efni - einfaldlega langbest í sínum flokki. Það hefur aldrei gerst áður að tveir tilnefndir hafi deilt verðlaunum saman. En það gerðist í flokki frétta- og viðtalsþátta þar sem Kompás og Út og suður unnu. Það var vandræðalegt að vissu marki að sjá fulltrúa þáttanna deila sviðinu líka en báðir verðskulduðu þessir þættir þó verðlaunin. Fulltrúar beggja þáttanna eru að gera það sem gera best í sjónvarpi.
Það kom skemmtilega á óvart að Gettu betur hlyti loks verðlaun. Þau á þátturinn skilið. Hann hefur verið í loftinu í yfir tvo áratugi en aldrei unnið neitt. Þau verðlaun á fyrst og fremst Andrés Indriðason, eins og Simmi sagði. Hann hefur fóstrað þáttinn alla tíð og hlúð vel að honum. Svo var ánægjulegt að sjá Árna Pál Jóhannesson vinna verðlaun fyrir gott verk í Kaldri slóð og hljóta um leið heiðursverðlaunin.
Fannst Eddan hinsvegar frekar slök í heildina þetta árið. Skipti oft milli stöðva í kvöld, aldrei þessu vant, fann mig ekki prógrammið í gegn í útsendingunni sem var í boði. Kynnirinn var gloppóttur og mér fannst hann ekkert fyndinn, hafi það átt að vera tilgangurinn. Fannst hinsvegar gaman af Lollu með einsmannsbandið sitt í settinu, sem gerði ágætis lukku.
Umgjörðin var semsagt slök. Það er ekki undrunarefni að farið sé að tala um Eddu Óskarsdóttur. Hinsvegar minnir hátíðin mig orðið æ meir á Golden Globe þó. Enn finnst mér við hæfi að kvarta yfir því að verðlaunað sé fyrir leik karla og kvenna saman í aukahlutverki. Vandræðalega mikið klúður. Annaðhvort á að gera þetta grande eða sleppa því.
Semsagt; Edda var gloppótt í kvöld heilt yfir, það væri við hæfi að stokka umgjörðina eitthvað upp. Ef á að hafa grín á að hafa það fyndið og alvöru, ekki viðvaningslegt blaður út í bláinn.
![]() |
Kvikmyndin Foreldrar fékk flest Edduverðlaun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 10:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
11.11.2007 | 17:24
Gísli Einarsson tekur að sér veislustjórn í beinni
Það vakti athygli mína þegar að ég horfði á Laugardagslögin í Sjónvarpinu í gærkvöldi að Gísli Einarsson fléttaði saman þáttastjórn og veislustjórn í hófi hestamanna saman í eitt verkefni á sama laugardagskvöldinu. Gísli er um margt ágætismaður sem hefur gert margt gott, en hinsvegar finnst mér það algjörlega út í hött fyrir hann að taka að sér veislustjórn í hófi á sama tíma í beinni útsendingu í þættinum og geri það að einu og sama verkefninu.
Skildi ekki þessa innkomu hans í þáttinn nema með þeim hætti að skemmtiatriði í aukavinnu hans, veislustjórahlutverki, ætti að fylla upp í þann hluta þáttarins sem hann sér um ásamt Ragnhildi Steinunni. Það hlýtur að vera lágmark að fólk skilji á milli tveggja verkefna af þessum toga og sjái sóma sinn í að boða frekar forföll frá verkefninu í Sjónvarpinu meðan að öðrum hlutum sé sinnt. Það er ekkert að því að þáttastjórnendur séu veislustjórar á öðrum vettvangi en það á ekki erindi í þátt viðkomandi.
Hef annars ekki skilið hlutverk Gísla í þættinum Laugardagslögum. Hann virðist vera svona hliðarkarakter í prógramminu og fylgihlutur Ragnhildar Steinunnar, sem er frábær sjónvarpskona og gjörsamlega fædd í hlutverkið. Finnst taktar hans að vera últrahress á laugardagskvöldi hinsvegar frekar misheppnaðir. Það hefur þó lagast örlítið eftir því sem liðið hefur á, enda var viðtal hans við Diddú fyrir viku bara ansi ágætt. En þetta var frekar súrt í gærkvöldi.
Gísli kom sá og sigraði í huga sjónvarpsáhorfenda sem spyrillinn í hinum yndislegu og sveitalegu sjónvarpsþáttum Út og suður. Hann á best heima í þeim þáttum að mínu mati og á að halda framleiðslu þeirra áfram helst. Þar er hann einfaldlega bestur. En í guðanna bænum hlífið okkur við að horfa á Gísla sinna sjónvarpsþáttastjórn og veislustjórn í prívatsamkvæmi úti í bæ á sama tíma - og á kostnað okkar skattborgara.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 17:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
11.11.2007 | 14:38
Tom Cruise að missa lykilstöðu sína í Hollywood

Cruise sem eitt sinn var gulldrengurinn í Hollywood hefur komið sér æ meir út í horn hjá stórstjörnum. Hann er nú beinlínis hataður Athygli vakti fyrir nokkrum mánuðum að Cruise varð langneðstur í könnun þar sem kannað var hvaða stjörnu fólk kysi helst að eiga sem besta vin. Sú var tíðin að Cruise var dálæti þeirra í Hollywood. Enda munaði litlu að Cruise hlyti óskarinn fyrir túlkun sína á lamaða Víetnam-hermanninum í Born on the Fourth of July árið 1990, ekki síður fyrir túlkunina á Jerry Maguire í samnefndri mynd árið 1996 og Mackey í Magnolia árið 2000.
Nú eru fáir, ef nokkrir, sem spá að Cruise muni nokkru sinni vinna óskarinn, svo hataður er hann í Hollywood vegna sérvisku sinnar og yfirdrifinnar sjálfselsku. Cruise, sem var á hápunkti ferilsins í lok níunda áratugarins og á þeim tíunda, hefur verið að reyna að byggja upp feril sinn á síðustu mánuðum með nokkrum kvikmyndum, með misjöfnum árangri. Hann reyndi að eiga endurkomu með því að túlka Ethan Hunt í Mission: Impossible III, þar sem hann reyndi að vinna eftir góða túlkun í fyrri myndunum tveimur. Á sama tíma gekk yfir upphaf frægs sambands hans við hina ungu Katie Holmes.
Það hafði engin lykiláhrif. Nýlega brá hann á það ráð að taka að sér hlutverk öldungadeildarþingmannsins Jesper Irving í kvikmyndinni Lions for Lambs. Leikur hann þar á móti óskarsverðlaunahöfunum Robert Redford og Meryl Streep. Var samstarfið á milli þeirra við gerð myndarinnar svo erfitt að Cruise er kominn á ævilangan haturslista Meryl Streep, sem talin er geta unnið með öllum leikurum og er þekkt fyrir gott skap og jákvætt hugarfar. Fæst hún ekki til að kynna myndina með Cruise og leikstjórinn Redford varð víst allt að því gráhærður við gerð myndarinnar.
Það verður sennilega rannsóknarefni fyrir kvikmyndaspekinga hvernig að Tom Cruise gat á nokkrum árum eyðilagt feril sinn. Eftir að hann skildi við Kidman hefur leiðin verið lóðbein niður á við. Kidman hefur hinsvegar gengið allt í haginn. Hún vann óskarinn fyrir fjórum árum, tókst það sem Cruise hafði alltaf dreymt um. Fátt bendir til að hann nái að feta í fótspor hennar miðað við hatrið á honum í kvikmyndaborginni.
Einu sinni var Cruise ungur og sjarmerandi. Var einmitt að horfa í gærkvöldi á kvikmyndina Risky Business frá árinu 1983, sem markaði um margt upphaf frægðarferils sólskinsstráksins Cruise. Flestir töldu þá að lykilstjarna sinnar kynslóðar væri komin til sögunnar. Og vissulega hefur hann átt góðar myndir síðustu tuttugu árin en ferillinn er að flosna upp stig af stigi og tækifærin orðin af skornum skammti.
Brátt er væntanleg í bíó metnaðarfyllsta verkefni Cruise í áraraðir, lokatilraunin til að blása lífi í slitinn ferilinn. Hann leikur Claus von Stauffenberg, lykilmann í misheppnuðu ráðabruggi um að ráða Hitler af dögum árið 1944, í kvikmyndinni Valkyrie. Myndin hefur verið umdeild og deilt hefur verið mjög víða um heim, einkum meðal ættingja Von Stauffenbergs, um að velja Cruise í hlutverkið.
Það verður áhugavert að sjá hvernig Valkyrie verður tekið og hvaða áhrif hún hafi á feril sólskinsstráksins forna. Kannski endar hann bara sem farandpredikari Vísindakirkjunnar? Heldur yrðu það dapurleg endalok á litríkan leikaraferil fornrar stjörnu.
![]() |
Redford og Streep þola ekki Tom Cruise |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
11.11.2007 | 12:47
Er Hugo Chavez endanlega að flippa yfir um?
Það er ánægjulegt að Juan Carlos, Spánarkonungur, hafi sagt einræðisherranum Hugo Chavez í Venezuela að þegja í gær þegar að hann réðst að José María Aznar, fyrrum forsætisráðherra Spánar, á leiðtogafundi ríkja Rómönsku Ameríku. Fundinum var ætlað að færa saman hinar rómönsku þjóðir en hefur sennilega aðeins fært þær í sundur. Það sést sífellt betur að einræðisherrann Chavez kann sig ekki á alþjóðavettvangi og hefur enga stjórn á sér.
Það er með óhug sem hugsað er til stjórnar Chavez í Venezuela. Hann hefur nú beitt valdi sínu til að tryggja að hann geti boðið sig endalaust fram aftur og meira að segja gerst svo óforskammaður að lengja kjörtímabilið sem hann var kjörinn til fyrir nokkrum árum um tvö ár. Það stefnir því allt í að Chavez muni drottna þarna árum saman. Þetta er ekkert frábrugðið því sem Robert Mugabe gerði, utan þess að hann á sér varla stuðningsmenn utan lands síns. Vinstrimenn víða hafa jú varið þennan einræðisherra með áberandi hætti.
Juan Carlos, Spánarkonungur, hefur jafnan þorað að tala þegar þess þarf. Það gerðist í Santiago í gær á meðan að Chavez sýndi hverslags ruddi hann er á alþjóðavettvangi. Það hvernig hann talaði um fyrrum stjórnmálamann einnar þjóðarinnar, sem lét af embætti fyrir um fjórum árum, var fyrir neðan allt og með ólíkindum hverskonar þráhyggju þessi einræðisherra er haldinn. Hann er endanlega að flippa yfir um og er vinstristefnu um allan heim til skammar.
![]() |
Spánarkonungur sagði Chaves að þegja |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
11.11.2007 | 00:26
Slitnar upp úr umtöluðu konunglegu sambandi
Um fáa hefur gustað meira innan bresku konungsfjölskyldunnar á síðustu árum en Harry, yngri son Karls og Díönu. Myndir af honum í annarlegum stellingum hafa birst í blöðum og hann þykir vera frekar laus í rásinni. Skv. fréttum hefur nú slitnað upp úr umdeildu sambandi hans og Chelsy Davy. Það er óhætt að segja að Harry hafi verið líflegasti fulltrúi konungsfjölskyldunnar á þessum fyrsta áratug 21. aldarinnar og hafi sýnt og sannað að konunglegt líf þarf ekki að vera hundleiðinlegt.
Harry hefur þó átt sínar mjúku hliðar á árinu, en hann flutti hrifnæma minningarræðu um móður sína á áratugs ártíð hennar í ágústlok. Þess á milli hefur hann þó stuðað allhressilega, svo mjög að mörgum lykilmönnum hirðarinnar hefur þótt nóg um. Eflaust er það eðlilegt að strákur á hans aldri lifi lífinu. Það hlýtur að vera leiðinlegt til lengdar að vera bundinn af hefðum og siðavenjum eldgamallar hirðar sífellt. Það þarf sterk bein til að þola góðu dagana eins og þá vondu.
Harry var ekki nema tólf ára þegar að móðir hans dó í París í skelfilegu bílslysi. Þau endalok höfðu mikil áhrif á hann, eins og hann lýsti sjálfur í sjónvarpsviðtali fyrr á árinu. Hann hefur fetað í fótspor móður sinnar með mannúðarstarfi, rétt eins og bróðir hans, en þess á milli lifað hátt svo eftir hefur verið tekið. Hann hefur lifað í skugga fjölmiðla síðustu árin, rétt eins og móðir hans áður. Hún dó allt að því í myndavélablossa paparazzi-ljósmyndara eins og frægt er orðið og lifði fjölmiðlalífi. Báðir hafa bræðurnir verið hundeltir af fjölmiðlum og ágengni þeirra aukist ár frá ári eftir endalokin í París.
Þó að flestum þyki Harry Bretaprins að einhverju leyti merkilegur einstaklingur er fjölmiðlaáráttan í kringum þetta fólk farið yfir öll mörk. Það virðist ekki geta átt neitt einkalíf og varla má það hreyfa sig án þess að það sé dekkað í fjölmiðlum. Þetta hlýtur að vera þrúgandi og leiðigjarnt líf. Enda held ég að Harry sé ekkert villtari en margir aðrir jafnaldrar hans, þó breska pressan lýsi honum sem villtum ungum manni.
![]() |
Harry prins og Chelsy Davy hætt saman |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.11.2007 | 21:26
Baltasar kvikmyndar Grafarþögn eftir Arnald

Fyrir rúmu ári var kvikmyndaútgáfa af sögu Arnaldar, Mýrinni, frumsýnd. Mýrin hefur slegið í gegn víða um heim. Hún var sigursæl á Edduverðlaununum í nóvember 2006 og hlaut fimm verðlaun, þar á meðal sem besta mynd ársins og fyrir leik Ingvars E. Sigurðssonar í hlutverki Erlends Sveinssonar, rannsóknarlögreglumanns. Ingvar fór á kostum í hlutverkinu og varð Erlendur, hvort sem við höfðum áður séð hans týpu í karakternum eður ei.
Ég var virkilega ánægður með Mýrina þegar að ég sá hana á sínum tíma og skrifaði þá þessa ítarlegu umfjöllun um hana. Þjóðin hefur með því að fjölmenna í bíó sýnt það með skýrum hætti að hún vill framhald á. Öll viljum við sjá bækur Arnaldar lifna við. Það er því gleðiefni að bráðlega muni Grafarþögn verða kvikmynduð.
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.11.2007 | 19:36
Gæslan fær nýja þyrlu í stað TF-Sifjar
Höfum við á landsbyggðinni talað með áberandi hætti á pólitískum vettvangi fyrir mikilvægri uppstokkun í þeim efnum, sérstaklega hvað varðar að björgunarþyrla sé til taks á Akureyri. Hefur hugur pólitískra fulltrúa hér verið ljós lengi, en bæjarstjórn Akureyrar hefur oft ályktað um þessi mál. Hefur pólitískur vilji alþingismanna í Norðausturkjördæmi komið vel fram í þingsölum, síðast í umræðu á Alþingi fyrir nokkrum vikum.
Það er mikilvægt að Gæslan sé vel búin og vel hlúð að henni, enda er hún okkur öllum svo mikilvæg á örlagastundum þar sem hver mínúta getur skipt máli varðandi björgun fólks. Nýja þyrlan kemur í stað TF-Sifjar sem fórst í Straumsvík í sumar, þar sem tókst að bjarga öllum sem um borð voru með giftusamlegum hætti. TF-Sif markaði stór skref í sögu Landhelgisgæslunnar og það er alveg ljóst að ný þyrla verður okkur ekki síður mikilvæg og TF-Sif.
![]() |
Ný þyrla Landhelgisgæslunnar komin til landsins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 19:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
10.11.2007 | 17:49
Undarleg túlkun Árna - tækifæri fyrir Húsvíkinga

Ég tel niðurstöðu gærdagsins vera tíðindi af því tagi að Húsvíkingar fái sóknarfæri í baráttunni fyrir nýju álveri. Það er ekkert leyndarmál að barist hefur verið fyrir nokkrum álverum. Það er þó gott að forgangsraða. Ég tel álver við Bakka farsælan kost. Þar er talað um að virkja jarðvarma, orku Þingeyinga. Það hefur komið vel fram að hugur Þingeyinga er afgerandi með stóriðju.
Fréttir Björns Þorlákssonar á Stöð 2 síðustu daga sýna vel að byggðum Þingeyinga blæðir út. Þar þurfa að koma til ný tækifæri - öflug markmið til uppbyggingar. Í þeim efnum dugir engin tæpitunga. Með réttu ætti að halda íbúakosningu í Norðurþingi um þetta mikilvæga mál. Fá fram afgerandi skoðun þeirra á málinu, hvert eigi að stefna. Ef fólk er á móti því þarf að koma fram hvað eigi að gera á Húsavík ef þessi innspýting eigi ekki að koma til greina. Við viljum skýr svör.
![]() |
Skilaboð stjórnvalda um að hægja beri á stóriðjuframkvæmdum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.11.2007 | 13:54
Framsókn í tilvistarkreppu - holur hljómur Guðna

Ræða Guðna í dag sýnir vel helsta vanda Framsóknarflokksins. Tómleiki ræðunnar sýnir umfram allt hversu mjög stjórnarandstöðuvistin er erfið Framsóknarflokknum. Þar eru fá mál til að slá sér upp með og farið í uppnefningar á pólitískum andstæðingum til að upphefja sjálfan sig. Það er reyndar ekki öfundsvert að vera í stjórnarandstöðu í þeirri stöðu sem uppi er. Segja má að stjórnarandstaðan sé áhrifalaus að mestu leyti; þrír flokkar hennar eru til samans með fimm þingmenn færri en Sjálfstæðisflokkurinn einn. Baráttuþrek hennar er enda veikt, eins og sést hefur.
Guðni Ágústsson er reyndur stjórnmálamaður, hefur verið lengi í pólitísku ati og tókst að verða formaður Framsóknarflokksins, þrátt fyrir að Halldór Ásgrímsson hefði barist gegn því er hann yfirgaf pólitíska sviðið. Guðni varð þó formaður á erfiðum tímum í sögu þessa elsta starfandi flokks landsins; eftir auðmýkjandi kosningaósigur og við upphaf endurbyggingar rústa flokksins. Hann virðist ekki hafa það sem til þarf til að rífa flokkinn upp ef marka má kannanir. Staða hans er erfið og við öllum blasir að Framsóknarflokkurinn er í gríðarlegri tilvistarkreppu og vandséð að úr rætist.
Þrátt fyrir stjórnarandstöðuvist er Framsóknarflokkurinn enn að mælast með innan við tíu prósentustig, rétt eins og meðan að flokkurinn hafði völd. Margir áttu von á að Framsókn tækist í stjórnarandstöðu að byggja sig upp. Landsmenn hafa þó ekki öðlast trú á flokknum og hann er í gríðarlega erfiðri stöðu að öllu leyti. Því er holur hljómur formannsins skiljanlegur.
Eflaust er einn vandi flokksins að hann hefur ekki endurnýjað sig í forystu. Eftir afhroðið í vor leiða tveir ráðherrar liðins valdatíma flokkinn. Hann nýtur ekki trausts landsmanna og hefur ekki hafið sig upp úr sögulegu afhroði. Að óbreyttu verður spurt að því hvenær að Guðni hrökklist frá formannsstólnum og hver taki við.
![]() |
Guðni: Forsætisráðherra er daufur og sinnulaus |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
10.11.2007 | 12:33
Ofurfyrirsætan Kate með lítið vit á stjórnmálum

Þó að Cameron hafi ekki setið nema sex ár á breska þinginu og ekki verið nema rúm tvö ár í sviðsljósinu um allan heim þarf heldur betur að vera clueless til að kveikja ekki á perunni um hver Cameron sé. Cameron gæti orðið næsti forsætisráðherra Bretlands og hefur því sennilega hlegið vel af því að Moss hafi viljað númerið hans til að fá hann í pípulagningavinnu. Hann fær varla mörg þannig boð í vinnunni.
Þessi umfjöllun er ekki beint til að auka hróður Kate Moss, sem hefur löngum verið mikið í sviðsljósinu og heimsþekkt vegna starfa sinna. Það væri kannski ráð að einhver keypti handa henni Encyclopaedia Britannica svo hún gæti gluggað í milli fyrirsætuverkefna, svona til að átta sig á því hvernig heimsmyndin er, sérstaklega veitti henni greinilega ekki af að spá smá í þeirri bresku.
![]() |
Hélt að Cameron væri pípari að atvinnu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.11.2007 | 00:19
Mafían setur boðorð til að hækka standardinn

Þeir sem kynntust Corleone-fjölskyldunni í trílógíunni um Guðfaðirinn, í leikstjórn Francis Ford Coppola, kynnast þar mafíunni eins og hún er við innsta bein. Þar snýst allt um fjölskyldugildin og að passa upp á það sem gera þarf; aginn er í grunninn númer eitt, tvö og þrjú, svo má ekki gleyma virðingunni fyrir því sem sinna þarf. Fjölskyldan var Don Vito, í magnþrunginni túlkun Marlon Brando, allt. Það breyttist þegar að næstu kynslóðir tóku við og allir sem sjá Guðfaðirinn 2 finna vel fyrir því hvernig Michael tókst að eyðileggja lykilstoðir veldisins.
Hann eyðilagði fyrst og fremst fjölskylduna með því að rækta ekki rætur hennar; sinna ekki helstu stoðum veldisins innan frá. Það molnaði vegna stjórnleysis hans á þeim þáttum sem mestu skiptu. Það er greinilegt að á Sikiley hafa boðorðin margfrægu verið sett til að taka á því, minna á hlutverk fjölskyldunnar og þess að hafa prinsipp í starfi; sýna hollustu í hvívetna, vera stundvísir og svona mætti lengi telja. Þar er talað um Cosa Nostra, frægt heiti yfir mafíuna.
Það hefur verið lýst mafíunni oftar - flest okkar þekkjum Soprano-fjölskylduna í New Jersey. Þar sjást lykilþættir þess sem um er talað vel. Yngri kynslóðirnar misstu fótanna og veldi hnignuðu. Gott dæmi nútímans í mafíubransanum kristallast þar mjög vel. Þessi boðorð sýna okkur þó vissulega mótsagnir. Umfram allt sýna þau þó vel að veldi mafíunnar er farið að hnigna, meira að segja á Sikiley. Þar sem sett eru boðorð er veikleiki til staðar. Það sést vel á hvers eðlis boðorðin eru.
Það virðist sem að örlög skáldsagnapersónunnar Michael Corleone séu þeim ítölsku ofarlega í huga miðað við þetta. Ætli þeir hafi ekki áður lesið bókina og eða séð trílógíuna?
![]() |
Lögreglan finnur 10 boðorð mafíunnar á Sikiley |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
9.11.2007 | 21:14
Byssulöggjöf hert í Finnlandi - nauðsynlegt skref

Þetta er fjarri því fyrsta skotárásin þar sem óður byssumaður skýtur niður allt sem á vegi hans verður og er varla sú síðasta. Það er bitur staðreynd auðvitað. Erfitt er að finna einhverja eina töfralausn. Ein þeirra er þó að endurskoða byssulög og herða viðurlög til muna en það er ekki ein gullin töfralausn, enda hefur sannast að sé nógu kaldrifjaður vilji að baki þess að gera slíkt og hugurinn að baki er brenglaður getur fátt stöðvað hann.
Þetta fjöldamorð vekur fólk til umhugsunar að mörgu leyti. Fyrst og fremst er þetta áfall fyrir finnskt samfélag. Það að slíkur voðaverknaður eigi sér stað í kyrrlátum norrænum framhaldsskóla, því sem á að vera fyrirmyndarsamfélag, rólegt og yfirvegað, er sláandi og fær fólk til að hugsa hlutina að mörgu leyti algjörlega upp á nýtt. Ég hef fengið komment hér og líka tölvupósta, m.a. frá vinum mínum sem búa á Norðurlöndum. Þetta er eins og gefur að skilja í öllum fjölmiðlum þar og er frétt um allan heim.
Einn sendi mér póst og spurði um hvaða skoðun ég hefði á byssueign og tengdum málum. Ég hef alla tíð verið talsmaður þess að herða lög um byssueign og setja ströng viðurlög í þeim efnum. Það á að vera grunnmál. Það er gott að vita að Finnar ætla að taka sín mál vel í gegn og ég held að hugleiðingar þeirra séu réttar á þessu stigi - þar á að herða byssulögin, en þau hafa verið mjög frjálsleg þar, eða ég hef heyrt það allavega eftir þetta fjöldamorð.
Ég hef sjálfur alltaf verið á móti skotvopnum til einkaafnota og vildi helst banna það að nær öllu leyti. Í þessum efnum þarf að tala hreint út. Ég tel að ströng byssulög skipti máli og fagna því að Finnar hugsi með þessum hætti nú. Reyndar er mikilvægt heilt yfir að við tökum heilsteypta umræðu um þessi mál á öllum Norðurlöndum. Það sem getur gerst í Finnlandi getur jú gerst hér.
Það er reyndar talað um að við stöndum vel hvað varðar byssulög hérna heima. Það er þó varhugavert að tala með þeim hætti. Við höfum jú upplifað skelfilegt morðmál af þessu tagi hérna heima, þó ekki hafi það vissulega verið fjöldamorð. Morðið á manninum á Sæbrautinni í sumar vekur vondar minningar. Það var nöturlegt morð, sem vakti óhug þjóðarinnar.
Móðir hins látna hefur sjálf sagt að sonur hennar hafi verið drepinn af manni sem hafði ekki byssuleyfi. Það er gott að heyra hennar skoðun. Hvað varðar byssumálin erum við sammála. Fram hefur komið að það mikið sé til af byssum hérlendis til að hver íbúi í nágrannasveitarfélögum Reykjavíkur eigi skotvopn. Það þarf að hugsa þessi mál öll frá grunni.
![]() |
Finnar hyggjast herða byssulöggjöfina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
9.11.2007 | 20:35
Mun ákvörðun LV flýta fyrir álveri við Húsavík?
Húsvíkingar, vinir mínir, vonuðu langflestir að Hafnfirðingar felldu stækkun álversins í Straumsvík fyrr á árinu af skiljanlegum ástæðum. Kannski má segja að Húsvíkingar og nærsveitamenn mínir í Þingeyjarsýslum sem styðja álver við Bakka gleðjist mest yfir ákvörðun Landsvirkjunar. Það hlýtur að fara svo að þessi ákvörðun Landsvirkjunar styðji stöðu Húsavíkur sem stóriðjukosts.
Það er oft sagt að eins dauði sé annars brauð. Þeir á Húsavík munu sækjast eftir því að nýta tækifærin sem koma til staðar með þessu. Það hefur sést vel á fréttum að staðan fyrir austan er erfið, byggðinni blæðir út. Þar þarf ný tækifæri - það þarf að vinna vel nú við að tryggja að þau verði að veruleika.
![]() |
Rannveig Rist: Ákvörðun Landsvirkjunar vonbrigði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.11.2007 | 17:38
Í minningu Gíslínu og Mörtu
Gíslína öðlaðist að ég tel sess í huga okkar því að hún gerði baráttu sína opinbera í netskrifum sem halda nafni hennar á lofti, hún hikaði ekki við að deila hugsunum sínum; allt í senn vonbrigðum, vonum, væntingum, eldmóð, bakslögum og baráttuþreki með okkur. Við urðum að áhorfendum að baráttu hennar, rétt eins og áður hjá þeim sem hafa skrifað um erfið veikindi. Það er ekki auðvelt að lifa svona baráttu svo opinbert og halda reisn sinni og glæsileik allt til enda. Það tókst Gíslínu. Við sem lásum bloggið söknum hennar.
Marta Guðmundsdóttir vakti athygli landsmanna þegar að hún gekk þvert yfir Grænlandsjökul í vor, skömmu eftir erfiða lyfja- og geislameðferð í kjölfar þess að greinast með brjóstakrabbamein. Gangan tók þrjár vikur og það var stolt baráttukona sem kom heim og náði sess í hug og hjarta þjóðarinnar með göngunni. Það var aðdáunarvert að fylgjast með þessu afreki hennar eftir erfið veikindi og hún talaði af miklum krafti við heimkomuna, sýndi vel að það er hægt að gera svo margt til að lifa með erfiðum sjúkdómi.
Man vel eftir góðu viðtali við Mörtu í sumar við heimkomuna. Bendi á það hérmeð. Það er sorglegt að heyra fréttir af andláti hennar, enda höfðu allir vonað og treyst á það að hún myndi ná heilsu eftir erfið veikindi.
Ég vil votta fjölskyldum Gíslínu og Mörtu innilega samúð mína. Minningin um þær, hinar miklu kjarnakonur, lifir.
9.11.2007 | 16:43
Mun skandall Keriks skaða Rudy Giuliani?

Bernard Kerik hefur verið mjög umdeildur árum saman. Hann varð heimsfrægur í kjölfar hryðjuverkanna í New York fyrir sex árum og ennfremur er George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, útnefndi hann sem ráðherra heimavarnarmála í stað Tom Ridge í desember 2004. Nokkrum dögum síðar varð hann að hætta við að þiggja útnefninguna þar sem fjölmiðlar flettu ofan af því að Kerik hafði farið á svig við bæði skatta- og innflytjendalög vegna ráðningar barnfóstru. Þótti málið vera mikill álitshnekkir fyrir forsetann og nánustu samstarfsmenn hans, en greinilegt var að fortíð Keriks hafði ekki verið könnuð.
Kerik vann traust og virðingu margra með framgöngu sinni eftir hryðjuverkin. Hafði hann skömmu fyrir ráðherraútnefninguna starfað í Írak þar sem hann vann m.a. að því að endurskipuleggja lögreglusveitir. Kerik hefur gegnt herþjónustu, starfað í fíkniefnalögreglunni og er með svartabeltið í tae kwondo. Nú á síðustu misserum hefur komið í ljós víðtæk spilling Keriks í embættistíð sinni. Málið er vandræðalegt fyrir Giuliani nú þegar að lokaspretturinn fyrir forkosningar flokkanna hefjast. Giuliani hefur verið á fullu í fjölmiðlum að reyna að tala Kerik af sér, en það breytir ekki því að þetta er skaðlegt mál.
Margfrægt er að samskipti Bush forseta og Giuliani sködduðust verulega eftir að flettaðist ofan af skrautlegri fortíð Keriks, enda hafði Giuliani mælt sérstaklega með honum við forsetann. Bað hann forsetann formlega afsökunar á að hafa komið nafni hans í umræðuna og í samræðum við forsetann. Var fljótt brugðist við og héldu borgarstjórinn fyrrverandi og kona hans strax til Washington og fóru á góðgerðarjólatónleika í borginni með forsetahjónunum til að sýna fram á að samskipti þeirra væru enn traust og öflug.
Nú er Giuliani í vænlegri stöðu - útnefning Repúblikanaflokksins virðist honum í sjónmáli í forkosningunum eftir nokkra mánuði. En verður Bernard Kerik ljón á veginum fyrir manninn sem leiddi stórborg í Bandaríkjunum í gegnum örlagatíma?
![]() |
Lögreglustjóri sakaður um spillingu gaf sig fram |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.11.2007 | 15:16
Björgólfur hjálpar ríkinu að framleiða íslenskt efni

Í vetur hefur Ríkissjónvarpið bætt sig þó svo eftir hefur verið tekið í dagskrárgerð en enn vantar talsvert upp á að leikið íslenskt efni sé meira áberandi á dagskrá Ríkissjónvarpsins. Á dagskrá Sjónvarpsins er fjöldi ágætra þátta en leikna efnið hefur setið á hakanum og ekki verið nógu stór hluti af sjónvarpsdagskránni. Hefur Stöð 2 sýnt vel með gerð Næturvaktarinnar að fólk kallar á svona efni, en þeir þættir eru með því vinsælasta í imbakassanum um þessar mundir, þetta er efni sem fólk vill sjá.
Enda hefur það sést vel með leiknu íslensku efni á borð við Undir sama þaki, Sigla himinfley, Heilsubælið í Gervahverfi, Fastir liðir eins og venjulega og Allir litir hafsins eru kaldir að þetta er efni sem vekur áhuga sjónvarpsáhorfenda. Það er kallað eftir meira af leiknu efni á skjánum. Ríkisstöðin hefur ekki verið í fararbroddi í þessum efnum. Eftir því hefur verið kallað til að hægt sé að réttlæta að ríkið reki sérstaka sjónvarpsstöð. Þar á megináhersla ekki að vera á erlent afþreyingarefni sem getur allt eins verið á einkareknu stöðvunum.
Þetta er því jákvætt skref og áhugaverðir tímar framundan tel ég hjá Ríkissjónvarpinu. Reyndar er nýlega lokið tökum á nýrri þáttaröð, Mannaveiðar, sem verða sýndir eftir jólin. Stöð 2 mun svo sýna bráðlega sjónvarpsþáttaröðina Pressan. Þó að Næturvaktin renni brátt sitt skeið á enda er því í vændum gott íslenskt leikið efni. Það er ánægjulegt að Björgólfur sjái sér hag í að bæta stöðu Sjónvarpsins í þessum efnum og hann á heiður skilinn fyrir þetta.
![]() |
Björgólfur Guðmundsson leggur fram fé til framleiðslu sjónvarpmynda |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 15:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)