31.7.2007 | 21:24
Upptaka af árásinni á Eið Smára sýnd
Það var athyglisvert að sjá upptöku af því er ráðist var að Eiði Smára Guðjohnsen, landsliðsfyrirliða í knattspyrnu, í kvöldfréttum Sjónvarps og Kastljósinu í kvöld. Það er merkilegt að sjá slíkt, en á okkar tímum eru myndsímar mikið notaðir og hægt að taka upp ýmislegt sem gerist jafnvel hratt. Í þessari upptöku sást vel að fólk þurfti að ganga á milli til að skilja að Eið Smára og þann sem sló hann og var nokkur hasar yfir öllu.
Það er alveg ljóst að ofbeldið er orðið mikið í miðborg Reykjavíkur um helgarnætur. Það sést bara vel af fréttaflutningi en það eru þó ekki allar árásir og slagsmál þar sem enda sem aðalfrétt í fjölmiðlum. Hefur maður oft heyrt að meiri harka sé í slagsmálum neðarlega á Laugaveginum og í Austurstræti og við Lækjartorg. Margar sögur ganga af ástandinu þar og eflaust eiga sér slagsmál stað víða á svæðinu og þetta er fjarri því einstæð saga sem birtist.
Það að um sé að ræða Eið Smára gerir það að verkum að þetta verður aðalfrétt, enda er Eiður Smári mjög þekktur knattspyrnumaður og er jafnan mikið í fréttum. Það er ekki mikið um að ráðist sé að þekktu fólki er það er að skemmta sér. Merkilegast við þetta allt var þó að sjá að atburðarásin væri til í myndformi en myndsímarnir koma sér oft vel.
![]() |
Veist að Eiði Smára |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 21:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
31.7.2007 | 16:11
Eiður Smári kýldur í miðborg Reykjavíkur
Knattspyrnumaðurinn Eiður Smári Guðjohnsen var kýldur í miðbæ Reykjavíkur um helgina eftir kvöld á djamminu. Hafa fréttir af þessu borist út í dag og verið í umræðunni. Það er afar leitt að heyra af þessu atviki. Vissulega getur maður í stöðu Eiðs Smára átt von á að einhverjum sé í nöp við hann og hugsi honum illt. Það er samt sem áður ömurlegt að heyra fréttir af svona líkamsárás.
Það hefur jafnan verið svo að fólk telji að frægt fólk geti farið út og skemmt sér án þess að verða fyrir svona leiðindum. Það er reyndar orðið svo að líkamsárásir í borginni eru orðnar mjög svæsnar. Sérstaklega var ömurlegt að heyra fréttir af því að konur hafi ráðist á aðra konu og bitið af eyranu á henni. Grimmdin í líkamsárásum er að verða verulega áberandi og þær verða sífellt harkalegri.
Það er mikið talað um að konur ráðist hverjar á aðra og það séu fjarri því mildustu árásirnar. En það er langt síðan að ráðist hefur verið á þekkt fólk bara vegna þess hvert það er. Þess vegna er athyglisvert að heyra af því að Eiður Smári hafi orðið fyrir árás. Þetta er mjög ömurlegt mál í alla staði.
Dægurmál | Breytt 1.8.2007 kl. 13:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
31.7.2007 | 11:57
Hættum að snuðra í einkamál annarra

Auk þess getur það rýnt í tekjublað Frjálsrar verslunar sem kemur út samhliða þessu öllu og mun verða til sölu í búðum á meðan að heimilt er að birta álagningarskrárnar. Ef marka má mikla sölu á blaðinu seinustu árin finnst mörgum það sennilega kræsilegra að kaupa blaðið og svala því forvitninni heima í stofu frekar en að setjast á skattstofuna og fletta gögnunum þar. Það er svona notalegra líka. Annars hefur þetta viðgengist ótrúlega lengi og er stórundarlegt að ekki hafi þessu verið breytt með áberandi hætti og vinnsluferlið í þessu stokkað upp.
Hefur það alltaf verið skoðun mín að þetta eigi ekki að vera með þessum hætti og ekki eigi að birta álagningarskrárnar opinberlega eða leyfa opinbera birtingu þessara gagna með þessum hætti. Það hefur verið afgerandi skoðun Sambands ungra sjálfstæðismanna. Nú sem fyrr minnir SUS á andstöðu sína við birtingu álagningarskránna með áberandi hætti. Það hefur verið okkar mat árum saman að það sé eitthvað stórlega bogið við að yfirvöld heimti þessar upplýsingar af almenningi, vinni síðan úr og leggi að lokum til sýnis fyrir alla landsmenn. Þetta er að okkar mati sannkallaður ósómi. Um er enda að ræða persónuupplýsingar sem snerta einkahagi fólksins í landinu.
Undanfarin ár hefur verið lagt fram á þingi frumvarp til laga um breytingar á lögum um tekju- og eignarskatt. Í frumvarpinu fólst sérstaklega að opinber birting og framlagning álagningar- og skattskráa landsmanna skyldi með öllu lögð af. Sigurður Kári Kristjánsson, alþingismaður og fyrrum formaður SUS, var fyrsti flutningsmaður frumvarpsins en meðflutningsmenn hans að frumvarpinu voru fleiri þingmenn Sjálfstæðisflokksins. Við í SUS höfum að sjálfsögðu verið mjög afgerandi stuðningsmenn þessa frumvarps og minnum því vel á skoðanir okkar í dag. Það er enda nauðsynlegt að afstaða okkar sé áberandi bæði í orði sem og í verki.
Rökin að baki þessari skoðun okkar í Sjálfstæðisflokknum og SUS að vilja breyta þessu eru allnokkrar en þó ber að sjálfsögðu helst að nefna þann veigamikla þátt birting álagningar- og skattskráa samkvæmt ákvæðum núgildandi laga brjóti mjög gegn rétti einstaklinga til friðhelgis einkalífs. Að mínu mati eru fjárhagsmálefni einstaklinga án nokkurs vafa meðal helstu persónuupplýsinga sem að mínu mati bæði er eðlilegt og sanngjarnt að leynt fari. Birting upplýsinga um tekjur einstaklinga er mjög til þess fallin að grafa undan því trúnaðarsambandi sem viðgengst hefur á vinnumarkaði um launakjör í frjálsum vinnusamningum.
Landsfundur Sjálfstæðisflokksins hefur margoft ályktað um þetta mál og enginn vafi á því að það er stefna flokksins að þessar breytingar eigi sér stað. Það hefur lengi verið skondið að sjá hvernig að vinstrimenn hafa snúist til varnar þessu úrelta fyrirkomulagi, t.d. í þingumræðum. Það er reyndar hlægilegt að til sé fólk sem tali gegn frumvarpi sjálfstæðisþingmannanna og skoðunum okkar SUS-ara og afhjúpi með því gamaldags vinstrikreddupólitík. Þessir gamaldags vinstrimenn ættu að taka af sér hofmóðugu gleraugun og horfa fram fyrir sig án þeirra. Það gæti orðið þeim gæfuleg ákvörðun. Ekki veitir þeim af að hugsa málið frá öðrum forsendum og frá öðrum grunni beint.
Það er enda svo að mínu mati og okkar ungliðanna að við höfum engan rétt á því að vera að grafast fyrir um það í einhverjum skattskrám hvað maðurinn í næsta húsi eða fólk sem við sjáum jafnvel í Séð og heyrt eða í öðrum fjölmiðlum (fræga og ríka fólkið eins og það er oft kallað) eru með í laun. Það er því verðugt verkefni okkar sjálfstæðismanna, sérstaklega okkar ungra sjálfstæðismanna, að benda á skoðanir okkar og það hefur tekist vel til að þessu sinni, sem og svo oftar áður.
Það á enda að mínu mati varla að koma fólki úti í bæ við hvað Jóhannes Jónsson, verkamaður á Eyrinni, nú eða Jóhannes Jónsson, athafnamaður og forstjóri á Brekkunni, er með í laun og borgar í skatta. Það á aðeins að vera málefni viðkomandi aðila. Eða hvað segirðu annars lesandi góður? Ertu ekki sammála mér?
![]() |
Hreiðar Már Sigurðsson gjaldahæstur í Reykjavík |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
31.7.2007 | 00:30
Sviptingar hjá fréttastofu Stöðvar 2
Mér finnst þetta merkileg ákvörðun í ljósi þess tals að fréttastofan sé á bullandi mínus að búin sé til ný yfirmannsstaða. Hver eru verkaskilin á milli þessara tveggja yfirmanna. Finnst það einhvernveginn vera óljóst þó að starfsheiti Sigmundar ætti að fela í sér yfirmannsstöðu yfir batteríinu að þá hljómar það ekki traustvekjandi. Finnst þetta einhver mjög undarleg flétta. Er verið að reyna að losa sig við Sigmund með penum hætti?
Það eru margar spurningar í stöðunni þarna. Þó virðist þeirri stærstu hafa verið eytt út. Það er um framtíð fréttastofunnar sjálfrar. Halda á greinilega lífinu í henni áfram enda hefur hagur hennar vænkast í áhorfsmælingum og tækifærin eru til staðar. NFS-floppið mikla er enn sjáanlegt og það eru vissulega vandamál. Greinilega á að stokka mál eitthvað upp. Mér fannst reydnar Sigmundur Ernir stýra skipinu ótrúlega vel frá því floppi öllu sem var dauðadæmt frá fyrsta degi eiginlega.
En það væri gaman að fá stutta en skiljanlega skýringu á því hvert hlutverk Sigmundar Ernis er núna. Er það bara að vera sýnilegur á skjánum sem fréttaþulur án þess að vera fréttastjóri? Flestir muna t.d. að Bogi Ágústsson varð forstöðumaður fréttasviðs RÚV fyrir nokkrum árum og Elín Hirst varð fréttastjóri í hans stað. Í hlutafélagavæðingunni var staða Boga lögð niður og hann er nú bara fréttamaður í erlenda pakkanum. Kostuleg örlög. Á kallgreyið virkilega að vera undirmaður Ingólfs Bjarna til sjötugs?
Það verður fróðlegt að sjá hversu lengi Sigmundur Ernir og Denni brosa saman á fréttavaktinni og þeir eru báðir effektívskir fréttastjórnendur í Skaftahlíðinni. Ég held að þetta sé partur af einhverri stærri fléttu. Reyndar er merkilegast af öllu að Denni mun ekki lesa fréttir. Svo er því ósvarað hvort að Denni hætti að vera rödd Íslands í dag og skipper þar samhliða þessu. Margar spurningar enn í Skaftahlíðinni semsagt.
![]() |
Steingrímur Ólafsson nýr fréttastjóri Stöðvar 2 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
30.7.2007 | 23:53
Skemmtilegt bekkjarmót
Það er oft sagt að hin gömlu kynni gleymist ei. Það átti svo sannarlega vel við hjá okkur í 1977-árgangnum í grunnskóla en við hittumst á laugardaginn á frábæru bekkjarmóti. Það eru núna orðin sextán ár síðan að við fermdumst og fjórtán ár frá því að leiðir skildu í grunnskólanum. Þannig að nokkuð er um liðið frá því að við höfum hist og átt stund saman í hópnum. Aðeins einu sinni frá árinu 1993 hefur verið hittingur í hópnum, en það var árið 2001 þegar að áratugur var liðinn frá fermingunni en þá áttum við frábæran laugardag saman.
Það var virkilega gaman að hittast aftur. Ég hitti allavega þrjá úr bekknum á þessu bekkjarmóti í fyrsta skipti frá árinu 1993. Það voru því miklir fagnaðarfundir. Það hefur reyndar ótrúlega lítið samband verið. Við erum nokkur sem hittumst hér í dagsins önn stundum í búð eða svoleiðis en bein tengsl verið alltof lítil, þó að við séum auðvitað alveg yndislegur hópur saman. Mér fannst sérstaklega gaman að finna hvað við vorum ótrúlega fljót að smella saman og finna gamla góða taktinn frá því í denn.
Við byrjuðum á að hittast í gamla góða skólanum. Það er reyndar orðið frekar fátt þar sem minnir á "gömlu" góðu dagana en það var innilega gaman að hittast og eiga spjall. Fengum okkur svo hádegismat saman og gleymdum okkur gjörsamlega í spjalli um allt sem hefur gerst, enda mættu ekki allir sem komu nú á mótið árið 2001 og því um mikið að tala. Dagskráin breyttist því aðeins og við tókum drjúga og notalega stund bara í hreint spjall, enda full þörf á að bara hreinlega að tala saman.
Síðdegis fórum við svo í sjóstangveiði saman. Það var innilega gaman. Búið var að skipta í lið og vorum við í hópi þrjú bara ansi flott í veiðinni. Þau eru reyndar teljandi skiptin á minni ævi sem að ég hef haldið á veiðistöng að ráði. Samt sem áður tókst mér að næla mér í fisk. Okkur tókst því miður ekki að vinna keppnina en urðum allavega í öðru sæti. Samt var þetta allt til gamans gert og notalegt bara umfram allt. En keppnisskapið í okkur hefur ekkert breyst með árunum.
Bimma, bekkjarsystir, sem var með okkur í núllaranum, fyrsta og öðrum bekk mætti á hittinginn. Höfðum við flest ekki hitt hana í tvo áratugi. Fannst mér sérstaklega gaman að hitta hana og það voru ótrúlegustu minningar sem tókst að muna eftir þar sem hún kom við sögu. Fannst reyndar alveg ótrúlega flott hjá henni að mæta. Hún var í sjöunda himni yfir deginum og við líka. Það var enda alveg magnað flashback að fara yfir þessi ár okkar saman í skólanum.
Síðdegis fórum við í Kalda á Árskógsströnd, þar var starfsemin kynnt okkur og við smökkuðum auðvitað Kalda. Hitti ég Kristinn Pétursson, fyrrum alþingismann, þar þegar að ég kom en hann var í hópnum á undan okkar sem var að skoða þar um. Var ánægjulegt að hitta hann og ræða sjávarútvegsmálin, sem eru enn einu sinni mál málanna á þessu sumri. Var gaman að fara í Kalda. Það er flott að sjá hversu vel þau hjón hafa byggt þetta fyrirtæki upp - já og Kaldi er góður. :)
Um kvöldið fórum við í bústaðina í Ytri Vík og vorum þar um nóttina. Þar var fjörið eins og best gat verið. Við fengum okkur grillmat, drógum fram gítarana og sungum alveg á fullu saman, fengum okkur í glas, fórum í heita pottinn og alles sem við á við svona móment. Maturinn var alveg frábær sérstaklega, en hann var eldaður fyrir okkur af Heiðu og Sibbu. Þannig að þetta var alveg súpergóður dagur. Sérstaklega var gaman að vera með Bjarna Gunnars, sem hafði skipulagt dagskrána okkar, og hélt að mestu utan um þetta. Virkilega vel heppnað.
Það var gaman að rifja upp gamla daga og hitta hópinn. Ætla rétt að vona að við látum ekki líða sex ár í næsta hitting. Þetta þyrfti að vera árlegt dæmi, segi ég og skrifa. Þetta var alveg virkilega skemmtilegur dagur, mikið hlegið og spjallað saman. Þetta er flottur hópur. Sérstaklega gaman að sjá hversu kjarninn í honum er góður enn og líka allir svo hressir. Það er alltaf gaman að rifja upp gömlu dagana.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 23:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
30.7.2007 | 21:17
Bush og Brown verða vinir í Camp David
George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, og Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, funda nú í Camp David í Maryland, en það er í fyrsta skipti sem þeir hittast eftir að Brown tók við embætti af Tony Blair fyrir rúmum mánuði. Hafa þeir notað tækifærið til að treysta vinabönd sín á milli og sýna vel að sterk tengsl séu enn milli Bandaríkjanna og Bretlands. Eru það án vafa stærstu tíðindi leiðtogafundarins.
Það hefur löngum verið svo í sögu landanna að leiðtogar þeirra hafa haft með sér öflugt samstarf og byggt traust vináttubönd sín á milli. Flestum er eflaust mjög vel í minni hversu vel Margaret Thatcher og Ronald Reagan unnu saman í fjöldamörg ár. Þau voru eins og systkini í raun og veru, sóttu kraft til hvors annars og pólitískan grunn til verka, en Thatcher var forsætisráðherra Bretlands allan forsetaferil Reagans 1981-1989. Þau héldu góðum vinskap eftir lok valdaferils Reagans og til marks um hversu náin tengsl voru þeirra á milli á pólitískum vettvangi að þá flutti Margaret Thatcher minningarræðu við jarðarför Reagans forseta í Washington í júní 2004.
Tony Blair og Bill Clinton unnu mjög samhent að málum meðan að þeir voru báðir við völd. Lykilmenn Clintons réttu Blair augljóslega hjálparhönd í kosningabaráttunni 1997 og var hún mjög ameríkanseruð af hálfu Verkamannaflokksins að mörgu leyti. Sömu taktar og einkenndu Clinton í forsetakosningunum 1992 og 1996 komu vel fram í Bretlandi vorið 1997. Þeir tóku höndum saman eftir kosningasigur Verkamannaflokksins. Þeir voru eins og pólitískir sálufélagar. Þegar að George W. Bush varð forseti Bandaríkjanna í janúar 2001 var mjög um það deilt hvort að hann gæti unnið með Tony Blair. Þær áhyggjur voru óþarfar, Blair hélt svipuðu sambandi við Bush og Clinton áður.
Ég held að Tony Blair hafi haldið sama kúrs áfram þó að Bush hefði náð kjöri. Það breyttist ekkert, þó að vissulega væri öllum ljóst að Blair-hjónin hefðu frekar viljað að Al Gore yrði forseti Bandaríkjanna árið 2000. En samskipti landanna héldust sterk. Nú þegar að Tony Blair lét af embætti eftir áratug við völd var eðlilega mikið spáð í stöðu mála milli landanna. Flestir hafa talið að þau samskipti myndu kólna, þar sem að Brown er ekkert sérstaklega ánægður með stjórnmálastefnu Bush forseta. En það hefur engin áhrif á sambandið. Það hefur sést vel í Camp David þar sem böndin milli landanna hafa verið treyst í sessi.
Það var áhugavert að horfa á blaðamannafund leiðtoganna síðdegis. Þetta eru auðvitað tveir mjög ólíkir stjórnmálamenn en þeir treysta bönd landanna í sessi með þessum fundi. Það verður fróðlegt að sjá hvort að staða Gordons Browns breytist vegna fundarins. Brown hefur verið að fá fljúgandi start í embætti og byrjað mjög vel, er með sterka stöðu í könnunum og horfir jafnvel til þess að flýta kosningum, sem eiga að vera í síðasta lagi í maí 2010. Bush fer ekki aftur í kosningar og horfir því óhræddur fram á veginn, þó óvinsældir hans séu gríðarlegar.
Það er öllum ljóst nú að samskipti Bretlands og Bandaríkjanna eru sterk, þó valdaskipti hafi orðið í Bretlandi. Gordon Brown heldur nær alveg sama kúrs í samskiptum við Bandaríkin og fjöldi fyrirrennara hans. Það er líka öllum ljóst af yfirbragði fundarins að það á að treysta böndin. Það er öllum ljóst miðað við ákvörðunina um að hluti fundarins verði í Camp David. Það ber vitni vinarhug. Bush bauð Blair til Camp David fljótlega eftir að hann varð forseti og sama á sér stað nú er Brown er orðinn forsætisráðherra, eftir langa bið.
Og öllum er ljóst að böndin á milli landanna eru sterk. Þau tengsl voru ekki bara byggð á samskiptum Tony Blair og George W. Bush. Fyrri leiðtogar landanna hafa haldið böndin og Gordon Brown innleiðir enga breytingu í þeim efnum. Það sést af andrúmsloftinu í Camp David. Þeir voru allavega flottir saman í golfbílnum, þar sem Bush keyrði Brown um svæðið. Nú verður spennandi að sjá hvort þessi ferð hefur áhrif á stöðu Browns og Verkamannaflokksins.
![]() |
Bush og Brown heita því að starfa saman |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 23.9.2007 kl. 13:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
30.7.2007 | 17:50
Teitur Þórðarson rekinn frá KR
Þetta er skelfileg staða fyrir lið og stuðningsmenn með sjálfstraust, sem eru vanir öllu öðru en botnstöðu vikum og mánuðum saman yfir sumarið. Með þann mannskap sem KR hefur yfir að ráða var gert ráð fyrir toppbaráttu og alvöru krafti sem gerði það að verkum að liðið væri meistaraefni. Það hefur aldrei í sumar sýnt slíka snilldartakta og lengst af hefur allt farið úrskeiðis sem getur farið úrskeiðis. Þessi niðurstaða ættu því varla að teljast stórtíðindi í sjálfu sér þó þau veki auðvitað athygli.
Ósigurinn í Kópavogi var eins og ég sagði hér áður eflaust botnpunktur KR í sumar. Þá skrifaði ég þessa færslu um þann sögulega ósigur. Held að margir í Vesturbænum hafi gefist upp á leiðsögn Teits þá þegar en honum voru gefnir fleiri sénsar. Það var augljóslega eitthvað stórlega að klikka. Nú á Logi Ólafsson, fyrrum þjálfari karlalandsliðsins, að taka við. Það verður fróðlegt að sjá hvort honum takist að bjarga Vesturbæjarveldinu frá falli.
![]() |
Teitur rekinn - Logi stjórnar KR út leiktíðina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Íþróttir | Breytt s.d. kl. 17:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
30.7.2007 | 17:00
Meistari Ingmar Bergman látinn

Til marks um mikla snilld hans er að myndir hans hlutu óskarinn þrisvar sem besta erlenda myndin og Bergman hlaut níu tilnefningar persónulega á löngum ferli. Hann fékk aldrei leikstjóraóskarinn, frekar en margir eftirminnilegir leikstjórar, en hann hlaut Irving G. Thalberg minningarverðlaunin, sem veitt eru leikstjórum og framleiðendum, að mig minnir snemma á áttunda áratugnum, þá er hann átti enn eftir að leikstýra nokkrum af sínum bestu myndum.
Þegar að ég hugsa til snilldar Bergmans í kvikmyndagerð koma fljótt upp í hugann kvikmyndir á borð við Höstsonaten, Fanny och Alexander, Sommarnattens leende, Viskningar och rop, Nattvardsgästerna, Smultronstället, Det Sjunde inseglet, En Passion, Söndagsbarn, Beröringen, Tystnaden, Lustgården, En Lektion i kärlek og Frånskild. Allt eru þetta stórfenglegar myndir hver á sinn hátt. Þó eru þær fyrstnefndu þær sem ég minnist helst, enda eru það með bestu perlum sem norrænn kvikmyndaleikstjóri hefur gert.
Persónulega finnst mér Haustsónatan, sem var gerð árið 1978, alltaf mjög sterk mynd, hún er sú mynd Ingmars sem mér finnst sterkust að svo mörgu leyti. Sænska leikkonan Ingrid Bergman fór þar á kostum í hlutverki Charlotte. Það haustaði þá að á ævi leikkonunnar og hún barðist við krabbamein, sem að lokum hafði sigur, en hún dó á afmælisdaginn sinn árið 1982. Þó að Ingrid ætti margar gullnar stundir á ferlinum, t.d. í Casablanca, Notorious, Anastasiu, For Whom the Bell Tolls og The Murder on the Orient Express var Haustsónatan hennar besta mynd á ferlinum. Hlutverk Charlotte varð ennfremur hennar síðasta túlkun á hvíta tjaldinu.
Fanný og Alexander er líka með betri kvikmyndum sem gerðar hafa verið í norrænni kvikmyndamenningu. Algjör perla. Það er reyndar orðið alltof langt síðan að ég hef séð hana. Því þarf að bæta úr. Þessar tvær fyrrnefndu myndir verða því settar fljótlega í spilarann, enda algjör snilld. Þær bera vel vitni snilld Ingmars Bergmans, sem var sannkallaður meistari meistaranna í kvikmyndagerð á Norðurlöndum. Hans framlag verður lengi í minnum haft.
![]() |
Ingmar Bergman látinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Kvikmyndir | Breytt s.d. kl. 17:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.7.2007 | 15:52
Morðinginn sviptir sig lífi á Þingvöllum
Maðurinn sem myrti 35 ára gamlan mann í Reykjavík laust fyrir hádegið í dag svipti sig lífi á Þingvöllum skömmu síðar. Hann fannst látinn í Almannagjá. Skildi hann eftir sig bréf sem staðfesti tengslin. Það er eiginlega með ólíkindum að fylgjast með atburðarás þeirri sem átt hefur sér stað síðustu klukkutímana, allt frá skotárásinni á gatnamótum Sæbrautar og Kringlumýrarbrautar til þeirrar fregnar að morðinginn hefur svipt sig lífi, en það kom fram á blaðamannafundi lögreglu rétt í þessu.
Ég horfði á blaðamannafundinn áðan. Það er svona varla enn að maður trúir atburðum dagsins. Svo skelfilegt er þetta mál að öllu leyti. Lögreglan hefur sagt með afgerandi hætti að morðið tengist ekki undirheimunum. Virðist vera um morð vegna ástarmála að ræða, en ljóst er að fórnarlambið hafi hafið fyrir stuttu ástarsamband við fyrrum eiginkonu árásarmannsins. Þetta er mikill harmleikur. Það er ekki hægt að segja neitt annað.
![]() |
Árásarmaðurinn svipti sig lífi; fannst látinn á Þingvöllum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
29.7.2007 | 14:50
Morð í Reykjavík
Það er mjög sjaldgæft að heyra af morði með atburðarás á borð við þessa hérlendis. Það er því alltaf viðburður þegar að verknaður af þessu tagi á sér stað. Það er vonandi að lögreglunni ganga vel í að finna morðingjann og leysa þetta skelfilega morðmál.
![]() |
Maðurinn sem varð fyrir skotárás í Reykjavík er látinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 14:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.7.2007 | 13:06
Brad og Gwyneth sameinast á ný
Sú var tíðin að Brad Pitt og Gwyneth Paltrow voru heitasta parið í Hollywood og voru saman skothelt tvíeyki í sviðsljósinu. Síðan eru liðin mörg ár; bæði hafa gifst og átt börn, Gwyneth unnið óskarinn og bæði leikið í fjölda áhugaverðra kvikmynda. Hápunkti sambandsins var náð þegar að þau léku saman í hinni frábæru mynd leikstjórans David Fincher, Se7en, árið 1995 ásamt Morgan Freeman og Kevin Spacey. Þar voru þau par og sýndu flotta takta. Hið svipmikla lokaatriði myndarinnar er eftirminnilegt, en þar var Gwyneth miðpunktur, þó án þess að sjást.
Nú ætla Gwyneth og Brad að eiga sér endurkomu. Þau ætla þó ekki að skilja við Chris Martin og Angelinu Jolie og taka saman á ný, heldur munu þau birtast aftur saman á hvíta tjaldinu. Það er að verða áratugur síðan að þau hættu saman. Það voru sambandsslit í kastljósi fjölmiðla um allan heim, sambandsslit sem vöktu mikla athygli. Þau hafa verið í miðpunkti umfjöllunar allan þann tíma og verið mjög áberandi í kvikmyndaheiminum en ekki verið sýnileg saman. Nú mun kvikmyndin Dirty Tricks, sem er í vinnslu, marka endurkomu þeirra saman. Það verður athyglisvert comeback fyrir einhverja að upplifa þau saman á hvíta tjaldinu.
Ég hef aldrei verið mjög hrifinn af Gwyneth Paltrow sem leikkonu. Hún hefur þó átt sínar björtu stundir á hvíta tjaldinu. Það eru orðin átta ár síðan að hún vann óskarinn fyrir Shakespeare in Love. Hún vakti athygli á sviðinu er hún tók við verðlaununum úr hendi Jack Nicholson fyrir að gráta sáran í bleika kjólnum sínum. Þakkarræða hennar er ein sú eftirminnilegasta í sögu kvikmyndaakademíunnar. Sjálf hefur Gwyneth viðurkennt síðar að það hafi ekki verið sín bjartasta stund. Flestir hafa talið hana ofmetna og sjálf viðurkenndi Gwyneth að hún hefði sótt í smiðju Grace Kelly með lúkkinu þetta eftirminnilega kvöld á ferli sínum.
Brad Pitt hefur átt góða spretti á hvíta tjaldinu undanfarin ár og ekki verið eins klökkur yfir björtu stundunum eins og Gwyneth. Hann var frábær í Babel, fyrir nokkrum mánuðum, og það var eiginlega til skammar að hann skyldi ekki fá óskarsverðlaunatilnefningu fyrir túlkun sína á Richard. Auk þess hefur hann átt gullnar stundir í Fight Club, Spy Game, Ocean´s Eleven og Twelve. Ennfremur má ekki gleyma Mr. and Mrs. Smith, sem kannski er ekki bjartasta stund hans og Angelinu Jolie, en hennar verður þó alla tíð minnst fyrir að vera myndin sem færði þau saman.
En það verður fróðlegt að sjá Dirty Tricks, myndina sem færir þetta forna gullpar Hollywood á tíunda áratugnum aftur saman. Ég ætla þó að vona að Gwyneth fái ekki eins grimmileg örlög þar og í Se7en.
PS: Eitt fyndnasta móment á ferli Gwyneth fannst mér annars þegar að hún afhenti Kevin Spacey óskarinn fyrir American Beauty árið 2000. Allir sem séð hafa Se7en og vita um tengslin á milli karakteranna þeirra þar sjá húmorinn í því.
![]() |
Brad Pitt og Gwyneth Paltrow hneyksla |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Kvikmyndir | Breytt s.d. kl. 13:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.7.2007 | 10:30
Banaslys í umferðinni
Það er sorglegt að heyra af enn einu banaslysinu í umferðinni. Þetta er annað banaslysið á skömmum tíma þar sem ökumaður bifhjóls deyr en nokkrir hafa látist í umferðinni núna í júlímánuði. Það hefur jafnan verið svo að sumarmánuðirnir hafa verið sorglegastir í umferðinni og virðist svo vera enn og aftur nú. Það er sorglegt að heyra svona fregnir.
Mér finnst áberandi hvað umferðarslys þar sem bifhjólafólk deyr hefur aukist undanfarin ár. Það er auðvitað alltaf áhættusamt að stunda bifhjólakeyrslu, en samt sem áður finnst mér áberandi hvað slíkum slysum hefur fjölgað. Þegar að Heiðar Jóhannsson, héðan frá Akureyri, lést í fyrra í bifhjólaslysi var mikið rætt um að taka á slíkum slysum. Síðan hafa nokkrir bifhjólamenn að auki látist í umferðinni.
Dapurleg slys af þessu tagi vekja vonandi alla í umferðinni til umhugsunar. Ég votta aðstandendum innilega samúð mína.
![]() |
Banaslys á Biskupstungnabraut |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.7.2007 | 09:52
Hversu gott útsendingarkerfi er Digital Ísland?
Það er ekki langt síðan að stór bilun varð hér fyrir norðan í kerfinu. Þá datt allt dæmið út í dágóða stund. Það var verulega hvimleið bilun. Nú dettur kerfið út fyrir sunnan á þeirri stund sem Simpson-fjölskyldan er sýnd á íslensku. Sé að einhverjir voru ekki sáttir og það skiljanlega. Það er gerð góð krafa um að þetta kerfi haldist vel inni og það verður fróðlegt að sjá hver orsök þessarar bilunar hafi eiginlega verið. Virðist mjög dularfullt.
![]() |
Óleyfilegar útsendingar trufla tíðnisvið Digital Ísland |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
28.7.2007 | 04:29
Rowling heldur áfram að skrifa þrátt fyrir ríkidæmið

J.K. Rowling varð ein auðugasta kona heims á ævintýrinu um Harry. Er í flokki með Elísabetu II Englandsdrottningu sjálfri. Hún var bláfátæk einstæð móðir þegar að sest var við skriftirnar, rétt skrimti í gegnum hversdaginn. Hafði varla peninga fyrir salti í grautinn og gat ekki borgað helstu reikninga heimilisins. Það má reyndar hugleiða hvernig í ósköpunum hún hefur fengið hugmyndina að ævintýrinu og gat skapað allar þessar hundruðir blaðsíðna af ævintýrinu sem hefur heillað ævintýrasinnaða einstaklinga á öllum aldri.
Það verður fróðlegt að sjá hverskonar skrif koma frá J.K. Rowling við leiðarlok Harry Potter. Ég þekki einn mikinn Harry Potter-aðdáanda og spurði hann hvað tæki við nú þegar að síðasta bókin væri komin og búið að lesa hana meira að segja. Svarið var að nú tæki við að lesa aftur fyrstu bókina. Ævintýrið endar varla í huga þeirra sem hafa lifað sig í gegnum það árum saman. Rowling hefur nú tækifærið til að fara í aðrar áttir og eða gæti auðvitað skapað nýjan ævintýraljóma sem gæti komið í stað þess æðis sem varð í kringum Harry Potter.
Enn er svo auðvitað spurningin um það hvort að Rowling hafi virkilega sett punktinn aftan við söguna um Harry Potter. Fróðlegt verður allavega að sjá hvers eðlis skrif hennar í kjölfar sjöundu bókarinnar um Harry verða.
![]() |
J.K. Rowling aftur sest við skriftir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
27.7.2007 | 18:14
Með lögum skal land byggja

Það eru vissulega of margir í umferðinni sem fara um með eigin geðþótta og skrifa umferðarlögin jafnóðum og keyrt er. Það eru þó ekki fyrirmyndarökumenn og tekið er á málum þeirra. Sama gerðist með Frakkann sem var ekki beint með það á planinu að fara eftir hinum íslensku umferðarlögum.
Það er athyglisvert ef það er svo að erlendir ferðamenn telja sig geta farið um með eigin hraðamörk í farteskinu og eigin umferðarreglur. En með lögum skal land byggja, var eitt sinn sagt.
![]() |
Franskur ökuþór vísar íslenskum lögum á bug |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.7.2007 | 17:44
Jarðgöng til Vestmannaeyja afskrifuð sem valkostur

Það er hið eina rétta eins og komið er málum að hefja vinnu við að fjölga sem fyrst ferðum í Herjólf og að Bakkafjöruhöfn verði að veruleika sem fyrst. Þetta eru mikilvæg skref sem skipti máli að tilkynna um samhliða þessari ákvörðun stjórnvalda að göng til Eyja séu ekki lengur á borðinu. Til sögunnar þarf að koma nýr og hraðskreiðari Herjólfur. Það er gott að óvissan sé að baki og ljóst hver staða mála er. Það er sérstaklega mikilvægt fyrir Eyjamenn að vita hver staðan er og hvaða ákvarðanir liggi fyrir. Það er ómögulegt að fresta ákvarðanatöku lengur en orðið er.
Ég skil vel að Eyjamenn hafi viljað göng milli lands og Eyja. En eins og skýrslan lá fyrir var sá valkostur í raun úr sögunni og heiðarlegast að segja skilið við hann.
![]() |
Engin jarðgöng til Vestmannaeyja en ferðum Herjólfs fjölgað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
27.7.2007 | 16:44
Lyfsölum stillt upp við vegg - hátt lyfjaverð

Mér finnst lyfjaverð á Íslandi fáránlega hátt. Það vantar verulega samkeppni hér á þessum lyfjamarkaði. Þetta eru örfáar blokkir sem halda verði uppi og keyra hlutina áfram á sínum hraða. Það er allavega fjarri því hægt að halda því fram að öflug samkeppni sé á þessum markaði. Hún er allavega fjarlæg. Það er vissulega ágætis þjónusta í þessum fyrirtækjum sem til staðar eru en verðið mætti vera hagstæðara á lyfjum.
Það hefur mikið verið talað um lyfjaverð á Íslandi. Kastljós var með góðar fréttaskýringar um þessi mál síðasta vetur sem vöktu marga til umhugsunar vonandi. Mér fannst skýringar þeirra sem drottna á markaðnum athyglisverðar þá. Man svo vel eftir viðtali við Pál Pétursson, fyrrum ráðherra, sem mun vera formaður lyfjaverðsnefndar, þar sem að hann talaði um þessi mál og maður var jafn nærri um hvernig ætti að taka á vandanum. Það voru engin svör.
En þetta þarf eitthvað að stokka upp að mínu mati. Lyfjaverð hér heima er einfaldlega alltof hátt.
![]() |
Hótuðu gjaldþroti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 16:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
27.7.2007 | 12:24
Hvað varð um Madeleine McCann?

Það er merkilegt að nú eftir alla þessa daga og fáar sýnilegar vísbendingar um hvað gerðist að kvöldi fimmtudagsins 3. maí, kvöldið sem Madeleine hvarf að talið berst að hlut foreldranna. Að mörgu leyti er það í miklum dularhjúpi og margir hafa velt því fyrir sér hvernig foreldrarnir gátu skilið dóttur sína eftir á hótelherberginu og framganga þeirra síðan hefur verið eitt stórt spurningamerki. Ljóst er að portúgalska lögreglan vann málið allt of hægt í upphafi og klúðraði væntanlega rannsókninni á upphafsstigi. En hlutur foreldranna hefur ekki síður verið til umræðu en þeirra.
Eins og flestir vita var Madeleine numin á brott af hótelherbergi en foreldrar hennar höfðu skilið hana þar eftir á meðan þau fóru og fengu sér kvöldverð. Málið allt er hið undarlegasta og hefur það verið miðpunktur fjölmiðlaathygli af skiljanlegum ástæðum allt frá fyrsta degi. McCann-hjónin hljóta að hafa upplifað hreint helvíti allt frá deginum sem dóttir þeirra hvarf. Þau munu eflaust alla tíð naga sig af samviskubiti sé það svo að Madeleine sé látin.
Spurningarnar um framgöngu foreldranna verða æ meira áberandi. Það yrðu athyglisverð endalok ef þau yrðu kærð fyrir vítaverða vanrækslu, eins og fram kemur í fréttinni. Þetta er að mörgu leyti athyglisvert mál. Það er mikilvægt að á það fáist einhver endir. Það verður skelfilegt fari það svo að Madeleine finnist aldrei og aldrei verði ljóst hvað gerðist fyrir tæpum 100 dögum.
Fjölmiðlar fjalla enn um málið með sama hætti og var fyrstu vikuna. Auðvitað vilja þeir fylgja eftir því sem gerðist og reyna að fá svör. Það vilja allir sem fylgjast með. Eftir því sem hver dagur líður aukast þó líkurnar á því að Madeleine sé látin. Vonin minnkar sífellt. Það er hin napra staðreynd allra mála af þessu tagi, líka þessu auðvitað.
![]() |
Foreldrar Madeleine sæta vaxandi gagnrýni í Portúgal |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 12:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.7.2007 | 19:42
Mótmælendum greitt fyrir handtöku sína
Það hefur vakið athygli að mótmælendur á vegum Saving Iceland hafa verið nefndir af sumum aðgerðasinnar. Það er ný túlkun á mótmælenda að mínu mati, og eflaust fleiri. Er það vegna þess að þeir viðhafa ólöglegar aðferðir til mótmæla að þá finnst fólki ekki viðeigandi að kalla þá því nafni? Það er ekki nema von að spurt sé. Aðferðir þessa hóps hafa verið frekar drastískar og þær hafa kallað á handtökur. Það er ekki hægt annað en líta svo á að farið hafi verið yfir strikið með aðgerðunum í Snorrabraut og við álverið í Straumsvík, svo fátt sé nefnt.
En allt fer þetta í nýtt ljós með tíðindum kvöldsins í fréttatíma Sjónvarpsins, þ.e.a.s. að þessu fólki sé greitt fyrir handtökuna og jafnvel fyrir mótmælin almennt. Það væri fróðlegt að vita hverjir greiða það. Þess má geta að níu voru handteknir í mótmælum Saving Iceland við Hellisheiðarvirkjun í morgun.
![]() |
Átta mótmælendur handteknir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.7.2007 | 18:59
17.000 Akureyringurinn fæðist

Mér finnst orðið ótrúlega langt síðan að við náðum 15.000 markinu hér og þetta er því auðvitað viss áfangi. Lengi höfum við viljað ná íbúafjölda upp á 20.000 og það mun vonandi ganga vel.
![]() |
Akureyringar orðnir ríflega 17.000 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 19:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)