19.3.2008 | 12:21
Krónan lækkar enn í aðdraganda páskanna

Það má búast við dökkri tíð eftir páskana snúi krónan ekki aftur sem trúverðugur gjaldmiðill. Verðbólgan er fljót að taka þennan takt að óbreyttu og verð á nauðsynjavörum mun hækka verulega. Það eru vonbrigði að ekki hafi birt yfir og það er alveg ljóst að áframhaldandi þróun af þessu tagi mun koma harkalega niður á okkur öllum.
Það er auðvitað vont tíðarfar víðar en hérlendis. En það er spurning hvort það sé rétt að þetta komi harðar niður á okkur en öðrum. Merkilegur lestur er þetta allavega.
![]() |
Krónan heldur áfram að lækka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
18.3.2008 | 23:51
Páll Óskar rakar að sér verðlaunum

Björk vinnur enn og aftur. Mætti ekki frekar en mörg hin fyrri árin. Held að hún hafi unnið þessi verðlaun sjö eða átta sinnum síðustu fimmtán árin, kannski meira en það. Man það satt best að segja ekki. Það eru orðin svo lítil tíðindi að hún vinni að sömu mennirnir mæta alltaf og taka við verðlaununum. En hún á þau skilið, er söngkona á heimsmælikvarða og stóð sig vel með því að helga Tíbet lagið Declare Independence um daginn.
Fannst það súperflott að sjá meistara Rúnar Júl taka við heiðursverðlaununum. Hann er enn flottur kappinn, syngur á fullu og stendur sig vel. Það er flott statement að verðlauna poppgeirann með þessum hætti, en oft hafa söngvarar á lokum ferilsins unnið verðlaunin - vissulega átt þau skilið en þetta hafa mun frekar verið verðlaun viss geira tónlistarinnar og því gaman að sjá frontmann einnar bestu hljómsveitar sjöunda áratugarins fá þessi verðlaun. Á þau líka svo innilega skilið.
Gaman að sjá Hjaltalín taka verðlaun. Flott band og mér fannst platan þeirra með þeim betri á síðasta ári. Merkilegast að sjá að Sprengjuhöllin fór frekar sneypt frá velli, taldi þá myndu fá meiri sess á kvöldinu, en þeir áttu flotta plötu í fyrra, sem einhvernveginn varð tímamótaplata strax og hún kom út. En auðvitað var lagið Verðum í sambandi valið hið besta á síðasta ári - enda klárlega það lag sem mest var spilað síðasta sumar. Flott lag.
En kannski eru þessi verðlaun orðin stöðnuð og þarf að hrista þau upp. Það mætti eflaust eitthvað taka þau í gegn og stokka upp.
![]() |
Páll Óskar og Björk söngvarar ársins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt 19.3.2008 kl. 00:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
18.3.2008 | 21:46
Dómarinn tætir Heather í sig í dómsúrskurði

Heather, eða Mucca eins og breska pressan kallar hana, er auðvitað algjörlega búin að tapa þessu máli. Fékk frekar lítið af ævistarfi bítilsins í sinn hlut og er fúl. Hún virðist vera kvendjöfull hinn mesti og skreytir sig með fögrum orðum um líknarstarf sitt og segir sig vera hálfgerðan dýrling sem hugsi um fátæka frekar en sjálfan sig. Þessi helgivella hennar virðist ekki ná að heilla einn né neinn enda er hún svo innilega fölsk og ómerkileg konan að allir tæta hana í sig.
Sagan mun dæma hana vegna þess hvernig hún kom fram við Paul McCartney, mergsaug hann og ætlaði að misnota til að auðgast sjálf verulega. Miðað við frásagnir ætlaði hún sér aldrei annað en peninga og auð með því að giftast bítlinum og það er vandséð hvernig að hún komist heil út úr þessu máli. Eftirmæli hennar verða ekki fögur.
![]() |
Dómari gagnrýnir Mills í úrskurði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 22:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
18.3.2008 | 18:02
Er nektin feimnismál í sundlaugunum?
Það er svolítið sérstakt að fólk megi ekki vera berskjaldað vilji það svo. Það er svosem deilt um hversu langt nekt eigi að ganga áður en hún verður ósmekkleg. Það yrði t.d. eitthvað sagt ef karlmenn færu án sundskýlu í sundið. En varla er verið að deila um það að þessi kona vildi sleppa sundbuxum eða fötum sem hylja hennar allra heilagasta. Um er að ræða hvort konur eigi að vera berar að ofan eins og karlarnir.
Það er áhugavert að lesa skrif sumra um þessa frétt. Finnst flestir gera gaman af þessu skondna atviki, sumir eru mjög hissa á blessaðri konunni. En þessi yfirlýsing konunnar um að gera lítið úr boðum og bönnum í sundlaugum landsins leiðir til umræðu hversu langt nektin eigi að ganga. Er þetta kannski mesta feimnismálið í sundlaugunum. Það er allavega ljóst hvað verður rætt í heitu pottunum næstu dagana.
![]() |
Bannað að bera brjóstin í Hveró |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
18.3.2008 | 16:46
The Talented Mr. Minghella

The English Patient er að mínu mati ein besta kvikmynd tíunda áratugarins. Hún er meistaraverk síns tíma, virkilega vel gerð og leikurinn í henni er frábær. Hún hlaut níu óskarsverðlaun á sínum tíma, t.d. sem besta kvikmynd ársins 1996, fyrir leik Juliette Binoche, hina undurfögru kvikmyndatöku og Minghella hlaut leikstjóraóskarinn. Myndin er ekki allra en fyrir fagurkera á kvikmyndir er þetta ein af hinum ómissandi myndum tíunda áratugarins - sannkallað listaverk sem fangar tíðarandann.
The Talented Mr. Ripley er líka mjög góð mynd. Það er mynd sem mörgum fannst of löng og sundurlaus í endinn. Fangaði mig samt, hún er skemmtileg blanda af náttúrufegurð og heillandi lífsgleði en snýr svo við blaðinu undir lokin og breytist í kalda spennumynd sem mörgum fannst aldrei ætla að enda á meðan að fagurkerarnir sáu svo margt skemmtilegt við hana. Fannst t.d. Matt Damon ná hápunkti á ferli sínum þar og Jude Law hlaut óskarstilnefningu fyrir þessa bestu stund síns ferils.
Cold Mountain er líka ein af þessum myndum; tekur marga vinkla og stekkur fram og til baka í kómík og alvöru - gerir það líka svo virkilega vel. Þar er Nicole Kidman í toppformi, Jude Law er auðvitað algjörlega magnaður sem Inman og svo er Renée Zellweger algjörlega brilljant (og fékk óskarinn) sem óslípaða suðurríkjakjarnakonan Ruby. Hún er líka umdeild fyrir það að vera kannski einum of löng og taka of marga vinkla. En hún er samt mjög vel gerð og handbragðið er traust.
Minghella átti farsælan feril sem leikhúsmaður og gerði þar mörg sín bestu verk - var metinn mikils af gagnrýnendum og að margra mati var hann leikhúsmaður í kvikmyndagerð; ræktaði allar hliðar verksins. En hápunkturinn hans er The English Patient, hin frábæra háklassamynd, sem heldur merki hans hátt á lofti.
Það voru margir sem vissu ekkert hver Minghella var þegar að hann fangaði hug og hjarta akademíunnar fyrir áratug. Það var hans sigurstund og öll hans verk eftir það voru borin saman við þá meistarasmíð. Enda toppaði hann það lykilverk tíunda áratugarins aldrei.
Hann kunni þá list að gera stórar og vel gerðar háklassamyndir og myndirnar hans hafa allar þann stimpil að vel var nostrað við þær, sumar kannski einum of. Hann var listamaður sem kunni sitt verk og gerði myndir sem munu lifa.
Þetta atriði, undir lok kvikmyndarinnar The English Patient, er eitt hið besta í seinni tíma kvikmyndagerð að mínu mati. Frábærlega gert, meistarasmíð.
![]() |
Anthony Minghella látinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Kvikmyndir | Breytt s.d. kl. 17:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
18.3.2008 | 13:36
Kvendjöfullinn Heather missir stjórn á sér

Hún styrkir altént ekki stöðu sína með þessari framkomu. Breska pressan kallar reyndar Heather hinu miður fallega orði Mucca (eða beljuna) sem er skopstæling á Macca að sjálfsögðu.
![]() |
Hellti vatni yfir lögmanninn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 14:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
18.3.2008 | 12:51
Stjórnvöld bíða og vonast eftir bjartari tíð

Fátt annað virðist öruggt í Stjórnarráðinu. Á sömu stund og stjórnmálamenn víða um heim kynna einhverjar tillögur til að taka á þeim augljósa vanda sem er uppi bíða stjórnvöld hér og taka ekki af skarið. Það má vera að einhverjum þyki það ábyrgt og traust en ég held að flestir séu að spyrja sig hvað stjórnvöld hér séu almennt að hugsa um þessa krísu. Auðvitað vona allir að þetta sé tímabundið vandamál en ég held að við höfum ekki náð botninum enn og erfiðir tímar framundan.
Mörgum finnst gaman að halda blaðamannafundi. Man að frægur hægrisinnaður stjórnmálamaður sagði eitt sinn að það væri það skemmtilegasta sem hann gerði að mæta pressunni og svara spurningum. Það væri mesta gleðin við djobbið. Veit ekki hvort Geir H. Haarde tekur undir það. Sá að hann var ekkert glaður með eina spurningu Lóu Aldísardóttur og það virkaði svolítið sérstakt að sjá þennan blaðamannafund sem eiginlega hefur engin tíðindi í för með sér nema að það eigi að reyna að bíða af sér þennan ólgusjó.
Það er svo spurning hversu fljótlega birti til í þessum kortum sem blasa við. Enn verra er að eiga stjórnvöld sem engin svör eiga við krísuástandi. Það eru mestu vonbrigðin á þessum degi. En kannski eru engin svör að finna.
![]() |
Engar aðgerðir fyrirhugaðar vegna gengisfalls krónu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.3.2008 | 11:31
Krónan rokkar til og frá

Það sögðu margir réttilega í gær að það ætti að ekki að taka paník-kast vegna eins svarts dags eða tímabundinnar lækkunar. Það verður að ráðast á næstu dögum hversu kröpp þetta gengisfall krónunnar er, en það mun þegar fara út í verðlagið þegar að svo miklar sveiflur verða og þegar sést hvernig bensínverðið tekur við sér.
Ríkisstjórnin kemur með yfirlýsingu á eftir. Öll fylgjumst við með viðbrögðum stjórnvalda. Það skiptir máli að þar verði talað af ábyrgð og festu um þá stöðu sem við erum. Það er enginn valkostur að breiða yfir þessa stöðu og reyna að tala okkur frá henni. Það er alvöru krísa í gangi og nú reynir á þá flokka sem fengu afgerandi umboð í kosningunum fyrir ári og hvernig þeir höndla krísuástand.
![]() |
Gríðarlegt flökt á krónunni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.3.2008 | 00:46
Mun bensínið fara í 200 krónur fyrir sumarlok?
Þar sem að ég ætla að fara hringveginn í sumarblíðunni er eðlilegt að spyrja sjálfan sig upphátt: hvað verður dýrt að fara hringinn í sumar? Svarið er vægast sagt á flökti með krónunni.
En kannski er bara best að kaupa sér farmiða til útlanda og slaufa af langar ökuferðir um landið okkar.
![]() |
Atlantsolía hækkar verð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.3.2008 | 23:27
Frikki og Regína Ósk fyrst á svið í Belgrad
Tel að það boði ekki ógæfu fyrir Frikka og Regínu Ósk að fara fyrst á svið á undanúrslitakvöldinu í Belgrad eftir tvo mánuði. Þau eru bæði þaulvön og sviðsæfð í gegn - höndla alveg þá pressu. Er ekki í vafa um að þau taki atriðið með sóma og nái að opna kvöldið með bravúr. Það skiptir máli að ná athygli með atriðinu í byrjun. Það er t.d. mun betra að vera númer eitt en tvö.
Tvisvar höfum við opnað keppniskvöldið í Eurovision, þá reyndar bara á úrslitakvöldi auðvitað. Fyrir tveim áratugum voru Stebbi Hilmars og Sverrir Stormsker fyrstir á svið með Sókrates í Dublin, náðu sextánda sætinu eins og fyrri árin tvö með Gleðibankann og Hægt og hljótt. Fimmtán árum síðar, fyrir fimm árum, var Birgitta Haukdal fyrst á svið í Riga í Lettlandi með lag Hallgríms Óskarssonar, Open Your Heart, og náði níunda sætinu. Við höfum því upplifað bæði topp tíu árangur og vera fyrir neðan miðju.
Man mjög vel eftir því þegar að við vorum númer tvö á svið árið 2001 í Parken í Danmörku með Angel, lag Einars Bárðarsonar. Það var mjög mikil umræða um hvort að það kæmi sér vel fyrir okkur eður ei að vera á eftir fyrsta lagi kvöldsins. Það var bömmer það kvöldið í það minnsta, enda fékk lagið aðeins þrjú stig og við sleiktum næstum því botninn og fengum ekki farmiða í keppnina 2002 í Tallinn. Það var með ömurlegri Eurovision-kvöldum Íslendinga, enda höfðu verið miklar væntingar til lagsins og mjög var deilt um hvort það ætti að vera á ensku og margir sögðu það bæta lagið. Það fór ekki svo er á hólminn kom.
Það vakti athygli mína að Svíar eru númer tvö sama kvöld og við. Charlotte Nilsson Perrilli, sem sigraði keppnina og varð ofar Selmu Björns árið 1999, syngur fyrir Svía núna og það verður áhugavert að sjá hvort bæði þessi norrænu lög, sem mörgum finnast vera nokkuð lík, komist bæði áfram úr undankeppninni.
Það sem skiptir máli nú er að Frikki og Regína Ósk taki þennan pakka og komi okkur á úrslitakvöldið. Það eitt og sér er stórsigur fyrir okkur að mínu mati. Lagið er gott og ég tel að þau séu það sviðsvön að ná að sigrast á öllum hjátrúarspám um hvort ógæfa sé yfir fyrstu sviðsframkomunni.
![]() |
Ísland fer fyrst á sviðið í forkeppni Eurovision |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.3.2008 | 19:52
Sjálfstæða utanríkisstefnan hennar Sollu
Það er alveg meinfyndið eftir allt gaggið og galið hjá Ingibjörgu Sólrúnu um að við verðum að koma okkur upp sjálfstæðri utanríkisstefnu að hún sé nú að vísitera Afganistan og kynna sér aðstæður þar. Það var kannski aldrei neitt að marka þetta tal hennar forðum daga. Hvað varð um Samfylkingarfólkið sem gagnrýndi að við værum að skipta okkur af málum í Afganistan en sér nú leiðtoga sinn á ferðalagi um svæðið.
Veit ekki hvort þetta sé rétt hjá ráðherranum en þetta er aðallega vandræðalegt fyrir þá sem hafa stutt Samfylkinguna og haft uppi stór orð um að við fetum í fótspor annarra þjóða og gleypum upp stefnu annarra alveg hráa. Það er stór spurning hvað Ingibjörg Sólrún lærir á vistinni í Afganistan en vonandi getur hún sagt flokksfélögum sínum frá því hvernig ástandið sé þar og hvað við séum nú að standa okkur vel í verkefnum þar. Væntanlega er það rullan sem heyrist þegar að haldið er heim.
Annars fannst mér Ingibjörg Sólrún komast mjög illa frá viðtalinu við Xinhua-fréttastofuna. Auðvitað eigum við að styðja Taíwan og Tíbet í þeirra sjálfstæðishugleiðingum og baráttu þeirra fyrir að komast í samfélag þjóðanna. Við eigum ekkert inni hjá hinni blóðugu einræðisstjórn í Kína og eigum ekki að selja okkur Kínverjum þrátt fyrir baráttuna um sætið í öryggisráðinu. Við eigum ekki að leggjast flöt undir Kínverja vegna þeirrar kosningabaráttu.
Ingibjörg Sólrún fór illa að ráði sínu með þessum ummælum um Taíwan og á að sjá sóma sinn í að leiðrétta þau hið fyrsta. Ella er allt tal hennar um sjálfstæða utanríkisstefnu fokið út í buskann. Það kannski er þegar farið veg allrar veraldar með vísitasíunni til Afganistans? Ekki nema von að spurt sé.
![]() |
Ingibjörg Sólrún í Afganistan |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.3.2008 | 18:06
Kvendjöfull og bítill berjast um peninga

Það vakti reyndar mikla athygli þegar að Paul gaf Heather úr og gjafakort á afmæli hennar í janúar. Á sama tíma hafði hún ráðið einkaspæjara til að reyna að ná myndum af honum drukknum.
Ekki er langt síðan að fregnir bárust af því að Heather hefði tekið upp samtöl sín og bítilsins í hjónabandinu til að reyna að eiga sannanir gegn honum síðar meir. Hún hefur verið að gera út af við sig síðustu mánuðina með fáránlegum absúrd-fjölmiðlaframkomum.
Heather kann varla að skammast sín einu sinni og líkir sér við dýrlinga og kvenhetjur og talar gegn þeim sem lifa fyrir peninga - á meðan berst hún fyrir því að fá allt að sex milljarða úr búi bítilsins. Dómurinn yfir Heather í huga bresku pressunnar og almennings virðist þó ljós. Þar eru henni gefin öll hin verstu nöfn og seint hægt að segja að hún hafi öðlast gullinn sess með hjónabandinu og framgöngu sinni síðan. Hún ætlaði sér að verða þekkt fyrir líknarstarf og fötlun sína en sú ímynd er farin í vaskinn.
Og nú berst hún eins og ljónynja fyrir peningum kappans og hefur afhjúpað sig og rifið niður ímynd hinnar líknandi stjörnu, sem hún var talin áður, og reynt var að kynna enn frekar framan af í sambandinu við bítilinn. Það er ekki óvarlegt að segja að ímynd hennar sem hins miskunnsama samverja hafi farið á bólakaf og eftir aðeins gráðugur kvendjöfull í huga fólks.
Og á meðan að það fæst úr slagnum skorið er ekki úr vegi að hlusta á Paul syngja We Can Work It Out.
![]() |
Mills fær 24,3 milljónir punda |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 18:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
17.3.2008 | 16:01
KEA eignast Hafnarstræti 98 - góð niðurstaða

Með enduruppbyggingu Hafnarstrætis 98 er komin skemmtileg heild í gömlum húsum í Hafnarstrætinu. Bæði Hamborg og París, Hafnarstræti 94 og 96, hafa verið gerð upp síðasta áratuginn og þau hafa öðlast nýtt líf. Allir sem hingað koma dást að kaffihúsinu Bláu könnunni og það hefur verið sérlega skemmtilegt að sjá Hamborg breytast úr hrörlegu gömlu húsi í flott verslunarhúsnæði 10-11 þar sem gaman er að koma. Fyrir nokkru síðan þóttu bæði þessi hús hrörleg og ljót að sjá.
Ég held að örlög Hafnarstrætis 98 hafi verið endanlega ráðin þegar að teikningar urðu opinberar af því húsi sem byggja átti þar í staðinn. Það var með eindæmum ljótt, passaði engan veginn í götumyndina. Reyndar finnst mér kassalaga byggingar af því tagi sem boðað var að ætti að reisa á þessum reit lítt spennandi og hefði ekki viljað sjá þannig hús á þessum stað. Það var gott að það tókst að koma málinu í annan farveg og ég held að flestir verði sáttir við Hafnarstræti 98 eftir að KEA hefur komið því í stand.
Það hefur verið deilt um þetta hús svo lengi sem ég man eftir. Það hefur verið ljótt meginpart minnar ævi, man ekki eftir því nema sem lýti á miðbænum. Talað hefur verið um að rífa það árum saman. Samt var það aldrei verið gert. Nú ætlar KEA að taka það í gegn. Það eru farsæl endalok á löngu deilumáli og ásýnd miðbæjarins verður fegurri við endurreisn gömlu Hótel Akureyri.
![]() |
KEA kaupir Hafnarstræti 98 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.3.2008 | 11:52
Gengi krónunnar fellur mjög hratt

Þeim fer nú ört fækkandi þeim sem verja krónuna í þessum ólgusjó og greinilegt að flestir eru hugsi um hvað eigi að gera. Staðan á þessum morgni er einfaldlega það dökkt að komið er að því að umræðan um þessi mál sé tekin heiðarlega og afgerandi í stað hálfkáks. Sá myndklippu af Geir Haarde, forsætisráðherra, þar sem hann var að tala um stöðuna hérna heima í viðtali á CNN. Mér fannst umræðan þar svolítið sérstök og einkennast frekar af draumsýn en veruleika.
Þessi veruleiki er það alvarlegur að það verður að horfa á hlutina með öðrum hætti en áður. Þessi mikla dýfa er eitthvað sem við höfum ekki séð árum eða áratugum saman og það verður að bregðast við þessu ástandi. Það er eins gott að maður á ekki mikið af hlutabréfum í þessu hruni, segi ekki annað.
![]() |
Krónan í frjálsu falli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.3.2008 | 00:49
Þorir Obama ekki í alvöru rökræður um pólitík?

Í stjórnmálum er ekki bara hægt að mæta í viðtöl þar sem yfirbragðið er settlegt og drottningarviðtölin slétt og felld fyrir ferilinn. Það þarf að mæta í alvöru one-on-one viðtöl þar sem eru krefjandi spurningar og vel grillað undir. Það er styrkleikamerki fyrir alla stjórnmálamenn, enda eiga þeir alveg að geta staðist þungann og sýna kraft sinn með því að taka erfiðar spurningar og tala um þau mál sem mestu skipta án þess að höfðingjameðferð. Þeir ná tökum á stöðunni geti þeir varist og talað af visku og krafti.
Það er hávær umræða um að Obama sé á sléttri og felldri siglingu vegna þess m.a. að vissir fjölmiðlar sýni honum mildari meðferð og Hillary Rodham Clinton hefur bent á þetta margoft, t.d. í kappræðunum í Ohio fyrir nokkrum vikum. Hún hafði talsvert til síns máls enda hefur lítið reynt á Obama miðað við í hvaða stöðu hann er. Með því er held ég enginn að vega að Obama sem slíkum, enda þarf hann að sýna að hann sé ekki drottningaviðtalsframbjóðandi heldur alvöru leiðtogi sem getur ekki aðeins flutt innlifaðar ræður heldur talað kjarnyrt um málin og svarað jafnvel erfiðum spurningum.
Það eru margir á þeirri skoðun að langvinnur demókrataslagur gæti orðið honum erfiður. Þegar að hann verði að fara að svara alvöru spurningum og taka á sig meiri þunga en ella. Það má vera. Hann þarf hinsvegar þá að reka af sér það slyðruorð og taka viðtöl, meira að segja þar sem hann telur geta orðið sér erfið. Sem forsetaefni, sögulegur kandidat nýrra tíma, ætti hann að geta þolað það sé hann með traustan málstað að verja og alvöru undirstöðu sem frambjóðandi.
![]() |
Fox reynir að svæla Obama út úr greninu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.3.2008 | 14:42
Tveir eldsvoðar á nokkrum klukkutímum
![]() |
Eldur kom upp á Eiðistorgi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.3.2008 | 13:34
Er Hamilton nýi gulldrengurinn í Formúlunni?

Hamilton er aðeins 23 ára og því ári yngri en Alonso var er hann vann titilinn árið 2005. Hamilton skráir nafn sitt á spjöld Formúlunnar sem yngsti heimsmeistari sögunnar ef hann vinnur á þessari leiktíð. Hann getur því enn velgt sínum fyrrum "samherja" undir uggum svo um munar. Það er ekki furða að margir líki Hamilton við Schumacher og Senna. Sá í haust (fyrir lokabaráttuna þá leiktíðina) viðtal við systur Ayrton Senna sem sagðist sjá bróður sinn ljóslifandi í honum, karakterinn, einbeitni, sigurvilja og fimnina á brautinni.
Það var ævintýralega skemmtilegt að fylgjast með Hamilton á síðustu leiktíð. Það hvernig hann tók heimsmeistarann Alonso á taugum innan síns liðs og varð mun betri en hann í gegnum leiktíðina var eiginlega ótrúlega skemmtilegt að fylgjast með. Svo mikill varð titringurinn að Alanso allt að því hrökklaðist frá McLaren aftur til fyrri heimkynna og Hamilton ríkir í liðinu nú einn og óskoraður kóngur allt að því, rétt rúmlega tvítugur.
Lewis Hamilton hefur verið í akstursíþróttum með einum eða öðrum hætti síðan að hann var fimm ára. Hér er frábær myndklippa sem sýnir hversu öflugur hann var strax tólf ára gamall - þar snerist allt um æfinguna og byggja sig upp í að verða hinn besti fyrr og síðar.
![]() |
Hamilton öruggur sigurvegari |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 13:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
16.3.2008 | 01:23
Slow motion fílingur á netsambandinu

Það er fátt sem pirrar mann meira en þegar að netið er hægt eða einhver bilun, jafnvel hin minnsta verður. Á þessum tímum þegar að við höfum ADSL-tengingu og allt hið besta sem til er minnumst við eiginlega gömlu tengingarinnar í denn þegar að við förum á erlendar síður núna á þessu kvöldi. Er helst að þetta minni á þá förnu tíð, sem er ekki beint nostalgía yfir í huga okkar netnotenda.
Vonandi kemst þetta í lag sem fyrst. Þarna sjáum við best hversu rólegt er yfir öllu heila dæminu þegar að bilun verður. Held að við teljum flest öll mínúturnar þar til að eðlilegur hraði er á tengingunni okkar og við getum skannað erlendar frétta- og afþreyingasíður af sama hraði og áður.
![]() |
Bilun í ljósleiðara tengdum Farice |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
15.3.2008 | 19:09
Slys í nýrri verslun Rúmfatalagersins á Akureyri

Gerði mér ferð eftir hádegið í dag í nýju verslunina til að skoða þennan fyrsta áfanga viðbyggingarinnar við Glerártorg sem tekinn er í notkun, en öll viðbótin verður tekin í notkun síðla maímánaðar. Verslunin er stórglæsileg í alla staði og flott viðbót í verslunarflóruna hér á Akureyri.
Óska eigendum og starfsfólki Rúmfatalagersins hér til hamingju með flotta verslun sem án vafa verður vinsæl hjá bæjarbúum.
![]() |
Fjögurra ára stúlka féll niður rúllustiga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 19:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
15.3.2008 | 14:41
Er Bandið hans Bubba eðall eða hágæðarusl?

Hef haft gaman af þættinum hans Bubba. Kannski ekki vegna Bubba prívat og persónulega, heldur vegna þeirra söngtalenta sem þar eru algjörlega að blómstra. Missti alveg af kynningarkvöldunum og sá því keppendur fyrst í þessari uppsetningu í sjónvarpssal. Þessir tíu söngvarar sem héldu í vegferðina til að fronta bandið hans Bubba eru mjög misjafnir en eiga allir heiður skilið fyrir að leggja í slaginn og taka lög, sum misjafnlega æfð í framkomu og eru að slípast til eins og demantar með hverju kvöldinu, á meðan að sumir finna ekki fjölina sína.
Frá fyrsta kvöldinu hef ég átt mína tvo uppáhaldskeppendur. Ef allt er eðlilegt fara þeir í úrslitin. Þeir sem mér fannst lélegastir í keppninni eru farnir heim fyrir nokkru sem betur fer. En það er alveg kristalstært að Eyþór Ingi og Arnar eru svo algjörlega langbestir í þessari keppni að úrslitaþátturinn hlýtur að vera á milli þeirra. Þvílíkir snillingar. Dalvíkingurinn Eyþór Ingi er auðvitað náttúrutalent og það segir allt um hæfileika hans að Bubbi skyldi sækja hann til þátttöku á vinnustaðinn í Sundlauginni á Dalvík, leggja lykkju á leið sína og sækja þennan frábæra söngvara í keppnina. Enda er hann að standa sig frábærlega.
Arnar hóf þessa keppni með frábærri íslenskaðri útgáfu af Queen-smellinum The Show Must Go On og var algjörlega frábær og hefur verið í sérflokki alla tíð síðan, var síðast að brillera í gærkvöldi með Álfa Magnúsar Þórs. Frábær frammistaða og alveg ljóst að kappinn fer í úrslitaþáttinn. Hinir þátttakendurnir eru svona misjafnlega mikið la la. Þeir sem hafa verið lakastir hafa verið að detta út einn af öðrum. En það er ljóst hvert stefnir og allt er eðlilegt með tónlistarsmekk landans fara Eyþór Ingi og Arnar í úrslitin.
Það er deilt um það hvort svona söngprógramm virki. En svo fremi sem að við fáum frábæra söngvara í íslensku tónlistarflóruna, söngvara sem geta meikað það án athyglinnar sem fylgir vikulegum sjónvarpsþáttum og nafni kóngsins Bubba að þá er þörf á svona þáttum. Og ég er viss um að flestir þessir keppendur finna sína fjöl þó að það sé eins og gengur svo að það eru afburðakeppendur í hverjum leik. Þeir eru sannarlega þessir tveir söngvarar sem eru á öðrum klassa en aðrir.
Bubbi er bara fínn. Hef ekki alltaf verið sammála honum. En ég er hrifinn af pólitíska tóninum í honum, yfirlýsingum um mann og annan. Þetta er bara hans stíll. Það væri stílbrot ef Bubbi færi að breyta sér á sextugsaldri fyrir einhverja besservissera úti í bæ. Þetta er Bubbi, hann var fílaður svona í denn og engin þörf á að breyta því á 21. öld.
![]() |
Bubbabörnum boðið upp á tattú |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Tónlist | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)