Afleit ákvörðun Vilhjálms - klúður í Valhöll

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson Mér finnst sú ákvörðun Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar að sitja áfram sem leiðtogi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík vera algjörlega afleit og jaðra við pólitískt klúður af stórum skala, þar sem persónulegir hagsmunir nokkurra einstaklinga eru sett ofar heill og hag Sjálfstæðisflokksins. Það er í sjálfu sér dapurlegt að sjá hvernig komið er fyrir Vilhjálmi, en ákvörðun hans er sérstaklega vond fyrir flokkinn.

Allt yfirbragð blaðamannafundarins í Valhöll bar þess vitni að þar fór stjórnmálamaður sem hefur brennt allar brýr að baki sér og er búinn að vera í stjórnmálum, en getur ekki hugsað sér að hætta. Þessi blaðamannafundur var reyndar á tímabili farinn að minna mig á lestur bókarinnar Beðið eftir Godot eftir Beckett. Svo loksins þegar að hann byrjaði var hann stórt klúður, bæði í uppsetningu þar sem vandræðalegt yfirbragð var áberandi og engin tíðindi voru í sjálfu sér, önnur en þau að Vilhjálmur getur ekki horfst í augu við tapað tafl.

Það má vera að stærstu tíðindi blaðamannafundarins séu þau að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson ætlar ekki að gefa kost á sér í næstu borgarstjórnarkosningum. Með þá ákvörðun í vasanum skil ég ekki hvers vegna að Vilhjálmur ætlar að halda áfram sem leiðtogi. Það vakti líka athygli að borgarfulltrúar fóru allir af fundi löngu áður en niðurstaða var kynnt. Vilhjálmur var einn í orðsins fyllstu merkingu á þessum blaðamannafundi. En spurningarnar grassera. Er verið að geyma leiðtogastöðuna fyrir annan aðila þegar að kemur að vali borgarstjóra? Er verið að reyna að koma í veg fyrir að kjörinn borgarfulltrúi taki við borgarstjórnarflokknum?

Hafi þessi blaðamannafundur átt að styrkja stöðu Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar sem leiðtoga borgarstjórnarflokksins og borgarfulltrúa mistókst það hrapallega. Það sem ég óttast þó mest er að Sjálfstæðisflokkurinn veikist sem heild í lykilvígi sínu allra mest. Það er algjörlega afleitt að heill og hagur nokkurra manna sem geta ekki horfst í augu við endalok stjórnmálaferils Vilhjálms sé sett ofar flokkshag.

mbl.is Vilhjálmur: Hef axlað ábyrgð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Roy Scheider látinn

Roy Scheider Bandaríski leikarinn Roy Scheider er látinn, 75 ára að aldri. Hann var einn besti leikari sinnar kynslóðar og lék í fjöldamörgum vinsælum kvikmyndum á leikferli sínum. Blómaskeið ferils hans var á áttunda áratugnum, en hann náði heimsfrægð og tilnefningu til óskarsverðlaunanna í upphafi hans með túlkun sinni á lögreglumanninum Russo í The French Connection - myndin sló í gegn og hlaut óskarinn sem besta myndin árið 1971 og fyrir leikstjórn William Friedkin og leik Gene Hackman.

Scheider náði hápunkti sínum á ferlinum með túlkun sinni á lögregluforingjanum Martin Brody í hinni óviðjafnanlegu hákarlamynd Steven Spielberg, Jaws, árið 1975, sem byggð var á frægri skáldsögu Peter Benchley. Scheider var traustur og góður í hlutverki mannsins sem berst við mannætuhákarl er herjar á strandabyggð hans í Massachusetts í Bandaríkjunum. Hápunktur myndarinnar hlýtur að teljast árás hákarlsins á Brody og félaga hans sem ætla að drepa skepnuna. Þeir komast bæði að því að báturinn er of lítill og hákarlinn of stór til að hann verði drepinn með sama hætti og aðrir sem hákarlasérfræðingurinn Quint hefur veitt.



Mjög margt gekk á afturfótunum við gerð myndarinnar. Vélstýrði hákarlinn bilaði á viðkvæmasta tíma í kvikmyndatökum og endalausar rigningar riðluðu tökuplaninu, þar sem brakandi sumarblíða átti að leika lykilhlutverk. Svo fór að hákarlinn varð minna sýnilegur í myndinni en stefnt var að. Með því skapaðist þó einn helsti dulúðleiki myndarinnar þar sem ógnin er ósýnileg stærstan hluta hennar og byggir upp spennuna á lokakaflanum, sem er einn sá mest spennandi í kvikmyndasögunni. Það er ekki hægt að sjá á myndinni að veðrið hafi strítt Spielberg en myndin er sólsæt og kuldaleg í senn. Scheider lék Brody aftur síðla áratugarins í Jaws 2.



Annar hápunktur leikferils Scheiders var er hann lék Doc í kvikmynd John Schlesinger, Marathon Man árið 1976. Einn af bestu þrillerum áttunda áratugarins. Segir frá því er ungur háskólanemi (leikinn af Dustin Hoffman) flækist í leynilegar aðgerðir er varða demantaflutninga og gamlan nasistaforingja í S-Ameríku (leikinn af Laurence Olivier), sem kemur úr felum er sending fer úrskeiðis. Námsmaðurinn flækist í málið vegna bróður síns (Doc - leikinn af Scheider), sem er drepinn af illvirkjunum, og þegar hann veit orðið of mikið um starfsemina er hætt við að þeir reyni að þagga niður í hopum líka.



Ein sterkasta leikframmistaða Roy Scheider var í dans- og söngvamynd Bob Fosse, All That Jazz, árið 1979 og fyrir hana hlaut hann seinni tilnefningu sína til óskarsverðlaunanna í hlutverki leikstjórans og danshöfundarins, sem er í einu og öllu byggður á persónu Fosse sjálfs. Myndin er vissulega mjög beisk samantekt á dansleikjaheiminum en raunsæ, einkum vegna þess að Fosse færir okkur egósentríska en heiðarlega úttekt á sjálfum sér og verkum sínum. Ein beittasta en heiðarlega sjálfsrýni sem sést hefur á hvíta tjaldinu. Og lokaatriðið er alltaf yndislegt.



Roy Scheider lék í fjölda litríkra kvikmynda á löngum ferli. Margar þeirra voru ágætar, sumar slæmar en aðrar minntu á þá gullnu takta sem hann sýndi á áttunda áratugnum. En hann toppaði sig aldrei eftir það, þó vissulega hafi hann verið góður t.d. í The Rainmaker, fyrir áratug, auk mynda á borð við Naked Lunch, The Myth of Fingerprints, The Russia House og síðast en ekki síst Night Game. Minningin um góðan leikara lifir.


mbl.is Roy Scheider látinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eric Clapton að koma til Íslands

Eric Clapton Það verður ekki um það deilt að Eric Clapton er einn besti tónlistarmaður síðustu áratuga, goðsögn í lifanda lífi. Það er því mjög ánægjulegt að hann sé að koma til Íslands og halda tónleika. Loksins, loksins, segja eflaust helstu aðdáendur hans. Clapton hefur verið goð sinnar kynslóðar og að svo mörgu leyti annarra. Auðvitað ekki vegna margfrægs lífstíls síns, heldur umfram allt tónlistarinnar. 

Aldrei hefur Clapton þó snortið mig og eflaust fleiri meira en þegar að hann samdi og söng hið undurljúfa lag sitt Tears in Heaven - þar braust rokkgoðið harða og ákveðna allt að því fram með tárin í augunum og samdi kveðjuóð til sonar síns, Connors, sem hafði látist með sorglegum hætti í New York. Þar fór lífsreyndi rokkarinn með tilfinningar, eins og við öll, en líka faðirinn með ábyrgðartilfinninguna sem hafði boðskap fram að færa - talaði hreint út, lét tilfinningarnar koma óhikað. Og lagið er einstakt.



Annars er erfitt að nefna bestu lög Claptons, en þau sem koma helst í huga mér eru lög á borð við; Layla, Tears in Heaven, Crossroads, Bellbottom Blues, Have You Ever Loved A Woman, Badge, Cocaine, I Shot the Sheriff, My Father´s Eyes, Change the World, Old Love og Wonderful Tonight. Allt perlur rokksögunnar að sínu leyti, minnisvarði um rokkgoð.

Eric Clapton er einn þeirra sem hefur flutt sterk og eftirminnileg lög, sem þekja allan skalann, eru eftirminnileg, ekkert síður en karakterinn á bakvið lögin. Gott að fá hann hingað á konsert. Verður hann ekki Íslandsvinur með því?


mbl.is Clapton með tónleika á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Veikburða leiðtogatafl sjálfstæðismanna í Reykjavík

Vilhjálmur Þ. Ég tel að það sé ekki farsæl niðurstaða fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík ef Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson ætlar sér ekki að horfast í augu við að staða hans veikist sífellt og nær útilokað orðið að hann verði aftur borgarstjóri og leiði flokkinn í kosningum. Miðað við umfjöllun ljósvakamiðlanna í kvöld finnst mér full þörf á því að velta fyrir sér hvert stefni hjá flokknum og hvort ráðleysið sé svo mikið að þar á bæ sé ekki þorað að taka af skarið.

Ég tel að allir sem þekki Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson geti borið því vitni að þar fer vandaður og góður maður, sem hefur unnið lengi gott starf fyrir Sjálfstæðisflokkinn og Reykjavíkurborg. Það er eðlilegt að virða það sem hann hefur gert. Honum urðu þó á mjög mikil mistök í REI-málinu og virðist orðið útilokað annað en að hann verði að bera á því ábyrgð með einum eða öðrum hætti. Ella fylgi það flokknum eins og mara í næstu kosningar. Eins og komið er málum er hið eina heiðarlega í stöðunni að Vilhjálmur víki til hliðar og nýr leiðtogi taki við. Þetta er heiðarlegt mat mitt og mér finnst eðlilegt að tjá sig hreint út í þessum efnum. Staðan gefur fullt tilefni til þess.

Mér finnst frekar vond sú tilhugsun að sjálfstæðismenn í Reykjavík ætli að láta þetta mál dankast það mikið að ekki verði tekin heiðarleg ákvörðun um framtíð Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar á leiðtogastóli fyrr en mun síðar. Í mínum huga þarf að taka af skarið hvort hann haldi áfram og fari þá aftur í kosningar nú þegar. Þessi vafi mun aðeins veikja flokkinn í sessi. Það þarf ekki sérfræðinga í stjórnmálum til að sjá að Vilhjálmur hefur þegar veikst umtalsvert í sessi, trúverðugleiki hans er að mestu gufaður upp og það spyrja sig allir um styrk leiðtogans. Það getur aldrei talist gott og þaðan af síður fyrir stjórnmálamann sem lengst allra hefur setið í borgarstjórn Reykjavíkur.

Mér sýnist á allri umræðunni að örlög Vilhjálms séu ráðin en það sé beðið annars tímapunkts með því að staðfesta það. Heldur finnst mér það dapurlegur dómgreindarbrestur þeirra sem leiða Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík og halda þar um tauma. Með því mati eru þau að veikja flokkinn enn meir en orðið er og þætti mér fullt tilefni til að þetta fólk tæki frekar af skarið en ýti þessu máli á undan sér fram úr hófi. Það er í sjálfu sér eðlilegt að framtíð leiðtogans skýrist nú. Ef hann ætlar sér að sitja áfram heldur hann í næstu kosningar og er leiðtogi lengur, ella hættir hann. Valkostirnir geta ekki verið einfaldari.

En hið versta í stöðunni er að einhverjir velti því virkilega fyrir sér að sækja leiðtogaefni í borgarstjórnarflokkinn út fyrir raðir hans þegar að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson hættir. Það virðist vera að sú dýrkeypta lexía að gera Markús Örn Antonsson, fyrrverandi útvarpsstjóra, að borgarstjóra og leiðtoga borgarstjórnarflokksins fyrir sautján árum hafi ekki verið nógu beisk og erfið til þess að það sé uppi á borðinu sem valkostur. Að flestra mati veikti sú ákvörðun flokkinn og margir rekja tapið í borgarstjórnarkosningunum 1994 til þess. Það hlýtur að hljóma eins og neyðarráðstöfun fyrir vissa aðila.

Það er illa komið fyrir flokknum í Reykjavík og stoðum hans ef að kjörnir fulltrúar geta ekki leyst mál á borð við þetta þar sem leiðtoginn riðar til falls og velja þarf nýjan leiðtoga.

mbl.is Ekki ástæða til að ræða við Vilhjálm og Björn Inga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Veik staða Vilhjálms - uppgjör framundan

Vilhjálmur Þ. VilhjálmssonÉg finn það á sjálfstæðismönnum sem ég þekki að beðið er þess að tekið verði á málum innan borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins eða ella verði Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins, að sýna þann myndugleika er felst í hlutverki hans og höggva á þann hnút sem uppi er og taka á veikri stöðu Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar. Það virðist aðeins vera tímaspursmál hvenær að þau mál klárist.

Mér finnst þögn formanns Sjálfstæðisflokksins vera orðin allt að því æpandi og mér finnst það eiginlega ábyrgðarhlutur að leyfa þessu máli að dankast með þeim hætti sem við blasir. Það er mikið veikleikamerki fyrir forystu Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík að hafa ekki tekið á þessu máli og ég lít svo á staða hennar veikist með hverri stundu. Í þessum efnum þýðir ekkert annað en að horfast í augu við stöðu mála og staðreyndir. Leiðtogi hópsins er rúinn trausti, það þarf að taka á þeirri staðreynd og það fljótlega.

Það heyrast ýmsar kjaftasögur um hvað eigi að taka við þegar að leiðtoginn hefur axlað hina pólitísku ábyrgð á REI-málinu. Að mínu mati kemur ekkert annað til greina en að framboðslistinn færist upp í ábyrgðarröð hvað varðar embætti. Að því leiðir að ég tel að Hanna Birna Kristjánsdóttir eigi að taka við leiðtogahlutverki í borgarstjórnarflokki Sjálfstæðisflokksins. Það hefur enginn sterkara umboð til þess. Hanna Birna hefur umboð úr síðasta prófkjöri - þá hlaut hún flest atkvæði og vann slag um annað sætið við Júlíus Vífil Ingvarsson með afgerandi hætti.

Ég tel að sjálfstæðismenn, ekki bara í Reykjavík heldur um allt land, bíði eftir því að forysta flokksins geti leyst þetta mál fljótlega. Það þýðir ekki að bíða mikið lengur en orðið er. Það blasir við öllum sem líta heiðarlega á málið.


mbl.is Pólitísk staða Vilhjálms rædd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Beðið eftir afsögn Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar

Vilhjálmur Þ. og borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins Það blasir við að pólitísk staða Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar sem leiðtoga Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn hefur veikst það mikið að hann muni brátt segja af sér, allavega leiðtogahlutverkinu. Það hefur verið dapurlegt að fylgjast með stöðu málsins síðustu dagana. Þar hefur Vilhjálmur sífellt veikst og tilraun hans til að verjast með því að benda á lögfræðilegt álit forstjóra Orkuveitunnar og nefna hann borgarlögmann var sorglegt klúður.

Staða Vilhjálms sem leiðtoga er í raun orðin óverjandi og sést það best af því að Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins, sá sér ekki fært að tjá sig við fréttastofu Sjónvarps og svara spurningum eftir flokksfund í Kópavogi. Er mikilvægt að tekið verði af skarið í þessum efnum sem fyrst og getur varla verið langt í þá stund eins og komið er málum. Eru fáir sem leggjast í að verja stöðu leiðtogans og virðist hann rúinn trausti og stuðningsmenn flokksins kalla frekar eftir afsögn hans en verja þá vonlausu stöðu sem hann er kominn í.

Þetta er vissulega mjög erfið staða og vond fyrir Sjálfstæðisflokkinn í alla staði. En það dugar ekki úr þessu að líta framhjá því hvert stefnir. Í þessum efnum þarf að hugsa um heill og hag Sjálfstæðisflokksins, ekki um persónur.


Geir H. Haarde

mbl.is Yfirlýsing frá borgarlögmanni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vilhjálmur Þ. verður að segja af sér

Vilhjálmur Þ. VilhjálmssonÞað er mikilvægt að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson beri hina pólitísku ábyrgð í kjölfar REI-málsins og segi af sér sem leiðtogi borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins. Það er fjarstæðukennt að hann verði borgarstjóri að nýju og leiði flokkinn aftur eftir mistök sín á síðustu mánuðum. Þar þarf nú nýja forystu og bæði eðlilegast og réttast í stöðunni að Hanna Birna Kristjánsdóttir, forseti borgarstjórnar, taki við leiðtogahlutverki.

Það hefur verið dapurlegt að fylgjast með pólitískri framgöngu Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar á þessu kjörtímabili. Hann fékk gullið tækifæri til að leiða Sjálfstæðisflokkinn rétta leið eftir tólf ára minnihlutasetu en mistókst það með vinnubrögðum sínum, sérstaklega í haust þar sem hann hafði samstarfsfólk sitt í borgarstjórn Reykjavíkur ekki með í ráðum og vann bakvið tjöldin með afleitum hætti. Áfellisdómur hefur verið felldur yfir því verklagi í REI-skýrslunni. Það er hið eina rétta fyrir hann nú að víkja úr leiðtogastöðunni.

Það væri farsælast fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík að Vilhjálmur tæki af skarið með stöðu sína fljótlega. Það er greinilegt að flokksmenn í borginni og víða um land telja nóg komið. Að mínu mati er greinilegt að Vilhjálmi skorti nú stuðning og styrk til að halda áfram. Það er greinilegt að Geir H. Haarde, formaður Sjálfstæðisflokksins, þarf að höggva á þennan hnút ef ekki tekst fljótlega að leysa hann.

Það væri farsælla að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson hugsaði um heill og hag Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík og tæki þá ákvörðun sjálfur að víkja af leiðtogastóli. Það er alveg ljóst að það verður að taka af skarið fljótlega og tryggja styrka forystu fyrir flokkinn, nú þegar að leiðtoginn er rúinn trausti og trúverðugleiki hans gufaður upp.


mbl.is „REI - ætlar Sjálfstæðisflokkurinn ekki að axla ábyrgð?“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hættir Barack Obama lífinu fyrir framboðið?

Barack Obama Í fyrsta skipti í bandarískri stjórnmálasögu á þeldökkur maður raunhæfa möguleika á því að verða kjörinn forseti Bandaríkjanna. Barack Obama hefur sýnt það og sannað að hann hefur stöðu og styrk í að hljóta forsetaembættið. En margir telja að hann sé að hætta lífi sínu fyrir framboðið. Doris Lessing, nóbelsverðlaunahafi í bókmenntum, talar mjög skýrt um að hann yrði ekki langlífur yrði hann kjörinn forseti Bandaríkjanna og það hafa fleiri sagt hið sama.

Þetta er vissulega mjög kuldalegt mat og dapurlegt að staðan sé með þeim hætti að fordómar grasseri enn gegn þeldökkum. Fjórir áratugir eru liðnir frá því að blökkumannaleiðtoginn dr. Martin Luther King var myrtur í Tennessee. Morðið á honum var áfall fyrir blökkumenn sem höfðu barist undir forystu dr. Kings fyrir mannréttindum sínum og komist nokkuð áleiðis með mannréttindalögum Johnsons forseta árið 1964, sem hann hafði tekið í arf frá John F. Kennedy, forvera sínum, sem myrtur var í Texas árinu áður og hafði talað mjög fyrir réttindum blökkumanna.

Þrátt fyrir að dr. King átti sér draum um samfélag þar sem allir væru jafnir óháð litarafti hefði hvorki honum né þeim sem gengu með honum í Washington árið 1963 órað fyrir því að nokkrum áratugum síðar ætti blökkumaður alvöru möguleika á að komast alla leið í Hvíta húsið, þó þeim hafi eflaust innst inni dreymt um þann möguleika. Aðeins fjórir þeldökkir (utan Obama) hafa gefið kost á sér til forsetaembættis. Þeirra þekktastur er Jesse Jackson, sem barðist fyrir útnefningu demókrata árin 1984 og 1988, en auk hans hafa Al Sharpton, Shirley Chisholm og Carol Elizabeth Moseley Braun gefið kost á sér.

Mikið var skorað á Colin Powell, hershöfðingja í Persaflóastríðinu, um að gefa kost á sér í forsetakosningunum 1996 sem frambjóðandi Repúblikanaflokksins. Kannanir sýndu að hann átti góða möguleika á að verða forseti Bandaríkjanna. Hann velti fyrir sér þeim möguleika að fara fram af alvöru, en ákvað þó að gefa ekki kost á sér. Eiginkona hans, Alma, var mjög andsnúin framboði hans, af ótta við að hann yrði myrtur færi hann í framboð og myndi sigra Bill Clinton. Powell hefur margoft sagt þá ákvörðun rétta. Powell varð fyrsti þeldökki utanríkisráðherrann árið 2001, í forsetatíð George W. Bush, sem valdi þeldökka konu sem eftirmann hans.

Það hefur margoft verið velt fyrir sér þeim möguleika að blökkumaður yrði forseti Bandaríkjanna og það verið stílfært í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum. Í upphafi áratugarins var það lykilsöguþráður í fyrstu sjónvarpsseríu þáttaraðarinnar 24 að ráða ætti þeldökkan forsetaframbjóðanda, David Palmer, af dögum, en hann var þá í fararbroddi þeirra sem sóttust eftir útnefningu Demókrataflokksins. Litlu munaði að þeim tækist það, en atburðarásin tók á sig ýmsar myndir er yfir lauk. Í annarri seríu var Palmer orðinn forseti, fyrstur þeldökkra, og söguþráðurinn snerist enn að mestu um hann. Hann var að lokum myrtur í fimmtu seríunni.

Það er vissulega kuldalegt að tala enn með þeim hætti að blökkumaður verði sjálfkrafa myrtur komist hann nærri flokksútnefningu eða vinni forsetaembættið en þetta er samt veruleikinn. Það eru enn til valdamiklir hópar sem vilja ekki að blökkumaður verði valdamesti maður heims og munu berjast harkalega gegn því. Fordómarnir lifa enn, því miður.

mbl.is Obama „yrði myrtur“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vilhjálmur leitaði til Hjörleifs - algjört klúður

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson Það er nú orðið ljóst, þó að allir hafi sagt það nema Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson sjálfur, að hann átti við Hjörleif Kvaran, forstjóra Orkuveitunnar, þegar að hann sagðist hafa leitað eftir lögfræðilegu áliti borgarlögmanns. Þetta er auðvitað algjört klúður og varla séð hvernig að Vilhjálmur geti talað sig frá þessu. Þetta er jafn vandræðalegt og blaðamaður segðist vitna í forsætisráðherra í frétt, en svo kæmi upp úr dúrnum að þar væri átt við Davíð Oddsson.

Vissulega hefur Hjörleifur verið borgarlögmaður, en það eru orðin fimm ár síðan, en hann gegndi því starfi í níu ár við hlið Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur sem borgarstjóra á valdatíma R-listans. Það er einum of langt síðan til að Vilhjálmi til varnar sé talað um að það sé stutt síðan hann hætti, enda var ekki skipað í stöðu borgarlögmanns í rúm tvö ár og svo ekki ráðið í hana fyrr en á síðasta ári þegar að Kristbjörg Stephensen hlaut starfið í meirihlutatíð Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Þegar að haft er í huga að álit borgarlögmanns löngu liðinna tíma voru aðalrök Vilhjálms í Kastljósi á fimmtudag er um algjört klúður að ræða.

Er talað er um Hjörleif nú um stundir kemur ekki fyrst upp í hugann orðið borgarlögmaður, þó eflaust ágætis lögfræðingur sé, enda hefur hann gegnt forstjórastarfi í Orkuveitunni síðustu mánuði og var forstjóri fyrirtækisins á umdeildum hluthafafundi í október. Báðir sátu þeir því fundinn og það er ekki traustvekjandi sé Vilhjálmur að tala um hann í þessu tilfelli. Það blasir við að hann hafi veitt Vilhjálmir "lögfræðilega ráðgjöf" á hluthafafundinum sjálfum eða þá rétt fyrir hann. Það er fjarri því að vera traustverðugt fyrir hvorugan manninn og er varla haldbært lögfræðilegt álit. Í öllum þessum hraða virðist hver hafa kóað annan í vitleysunni.

Þeir félagar Vilhjálmur og Hjörleifur báðir eiga á hættu að þurfa að axla ábyrgð vegna þessa máls, bera báðir mikla ábyrgð í því auk Guðmundar Þóroddssonar. Það er kallað eftir því að þeir axli þá ábyrgð og skal engan undra miðað við allt pólitíska klúðrið. Það að Vilhjálmur leiti til forstjóra Orkuveitunnar um lögfræðilegt álit en ekki borgarlögmanns, eins og hann fullyrti æ ofan í æ í afspyrnuslöku viðtali í Kastljósinu, er ekki traustvekjandi og hlýtur að teljast pólitísk afglöp. Ofan á allt annað er fullyrt í Fréttablaðinu í dag að Vilhjálmur hafi skipað Kristbjörgu að tjá sig ekki um málið við fjölmiðla og gengið langt fram í því.

Það er alveg ljóst að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson þarf að íhuga sína pólitísku stöðu um helgina. Það er í mínum huga orðið fráleitt að hann taki aftur við embætti borgarstjóra í Reykjavík og ég tel að það væri best fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík að hann myndi taka af skarið um það sem allra fyrst.

mbl.is Forstjóri OR álitsgjafinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aftakaveður um allt land

Aftakaveður Dagurinn hefur verið heldur betur stormasamur. Sennilega hefur veðrið verið verst fyrir sunnan. Hér hefur gengið á með suðvestanroki, sem er leiðinleg átt hér á Akureyri. Virðist ætla að verða ekta hvassviðrisnótt. Hef fengið margar lýsingar á stöðunni fyrir sunnan í spjalli við vini og ættingja þar. Svona óveður eru alltaf ömurleg. Við verðum oft ansi hjálparlaus þegar að máttarvöldin minna á sig.

Það hlýtur að hafa verið alveg skelfileg lífsreynsla að húka um borð í flugvélunum á Keflavíkurflugvelli og komast hvorki lönd né strönd. Finn til með þessu fólki hreinlega að þurfa að bíða þar klukkustundum saman eftir aðstoð til að komast í burtu. Það sannast alltaf vel á þessum stundum hvað við eigum góðar björgunarsveitir sem eru til taks. Þær sanna alltaf mátt sinn er veðrið versnar og við þurfum einhverja aðstoð í nauð.

Annars er best bara að vera heima núna og slappa af og bíða óveðrið af sér. Hér fyrir viku var sama staða uppi í kafsnjókomu. Nú er snjórinn að fara og aðstæðurnar aðrar. En samt sem áður er best að taka því bara rólega í óveðrinu.

Kannski ég horfi bara á meistaraverk John Huston Key Largo, með Bogart og Bacall, á eftir. Það er viðeigandi að horfa á myndina í því leiðindaveðri sem er hérna fyrir norðan þessa stundina - myndin gerist jú í aftakaveðri. :)

mbl.is Flutningi úr flugvélum lokið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vilhjálmur verst - hvaða borgarlögmaður er þetta?

Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson Miðað við stöðu mála er mikilvægt að Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, formaður borgarráðs, gefi upp hvaða fyrrum borgarlögmann hann ráðfærði sig við áður en hluthafafundur Orkuveitunnar fór fram í október. Það liggur enn ekki fyrir, en nú er þó ljóst með yfirlýsingu Vilhjálms að ekki er það Kristbjörg Stephensen, núverandi borgarlögmaður.

Kristbjörg hefur gegnt stöðu borgarlögmanns nú í tæpt ár, en þar áður hafði enginn gegnt stöðunni í tvö ár, frá valdatíma R-listans. Það er eðlilegt að Vilhjálmur verji sig telji hann ranglega að sér sótt og því er ánægjulegt að Kastljósið hafi leiðrétt rangfærslur sínar í gærkvöldi. Yfirlýsing Þórhalls Gunnarssonar og Sigmars Guðmundssonar varpar betra ljósi á það mál og skýrir stöðuna um þann veigamikla þátt málsins.

Það vantar hinsvegar alveg að Vilhjálmur fylli upp í heildarmyndina með því að gefa upp hvaðan lögfræðiálitið kom sem hann hefur svo oft talað um eftir að REI-skýrslan varð opinber. Það þarf að opinbera og spyrja viðkomandi út í hvernig það álit var í öllum þeim óskiljanlega hraða sem einkenndi REI-málið. Miðað við REI-skýrsluna og þær fullyrðingar að borgarstjórinn á þeim tíma hafi ekki haft umboð þarf að heyra í þeim borgarlögmanni sem Vilhjálmur á við.

mbl.is Yfirlýsing frá Vilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Umdeild auglýsing á moggablogginu

Mér brá svolítið í gær þegar að það var komin auglýsing frá Nova í hornið á bloggvefnum mínum, og öllum öðrum hér á moggablogginu. Er svolítið hissa á því að okkur sem skrifum hér sé ekki einu sinni tilkynnt fyrirfram að plássið hafi verið selt og við þurfum að auglýsa stórfyrirtæki með skrifum okkar. Það hefur verið sendur póstur til okkar moggabloggara frá yfirstjórn blog.is af mun minna tilefni en þessu allavega.

Þegar að ég byrjaði að blogga hér haustið 2006 var auglýsing frá Landsbankanum að mig minnir í þessu plássi. Svo hvarf hún og plássið autt í mjög langan tíma. Á miðju þessu auglýsingalausa tímabili var nokkrum moggabloggurum boðið að auglýsa sparisjóðinn Byr og ákváðu sumir þeirra að taka því boði. Þá var meira að segja talað um að hver bloggari gæti jafnvel selt sitt auglýsingapláss með sínum hætti.

Er svosem ekkert á móti því að auglýsing sé, en hún er ansi áberandi, allavega eftir svo langan auglýsingalausan tíma. Verst er að þeim sem skrifa er ekki tilkynnt um þessa stefnubreytingu. Hef fundið vel fyrir ólgu meðal fjölda bloggara með þessar nýjustu vendingar. Annars lít ég svo á að ég hafi bloggplássið algjörlega ókeypis og það er mjög gott, hingað koma lesendur og það er jákvætt og gott auðvitað.

Skil að sumir séu pirraðir yfir þessu. Held samt að enginn sé pirraðri en Vodafone, en mér fannst fyndnast af öllu að sjá auglýsingu Nova á bloggvef fyrirtækisins hér.

Ólöf aðstoðar Ólaf

Ólöf GuðnýFinnst það gott val hjá Ólafi F. Magnússyni, borgarstjóra, að velja Ólöfu Guðnýju Valdimarsdóttur sem aðstoðarmann sinn. Held að í henni muni Ólafur F. hafa styrka stoð. Ekki veitir honum af í embættinu næstu þrettán mánuði að hafa traustan aðstoðarmann sem heldur utan um dagbókina hans.

Mér finnst Ólafur F. hafa staðið sig vel síðustu dagana og er viss um að hann verði góður borgarstjóri. En þetta er mikið verkefni. Ólafur F. veit vel að margt er í húfi fyrir hann að vel gangi á borgarstjórastóli. Hann mun eflaust láta verkin tala og mun láta málefni sín ráða för. Það hefur hann alltaf gert.

Meirihluti Sjálfstæðisflokks og F-lista hefur ekki setið lengi við völd en það er eðlilegt að hann fái sína hundrað daga til að vinna verkin og svo verði látið á reyna hvernig að honum muni ganga. Kannanir sýna vel að óánægja er með óstöðugleikann í borgarmálunum. Það er eðlilegt að sá ágreiningur komi fram, enda eigum við aldrei að vera ánægð með að meirihlutar komi og fari.


mbl.is Ráðin aðstoðarmaður borgarstjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Peningamaskínan í bandarísku forsetakjöri

Dollarar Það er mjög sérstakt að fylgjast með peningatölunum í bandarísku forsetakjöri. Það er ekki fyrir neinn aukvisa að sækjast eftir þessu valdamesta embætti þjóðarinnar, enda þarf allt í senn kláran frambjóðanda með bakland stuðningsmanna og strategíumaskínu auk heils hellings af peningum. Það byggir enginn slíkt bakland upp á nokkrum vikum og heldur óundirbúinn til leiks ef alvara á að fylgja máli á hinni löngu leið til Hvíta hússins.

Allir frambjóðendur sem börðust í forkosningum fyrir forsetakjörið, nú eftir áramótin, gáfu kost á sér snemma árs 2007, nema Fred Thompson. Hann kom til leiks í september og þótti seinn. Náði heldur ekki að standa sig vel og slaufaði sig frá baráttunni eftir að honum mistókst að standa sig í suðrinu, féll í Suður-Karólínu. Enda eru fræg spakmælin að sértu fyrrum þingmaður eða ríkisstjóri úr suðrinu og getir ekki orðið sigursæll í suðrinu sé eins gott að sitja heima. Allir þessir frambjóðendur hafa ekki síður þurft að safna heilum helling af peningum sem eldsneyti í framboðið, ekkert síður en byggja bakland. Peningarnir eru grunnur alls hins.

Kosningabaráttan að þessu sinni er orðin sú lengsta í bandarískri stjórnmálasögu. Þeir sem fara alla leið sem frambjóðendur stóru flokkanna munu þurfa að heyja kosningabaráttu, í raun án nokkurrar alvörupásu, í tæp tvö ár. Flestir frambjóðendurnir gáfu kost á sér í janúar 2007. Það var til marks um hversu veik staða George W. Bush var orðin og hve baráttan fyllti upp í tómarúm pólitísku stöðunnar í kringum forsetann. Hann hefur verið særður eftir þingkosningarnar 2006, hefur ekki náð að byggja sig upp eftir það mikla tap og er nú eins og týpískur forseti á seinna tímabili - allir bíða eftir að hann hætti. Áhrifin alltaf hverfandi.

En það þarf mikla peninga til að halda baráttunni lifandi allan þennan tíma. Einhver sérfræðingurinn sagði að milljarður dollara væri farin frá upphafi hjá öllum frambjóðendunum. Veit ekki hvort það er satt, en það er allavega ekki fjarstæðukennt sé litið á eyðslu frambjóðendanna og tímann sem þeir hafa verið í framboði með öllu sem því fylgir. Talað er um að frambjóðendur á ofur-þriðjudegi hafi verið að eyða hundrum milljónum íslenskra króna per dag undir lok baráttunnar, altént þeir sem áttu alvöru möguleika á að vera sigursælir og lögðu allt í sölurnar fyrir að ná góðum árangri. Sumum mistókst að ávaxta það pund.

Það fer ekki alltaf saman að vera sigursæll og eiga mikla peninga. Í gær dró Mitt Romney sig út úr forsetaslagnum. Hann átti mjög mikið af peningum en hann komst ekki alla leið, var fjarri því eftir ofur-þriðjudaginn en ákvað að pakka saman frekar en eyða meiri peningum. Í hans tilfelli voru peningar ekki til þess að tryggja honum styrk í gegnum mikilvægasta hjallann. Nú er talað um eyðsluna hjá Hillary og Obama. Þar virðist baráttan standa enn af alvöru. Það er fjarstæða að annað þeirra sé búið að vera. Staðan á ofur-þriðjudegi sagði allt um styrk þeirra í flokkskjarnanum.

Bæði þurfa að halda áfram. Hálf baráttan þeirra snýst um eldsneytið í slaginn; peningana. Þar virðist öllum brögðum beitt og reynt er að sækja peninga með öllum tiltækum ráðum. Það verður áhugavert að sjá peningastreymið nú þegar að alvöru slag er í raun lokið hjá repúblikunum og John McCain stendur einn þar eftir á sviðinu sem trúverðugur frambjóðandi með styrk til að fara alla leið. Hversu  mikið ætli að Obama og Hillary þurfi til að berja á hvoru öðru?

mbl.is Peningarnir streyma til Obama
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þjóðkirkjan bolar fjölskyldu séra Péturs úr Laufási

Laufás Mér finnst það verulega dapurlegt að þjóðkirkjan ætli að bola fjölskyldu séra Péturs heitins Þórarinssonar, vinsæls og virts sóknarprests, úr Laufási og það þrátt fyrir að nær öll sóknarbörn hafi lýst yfir andúð á því verklagi. Hvað varð um manngæskuna og kærleikann sem þjóðkirkjan er að boða? Það er ekki nema von að fólk hér á þessu svæði spyrji sig þeirrar spurningar.

Mér finnst það gott hjá Ástu Flosadóttur á Höfða í Grýtubakkahreppi að skrifa opið bréf til biskups vegna þessa máls og vil ég taka undir hvert orð í skrifum hennar. Guðný Sverrisdóttir, sveitarstjóri í Grýtubakkahreppi, hefur líka verið áberandi í þessari baráttu og sveitarstjórn hefur ályktað vegna málsins og þarf það varla að koma að óvörum í ljósi undirskriftasöfnunar íbúa á svæðinu.

Það er eðlilegt að fólk hér sé hugsi yfir framgöngu forystu Þjóðkirkjunnar gegn Ingu og Þórarni sérstaklega, en afarkostir kirkjunnar eru óaðgengilegir og eðlilegt að fólk láti í sér heyra. Fólki hér svíður þetta verklag og það eigi að bola fjölskyldu séra Péturs burt með þessum ómerkilegu vinnubrögðum. Þjóðkirkjan er að sýna allt annað en manngæsku með þessari lágkúru.

mbl.is Gert að flytja húsið frá Laufási
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Milljón flettingar á heimasíðunni

Fyrr í vikunni fór fjöldi flettinga á heimasíðu minni yfir milljón talsins. Það er ánægjulegur áfangi. Ég vil þakka öllum þeim fjölda fólks sem lesa vefinn daglega kærlega fyrir að kíkja í heimsókn.


Romney hættir - McCain nær útnefningunni

Mitt Romney Það ætti ekki að koma neinum að óvörum að Mitt Romney hafi ákveðið að draga framboð sitt til embættis forseta Bandaríkjanna og tryggja með því endanlega að John McCain verði forsetaefni repúblikana í nóvember. Hann fór illa út úr ofur-þriðjudeginum og gerði sér grein fyrir því að hann átti ekki lengur raunhæfa möguleika á útnefningu flokksins. Í stað að draga ferlið á langinn gerir hann sér grein fyrir því að slagurinn er í raun búinn.

Til þess að vera áfram í slagnum hefði Mitt Romney þurft að sigra allavega í Kaliforníu, Georgíu og Missouri á ofur-þriðjudegi. Það var forsenda þess að framboðið væri trúverðugt. En svo fór ekki. Tapið í Kaliforníu var mesta áfallið og í raun endalokin fyrir framboðið, sem trúverðugt afl hið minnsta. Auk þess náði hann ekki að komast af alvöru fram úr Huckabee og var aðeins hársbreidd öflugri en hann, náði ekki að komast heldur upp að hlið McCain. Svo að þetta var orðið glatað og heiðarlegt mat að líta svona á stöðuna og segja hreint út að betra sé að flokkurinn fari að undirbúa sig fyrir kosningarnar í nóvember.

Mitt Romney hefði getað haldið áfram vissulega og barist fram í marsmánuð, á mikla peninga og marga öfluga lykilstuðningsmenn. En það er einfalt hvernig landið liggur. John McCain hefur þegar náð rúmlega 60% þingfulltrúa til að tryggja sér útnefninguna. Hann leiðir slaginn, hefur byr í seglin og stendur mjög vel að vígi. Þrátt fyrir að McCain hafi ekki tekist að klára slaginn endanlega í orðsins fyllstu merkingu á ofur-þriðjudegi er forskotið einfaldlega það mikið og afgerandi að hann verður ekki stöðvaður. Romney gerði sér grein fyrir þessu og það vita allir að Mike Huckabee mun ekki stöðva hann. Þetta er búið spil.

Það er greinilegt að mörgum stuðningsmönnum hans brá í dag að hann ætlaði sér að hætta slagnum og í staðinn sætta sig við orðinn hlut. Það er eðlilegt að stuðningsmenn hans séu ósáttir og hafi talið að halda hafi mátt áfram einhverjar vikur. En allir sem þekkja sögu forkosninganna í Bandaríkjunum sjá bara með því að líta á tölurnar nú eftir ofur-þriðjudaginn að John McCain hefur náð það sterkri stöðu að enginn mun koma í veg fyrir að hann verði forsetaefni repúblikana í nóvember, berjist fyrir því að taka við af George W. Bush, keppinaut sínum í forkosningaslagnum harkalega fyrir átta árum.

Þessi niðurstaða markar endalok alvöru baráttu um útnefningu Repúblikanaflokksins, þó að Mike Huckabee verði kannski einhverjar vikur í viðbót í slagnum. Engu að síður er baráttan búin, barátta af alvöru. John McCain mun bráðlega geta farið að undirbúa kosningabaráttu, stilla saman strengi og marka strategíuna, auk þess að sameina flokkinn að baki sér. Margir repúblikanar lengst til hægri hafa ekki enn sætt sig við að McCain fronti flokkinn - það mun taka þá hópa einhvern smátíma til að ná áttum og skynja að nú er aðeins framundan að berjast við demókrata, ekki McCain.

Á meðan stendur slagur Barack Obama og Hillary Rodham Clinton um útnefningu Demókrataflokksins enn. Það er alvöru slagur, enda enginn með afgerandi forskot eftir ofur-þriðjudaginn og virðist allt vera opið. Af því leiðir að demókratar berjast enn blóðugri baráttu á meðan að repúblikanar geta skipulagt sína baráttu og lagt sínar meginlínur. Það má kannski þakka Mitt Romney öllum mönnum mest fyrir að hafa klárað mál með svo heiðarlegum og skynsömum hætti nú á þessum tímapunkti. Hann veit að þetta er best í stöðunni, fyrir flokkinn.

Það er greinilegt að vaxandi óróleiki er meðal demókrata vegna þeirrar stöðu, sem eðlilegt er. Það verður því spurt um hversu lengi baráttan standi enn. Þegar er flokksmaskínan farin að draga í land með að þetta verði látið dankast í gegnum sumarið, eins og sumir hafa spáð, og koma í veg fyrir blóðugt vígi á þinginu í Denver.

Það er alveg ljóst að demókratar geta ekki leyft sér slík hjaðningavíg átta til níu vikum fyrir forsetakosningar. En hver ætlar að marka reglur svo báðum líki? Þegar er farið að rífast um hvernig eigi að breyta reglum í miðju ferlinu. Það blasir við að bæði munu berjast meðan stætt er.

mbl.is Romney hættur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Pólitísk staða Vilhjálms - snýr Guðmundur aftur?

Vilhjálmur Þ. Það fer ekki á milli mála að REI-skýrslan er áfellisdómur yfir stjórnsýslu REI-málsins og hversu illa það var unnið. Það hlýtur að verða spurt um pólitíska stöðu Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar, formanns borgarráðs og fyrrverandi borgarstjóra, í kjölfar þessarar skýrslu, enda er alveg ljóst að þessi mistök voru gerð á vakt hans sem borgarstjóra á meðan að málið var keyrt framhjá öðrum borgarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins.

Það er afleitt að vafi sé uppi um umboð Vilhjálms á eigendafundi OR. Mér finnst þetta mál hafa skaddað Vilhjálm Þ. gríðarlega mikið sem stjórnmálamann. Það er sjálfstæðismanna og sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík að svara því hvort hann njóti trausts eftir þetta hneykslismál og geti tekið aftur við embætti borgarstjóra eftir þrettán mánuði. Hann þarf að sækja sér traust aftur til að geta tekið við embættinu aftur. Mér finnst það í sannleika sagt ekki sjálfgefið eftir svo alvarleg pólitísk mistök. Það þarf í það minnsta að gera málið almennilega upp og fá að vita með vissu hvort Vilhjálmur hafði ekki vit á að kynna sér lykilgögn málsins eða laug að borgarbúum.

Í þessum efnum verður spurt um pólitíska ábyrgð og ennfremur ábyrgð þeirra sem stýrðu borgarreknu fyrirtæki augljóslega á villustigum. Að mínu mati þarf ábyrgð á þessu máli bæði að fara inn í fyrirtækið og ekki síður þarf það að vera gert upp á vettvangi stjórnmálanna. Það verður eflaust horft til þess hvort að Guðmundur Þóroddsson, forstjóri REI og áður OR, muni geta setið áfram sem yfirmaður á Bæjarhálsi. Hörð orð gengu á milli hans og Vilhjálms í REI-málinu í haust þar sem þeir vörpuðu ábyrgð á málinu á hvorn annan. Það gengur engan veginn og þarf að skýra mál í kjölfar þessarar skýrslu. Geta þessir menn unnið saman?

Þetta mál er skaðlegt fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík. Vissulega mistók Sjálfstæðisflokknum að vinna hreinan meirihluta í borgarstjórn í kosningunum 2006, en sem stærsti flokkurinn í borgarstjórn leiddi hann borgina áfram eftir að samstaða R-listans brast og flokkunum sem hann mynduðu mistókst að halda meirihluta. Eftir tólf ára minnihlutasetu hafði hann öll tækifæri til að standa sig vel, gera betur en R-listinn og stjórna borginni af krafti þegar að hann hlaut til þess styrk og stuðning að leiða meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur. Eftir stendur að Vilhjálmur gerði alvarleg mistök sem leiðtogi og borgarstjóri.

Sjálfstæðisflokknum mistókst að standa undir trausti kjósenda í Reykjavík í þessu máli og stýrði Orkuveitu Reykjavíkur í sömu vandræði og sama verklagið og einkenndi R-listann. Það er hin stóra niðurstaða málsins. Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík þarf að vinna sig frá þessu máli og vinna sig frá augljósum mistökum og hreinsa sig af þeim spillingarfnyk sem leggur af málinu. Skýrslan er niðurstaða pólitísks stýrihóps. Eflaust hefði verið betra að fá óháða aðila til verksins, en eftir stendur að þetta er heiðarleg niðurstaða og ég trúi henni. Það vita allir að mistök voru gerð og alveg út í hött að afneita þeim.

Pólitísk staða Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar verður að ráðast á næstu dögum. Ennfremur verður spurt um stöðu mála hjá Orkuveitu Reykjavíkur. Getur Guðmundur Þóroddsson tekið sisvona aftur við forstjórastöðu hjá OR á Bæjarhálsinum? Þetta eru stórar spurningar og heiðarlegast væri að taka vel til hjá Orkuveitunni og reyna að koma málum áfram með þeim hætti að hreinsa til hjá Orkuveitunni, skapa trúverðugleika þar eftir allt klúðrið.

Það sem er verst í þessu máli er að lögfræðingur FL Group átti beina aðkomu að þjónustusamningi REI og Orkuveitu Reykjavíkur um að REI fengi fyrsta valrétt á öllum verkefnum Orkuveitunnar erlendis. Það er algjörlega til skammar að þetta gerist undir forystu Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík og er dökkur blettur yfir forystu hans á þessu kjörtímabili hversu sterk ítök fyrirtæki úti í bæ höfðu yfir stöðu mála.

Pólitíska ábyrgð málsins ber Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson sem gerði afgerandi mistök. Hann hefur gengist við þeim mistökum, enda ekki annað hægt. Það er hans og sjálfstæðismanna að svara því hvort hann eigi að taka ábyrgð á þeim mistökum.

mbl.is Efast um umboð borgarstjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Snjóflóð fyrir vestan - mildi að vel fór

Snjóflóð Þetta hefur verið kuldalegur dagur og víða ófærð og vont veður. Varla ferðaveður þar sem verst hefur verið. Fólk á að hafa vit á að fara ekkert. Það er gott að heyra að konan sem keyrði bílinn sem lenti í snjóflóðinu fyrir vestan hafi sloppið ómeidd og ekki hafi verið meiðsl á fólki í þessum þremur snjóflóðum í Súðavíkurhlíð.

Í þessum veðuraðstæðum geta fallið snjóflóð, gil geta hreinsast og því ekkert annað vit en loka þessum vegum. Það á enginn að ana út í óvissuna í slíku veðri og langbest að halda kyrru fyrir auðvitað.

mbl.is Þrjú snjóflóð í Súðavíkurhlíð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góður húmor krakkanna á öskudegi

Með hnífana í bakinu Öskudagurinn er nú sem fyrr stóri dagur krakkanna. Það er gaman að sjá að þeir hafi fylgst það vel með pólitíkinni að gera grín að henni á deginum og pikka upp það sem hefur verið í umræðunni. Fannst það ansi skemmtilegt að sjá drenginn á Selfossi með hnífana í bakinu og gera smá grín að Framsóknarflokknum og ólgunni þar.

Á vísir.is sá ég að annar drengur lék Ólaf F. og var auðvitað með borgarstjórakeðju um hálsinn. Skondið og gott. Flestir krakkar fara kannski í búningi einhverra kvikmynda-, teiknimynda- og sjónvarpsþáttapersóna en það er ánægjulegt að enn aðrir taka upp það sem er í umræðunni og koma með smá skopsýn í þá átt.

Gervið hjá stráknum á Selfossi vakti líka athygli, auðvitað var hann vel dressaður og með bindi - hnífarnir í bakinu voru líka vel gerðir. Þetta er allavega gervi sem vekur athygli og vel heppnað.

mbl.is Með hnífasett í bakinu á öskudegi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband