9.11.2007 | 09:53
Eru þulurnar orðnar úreltar hjá Sjónvarpinu?

Einkareknu stöðvarnar hafa farið aðrar leiðir og haft rödd, oftar en ekki karlmanns sem aðalrödd. Stöð 2 hefur í fimmtán ár haft söngvarann Björgvin Halldórsson sem rödd stöðvarinnar og hefur hann sett svip á dagskrána með kynningum sínum, beitt röddinni bæði milt og léttilega og ennfremur talað með draugalegum hætti sérstaklega þegar að kynntar eru spennu- eða draugamyndir. Atli Rafn Sigurðarson, leikari, hefur verið rödd Sirkuss og Ólafur Darri Ólafsson var rödd Skjás 1, en ég held að Valur Freyr Einarsson hafi tekið við af honum.
Ég hef verið einn þeirra sem finnst þulurnar tákn síns tíma. Sé eiginlega ekki þörfina á þeim lengur. Þó er vissulega ánægjulegt að horfa á fallegar konur lesa dagskrána. Það er skemmtilega gamaldags og sjarmerandi upp að vissu marki. Þó er augljóst að tími þulanna á skjánum hefur minnkað mjög. Þær vaka ekki fram yfir miðnættið eftir dagskrárlokum um helgar og byrja seinnipartinn á vakt, fylgja ekki dagskránni alla daga frá byrjun. Þær eru þó á vakt á stórhátíðisdögum. Fyrirfram hélt ég að kynningar þeirra væru teknar upp fyrirfram þá, en svo mun ekki vera.
Sumir hafa viljað halda í þulurnar til að halda í gömlu góðu tímana. Þórhallur Gunnarsson, dagskrárstjóri Sjónvarpsins, hefur nú ákveðið að ráða fjórar nýjar þulur, svo að það er ekki beint að stefna í endalok þuluhlutverksins í tíð Þórhalls. Spyrja má sig; eru þulurnar orðnar úreltar hjá Sjónvarpinu? Er ekki kominn tími til að hætta með þulurnar og hafa bara svipað fyrirkomulag og er hjá einkareknu stöðvunum? Væri gaman að heyra í öðrum með það.
Persónulega skil ég þessa sérstöðu Ríkissjónvarpsins, sem hefur staðið allt frá því að Ása Finnsdóttir kynnti dagskrána sem fyrsta þulan á fyrsta útsendingadeginum 30. september 1966, en myndi ekki kippa mér upp við það þó að þulurnar liðu undir lok. En kannski eru stærstu rökin þau að fólk vilji horfa á fallegar konur. Það eru vissulega góð rök í sjálfu sér.
![]() |
Flugfreyja flýgur í þulustarfið á RÚV |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
8.11.2007 | 23:03
Áberandi afsökunarbeiðni frá 24 stundum

Nú setur 24 stundir út fréttina sem svo mjög var rætt um í dag og kemur með afsökunarbeiðnina þar inn á sama stað, svo að allir taki vel eftir henni. Vel gert hjá blaðinu. Finnst reyndar 24 stundir vera mjög gott blað, les það fyrst á morgnana og finnst það eiginlega orðið þeirra best. Enda er lestur þess að aukast og áhugavert að sjá hvernig þróun mála verði í næstu lestrarkönnunum.
Hvað Bacardi Breezer varðar má kannski telja eðlilegt að einhverjir hafi misskilið stöðuna. Það er þannig heilt yfir að áfengir drykkir hérlendis séu of dýrir og ansi margir sem kalla á uppstokkun í þeim efnum.
![]() |
Leiðrétting og afsökunarbeiðni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
8.11.2007 | 15:33
Pekka-Eric kvaddi fjölskyldu og skýrði sína hlið

Þetta er í grunninn nákvæmlega það sama og var í Columbine, Virginia Tech og fleiri skólum þar sem sömu hörmungar hafa gengið yfir. Að flestu leyti voru þetta skotárásir þar sem vegið var að samfélaginu, óður byssumaður að tala gegn samfélaginu og gildum þess. Heilt yfir er þetta samt svo sorglegt. Það er ólýsanlega sorglegt að norrænn framhaldsskólanemi sé tilbúinn til að fórna lífinu og drepa aðra vegna slíks boðskapar.
Það hefur svo margt heyrst um mál af þessum toga síðustu árin. Flestir líta til Bandaríkjanna í þeim efnum. Ekki má þó gleyma því að fyrir ellefu árum áttu sér stað fjöldamorð í íþróttasalnum í barnaskólanum í Dunblane í Skotlandi. Það var voðaverk sem enn hvílir sem mara yfir samfélaginu þar. Thomas Hamilton, 43 ára skoskur maður, myrti þá 16 skólabörn og kennara þeirra - hann var ekki tengdur skólanum en trylltist að flestra mati eftir að hann var rekinn sem skátahöfðingi á svæðinu.
Margir hafa horft til byssueignar. Michael Moore gerði heila heimildarmynd þar sem hann tók fyrir þau mál, Bowling for Columbine, sem var inspíruð af Columbine-fjöldamorðunum sem Harris og Klebold stóðu að. Ég hef hér áður fjallað um það mál og hvaða áhrif þeir tvímenningar hafa haft, ekki bara í Jokela heldur líka í Virginia Tech, skelfilegasta fjöldamorði í sögu Bandaríkjanna, fyrr á þessu ári. Það er þáttur sem velta verður fyrir sér en farið er að deila um af hverju Auvinen fékk leyfi fyrir byssu.
Það blasir við að Pekka-Eric Auvinen var orðinn truflaður og ofbeldisfullur. Myndbrotin á YouTube sanna það. Sama má segja um umfang árásarinnar. Hann skaut skólastýruna ótalmörgum sinnum og fór með um 70 skot á þá átta sem dóu. 20 skot voru í einu fórnarlambinu, skólastýrunni, eftir því sem fréttir herma. Það var þó skólastýrunni að þakka að fjöldamorðið varð ekki skelfilegra, hún náði í gegnum hátalarakerfi að aðvara nemendur sem tókst að flýja.
Þessi harmleikur verður sífellt sterkari myndræn áminning um að klikkaður árásarmaður leynist ekki bara í bandarískum skólum. Hættan er til staðar allsstaðar að því er virðist. En það er gott að fjöldamorðinginn skildi eftir sig kveðju og fór yfir sína hlið þessa voðaverks. Vonandi verður þá ekki erfitt að raða púslum þess saman.
![]() |
Finnland: Morðinginn skildi eftir sjálfsvígsbréf |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 15:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
8.11.2007 | 01:23
Fjöldamorðinginn í Jokela-skólanum deyr
Fjöldamorðinginn Pekka-Eric Auvinen, sem myrti átta manns í Jokela-framhaldsskólanum í Tusby í Finnlandi, lést í kvöld af sárum sínum í Töölö-sjúkrahúsinu í Helsinki. Þetta er mikil sorgarsaga og að vissu marki leitt að Auvinen lifði ekki til að hægt væri að heyra hans hlið þessa mikla harmleiks sem hann var valdur að. Þetta skelfilegasta fjöldamorð í norrænni sögu stendur enda eftir sem óráðin gáta sem þarf að leysa án fjöldamorðingjans.
Þar standa nú aðeins eftir spurningar eins og brot í stóru púsli, þau munu vonandi ná að mynda heilstæða mynd að lokum - mynd sem sýnir atburðarásina í réttu ljósi og svarar því sem eftir stendur að lokum. Fyrst og fremst er þetta mál mikið áfall fyrir okkur á Norðurlöndum. Við höfum talið okkur trú um það að við lifum í vernduðu samfélagi, það sem gerist af þessu tagi í Bandaríkjunum sé fjarlægur veruleiki og komi okkur ekkert svo mikið við. Þetta er veruleiki sem hefur nú náð til okkar á þessu samnorræna svæði. Það er skelfilegt.
Mér finnst í grunninn þetta sýna okkur að við lifum ekki í vernduðu samfélagi. Það getur verið klikkað fólk á ferli hvar sem er, fólk sem getur breytt örlögum þeirra sem við þekkjum á augabragði. Fyrst svona skelfingaratburður getur átt sér stað í norrænum framhaldsskóla þurfum við að líta á heildarmyndina öðrum augum. Það sem gerist í Bandaríkjunum er ekki lengur veruleiki sem er okkur fjarlægur. Þetta er dapurleg lexía sem við sjáum gerast með þessu. Það er ekki lengur hægt að líta á þennan veruleika sem bandarískan, sem fjarlægan.
Öll vottum við Finnum samúð okkar. Þetta er þeim gríðarlegt áfall skiljanlega, þetta er þó ekki bara áfall þeirra heldur okkar allra. Þessi veruleiki er sláandi í okkar umhverfi.
![]() |
Forseti Íslands sendi Finnum samúðarkveðjur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 01:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
7.11.2007 | 20:06
Þjóðarsorg í Finnlandi - nöturlegur harmleikur
Það er þjóðarsorg í Finnlandi. Harmleikurinn í Jokela-framhaldsskólanum hefur hreyft við öllum sem fylgst hafa með fréttum - þetta er nöturlegur harmleikur sem erfitt er að lýsa með orðum í sannleika sagt. Sorg hvílir yfir friðsælu skólasamfélagi og frændum okkar Finnum öllum. Það er mikilvægt að sýna þessu fólki samúð.
Púslin á bakvið þennan harmleik raðast nú saman hægt og hljótt. Fjölmiðlar og lögreglan fara yfir það sem vitað er. Að mörgu leyti er persóna fjöldamorðingjans enn hulin þoku, þó púslin raðist saman eitt og eitt. Það bendir nú flest til þess að ástæða fjöldamorðsins hafi verið hatur á skólanum, en hann hafði flosnað þar upp úr námi. Myndklippurnar sýna andlega vanheilsu stráksins og hatur hans á samfélaginu.
Það hefur verið lærdómsríkt að fylgjast með fréttum frá Finnlandi vegna málsins. Þetta er skelfilegasta skotárás í sögu Norðurlanda, allavega í seinni tíð. Viti einhver um fjöldamorð af þessum skala hér á Norðurlöndum áður væri gott að vita um það allavega. Vettvangurinn er friðsælt skólahverfi. Það vekur margar spurningar og skiljanlegt að reynt sé að fá svör við stórum spurningum. Heiftin sem sést í skotmanninum í myndbrotunum blasa við, hann er vopnaður og vill senda skilaboð um mjög margt, afleiðinging niðurbældrar ólgu að því er virðist, gegn skólanum og eflaust fleiru.
Það er greinilegt að Pavinen horfir til skotárásarinnar í Columbine-skólanum í Colorado í apríl 1999. Ekki aðeins spilar hann lög með sveitinni sem Klebold og Harris mátu mest, heldur virðist hann fara eftir bandarískum fyrirmyndum. Klebold og Harris voru einfarar, menn sem voru í skugga félagslífsins og lifðu sínu lífi, voru í eigin heimi. Það verður áhugavert að sjá meiri púsl opinberast í málinu.
Þetta er allt mjög líkt fjöldamorðunum í Virginia Tech fyrr á árinu. Cho Seung-Hui stúderaði Harris og Klebold og talaði reyndar um þá sem píslarvætti. Harris og Klebold hafa reyndar öðlast sess í huga margra og er enginn vafi að Columbine er í senn bæði cult-fyrirbæri margra og fjöldi ungra Bandaríkjamanna líta t.d. á Harris og Klebold sem uppreisnarmenn sem hafi gert það eina sem þeir gátu gert.
Skelfilegur hugsunarháttur. Það má spyrja sig að því hvort að einelti hafi verið einn aðalþáttur þess hvernig fór í Jokela eða hliðarþáttur. En hugur okkar allra er í Finnlandi á þessum sorgardegi.
![]() |
Forseti Finnlands harmi sleginn vegna atburðanna í Tuusula |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.11.2007 | 17:04
Árásarmaðurinn lifandi eftir sjálfsvígstilraun

Þetta er alveg skelfilegt mál. Þegar hafa borist fregnir að árásin hafi verið vel plönuð af árásarmanninum og plan hennar komið fram meira að segja í myndklippu á YouTube. Þegar hefur þessi mynd hér til hliðar verið opinberuð sem sýnir brot úr henni. Klippan var sett inn á svæðið fyrr í dag. Auvinen setti klippurnar inn ásamt fleirum undir nafninu Sturmgeist89 og ber klippan einfaldlega heitið Jokela High School Massacre - 11/7/2007.
Athygli vekur að á klippunni hljómar undir lagið Stray Bullet með rokkbandinu KMFDM, en textar þeirra höfðu mikil áhrif á Eric Harris og Dylan Klebold, nemendurna sem stóðu að fjöldamorðunum í Columbine-skólanum í Colorado árið 1999. Þessi bandaríski veruleiki í Finnlandi er sannarlega sláandi og eflaust mun enn meira koma fram sem varpar ljósi á þennan harmleik.
Myndklippan
![]() |
Árásarmaðurinn í Finnlandi reyndi að fyrirfara sér |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 17:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
7.11.2007 | 16:00
Skelfilegt fjöldamorð í finnskum skóla

Þetta eru óneitanlega mjög sláandi tíðindi, þetta er gríðarlegt áfall fyrir finnskt samfélag, svo skömmu eftir aðrar fyrri skotárásir er skelfilegt að upplifa svona mál hér á Norðurlöndum. Hef verið að skoða norrænar vefsíður til að fá betri fréttir, þar sem ég er ekki beint góður í finnskunni hef ég skoðað þær dönsku helst. Þessi mikli harmleikur er skelfilegri en orð fá lýst og það er vonandi að Finnland nái sér sem fyrst úr þeirri skelfingu sem þessu fylgir.
Þetta er mikill sorgardagur fyrir Finna og þessi vondu tíðindi skekja samfélagið þar og mun víðar. Þetta hefur verið erfiður bandarískur veruleiki og því mikið högg að upplifa svona skólaárás byssumanns, nemanda við skóla, hér á Norðurlöndum, þar sem flestir hafa talið einmitt allt vera í lagi.
Samfélagið í þessum skóla er í rúst og það mun taka langan tíma að yfirvinna svona skelfilega örlagastungu á viðkvæman blett. Hugur okkar allra er í Finnlandi á þessum sorgardegi þeirra.
![]() |
Sjö myrtir í skotárás í framhaldsskóla í Finnlandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 16:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
7.11.2007 | 13:19
Gyðjubarninu tryggt farsælt líf
Öðru hverju birtast fréttir þar sem sagt er af einstökum börnum, sem einhverra hluta vegna hafa komið öðruvísi í heiminn en öll hin börnin. Það er sérstaklega athyglisvert að fylgjast með fréttum af indverska gyðjubarninu, sem fæddist með fjóra handleggi og fótleggi. Þetta hlýtur að teljast nær einstakt tilfelli, en ansi oft heyrum við af samvöxnum tvíburum eða að fleiri puttar eða tær séu til staðar. Þessi einstöku börn öðlast jafnan heimsathygli og fylgst er með uppvaxtarárum þeirra.
Eflaust verður það sama um þetta blessaða barn. Mestu skiptir að aðgerðin gekk vel og vonandi hefur barninu verið tryggt farsælt líf, sem hefði ekki getað orðið við óbreyttar aðstæður. En þetta er enn eitt kraftaverk heimsins og til marks um hvað læknavísindin eru góð, hægt sé að gera hrein kraftaverk til að tryggja að þeir fæðast öðruvísi fái hjálp við að geta lifað lífinu sem við öll teljum svo mikilvægt, sé hægt að veita hana.
Stundum er ekki hægt að hjálpa en vísindin tryggja að það er hægt fyrir æ fleiri. Það skiptir máli og því er þessi frétt svo jákvæð og gott að allt gekk vel.
![]() |
Aðgerð á gyðjubarninu" gekk vel |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
7.11.2007 | 00:11
Sjokkerandi flugreynsla fyrir austan

Það er fyrir mestu að þetta gekk allt vel og að ekki fór illa. Sé þó að einn farþegi kvartar í frétt á vísi.is yfir því að ekki hafi verið nógu vel gert við farþegana, þeim t.d. ekki boðin gisting fyrir austan eða hugsað um að redda þá annarri vél austur til að koma þeim heim. Þessi frétt vakti athygli mína.
Heilt vona ég að allt hafi annars farið vel, fólkinu liðið vel og allir verið ánægðir að leiðarlokum með hversu vel tókst til að lokum.
![]() |
Lenti aftur á Egilsstaðaflugvelli eftir að olíuþrýstingur í öðrum hreyfli féll |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 01:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
6.11.2007 | 23:47
Mikilvæg yfirlýsing - skytturnar skjóta yfir markið

Björn Ingi Hrafnsson, borgarfulltrúi, vék að þessum þætti fyrir nokkrum dögum. Það var augljóslega partur af einhverri vörn eða beina sviðsljósinu annað, fyrst vék Pétur Gunnarsson að þessum þætti og Björn Ingi svaraði honum svo. Þetta er enn eitt afgerandi merki spunamennskunnar þeirra á milli. Mér finnst enda fréttavefurinn eyjan.is ótrúlega hliðhollur Birni Inga og augljóst að hann er ekki óháður í þessum efnum. Varnarrullan fyrir Björn Inga og Framsóknarflokkinn birtist oft með áberandi hætti, svo mjög að eftir er tekið, af fréttavef að vera.
Það er reyndar með ólíkindum að fylgjast með spunaskyttunum þremur; Valgerði Sverrisdóttur, Birni Inga og Pétri Gunnarssyni í þessum efnum. Pistill Valgerðar í dag birtist sem hneykslunarskrif á því að borgarfulltrúarnir sex hefðu farið eftir pólitískri sannfæringu sinni. Var þetta eins og móðurlegar leiðbeiningar til þeirra um að standa ekki við pólitískar hugsjónir sínar - skrifa upp á samruna án almennilegrar kynningar. Ég held að Valgerður ætti að hugsa um vonda stöðu eigin flokks áður en hún lítur í aðrar áttir. Framsóknarflokkurinn er enn að dansa í níu prósentum í nýjustu könnun Gallups. Aumt er það fley orðið.
Yfirlýsingar Björns Inga sem eiga að beina kastljósinu að Geir H. Haarde vekja athygli. Þær verða þó auðvitað flokkaðar sem sú smjörklípa er við blasir. Spunaskyttur Framsóknar hafa skotið vel yfir markið og verður áhugavert að sjá hvað kemur næst frá þessu liði.
![]() |
Geir segist ekki hafa lagt blessun sína yfir samruna REI og GGE |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.11.2007 | 18:03
Björn Ingi talar ekkert um eigin hliðar REI-málsins

Sat ekki Björn Ingi í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur og REI? Var hann ekki sem leiðtogi meirihlutaflokks á fullu í öllum lykilákvörðunum þessa máls? Hann var eini kjörni fulltrúi borgarbúa í stjórn REI og eðlilega er því spurt um pólitíska ábyrgð hans í málinu. Hversvegna talar hann enn um afstöðu Sjálfstæðisflokksins? Það er ekki nema von að spurt sé. Björn Ingi hefur slitið samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn vegna stöðu REI-málsins en nú hefur nýji meirihlutinn slegið á puttana á honum og stefnt málinu í betri áttir að mínu mati. En það er fjarstæðukennt að Björn Ingi tali ekki um sinn þátt málsins.
Það sem mér fannst reyndar fyndnast var að Björn Ingi sagðist hafa axlað pólitíska ábyrgð á REI-málinu með því að sprengja meirihlutann. Þetta er nú með því fyndnara sem komið hefur úr þessari áttinni lengi. Ég man að DV og ýmsir fjölmiðlar, meira að segja Bjarni Harðarson, alþingismaður Framsóknarflokksins, kröfðust afsagnar Björns Inga Hrafnssonar í hita REI-málsins. Hvar er sú gagnrýni núna? Bjarni er þagnaður (þagnaði vandræðalega í beinni örlagadaginn 11/10) og það er pressan líka, eða ég fæ ekki betur séð.
En það er vissulega pólitískt afrek fyrir Björn Inga að geta haldið hálftímaræðu með staðreyndum út og suður án þess að tala um eigin þátt, nýja stöðu mála og framvindu þess í framhaldinu. Það er ekki furða að sumir nefni Björn Inga konung smjörklípunnar eftir þessa ræðu.
![]() |
Björn Ingi: Kannski er byltingarforinginn fundinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
6.11.2007 | 16:50
Vissi Geir um samrunann á undan borgarfulltrúum?
Þetta er að mínu mati mikilvægir þættir sem duga engar kjaftasögur um. Það þarf að fá fram í dagsljósið. Mér finnst það vera mjög dapurlegt fyrir forystu Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík sé það svo að óbreyttir borgarfulltrúar flokksins, kjörnir fulltrúar hans í borgarmálunum, hafi fengið að vita um samrunann svo seint og jafnvel á eftir formanni flokksins, eins og mjög háværar sögusagnir eru nú um.
Mér finnast skýringar Jóns Kristins Snæhólm, fyrrverandi aðstoðarmanns borgarstjóra, sem fram komu á vísi.is í dag mjög athyglisverðar og finnst vanta eitthvað í þá frásögn, þar sem hann skiptir að því er virðist um útgáfu á skömmu millibili. Það er ekki undrunarefni að fólk leitist eftir að vita þessa atburðarás með svo háværar sögusagnir.
Það er ágætt að fara yfir þennan þátt málsins, enda hlýtur það að teljast vont fyrir flokkinn ef borgarfulltrúar hafa farið inn á fundinn kvöldið fyrir tilkynningu um samrunann án þess að vita nokkuð. Lýsingar á atburðarásinni komu fram í vandaðri umfjöllun Péturs Blöndals í Mogganum um helgina, sem sýndi málið í mjög áhugaverðu samhengi.
Þar kom æ betur fram að sólóspil fyrrverandi borgarstjóra í málinu innan borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins var algjör.
![]() |
Björn Ingi segir að forsætisráðherra hafi vitað um samruna REI og GGE |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
6.11.2007 | 12:02
Fáránlegar hámarksupphæðir í tollinum

Finnst það gott hjá Neytendasamtökunum að taka þetta mál fyrir og fjalla vel um það. Á því er sannarlega þörf. Sérstaklega er eðlilegt að þetta mál verði ofarlega í umræðunni í aðdraganda jólahátíðarinnar sjálfrar, enda fara Íslendingar oft erlendis til að versla hitt og þetta, oftar en ekki sérstaklega föt og því finna flestir vel fyrir þessum fáránlegu mörkum sem koma þarna fram.
Held að það ætti að huga að því að stokka þetta upp. Það þarf að færa þessi mörk í eðlilegri hæðir en þessar.
![]() |
Jólafötin tekin í tollinum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
6.11.2007 | 10:00
Leyndarhjúpurinn yfir OR þolir ekki dagsljósið

Það hefur verið ævintýralega áhugavert að fylgjast með málefnum Orkuveitu Reykjavíkur síðustu árin. Þar eru mörg spurningamerki sem blasa við og ekki nema von að þeir sem eigi fyrirtækið vilji fá þau svör sem mestu skipta. Þessi leyndarhjúpur er því algjörlega óskiljanlegur og beinlínis óviðeigandi sérstaklega í þeirri stöðu sem fyrirtækið hefur verið í síðustu vikur þar sem hitamál þar innbyrðis urðu örlagavaldur í forystu Reykjavíkurborgar.
Leyndarhjúpur af þessu tagi leiðir til þess að enn fleiri spurningar vakna en áður lágu fyrir. Hvað er að fela? Hversvegna þarf að leyna skattborgurum þessum upplýsingum?
![]() |
Launin þola ekki dagsljós |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.11.2007 | 00:50
Össur brosir sínu breiðasta eins og jólabarnið

Þetta var áhugavert að sjá, þeir sem eru ósammála mér með uppveðrun Össurar mega ekki misskilja mig. En er ekki hægt að ætlast til þess að iðnaðarráðherrann verði ekki eins og smábarn á aðfangadagskvöld af fögnuði og reyni aðeins að hemja gleði sína? Fréttaflutningurinn af Asíuför Össurar var svo háfleygur að ég hélt stundum að ég væri að fylgjast með fréttum af sigurförum landnema fyrr á öldum þegar að þeir voru að nema fjarlæg lönd. Slík var presentering ráðherrans í skrifum frá einhverju austurlensku hótelherbergi.
Ráðherrann fór reyndar út með REI-málið allt sprungið í loft upp; samruna sem enginn kjörinn fulltrúi vildi kynna er á hólminn kom og fór Bjarnalaus út því að Svandís bannaði honum að fara. Og Össur var bara hissa á þessu en hafði reyndar á orði að enginn hefði saknað Bjarna, sennilega vegna þess að hann var ábyggilega áfjáðari í bissnessnum en Bjarni sjálfur. Það er kannski svo gaman að dæla út fyndnum bröndurum um fjárfestingar og pólitíska sigra á erlendri grundu. Veit ekki.
Það er greinilegt að Svandís Svavarsdóttir var ekkert alltof hamingjusöm með yfirlýsingar ráðherrans sem var háfleygari í spádómum sínum en nokkur kjörinn borgarfulltrúi, eftir að meirihlutinn sló á puttana á Birni Inga það er að segja. Enda er þetta mál kjörinna fulltrúa í Reykjavík. Þar hafa menn tekið réttar ákvarðanir og markað kúrsinn betur eftir klúður fyrri meirihluta. Og Svandís vill auðvitað stjórna þeirri för en ekki setjast afturí hjá honum Össuri.
Iðnaðarráðherrann veit vonandi að í þessu skattpeningaævintýri sem hann talar fyrir eins og gamaldags brosmildur bílasali eru fólgnar áhættur. Öll fjárfesting, hversu vel hún mögulega lítur út á pappír, er fúlasta alvara. Áhættan í þessum bransa er sérlega mikil. Össur talar mikið um skoðanaskipti sjálfstæðismanna. En eftir stendur að afstaða sexmenninganna í borgarstjórn hefur að mestu orðið ofan á. Samruninn er úr sögunni og þá Lilju vilja flestir kveðið hafa.
Það eru annars svo margar spurningar í þessum efnum. Peninga skattborgara verður að meðhöndla af alvöru og ekki leika með þá eins og spilapeninga í Las Vegas. Það verður að hugsa málin vel og í því ljósi skil ég ekki söluherferð iðnaðarráðherrans, sem virðist áfjáðari en borgaryfirvöld í að nema lönd í austurvegi og fetar þar í fótspor bissnessmanna á borð við Hannes og Bjarna.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
5.11.2007 | 22:51
Algjört ógeð
Ekki er langt síðan að það kom fram að um 50 ábendingar um ólöglegt efni á netinu berist að jafnaði til Barnaheilla á mánuði - í 30-40% tilvika má telja að um barnaklám sé að ræða, þ.e. efni sem sýnir kynferðislegt ofbeldi í garð barna. Sérstaklega sláandi var þá að mig minnir að margar þessara tilkynninga var vegna klámauglýsinga á tölvuleikjasíðum, sem tengdar voru íslenskum leikjasíðum.
Þetta er óhugnaður sem berjast verður gegn með öllum tiltækum ráðum að mínu mati. Það er gott að svo vel sé tekið á málum á alþjóðavísu sem þetta mál er, en það samt sláandi hversu víðtækt þetta ógeð er heilt yfir.
![]() |
Níutíu og tveir handteknir í aðgerðum gegn barnaklámi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt 6.11.2007 kl. 00:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.11.2007 | 17:24
Sorglegt dauðsfall vegna trúarbragða
Í grunninn finnst mér trú vissulega mjög mikilvæg, en ég myndi aldrei velja að fórna frekar lífinu en einhverju sem trúin talar gegn; því sem gæti haldið í mér lífinu á raunastundu. Mannleg skynsemi á að vera öllu ofar. Þetta er því verulega sorglegt mál og stingur inn í hjartarót vægast sagt.
![]() |
Þáði ekki blóð og lést af barnsförum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
5.11.2007 | 16:51
Kárahnjúkavirkjun gangsett - tímamót fyrir austan

Það var því táknrænt að Ólafur Ragnar skyldi sjálfur leggja hornstein að stöðvarhúsi Kárahnjúkavirkjunar, Fljótsdalsstöð, fyrir einu og hálfu ári. Það var gott að hann sem forseti Íslands skyldi staðfesta framkvæmdina og mæta sjálfur þangað, með stjórnmálamönnum, sem tóku virkan þátt í málinu á öllum stigum þess. Framkvæmdin skiptir Austfirðinga miklu máli og finna má hversu mjög framkvæmdir á öllum stigum hafa styrkt Austurland allt, ekki síður Egilsstaði og nágrenni en Fjarðabyggð.
Vil óska Austfirðingum til hamingju á þessum degi. Það þurfti mikla baráttu til að tryggja framkvæmdirnar fyrir austan, baráttu sem var sannarlega vel þess virði.
![]() |
Kárahnjúkavirkjun byrjar að framleiða rafmagn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
4.11.2007 | 20:45
Enn eitt kynlífshneyksli nemanda og kennara í USA
Það hefur gerst ótrúlega oft í Bandaríkjunum, og reyndar í Bretlandi meira að segja, að kvenkyns kennarar, oftast á þrítugsaldri, hefji ástarsamband með unglingsstrákum. Það hefur líka gerst, með eftirminnilegum hætti, að kennari hafi táldregið nemanda til að drepa mann sinn með þeim loforðum að þá gætu þau verið saman. Þetta mál í Nebraska er auðvitað skelfilegt, enda er algjörlega siðlaust og ógeðslegt að kennari leiti eftir kynlífssambandi við nemanda sinn.
Það að þrettán ára nemendur sofi hjá kennaranum sínum er auðvitað bara skelfilegt dæmi um hversu lágt meira að segja kennarar ganga í siðleysinu. Þetta er sorglegt mál, en það er áminning um það að jafnvel í skólanum eru börn ekki óhult.
![]() |
Kennari tældi ólöglegan innflytjanda úr landi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
4.11.2007 | 19:15
Á löggan að vera leigubílastöð ölvaðra?

Það er reyndar oft spes að heyra fréttirnar af þeim ölvuðu sem vantar far. Ófáar þeirra hafa orðið goðsagnakenndar og bætt við sig talsverðu í meðförum manna á milli. Það er vissulega svo að þeir sem verða mjög ölvaðir keyra ekki burt af vettvangi séu þeir handteknir. Heilt yfir væri eðlilegast, sé ekki möguleiki á að koma þeim til síns heima fljótt og vel innan eigin sveitarfélags, að þeir sofi úr sér hjá lögreglu eða komið burt þá með leigubílum ella, þar sem þeir eru þá til staðar.
Það er varla hægt að ætlast til að það sé í verkahring lögreglu að ferðast sveitarfélaganna á milli til að fara með fólk heim til sín. Þetta virðist þó hafa farið ágætlega á Selfossi, enda fékk viðkomandi maður að sofa nóttina og ölvímuna af sér hjá lögregluyfirvöldum.
![]() |
Vildi fá far með lögreglunni til Reykjavíkur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)