Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
25.1.2008 | 16:56
McCain á sigurbraut - töggur í mömmunni

Flestir telja Giuliani búinn að vera, hann sígur í öllum fylkjum og hefur misst flugið í landskönnunum. Sú djarfa strategía hans að sleppa baráttunni í fyrstu fylkjunum í baráttunni, stóla á að slagurinn yrði enn opinn þegar að kæmi að Flórída, og fókusera þess í stað á það fylki, virðist ætla að verða ein sú glataðasta í seinni tíma stjórnmálasögu. Kannanir sýna vel að hann er að hrapa í fylgi í fylkinu og þar verði slagurinn milli McCain og Romney. Tapi Giuliani illa þar á þriðjudag er þessu lokið - það er ekki flóknara. Þvílíkt stjörnuhrap.
Annars finnst mér stóra stjarnan í liðssveit McCain þessa dagana vera mamma hans, Roberta McCain. Það er töggur í þessari öldnu kjarnakonu, sem hátt á tíræðisaldri, er á fullri ferð með kosningamaskínu sonarins, ferðast um landið og kemur fram með honum og einnig í viðtölum. Og þar fer ekki hin heklandi amma sem talar rósahjal um fjölskylduna og pólitík, onei þar er kona með skoðanir og talar hreint út. Var alveg magnað að sjá hana tala hreint út í viðtali um stuðning forystu repúblikana við son hennar.
Hún var ekki að skafa utan af því og sagðist ekki hafa séð hann enn, en bætti við með glotti að það væri kannski stutt í hann. Ef að sonur hennar tekur Flórída myndi ég fara að búast við því allavega. Þetta er eiginlega sönn og tær stjarna og það sem meira er að hún vekur athygli og hefur greinilega mikil áhrif á vissa hópa í baráttunni. Fjölmiðlarnir virðast dýrka hana og hún er sífellt meira áberandi. Enda skrambi skemmtileg og orðheppin. Þetta er sannarlega ein af hinum sönnu hvunndagshetjum.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
25.1.2008 | 15:48
Hjaðningavíg Framsóknar eru sjálfskaparvíti

Fræg vinslit og hnífaslagur hans við fornan samherja hafa líka orðið að örlagastungu í flokkskjarnann, sem jafnvel verður banastunga. Talað hefur verið um hnífasett, sem segir allt sem segja þarf. Þessi hjaðningavíg Framsóknar eru auðvitað algjört sjálfskaparvíti eins og Guðni Ágústsson bendir réttilega á. Þar hefur tímanum frekar verið varið í að höggva hvorn annan en sinna pólitík. Enda er svo komið að flokkurinn er algjörlega kominn að fótum fram og ekki vitað einu sinni hvort að hann nái aldarafmæli eftir átta ár.
Guðni ætti reyndar að þekkja svona hjaðningavíg manna best. Í mörg ár tókst hann á við Halldór Ásgrímsson og var aldrei treyst af honum fyrir völdum og áhrifum. Þegar að Halldór hafði brennt allar brýr að baki sér og fór af velli mæddur og uppgefinn, búinn með sitt pólitíska kapítal, ætlaði hann að taka Guðna með sér í fallinu. Gat ekki unað honum valdasessi í flokknum. Allt var reynt til að ganga frá pólitískum ferli Guðna og óvönduðum meðölum beitt í því skyni eins og Guðni segir sjálfur frá í ævisögu sinni, sem var opinskátt uppgjör við Halldórsarminn og átti að vera stökkpallur Guðna til forystu í flokknum á næstu árum - tilraun hans til að sýna að þar færi ekki biðleikur í valdaleysi flokksins.
Það hefur verið svolítið raunalegt að sjá Framsókn fuðra svona upp. Þetta er eins og að horfa á sögufrægt hús fuðra upp í eldsvoða og eigendur hússins horfa á, af miklum vanmætti og með tárin í augunum, en geta ekkert gert til að slökkva eldinn. Þess virðist beðið að eldurinn slökkni og hægt verði að flikka upp á rústirnar og byggja á sama stað. Sögufrægar tengingar flokksins virðast glataðar, sérstaðan er farin í pólitískri hugsjónasögu, og eftir stendur flokkurinn í óvissuferð án veganestis, eins og ég sagði frá í skrifum mínum í gær.
Sú var tíðin að ég taldi að Framsóknarflokkurinn væri ódrepandi flokkur, hann myndi alltaf geta risið upp úr erfiðleikum. Er farinn að efast um það. Vandræði hans á síðustu árum formannsferils Halldórs Ásgrímssonar voru eðlilega merkt honum. Forsætisráðherraferill hans var sorgarsaga á við grískan harmleik. Halldór fór úr pólitík illa særður og naut aldrei þess að sitja í embættinu sem hann hafði svo lengi stefnt að, og átti að hafa styrkleika til að gegna. Þrátt fyrir það sökkti þetta embætti honum endanlega. Flokkurinn tók dýfuna með honum.
Þrátt fyrir að Halldór tæki á sig ábyrgð á fallandi gengi flokksins hefur hann ekki risið. Vandræðin hafa haldið áfram og orðið hálfu verri. Val Halldórs á eftirmanni til að svína yfir Guðna, tilraunin til að manípúlera forystuhlutverkinu framhjá vinsælum varaformanni, fór illa með flokkinn og hann sökk í þingkosningunum 2007, formaðurinn sat eftir án kjörs í höfuðborginni og var ekki sætt áfram. Nýr formaður tók við allt að því fyrirtæki í greiðslustöðvun, sem var komið að fótum fram. Þar hefur ekkert lagast og fylgi flokksins er enn innan við tíu prósent.
Það er ljóst að Framsókn er á krossgötum í valdaleysi í borgar- og landsmálum í fyrsta skipti í einn og hálfan áratug. Barátta hans er fyrir því að halda velli. Allir krónprinsar Halldórs hafa runnið út úr pólitík við lítinn orðstír og Halldórsarmurinn margfrægi virðist standa og falla nú með Valgerði Sverrisdóttur, kjarnakonunni frá Lómatjörn, sem virðist reyndar eini stjórnarandstæðingurinn með lífsmarki og pólitískt veiðieðli. Guðni er enn að finna fiðluna sína og reyndar óvíst hvort að hann hafi styrkleika til að halda velli í gegnum það sem koma skal.
Það er allt í einu orðin alvöru spurning hvort að Framsókn lifi fram að aldarafmælinu. Þetta eru vond örlög sem Framsókn hefur upplifað. Þar er hinn gamli og trausti flokkur valdanna orðinn allt í einu að illa leiknu gatasigti, fleytu sem varla er fær til sjóferða. Þetta eru grimm örlög og allir stjórnmálaáhugamenn spyrja sig að því hvort að hann geti risið upp úti í sveit undir leiðsögn Guðna, nú þegar að höfuðborgaruppbygging flokksins hefur hrunið eins og spilaborg í logni.
![]() |
Átök framsóknarmanna í Reykjavík hafa jaðrað við mannvíg |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
24.1.2008 | 23:01
Prodi segir af sér - Ólífubandalagið fallið á Ítalíu

Prodi hefur verið forsætisráðherra í tæp tvö ár, frá því í maí 2006, en Ólífubandalagið vann nauman sigur í þingkosningum á Ítalíu í apríl 2006. Hefur bandalagið aðeins haft eins sætis meirihluta í efri deildinni og missti þrjá þingmenn fyrir borð fyrir nokkrum dögum. Í kjölfarið bar stjórnarandstaðan fram vantrauststillögu á stjórnina og hefur nú haft sigur. Þetta er í annað skiptið á innan við ári sem Prodi segir af sér. Hann tapaði kosningu um utanríkismál í efri deildinni í febrúar 2007 en nú fær stjórnin sjálf skell og getur ekki setið lengur.
Ólífubandalagið er bandalag alls níu vinstriflokka með mjög ólíka eigin stefnu og það hafa flestir séð allan þennan tíma að það yrði erfitt ef ekki ómögulegt að halda völdum allt kjörtímabilið og ná samkomulagi í öllum málum við svona aðstæður í tveim þingdeildum og halda jafnvægi allan tímann. Það er enda svo að Romano Prodi er ekki leiðtogi neins flokksins heldur bara forsætisráðherra í nafni flokkanna níu og andlit þeirra.
Prodi var forsætisráðherra í nafni samskonar bandalags á árunum 1996-1998 en gafst þá upp og aðrir tóku við og kláruðu kjörtímabilið. Varð síðar forseti ESB en sneri aftur í ítölsk stjórnmál til að leiða Ólífubandalagið. Það virðist vera að litríkum ferli hans sé lokið, enda varla sætt lengur með falli vinstriaflanna. Hann tók þó áhættuna með að fara í kosninguna, þvert á allar ráðleggingar og verður að horfast í augu við það tap og að hafa misst taflið úr höndum sér.
Vinstrimaðurinn Giorgio Napolitano er forseti Ítalíu. Það verður hans að meta nú stöðuna, ræða við leiðtoga flokkanna og kanna hvað sé rétt að gera. Það eru ekki liðin tvö ár frá þingkosningum og fróðlegt að sjá hvort Napolitano felur þjóðinni að leysa úr erfiðri pólitískri stöðu með því að óska eftir áliti landsmanna eða felur öðrum völdin. Napolitano vildi að Prodi segði af sér fyrir kosninguna. Það hefði tryggt honum opnara spil en nú það sem nú blasir við.
Eftir stendur að vinstristjórnin er ekki starfhæf, enda búin að missa meirihlutann í efri deildinni. Þegar að Prodi hrökklaðist frá völdum fyrir áratug var skipt um forsætisráðherra og tímabilið klárað. En á móti kemur að stjórnin fellur í vantraustskosningu nú og varla getur Napolitano með trúverðugum hætti farið framhjá þeirri staðreynd að Ólífubandalagið er fallið.
Eflaust óttast Napolitano forseti að Silvio Berlusconi komist til valda með kosningum nú. Þetta er mjög erfið staða og vandséð hvernig að hún verður leyst öðruvísi með sómasamlegum hætti en með þingkosningum, þar sem stjórnin er fallin.
![]() |
Prodi sagði af sér |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.1.2008 | 21:00
Hamingjuóskir til nýs borgarstjóra
Á fyrstu landsfundum Sjálfstæðisflokksins sem ég sat var Ólafur F. þar, þá vara- og borgarfulltrúi í Reykjavík fyrir flokkinn. Man vel eftir landsfundinum 2001 þar sem deilt var um Kárahnjúkavirkjun. Þar lét Ólafur sverfa til stáls í andstöðu gegn virkjuninni og varð undir. Hann hafði vissulega umdeildar skoðanir og þær fóru ekki saman með öllum öðrum í Laugardalshöll þá. Það var eftirminnileg umræða um tillögur andstæðinganna og Ólafur barðist af krafti. Hann varð undir í kosningunni og ákvað í kjölfarið að yfirgefa flokkinn. Þá sem alla tíð lét hann málefnin ráða og barðist fyrir sannfæringu sinni.
Ólafur F. Magnússon á átján ára feril að baki sem aðal- og varamaður í borgarstjórn Reykjavíkur og aðeins Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson setið lengur þar. Margir, þar á meðal ég, töldu að Ólafur ætti ekki möguleika á að ná kjöri í borgarstjórnarkosningunum 2002. Eftir að hann yfirgaf Sjálfstæðisflokkinn myndaði Ólafur F. F-listann með frjálslyndum og var óháður fulltrúi í forystu framboðslistans á meðan að Margrét Sverrisdóttir, þáverandi framkvæmdastjóri Frjálslynda flokksins, tók annað sætið sem flokksfulltrúi. Ólafur F. mældist ekki inni í borgarstjórn alla kosningabaráttuna en náði kjöri með eftirminnilegum hætti á fimmta tímanum á kosninganótt.
Þá kom fylgissveifla til F-listans og tryggði hann stöðu sína enn með utankjörfundaratkvæðum. Hafði hann verið farinn heim að sofa þá og taldi sig ekki lengur eiga von á að ná kjöri. Eru eftirminnilegar fréttamyndirnar frá þessari nótt þegar að Ólafur F. kom til baka í gleði stuðningsmanna sinna og ávarpaði þá. Þarna vann hann sigur á öllum skoðanakönnunum. Í kosningunum 2006 bætti F-listinn við sig nokkru fylgi og var ekki fjarri því að ná inn Margréti Sverrisdóttur í borgarstjórn. Hlaut listinn yfir 6000 atkvæði og 10% atkvæða - varð stærri en Framsóknarflokkurinn. Sjálfstæðisflokkurinn og F-listinn felldi R-listaöflin frá völdum eftir tólf ára valdasetu.
Þrátt fyrir að Ólafur hafi verið valinn maður ársins 2001 á Rás 2 vegna málefnabaráttu sinnar í virkjunarmálinu hefði fáum órað fyrir því þegar að hann yfirgaf Sjálfstæðisflokkinn og stökk í djúpu laugina að hann ætti eftir að verða borgarstjóri í Reykjavík og það í meirihlutasamstarfi með Sjálfstæðisflokknum. En sú hefur nú orðið raunin. Það er ánægjulegt að sjá þennan fyrrum flokksfélaga sameinast að nýju sjálfstæðismönnum í borgarstjórn í samstarfi, en með sumum þeirra hefur hann unnið allt frá því að hann varð varaborgarfulltrúi í nafni flokksins.
Ég hef alla tíð borið nokkra virðingu fyrir Ólafi F. Magnússyni sem stjórnmálamanni, þó ekki hafi ég reyndar alltaf verið sammála honum. Hann hefur verið ötull talsmaður mannúðlegra áherslna og verið fulltrúi málefnalegrar stjórnmálabaráttu - látið málefnin tala og farið eftir sannfæringu sinni í pólitískri baráttu. Það er mikil áskorun fyrir hann að taka við borgarstjórastarfinu og ég vona að honum farnist vel. Nú þegar hefur hann fengið mörg mál í gegn og lætur verkin tala.
Það er til skammar hvernig hrópað var fúkyrðum og ómálefnalegu ógeði að Ólafi F. Magnússyni á borgarstjórnarfundi í dag. Ungliðar vinstriaflanna gerðu sig að fíflum með skrílslátum sínum í dag. Þau misstu algjörlega marks og fóru yfir strikið.
![]() |
Ólafur hyggst láta verkin tala |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
24.1.2008 | 14:32
Barnaleg mótmæli vinstriungliða í Ráðhúsinu
Það var sorglegt að horfa á barnalega framkomu ungliðahreyfinga vinstriaflanna í fundarsal borgarstjórnar Reykjavíkur eftir hádegið. Mér finnst framkoma þeirra grafa undan trúverðugleika pólitísks starfs þeirra og gera lítið úr lýðræðinu. Það að lýðræðislega kjörnir fulltrúar geti ekki komist að til að tala á fundi sem þessum er algjörlega óásættanlegt og ekki viðunandi að mínu mati.
Þau eru með þessu að reyna að stöðva af meirihlutalýðræði í landinu og starfsemi þeirrar stofnunar sem stýrir stærsta sveitarfélagi landsins. Það er eðlilegt að krafa sé gerð um að fólk sem tekur þátt í pólitísku starfi hafi vitsmuni og þroska til að haga sér eins og fullorðið fólk en ekki einhverjir vanvitar sem gera lítið úr því valdi sem lýðræðislega kjörnir fulltrúar hafa. Það er ekki hægt að taka svona fólk alvarlega. Múgæsing af þessu tagi þjónar engum tilgangi og er til skammar. Hafi fólk ekki stillingu og leyfi ekki lýðræðislega kjörnu fólki að tala og vinna sitt verk á vinnustað sínum er mjög illa komið.
Það neitar enginn því að það er ítalskt ástand í borgarmálunum. Meirihlutar geta komið og farið eins og ég skrifaði hér áðan. Þetta er ekkert nýtt í sveitarstjórnarmálum á Íslandi. Reykjavík er ekki fyrsta sveitarfélagið þar sem meirihlutar falla á yfirstandandi kjörtímabili og nýjir myndist. Það leysir þó engan vanda að geta ekki sýnt stillingu og yfirvegun og ætla að hleypa fundi lýðræðislega kjörinna fulltrúa með afgerandi umboð upp í rugl og að fólk láti eins og boltabullur. Það er ekki leiðin að beita ofbeldi, það er til skammar fyrir viðkomandi að mínu mati.
Fyrir 100 dögum tók við nýr meirihluti í Reykjavík. Þá fóru valdaskipti fram með sama hætti og í dag. Sjálfstæðisflokkurinn stóð ekki fyrir neinu ofbeldi á lýðræðinu við þau valdaskipti og tók þeim valdamissi eins og siðsamlegt fólk, beitti ekki öskrum og boltabullulátum í sal borgarstjórnar, þó valdaskiptin hafi auðvitað verið þeim á móti skapi. Það eru tilfinningar í stjórnmálum og eðlilegt að sýna þær, en það verður líka að sýna stillingu. Það er viss list út af fyrir sig.
En þeir sem stóðu fyrir þessu rugli í dag eru að varpa dökkum bletti yfir pólitískt starf, sérstaklega ungliðastarfið. Þessi öskur inni á fundinum eru engum til sóma og ég segi fyrir mig sem ungliðastjórnmálamaður í mörg ár að mér finnst þetta til skammar og finnst það ekki málstað neins til sóma að ætla að beita ofbeldi til að koma í veg fyrir að lýðræðið hafi sinn gang.
![]() |
Mótmælendur yfirgefa Ráðhúsið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (44)
24.1.2008 | 13:08
Hvar voru þessir ungliðar í október 2007?

Þeir sem sitja fundinn hafa umboð úr kosningum til fjögurra ára og því verður ekki breytt þó einn meirihluti falli og fylgismenn hans hafi ekki þroska eða vitsmuni til að virða lýðræðið.
Hvar voru þessir ungliðar í október 2007? Svari hver sem vill.
![]() |
Hávær mótmæli í Ráðhúsinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (23)
24.1.2008 | 12:25
Barnaskapur í Ráðhúsi Reykjavíkur

Finnst fólk gera sig að hreinum fíflum með svona vinnubrögðum. Meirihlutar koma jú og fara í sveitarstjórnum. Þannig getur hið pólitíska eðli orðið þar sem engum einum aðila eru falin völd með skýrum hætti. Vissulega er þetta sögulegt kjörtímabil í Reykjavík. Í síðustu kosningum náði enginn einn flokkur eða bandalag flokka meirihluta í borgarstjórn í fyrsta skipti frá borgarstjórnarkosningunum 1978 og semja þurfti. R-listinn hafði geispað golunni og Sjálfstæðisflokkurinn fékk ekki umboð til að leiða borgina einn, eins og kannanir höfðu bent til að gæti orðið lengi vel í kosningabaráttunni. Þá þegar var ljóst að staðan öll væri mun opnari og opið á ítalskt ástand þar sem meirihlutar gætu komið og farið, eins og gerist oft í öðrum sveitarfélögum víða um landið.
Staðan í Reykjavík er auðvitað ekki góð. En lýðræðislega kjörnir fulltrúar hafa umboð til verka. Það verður ekki kosið þó að einn meirihluti falli og stuðningsmönnum fallins meirihluta líki ekki valdaskiptin. Umboðið er fjögur ár og kjörnum fulltrúum ber sú skylda að mynda nýjan meirihluta falli sá sem fyrir er og ekkert annað er í stöðunni. Það er fjarstæða að tala um upplausn þegar að kjörinn fulltrúi með fullt umboð úr kosningum sér hag sínum ekki borgið í meirihlutasamstarfi og heldur í aðrar áttir og myndar nýjan meirihluta. Það má vel vera að vinstrisinnuðum ungmennum líki þetta ekki í Reykjavík, en það er fjarstæða að þetta sé eitthvað nýtt í pólitík.
Sjálfstæðisflokkurinn missti völdin fyrir þrem mánuðum. Þá mynduðu lýðræðislega kjörnir fulltrúar, sem höfðu meirihluta, framhjá honum, sem stærsta afli borgarstjórnar Reykjavíkur, nýtt afl til valda. Það var þeirra réttur. Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík hlaut ekki hreinan meirihluta og varð að sætta sig við, þó sárt væri auðvitað, að valdið gæti færst annað. Þá deildi enginn um umboð Björns Inga Hrafnssonar, sem kjörins fulltrúa, að fara annað og þær hreyfingar sem helst skæla og öskra út í valdamyrkrið nú tóku við völdum með sama hætti og gerist með nýjan meirihluta á morgun. Átta aðalmenn borgarstjórnar mynduðu nýjan meirihluta - sá fyrri féll með skelli.
Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík sætti sig við það áfall. Það var ekki hans stíll að fara að starta marklausum netundirskriftasöfnunum þar sem hægt er að falsa inn hvaða nafn sem er, senda út ályktanir án þess að horfa á samhengi hlutanna eða mótmæla á fundarstað valdaskiptanna. Það er einu sinni þannig að þeir sem hafa umboð til valdasetu geta myndað nýjan meirihluta, skipt um skoðun, á hvaða tímapunkti. Það gerði Björn Ingi í október og það gerir Ólafur F. nú. Aðstæðurnar eru þær hinar sömu - nýr meirihluti hefur vald til breytinganna. Það deilir enginn um það vald, þó vissulega séu sárindi. Eðlilegt er að það séu sárindi.
En það verður að hugsa rökrétt og láta ekki eins og smábörn þegar að stjórnmál eru annars vegar.
![]() |
Mótmæla nýjum meirihluta í borginni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
24.1.2008 | 10:14
Björn Ingi yfirgefur stjórnmálin með sviðna jörð
Þegar að Björn Ingi stakk sjálfstæðismenn í bakið í október og myndaði meirihluta framhjá þeim var honum spáð gulli og grænum skógum og rósrauðri sigurgöngu til fullra yfirráða á næstu árum í Framsóknarflokknum og myndi hjóla í Guðna Ágústsson á næsta flokksþingi. Þá skrifaði ég reyndar með þeim hætti að Björn Ingi hefði tvíeggjað sverð í höndum og aldrei að vita nema að hann myndi grafa eigin gröf með því valdatafli. Á hundrað dögum hefur það orðið raunin. Sigurgangan varð engin og hann fer frá borði mjög skaddaður og búinn að missa allt sem hann hafði í raun barist fyrir frá því að hann tók við forystuhlutverkinu af Alfreð Þorsteinssyni í borginni fyrir tveim árum. Þar var allt farið veg allrar veraldar.
Það er heiðarlegt mat að ætla að fall meirihlutans í október hafi verið örlagaspil sem Björn Ingi hafi fallið á. Hinsvegar er greinilegt að eldar hafa kraumað mjög lengi innan Framsóknarflokksins í Reykjavík og það var aðeins tímaspursmál hvenær að syði upp úr. Þegar að allt blossaði þar upp með hjaðningavígum í fjölmiðlum, en ekki bara bakvið tjöldin, má segja að öllu hafi verið lokið. Þó væri gott að vita hvað gerðist í lokahluta átakanna, einmitt á bakvið tjöldin. Þar virðist mikið hafa gengið á. Guðjón Ólafur Jónsson var lykilspilari í þeim hluta - hann reyndist bæði klókari og gáfaðri vígamaður en Björn Ingi gat ráðið við.
Það verður áhugavert að sjá hvernig að Óskar Bergsson muni standa sig sem leiðtogi Framsóknar í Reykjavík og borgarfulltrúi. Hann hefur verið lengi í innra starfi flokksins og var varamaður í borgarstjórn á þeim tíma er Sigrún Magnúsdóttir og Alfreð Þorsteinsson leiddu flokkinn innan R-listans. Nú ætti Framsókn að fá vinnufrið að rétta sig af, í kjölfar þess að missa völdin í borginni eftir fjórtán ára lykilstöðu í meirihluta borgarstjórnar. Geti hann ekki risið upp úr duftinu í þeim vinnufrið er honum þó öllum lokið - alls óvíst er að hann hafi það sterka stöðu að geta farið í aðrar kosningar og berjast fyrir því að ná völdum aftur.
Björn Ingi yfirgefur sviðið, greinilega særður og vankaður, eftir átök jafnt við andstæðinga innan og utan flokka. Margir höfðu spáð honum frama og frægð, fullum völdum í þessum forna bændaflokki og hann gæti leitt hann inn í nýja tíma á mölinni. Það er nú allt farið veg allrar veraldar og Björn Ingi fer með hnífinn í bakinu af velli. Hann féll vegna innanmeina flokks í vanda og átaka, féll í átökum sem hann hóf sjálfur, bæði í baráttu við samherja sem andstæðinga. Honum hefndist fyrir að hefja hið ítalska ástand í borginni með því að fella meirihluta með sjálfstæðismönnum og valdataflið hans sprakk framan í hann.
Áhugavert verður að sjá hvað framtíðin beri í skauti sér fyrir hinn valdalausa Framsóknarflokk í borgar- og landsmálum. Í fyrsta skipti í fjórtán ár stendur hann berskjaldaður. Þar verður nú barist hatrammlega fyrir því að endurheimta þá fornu gullaldartíð er hann skipti raunverulega máli í íslenskum stjórnmálum, var flokkur með sérstöðu og lykiláherslur, sem hann hefur misst með falli samvinnuvaldsins. Varnarbarátta Framsóknar í því valdaleysi verður að baráttu fyrir því að halda velli sem heild. Hann stendur illa og virðist ekki burðugur.
Nú færist Framsóknarflokkurinn til forns uppruna síns - lykiláherslur byggðar á uppruna sveita landsins - verður hinn gamaldags félagshyggjusinnaði bændaflokkur, eins og var á dögum Steingríms Hermannssonar og Ólafs Jóhannessonar. Höfuðborgaruppbygging flokksins undir leiðsögn Halldórs Ásgrímssonar er orðin gjaldþrota með skelli - sérvaldir krónprinsar hans hafa nú allir yfirgefið sviðið við lítinn orðstír og arfleifð Halldórs innan flokksins er gufuð upp, utan þess að Valgerður frá Lómatjörn er ein eftir henni til varnar.
Í því felast þau tíðindi helst að flokkurinn stendur og fellur með landsbyggðinni. Hann hefur hörfað særður til upprunans og reynir að eiga endurkomu þar. Krónprinsinn sem margir spáðu konungsríkinu hefur skilað veldissprotanum, með sviðna jörð á eigin velli, og hefur glutrað með eigin verklagi þeim völdum sem honum voru falin, féll í valinn pólitískt vegna eigin ákvarðana á hundrað sviptingasömum dögum valdatafls. Eftir stendur flokkur í óvissuferð án veganestis.
![]() |
Björn Ingi hættir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
24.1.2008 | 01:09
Björn Ingi segir af sér og hættir í stjórnmálum
Björn Ingi Hrafnsson, borgarfulltrúi og fráfarandi formaður borgarráðs, hefur ákveðið að segja af sér á fundi borgarstjórnar Reykjavíkur í dag og hætta þátttöku í stjórnmálum. Þetta eru mikil tíðindi - en þurfa þó ekki að koma að óvörum. Staða Björns Inga hefur orðið vonlaus á síðustu dögum í skugga hneykslismáls vegna umdeildra fatakaupa (skattalagabrota) og falls vinstrimeirihlutans sem Björn Ingi múraði sig inn í eftir svikin við sjálfstæðismenn í haust og hætti öllu fyrir.
Björn Ingi kom sem mikil vonarstjarna inn í íslensk stjórnmál árið 2002 og virtist hafa sterka stöðu í upphafi innan Framsóknarflokksins, var náinn samstarfsmaður Halldórs Ásgrímssonar, fyrrum forsætisráðherra og formanns Framsóknarflokksins, og samherja hans, og voru falin mikil og voldug verkefni allt frá fyrsta degi og varð frambjóðandi í öðru sæti á lista Framsóknarflokksins í Reykjavík suður, á eftir Jónínu Bjartmarz, í þingkosningunum 2003. Í kjölfarið varð hann aðstoðarmaður Halldórs í utanríkisráðuneytinu og síðar í forsætisráðuneytinu, þar til að Halldór hætti þátttöku í stjórnmálum sumarið 2006, eftir litríkan og stormasaman feril. Fáir stóðu honum nær síðustu árin en Björn Ingi.
Í kjölfar ákvörðunar Alfreðs Þorsteinssonar að hætta í stjórnmálum í nóvember 2005 gaf Björn Ingi kost á sér til leiðtogahlutverks framsóknarmanna í borgarstjórn, þar sem flokkurinn bauð í fyrsta skipti fram í borgarmálum í eigin nafni í tólf ár. Sigraði hann leiðtogaslag í prófkjöri í janúar 2006 gegn Önnu Kristinsdóttur og Óskari Bergssyni. Í kjölfarið ákvað Anna, sem var sitjandi borgarfulltrúi framsóknarmanna innan R-listans frá árinu 2002, að hætta í stjórnmálum og taka ekki annað sætið, sem hún hafði hlotið á listanum. Óskar færðist upp í sætið í hennar stað. Kosningabaráttan varð Framsókn erfið og illa horfði lengi vel, öll sund virtust flokknum lokuð.
Það var fyrst í síðustu viku kosningabaráttunnar sem að Björn Ingi mældist inni í skoðanakönnunum og með von á kjöri. Tókst honum með markvissri baráttu, miklum auglýsingum og sterkri strategíu að hala sér inn en naumt var það. Í kjölfarið ákvað hann að taka upp samstarf við Sjálfstæðisflokkinn og slíta á R-listatengslin. Lengi framan af virtist samstarf Björns Inga og Vilhjálms Þ. ganga vel og virkuðu þeir nánir sem samrýmdir feðgar með einbeittan hug. Í hita hins funheita REI-máls á örfáum dögum í október 2007 lauk samstarfinu og Björn Ingi stakk sjálfstæðismenn í bakið og myndaði meirihluta framhjá þeim.
Með því að fara til vinstri lokaði Björn Ingi á alla aðra kosti, múraði sig inni með fyrrum minnihlutaöflum. Það varð honum því allt að því pólitískt lífsspursmál að meirihlutinn héldi velli. Um leið minnkuðu áhrif hans sjálfs til muna, sem varð æ greinilegra eftir því sem frá leið. Hann var barinn til hlýðni í vissum lykilmálum og svigrúm hans varð miklu minna. Það mátti sjá í áramótaþætti Egils Helgasonar að Björn Ingi var ekki eins sigurreifur og nokkrum vikum áður er hann virtist vera hamingjusamasti maður borgarinnar. Að því kom að meirihlutinn sprakk eftir aðeins hundrað daga.
Og nú er Björn Ingi farinn af sviðinu og felur Óskari Bergssyni leiðtogahlutverk Framsóknarflokksins í Reykjavík. Það sést vel á atburðarás síðustu daga að það er mjög skaddað fley - Björn Ingi skilur eftir sig sviðna jörð í flokkskjarnanum í borginni. Með vinnubrögðum Björns Inga og valdatafli felast endalok valdamaskínu Framsóknar í borgarmálunum eftir fjórtán ára samfellda vist í meirihluta. Þar tekur við nöpur minnihlutavist án valda. Björn Ingi, sem virtist hafa öll tækifæri og öll tromp á hendi fyrir nokkrum vikum og virtist hafa stöðu til formennsku í Framsókn, hefur misst sína stöðu.
Það er því skiljanlegt að hann fari. En mikið er nú annars stjörnuhrapið hans Björns Inga og leitun að öðrum eins endalokum. Eftir allt sem á undan er gengið hrósar Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, maðurinn sem Björn Ingi stakk í bakið, sigri í valdabaráttu síðustu vikna og Björn Ingi, krónprinsinn ungi, hefur sagt sig frá veldissprota sínum. Þetta eru mikil pólitísk tíðindi. Og eftir stendur flokkur í vanda með vonda stöðu og vonlausan kapal í höndunum.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 02:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
23.1.2008 | 23:59
Ungliðahreyfingar í þörf fyrir áfallahjálp

Meirihlutar koma og fara í sveitarstjórnum. Þannig getur hið pólitíska eðli orðið þar sem engum einum aðila eru falin völd með skýrum hætti. Vissulega er þetta sögulegt kjörtímabil í Reykjavík. Í síðustu kosningum náði enginn einn flokkur eða bandalag flokka meirihluta í borgarstjórn í fyrsta skipti frá borgarstjórnarkosningunum 1978 og semja þurfti. R-listinn hafði geispað golunni og Sjálfstæðisflokkurinn fékk ekki umboð til að leiða borgina einn, eins og kannanir höfðu bent til að gæti orðið lengi vel í kosningabaráttunni. Þá þegar var ljóst að staðan öll væri mun opnari og opið á ítalskt ástand þar sem meirihlutar gætu komið og farið, eins og gerist oft í öðrum sveitarfélögum víða um landið.
Staðan í Reykjavík er auðvitað ekki góð. En lýðræðislega kjörnir fulltrúar hafa umboð til verka. Það verður ekki kosið þó að einn meirihluti falli og stuðningsmönnum fallins meirihluta líki ekki valdaskiptin. Umboðið er fjögur ár og kjörnum fulltrúum ber sú skylda að mynda nýjan meirihluta falli sá sem fyrir er og ekkert annað er í stöðunni. Það er fjarstæða að tala um upplausn þegar að kjörinn fulltrúi með fullt umboð úr kosningum sér hag sínum ekki borgið í meirihlutasamstarfi og heldur í aðrar áttir og myndar nýjan meirihluta. Það má vel vera að vinstrisinnuðum ungmennum líki þetta ekki í Reykjavík, en það er fjarstæða að þetta sé eitthvað nýtt í pólitík.
Sjálfstæðisflokkurinn missti völdin fyrir þrem mánuðum. Þá mynduðu lýðræðislega kjörnir fulltrúar, sem höfðu meirihluta, framhjá honum, sem stærsta afli borgarstjórnar Reykjavíkur, nýtt afl til valda. Það var þeirra réttur. Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík hlaut ekki hreinan meirihluta og varð að sætta sig við, þó sárt væri auðvitað, að valdið gæti færst annað. Þá deildi enginn um umboð Björns Inga Hrafnssonar, sem kjörins fulltrúa, að fara annað og þær hreyfingar sem helst skæla og öskra út í valdamyrkrið nú tóku við völdum með sama hætti og gerist með nýjan meirihluta á morgun. Átta aðalmenn borgarstjórnar mynduðu nýjan meirihluta - sá fyrri féll með skelli.
Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík sætti sig við það áfall. Það var ekki hans stíll að fara að starta marklausum netundirskriftasöfnunum þar sem hægt er að falsa inn hvaða nafn sem er, senda út ályktanir án þess að horfa á samhengi hlutanna eða mótmæla á fundarstað valdaskiptanna. Það er einu sinni þannig að þeir sem hafa umboð til valdasetu geta myndað nýjan meirihluta, skipt um skoðun, á hvaða tímapunkti. Það gerði Björn Ingi í október og það gerir Ólafur F. nú. Aðstæðurnar eru þær hinar sömu - nýr meirihluti hefur vald til breytinganna. Það deilir enginn um það vald, þó vissulega séu sárindi. Eðlilegt er að það séu sárindi.
En það verður að hugsa rökrétt og láta ekki eins og smábörn þegar að stjórnmál eru annars vegar.
![]() |
Ungliðahreyfingar tjarnarkvartettsins" gefa út sameiginlega ályktun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 24.1.2008 kl. 00:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)