Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
21.3.2008 | 00:48
Bergmál frá hellisbúanum Osama Bin Laden

Það eru ekki lengur tíðindi í sjálfu sér að ógeðið velli frá þessum hatursmanni sem elur á því að hræða fólk og valda ókyrrð. Hann lifir á því að kynda undir bálið og hræðsluáróðurinn er hans málflutningur. Það er greinilegt að við öll í Evrópu erum skotmark ekkert síður en risaveldin sem stóðu að Íraksstríðinu. Hann notar skopmyndamálið nú auðvitað sem tylliástæðu til að kynda undir gegn Evrópu allri og reyna að hræða okkur í skotgrafirnar.
Bin Laden fer víða í boðskap sínum. Hann gefur margt í skyn og kyndir undir með hatri sínu og skítkasti, einkum að því er virðist gegn Evrópu þessa dagana. Það er alveg ljóst að við lifum ekki lengur á hlutlausu svæði, svæði sem er utan við átakalínur nútímans, hryðjuverkaógnin vofir yfir okkur öllum. Það er ekki bara alið á hatrinu gegn stórveldum, heldur hinum smærri líka. Og við getum ekki annað en fordæmt það sem frá þessum manni kemur.
Þessi átök eru orðin miklu flóknari en svo að þar spili stórveldi gegn kolklikkuðum öfgamanni og samtökum hans. Þetta er barátta nútímans. Þar er öll heimsbyggðin undir - alið er á hatrinu gegn öllum sem voga sér að hafa aðrar skoðanir en þessi kolklikkaði hellisbúi einhversstaðar úti í buskanum. Hann þekkir ekki aðrar skoðanir en sínar eigin og fordæmir allar aðrar. Þessi hellisbúi er mesta meinsemd nútímans.
![]() |
Ný upptaka með bin Laden |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
20.3.2008 | 21:40
Merkileg heimild um ógnarstjórn Kínverja í Tíbet

Við eigum að taka afstöðu með Tíbet í þeim óeirðum sem hafa staðið og munu standa áfram í þeirri stöðu sem uppi er. Víða hefur fólk fengið nóg af því sem gerst hefur og það er gullið tækifæri að vekja athygli á þessu í aðdraganda Ólympíuleikanna sem haldnir verða í Kína eftir nokkra mánuði. Það var skandall þegar að ákveðið var að halda Ólympíuleikana þar og jafnfjarstæðukennt og þegar að kvennaráðstefnan var haldin þar fyrir þrettán árum, sem auðvitað varð umdeild fyrir staðarvalið.
Mér fannst það flott hjá Björk að tileinka fólkinu í Tíbet lagið Declare Independence. Þar sást vel að hún er töffari, eitilhörð og ekki hrædd við að tjá sig hreint út. Það er mikilvægt að við hér á Íslandi tölum máli þessa fólks og styðjum það í baráttunni gegn kínverskum stjórnvöldum. Við eigum ekki að nudda okkur utan í þessi blóði drifnu stjórnvöld, sem drápu stúdenta á torgi hins himneska friðar fyrir tveim áratugum og hafa sýnt og sannað að mannréttindi eru einskis metin þar.
Lagið hennar Bjarkar er í spilaranum.
![]() |
Myndband ferðamanns í Tíbet |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.3.2008 | 19:53
Hillary skammt frá ástarfundum í Hvíta húsinu
Það er merkileg staðreynd að Hillary Rodham Clinton var í Hvíta húsinu á sömu stund og Clinton forseti og lærlingurinn Monica Lewinsky áttu frægasta ástarfund sinn á forsetaskrifstofunni í hinu margumtalaða hneykslismáli sem næstum því kostaði forsetann embættið. Hillary hefur nú loksins birt dagbækur og gögn um verk sín þegar að hún var forsetafrú Bandaríkjanna. Það er löng romsa af allskonar upplýsingum sem varpa litlu ljósi á sögulegt hlutverk hennar.
Eðlilega voru fréttamenn helst áhugasamir um að vita hvar Hillary var þegar að Clinton og Lewinsky stunduðu ástarleiki sína og uppljóstrunin um að þau voru öll í forsetabústaðnum hefur hleypt nýju lífi í gamlar glæður þessa hneykslismáls. Áratug eftir að Bill Clinton barðist fyrir því að halda forsetaembættinu og hjónabandinu vegna framhjáhaldsins með lærlingnum fylgir skuggi Monicu enn eftir Clinton-hjónunum á kosningaferðalagi um Bandaríkin. Minna máli skiptir í gögnunum hvort að Hillary hafi verið klappstýra eiginmannsins eða sú sem stýrði veldinu á bakvið hann.
Monica var sem skuggi á eftir Clinton síðustu þrjú ár forsetaferilsins og á árinu 1998 og 1999 er hann barðist í ákæruferlinu fyrir þinginu komst hann varla í opinberar heimsóknir án þess að frekar væri spurt um dökkhærða lærlinginn sem hann svaf hjá en heimsmálin. Það fer ekki á milli mála að ástarsamband forsetans við Monicu Lewinsky var eitt helsta máls seinna kjörtímabils hans og var á eftir honum allt þar til að hann lét af embætti í janúar 2001. Sambandið hófst rétt fyrir forsetakosningarnar 1996 og stóð hápunktur þess á þeim tíma sem hann sór embættiseið seinna skipti í þinghúsinu fyrir ellefu árum.
Nú berst Clinton forseti aftur fyrir því að komast í Hvíta húsið, nú við hlið eiginkonunnar sem fyrirgaf honum seint og um síðir ótryggðina og að hafa logið að sér á viðkvæmustu augnablikum forsetaferilsins. Og í fyrsta skiptið frá því að Clinton viðurkenndi ótryggðina varð Hillary að brjóta odd af oflæti sínu og svara viðkvæmum spurningum á sömu stund og spurt er um efnahaginn, utanríkismálin og trúmálin í suðurríkjum Bandaríkjanna í kosningaslagnum fyrr á árinu.
Þetta mál var sögufrægt og það deyr ekki þó árin líði. Enn er skuggi lærlingsins sem mara yfir Clinton-fjölskyldunni. Spurningin er hvort sögulegar minningar skaði hana, nú þegar að hún hefur náð forskotinu aftur á Obama og hefur blásið lífi að nýju í framboð sitt.
Skuggi Monicu fylgir Clinton-hjónunum eftir
ítarlegri umfjöllun mín um málið frá því í janúar 2008
![]() |
Lewinskymálið skýtur á ný upp kollinum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.3.2008 | 00:14
Bin Laden beinir hryðjuverkaógninni að Evrópu

Enn eina ferðina sprettur þessi maður fram eins og grýla sem kemur ófrýnileg út úr hellinum sínum til að láta aðra finna fyrir sér og reyna að sýna að enn sé töggur í skepnunni. Skuggabaldur virðist þó óvenjuherskár í þetta skiptið og hótar okkur í Evrópu greinilega öllum vegna skopmyndateikninganna. Skuggabaldur minnir á sig og virðist undirbúa okkur undir hryðjuverkaöldu. Þetta ávarp eru sterk skilaboð í þá átt.
Hatur bin Laden á vesturveldunum hefur verið til staðar árum saman - það var komið til löngu áður en George W. Bush varð forseti Bandaríkjanna, hvað þá ríkisstjóri í Texas og kjör nýs forseta þar á næstu mánuðum breytir varla miklu í þessum efnum. Ógnin sem hann boðar er alþjóðleg og snýr ekkert síður að okkur á Norðurlöndum en öðrum, eins og þetta hatursávarp til Evrópu boðar.
![]() |
Bin Laden hótar Evrópu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.3.2008 | 14:27
Obama að missa forskotið - slagurinn jafnast út

Obama skaðar sig enn meira með því að afneita ekki þessum klerki og reyna að veikum mætti að halda í böndin við hann, þegar að ljóst er að hvíta fólkið er mjög hugsi yfir málinu. Tapi Barack Obama útnefningarslagnum eða forsetakosningunum síðar meir verður þetta fíaskó með Wright talið örlagamálið sem gekk frá framboðinu. Þessar trúaráherslur sem boðaðar eru í fjölskyldusöfnuði Obama eru einfaldlega þess eðlis að efast er um grunn hans sem frambjóðanda.
Með því að afneita ekki klerkinum er hann í raun að skrifa upp á hann og rýrir trúverðugleika sinn í leiðinni. Það er líka merkilegt hversu lengi hann beið með að fordæma óverjandi ummæli Wright og sú bið stóð of lengi. Það sést á könnunum að Obama er að tapa stuðningi hvítra og margir hópar sem flykktust til hans eru í vafa. Þetta mál hefði orðið annað hefði fjölskylduklerkurinn ekki staðið jafn nærri rótum Obama og eiginkonu hans Michelle eins og raunin er. Þetta er skaðlegt mál sem grefur undan fylginu á viðkvæmustu stöðunum.
Það er eiginlega ómögulegt að segja til um hvernig að þetta fer að lokum. Eins og staðan er núna stefnir allt í að flokksþingið í Denver verði blóðugur bardagi um hvern einn og einasta þingfulltrúa. Það verður lítið stífelsisyfirbragð yfir þeirri samkundu og gæti orðið harkalegt pólitískt einvígi. Tel að Hillary muni vinna nokkuð góðan sigur í Pennsylvaníu og það gefur henni farmiða til að taka þennan slag alla leið. Obama getur þakkað fjölskylduklerkinum það ef að hann veikist meira í könnunum en orðið er.
Það er alveg ljóst að tíðindin um að ekki verði kosið aftur í Flórída boða það að hvorugur frambjóðandinn nái lágmarki þingfulltrúa til að hljóta útnefninguna í forkosningaferlinu. Það var reyndar í vafa með það fyrir, enda er þetta svo jafn slagur að fá dæmi eru um áratugum saman á þessum tímapunkti, síðla marsmánaðar.
John McCain er að græða stórlega á þessum hjaðningavígum. Á meðan að hann byggir baklandið fyrir átökin í nóvember logar Demókrataflokkurinn í hörðum átökum og ekki fyrirséð hvernig endar. En það er þó ljóst að staða Obama hefur veikst og spurt að leikslokum hvort að fjölskylduklerkurinn hafi grafið undan honum.
Hér má sjá hin frægu ummæli Jeremiah Wright - maðurinn er auðvitað snargalinn og mikil áhætta sem Obama tekur með því að afneita ekki þessum skaðvaldi.
![]() |
Forskot Obama að hverfa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
19.3.2008 | 13:13
Það á að fella ríkisábyrgðina til ÍE úr gildi

Man mjög vel eftir deilunum vegna þessa máls fyrir sex árum. Það hljómaði sem óraunveruleikasaga að fjármálaráðherra og forystumenn Sjálfstæðisflokksins væru að taka slaginn um þessa vitleysu þá og það hefur ekki breyst síðan, er sennilega enn vitlausari hugmynd þá en nú. Það er því lag nú að fella ríkisábyrgðina úr gildi.
Mér fannst merkilegt að samhljómur yrði innan Sjálfstæðisflokksins um þessa vitleysu á sínum tíma en ég minni reyndar á að eini þingmaðurinn sem sýndi einhverja andstöðu við það var Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, sem sat hjá. Það gagnrýndu sumir afstöðu hennar en hún var ábyrg og rétt enda yfirlýsing út af fyrir sig. Það voru vonbrigði að fleiri skyldu ekki hætta við að styðja ríkisábyrgðina.
Það verður áhugavert að sjá hvort að þeir sem leiddu þetta mál verði menn til þess að viðurkenna að þetta var rugl frá upphafi til enda.
![]() |
Ríkisábyrgð ÍE enn í gildi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.3.2008 | 12:21
Krónan lækkar enn í aðdraganda páskanna

Það má búast við dökkri tíð eftir páskana snúi krónan ekki aftur sem trúverðugur gjaldmiðill. Verðbólgan er fljót að taka þennan takt að óbreyttu og verð á nauðsynjavörum mun hækka verulega. Það eru vonbrigði að ekki hafi birt yfir og það er alveg ljóst að áframhaldandi þróun af þessu tagi mun koma harkalega niður á okkur öllum.
Það er auðvitað vont tíðarfar víðar en hérlendis. En það er spurning hvort það sé rétt að þetta komi harðar niður á okkur en öðrum. Merkilegur lestur er þetta allavega.
![]() |
Krónan heldur áfram að lækka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
18.3.2008 | 12:51
Stjórnvöld bíða og vonast eftir bjartari tíð

Fátt annað virðist öruggt í Stjórnarráðinu. Á sömu stund og stjórnmálamenn víða um heim kynna einhverjar tillögur til að taka á þeim augljósa vanda sem er uppi bíða stjórnvöld hér og taka ekki af skarið. Það má vera að einhverjum þyki það ábyrgt og traust en ég held að flestir séu að spyrja sig hvað stjórnvöld hér séu almennt að hugsa um þessa krísu. Auðvitað vona allir að þetta sé tímabundið vandamál en ég held að við höfum ekki náð botninum enn og erfiðir tímar framundan.
Mörgum finnst gaman að halda blaðamannafundi. Man að frægur hægrisinnaður stjórnmálamaður sagði eitt sinn að það væri það skemmtilegasta sem hann gerði að mæta pressunni og svara spurningum. Það væri mesta gleðin við djobbið. Veit ekki hvort Geir H. Haarde tekur undir það. Sá að hann var ekkert glaður með eina spurningu Lóu Aldísardóttur og það virkaði svolítið sérstakt að sjá þennan blaðamannafund sem eiginlega hefur engin tíðindi í för með sér nema að það eigi að reyna að bíða af sér þennan ólgusjó.
Það er svo spurning hversu fljótlega birti til í þessum kortum sem blasa við. Enn verra er að eiga stjórnvöld sem engin svör eiga við krísuástandi. Það eru mestu vonbrigðin á þessum degi. En kannski eru engin svör að finna.
![]() |
Engar aðgerðir fyrirhugaðar vegna gengisfalls krónu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.3.2008 | 11:31
Krónan rokkar til og frá

Það sögðu margir réttilega í gær að það ætti að ekki að taka paník-kast vegna eins svarts dags eða tímabundinnar lækkunar. Það verður að ráðast á næstu dögum hversu kröpp þetta gengisfall krónunnar er, en það mun þegar fara út í verðlagið þegar að svo miklar sveiflur verða og þegar sést hvernig bensínverðið tekur við sér.
Ríkisstjórnin kemur með yfirlýsingu á eftir. Öll fylgjumst við með viðbrögðum stjórnvalda. Það skiptir máli að þar verði talað af ábyrgð og festu um þá stöðu sem við erum. Það er enginn valkostur að breiða yfir þessa stöðu og reyna að tala okkur frá henni. Það er alvöru krísa í gangi og nú reynir á þá flokka sem fengu afgerandi umboð í kosningunum fyrir ári og hvernig þeir höndla krísuástand.
![]() |
Gríðarlegt flökt á krónunni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.3.2008 | 19:52
Sjálfstæða utanríkisstefnan hennar Sollu
Það er alveg meinfyndið eftir allt gaggið og galið hjá Ingibjörgu Sólrúnu um að við verðum að koma okkur upp sjálfstæðri utanríkisstefnu að hún sé nú að vísitera Afganistan og kynna sér aðstæður þar. Það var kannski aldrei neitt að marka þetta tal hennar forðum daga. Hvað varð um Samfylkingarfólkið sem gagnrýndi að við værum að skipta okkur af málum í Afganistan en sér nú leiðtoga sinn á ferðalagi um svæðið.
Veit ekki hvort þetta sé rétt hjá ráðherranum en þetta er aðallega vandræðalegt fyrir þá sem hafa stutt Samfylkinguna og haft uppi stór orð um að við fetum í fótspor annarra þjóða og gleypum upp stefnu annarra alveg hráa. Það er stór spurning hvað Ingibjörg Sólrún lærir á vistinni í Afganistan en vonandi getur hún sagt flokksfélögum sínum frá því hvernig ástandið sé þar og hvað við séum nú að standa okkur vel í verkefnum þar. Væntanlega er það rullan sem heyrist þegar að haldið er heim.
Annars fannst mér Ingibjörg Sólrún komast mjög illa frá viðtalinu við Xinhua-fréttastofuna. Auðvitað eigum við að styðja Taíwan og Tíbet í þeirra sjálfstæðishugleiðingum og baráttu þeirra fyrir að komast í samfélag þjóðanna. Við eigum ekkert inni hjá hinni blóðugu einræðisstjórn í Kína og eigum ekki að selja okkur Kínverjum þrátt fyrir baráttuna um sætið í öryggisráðinu. Við eigum ekki að leggjast flöt undir Kínverja vegna þeirrar kosningabaráttu.
Ingibjörg Sólrún fór illa að ráði sínu með þessum ummælum um Taíwan og á að sjá sóma sinn í að leiðrétta þau hið fyrsta. Ella er allt tal hennar um sjálfstæða utanríkisstefnu fokið út í buskann. Það kannski er þegar farið veg allrar veraldar með vísitasíunni til Afganistans? Ekki nema von að spurt sé.
![]() |
Ingibjörg Sólrún í Afganistan |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |