19.4.2007 | 00:28
Sumarkveðja - vetur kveður með snjókomu
Ég vil óska lesendum vefsins gleðilegs sumars og þakka fyrir góð samskipti á liðnum vetri. Þetta hefur verið sviptingasamur vetur, sviptingar í veðri, pólitík og ýmsu mannlegu svosem. Þetta hefur líka verið mjög skemmtilegur vetur í skrifum hér. Ég hef misst tölu á þeim pælingum sem hér hafa verið settar fram en teljarinn sýnir yfir 230.000 heimsóknir síðan í september. Hef haft gaman af skrifunum og gleðst yfir því hversu margir líta í heimsókn á hverjum degi.
Veturinn kvaddi með kuldalegum hætti hér á Akureyri. Þegar að ég vaknaði í morgun hafði snjóað nokkuð. Var vissulega skemmtilega súrrealískt að hefja daginn í þessari skammvinnu kuldatíð. Þegar að leið á daginn vann sólin á snjónum. Það byrjaði að snjóa svo aftur undir kvöld og veturinn kvaddi því með snjóflygsum. Kuldalegur endir á risjóttum vetri.
Það er oft sagt að það viti á gott að vetur og sumar frjósi saman. Það ætla ég rétt að vona að sé tilfellið að þessu sinni. Held að þetta verði bara fínasta sumar, allavega er stefnt að skemmtilegri utanlandsferð og skemmtilegri ferð um landið og þetta verður sumarið þar sem ég ætla að skella mér í Fjörður og Flateyjardal, löngu kominn tími til svo sannarlega.
En enn og aftur góðar sumarkveðjur - vonandi eigið þið öll gott sumar.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 00:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
18.4.2007 | 22:36
Sjálfstæðisflokkurinn og VG í sókn í Kraganum
Sjálfstæðisflokkurinn mælist með fimm þingsæti og stendur nærri því sjötta. Samfylkingin mælist með þrjú þingsæti og VG með tvö. Aðrir eru úti; Framsókn og Frjálslyndir missa þingsæti og Íslandshreyfingin og Baráttusamtökin ná ekki flugi. Skv. því eru inni á þingi; Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Bjarni Benediktsson, Ármann Kr. Ólafsson, Jón Gunnarsson og Ragnheiður Elín Árnadóttir (Sjálfstæðisflokki), Gunnar Svavarsson, Katrín Júlíusdóttir og Þórunn Sveinbjarnardóttir (Samfylkingu), Ögmundur Jónasson og Guðfríður Lilja Grétarsdóttir (VG). Nokkuð líklegt er að Sjálfstæðisflokkur fengi jöfnunarmann en óvissa er með hinn.
Sjálfstæðisflokkurinn: 43% - (38,4%)
Samfylkingin: 24,5% - (32,8%)
VG: 17,4% - (6,2%)
Framsóknarflokkurinn: 5,9% - (14,9%)
Frjálslyndi flokkurinn: 5,6% - (6,7%)
Íslandshreyfingin: 3,3%
Baráttusamtökin: 0,3%
Stöð 2 var með góða umfjöllun á málum kjördæmisins á fundinum í Hafnarfirði. Þar voru athyglisverðar umræður og greining á stöðu mála. Egill Helgason fór yfir merkilega kjördæmasögu Kragans, sem umlykur höfuðborgarsvæðið og Inga Lind kom með áhugaverðar tölur tengdar kjördæminu. Þessi könnun er vissulega merkileg. Aðeins þrír flokkar eru að ná einhverju alvöru flugi þarna. Fall Sivjar eru stórtíðindi, en koma ekki að óvörum, enda hefur sést vel á könnunum undanfarinna mánaða að staða hennar er ótrygg. VG bætir miklu við sig á kostnað Framsóknar og Samfylkingar og Sjálfstæðisflokkur stefnir í öruggan kosningasigur.
Þessi könnun er auðvitað nokkuð pólitískt áfall fyrir Siv Friðleifsdóttur og hennar fólk. Staða Framsóknar er mjög döpur þarna og ekki eru þetta hughreystandi tölur fyrir þá þarna, 24 dögum fyrir kosningar. Kópavogur, eitt sterkasta vígi Framsóknar í gegnum sögu þeirra, er þarna en það er svosem ekki nema svipur hjá sjón eftir afhroðið í byggðakosningum í fyrra. Þessi mæling er svipað áfall fyrir Siv og er Valgerður fékk svipað skelfilega könnun hér í Norðausturkjördæmi nýlega. Valgerður var þó inni, en það má þó ljóst vera að meira að segja traustari vígi Framsóknar eru að bogna til. Ekki virðist Siv líkleg til stórsigra þarna nú.
Samfylkingin er að tapa ansi miklu fylgi. Í þessu kjördæmi er helsta vígi flokksins, sjálfur Hafnarfjörður. Það er eina sveitarfélagið á landinu þar sem að Samfylkingin hefur hreinan meirihluta. Miðað við það að leiðtogi framboðslista Samfylkingarinnar, Gunnar Svavarsson, er forseti bæjarstjórnar þar og einn helsti arkitekt kosningasigurs þar 2002 og 2006 er þessi könnun ekki traustvekjandi fyrir stöðu hans. Samfylkingin virðist ekki vera að sækja á um landið, hún er í pjúravörn og mælist illa á flestum stöðum, meðan að VG eflist til muna. Útkoma á borð við þetta yrði áfall fyrir Samfylkinguna í Kraganum og nýjan leiðtoga þeirra.
Staða Sjálfstæðisflokksins er mjög sterk þarna. Það kemur ekki að óvörum, enda hefur flokkurinn sterka stöðu á sveitarstjórnarstiginu þar. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir virðist vera örugg í sessi sem væntanlegur fyrsti þingmaður kjördæmisins og þessi könnun sýnir flokkinn með fimm kjördæmakjörna þingmenn, einum fleiri en síðast, og nokkuð líklegt að Ragnheiður Ríkharðsdóttir, bæjarstjóri í Mosfellsbæ, fari inn sem jöfnunarmaður miðað við slæma útkomu minni aflanna. Listi Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu er mjög sterkur. Þar eru öflugir þingmenn í forystu og efnilegir nýliðar. Mikil endurnýjun hefur orðið þar frá síðustu kosningum.
Staða Frjálslynda flokksins er ekki beysin skv. þessu. Kolbrún Stefánsdóttir, leiðtogi flokksins, er nýliði í pólitík og fáir vissu hver hún var er hún var kjörin ritari flokksins á eftirminnilegu kaos-landsþingi þeirra í janúar. Heldur ólíklegt virðist vera að Valdimar Leó Friðriksson, alþingismaður, haldi þingsæti sínu, en hann skipar annað sætið á lista frjálslyndra. Hann sagði skilið við Samfylkinguna eftir prófkjör í nóvember, þar sem hann hrapaði niður listann. Valdimar Leó varð þingmaður er Guðmundur Árni Stefánsson, forn kratahöfðingi úr Hafnarfirði, varð sendiherra í Svíaríki. Fá orð þarf að hafa um minni framboðin, þau hafa ekki meðbyr.
Áhugavert var að fylgjast með umræðunum. Mikla athygli vöktu skoðanaskipti um stóriðju og atvinnumálin. Ekki voru allir sammála um þau mál og lausnirnar voru misjafnar. Athygli vakti að Gunnar Svavarsson hafði ekkert að segja um álversmálin. Þar ræður þögnin enn hjá fulltrúum Samfylkingarinnar. Heldur er þetta nú ótrúverðugt hjá kjörnum sveitarstjórnarfulltrúa og leiðtoga kjördæmalista flokks sem vill láta taka sig alvarlega. Þetta virðast heilt yfir vera vandræði Samfylkingarinnar í hnotskurn. Hún veit ekki hvaðan hún er að koma og varla hvert hún vill fara - svona eins og vankaður maður sem vaknar eftir að hafa verið sleginn kaldur.
Bjarni Benediktsson var mjög traustur í umræðunum. Þetta er frumraun hans í leiðtogadebatt og mjög áhugavert að sjá hann í þeim sporum. Mér fannst hann eiga þáttinn gjörsamlega. Bjarni var algjör pólitískur nýliði þegar að hann skipaði fimmta sætið á lista Sjálfstæðisflokksins í kosningunum 2003 og mörgum kom innkoma hans á lista þá að óvörum og hann komst inn sem jöfnunarmaður mjög naumlega í baráttu við Arnbjörgu Sveinsdóttur hér í NA. Bjarni er mjög öflugur að mínu mati. Hann er sá þingmaður Sjálfstæðisflokksins sem hefur vaxið mest á þessu kjörtímabili. Þetta er að mínu mati ein skærasta stjarna íslenskra stjórnmála nú um stundir.
Siv var augljóslega slegin yfir niðurstöðu þessarar könnunar. Það eru alltaf tíðindi að sjá ráðherra stórs málaflokks kolfallinn af þingi í könnunum. Hún talaði mikið um stöðu kvenna, sem varla er undrunarefni. Lág útkoma Framsóknarflokksins í Kraganum meðal kvenna eru tíðindi, sé litið á þá staðreynd að Siv er einn valdamesti stjórnmálamaður kvenna í dag. Ögmundur var traustur, enda margreyndur. Kolbrún virkaði frekar vandræðaleg fyrst í stað en kom svo aðeins til. Frekar var það nú vandræðalegt að Íslandshreyfingin hafi þurft að leita til þriðja manns um að koma fram, 24 dögum fyrir kosningar og með flokkinn í algjöru vandræðavolli.
Heilt yfir voru þetta hinar fínustu umræður, einkum fyrir okkur sem fylgjumst með kjördæminu úr fjarlægð, og farið vel yfir stutta sögu kjördæmisins og pólitíska fortíð svæðisins, þeirra svæða sem það mynda. Sem fyrr stendur Stöð 2 sig vel með þennan pakka. Finnst þetta reynda svolítið hraðsoðnar umræður, en ég held að það sé þó það form sem dugi mest á meðaljóninn sem vill koma sér beint að efninu, heyra grunnspurningar og grunnstaðreyndir um kjördæmið sitt og tengd mál. Að því leyti þjónar hann vel sínu hlutverki og það er auðvitað áhugavert að fá alltaf ferska könnun.
Það stefnir í spennandi kosningar. Mikil spenna er yfir málum í Suðvesturkjördæmi sýnist mér eins og annarsstaðar. Reyndar er þó minni spenna þarna sýnist mér. Sjálfstæðisflokkurinn stefnir þar í afgerandi sigur og VG er að bæta verulega við sig. Stórar spurningar eru þó uppi um stöðu Framsóknarflokks og Samfylkingar þar, eins og allsstaðar annarsstaðar sýnist mér. Þessir flokkar báðir eru að tapa miklu fylgi um allt land, það sýnir staðan heilt yfir landið vel.
24 dagar eru til kosninga. Það stefnir í öfluga og beitta baráttu þar sem allt verður lagt í sölurnar. Staðan í Suðvesturkjördæmi er sérlega athyglisverð og gaman að sjá svona smásýnishorn á hvernig landið liggur þar. Fátt nýtt er að birtast þar, sýnist heildarmynd kosninganna eins og hún er heilt yfir núna blasa þarna vel við. En það verður tekist vel á í gegnum lokasprettinn. Margir eru óákveðnir og þar liggja örlög margra frambjóðenda að þessu sinni.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
18.4.2007 | 20:35
Líður að lokum hjá Blair - afsögn 10. maí?

Það verða pólitísk þáttaskil með brotthvarfi Tony Blair af hinu pólitíska sjónarsviði. Það leikur enginn vafi á því. Hann hefur verið þungavigtarmaður á þessum vettvangi og markað merkileg skref. Hann hefur verið umdeildur og hann hefur bæði verið vinsæll og óvinsæll. Ég mun aldrei gleyma þeirri bylgju stuðnings og krafts sem hann fetaði á til valda vorið 1997. Sigur hans var fyrirsjáanlegur. Blair tókst að leggja Íhaldsflokkinn þetta vor með ótrúlega afgerandi hætti.... og hann var þá vinsælasti forsætisráðherrann í breskri stjórnmálasögu.
Það er ekki óvarlegt að fullyrða að Blair sé nú aðeins svipur hjá sjón þess stjórnmálaleiðtoga sem klappað var fyrir er hann kom sem forsætisráðherra fyrsta sinni þann 2. maí 1997 í Downingstræti 10. Það var ótrúleg sigurstund. Verkamannaflokkurinn hafði verið í eyðimörk í tvo áratugi. Flokkurinn átti að baki ótrúlega ólánssögu og brostnar vonir flokksmanna eftir fjóra skaðlega ósigra fóru ekki framhjá neinum. Ég var um daginn að horfa á nokkrar ræður Blairs sem ég átti á spólu. Það voru ræðurnar sem hann flutti 1. maí 1997, vígreifur eftir kosningasigurinn mikla, og 31. ágúst 1997, sem forsætisráðherra fólksins við dauða Díönu, ræða sem hafði mikil áhrif.
Það hefði fáum órað fyrir þessa daga á miðhluta ársins 1997 að hann ætti eftir að enda sem óvinsæll og einangraður flokksleiðtogi, maður sem væri að fjara út. En það fór svo. Það eru engin tíðindi lengur að hann sé að fara. Innri ólga gerði það að verkum innan Verkamannaflokksins í september að hann gat ekki beðið með yfirlýsinguna miklu og hann var allt að því neyddur til að leggja niður skottið. Hann varð að gefa upp árstímaramma fyrir leiðarlokin. Það var gríðarlegt pólitískt áfall fyrir hann að missa stjórn á þeirri atburðarás. Hann hefur veslast upp sífellt alla tíð síðan. En hann varð að gera þetta til að afstýra því að enda eins og Thatcher.
Mesti veikleiki öflugs leiðtoga er oft á tíðum að missa yfirsjón á því hvenær hann er orðin byrði. Thatcher klúðraði sínum pólitísku endalokum með eftirminnilegum hætti. Það hvernig valdaferli hennar lauk var áminning þess að hætta ber leik þá er hann hæst stendur. Blair festist í sama vandræðagangi að mínu mati. Sá var þó munurinn að hann gaf alltof snemma út þá yfirlýsingu að hann færi ekki í fjórðu kosningarnar. Það hvernig hann sveik margfrægt samkomulag við Gordon Brown um skiptingu valda eftir dauða John Smith hafði líka áhrif. Hann hefur veslast upp og fer skaddaður af stóli.
Tony Blair fór líka illa á Íraksmálinu. Það eyðilagði hann sem sterkan leiðtoga jafnaðarmanna í Evrópu. Hann var umdeildur og hann bognaði, varð ekki lengur afgerandi leiðarljós þeirra. Samt segist Blair ekki sjá eftir neinu. Ég sá um daginn viðtal með honum á Sky, þetta var svona eitt þeirra viðtala þar sem hann fetar skref fyrir skref út af sviðinu. Þessi spinnmennska hans er orðin yfirborðskennd og klén. Kannski fór spinnmennskan mikla með hann. Festist þessi sterki jafnaðarmannaleiðtogi ekki bara í eigin vef? Það er freistandi að telja svo vera.
En leiðarlokin eru framundan á næstu vikum. Það verður fróðlegt að sjá hvernig eftirmaður hans verður valinn. Mun Skotinn Gordon Brown fá alvöru samkeppni um hnossið mikla, sem hann hefur beðið eftir árum saman eða mun hann þurfa að heyja blóðuga baráttu um að taka við af Blair? Það er stóra spurning vorsins í breskum stjórnmálum. Það skiptir enda máli fyrir Verkamannaflokkinn tel ég, sem nógu skaddaður er orðinn fyrir, hvort að nýr leiðtogi verði klappaður upp eða verði að berjast á hæl og hnakka fyrir því að komast til valda.
Mun Blair leggja í að bakka upp Brown? Munu óvinsældir beggja í könnunum hafa áhrif? Munu kratarnir hræðast að nýji leiðtoginn verði biðleikur eftir David Cameron? Stórar spurningar. Bráðum fæst svar við þeim öllum. Það sem mest vekur þó athygli núna eru héraðskosningarnar á Englandi. Það stefnir allt í mikinn ósigur Verkamannaflokksins í Skotlandi. Það verður mikið áfall fyrir Blair að fara frá með það á bakinu og Brown yrði sneyptur tæki hann við eftir þau ósköp.
18.4.2007 | 17:22
Barist við brunann í miðbæ Reykjavíkur
Þar hefur verið rætt m.a. við Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson, borgarstjóra, en það er öllum ljóst að þessi bruni er mikið áfall, enda um að ræða sögufræg hús og áberandi í borgarmyndinni í miðbænum. Magnús Skúlason fór t.d. vel yfir sögu þeirra og má öllum ljóst vera að þau hafa sett svip á borgina og því auðvitað táknrænt að sjá þau í ljósum logum og reykinn leggja yfir miðbæjarsvæðið.
Það er auðvitað hið rétta að borgarstjóri taki þátt í slíku starfi með áberandi sýnilegum hætti og sé aðgengilegur fjölmiðlum, en það gerði t.d. Þórólfur Árnason, þáverandi borgarstjóri, á sínum síðustu embættisdögum árið 2004 er Hringrásarbruninn mikli geisaði, en hann er sennilega eftirminnilegasti bruni í sögu borgarinnar á seinustu árum.
Talið er nú að eldurinn hafi kviknað í ferðamannamiðstöð þar sem söluturninn Fröken Reykjavík var áður til húsa.Það verður fróðlegt að sjá umfjöllun um þetta í kvöld í fréttatímum og það hversu mikið tjón verði þarna er á hólminn kemur.
Það er þó alveg ljóst að betur hefur farið en á horfðist, þó auðvitað sé alltaf mikill skaði af bruna á svona viðkvæmu svæði er ljóst að mun verr hefði getað farið þarna í dag.
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 17:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.4.2007 | 15:46
Stórbruni í miðbæ Reykjavíkur
Stórbruni geisar nú í miðborg Reykjavíkur. Ég sá myndir af vettvangi á netinu rétt áðan. Það er merkileg sjón, enda virðist vera sem að gömlu húsin á þessum stað í hjarta borgarinnar séu stórskemmd. Skaðinn virðist skeður og vonandi að hægt verði að koma í veg fyrir enn meira tjón en orðið er og auðvitað koma í veg fyrir að eldurinn breiðist meir.
Þetta eru sögufræg hús sem brenna nú og því augljóslega um mikið tjón að ræða í ljósi þess. Ég var í Reykjavík fyrir nokkrum dögum og fékk mér göngutúr með nokkrum vinum í gegnum bæinn niður Austurstrætið og farið var eins og venjulega í borgarferð í Bæjarins besta til að fá sér pylsu og kók, það er hefðbundinn rúntur í borgarferð minni, eins og svo margra fleiri eflaust í skemmtun helgarinnar. Það er auðvitað ljóst að þessi hús skipa stóran sess á sínu svæði og mikið verkefni framundan fari allt á hinn versta veg.
Það er reyndar kaldhæðnislegt að mér var hugsað til þessa nótt í miðbænum um síðustu helgi hvað myndi gerast ef kæmi stóreldur við erfiðar aðstæður þarna upp. Hugurinn reikaði aðeins í þá átt, enda eru þetta allt timburhús, komin til ára sinna og erfiðar aðstæður geta orðið til þess að öll götumyndin gæti skíðlogað. Ekki hefði mér órað fyrir þá að innan viku reyndi á þessar pælingar. Þetta er því súrrealísk og dapurleg sýn sem blasir við. Vonandi mun slökkvistarfið ganga vel.
![]() |
Þök rifin af brennandi húsum - gaskútageymslur í hættu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 16:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
18.4.2007 | 13:01
Konan í gjótunni
![]() |
Konu kippt upp úr gjótu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
18.4.2007 | 00:27
Bandarísk þjóðarsorg - púslin raðast saman
Það er þjóðarsorg í Bandaríkjunum. Harmleikurinn í Virginia Tech hefur hreyft við öllum sem fylgst hafa með fréttum - þetta er harmleikur sem erfitt er að lýsa með orðum í sannleika sagt. Minningarathöfn var haldin á skólasvæðinu í dag. Horfði áðan á fréttamyndir þaðan. Það var sérstök upplifun að sjá það. Þar flutti George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, ávarp. Sorg hvílir yfir friðsælu skólasamfélagi. Það er mikilvægt að sýna þessu fólki samúð.
Púslin á bakvið þennan harmleik raðast nú saman hægt og hljótt. Fjölmiðlar og lögreglan fara yfir það sem vitað er. Að mörgu leyti er persóna fjöldamorðingjans hulin þoku, enda var hann einfari og greinilega verið mjög bilaður. Það bendir nú flest til þess að ástæða fjöldamorðsins hafi verið hatur á ríkum ungmennum sem þar hafi verið í námi. Skrif hans munu hafa sýnt ástand andlega vanheils manns og haft er eftir lögreglu að þau hafi verið skuggaleg, en það sem mögulegt er að ráða af persónunni finnst nú helst í því sem hann lét eftir sig í herbergi sínu.
Lýsingar á persónunni á bakvið þennan fjöldamorðingja koma reyndar auðvitað fram af þeim sem voru með honum í námi í Virginia Tech. Framan af var talið að þetta hefði verið ástríðumorð sem hafi farið úr böndunum. Lögregla dregur nú í efa að sú sem talin var hafa verið kærasta hans og var myrt í þessu fjöldamorði hafi verið tengd honum, heldur hafi þau aðeins þekkst vel og hún því ekkert sérstaklega frekar verið valin en aðrir. Heilt yfir virðist ekki hafa verið spurt að neinu um hver hafi verið hvað og gert eitthvað svosem, allir sem á staðnum voru hlutu sömu grimmilegu örlögin. Nokkrum tókst þó að sleppa lifandi frá þessu voðaverki.
Það er mjög sorglegt að lesa umfjöllun um þá sem féllu í valinn í þessu fjöldamorði. Það var fólk á öllum aldri, allt frá reyndum kennurum með mikla fræðimannsþekkingu að baki og merk störf á sínum vettvangi allt til nýnema og nema á lokaári sem átti mörg tækifæri framundan. Veit ekki hvaða orð hæfa. Ég er þess fullviss að þessi harmleikur muni öðlast sess í bandarískri sögu, enda er þetta stingandi hörmung sem leggst á heilt samfélag og merkir heila þjóð mjög lengi. Öll þekkjum við áhrif Columbine-fjöldamorðsins og þetta er á mun verri skala.
Heilt yfir er ljóst af fréttamyndum að samfélagið í þessum skóla er í rúst og það mun taka langan tíma að yfirvinna svona skelfilega örlagastungu á viðkvæman blett.
![]() |
Bush segir þjóðarsorg ríkja í Bandaríkjunum vegna atburðanna í Blacksburg |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
17.4.2007 | 17:42
Sjálfstæðisflokkurinn og VG í sókn í Suðrinu
Skv. kjördæmakönnun Gallups í Suðurkjördæmi mælist Sjálfstæðisflokkurinn þar með fjóra kjördæmakjörna þingmenn. VG mælist fjórfalt stærri en í kosningunum 2003. Samfylking og Framsóknarflokkur missa nokkuð fylgi og kjördæmakjörinn þingmann. Íslandshreyfingin nær ekki flugi. Mikla athygli vekur að aðeins tvær konur mælast inni og þar af er einn Suðurnesjamaður, Björk Guðjónsdóttir, forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar, en þetta er fjölmennasta svæði kjördæmisins.
Sjálfstæðisflokkurinn: 39,6% - (29,2%)
Samfylkingin: 24,3% - (29,7%)
VG: 17,4% - (4,7%)
Framsóknarflokkurinn: 12,3% - (23,7%)
Frjálslyndi flokkurinn: 5,0% - (8,7%)
Íslandshreyfingin: 1,4%
Þingmenn skv. könnun
Árni M. Mathiesen (Sjálfstæðisflokki)
Árni Johnsen
Kjartan Ólafsson
Björk Guðjónsdóttir
Björgvin G. Sigurðsson (Samfylkingu)
Lúðvík Bergvinsson
Atli Gíslason (VG)
Alma Lísa Jóhannsdóttir
Guðni Ágústsson (Framsóknarflokki)
Fallin skv. könnun
Drífa Hjartardóttir
Guðjón Hjörleifsson
Gunnar Örn Örlygsson (féllu öll í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins)
Þetta er merkileg mæling vissulega. Framsóknarflokkurinn og Samfylkingin tapa eins og fyrr segir nokkru fylgi. Sérstaklega er áfall Framsóknarflokksins mikið í könnuninni og yrði útkoma í einhverri líkingu við þetta umtalsvert pólitískt áfall fyrir Guðna Ágústsson, varaformann Framsóknarflokksins. Frjálslyndir mælast örlítið lægri kjörfylginu 2003 og missa þingmann sinn. Íslandshreyfingin virðist ekki vera að fá neitt alvöru start og virðist vandræði flokksins vera að sjást vel í fylgisleysi.
Sjálfstæðisflokkurinn stendur mjög vel yfir kjörfylginu og með fjóra kjördæmakjörna þingmenn. Þeir fengu vondar kosningar í þessu sterka kjördæmi sínu árið 2003, en þar varð mjög vondur klofningur með sérframboði þingmannsins Kristjáns Pálssonar þess valdandi að flokkurinn missti forystu á svæðinu til Samfylkingarinnar og hlaut ekki fjórða manninn. Sjálfstæðisflokkurinn virðist vera að ná fyrri flugi að nýju ef marka má þetta og er mun betri útkoma en í könnun Stöðvar 2 fyrir skömmu.
VG bætir umtalsverðu fylgi við sig og eru greinilega á mikilli siglingu í kjördæminu undir forystu Atla Gíslasonar, sem er greinilega að fljúga inn á þing við annan mann, Selfyssinginn Ölmu Lísu. Ef marka má þessa mælingu eru Bjarni Harðarson og Róbert Marshall báðir utan þings, sem hljóta að teljast mikil tíðindi. Það er auðvitað gleðiefni að sjá þessa góðu stöðu sjálfstæðismanna en ég tel að stóra stjarna þeirra í þessum kosningum verði vinkona mín, Unnur Brá - í fimmta sætinu.
Er að hlusta á kjördæmaþátt á Rás 2 frá Suðurkjördæmi. Mikið tekist á þar. Sérstaklega virðast Árnesingarnir Guðni og Björgvin G. fara mjög í taugarnar hvor á öðrum. Mikil spenna þeirra á milli. Athyglisvert að heyra skemmtilegan líkan talanda þeirra, báðir ansi kjarnmæltir. Hreimur Guðna er löngu þekktur og Björgvin er með hann mjög líkan. Annars finnst mér Árni Mathiesen standa sig vel í umræðunum og greinilegt að hann er að finna kraftinn á nýjum kjördæmaslóðum.
En þetta er vissulega athyglisverð mæling, sem gefur ágætis vísbendingar og pælingar í pólitísku umræðuna. Margir eru þó óákveðnir og spennandi 25 dagar sannarlega framundan í kosningabaráttunni þar.
![]() |
VG og Sjálfstæðiflokkur auka fylgi sitt í Suðurkjördæmi á kostnað Framsóknar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
17.4.2007 | 15:50
Ásýnd og bakgrunnur fjöldamorðingjans könnuð

Mér finnst þetta það brútal og ótrúlega kuldalegt voðaverk að hann hlýtur að hafa átt sér einhverja vitorðsmenn. Verður svosem erfitt að fá úr því skorið. En þetta mál hlýtur að vera stærra en svo að hann hafi alveg einn verið að verk. Mun hann hafa verið einfari, mjög sér á báti og ekki mjög inntengdur í stóra vinahópa á skólasvæðinu ef marka má fréttir. Mér fannst athyglisverð lýsingin sem ég las áðan um það hvernig hann bar sig við þetta voðaverk. Þetta hefur verið mjög ákveðinn verknaður og ekkert hik. Þetta er sorglegt.
Ég hef fengið komment hér og líka tölvupósta, m.a. frá vinum mínum sem búa vestan hafs. Þetta er eins og gefur að skilja í öllum fjölmiðlum þar og er frétt um allan heim. Fátt er meira áberandi í dag hér heima á Fróni en þetta mál. Um er að ræða atburð sem verður lengi í minnum hafður. Ég hef séð það í kommentum hér að sumir snúa þessu máli upp í heift gegn ríkisstjórn Bandaríkjanna. Það er sami gamli söngurinn. Það er eins og það er bara, en það verður að líta á málið í víðara samhengi.
Enda er hér um að ræða verknað, þó óvenjulega kuldalegur sé í þessu tilfelli, sem hefur gerst víða um heim meira að segja í rólegheitabæjum víða um heim. Listar um það er að finna hér í eldri færslum frá þeim sem kommentað hafa til mín. Það eru vissulega mjög sláandi listar. En þeir sýna vanda í þessum efnum sem ná mörg ár aftur í tímann. Annars finnst mér þetta mál vera svo miklu stærra og kuldalegra en mörg önnur og ég held að það fái sérstakan sess er frá líður.
Einn sendi mér póst og spurði um hvaða skoðun ég hefði á byssueign og tengdum málum. Ég hef alla tíð verið talsmaður þess að herða lög um byssueign og setja ströng viðurlög í þeim efnum. Það á að vera grunnmál og vonandi mun þessi harmleikur leiða til þess að umræðan í þessum efnum komist á annað og farsælla stig en áður hefur verið í Bandaríkjunum. Ég hef sjálfur alltaf verið á móti skotvopnum til einkaafnota og vildi helst banna það að nær öllu leyti.
Ég sé nú á bandarískum fréttavefum að haldin verður minningarathöfn á skólasvæðinu í dag vegna fjöldamorðanna. George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, og eiginkona hans, Laura Welch Bush, verða þar viðstödd. Þjóðarsorg er í Bandaríkjunum og friðsælt skólasamfélag verður aldrei samt. Það verður alltaf úr þessu markað minningum um það sem gerðist þar 16. apríl 2007.
![]() |
Morðinginn í Virginíu var kóreskur námsmaður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 16:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.4.2007 | 13:52
Leyndarhjúpurinn yfir fjöldamorðinu minnkar

Er reyndar með engu móti vitað hvort sami maðurinn hafi staðið að báðum tilfellum. 2 létust í heimavistinni, ef marka má fréttir, og yfir 30 í skólahúsnæðinu sjálfu. Þær eru ófagrar lýsingarnar af árásunum. Nokkrir sluppu lifandi með að þykjast vera látnir og sýna ekki lífsmark þar til þeim var óhætt að gera grein fyrir sér. Það vakna margar spurningar yfir þessu máli öllu. Það sem mér finnst standa helst eftir er sú staðreynd að tveir tímar liðu á milli skotárásar í skólahúsnæði og heimavist nemenda. Það er mikill áfellisdómur yfir yfirvöldum á staðnum.
Þetta er fjarri því fyrsta skotárásin þar sem óður byssumaður skýtur niður allt sem á vegi hans verður og er varla sú síðasta. Það er bitur staðreynd auðvitað. Allir þekkja fjöldamorðin sem ég vék að í gær, meira að segja gerðist svona í kyrrlátum skoskum skóla fyrir ellefu árum. Þar voru sextán felldir. Þetta er skelfilegt og það er erfitt að finna einhverja eina töfralausn. Ein þeirra er þó að endurskoða byssulög og herða viðurlög en það er ekki ein gullin töfralausn, enda hefur sannast að sé nógu kaldrifjaður vilji að baki þess að gera slíkt og hugurinn að baki er brenglaður getur fátt stöðvað hann.
Þetta fjöldamorð vekur fólk til umhugsunar að mörgu leyti. Fyrst og fremst er þetta áfall fyrir bandarískt samfélag. Það að slíkur voðaverknaður eigi sér stað í kyrrlátum bandarískum skóla, því sem á að vera fyrirmyndarsamfélag, rólegt og yfirvegað, er sláandi og fær fólk til að hugsa hlutina að mörgu leyti algjörlega upp á nýtt.
![]() |
Fjöldamorðinginn sagður hafa verið kínverskur námsmaður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
17.4.2007 | 00:31
Þjóðarsorg í Bandaríkjunum

Bush gerir hið sama og Bill Clinton fyrir átta árum í kjölfar fjöldamorðsins í Columbine; hann ávarpar þjóð í skugga áfalls. Það er reyndar mjög merkilegt að lesa fréttavefsíður vestan hafs á þessu kvöldi eftir ávarp forsetans. Þetta er áfall heillar þjóðar eins og gefur að skilja. Mér fannst ávarp forsetans vel flutt, hann orðaði hlutina vel og með viðeigandi hætti og það er auðvitað hið eina rétta í skugga svona skelfilegs voðaverks að þjóðhöfðinginn komi fram. Þetta er mikið áfall fyrir bandarískt samfélag, það blasir við öllum.
Það er sagt í fréttum að borin hafi verið kennsl á byssumanninn. Það verður fróðlegt að sjá sögu þessa voðaverknaðar birtast. Ástæða þessa alls er á flökti en mun fyrr en síðar verða öllum ljós. Það er reyndar skelfilegt að heyra af þessu. Það að þetta gerist í friðsælum skóla er harmleikur og risavaxinn skali þessarar aftöku á fólki skelfir fólk, ekki bara í Bandaríkjunum, heldur um allan heim. Enginn vafi verður á því að saga þessa voðaverks mun greypast í minni fólks og verða tilefni bókaskrifa og hugleiðinga.
Það eru átta ár á föstudaginn frá fjöldamorðunum í Columbine. Það var skelfilegt voðaverk. Ekki síður man ég eftir öðrum óhugnaði; fjöldamorðunum í íþróttasalnum í skólanum í Dunblane í Skotlandi í mars 1996. Það var voðaverk sem enn hvílir sem mara yfir samfélaginu þar. Það tekur rosalega langan tíma að vinna sig út úr svona dimmum dal sem þessu fylgir. Öll vitum við um sögu þessara voðaverka beggja. Þeir sem vilja lesa um það bendi ég á tenglana hér ofar.
Þetta er dimmur dagur í bandarískri sögu. Þetta er fjöldamorð af gríðarlegum skala og það mun taka langan tíma fyrir margt fólk að vinna sig frá þessu. Þetta er áfall heillar þjóðar - mér fannst forseti Bandaríkjanna tala vel til þjóðar sinnar í kjölfar þessa voðaverks.
![]() |
Lögregla telur sig hafa borið kennsl á árásarmanninn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Breytt s.d. kl. 00:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
16.4.2007 | 19:51
Skelfilegt fjöldamorð í Bandaríkjunum

Þetta eru óneitanlega mjög sjokkerandi tíðindi, þetta er gríðarlegt áfall fyrir bandarískt samfélag, svo skömmu eftir Columbine-skotárásina. Man mjög vel eftir þeirri skelfingu fyrir átta árum. Það bliknar þó hreinlega í samanburði við þær hörmungar sem þarna hafa átt sér stað og það blóðbað sem við blasir nú. Það eru skv. fréttum eins og fyrr segir 32 látnir og talað er um að allt að 30 séu særðir. Farið var bæði í kennslustofur og á heimavist og skotið á allt sem fyrir varð og byssumaðurinn hafi gnægð skota og vel vopnaður.
Þetta er svakalegt hreint út sagt. Þessi vondu tíðindi öðluðust óneitanlega enn meiri dýpt í lýsingum Dagmar Kristínar Hannesdóttur, sem sem er í doktorsnámi í sálfræði, í kvöldfréttum íslensku sjónvarpsstöðvanna. Heyrði á Sky áðan sjokkerandi lýsingar eins sem er nemandi við skólann og var nær vettvangi en Dagmar Kristín. Þetta er mikill sorgardagur vestanhafs og þessi vondu tíðindi skekja samfélagið þar og mun víðar.
Bowling for Columbine, mynd Michael Moore, í kjölfar skelfingarinnar í Columbine árið 1999 vakti ekki síðri alheimsathygli en voðaverknaðurinn sjálfur og myndin hlaut óskarsverðlaun sem besta heimildarmyndin árið 2003. Hún er eftirminnileg flestum sem hana sjá. Það er ógnvænlegt að sjá svona atvik gerast enn eina ferðina.
Það af hversu stórum skala þetta atvik nú er telst skelfilegt. Það geta engin önnur orð passað betur.
![]() |
22 látnir í skotárás í Virginíu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Dægurmál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
16.4.2007 | 17:30
Samfylking í mótbyr horfir framhjá vanda sínum
Það hlýtur að hafa verið erfitt fyrir Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur að opna landsfund Samfylkingarinnar á föstudag hafandi fengið framan í sig svo til í sömu andrá að flokkurinn væri að mælast með lægsta fylgi sitt í könnunum Gallups í rúm fimm ár, 18,1%. Þetta er enn eitt áfallið fyrir Samfylkinguna og gríðarlega mikið fall sé miðað við kosningarnar 2003, sem eru marktækustu viðmunarmörkin, enda markar það auðvitað núverandi þingstyrk.
Ég fylgdist mjög lítið með landsfundi Samfylkingarinnar. Á meðan að hann stóð var miðpunktur landsfundar Sjálfstæðisflokksins í sömu borg. Ég var staddur þar. Við gátum glaðst, enda er staðan góð. Það sem ég helst sá og heyrði voru fyrirsagnir í blöðum og orðrómur víða í þeirri borg þar sem flokksmenn ólíkra flokka voru samankomnir til fundahalda. Það allt sagði mér að þar fer flokkur sem á erfitt með að líta í eigin barm, erfitt með að greina vanda sinn og er með formann sem á erfitt með að feisa vonda daga. Ofan á allt annað var þeim þungbært að vakna upp við lesbóksgrein Jóns Baldvins á laugardaginn. Hún var mjög massíf.
Þetta var landsfundur haldinn í skugga kannana sem sýna að Samfylkingin muni tapa mestu fylgi þeirra fimm flokka sem sitja á Alþingi. Fari kosningar á þann veg sem kannanir eru að boða okkur verður mikið rætt um framtíðina. Þó að Samfylkingin skori 22% eins og könnun Fréttablaðsins boðaði eða fari jafnvel allt upp í 25% er fylgistap hennar enn mikið og áberandi. Þetta er flokkur sem gnæfði yfir til vinstri eftir síðustu kosningar og var drottnandi þar. Staðan hefur breyst mjög og VG er komin upp að hliðinni að hinum forna stóra bróður sínum og jafnvel orðinn stærri en hann og horfir jafnvel spekingslega niður til hans. Stór tíðindi það.
Ingibjörg Sólrún ákvað að taka þann kostinn að mála upp nær sömu mynd og hún gerði er hún felldi svila sinn, Össur Skarphéðinsson, af formannsstóli á landsfundinum 2005. En það er erfitt að líta á stöðuna sem óbreytta milli þessara tveggja ára. Kannanir sýna að Ingibjörgu Sólrúnu hefur ekki tekist að gera það á þessum tveim árum sem hún stefndi að. Staða flokksins er áberandi mun verri nú en þegar að Össur skildi við, var sparkað fyrir svilkonu sína. Stóru fyrirheitin sem Ingibjörg Sólrún og stuðningsmenn hennar boðuðu í formannskjörinu 2005 hafa brugðist.
Það eru 26 dagar til kosninga. Það virðist vera að aðeins pólitískt kraftaverk geti bjargað Ingibjörgu Sólrúnu. Hver dagur er altént orðinn mikilvægur fyrir flokk og formann. Í Reykjavíkurbréfi Morgunblaðsins var með merkilegum hætti dregin upp mynd þess sem gæti gerst færi allt á versta veg - vondar kannanir yrðu að vondum kosningaúrslitum og sterk vonarstjarna vinstrimanna í áraraðir yrði að andliti kuldalegs kosningaósigurs. Hvað mun enda gerast springi samfylking vinstrimanna í loft upp? Það er stóra spurningin.
Ingibjörg Sólrún hefur ekki átt sjö dagana sæla. Kannanir eru henni mjög erfiðar, þjóðin treystir henni ekki og konur eru að flýja Samfylkinguna í áberandi mæli. Þetta er stóra myndin - hún er dökk vissulega. Samfylkingin horfðist ekki í augu við þessa mynd um helgina. En þess þá meiri verður skellurinn gangi kannanir eftir.
En nú ráðast örlögin. 26 dagar eru ekki langur tími... en þeir munu þó ráða pólitískri framtíð formanns sem hefur ekki náð markmiðum sínum á 700 dögum.... tveim árum.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
16.4.2007 | 14:28
Ákall Hjörleifs - dreifast kraftarnir til vinstri?

Hjörleifur er vissulega nokkuð merkilegur stjórnmálamaður. Það er fjarri því að ég hafi alltaf verið sammála honum. En ég hef þó hlustað þegar að hann hefur talað og lesið þegar að hann hefur skrifað. Það er enda þannig að hjartað mitt slær þannig að það verður að virða skoðanir annarra jafnmikið og maður vill fyrir sjálfan sig. Enda geta aldrei allir verið sammála um allt. Hjörleifur vann af krafti fyrir Austfirðinga um langt skeið. Ekki ætla ég að gera upp þann feril. Hann fékk umboð þeirra meðan að hann gaf kost á sér. Stjórnmálaferlinum lauk með því að hann tók tjaldhælana úr jörðu með athyglisverðri yfirlýsingu snemma árs 1999. Hann hefur þó skipað heiðurssæti á listum VG jafnan síðan.
Hjörleifur varð bloggvinur minn hér fyrir tæpri viku og skrifaði gott komment hér í umræðu um Íslandshreyfinguna sem var áhugavert að lesa. Skömmu síðar sendi hann út athyglisvert ákall til Ómars Ragnarssonar um að Íslandshreyfingin bakkaði. VG fengi að njóta hugsjónar í umhverfismálum eitt og sér. Ég skil vel þetta ákall Hjörleifs reyndar. Ég held að þessi nýji flokkur muni aðeins skaða VG, leiða til flökts á fylgi frá VG sem þangað var áður komið. Það eru engir hægrimenn nafngreindir af alvöru í Íslandshreyfingunni. Kraftur hennar, skoðanir og baráttuþrek liggur til vinstri. Það segir umræðan okkur og það segja kannanir okkur. Ekki ætla ég svosem að kvarta en ég skil þó mæta vel áhyggjur vinstri grænna.
Ef marka má kannanir virðist Íslandshreyfingin byggð á sandi. Hún byrjaði í 5% mörkum og hefur síðan aðeins dalað. Þar virðist ekkert flug vera á liðinu, það er niðursveifla. Kannski breyta listar þeirra einhverju. Ég veit það hreinlega ekki. Ég veit þó að flokkur getur ekki sagt sig vera til hægri nema að sýna hægrifólk í framboði, marktækt hægrifólk. Það hefur enn ekki sést.
Ég skil því ákall Hjörleifs og skrif hans fyllilega í þessu ljósi öllu. Enda virðast kraftarnir aðeins dreifast til vinstri við tilkomu þessa nýja flokks. Kannanir sýna stöðuna vel og hún gefur þá mynd sem marktækust er í því flóði hugmynda og kosningapælinga sem streyma yfir okkur. Þetta er það allra augljósasta við stöðuna, 26 dögum fyrir kosningar altént.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
16.4.2007 | 11:34
Geir Haarde sló í gegn með frábærum söng

Mér fannst Geir koma rosalega vel út úr þessum landsfundi. Flokksmenn treysta honum mjög vel og hann hefur líka sýnt okkur að hann stendur undir því trausti, hann er sterkur og afgerandi forystumaður. Mér fannst þessi helgi vera helgin hans. Hann varð sterkur formaður í flokknum á borð við forvera sinn. Ég held að mesti styrkleiki Geirs sé einmitt að hann er hann sjálfur, hann er hvorki að leika Davíð Oddsson né nokkurn annan forvera sinn eða að reyna að stæla þá. Hann er enda mjög vinsæll meðal landsmanna. Hann nýtur trausts.
Það er líka mjög góður kostur að góður formaður geti glatt með því að syngja og hann sló svo sannarlega í gegn á landsfundarhófinu. Þar var mjög góð stemmning og mjög ánægjulegt að skemmta sér í þessum góða hópi. Þetta var mjög sterk helgi, allir brosandi og glaðir, allir sameinaðir í að vinna vel að því sem skiptir máli. Í þeim efnum skiptir máli að skipstjórinn sé einstaklingur sem gefi hópnum eitthvað, afl til verkanna. Það gerði Geir svo sannarlega um helgina og söngur hans var flott fylling á góðri kvöldskemmtun.
![]() |
Geir Haarde tók Johnny Cash |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.4.2007 | 02:08
Dead on arrival?

Þessar mælingar hljóta að teljast áfall fyrir flokk og forystumenn hans. Vandræðagangur þeirra við að velja á lista og kynna lista um allt land hefur verið augljós, það hefur verið augljóst klúður bakvið tjöldin. Eftirspurnin eftir flokknum virðist vera harla lítil, það er ekki kallað eftir honum. Það er talað um Íslandshreyfinguna sem hægri grænt framboð. Kannski var það fyrst og svo reynt að tala þannig í veikri von um að því sé trúað. Hvar eru hægrimenn innan Íslandshreyfingarinnar? Það er von að spurt sé.
Í dag voru kynntir frambjóðendur í fimm efstu sætum á listum Íslandshreyfingarinnar í Reykjavík. Það eru fá ný tíðindi þar. Athygli vekur að ekki sé lagður fram 22 manna listi. Það eru bara 27 dagar til kosninga. Hvað er að gerast þarna? Ekki eykst trúverðugleiki flokksins með þessu. Enn er enginn heill listi þar kominn. Þetta vekur mikla athygli. Sá þó að þarna er Ólafur Hannibalsson, sonur Hannibals Valdimarssonar og því bróðir Jóns Baldvins Hannibalssonar. Hann var einu sinni varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins en það er orðinn óratími síðan að hann gufaði þar upp. Ekki er Ósk Vilhjálms nýtt nafn og varla Sigurlín Margrét.
Stóri vandi Íslandshreyfingarinnar er fyrst og fremst að þessi flokkur höfðar greinilega ekki til fólks. Þessar vondu mælingar eru vissulega stór tíðindi, þau vekja athygli. En þau hafa innan við fjórar vikur. Mér finnst vandræðagangur þessa flokks orðinn áberandi mikill. Hann blasir við öllum. Það er mjög einfalt mál. Vandræðin kalla á fólk. Það er enda vont að missa af lestinni.
Ég horfði um daginn á eðalmyndina Dead on arrival, D.O.A. með Edmond O´Brien frá gullaldardögum Hollywood. Hún var og er alla tíð yndisleg - titillinn er sterkur og ástæða þess að hann er notaður kemur strax í ljós í upphafsatriðinu. Einhverra hluta vegna dettur mér þessi titill helst í hug er ég hugsa til Íslandshreyfingarinnar 27 dögum fyrir alþingiskosningar.
![]() |
Ómar og Margrét leiða lista Íslandshreyfingarinnar í Reykjavík |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 02:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
15.4.2007 | 23:10
Kraftur, samstaða og gleði á landsfundi

Þar var fullt hús í kvöld og mikill baráttuhugur í fólki. Efstu fjórir frambjóðendur á listanum; Kristján Þór Júlíusson, Arnbjörg Sveinsdóttir, Ólöf Nordal og Þorvaldur Ingvarsson, fluttu þar öflugar og góðar ræður við upphaf lokaspretts kosningabaráttunnar, mikilvægasta hjallans á leiðinni. Halldór Blöndal, fyrrum ráðherra og þingforseti, sem brátt lætur af þingmennsku eftir glæsilegan stjórnmálaferil flutti góða ræðu og brýndi menn til dáða í baráttunni. Komum við Kristján Þór og Lilla beint á opnunina en við fórum saman í bíl úr borginni. Var skemmtilegt spjall um pólitík á leiðinni.
Landsfundurinn og kosningabaráttan bera yfirskriftina Nýir tímar - á traustum grunni. Það er viðeigandi heiti að mínu mati. Ny forysta flokksins sem kjörin var á landsfundinum 2005 hefur reynst flokknum vel og unnið vel. Hún nýtur trausts þjóðarinnar eins og kannanir sýna, en staða Sjálfstæðisflokksins er mjög sterk, eftir sextán ára stjórnarsetu, lengst af undir forystu Davíðs Oddssonar. Forystan nýtur afgerandi trausts flokksmanna. Það sást vel af endurkjöri hennar í dag. Geir H. Haarde hlaut 95,8% greiddra atkvæða í formannskjöri og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir hlaut rúmlega 91%. Sterk kosning fyrir þau.
8 konur náðu kjöri í miðstjórnarkjöri í dag, en kosið var um 11 sæti. Kjartan Gunnarsson, fyrrum framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, hlaut flest atkvæði í kjörinu. Þrír miðstjórnarmenn féllu í kjörinu. Kjör hlutu: Kjartan Gunnarsson, Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir, Unnur Brá Konráðsdóttir, Áslaug María Friðriksdóttir, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, Elínbjörg Magnúsdóttir, Þórunn Jóna Hauksdóttir, Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, Erla Ósk Ásgeirsdóttir, Helga Þorbergsdóttir og Örvar Már Marteinsson.
Ég bloggaði nær ekkert meðan á dvölinni í Reykjavík stóð. Ég ákvað að hafa gaman af fundinum, njóta góðs spjalls við góða vini og taka því rólega. En nú hefst mesti hiti baráttunnar af fullum krafti og hér verður gargandi skemmtileg pólitík næstu vikurnar, sem ávallt fyrr. Þeim góðu bloggvinum sem sátu landsfundinn vil ég þakka fyrir góð kynni og spjall á fundinum.
Ennfremur vil ég þakka kærlega öllum þeim sem sátu fundinn og komu til mín góðum orðum fyrir skrifin, sérstaklega formanni Sjálfstæðisflokksins sem vék að mér innilegum og notalegum orðum fyrir skrifin. Met ég mjög mikils að vita af því að hann fylgist með því sem hér er skrifað og ennfremur auðvitað öllum sem ég ræddi við á fundinum. Kærar þakkir góðu vinir!
![]() |
Geir: Fer fram á endurnýjað umboð til að stýra næstu ríkisstjórn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.4.2007 | 17:06
Góð stemmning á kraftmiklum landsfundi
Upphaf fundarins í gær var mjög glæsilegt. Diddú og Jóhann Friðgeir sungu af alkunnri snilld nokkur lög. Að því loknu var tjaldið dregið frá og þar birtust fremst formaður og varaformaður flokksins og þétt að baki þeim stóð glæsilegur frambjóðendahópur. Mjög vandað og vel gert. Landsfundur Sjálfstæðisflokksins er mjög sterkur að allri umgjörð. Það er æðsta samkunda stærsta flokks landsins og krafturinn leynir sér ekki.
Það hefur verið mjög gaman að hitta góða samherjaum allt land á þessum fundi. Hér í Höllinni eru góð vinabönd treyst enn og ný myndast. Þetta er skemmtileg vinastund hér. Við söknum þó öll tveggja mætra leiðtoga í sögu flokksins, sem geta því miður ekki setið landsfund, í fyrsta skipti í fjóra áratugi. Davíð Oddsson, farsæll leiðtogi í einn og hálfan áratug, er staddur erlendis í embættiserindum og Björn Bjarnason er á sjúkrahúsi.
Þeim hafa verið sendar góðar kveðjur af fundinum. En héðan er semsagt allt gott að frétta. Eins og gefur að skilja get ég ekki skrifað með sama krafti og áður meðan á landsfundi stendur en ég mun þó reyna að senda stöku línu þegar að gott tækifæri gefst.
![]() |
Bjartsýni sögð einkenna landsfund Sjálfstæðisflokksins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
12.4.2007 | 08:09
Hver verður framtíð Silvíu Nætur?
Ævintýrið um Silvíu Nótt tók á sig nýjan og athyglisverðan vinkil fyrir nokkrum vikum þegar að Ágústa Eva Erlendsdóttir, skapari glamúrgellunnar miklu, felldi grímu hennar og kom fram í eigin persónu í Sunnudagskastljósi Evu Maríu. Þar talaði Ágústa Eva opinskátt um þessa athyglisverðu hlið sem hún hefur skapað með þessum karakter. Ágústa Eva hefur bæði hneykslað og glatt landsmenn með þessum karakter í rúm tvö ár og tekið allan skalann í tilfinningatúlkun.
Öll þjóðin hefur fylgst með Silvíu Nótt á þessum tíma. Ég horfði fyrir nokkrum vikum á þátt með henni á Skjá einum. Frekar fannst mér hann stuðandi, enda er það eflaust markmiðið með þáttunum. Þetta drama hefur þó að ég held orðið mun meira og sterkara en stefnt var að. Kannski varð líka ádeilan öðruvísi og beindist í aðrar áttir en áður var stefnt að.
Það er freistandi að spyrja hvort ævintýrinu mikla með Silvíu Nótt sé að ljúka eða hreinlega á enda nú. Það væri ekki undarlegt yrði svo, enda virðist mesta fúttið úr karakternum. En hún hafði áhrif með karakternum, kannski öfug áhrif. Eins og fram kom átti Silvía Nótt að vera ádeila, en að mörgu leyti má vera að karakterinn hafi þróast í aðrar áttir.
Allavega, varð þetta ævintýri eflaust mun hástemmdara og háfleygara en stefnt var sennilega að. Og það er auðvitað með vissum ólíkindum hversu langt Ágústu Evu tókst að koma með karakterinn og eiginlega hversu lengi hún lifði í gegnum hann. Ágústa Eva er leikkona mikilla tækifæra. Hún ætti held ég frekar að nýta þau með öðrum hætti en í gegnum þennan karakter.
Ætli það sé annars búið að gera upp Silvíu Nótt? Það verður fróðlegt að sjá hver framtíð hennar og skaparans verður.
12.4.2007 | 08:05
Landsfundur Sjálfstæðisflokksins hefst í dag

Ég hafði áður ætlað mér að fljúga, en ákvað að hætta við það. Enda er mun skemmtilegra að taka góðan bíltúr suðurleiðina og ræða við gott fólk á leiðinni. Ég mun fara keyrandi suður með Kristjáni Þór Júlíussyni, leiðtoga Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu og fyrrum bæjarstjóra hér á Akureyri, og fleira fólki. Eflaust verður rætt um pólitík á leiðinni.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:21 | Slóð | Facebook